Bólusetningarrétttrúnaðurinn í sambandi við covid-19, vanrækslur, rangfærslur og lygar ríkisvaldsins (Landlæknisembættið meðtalið), hafa vafalaust vakið marga af værum blundi með þá spurningu á vörum, hvort hið opinbera fagnaðarerindi um bólusetningar ætti við vísindaleg rök að styðjast.
Bóluefni lyfjafyrirtækjanna eru einatt auglýst sem heilsubætandi og örugg. Raun ber vitni um, að svo sé alls ekki (alltaf). Bólusetningar við covid-19 eru skólabókardæmi um það. Markaðurinn eykst stöðugt, bólusetningum fjölgar.
Flestir hafa líklega gleymt Alival og fleiri slíkum, sem drápu og sködduðu. Ríkisvaldið á Vesturlöndum hefur verið dæmt til að greiða skaðabætur í hverju málinu á fætur öðru. Lyfjafyrirtækin hafa keypt fulltrúa sína á þjóðþingum einkum í Bandaríkjunum til að firra sig ábyrgð á varningnum. Þau eru í raun ein til frásagnar um verkun og áhættu af lyfjum og bóluefnum. Læknar þiggja speki sína um lyf frá þeim. Heilbrigðisyfirvöld tryggja markaðinn. Almenningur og sjúklingar borga.
Miðtaugakerfisskaði (einhverfa, autism) er líkleg aukaverkun vegna óhóflegra bólusetninga. Nú er tekist á um það fyrir dómstólum í Bandaríkjunum. Barnataugafræðingurinn, Andrew Zimmerman, hefur nú snúið við blaðinu í þessu efni eins og hjartasérfræðingurinn, Aseem Malhotra, í sambandi við mRNA við covid-19. Bóluefnin valda alvarlegum aukaverkunum.
Andrew staðhæfir ekki einungis, að barnabólusetningarnar geti valdið einhverfu, heldur hafði hann gefið skýrslu um niðurstöðurnar til bandarískra heilbrigðisyfirvalda. Þau létu aðvaranir sem vind um eyru þjóta. Svo mikil eru völd lyfjafyrirtækjanna og gríðarleg tregðuíhaldssemi lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna.
Hinn kunni hjartasérfræðingur, Peter McCullough, tekur í sama streng og kallar þetta faraldur, þ.e. 1 af hverju 36, nefnir 200 rannsóknir í því sambandi. Þessi börn verða fremur fórnarlömb áróður um kynbrenglun, segir hann. Kynvakagjafir og uppskurðir rugla þau enn frekar í ríminu.
Börn, sem aldrei hafa verið bólusett, búa við betra heilsufar en þau bólusettu, samkvæmt niðurstöðum 5 rannsókna. Nú eru börn bólusett 108 sinnum i Bandaríkjunum, jafnvel 13 bóluefni í einu. Um helmingur skyndilegs nýburadauða á sér stað innan viku frá bólusetningu.
Ástralski læknirinn, Ian Brighthope, segir: Af sögulegum sjónarhóli er ljóst, að flest bóluefni hafa sýnt sig að vera eitruð og hafa valdið tjóni á margvíslegan hátt eins og við smitun (contamination) [og] óvænt viðbrögð ónæmiskerfis. [Þau hafa einnig] valdið þeim sjúkdómi, sem verjast átti, eða kveikt hann af óþekktum orsökum, trúlega sökum ofuroxunar (hyper-oxidation).
(Sjá bókina; Bóluefni, Goðsagnir og staðreyndir (Vaccines. Myths and Facts), eftir Wendy Daniel.)
https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2283207/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/?year=2022;month=1 https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2291601/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/?year=2022;month=2;offset=20 https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/?month=2;year=2022;offset=10 https://frettin.is/2022/11/24/heilbrigdiskerfi-i-heljargreipum-lyfjaidnadarins-bolusetningar/ https://rumble.com/v4wzoxl-pfizer-insider-admits-pandemic-was-a-depopulation-scam.html https://ianbrighthope.substack.com/cp/144905289 https://ianbrighthope.substack.com/cp/144680353 https://expose-news.com/2024/05/22/childhood-vaccines-and-autism-things-have-got-out-of-control/
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021