Djöfladýrkunarkvenfrelsun, blót, karlfórnir og sitthvað um kostakonur. XIV: Niðurlag

Kvenfrelsarar eru skrítnar skepnur, sem skipast í mörg horn. Móðureðli, hjónaband, vændi, kynskipti og kvenlíki (cyborg feminism), hafa valdið heiftarlegum deilum í sögu hreyfingar þeirra og klofið í herðar niður. Þeir eru þó allir sammála um, að karlar séu kúgarar kvenna.

Síðustu áratugina hafa yngri kvenfrelsarar svarað kalli frá mæðrum og ömmum um þátttöku á öllum opinberum sviðum mannlífsins. Samtímis hafa konur tögl og haldir á heimilunum. Það tak hafa þær raunar hert. Það ber lítið á sanngirninni, mýktinni, skynseminni og friðsemdinni, sem Rauðsokkurnar lofuðu. Skynsamleg staðreyndaumræða er þeim ekki að skapi. Gagnrýni er þögguð niður.

Þöggunin á t.d. við um kynofbeldi kvenna gegn börnum og körlum, svo misnotkun gegn börnum yfirleitt. Svo virðist, sem hún fari vaxandi með aukningu heimila, þar sem móðir ein ræður ríkjum, sbr. rannsóknir í Bandaríkjunum fyrir árið 2022. Á slíkum heimilum er börnum hættast.

Konur hafa sóst mjög eftir þátttöku í stjórnmálum. Norski forsætisráðherrann og stjörnukvenfrelsarinn, Gro Harlem Brundtland (f. 1939), er dæmigerð í þessu sambandi. Hún þáði æðstu embætti hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni og situr nú í hópi mannkynsfrelsunarellismella, sem berst fyrir alheimsstjórn, m.a. í heilbrigðismálum. Það kemur ekki á óvart, að hún skuli stynja undan því, hversu erfitt sé að fá fólk til að hugsa réttar hugsanir.

Bandaríski rithöfundurinn, Julina Rose, segir um kynsystur sína og aðra Alheimsveldissinna: „Þráin til að rugla fólk í ríminu, ástunda spillingu og eyða mannkyni, er illgjörn fyrirætlun, sem einu sinni var dulin, en lýsir sér nú í djöfullegum lifnaði, sem er náskyldur lífsfjandsamlegum lífsreglum geðsjúklinga og stórmennskubrjálæðinga.“

Kvenfrelsunarhreyfingin gekk nefnilega í eina sæng með alþjóðaauðvaldinu fyrir tæpri öld síðan, þáði fé úr hendi þess. Tryggðin við það er óbilandi, hvort heldur sem er í Alheimsefnahagsráðinu (World Economic Forum) eða hjá Sameinuðu þjóðunum. Hreyfingin stundar markvissa eyðileggingu á menningu, tungumáli, fjölskyldu, kyni, samskiptum kynjanna og þjóðveldinu.

Þrátt fyrir ógnarlega valdeflingu beita kvenfrelsarar óspart því valdi, sem felst í verndarhvöt karla og kyntöfrum þeirra sjálfra. Nýjasta dæmið í hæstu hæðum stjórnmálanna er Kamala Harris, forsetaframbjóðandi Lýðræðisflokksins (Demókrata) í Bandaríkjunum. Hún reið upp á topp í Kaliforníu. Það var stökkpallur hennar til Washington.

Þó hefur hún varla slegið við í tálsnilli sjálfri Valeria Messalina (17/20-48), keisaraynju Rómar. Sú er sögð hafa verið með brókarsótt á háu stigi, reið upp metorðastigann og gifti sig öðrum valdakarli, meðan hinn var á ferðalagi. Það er fátt nýtt undir sólinni í þessum efnum.

Leið Kamala á toppinn var sem sé ekki verðleikum stráð, frekar en Valeríu. Kynferði og táldráttur réði úrslitum. Það er eitt af afrekum kvenfrelsaranna að hafa – undir yfirskyni jafnréttis – náð að koma í gegnum þjóðþingin á Vesturlöndum löggjöf, sem tryggir þeim forréttindi á heimavelli, á opinberum vettvangi og í atvinnulífinu. Þær líta þó enn á sig sem fórnarlömb. Það er vörumerki líkast. Kynofbeldi er trompið, sem aldrei bregst frekar en táldrátturinn.

Djöfladýrkun kvenfrelsara síðustu tvær aldirnar eða svo, hefur grópast í samfélagssáluna. Börnum er jafnvel kennd djöfladýrkun, sbr. „Litla djöfulinn,“ þáttaröð fyrir börn frá Disney. Sagan fjallar um Láru (Laura), sem Djöfullinn (Satan) gerir barn. Eftir fæðinguna reynir hann að öðlast yfir barninu forræði.

Kvenfrelsarar hafa raunar alltaf verið með kynlif á heilanum. Sumum ofbauð reyndar fyrir heilli öld síðan. Wilma Meikle skrifaði um það heila bók, „Á leið til heilbrigðrar kvenfrelsunar“ (Towards a Sane Feminism), þegar árið 1917.

Það liggur við að tala megi um kvenfrelsunarsýki: „Vald mitt til að meiða karlmenn eykst með aukinni frægð [minni] og valdeflingu,“ segir kynþokkadísin, Sharon Stone. Kate Blanchett segir „siðferðilegan áttavita“ sinn að finna í „skeiðinni“ (vagina). Whoopi Golberg: Fóstrið er „eitraður hlutur.“

Gleymum heldur ekki íslenskri vansæld Ingibjargar Daggar og vinkvenna hennar: „Veruleiki kvenna er þessi. Kynbundið ofbeldi ógnar lífi þeirra og heilsu. ... Vondi karlinn á sér enga eina birtingarmynd, hann er alls staðar og hvergi og þú veist aldrei hvort eða hvenær þú mætir honum. Stundum þekkir þú hann bara af góðu einu þar til hann snýst gegn þér. Stundum laðar hann þig til sín og brýtur á þér.“

Ótalin er kynleysuhreyfingin, sem á rætur í kvenfrelsunarhugmyndafræði nítjándu aldar, þ.e. að hvorki sé til eiginlegt karl- eða kvenkyn heldur flotkyn. Þessi hugvilla er um það bil að verða þjóðtrú eins og trúin á karlillskuna. Hvort tveggja er kennt í skólum landsmanna. Og fólk spyr sig; hvað amar að blessuðum börnunum? Fen er oft fótum nær en hyggur.

Kvenfrelsunarhreyfingin styður einnig dyggilega áætlanir Alheimsefnahagsráðsins um tölvumennin eða mannlíkin (cyborg feminism). Líffræðingurinn og kvenfrelsarinn, Donna Haraway (f. 1944) skrifaði 1985 „Mannlíkjaávarpið“ (Cyborg Manifesto) eins og Valerie Solanas Kvenveldisávarpið áður, og Friedrich Engels og Karl Marx Kommúnistaávarpið þar á undan.

Kvenfrelsunarvísindamenn ríða röftum og hamast við að færa sönnur á illsku og kúgun karla. Niðurstöður þeirra eru nær ævinlega fyrir fram gefnar. Nokkrar undantekningar finnast þó. Lágkúra kvenfrelsunarvísinda kallast á við eymd og kreppu í veröld vísindanna. Karlvísindi eru ógild og karlar hafa spillt náttúrunni. Hvergi á Íslandi er umhverfisvernd (eco feminism) ofstækisfyllri en í kvenfrelsunarhreyfingum, sbr. VG.

Carrie Gress segir kvenfrelsara ástunda og stuðla að eitraðri kvenmennsku. Hún beinir orðum sínum til kynsystranna:

„Það er kominn tími til þess að snúa heim: Snúa heim og umvefja börnin ástúð í stað þess að láta þau fyrir róða í líkamlegum (biologically) og tilfinningalegum skilningi. Snúa aftur til eiginkarla okkar og snúa bökum saman gegn sameiginlegum óvini í stað þess að gera þá að óvini. Og það er tímabært að rækta okkur sjálfar sem konur og mæður.“

Ætli Mary Chavelita Dunne (1859-1945) hafi haft rétt fyrir sér, þrátt fyrir allt: Kvenfrelsunarhreyfingin, sagði hún, „er bækluð (atrophied) skepna, haldin tilhneigingum til úrkynjunar og kynblöndunar.“

Lesefni og heimildir: Per Faxeld: Satanic Feminism Carrie Gress: Anti-Mary Exposed: Rescuing the Culture from Toxic Femininity Sandra M. Gilbert og Susan Gubar: The Madwoman in the Attic: The Woman Writer and the Nineteenth-Century Literary Imagination Neil Lyndon: Sexual Impolitics: Heresises on Sex, Gender and Feminism Silvia Guerini: From the ‘Neutral’ Body to the Postmodern Cyborg: A Critique of Gender Ideology Mary Harrington: Feminism Against Progress Donna Haraway: A Cyborg Manifesto: Science, Technology, and Socialist-Feminism in the Late 20th Century End of Women. How Smashing the Patriarchy has Destroyed Us https://www.youtube.com/watch?v=Q9gis7-Jads https://www.mfw.org.au/ https://www.youtube.com/watch?v=BjclKI1NyCU https://archive.org/details/towardssanefemin00meikiala https://www.statista.com/statistics/254893/child-abuse-in-the-us-by-perpetrator-relationship/?fbclid=IwY2xjawE-vRJleHRuA2FlbQIxMQABHT4_Sb9LJ6uwC5coXoD-sJ9DMCf1ppUMOpj8f7yjweANXAbaA5JbKYStIw_aem_3cFdwAVt8qmBOSWfqkne8ghttps://www.statista.com/statistics/254893/child-abuse-in-the-us-by-perpetrator-relationship/?fbclid=IwY2xjawE-vRJleHRuA2FlbQIxMQABHT4_Sb9LJ6uwC5coXoD-sJ9DMCf1ppUMOpj8f7yjweANXAbaA5JbKYStIw_aem_3cFdwAVt8qmBOSWfqkne8ghttps://www.statista.com/statistics/254893/child-abuse-in-the-us-by-perpetrator-relationship/?fbclid=IwY2xjawE-vRJleHRuA2FlbQIxMQABHT4_Sb9LJ6uwC5coXoD-sJ9DMCf1ppUMOpj8f7yjweANXAbaA5JbKYStIw_aem_3cFdwAVt8qmBOSWfqkne8g https://archive.org/details/1985.-haraway-a-cyborg-manifesto.-science-technology-and-socialist-feminism/page/1/mode/2up https://www.encyclopedia.com/women/encyclopedias-almanacs-transcripts-and-maps/fuller-margaret-1810-1850 https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304426/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304452/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304469/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304504/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2267198/ https://menaregood.substack.com/p/dr-carrie-gress-on-feminism-destroying?utm_campaign=email-post&r=ry8jq&utm_source=substack&utm_medium=email https://fiamengofile.substack.com/p/the-empress-jenni-hermoso-has-no?utm_campaign=email-post&r=ry8jq&utm_source=substack&utm_medium=email https://www.nationalgeographic.com/history/history-magazine/article/messalina-sex-politics-power-ancient-rome-empress https://rumble.com/v5cvoel-pfizer-insiders-admit-vaccinated-men-are-being-chemically-castrated.html https://www.walksinsiderome.com/blog/messalina-the-empress-who-remarried-while-the-emperor-was-out-of-town/ https://www.globalresearch.ca/counteracting-cult-imposed-chaos/5865159 https://www.soulask.com/hell-fire-club-secret-society-sex-satanism-and-secret-societies/ The Fabian Society, Eugenics and the Historic Forces Behind Today’s Systemic Breakdown (substack.com) https://bettinaarndt.substack.com/p/women-and-wealth?utm_source=post-email-title&publication_id=448263&post_id=147649921&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2024/08/gro-harlem-brundtland-vil-ha-mer-global-sentralisme/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2018/12/brundtland-vi-er-i-ferd-med-a-miste-kontrollen-over-hva-folk-blir-fortalt/ https://www.womenshistory.org/education-resources/biographies/matilda-joslyn-gage https://www.encyclopedia.com/people/history/historians-european-biographies/jules-michelet https://www.dib.ie/biography/egerton-george-a2859 https://people.clas.ufl.edu/snod/files/EgertonIntroductionNB.072315.pdf http://www.blavatskaja.de/biografie.html https://archive.org/details/demonologyandde04conwgoog/page/n6/mode/2up https://historycambridge.org/innovation/American%20Feminism.html https://www.britannica.com/topic/Rosicrucians https://www.youtube.com/watch?v=MLVF5dgwu7Uhttps://www.youtube.com/watch?v=MLVF5dgwu7U https://en.wikipedia.org/wiki/Fraternal_Society_of_Patriots_of_Both_Sexes https://en.wikipedia.org/wiki/Olympe_de_Gouges - https://newint.org/features/1992/01/05/simply https://en.wikipedia.org/wiki/Anna_Maria_van_Schurman https://glc.yale.edu/sites/default/files/files/anderson.pdf - https://en.wikipedia.org/wiki/Claire_D%C3%A9mar https://www.encyclopedia.com/women/encyclopedias-almanacs-transcripts-and-maps/auclert-hubertine-1848-1914 https://en.wikipedia.org/wiki/Hubertine_Auclert https://www.encyclopedia.com/women/encyclopedias-almanacs-transcripts-and-maps/vesey-elizabeth-c-1715-1791 https://en.wikipedia.org/wiki/Martha_McWhirter https://en.wikipedia.org/wiki/Womyn%27s_land https://historycollection.com/16-facts-about-womyns-land-the-all-female-communes-that-offered-a-safe-haven-for-abused-women-and-feminism/ https://en.wikipedia.org/wiki/Woman%27s_Commonwealth https://plato.stanford.edu/entries/transcendentalism/#SociPoliCrit https://www.youtube.com/watch?v=suGHM0dEJ14 https://www.americamagazine.org/politics-society/2017/11/27/margaret-sanger-was-eugenicist-why-are-we-still-celebrating-her https://www.britannica.com/biography/Helena-Blavatsky https://worldhistoryedu.com/greek-god-dionysus/ https://people.howstuffworks.com/lilith.htm https://www.lillyrivlin.com/Lilith-Ms.Magazine-Dec.1972.pdf https://www.youtube.com/watch?v=7TUzoGah6t4 https://www.britannica.com/topic/Utopia-by-More https://www.encyclopedia.com/people/history/french-history-biographies/charles-maurice-de-talleyrand https://www.youtube.com/watch?v=lg9UqSaBlr4 https://www.rosicrucian.org/history https://plato.stanford.edu/entries/godwin/ https://www.youtube.com/live/L_ZUDubTbAw https://www.amazon.com/Occult-Feminism-Secret-History-Liberation/dp/B09NGXZKHB https://www.youtube.com/live/jVev-rGZc2o https://www.youtube.com/watch?v=Jppc5CZTaOs https://www.youtube.com/live/O9cFuE3Jyj0 https://www.youtube.com/live/O9cFuE3Jyj0 https://www.youtube.com/live/ZJcmKEoc-Y8 https://medium.com/@robert.mulokwa/feminisms-shadowy-origins-a-look-at-the-occult-influences-a5eba528e7f8 https://www.bt.dk/udland/debat-raser-i-sverige-vil-forbyde-bryllupstradition-det-er-noget- https://fiamengofile.substack.com/p/yes-kamala-harris-slept-with-a-powerful?utm_source=post-email-title&publication_id=846515&post_id=148057402&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Sept. 2024

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband