Flestum ætti að vera ljóst, að Íslendingar eru stefnulausir í utanríkismálum eins og Þórdís Kolbrún hefur bent á. Við fylgjum hinum, sagði hún. Hinir eru í raun stríðssjúklingarnir, sem Bandaríkjunum stjórna í blóra við vilja almennings.
Flestum ætti líka að vera ljóst, að bandarísk stjórnvöld hafa háð nær látlaus stríð frá annarri heimstyrjöldinni og þverbrotið alla góða siði, reglur og alþjóðalög, eins og náinn bandamaður, Ísrael og Nató vissulega einnig.
Stríð og dráp yfirvalda hafa kostað bandarískan almenning gríðarlega fjármuni og orðið hundruðum þúsunda að fjörtjóni, en að sama skapti tryggt Bandaríkjunum yfirburðastöðu með tilliti til stjórnmála, hernaðar og viðskipta. Bandaríkin hafa herstöðvar í 80 löndum eða hér um bil, um 800 að tölu. Ísland er raunverulega slík herstöð.
Herstöðvum Bandaríkjamanna fjölgar skart á Norðurlöndunum og við Eystrasalt, þar sem tekist hefur að æra stjórnvöld til að vígbúast af kappi og blása lífi í Rússafælnina. Norski stríðsfautinn, Jens Stoltenberg, á þar drjúgan hlut að máli.
Stríðið í Úkraínu og Gaza enn þá háð að mestu við hjálp staðgengla eru síðustu afrekin. RÚV og ríkisstjórnin hafa viljað telja okkur trú um, að ýmist Rússar eða Palestínumenn hafi tekið frumkvæði að þessum stríðum að tilefnislausu og allt sé þeim að kenna. Í þeirra fátæklega huga byrjaði veraldarsagan í þessu viðfangi annars vegar 7. okt. 2023 og 24. febrúar í 2022.
Þeir, sem söguna þekkja, og eru lausir við stjórnmálatrú, vita, að svo er ekki. Hér gefst áhugasömum kostur á að fræðast af tveim afburðakennurum, sem báðir hafa lifað og hrærst í atburðarásinni um áratugi, gagnmenntaðir báðir.
Jeffrey Sachs er hnífskapur greinandi, bandarískur hagfræðingur og afi. Hinn þekkja trúlega allir af vondu umtali, lögfræðinginn, Vladimir Putin eða Vonda-Valda, forseta Rússneska ríkjasambandsins, sem er maður gagnfróður og snjall, jafnvel þótt hafi látið blekkjast af fagurgala stjórnmálamanna í Villta vestrinu, hvað eftir annað. En það er komið annað hljóð í strokkinn. Nú skulu Bandaríkin og Nató ekki komast upp með meiri moðreyk.
Tucker Carlson er viðmælandi beggja og ferst það hlutverk ljómandi vel úr hendi, enda er maðurinn fróður og beinskeyttur. Sagnfræðingurinn, T.P. Wilkinson, skrifar fróðlegar athugasemdir um viðtölin.
Afskaplega fræðandi, meira að segja um veirustríðin. Fróðleiks- og viskubrunnur! Ausið úr honum, sérstaklega þið, sem hafið látið telja ykkur trú um, að við séum að verjast Rússum, og hugrekki hafið. Rússagrýluafturgangan fer ljósum logum í fjölmiðlum og á ríkisstjórnarfundum. Afinn, Jeffrey, gefur okkur ráð; göngum ekki fram á gnípu kjarnorkustyrjaldar.
Þá er heldur ekki úr vegi að minna á rússneska kafbátaforingjann, sem forðaði heiminum frá kjarnorkustyrjöld 1962, Vasily Arkhipov (1926-1998). Við stöndum öll í þakkarskuld við hann. (Sbr. bók Martin Sherwin (1937-2021), Heimstortímingaráhættuleikinn: Kjarnorkurúllettuna frá Hirosima til Kúbukreppunnar (Gambling with Armageddon: Nuclear Roulette from Hirosima to the Cuben Millile Crises).
Dómgreindarskorturinn og vitfirringin, sem er svo dæmigerð fyrir vestræna stjórnmálamenn um þessar mundir, lýsir sér vel í orðum finnska forsætisráðherrans, Alexander Stubb. Leiðin til friðar liggur um vígvöllinn.
Fleiri forystumannaóvitar hafa látið svipaða speki út úr sér eins og Kaja Kallas og okkar ástsæla stríðsgyðja, Þórdís Kolbrún.
Íslensk stjórnvöld beita íslenska skattgreiðendur siðferðilegu og lýðræðislegu ofbeldi með milljarðaflóði skatta þeirra til gjörspilltra og stríðsbrjálaðra yfirvalda í Úkraínu. Það er rík ástæða til að ætla, að drjúgur skerfur þessara fjármuna rati inn á einkareikninga stjórnmála- og embættismanna í fyrirmyndarlandinu.
Enn eru nokkrir stráklingar á lífi þar um slóðir, sem etja má á blóðforaðið.
https://www.msn.com/en-us/news/world/finnish-president-stubb-s-grim-forecast-the-path-to-peace-in-ukraine-is-through-the-battlefield/ar-BB1m9cfV https://www.amazon.com/Gambling-Armageddon-Roulette-Hiroshima-1945-1962/dp/0307266885 https://www.bbc.com/news/world-europe-24280831 https://www.vice.com/en/article/bvmdqa/the-story-of-the-soviet-submarine-officer-who-saved-the-world-is-now-an-opera https://allthatsinteresting.com/vasili-arkhipov https://www.globalresearch.ca/unbecoming-american-tucker-carlson-jeffrey-sachs/5858828
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021