Um að slíta sundur friðinn á sólarströnd í Sevastopol. Háskasumar

Váskeyti úr vestri falla eins og skæðadrífa víðsvegar um Rússland. Drápsflaugarnar koma af úkraínskri storð, en eru framleiddar á Vesturlöndum (flestar í Bandaríkjunum) og beint á braut af vestrænum hertæknimönnum, samkvæmt njósnum gervihnatta þeirra.

Þess er skemmt að minnast, að flaugum var skotið að viðvörunarstöðvum Rússa. Ein þeirra laskaðist verulega. Það torveldar Rússum að greina tegund morðflauganna, sem þeim eru sendar. Með öðrum orðum auka slík skemmdarverk enn á hættuna á kjarnorkustríði.

Fyrir nokkrum dögum síðan beindu Vesturlönd flugskeyti með ólöglegum klasasprengjum (cluster) að sólarströnd í Sevastopol. Tilgangurinn með slíkum sprengjum er að valda sem mestu manntjóni.

Bandaríkjamönnum/Úkraínumönnum varð að ósk sinni. Nokkrir baðgestir voru drepnir, þar á meðal lítið stúlkubarn. En vafalaust vakir einnig fyrir Vesturlöndum að ögra Rússum til alvöru styrjaldar. Þeir hafa þráfaldlega lýst því yfir, að hefnt yrði fyrir slíkar árásir.

Sendiherra Bandaríkjanna í Mosku, Lynne Tracy, var kallaður á teppið hjá Sergei Lavrov (sem fréttastofa RÚV (Bogi Ágústsson) kallar bullara). Sergei ku hafa tjáð sendiherranum, að nú væri sundur slitinn friðurinn, slíkra fólskuverka yrði hefnt eins og boðað hefði verið.

Fjöldi skynsamra kunnáttumanna hefur varað við stigmögnum stríðsins í Úkraínu. Það er engu líkara en að einbeittur stríðsvilji ráði för. Alla vegna talast óvinirnir varla við. Það er lýsandi fyrir þroska þeirra, sem hafa veröldina í höndum sér.

Einn hinna skynsömu er brasilíski blaðamaðurinn, Pepe Escobar, sem reifar þróun stríðsins í Úkraínu með sérstöku tilliti til heitstrengina þess efnis að senda öflugri vopn og hermenn Vesturlanda til Úkraínu.

Emmanuel Macron er Pepe sérstakalega hugstæður í þessu tilliti. Hann kallar Emmanuel „smákónginn“ (Le petit roi). Hann er jafn ófær og Napóleon (stóri kóngurinn) um að læra af sögunni. Þráhyggjan um að ráða niðurlögum Rússa og komast yfir auðlindir þeirra lifir enn góðu lífi í Frakklandi og fleiri Vesturlöndum.

Yfirvofandi innrás í Rússland eða styrjöld verður væntanlega háð undir vígorðunum, „frelsi, jafnrétti, bræðralag.“ Þó er trúlegt, að bræðralaginu verði í nafni jafnréttis breytt í „systralag“ eða „hánalag.“ „Kjánalag væri þó réttnefni.

En því má ekki gleyma, að styrjöldin er í raun hafin. Upplýsinga- og efnahagsstyrjöld er háð af grimmd. Vesturveldin hafa t.d. stolið eða fryst gjaldeyrisvarasjóði Rússa og ætla sér að nota arðsemina af þeim til að fjármagna vopnakaup hjá sjálfum sér til að herja á Rússa.

Nú er þjófnaður einnig talinn til þeirra gilda okkar, sem varin eru með lífi hundruða þúsunda úkraínskra karlmanna, sbr. orð Bjarna Ben II í hátíðarræðu 17. júní.

Það er ekki að undra, að Pepe búi okkur undir háskasumar.

The U.S. Is Leading the World Into the Abyss - Global ResearchGlobal Research - Centre for Research on Globalization https://steigan.no/2024/06/russland-advarer-usa-etter-dodelig-angrep-pa-krim-gjengjeldelsestiltak-vil-folge/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=jJYzRFsR5dQ https://www.globalresearch.ca/acting-as-if-it-werent-really-so/5860125 https://gilbertdoctorow.com/2024/06/27/todays-edition-of-judging-freedom-russian-retaliation/ https://expose-news.com/2024/06/23/andrew-bridgen-we-are-already-at-war-with-russia/ https://www.youtube.com/watch?v=iXD8t7gYpTo https://sonar21.com/nato-and-israel-hurtling-towards-wars-of-self-destruction/ https://sonar21.com/russia-tells-u-s-ambassador-we-are-no-longer-at-peace/ https://informationclearinghouse.blog/2024/06/16/the-summer-of-living-dangerously/15/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Júlí 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband