Eitraðir karlar, sigurvissir og saklausir kvenfrelsarar

Kvenfrelsarar hafa unnið stríðið gegn drengjum og körlum, segir Joel Kotkin, bandarískur samfélagsrýnir og tekur að því leyti undir orð breska kvenfrelsarans og rithöfundarins, Katharine (Penelope Cade) Burdekin (1896-1963), sem sagði í bók sinni (undir dulnefninu Murray Constantine), „Hreyknum hali“ (Proud Man) frá árinu 1934: (Sögumaður lýsir mannlífssviðinu í Englandi á tuttugustu öldinni.)

„Það er líklegt, að konur muni drottna yfir körlum, fari svo, að líffræðilegu mikilvægi kvenna sé haldið í heiðri og að konur verði sáttar við sjálfar sig frá fæðingu og finni valdið í lífmóðurinni fremur en í reðinum.

Sjálfsöryggi þeirra, sem skjóta mun rótum, jafn djúpum og hin forna öfundsýki karla, mun leysa úr læðingi andlegt ógnarvald, sem karlar hafa enga burði til að hamla gegn.

Eðli málsins samkvæmt er þess ekki að vænta, að mannkyn muni verða aðnjótandi meiri hamingju eða þokast vitund nær mennskunni (humanity). Forréttindin munu einungis umsnúast og hugsanlega munu [kven]forréttindin verða enn þá meira þrúgandi og grimmdarleg.“

Rebecca Crespo fagnar: „Framtíðin er kvenlæg og framtíðin er björt. … hún er í okkar höndum. Það er okkar að ákveða atburðarásina, hún er á okkar valdi, þökk sé brautryðjendunum.“

Rebecca tínir til ein tíu atriði í þróunin til kvenveldis. Eitt þeirra er: „Líklegra er, að konur ali upp börn upp á sitt einsdæmi.“ Annað: „Konur hafa skipað sér í forystusveit [kvenfrelsunar]herferða eins „Me-too“ og „TimesUp.“

Katharine reyndist sannspá og æði Rebecca og bJoel virðist hafa rétt fyrir sér. Þróunina þekkja flestir, sem skyggnast um með opin augu og búa við ófjötraða hugsun.

Það er alveg hárrétt hjá Rebekku, að miklu fleiri konur séu einstæðir foreldrar en karlar. Því háttar nefnilega þannig til, að venjulega æskir móðir skilnaðar og venjuleg er forræði yfir börnum úrskurðað eða dæmt þeim í hag. Samtímis þessari þróun færist það í vöxt, að konur útvegi sér sæði, án þess að stofna til sambands við sæðisgjafann, en geta þó krafist fjármuna til uppeldis afkvæminu. Fráskildir feður sökkva oft og tíðum í fátækt. Upplausn fjölskyldunnar er nöturleg staðreynd sem og síaukin umsvif hins opinbera í uppeldi ungu kynslóðanna.

Hagfræðingarnir, David Autor og Melanie Wasserman, benda á afdrifaríkar breytingar á vinnumarkaði, sem einkum íþyngir körlum og stuðla enn að fátækt. Þeir líkja þessum breytingum við hræringar í jarðskorðunni: „Síðustu þrjá áratugina hafa aðstæður á vinnumarkaði karla versnað á fjórum sviðum: starfshæfni, atvinnuleysi, mikilvægi á vinnu staðnum og útborguð laun.“

Þetta helst í hendur við aukna áherslu á kynhæfni og „jákvæða mismunun,“ sem felur í sér, að kyn konu er metið til hæfni og sé karl og kona jöfn að verðleikum, sem velja konuna. Aukið brottfall úr skóla og minnkuð ásókn í framhaldsnám og æðra nám skiptir verulegu máli. Drengir hverfa umvörpum úr skóla og fjöldi þeirra hvorki vel læsir né skrifandi. Í skóla er að miklu leyti litið fram hjá því, að drengir þroskast öðruvísi en stúlkur og læra stundum á annan hátt. Kynin eru að ýmsu leyti ólík.

Drengir gætu verið í þann mund að hverfa af fjölda sviða í háskólanámi. Í Bandaríkjunum hafa konurnar stungið körlunum ref fyrir rass í doktorsnámi. Í sálfræði t.d. eru drengir orðnir eins og hvítir hrafnar.

Í undirgreinum eins og þroska- og barnasálfræði, eru piltar hér um bil horfnir af sjónarsviðinu eins og í leik- og grunnskólum. Sama á við um sjúkrasálfræði eða klíníska sálfræði. Aðstoð er veitt í samræmi við kvenfrelsunarfræðin, þ.e. að karlar séu konum vondir, kúgarar þeirra í lífinu. Í því ljósi eru andlegar kaunir útskýrðar og lækningin felst í að „koma körlunum undir,“ þótt eitraðir séu.

Námsumhverfið við æðri menntastofnanir er óaðlaðandi og jafnvel hættulegt æru pilta. Kvenfrelsunarofbeldi fer eins og logi um akur. Auk þess er nám á háskólastigi sniðið að í auknum mæli að konum sérstaklega, meira að segja á raunvísindasviði. Kennt er undir kvenfrelsunarsjónarhorni, meira að segja jöklafræði.

Lífið í skóla endurspeglar að mörgu leyti lífið utan hans. Það virðist búa í vitund fólks, að drengjum og körlum megi fórna. Þetta sést hvarvetna í samfélaginu og margskoðað í rannsóknum. Hagsmunir þeirra og eðli er á sumum sviðum ekki virt viðlits, frekar en tilfinningar, heilsufar og sársauki. Samfélagið er almennt kvenmiðað, drengir skulu kvengerðir og gæddir sjúkdómum (eins og ADHD). Þeim er ætlað það versta (moral typecasting).

Síðustu áratugina hefur kastað tólfunum með tilkomu ýmis konar kvenréttinda- og kvenfrelsunarhreyfina, sem auðjöfrar og vestrænar ríkisstjórnir fjármagna til baráttu gegn drengjum og körlum. Sumir angar þeirra eru beinlínis hatursfullir (instrumental harm) eins og við sjáum mörg dæmi um á líðandi stundu. Samúðarklyfturinn er stór (empathy gap).

Hvernig skyldi ungum og öldnum líða í kvennaofríkinu?

Geðlyfjanotkun gæti sagt sögu. Ég hef ekki allra nýjustu tölur handbærar, en líklegt má telja, að upp undir helmingur fullorðinna gangi fyrir geðlyfjum, sem hvorki hressa, bæta eða kæta í raun réttri. Það færist stöðugt í aukana, að ungum börnum séum gefin lyf við óæskilegri hegðun eða vanlíðan.

Bandaríski félagssálfræðingurinn, Jonathan Haidt, hefur því fram, að við séum vitni að sálsýkisbylgju eða faraldri meðal ungu kynslóðanna, sem hófst fyrir um það bil einum og hálfum áratugi síðan. Hann vinnur nú að því í opinni samvinnu við alla þá, sem eitthvað vísindalegt og viti borið hafa til málanna að leggja. Bráðabirgða hlutfallstölur um aukningu frá 2010 eru þessar:

Sjálfsvíg; unglingar á aldrinum 15-19: drengir 35% - stúlkur 64%. Unglinar á aldrinum 10-14 ára: drengir 109% - stúlkur 134%.

llvígt þunglyndi; stúlkur 145% - strákar 161%.

Sjálfsmeiðingar; stúlkur 48% - drengir 37%. Innlagnir vegna þessa; hjá stúlkum 188% og drengjum 48%.

Nýnemar í háskóla: kvíði 134%; þunglyndi 106%; ADHD 72%; fíkniefnaneysla 33%; geðhvarfasýki 57%; lystarstol 57% og geðklofi 67%.

Niðurstöður úr öðrum áttum eru svipaðar: Á árabilinu 2000 til 2007 jókst sjálfsvígtíðni með drengja um 25% og fíkniefnadauði um 250%.

Lokaorðin koma frá Joel Kotkin: „Þær tilhneigingar, sem við erum vitni að á líðandi stundu lýsa ekki kvenfrelsunarparadís heldur sjúku samfélagi, þar sem karlar og konur láta skeika að sköpuðu í sífellt meira mæli eða sitja aldrei á sátts höfði.“

Ábending um lesefni:

Richard V. Reeves: Of Boys and Men: Why the Modern Male Is Struggling, Why It Matters, and What to Do about It.

Aman Siddiqi: A Clinical Guide to Discussing Predudice Against Men - The Psychology of Prejudice Against Men: How is it Maintained.

Josh Hawley: Manhood. The Masculine Virtues America Needs. Paul Nathanson og

Katherine K. Young: Legalizing Misandry: From Public Shame to Systematic Discrimination Against Men

https://www.encyclopedia.com/arts/educational-magazines/burdekin-katharine-1896-1963 https://www.youtube.com/watch?v=I9FgvXkUknc https://menaregood.substack.com/p/prejudice-against-men-maintaining?utm_source=post-email-title&publication_id=1350013&post_id=124633232&isFreemail=true&utm_medium=email https://fiamengofile.substack.com/p/never-blame-feminism?utm_source=substack&utm_medium=email https://menaregood.substack.com/p/red-pill-relationships-3-understanding?utm_source=substack&utm_medium=email https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/36930334/#:~:text=Findings%20indicate%20people%20(especially%20women,%3B%20Sacrifice%3B%20Sacrificial%20harm%20endorsement. https://www.centreformalepsychology.com/male-psychology-magazine-listings/its-easier-to-blame-men-than-to-see-men-as-victims https://menaregood.substack.com/p/instrumental-harm-should-women-be?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S0749597820303630 https://news.unm.edu/news/choices-choices-choices-why-your-gender-may-impact-them https://www.theguardian.com/books/2023/may/13/manhood-review-josh-hawley-book-tucker-carlson https://www.dailysignal.com/2023/05/18/josh-hawley-masculinity-manhood-book-war-men/ https://www.wsj.com/articles/for-long-term-health-and-happiness-marriage-still-matters-86114ced?utm_source=substack&utm_medium=email https://nationalpost.com/opinion/women-have-won-the-war-between-the-sexes-but-at-what-cost https://jonathanhaidt.substack.com/p/the-teen-mental-illness-epidemic https://www.theatlantic.com/magazine/archive/2015/09/the-coddling-of-the-american-mind/399356/ https://www.judiciary.senate.gov/imo/media/doc/Haidt%20Testimony.pdf https://www.wsj.com/articles/why-children-need-nurturing-fathers-e7d84db8 https://www.theatlantic.com/magazine/archive/2018/12/the-sex-recession/573949/ https://ifstudies.org/blog/1-in-4-projecting-childlessness-among-todays-young-women https://www.aei.org/politics-and-public-opinion/the-dangerous-faculty-gender-gap/ https://basicsbybecca.com/blog/the-future-is-female https://www.washingtonpost.com/opinions/why-cant-we-hate-men/2018/06/08/f1a3a8e0-6451-11e8-a69c-b944de66d9e7_story.html https://www.thirdway.org/report/wayward-sons-the-emerging-gender-gap-in-labor-markets-and-education https://fiamengofile.substack.com/p/and-another-man-gone-and-another https://www.nytimes.com/2012/08/25/opinion/men-who-needs-them.html https://www.apa.org/monitor/2019/01/ce-corner http://www.ejfi.org/family/family-26.htm https://www.mindingthecampus.org/2017/11/30/we-made-this-harassment-law-up-from-the-beginning-and-now-weve-won/ https://www.mindingthecampus.org/2019/01/03/why-men-are-falling-behind-in-schools/ https://www.mindingthecampus.org/2019/01/15/the-toxic-mission-to-reengineer-men/ https://www.wsj.com/articles/masculinity-isnt-a-sickness-11547682809 https://www.nationwidechildrens.org/newsroom/news-releases/2023/02/bridge_ruch_youthsuicide_pandemic https://societyhumanities.as.cornell.edu/news/family-abolition-focus-upcoming-lecture-sophie-lewis https://www.asanet.org/women-more-likely-men-initiate-divorces-not-non-marital-breakups/ https://canadiancrc.com/newspaper_articles/catholic_exchange_what_god_has_joined_10mar03.aspx 2003 https://www.mindingthecampus.org/2019/01/27/the-feminist-mission-to-undermine-heterosexuality/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Jan. 2025

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband