Óvitarnir með eldspýturnar í Washington. Svíarnir koma til bjargar í Kursk

Norðmaðurinn, framkvæmdastjóri Nató, Jens Stoltenberg, er kunnur að friðarspeki sinni. Vegurinn til friðar er vopnum stráður, segir hann. Mette minnkabani, sem einnig er spakur leiðtogi, segir það friðvænlegan gjörning að rýja Danmörku inn að vopnaskinninu og senda vígtólin til Úkraínu, svo berjast megi til síðasta Úkraínukarls – og drepa marga Rússa í leiðinni.

Í áróðursmynd um viðhorf og aðstoð Svía er haft eftir eistneskum herfræðingum, að takist Úkraínumönnum að drepa eitt hundrað þúsund rússneska hermenn á ári, sé sigurinn vís í frelsisstríðinu við Rússa. Að sögn eru þeir langt komnir með þessa slátrun fyrir 2024, svo þess vegna vinna Úkraínumenn og Nató stríðið á næsta ári.

Stríðsstjórnin í Stokkhólmi hefur sent ógrynni vígtóla til Úkraínu. Í fyrrgreindri áróðursmynd, sem er býsna kjánaleg á köflum, er ýjað að því, að Gripen herþoturnar kynnu að rata til Úkraínu eins og F15 hafa þegar gert. Það er líklega rík þörf á. Ein þeirra hefur þegar verið skotinn niður með reyndasta orrustuflugmanni Úkraínumanna. Hvílík óvirðing fyrir mannslífinu og sóun fjármuna!

Eins og kunnugt er hafa Norðmenn líka sent alls konar drápsleikföng suður eftir. Þeir gerðu eins og Svíar, sendu forna herbíla, sem ryðguðu í geymslum. Vopnaiðnaður Norðurlandanna er hrokkinn í gang svo um munar. Allir græða í kauphöllunum. Útgjöld til varnamála hækka og skattgreiðendur verða fátækari. Norðmenn hafa lagt inn vopnapöntun fyrir himinháar upphæðir. Það má vart á milli sjá, hvor múgsefjunin er öflugri, ógnin af Rússum eða veirunum.

Pólverjar liggja heldur ekki á liði sínu. Þeir hafa bruðlað 3.3% af þjóðarframleiðslunni til stríðsins í Úkraínu – og fjárstuðnings við spillta úrvalsdeild stjórnmálamanna. Þar er m.a. til milljarðamæringinn, Volodymyr Zelensky, að finna.

Reyndar hafa Úkraínumenn sjálfir hafið framleiðslu á langdrægum flugskeytum, „Palianytsia.“ Og til viðbótar þeim úkraínsku koma sænsk, ef trúa má upplýsingum úr fyrrgreindri áróðursmynd. Það eru engar hömlur á notkun þeirra. Svíar vilja tryggja frið í höfn.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, hefur sent Volodymyr vota kossa (þó ekki franska), teppi, prjónles og skó, ásamt nokkrum milljörðum (minnir mig) og þotu til að ferja hunda og ketti til Íslands. Þar er skortur á slíkum kvikvendum. Því eins og Þórdís Kolbrún segir hátt og snjallt; Úkraínumenn eru að verja frelsi Íslendinga. Það er ekki nema von, að hún hafi slitið stjórnmálasambandi við rússnesku ruddana.

Sergei Lavrov, sem Bogi Ágústsson segir bulla, bullaði enn og aftur um daginn. Þá minnti hann óvitana í Washington á það, að hættulegt sé að leika sér með eldspýtur. Það gæti kviknað í. Óvitarnir virðast ekki hafa áttað sig á því, að nú eigi þeir í höggi við kjarnorkuherveldi – eitt og jafnvel tvö – og stórveldi eins og Íran, sem er í stakk búið til verja sig og greiða óvinunum þung högg.

Bandaríkin (Nató) komast ekki lengur upp með að ráðast á fólk, þar sem litlar varnir eru fyrir. Nú svara „gæsirnar“ árásunum og jafnvel með fullkomnari vopnum en „veiðimennirnir“ ráða yfir. Sýnd veiði en ekki gefin.

Vopn streyma bæði til Úkraínu, til að glæða innrás Nató í Rússland auknu lífi, og til Miðausturlanda. Þar ætla Bandaríkjamenn og Bretar sér að verja Ísrael. Ráðamenn þar á bæ eiga þann draum (bókstaflega) heitastan að tæla Vesturlandaþjóðir inn í opið stríð við Íran og hinar andspyrnuþjóðirnar.

Barnamorðinginn, Brjálaði-Bensi, og viðundrið Volodymyr, reyna báðir að tæla Vesturlönd til stríðs. Volodymyr, sem er Gyðingur, á foreldra sína í Ísrael. Honum rennur því blóðið til skyldunnar að styðja Ísraelsstjórn.

Flugvélamóðurskip Bandaríkjamanna eru búin kjarnorkuvopnum og Ísraelsmenn hafa sín til reiðu. Rússneskir herforingjar velta því nú fyrir sér, hvort tilgangurinn með eyðileggingu radarstöðva þeirra í suðri hafi verið liður í undirbúningi að kjarnorkuvopnaárás úr Miðjarðarðhafi og Persaflóa. Af því tilefni urðu ummæli Sergei til.

Harmleikurinn á jörðu niðri í Úkraínu heldur áfram. Sigurvíman er runnin af stjórnmálamönnum og fjölmiðlum í Villta-vestrinu – nema þeim sænsku. Nató/úkraínsk yfirvöld sendu öflugustu sveitir sínar til innrásar í Kursk hérað til að ná valdi yfir kjarnorkuveri þar um slóðir. Þeim varð ekki kápan úr því klæðinu. Nú berjast aðallega óreyndir og ófúsir stráklingar á austurvígstöðvunum, sem fórna skal á altari illsku, heimsku og hagsmuna.

Vonandi rís úkraínska þjóðin gegn kvölurum sínum, áður en síðasti Úkraínumaðurinn fellur. Vonandi rennur það líka upp fyrir Úkraínumönnum, að þeir séuð peð á taflborði Alþjóðaauðvaldsins og málaliða þess í stjórnum Vesturlanda.

Robert Kennedy hefur útskýrt þetta með einföldum hætti. Fjárfestingasjóðurinn, „Svartiklettur,“ (Black Rock) á bæði vopnaframleiðslufyrirtækin og landbúnaðarfyrirtækin, sem eru að kaupa upp „svörtu moldina“ Úkraínumanna. Ófétin stunda það sama víða um heim.

Áður en að því kæmi, kynni þó spilaborgin að falla um sjálfa sig, efnahagslega og hernaðarlega. Úkraína er á hausnum, lánin falla og lánveitendur gjalla. Það sverfur að fjárhagi Breta t.d. Sama á við um Frakka og Þjóðverja.

https://www.globalpolitics.se/robert-kennedy-junior-forklarar-kriget-i-ukraina-pa-3-minuter/ https://www.urmedium.net/c/presstv/130630 https://www.rt.com/russia/603345-lavrov-ukraine-israel-wars/?utm_source=substack&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/lavrovs-comparison-of-israel-and?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=148360644&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://gilbertdoctorow.com/2024/08/27/for-russia-recovering-kursk-is-no-walk-in-the-rose-garden/ https://mearsheimer.substack.com/p/the-nonsensical-kursk-offensive?utm_source=post-email-title&publication_id=1753552&post_id=148122454&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/10-reflections-on-ukraine-after-its?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=148102626&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2024/08/sorgelig-uavhengighetsdag-for-ukraina-store-tap-i-kursk-og-donbass/?utm_source=substack&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/five-ways-that-ukraines-invasion?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=148098699&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://gilbertdoctorow.com/2024/08/24/pressure-from-russians-on-vladimir-putin-to-escalate/ https://maratkhairullin.substack.com/p/specific-authors-of-the-ukrainian?utm_source=multiple-personal-recommendations-email&utm_medium=email&triedRedirect=true https://korybko.substack.com/p/russias-capture-of-pokrovsk-could?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=148033114&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/ukraine-might-be-gearing-up-to-attack?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=148135940&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2024/08/hvorfor-jeg-er-realist/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=FmYeIMmyU3U https://www.youtube.com/watch?v=ViglslS-7gk https://korybko.substack.com/p/the-czech-president-shared-some-interesting?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=148133296&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2024/08/kollapsen-pa-donbass-fronten/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=K1RXDNDolO0 https://steigan.no/2024/08/pengene-fosser-inn-til-vapenprodusentene-midt-i-de-globale-spenningene/?utm_source=substack&utm_medium=email https://jackrasmus.com/2024/08/26/a-tale-of-two-offensives-endgames-in-the-ukraine-war/ https://korybko.substack.com/p/poland-finally-maxed-out-its-military?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=148293308&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=B8igxfGfvqE https://steigan.no/2024/08/kiev-var-front-i-donbass-har-kollapset/?utm_source=substack&utm_medium=email https://gilbertdoctorow.com/2024/08/30/zelenskys-silence-on-f-16-crash-raises-eyebrows-wion-fineprint/ https://www.youtube.com/watch?v=bVfnRDF9vIc https://www.youtube.com/watch?v=dNBgzOZ0fkA https://steigan.no/2024/08/de-hemmelige-vapenkjopene-til-30-milliarder-kroner/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalpolitics.se/hur-sverige-gar-med-i-kriget-i-ukraina-mot-ryssland/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Nóv. 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband