Ísrael nötrar og skelfur. Kjarnorka og bóluefni

Nýlega fór almenningur í Ísrael í fjölmennt verkfall. Hann mótmælti áherslum stjórnar sinnar í stríðinu við Palestínu. Eins og kunnugt er, neitar Bensi-barnamorðingi og ofstækismennirnir í ríkisstjórninni að draga herlið sitt út úr Gaza. En það er skilyrði fyrir því, að gíslar Hamas (og fleiri samtaka) verði látnir lausir. Því miður týna þeir tölunni, saklausir eins og palestínskir fangar í fangelsum Ísraels. Bensi sagði landsmenn sína vera andstæðinga eins og svo marga aðra. Hæstiréttur dæmdi fólk til vinnu aftur.

Þátttakan í verkfallinu var þó fátækleg borin saman við fjölmennið við jarðarför prestsins, Ovadia Yosef (1920 - 2013). Þar mættu 800.000. Spámaðurinn sá staðhæfði fullum fetum, að hlutverk okkar, sem ekki eiga því láni að fagna að hafa vígst til Gyðingdóms, væri að þjóna hinum útvöldu. Og það gera stjórnvöld Vesturlanda og kristið ofstækistrúarfólk, þ.e. þjóna ísraelskum stjórnvöldum. Síonistar hafa ævinlega verið hinum óbreytta Gyðingi böl.

Í leikhúsi þess hryllilega fáránleika, sem Ísrael/Palestína er, býðst Bensi-barnamorðingi til að bólusetja börn við lömunarveiki. Brúnir mínar lyftust upp í hársrætur, þegar ég heyrði þá óvæntu frétt. Hvernig má það vera, að stjórnvöld, sem myrða þúsundir barna og koma í veg fyrir nauðþurftaaðstoð til þeirra, vilji nú bólusetja þau?

Það eru fleiri, sem undrast. Og þegar grannt er skoðað ætla Sameinuðu þjóðirnar að nota dropabóluefni, sem hætt er að nota í Bandaríkjunum. Ónæmisfræðingar vara við notkun þess eins og þeir gerðu, þegar þjóðirnar voru bólusettar við covid-19.

Bóluefnið er nefnilega þeirrar náttúru að geta aukið smit, en ekki drepið það niður. Er þetta ný leið til að fækka Gazabúum, spyr t.d. breski blaðamaðurinn, Vanessa Beeley – eins konar ígildi kjarnorkusprengju. Lagt hefur verið til, að sú leið væri farin til að hreinsa Gaza af „óæðri verum.“

Það er svo sem ekki að undra, að hrikti í stoðum ísraelsks samfélags. Þar er þrátt fyrir allt unnt að finna þroskað og heilbrigt fólk. Nýlega skrifaði Ronen Bar, forstjóri Shin Bet, leyniþjónustu Ísraels, harða ádeilu á stjórn sína. Hann spurði, hvort hryðjuverkasamtök Ísraels, Irgun, væru gengin í endurnýjun lífdaganna.

Landtökumenn segjast eiga land Palestínumanna nú eins og í upphafi. Það boða kennimenn Gyðinga enn. Þeir sækja í sagnaarfinn og bæta um betur; vilja telja Ísraelum trú um, að þeir muni sem Guðs útvalda þjóð lifa af Ragnarök.

Ragnarökin verða reyndar rök stríðshauka meðal manna; kjarnorkustyrjöld. Vitfirringar veraldar virðast hafa undirbúið hana í nokkur ár. Donald Trump sagði t.d. upp samningum við Rússa um meðaldrægar kjarnorkuflaugar. Líkur eru á, að samningurinn um langdrægar flaugar verði látin renna út.

Hróp heyrast beggja vegna Atlantsála um kjarnorkustríð. Aðvörunarstöðvar Rússa í suðri voru eyðilagðar. Kjarnorkuvígbúnaður Bandaríkjamanna eykst suður undan, í Persaflóa og á Miðjarðarhafi. Þeir segjast ætla að verja Ísrael og vinna fullnaðarsigur í Rússlandi. Innrás þeirra (Nató) heldur áfram. Nató á kjarnorkusprengjur á víð og dreif um Evrópu og jafnvel við Persaflóa.

Enn sem komið er senda Ísraelar og andspyrnuhópar tortímingarflaugar, án kjarnaodda, sitt á hvað. En hvenær ætli komi að því, að Ísraelsmenn beiti kjarnorkuvopnum sínum? Hvenær ætli Samson kjarorkustríðsáætlun þeirra verði að veruleika? Eyðileggingin í Ísrael er mikil, enda þótt stjórnin reyni að draga fjöður yfir hana.

Það er bæði sorfið að ísraelskum almenningi eins og palestínskum. Efnahagslega eru Ísrael og Palestína rjúkandi rúst. Hversu lengi ætlar viti borið fólk að láta viðgangast trúarvitfirringu og brjálæðislega græðgi Vesturlanda í völd og auðlindir í Miðausturlöndum (og annars staðar)? Þar til yfir lýkur og spáin um Ragnarök og endurkomu Krists rætist?

https://thesvi.org/deconstructing-israels-samson-option/ https://www.youtube.com/watch?v=uRxQW-Si3QM https://www.youtube.com/watch?v=e28ppv5Z1ro https://www.youtube.com/watch?v=B6oO8yngsjA https://www.globalpolitics.se/usas-jattefarliga-krigspolitik/ https://thecradle.co/articles-id/26203 https://steigan.no/2024/08/pensjonert-general-israel-star-overfor-kollaps-om-mindre-enn-ett-ar/?utm_source=substack&utm_medium=email https://beeley.substack.com/p/israels-nuclear-samson-threat-and?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=147994207&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=K1RXDNDolO0 https://www.timesofisrael.com/israels-economy-sees-biggest-slowdown-among-oecd-countries-as-war-drags-on/ https://beeley.substack.com/p/the-war-of-the-worlds-a-conversation?utm_source=podcast-email%2Csubstack&publication_id=716517&post_id=148068867&utm_campaign=email-play-on-substack&utm_medium=email&r=ry8jq&triedRedirect=true https://english.wafa.ps/Pages/Details/148589?utm_source=substack&utm_medium=email https://chrishedges.substack.com/p/the-middle-easts-roots-lie-in-the?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=148250262&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://archive.md/Oy3Eu#selection-531.0-535.180 https://www.globalresearch.ca/hezbollah-avenges-assassination-foud-shukr/5866402 https://archive.md/8prmI https://www.middleeasteye.net/news/israel-launches-largest-occupied-west-bank-offensive-second-intifada https://archive.md/IZvcC https://consortiumnews.com/2024/08/28/hiding-an-ugly-truth-about-israel/ https://www.rt.com/russia/603345-lavrov-ukraine-israel-wars/?utm_source=substack&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/lavrovs-comparison-of-israel-and?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=148360644&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://geopolitiq.substack.com/p/limited-fighting-pauses-in-gaza-for?utm_source=post-email-title&publication_id=2232768&post_id=148278081&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=103ae5&triedRedirect=true&utm_medium=email https://archive.vn/yzBuw https://beeley.substack.com/p/the-zionist-polio-vaccine-virtue?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=148445885&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2024/09/israelsk-arbeidsdomstol-avsluttet-streik-ment-a-presse-netanyahu-til-gisselavtale/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/09/den-israelske-haeren-setter-opp-en-ny-stilling-for-a-kontrollere-gaza-i-arene-som-kommer/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/09/generalstreik-og-kjempedemonstrasjoner-i-israel/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.moonofalabama.org/2024/08/dire-warnings-as-israels-fascists-are-taking-the-rein.html#more https://israelpalestinenews.org/understanding-what-motivates-ultra-orthodox-jewish-attacks-on-west-bank-palestinians/ https://www.timesofisrael.com/liveblog_entry/outgoing-envoy-to-un-says-bodys-building-should-be-closed-and-wiped-off-the-face-of-the-earth/ https://www.middleeasteye.net/news/gilan-erdan-un-building-jerusalem-erased-earth https://www.msn.com/en-us/news/world/former-israeli-envoy-the-un-building-should-be-wiped-off-from-the-face-of-the-earth/ar-AA1pcKQv https://chrishedges.substack.com/p/the-rise-and-coming-demise-of-the?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=147968802&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email Iilan https://www.youtube.com/watch?v=NDQenOoUCRIhttps://www.youtube.com/watch?v=NDQenOoUCRI https://www.timesofisrael.com/far-right-minister-says-nuking-gaza-an-option-pm-suspends-him-from-cabinet-meetings/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Sept. 2024

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband