Kvenófreskjur eða kvenhetjur Lorena Bobbitt og Kleópatra Kvenfrelsunarendurskoðun

Endurskoðun sögunnar stendur nú sem hæst. Það á einnig við um samskipti kynjanna. Ég varð furðu lostinn fyrir nokkrum mánuðum síðan, þegar ég horfði á kvikmynd um Elísabetu fyrstu, Bretadrottningu.

Skömmu áður en Elísabet I (1533-1603) lætur höggva höfuð af frænku sinni og drottningu Skota, Maríu I Stuart (1542-1587), eiga þær spjall saman um lífið og tilveruna. Eitt hugðarefnanna á þessari ögurstundu voru karlmenn. Þær sammæltust um, að þeir væru kvenkyninu óþægur ljár í þúfu – eða eitthvað á þá leið.

Það vakir fyrir kvenfrelsunarleikstjórum að rétta hlut kvenna í veröldu, sem karlar hafa ráðið, að þeirra sögn, og gert lítið úr þætti þeirra í mannkynssögunni. Þáttaröðin og kvikmyndin, „Rauða tjaldið“ (The Red Tent), er gerð eftir metsölubók Anita Diamant. Framleiðandi er Paula Weinstein og leikstjóri Roger Young.

Sögur Bíblíunnar eru endurtúlkaðar frá sjónarhóli kvennanna eins og höfundurinn, gerir hann sér í hugarlund. Aðalpersónan er Dína (Dinah) í Sköpunarsögunni, sem í raun átti fjórar mæður, allar fjórar eiginkonur föðurins, Jakobs, og bræðurna tólf, sem urðu stofnfeður Ísraela.

Frásögn Dínu er í anda kvenfrelsunartúlkunar samtímans, þ.e. grimmdar karla í garð kvenna. Rauða tjaldið verður eins konar þjáningafangelsi kvenna við blæðingar, fæðingar, sjúkdóm, kynlífs- og trúarvígslu ættkvíslarinnar. Í tjaldinu rauða varðveita konurnar forna gyðjutrúararfleifð, sem Jakobi er í nöp við, því hann er föðurveldisnaggur.

Bræður Dínu eru fullir öfundar og grimmdar og ganga meira að segja af elskhuga hennar dauðum. Þá hefjast hrakningar Dínu og hún flæmist alla leið til Egyptalands. En ljótu bræðurnir ellefu tóku líka upp á því, að selja yngsta bróðurinn og uppáhald föðurins, Jósef, í þrældóm. Leið hans lá einnig til Egyptalands, þar sem hann hófst til mikilla metorða. Þar hittust hálfsystkinin og urðu fagnaðarfundir.

Netflix sýnir um þessar mundir heimildarmynd um Kleópötru, hinn mikla einvald Egypta fyrir tveim árþúsundum eða svo. Um það bil þrem öldum fyrr hafði Alexander mikli, konungur Makedóníu, lagt undir sig Egyptaland, og m.a. stofnsett lærdómsborgina, Alexandríu. Yfirstéttin varð skiljanlega grísk. Rómverjar ríktu umhverfis Miðjarðarhafa, þegar Kleópatra fyrst barði heiminn augum.

Kleópatra er kynnt til sögu af sex sögumönnum. Fimm þeirra eru konur. Það svífur kvenfrelsunarandi yfir vötnum.

Ágrip: Það var einu sinni í fyrndinni, að konur drottnuðu, bjuggu yfir óviðjafnanlegu valdi sem stríðsmenn, drottningar og mæður þjóða. Þær beygðu sig ekki í duftir fyrir nokkrum karli. Afrek þeirra endurómuðu í sögunni og enginn karlmaður bar yfir þær höfðuð eða herðar. En konur þurftu að horfast í augu við hættur, sem enginn karlmaður hefur þurft að gera.

Svona kona var Kleópatra. Sögumenn spyrja, hvort hún hafi verið stjórnsnillingur eða freistari. Svar þeirra virðist vera, að Kleópatra hafi beitt kynkænsku og grimmd. Bróðir hennar og eiginmaður var myrtur. Ástmaður hennar, annar tveggja rómverskra mikilmenna, sem hún dró á tálar eða átti í stjórnkænskulegu kynlífssambandi við, Júlíus Sesar, hafði lofað Kleópötru því, að drepa Asinoe, yngri systurina. Hinn elskhuginn var Marcus Antonius, keppninautur Júlíusar.

Stjórnsnillin fólst í því að beita kyn- og persónutöfravaldi til að ríkja ein yfir Egyptalandi og tryggja syni hennar og Júlíusar ríkiserfðir yfir ríkjunum báðum.

Sögumenn gera sér í hugarlund, að Júlíus hefði aldrei áður komist í kynni við konu, sem væri svo sátt við kynferði sitt og örugg í kynlífi sínu. Það er hér um bil spaugilegt, að Júlíus hafði árum saman barist við germanska þjóðflokka. Meðal þeirra voru allar konur þjálfaðar til hermennsku í neyð, rétt eins og konurnar í hinni fornu Spörtu. En yfirleitt var það hlutverk karla að berjast með vopnum og vernda konurnar sínar.

Fórnarlambsviðhorf sögumanna er neyðarlega greinilegt, þegar þær segja, að Kleópatra hafi barnist hetjulega við óvini sína og leikið á keppninauta, skilið eftir sig sport í mannkynssögunni svo djúp, að engum karlmanni muni lánast að má þau út.

Hvers vegna ættu þeir að gera það? Kannski til að kúga þær? Því halda kvenfrelsarar fram. Það voru karlar, sem tryggðu hásæti Kleópötru og karlar (að mestu leyti), sem héldu minningu hennar á lofti og skrifuðu sögu hennar. Gríski sagnfræðingurinn, Plutarch, reið á vaðið.

Það var reyndar heil sögubókmenntagrein á miðöldum að skrifa um konur fornaldar og samtímas, lofa þær og mæra. Sagnfræðingar meðal karla hafa síður en svo stungið afreksverkum og lífi kvenna undir stól. Það er hluti af óskhyggjusagnfræði kvenfrelsaranna. Og það er hárrétt hjá sögumönnum, að voldugar drottningar og önnur kvenfyrirmenni hafi ríkt í veröldinni frá ómunatíð. En eins og Helga Kress segir um íslenskar konur, þær beittu körlum sínum og sonum sem peðum í valdatafli á mannlífsskákinni stóru.

Eins og kunnugt er miðar kvenfrelsun einnig að því að fjölga konum í hlutverkum, sem lengi vel féll í skaut karla að sinna. Kvikmyndaframleiðendum rennur blóðið til skyldunnar við að endurspegla þessa þróun. Hörkukerlingar og kvenhetjur hafa séð dagsins ljós á tjaldinu, hver á fætur annarri. Þær skjóta karlhetjunum yfirleitt ref fyrir rass, því þær eru svo klárar, tilfinningalega þroskaðar og réttlátar, svo fátt eitt sé nefnt.

Óneitanlega fær þessi iðnaður á sig spaugilegt svipmót eins og þegar smávaxin og fíngerð kona rústar eins og tólf karlrumum með kýlingum og fótaspörkum. Það er stundum eins og helstu lestir karlmennskunnar umhverfist í góða og uppbyggilega kvenmennsku.

Kanadíski enskuprófessorinn fyrrverandi, Janice Fiamengo, skrifar í þessu viðfangi ágæta hugleiðingu um nýja þáttaröð frá Netflix, „Stjórnarerindrekann“ (The Diplomat), þar sem ofurafl kvenna er áberandi. Titill greinar hennar er: „Sæl Kata, hversu oft lemur þú karlinn þinn?“

Í stuttu máli er boðskapurinn sá, að á vorum kvenfrelsunartímum sé andstyggðarhegðun af hálfu karla, bæði leyfileg og æskileg af hálfu kvenna. Þannig sýni þær árangur valdeflingarinnar, mátt sinn og megin. Hin nýja kvenmennska verður til við að tileinka sér skrumstælda karlmennsku.

En tólfunum kastar, þegar fjallað er um heimilisofbeldismanninn, Lorena Bobbit, í hetjuljóma. Hún var það sér til frægðar að skera fyðilinn undan eiginkarli sínum árið 1993. Janice, Tom Golden og Paul Elam ræða mál þessarar heimilisofbeldisófreskju, með skírskotun til heimildarmyndar um hana, sem Amazon gerði 2018. Það vakti fyrir Amazon að skoða glæpinn frá sjónarhóli Lorena, þjáninga hennar og sannleika.

Í raun réttri er Lorena fórnarlambið, samkvæmt endurtúlkuninni. Við handtökuna sagði Lorena: „Sjáfur fær hann alltaf fullnæginu, en bíður aldrei eftir minni. Hann er sjálfselskur.“

Við réttarhöldin setti hún fram ákæru um nauðgun og barsmíðar. Susan Fiester, geðlæknir, komst að því, að Lorena þjáðist af áfallastreituröskun vegna ofbeldis í sambandinu og hefði skorið undan karli sínum í stundarbrjálæði. Lorena var dæmd til fimm vikna vistar á geðsjúkrahúsi.

Í heimalandinu, Ekvador, fékk hún þjóðarhetjumóttökur, boðið í mat til forsetans. Í Bandaríkjunum gerði Mary Beth Edelson höggmynd af Lorena. Hún er kölluð Kali Bobbitt. Ný gyðja fædd.

En Lorena var ekki sú fyrsta til að hefna sín með þessum hætti. Árið 1983 birtist, í bandarísku tímariti um skurðlækningar, grein um faraldur í Taílandi á áttunda áratugi síðustu aldar, þar sem konur skáru undan körlum sínum. Höfundar telja orsökina vera framhjáhald og niðurlægingu af hálfu karlanna.

https://en.wikipedia.org/wiki/The_Red_Tent_(miniseries) https://fiamengofile.substack.com/p/hey-kate-how-often-do-you-beat-your?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=5GvWxeVXV7E https://www.sciencedirect.com/science/article/abs/pii/0002961083904208?via%3Dihub https://www.nytimes.com/2019/01/30/arts/television/lorena-bobbitt-documentary-jordan-peele.html https://menaregood.substack.com/p/lorena-bobbitt-amazon-documentary?utm_source=substack&utm_medium=email#play https://abcnews.go.com/US/25-years-back-infamous-lorena-bobbitt-case-captivated/story?id=56039933 https://en.wikipedia.org/wiki/John_and_Lorena_Bobbitt https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/9987415/ https://www.theguardian.com/education/2012/nov/19/improbable-research-thai-women-cut-off-penis


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Nóv. 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband