Bankaveldið og alþjóðlegir auðmenn búa til kreppur til að auðgast og skapa glundroða, ringulreið, ótta og óöryggi, svo tryggja megi fylgispekt og undirgefni við yfirvaldið, þ.e. þá sjálfa og málaliða þeirra meðal embættis- og stjórnmálamanna. Í þennan jarðveg er svo sáð fyrir réttri vitund og hugsun, einkum með einsleitri fjölmiðlun og samhæfðum áróðri.
Markmið auðvaldsins er stjórnun alheimsins. Úr öskustónni rís hin Nýja heimsskipan (New World Order). Betur skal endurbyggt (build back better) í Endurræsingunni miklu (The Great Reset). Í Alheimsefnahagsráðinu (World Economic Forum) er skálað. (Hver veit nema Katrín Jakobsdóttir fái líka að skála á næsta fundi í Davos eða annars staðar. Hún er handgenginn genginu eins og skólabróður sínum, Justin Trudeau, sem hún faðmaði svo innilega um daginn.)
Það verður líklega skálað líka á sameiginlegum fundi Alheimsefnahagsráðsins og Sameinuðu þjóðanna. Og hver veit nema Klaus Schwab og Antonio Guterres faðmist líka ástúðlega, því áætlanir beggja stofnananna eru samhæfðar. Hjá SÞ heitir hún: Sjálfbærnimarkmiðin. Katrín er líka afskaplega hrifin af þeim og beinir íslensku þjóðinni ákaft í þá átt með baráttusystkinunum í VG. Eitt nefndra markmiða er nefnilega valdefling og framhaldsfrelsun kvenna og dætra þeirra.
Sameinaðir auðdrottnar Þriggja hundraða ráðsins (og forvera þess) hafa stefnt að alheimsyfirráðum í drjúgar tvær aldir. Þeir eru iðnir við kolann og auðga stundum hvern annan. Rothschild, Rockefeller, Schiff, Soros, Ford og Gates, eru áberandi um þessar mundir.
Sögulega eru þó skemmtilegastir tíu stórir pabbastrákar, þ.e. fimm synir Mayer Amschel Rothchild (1744-1812), annars vegar, og fimm synir John Davison Rockefeller eldri (1839-1937), hins vegar. Mamma Rothschild sagði syni sína ráða því, hvort í veröldinni ríkti stríð eða friður. En þeir lærðu snemma þá list að græða á stríðum. Hinir runnu á lykt blóðs og auðs. Um þessar mundir græða þeir mest á Úkraínustríðinu.
Margir auðvaldanna hafa komið ár sinni fyrir borð í alls konar sjóðum og stofnunum, ekki síst mennta- og vísindastofnunum, stofnunum æðri menntunar. Sumar hafa þeir stofnað. Og svo hafa þeir auðvitað seilst til áhrifa í þingum, embættisveldi og ríkisfjölmiðlum lýðræðissamfélaga. Suma leiðtoga þeirra hafa þeirra í taumi skulda, ofríkis og ofbeldis.
Sjóðirnir stunda fjárfestingar, uppkaup á landi og fyrirtækjum, bólusetningar, lyfjaframleiðslu, uppreisnir og stríð jafnvel. Það á sér oft og tíðum stað með stofnun velgjörða-, mannúðar-, fjölmiðlunar-, sannleiks-, frelsis- og lýðræðissamtaka, handan laga hins einstaka ríkisvalds. Slík samtök kallast nongovernmental organizations. RÚV kallar fyrirbærið frjáls félagssamtök.
Beinn sumruni ríkisvalds og fyrirtækja (private-public partnership) er önnur leið til áhrifa í veröldinni. Þar starfa auðdrottnar og stjórnmálamenn lýðræðisríkja náið saman. Yfirvarpið er oft og tíðum einhvers konar mannúðarverkefni eins og bólusetning allra barna í þriðja heiminum. Það snýst eiginlega um tilraunir með lyf og bóluefni á grunlausu fólki.
Eitt dæmi er GAVI, bólusetningasamtök á vegum Bill Gates, Norðmanna og Breta (sömu þjóða og áttu líka samvinnu um að sprengja Líbíu í tætlur.) Óþægum leiðtogum er mútað, útskúfað eða þeir drepnir. Þetta er tilbrigði við fyrirkomulagið á tímum fasista og nasista.
Alþjóðaauðvaldið hefur hagnast vel á covid-kreppunni og hernaðinum í Úkraínu. Málaliðar þeirra í stjórnmálunum hafa tryggt gríðarlegar fjárhæðir til kaupa á bóluefnum og vígtólum úr vösum skattgreiðenda. Samtímis hefur verið grafið undan efnahagi vestrænna ríkja (og víðar) í ljósi bábiljunnar um hamfarahlýnun.
Óðaverðbólgan kemur í kjölfarið eins og ráð er fyrir gert, vaxtahækkanir í kjölfar hennar. Nú er svo komið í Bretlandi, að fólk etur ekki fylli sína. Fátæktin hefur haldið innreið sína hjá almenningi.
Síðasta árið eða svo, segjast 14% fullorðinna hafa óttast að eiga ekki fyrir viðurværi sínu, samkvæmt nýrri rannsókn. Fjöldi hefur leitað á náðir góðagjörðasamtaka.
Hungurvofan er sem sé komin á kreik á Vesturlöndum, meðan stjórnmálamenn berjast fyrir skerðingu matvælaframleiðslu í nafni umhverfisverndar.
https://www.corbettreport.com/nordangard-un/?utm_source=substack&utm_medium=email https://blog.jacobnordangard.se/ https://drjacobnordangard.substack.com/p/the-greatest-history-never-told https://www.un.org/en/common-agenda https://digitalcommons.rockefeller.edu/the-rockefellers/37/ https://www.sourcewatch.org/index.php?title=E._Richard_Brown https://www.globalresearch.ca/video-destabilization-world-economy-prof-michel-chossudovsky/5824026 https://www.globalresearch.ca/video-when-lie-becomes-truth-prof-michel-chossudovsky/5819060?utm_campaign=magnet&utm_source=article_page&utm_medium=related_articles https://unherd.com/2023/06/why-britain-cant-control-inflation/?=refinnar https://www.trusselltrust.org/wp-content/uploads/sites/2/2023/06/2023-Hunger-in-the-UK-report.pdf https://unherd.com/2023/06/the-bank-of-england-is-sacrificing-workers/
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021