Heimur á heljarþröm. Heilög helför Ísraela

Brjálaði-Bensi, barnamorðingi, leggur mikið á hermenn sína. Látlaus morð á óbreyttum borgurum tekur sinn andlega toll, rétt eins og hjá þýsku drengjunum, sem neyddir voru til að slátra Gyðingum eins og búfénaði í seinni heimstyrjöldinni. Það er andstætt karlmannlegri hermennsku að myrða börn og konur.

Slátrunin á Gaza hefur nú staðið í tíu mánuði. Kanadíski blaðamaðurinn, James Corbett, hefur dregið saman þessa sorgarsögu á sinn vandvirknislega hátt. Hann kallar slátrun Ísraela á Gaza helför. (Legg einnig hjá krækjur um stórfróðlega þætti hans um Hamas og þriðju heimstyrjöldina.)

Þrátt fyrir látlausan hernað og slátrun Ísraela á Gaza um tíu mánaða skeið, berjast Hamas (og allar hinar andspyrnuhreyfingarnar) af atorku. Það væri ofmælt að segja, að ísraelski herinn hafi borið sigurorð af skæruliðunum, þrátt fyrir alla sína „guðdómlegu“ hernaðartækni og dyggan stuðning Vesturlanda. Herinn lætur á sjá, hermönnum fækkar, margir eru lemstraðir af sárum og andlegum kaunum. Sumir fremja sjálfsmorð. Kunnáttumenn telja um 5000 hermenn þeirra fallna, um 70.000 sára.

Nauðgurum og misyndismönnum úr röðum hermanna hefur verið stefnt fyrir rétt vegna pyndinga. Þetta er þó gert í blóra við vilja bæði ofstækisfólks meðal almennings og stjórnmálamanna.

Nauðgun á palestínskum fanga í endaþarm var síðasta tilvikið, sem athygli vakti. Þingmenn rifust um það, hvort það væri leyfilegt eða ekki. Niðurstaðan varð sú, að nauðgun (sér í lagi hommanauðgun, skildist mér) væri ekki refsiverð. Bandarískur erindreki sagðist í vafa, enda ekki maður lögfróður.

Uppþot! Ókyrrð vex í landinu, samtímis því, að Brjálaði-Bensi færist allur í aukana, eftir tilbeiðsluna á bandaríska þinginu nýverið og grænu ljósin frá tuskubrúðum hernaðarauðvaldsins um árásir á Líbanon.

Brjálaði-Bensi vill reyndar senda herinn í sjálfsútrýmingarherför gegn Hisbolla, Íran og andstöðuhópum í Sýrlandi, Írak og Jemen. Hann talar eins og George Bush; „öxulveldi hins illa.“ Allir eru vondir við Gyðinga, sem hann telur sig foringja fyrir. Hugvillan er hörmuleg.

Síðasta átylla ísraelskra stjórnvalda er dráp á kristnum börnum á Gólanhæðum, sýrlensku landsvæði undir hernámi Ísraela. Orsakavaldurinn er, að öllum líkindum, brot úr varnareldflaug Ísraela sjálfra. Þegar Barnamorðinginn mætti við jarðarför barnanna tólf, var hann hrakinn á braut með hrópum eins og „tíkarsonur“ og „stríðsglæpamaður.“

Brjálaði-Bensi lætur sig dreyma um Stór-Ísrael. Hann gælir við hugsunina um kjarnorkusprengjur, þ.e. þessar sætu, litlu (neutron bomb), sem valda takmörkuðum skaða, nema á fólki. Svo er geislavirkni þeirra takmörkuð.

Í vitfirringunni gleymir Brjálaði-Bensi, að hann á fáa vini í veröldinni, nema á Vesturlöndum. Hann reiðir sig á Bandaríkin og Breta sér í lagi. Íslendingar gætu sent Víkingasveitina og rafbyssudeildina. Björn Bjarnason og herdraumóramennirnir í Kristilega jafnaðarmannaflokknum, gætu vafalaust veitt honum nytsamlega ráðgjöf, grundvallaða á herfræðum Ariel Sharon, sem þeir segja að hafi verið mikill herforingi.

Að gráu gamni slepptu; Brjálaði-Bensi gerir ráð fyrir aðstoð bandarískra stjórnvalda. „Amma sagði mér, að Gyðingar væru Guðs útvalda þjóð,“ sagði mikilsháttar stjórnvitringur á bandaríska þinginu. Og þess vegna styð ég Ísraelsstjórn, þar til yfir líkur, bætti hann við.

Bandaríkjamenn og Bretar hafa herstöðvar í Miðausturlöndum. Svo eru flotadeildir á sveimi. Þær hafa reynt að ráða niðurlögum skæruliða á sandölum í Jemen – með aðstoð Vesturlanda. M.a. hinna herskáu Norðmanna. Þeim hefur tekist að drepa nokkra fátæka og soltna Jemena, en leiðtogar þeirra eru digurbarkalegir og almenningur fer í „gleðigöngur“ til stuðnings Gazabúum, frændum sínum og frænkum. Þeir gleðjast ekki yfir regnbogaafjölbreytninni.

En það gerir bandaríski herinn. Kunnáttumenn í Bandaríkjunum telja hann hvergi í stakk búinn til að vinna bug á andstæðingum ísraelsku síonistanna, m.a. vegna þess, að hermenn þeirra séu svo „kvenlegir og fjölbreyttir.“

Andstæðingunum Ísraels fjölgar stöðugt. Arabar, Tyrkir og Persar (Íranir) þétta raðirnar. Sýrlendingar hafa aftur verið teknir í náðarfaðm Arabíska sambandsins“ (Arab League), hermenn Hesbolla eru ekki lengur skæruliðar, heldur hermenn, Persar og Sádí-Arabar hafa fallist í faðma og sjálfur Erdogan stígur í vænginn við þá alla og byrstir sig gegn Ísrael. Hann dreymir um að verða ofurleiðtogi Múhammeðstrúarmanna. Pakistanar hafa meira að segja lofað honum kjarnorkusprengjum.

Það dugar Vesturlöndum ekki lengur að „deila og drottna“ eins og þegar Bandaríkjamenn öttu saman Persum og Írökum. Og svo má ekki gleyma því, að Rússar eru með flota- og flugherstöðvar í Sýrlandi. Meira að segja Vondi-Valdi, sem er afar varkár leiðtogi, er farinn að yggla brún.

Nefndum þjóðum blöskrar aftökur, morð og sprengingar Ísraela í nágrannalöndunum, m.a. drápið á aðalsamningamanni Hamas í Teheran og herforingja Hesbolla í Líbanon nýverið. (það er að vísu ekki staðfest, þegar þetta er skrifað 2. ágúst 2024). Hefndum er hótað og þær koma.

Meðan Nató er að flosna upp, m.a. fyrir atbeina Ungverja, Slóvaka og Tyrkja, eykst samstaðan meðal Múhammeðstrúarmanna.

Kínverjar eru líka mættir til leiks með fágaða stjórnkænsku og friðarvilja að vopni. Þeir hafa, að því er virðist, náð að sameina hinar mismunandi fylkingar Palestínumanna.

En það dugar eitt og sér skammt til að skapa frið, sem Ísrael og Vesturlönd ekki vilja í raun, sbr. „friðarviðræður“ í sjötíu ár. Einasta vonin er sú, að almenningur í Ísrael rísi upp og/eða herinn, og setji síonistabrjálæðingunum stólinn fyrir dyrnar, áður en þeim verður eytt. Ný helför!

En ljóst má vera, að nýlenduheimsvaldastefna Bandaríkjanna eða „heimsveldi illskunnar“ eins og Craig Murray kallar þau, er í dauðateygjunum, þrátt fyrir einarðan stuðning Íslendinga.

https://corbettreport.substack.com/p/the-gaza-holocaust?utm_source=post-email-title&publication_id=725827&post_id=147195597&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email – https://corbettreport.com/episode-002-wwiii-starts-in-iran/ https://corbettreport.com/the-secret-history-of-hamas/ https://corbettreport.substack.com/p/middle-east-on-the-brink-as-hamas?utm_source=podcast-email&publication_id=725827&post_id=147233243&utm_campaign=email-play-on-substack&utm_content=watch_now_button&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://beeley.substack.com/p/escalation-as-the-middle-east-heads?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=147229503&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2024/08/israelsk-lovgiver-sier-det-er-legitimt-a-voldta-palestinske-fanger/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/israeli-terrorist-state/5864279 https://www.globalresearch.ca/israel-rule-law-exists-jews/5864268 https://www.youtube.com/watch?v=1rfL95dbCqw https://www.youtube.com/watch?v=qT9PgFQFvfM https://steigan.no/2024/08/irans-leder-beordrer-direkte-angrep-pa-israel/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=l5qTWVXJs5Q https://steigan.no/2024/08/usas-ud-vil-ikke-kalle-israelsk-voldtekt-av-palestinske-fanger-en-krigsforbrytelse/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.timesofisrael.com/we-are-in-the-abyss-coalition-turns-on-itself-following-mob-attack-on-idf-bases/ https://archive.vn/RQQUN https://www.jpost.com/breaking-news/article-812781 https://www.youtube.com/watch?v=HnNWMrBdXNI&t=5s https://www.globalresearch.ca/american-physicians-nurses-observations-gaza/5864112 https://www.youtube.com/watch?v=a9S0e-dgF7c https://steigan.no/2024/07/erdogan-vi-kan-ga-inn-i-israel-slik-vi-gjorde-i-libya-og-nagorno-karabakh/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/07/beijing-erklaeringen-et-historisk-vendepunkt-for-palestina/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/07/israel-bombet-boligomrade-i-beirut-hezbollah-lover-a-svare/?utm_source=substack&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/five-takeaways-from-israels-assassination?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=147192429&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://caitlinjohnstone.com.au/2024/07/25/netanyahus-speech-was-as-american-as-it-gets/ https://steigan.no/2024/07/netanyahus-tale-i-kongressen-24-juli-klare-ord-for-penga/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.craigmurray.org.uk/archives/2024/07/the-presence-of-evil/ https://steigan.no/2024/01/israel-mislyktes-totalt-med-a-tilbakevise-anklager-om-folkemord/ https://consortiumnews.com/2024/07/19/icj-israels-occupation-of-palestinian-territory-illegal/ https://geopoliticaleconomy.substack.com/p/nicaragua-israel-us-palestine-state?utm_source=post-email-title&publication_id=457596&post_id=147053194&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.theguardian.com/world/article/2024/may/23/whistleblowers-allege-widespread-abuses-at-israeli-detention-camp-sde-teiman


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Nóv. 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband