Sameinuðu þjóðirnar I: Forsaga og Þjóðabandalagið

Það líður varla sá dagur, að Sameinuðu þjóðirnar (Sþ) séu ekki nefndar á nafn. Tíðindi úr herbúðum þeirra hafa oft og tíðum yfir sér guðlegan sannleiksblæ. Enda ýta embættismenn þeirra undir slíkan skilning. Einn þeirra sagði t.d. Sþ eiga loftlagsvísindin. Anthony Fauci, fyrrum „heilbrigðiseinvaldur“ Bandaríkjanna og innsti koppur í einni undirstofnanna hennar, Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni, sagði árás á sig jafngild árás á vísindin. Embættismaður Sþ lét sér þau orð um munn fara, að Vladimir Putin hefði séð rússneskum (karl)hermönnum fyrir stinningarlyfi til að auðvelda þeim nauðgun úkraínskra kvenna. Undirstofnun þeirra er ábyrg fyrir skilgreiningu gervialþjóðafaraldurs og önnur fyrir gervihamfarahlýnun. Þriðja undir stofnunin boðar aðgerðir gegn „hatursorðræðu og falsfréttum“ til að tryggja málfrelsi og rétt viðhorf. Aðalritari þeirra boðar ragnarök, hvenær sem færi gefst. Hjá Sþ fer nú fram umræða um að myrkva himininn til að verjast loftlagsbreytingum. Aðalritarinn og Öryggisráðið heykjast við að bera klæði á vopnin í Úkraínustríðinu og láta rannsaka hryðjuverkin í Eystrasalti. Launaspilling þrífst. Hver er trúverðugleiki Sþ.?

Hér verður fjallað um forsögu Sþ til að glöggva okkur betur á trúverðugleika, skipulagi og starfsháttum.

Í Evrópu miðalda voru háð látlaus stríð öldum saman. Þekkt eru t.d. áttatíu ára stríðið og þrjátíu ára stríðið. Um 8 milljónir manna voru lögð að velli. Árið 1648 tókust sögulegir friðarsamningar, kenndir við Westphalen í Þýskalandi. Hvorki meira né minna en 194 ríki tóku þátt.

Það fór ekki hjá því, að vitrir menn reyndu að gera sér í hugarlund, hvernig mætti tryggja frið og komast hjá stríðshörmungunum. Evrópuhugsjónin varð til. Kjarni hennar er fullveldi ríkja innan viðurkenndra landamæra.

Hinn ágæti sagnfræðingur, Guðmundur Hálfdánarson, segir svo frá á Vísindavefnum:

„Á 17. öld, þegar nútímalegt ríkjaskipulag festi sig í sessi í álfunni, komu fram nýjar hugmyndir um sameiningu Evrópu. Einn helsti frumkvöðull þeirra var franski klerkurinn og stjórnarerindrekinn Charles-Irénée Castel de Saint-Pierre (1658–1743), sem gaf út ritið Projet pour rendre la paix perpétuelle en Europe (Áætlun um að koma á varanlegum friði í Evrópu) árið 1713 (frumútgáfa ritsins, Mémoires pour rendre la paix pérpetuelle en Europe, kom út ári áður).

Ritið skrifaði hann sem eins konar uppgjör við stjórnarár Lúðvíks XIV. Frakkakonungs (konungur 1643–1715), en „sólkonungurinn“ hafði leitt miklar hörmungar yfir þegna sína og íbúa nágrannaríkjanna með stöðugu stríðsbrölti.

Til að binda endi á slíkt ástand lagði Saint-Pierre til að komið yrði á evrópsku ríkjasambandi (fr. Fédération Européenne), með aðild 18 helstu kristnu ríkja álfunnar, og Evrópuþingi (fr. Diète générale d‘Europe). Markmiðið var að stofna með þessu eins konar „eilífan gerðardóm“ (fr. un Arbitrage perpétuel), sem tryggði stöðugleika í stjórn ríkjanna, kæmi í veg fyrir stríð á milli þeirra og legði grunn að frjálsum viðskiptum á milli þjóða.

Með þessu vildi hann auka velmegun þegnanna, því að aukin milliríkjaverslun örvaði efnahagslífið og meiri friður dró úr ríkisútgjöldum og þar með þörf ríkjanna fyrir skattheimtu. Ekkert varð úr þessum áætlunum, en greina má enduróm frá hugmyndum Saint-Pierres í skrifum ýmissa heimspekinga upplýsingarstefnunnar, svo sem Jean-Jacques Rousseaus og Immanuels Kants (sbr. rit hans Zum ewigen Frieden, 1795).“

Ríkjasamband samkvæmt hugmyndum Charles-Irénée átti eðlilega erfitt uppdráttar í álfu, þar sem gráðugir hagsmunaaðiljar áttust við. Ásóknin í land, hlunnindi, völd og auðlindir, varð æðisgengin. Samfara nýlendustríðunum og aukinni áherslu á fullveldi þjóðríkja, jókst ásteyting á heimaslóðum Evrópuveldanna. Hildarleikur braust út í Evrópu, sem umbreyttist í fyrstu heimsstyrjöldina með þátttöku Rússa og Japana.

Trúlega hefur blóðbað og hörmungar fyrstu heimsstyrjaldarinnar fengið fólk til að rumska. Allir, nema fjármagnseigendur og hertólaframleiðendur töpuðu á slíku stríði. Sigurvegarar stríðsins settust niður og sömdu um frið í Versölum (Treaty of Versailles), glæsihöll Loðvíks XIV. „Sigurvegararnir hirða allt“ (the winner takes it all), sungu Abba. Þau kynnu að hafa haft Versalasamningana í huga, því Þjóðverjum voru settir afarkostir og neyddir til að axla einar sök á harmleiknum.

Sumir hafa reyndar kallað þetta vopnahlé. T.d. sagði franski yfirhershöfðinginn, Ferdinand Foch (1851-1929): Þetta eru ekki friðarsamningar, heldur tveggja áratuga vopnahlé. Því miður reyndist hann sannspár.

Sigurvegarar fyrstu heimsstyrjaldar gerðu með sér bandalag, Þjóðabandalagið (League of Nations), sem koma skyldi í stað ráðstefna stórveldanna á síðmiðöldum. Þannig raungerðist hugmynd Woodrow Wilson (1856-1924), Bandaríkjaforseta, um samráðsvettvang sjálfstæðra ríkja, stórra og smárra. Þessar hugmyndir hafði hann sett fram árið 1918 í frægri „fjórtán atriða ræðu,“ við friðarumræðurnar í Versölum.

Þjóðabandalagið skyldi annast skiptingu veraldarinnar í ríki og jafna ágreining. Það var sérstaklega tekið fram að gilda skyldu grundvallarreglur um fullvalda þjóðríki, sem virtu hvers annars fullveldi og landamæri. Hér var sem sé fylgt grundvallarreglunni frá friðarsamningunum í Westphalen árið 1648. Kveðið var á um, að hernaðarbandalög skyldu heyra sögunni til og gagnkvæm trygging öryggis koma í staðinn; afvopnun skyldi stuðla að heimsfriði og talað skyldi orðum en ekki vopnum.

En hvaða áhrif hafði stofnun Þjóðabandalagsins á Ísland?

https://www.breitbart.com/environment/2023/02/15/u-n-chief-guterres-warns-of-mass-climate-exodus-on-a-biblical-scale/ https://igorchudov.substack.com/p/the-un-discusses-darkening-the-skies?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.britannica.com/event/Peace-of-Westphalia https://www.historytoday.com/archive/months-past/treaty-westphalia https://reclaimthenet.org/un-says-that-censoring-disinformation-will-protect-free-speech https://www.tv4.se/artikel/12XMxo8NdUhochVvvJV15z/kritik-mot-fn-ukrainachefen-foer-unhcr-tjaenar-enorma-summor?utm_medium=social&utm_source=t.co&utm_campaign=kallafakta https://www.history.com/topics/world-war-i/treaty-of-versailles-1 https://www.bbc.co.uk/history/worldwars/wwone/league_nations_01.shtml https://www.history.com/this-day-in-history/wilson-delivers-fourteen-points-speech https://www.history.com/topics/world-war-i/league-of-nations https://www.youtube.com/watch?v=wr5MBrvnPLw https://www.visindavefur.is/svar.php?id=10568 https://www.althingi.is/altext/52/r_txt/2400.txt https://www.althingi.is/altext/cv/is/?nfaerslunr=119 https://www.althingi.is/altext/cv/is/?nfaerslunr=130 https://www.althingi.is/altext/cv/is/?nfaerslunr=237 https://www.evropuvefur.is/svar.php?id=66226 https://timarit.is/page/4915970#page/n115/mode/2up


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Sept. 2024

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband