Feigðarflan Nató í Rússlandi. Fjandinn er laus

Það hefur verið á flestra vitorði, að Nató hafi frá upphafi innrásar Rússa í Úkraínu, samkvæmt 51. grein Stofnskrár Sameinuðu þjóðanna um sameiginlegar varnir, haft hermenn af ýmsu þjóðerni í landinu. Þeir hafa m.a. beitt vopnum Vesturlanda í stríðinu innan landamæra Úkraínu og til árása á rússnesk landsvæði. Nató er þar að auki með liðsafla í aðildarlöndum eins og Póllandi og Rúmeníu. Í Moldóvu eru líka – að öllum líkindum – vopnabirgðir Nató.

Rússar hafa marglýst því yfir, að litið verði á hertól eða herbækistöðvar, beitt gegn Rússlandi, sem réttmæt skotmörk. Líklega hefur Rússum þó ekki dottið í hug, að blandaður her Nató (Pólverjar, Bandaríkjamenn, Bretar og Frakkar – hugsanlega fleiri þjóðir) og Úkraínu, myndi gera innrás í Rússland, og beina árrásum sínum að kjarnorkuveri og óbreyttum borgurum.

Reyndar hafa Úkraínumenn lýst því, hvernig þeir komu óvopnuðum rússneskum hermönnum að óvörum, þar sem þeir drukku kaffi, og slátruðu þeim umsvifalaust. Þar ratar enn einn stríðsglæpurinn á spjöld sögunnar.

Það er líka raunalegt til þess að hugsa, að þýskir stjórnmálamenn skuli hælast af skriðdrekunum sínum, Leopard, sem beitt er í innrásinni í Kúrsk. Hafi ætlun Nató verið að niðurlægja Rússa, gat staðarvalið ekki verið heppilegra. Þarna stóð einhver mesta skriðdrekaorrusta annarrar heimstyrjaldarinnar. Hermenn Ráðstjórnarríkjanna ráku Þjóðverja af höndum sér. Þýskir skriðdrekar eru snúnir aftur alveg eins og úkraínsku nasistarnir.

Rússum hefur, að því er virðist, tekist að hindra frekari árásir á kjarnorkuverið í Kúrsk. Allir ættu að vita, hvað eyðilegging þess hefði í för með sér.

En með árásinni hefur hins vegar slitnað upp úr samningaviðræðum í Kúvæt. Þarlendir höfðu – að sögn – milligöngu um viðræður þess efnis að hlífa innviðum beggja vegna víglínunnar – sérstaklega almennum orkumannvirkjum. Eyðilegging þeirra bitnar mest á óbreyttum borgurum. Það má gera ráð fyrir að kuldaboli bíti illa í Úkraínu næsta vetur. Rússar hafa í hefndarskyni fyrir innrásina í Kúrsk miðað út slík mannvirki.

Enn takast stjórnmálamenn Vesturlanda á um fjármögnum stríðsins í Úkraínu/Rússlandi. Hvaða skattgreiðendur skyldu borga mest? T.d. er úlfúð í Þýskalandi. Deilt er um, hvort duga skuli þýfi Vesturlanda, þ.e. upptækar eigur Rússa í bönkum þeirra, sem stolið hefur verið eins og innistæðum Venesúela og Afganistans. Fyrsta greiðsla hefur nú verið innt af hendi frá Evrópusambandinu. Rússar fjármagna nú stríðið gegn sjálfum sér.

Viðundrið, Volodymyr Zelensky, lætur sér til hugar koma, að innrás í Rússland og dráp á óbreyttum borgurum, ásamt óvopnuðum hermönnum, efli samningsvilja Rússa í Úkraínustríðinu. Úkraínumenn og stjórnvöld Vesturlanda dæmdu sig óhæf til samninga, þegar Minsk samningarnir voru virtir að vettugi. Þvert á móti er ástæða til þess að ætla, að innrásaraðiljar hafi uppskorið aukna andúð í Rússlandi á Vesturlöndum og meðal friðarsinna á Vesturlöndum.

Auk þess hafa Rússar lýst því yfir, að Volodymyr sé ekki réttkjörinn forseti íbúa Úkraínu. Tími hans í embætti er runninn út. En lýðræðið í Úkraínu virkar – eins og flestir hafa væntanlega gert sér grein fyrir – samkvæmt sérstökum reglum hans og hirðarinnar innan lands og utan. Það á einnig við um fréttaflutning úr þessi hreiðri lýðræðis, mannréttina, góðra stjórnarhátta og friðar, samkvæmt íslensku ríkisstjórninni.

En úkraínski blaðamaðurinn, Vasyl Muravytskyi, hefur allt aðra sögu og segja eins og aðrir þeir, sem fylgst hafa með raunverulegum gangi mála í karlasláturhúsinu í Úkraínu. Vasyl er líklega kominn á hinn fræga aftökulista Úkraínumanna og Nató, Myrotvorets. Því miður hefur verið strikað yfir nöfn fjölda rússneskra blaðamanna. Þeir voru drepnir eins og starfssystkinin á Gaza.

Herskráningaraldurinn hefur enn verið lækkaður í Úkraínu og bandamenn ríkisins hafa lagt til, að ungir Úkraínumenn, sem flúið hafa dauða sinn á vígvöllunum, verði færðir í böndum í sláturhúsið. Það sama á við um unga karlmenn innan lands. Þeir fá hvergi leynst. Úkraínskir kvenfrelsarar hafa þó ekki tekið upp þann gamla sið sálufélaganna í Bretlandi forðum að næla hvítri hugleysisfjöður í barm þeirra karla, sem víkjast undan þátttöku í stríðinu.

Þrátt fyrir, að úkraínskir karlar hafi umvörpum greitt atkvæði gegn manndrápum með fótunum, hefur þó tekist að safna umtalsverðum fjölda þeirra við landamæri Hvíta-Rússlands. Talan 120.000 hefur verið nefnd. Það er um það bil sami fjöldi og Rússar sendu af stað í „takmarkaða hernaðaraðgerð“ sína 24. febrúar 2022.

Fréttaskeytaþýðendur RÚV umtala hana enn sem „allsherjarinnrás Rússa“ í Úkraínu og kalla íslenska „stríðsfræðinga“ inn í hljóðver til að staðfesta það. Einn þeirra var þó það illa að sér um söguna, að hann kallaði innrás Rússa fyrstu innrás í fullvalda ríki í Evrópu, eftir lok annarrar heimstyrjaldar. (Það var innrás Tyrkja á Kýpur.)

Því miður hafa líkur aukist verulega á því, að rússneski herinn kenni fréttakonum RÚV og sérfræðingum þeirra um alvöru stríð. Það þyngist nú tal hinna hógværu Sergei Lavrov og Vonda-Valda. Bogi Ágústsson, helsti utanríkismálasérfræðingur RÚV, kallaði Sergei bullara í útsendingu. Nú hlýtur að vera komið að því, að Íslendingar sendi helsta kvenfrelsunarvopn sitt, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, á vettvang til að koma vitinu fyrir úkraínska ráðamenn. Það má enn reyna kossa og kjass og jafnvel senda þeim aur, enda þótt vel hafi verið séð fyrir Volodymyr og frú. Þau hafa víða í húsaskól að venda og dýra færleika eiga þau, hjónakornin.

Það liggur reyndar á, jafnvel stjórnmálalíf þeirra liggur við. Það eru nefnilega talsverðar líkur á því, að Bandaríkjamenn skipti aftur um stjórn, velji sér aðra strengjabrúðu.

Og svo gæti jafnvel farið, að Stóri- og Litli-Dónaldur ljúki stríðinu, þegar þeir ná kjöri til forseta og varaforseta í Bandaríkjunum. Þeim stærri er eins og Vonda-Valda, mjög í nöp við barnasölustarfsemi Úkraínumanna, bæði börn í pörtum eða heilum skrokkum. Vondi-Valdi og hermenn hans hafa lagt sig fram um að koma í veg fyrir slíka glæpi.

Það verður reyndar fróðlegt að sjá, hvaða bumbu íslenska ríkisstjórnin ætlar að berja, ef Dónaldarnir stíga á stokk. Þórdís Kolbrún hefur svarið hinum ellihruma Jósef Biden hollustu sína sem og kvenfrelsaranum, Kamala Harris. Varnarstríðsbandalagið, Nató, gæti jafnvel dáið drottni sínum samtímis. Það brakar og brestur í höllu Nató.

En upplýsingastríðinu er langt í frá lokið. Almannatengsla-Hollývúdd Úkraínumanna, Breta og Bandaríkjamanna, kynni að búa til fleiri hryllingsmyndir á borð við Bucha, til að sannfæra Vesturlandabúa um lýðræðis- og frelsisást yfirvalda. Áróðursmyndin um árás Rússa á barnasjúkrahús í Kænugarði var hjóm eitt í samanburði.

Enn vofir yfir sú hætta, að kjarnorkuvopnum verði beitt í stríðinu í Rússlandi/Úkraínu og Miðausturlöndum.

Hvað gerir íslenska ríkisstjórnin til að koma í veg fyrir það?

https://www.globalresearch.ca/nato-soldiers-waiting-enter-ukraine/5860363 https://covertactionmagazine.com/2023/08/04/ukrainian-president-volodymyr-zelensky-came-to-power-in-a-carefully-planned-operation-coordinated-by-western-intelligence-services-says-former-u-s-diplomat/ https://www.globalpolitics.se/oro-i-ryssland-for-karnvapenangrepp-fran-vast-befogat/ https://steigan.no/2024/05/atomkrigen-rykker-naermere-biden-godtar-at-ukrainske-missilangrep-dypt-inne-i-russland/?utm_source=substack&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/is-ukraine-going-rogue-or-did-it?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=145155351&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2024/07/nato-ukraina-er-for-korrupt-til-a-bli-medlem/?utm_source=substack&utm_medium=email https://sonar21.com/russia-is-flashing-red-the-west-better-pay-attention/ https://www.youtube.com/watch?v=7_p2jwaPrmM https://infobrics.org/post/41553 https://www.youtube.com/watch?v=D3aa12ISDXY https://korybko.substack.com/p/keep-an-eye-on-ukraines-military?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=146129703&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.sott.net/article/352366-Grand-architect-of-modern-terrorism-The-true-horror-of-Zbigniew-Brzezinskis-policies https://steigan.no/2024/07/ukrainas-drap-pa-30-russiske-journalister-mott-med-vestlig-likegyldighet-eller-grotesk-begeistring/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.kitklarenberg.com/p/civil-war-in-donbass-10-years-on?utm_source=post-email-title&publication_id=552010&post_id=146388897&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2024/07/ukrainsk-antikrigsaktivist-fengslet-pa-tvilsomme-anklager/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=QDUGgkMe088 https://steigan.no/2024/07/operasjon-barnebuss-del-2/?utm_source=substack&utm_medium=email https://geopolitiq.substack.com/p/maria-zakharova-on-the-attempts-of?utm_source=post-email-title&publication_id=2232768&post_id=146446805&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=103ae5&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2024/07/ny-sikkerhetspakt-vil-la-polen-skyte-ned-russiske-missiler-over-ukraina/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalpolitics.se/cia-veteranen-larry-johnson-ukrainas-barnsjukhus-traffades-inte-av-en-rysk-missil/https://www.globalpolitics.se/cia-veteranen-larry-johnson-ukrainas-barnsjukhus-traffades-inte-av-en-rysk-missil/ https://www.globalpolitics.se/sanningen-om-bucha-finns-men-vem-vill-ha-den/ https://www.globalpolitics.se/navalny-en-lamplig-dod-hycklande-sorjd/ https://www.globalpolitics.se/moskva-tragedin-med-det-traffade-barnsjukhuset-i-kiev-ar-en-gava-till-nato-olika-uppfattningar-finns/ https://www.youtube.com/watch?v=5mH5F0OJCn8&t=172s https://gilbertdoctorow.com/2024/07/09/nato-celebration-of-its-75th-anniversary-at-a-summit-today-in-washington-d-c/ https://korybko.substack.com/p/is-zelenskys-chief-of-staff-the-last?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=147300263&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://gilbertdoctorow.com/2024/07/31/dialogue-works-russia-unleashes-relentless-troop-waves-overwhelms-ukrainian-forces/ https://www.youtube.com/watch?v=N3qZFzeLqgs https://steigan.no/2024/07/krigsdagbok-del-120-20-til-26-mai-2024/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/07/new-york-times-om-russlands-framganger-pa-ostfronten/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/07/ukraina-er-avhengig-av-pressgjenger-mens-tapene-oker/?utm_source=substack&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/whyd-a-ukrainian-neo-nazi-just-kill?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=147024644&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://michelchossudovsky.substack.com/p/zelensky-wants-russia-next-peace-summit?utm_source=post-email-title&publication_id=1910355&post_id=146998494&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2024/07/kina-diskuterer-fredsforhandlinger-med-ukraina/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/07/hillbillyens-krigssang/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.craigmurray.org.uk/archives/2024/08/we-are-the-bad-guys/ https://www.politico.eu/article/eu-finally-sends-e1-5b-from-russian-assets-to-ukraine/ https://steigan.no/2024/08/tyskland-stopper-ytterligere-hjelp-til-ukraina/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/08/pinlig-for-russland-avslorende-for-vesten-og-farlig-for-verden/ https://www.youtube.com/watch?v=NDQenOoUCRIhttps://www.youtube.com/watch?v=NDQenOoUCRI https://www.youtube.com/watch?v=XXdlCHbroTEhttps://www.youtube.com/watch?v=XXdlCHbroTE https://korybko.substack.com/p/ukraine-reportedly-has-a-whopping?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=147877146&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.moonofalabama.org/2024/08/ukraine-sitrep-kursk-attack-derailed-partitial-ceasefire-deal.html#more https://steigan.no/2024/08/ukraina-invaderte-russland-for-a-forlenge-krigen/?utm_source=substack&utm_medium=email https://gilbertdoctorow.com/2024/08/11/ukrainian-invasion-of-russian-border-territories-day-four/ https://julianmacfarlane.substack.com/p/the-best-defense-is-offense?utm_source=post-email-title&publication_id=837411&post_id=147558957&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=103ae5&triedRedirect=true&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/last-years-pentagon-leaks-proved?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=147548879&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2024/08/pentagon-stotter-ukrainas-bruk-av-usas-vapen-i-kursk-fylke-russland/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/08/ukrainsk-dissident-avslorer-brutal-sensur-og-undertrykkelse-fra-kiev-regimet/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/08/ukrainas-overraskende-invasjon-i-russland/?utm_source=substack&utm_medium=email https://mearsheimer.substack.com/p/who-caused-the-ukraine-war https://steigan.no/2024/08/norge-og-polen-trener-ukrainske-panserstyrker/?utm_source=substack&utm_medium=email https://gilbertdoctorow.com/2024/08/06/can-ukraine-destroy-russian-air-defences-with-f16s-wion-game-plan/ https://steigan.no/2024/08/norge-og-polen-trener-ukrainske-panserstyrker/?utm_source=substack&utm_medium=email https://gilbertdoctorow.com/2024/08/06/can-ukraine-destroy-russian-air-defences-with-f16s-wion-game-plan/ https://steigan.no/2024/08/kursk-offensiven-tok-russland-pa-senga-hvordan-gar-den/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/08/usa-i-ferd-med-a-gi-35-milliarder-dollar-i-militaerhjelp-til-israel/?utm_source=substack&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/theres-a-political-method-behind?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=147651248&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://gilbertdoctorow.com/2024/08/17/americas-jassm-air-to-ground-stealth-missiles-and-russian-plans-to-use-tactical-nukes/ https://gilbertdoctorow.com/2024/08/16/russian-television-starts-reporting-destruction-of-ukrainian-forces-in-kursk/ https://www.youtube.com/watch?v=M7O92-RV5Cs https://gilbertdoctorow.com/2024/08/14/todays-interview-on-dialogue-works-focus-on-the-ukrainian-incursion-in-kursk/ https://steigan.no/2024/08/eksperter-kursk-offensiven-vil-framskynde-ukrainas-nederlag/?utm_source=substack&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/heres-why-the-us-is-playing-dumb?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=147807650&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Sept. 2024

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband