Árið 2016 eignuðust Ísraelar nýja þjóðhetju, hermann úr Varnarher landsins, Elor Azaria. Hann myrti særðan Palestínumann. Elor var dreginn fyrir rétt, dæmdur í 18 mánaða fangelsi, en var látinn laus, eftir 9 mánaða afplánun. Fólk flykktist á götur út og mótmælti dómnum.
Nú fjölgar þess konar þjóðhetjum. Ísraelsk stjórnvöld sáu sig tilneydd til láta til skarar skríða gegn pyndingaböðlum í einu herfangelsa sinna. Það var almælt orðið, að föngum væri nauðgað i endaþarm. Þegar handtaka átti böðlana brutust út almenn mótmæli með þátttöku þingmanna. Því var fleygt, að nauðgun á föngunum, flestir almennir borgarar frá Gaza, læknar þar á meðal, væru mannréttindi í Ísrael.
Nýlega kom út enn þá ein skýrslan um illa meðferð Ísraela á palestínskum föngum, pyndingar. Í þetta sinn eru það ísraelsk mannréttindasamtök (BTelem - The Israeli Information Center for Human Right in the Occupied Territories), sem tóku viðtöl við 55 fyrrverandi fanga. Niðurstaðan er í stuttu máli sú, að pyndingar og annað ofbeldi sé kerfisbundið stundað. Samkvæmt opinberum tölum frá ísraelskum stjórnvöldum eru tæplega 10.000 palestínskir fangar í Ísrael.
Netpyndingar eða markviss sálhernaður á netinu er aukin heldur stundaður gagnvart almennum borgurum á Gaza. Þekkingu um persónulega hagi, safnað m.a. gegnum gervigreindarnjósnir, er beitt til að etja fólki gegn hverju öðru og kúga það til uppljóstrana.
Í raun er ísraelskum yfirvöldum þvert um geð að fangelsa Palestínumenn eins og fjármálaráðherrann, Bezaiel Yoel Smotrich hefur ítrekað. Eiginlega væri réttlætanlegt að svelta þá í hel: Við getum það [þó] ekki í þeim veruleika, sem við búum við. Enginn gæfi grænt ljós á sultardauða tveggja milljóna manna, jafnvel þótt það væri réttlætanlegt og siðlegt, þar til gíslum okkar verður sleppt úr haldi.
Eins og kunnugt er, kallaði varnarmálaráðherrann, Yoav Gallant, Gazabúa manndýr. Það gera reyndar einnig hugmyndafræðingar í íslenska síonistahreiðrinu.
Ofangreind mótmæli í þágu Ísraela, sem drepa og pynda manndýrin eiga viðtækan hljómgrunn meðal þjóðarinnar, sbr. t.d. viðhorfskannanir á vegum hinnar virtu bandarísku stofnunar, Pew Institute.
Blaðamaðurinn, Dan Cohen, segir blóðhefnd og hatur í garð Palestínumanna fara eins og eldur í sinu um samfélagið. Það tekur annar blaðamaður, David Hearst, ritstjóri Middle East Eye, undir. Almennt er litið á Palestínumenn sem hryðjuverkamenn. Því eigi þeir dauðarefsingu skilið.
Í þessu viðfangi hvarlar hugurinn óhjákvæmilega til aðdáunar ísraelskra síonista á ítölskum og þýskum fasistum, nasistum. Ísraelar nutu aðstoðar þeirra og Breta við að byggja upp leyniþjónustu sína og her. Bresk fangelsi eru enn í notkun.
Bretar eru enn hjálplegir. Fljúga t.d. hergöngum og bandarískum hermönnum til Gaza frá herstöð sinni á Kýpur og stunda þar njósnir í þágu ísraelska hersins.
Á meðan vagga blíðar öldur Miðjarðarhafs og Persaflóa bandaríska flotanum. Hann á að skerast í leikinn, þegar hamfarirnar bresta á fyrir alvöru.
Hvar er mannúðin og vitið í veröldinni? Ég spyr eins og fávís kvenfrelsari.
https://consortiumnews.com/2024/08/03/patrick-lawrence-the-murder-of-ismail-haniyeh/ https://en.wikipedia.org/wiki/Killing_of_Abdel_Fattah_al-Sharif https://www.reuters.com/article/world/thousands-rally-to-call-for-release-of-israeli-soldier-who-shot-palestinian-assa-idUSKCN0XG2ME/ https://www.aljazeera.com/news/2016/4/1/israeli-soldier-released-to-open-detention https://www.pewresearch.org/global/2024/05/30/israeli-views-of-the-israel-hamas-war/ https://truthout.org/articles/polls-show-broad-support-in-israel-for-gazas-destruction-and-starvation/ https://mondoweiss.net/2024/01/dont-believe-haaretz-and-the-nyt-israeli-society-fully-supports-the-gaza-genocide/ https://chrishedges.substack.com/p/israels-mask-is-slipping-w-david?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=147445334&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/solidarity-monolith-love-zionist-evil/5864261 https://www.thomasfazi.com/p/welcome-to-hell-israels-torture-camps?utm_source=post-email-title&publication_id=560592&post_id=147400316&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=103ae5&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2024/08/velkommen-til-helvete-tortur-og-voldtekt-i-israelske-fengsler/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.haaretz.com/israel-news/2024-08-05/ty-article/.premium/dozens-of-testimonies-from-palestinians-describe-israeli-jails-conditions-during-gaza-war/00000191-238f-d825-abd9-afaf1a3b0000 https://www.btselem.org/publications/202408_welcome_to_hell https://steigan.no/2024/08/smotrich-det-kan-vaere-moralsk-og-berettiget-for-israel-a-sulte-2-millioner-palestinere-i-hjel-i-gaza/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.timesofisrael.com/smotrich-it-may-be-justified-to-starve-2-million-gazans-but-world-wont-let-us/ https://beeley.substack.com/p/when-will-iran-hezbollah-and-the?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=147415985&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://beeley.substack.com/p/the-sword-of-damascus-interview-with?utm_source=podcast-email&publication_id=716517&post_id=147399909&utm_campaign=email-play-on-substack&utm_content=watch_now_gif&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.declassifieduk.org/uk-covers-up-gaza-spy-footage-from-day-of-aid-worker-massacre/?utm_source=drip&utm_medium=email&utm_campaign=ICYMI+-+News+You+Should+Know+About https://www.kitklarenberg.com/p/zionist-extortion-racket-refuses?utm_source=post-email-title&publication_id=552010&post_id=147336028&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://consortiumnews.com/2024/08/01/un-finds-appalling-acts-of-torture-against-palestinians/ https://steigan.no/2024/08/usa-sender-krigsskip-til-midtosten-og-utsteder-sikkerhetsvarsel/?utm_source=substack&utm_medium=email https://consortiumnews.com/2024/06/24/the-treachery-of-the-nazi-zionist-alliance/ https://www.reuters.com/article/world/thousands-rally-to-call-for-release-of-israeli-soldier-who-shot-palestinian-assa-idUSKCN0XG2ME/ https://www.timesofisrael.com/smotrich-it-may-be-justified-to-starve-2-million-gazans-but-world-wont-let-us/
Flokkur: Bloggar | 9.8.2024 | 07:48 (breytt kl. 07:52) | Facebook
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021