Forseti Rússlands, Vladimir Putin, virðist hafa gefið Yevgeny Prigozhin, herforingja Wagner hersveitarinnar (sambærileg við Frönsku útlendingahersveitina og Blackwater í Bandaríkjunum) svipaða meðferð og hinum auðvöldunum (óligörkunum), þ.e. skipti þeir sér af stjórnmálum, skuli þeir útlægir gerir.
Það var augljóslega ekki um tilraun til valdaráns að ræða. En Y. Prigozhin er herskár og virðist fyrir þær sakir njóta talsverðrar hylli, bæði innan hersins og utan.
Y. Prigozhin vildi - líklega eins og margir fleiri - leggja Úkraínu undir Rússa í einu tilhlaupi. Þeim þykir V. Putin of varfærinn, enda hefur það aldrei verið markmiðið hans að leggja Úkraínu að fótum Rússa. Það kynni þó að breytast nú. Kjarnorkuvopnasöngurinn er enn kyrjaður í bandaríska þinginu.
Barátta Y. Prigozhin við varnaramálaráðherrann, Sergei Shoigou, sem uppreisnarforinginn hafði hugsað sér að steypa af stóli, gæti einnig endurspeglað átök spilltra valdamanna í rússneskri stjórnsýslu. Það er varla ástæða til að ætla, að spillingin sé horfin úr stjórnmálunum.
Það verður fróðlegt að sjá, hvað verður um hinn misheppnaða uppreisnarforingja og hvernig forseti Hvíta-Rússlands, Alexander Lukashenko, sem skýtur yfir hann skjólshúsi, ætlar sér að spila úr stöðunni.
Áður en A. Lukashenko gerðist sáttasemjari í Rússlandi, hafði hann nefnilega spurnir af því, að Vesturlönd skipulegðu, áamt innlenda andófshernum, valdarán í landinu. M.a. hvöttu úkraínsk yfirvöld almenning til uppreisnar.
A. Lukashenko er skiljanlega á varðbergi og starfar greinilega náið með vini sínum, V. Putin, að öryggis- og varnarmálum. Það gefur auga leið, að báðir voru undirbúnir og höfðu njósnir af uppreisnum beggja vegna landamæranna. V. Putin á greinilega tryggan bandamann í forseta Hvíta-Rússlands í stríðinu við Vesturlönd í Úkraínu.
Nú mætti ætla, að Rússar létu loksins til skarar skríða í Úkraínu. En það hefur reyndar staðið einkennilega lengi til. V. Putin endurtekur stöðugt, "að allt sé samkvæmt áætlun." Það virkar þó ekki alveg trúverðugt. En nú hlýtur að vera lag; nothæfum strákum/körlum í Úkraínu hefur verið slátrað upp til hópa, gömlum vopnum eytt, svo og talsverðum hluta nýrra vopnaskrans frá Vesturlöndum. Það er ekki meira til og verksmiðjurnar hafa ekki undan.
(Það væri fróðlegt í þessu sambandi að vita um örlög hálfrar aldar gömlu hertrukkanna, sem vinir okkar, Norðmenn, sendu lýðræðis- og frelsishetjum Úkraínu.)
Allra nýjustu vopnin kunna Úkraínumenn ekki á og langan tíma tekur að þjálfa þá, sem enn halda lífi. Verði bandarískar og aðrar Nató-hersveitir sendar inn á vígvöllinn, aukast enn líkur á kjarnorkustríði.
Því er það skiljanlegt, að úkraínskum hermanni detti í hug, að fyrir yfirvöldum hans vaki að útrýma þjóðinni. Það er allavega opinber hernaðarstefna Nató; berjist til síðasta Úkraínu(karl)manns, segja heræsingamenn bandalagsins. Þórdís Kolbrún steytir hnefann og krefst - í nafni lýðræðis og friðar -fullnaðarsigurs Vesturlanda í Úkraínu.
Wagner hersveitin er forvitnilegt fyrirbæri. (Ber nafn þýska tónjöfurins , Richard Wagner, vegna dálætis stofnandans á tónskáldinu.) Hún er reyndar ein af mögum hersveitum svipaðar tegundar, sem rússnesk hernaðaryfirvöld hafa gert tilraunir með. Trúlega er um einhvern ágreining að ræða í því efni milli forsætis- og varnarmálaráðherra, sem hefur gríðarlega ítök í Rússlandi og gæti hugsanlega ógnað sitjandi forseta.
En hvernig sem því líður hefur endurskipulagning hersins staðið yfir frá upplausn Ráðstjórnarríkjanna fyrir rúmum þrem áratugum síðan. Þá gengu spillingarflóðöldur yfir samfélagið. Auðvaldar rændu og rupluðu í skjóli Boris Yeltsin og vestrænna bakhjarla hans eins og Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseta.
Vladimir Putin sagði auðvöldunum stríð á hendur eins og hann virðist hafa gert gagnvart Y. Prigozhin, vini sínum, nú. Vináttubandið kynni þó að hafa trosnað.
Það er með hreinum ólíkindum, að skúrkinum þeim, þ.e. Y. Prigozhin, hafi verið gefinn svo laus taumurinn í Úkraínustríðinu. Hann hefur storkað ríkisstjórn Rússlands ítrekað í fjölmiðlum. Það er sjálfgefið, að rússneska leyniþjónustan hafi haft fingur á púlsinum og haft skýrt hugboð um, hvert stefndi.
Hugsanlega erum við vitni að stjórnkænsku V. Putin. Hann er bæði klækjarefur, menntaður í leyniþjónustunni, og gagnmenntaður stjórnmálamaður á alþjóðavísu. Langlundargeðið gagnvart Vesturlöndum gæti þó komið honum í koll í innanbúðarvaldabaráttunni eins og upphlaup Y. Progozhian, bendir til.
Vinatengslin eru úr íslensku sjónarhorni séð skemmtilega heimilisleg, því allir aðalleikendur eru (eða voru) góðir vinir, eins konar vinatroika; V. Putin, A. Lukashenko og Y. Prigozhin.
Upphlaup eða uppreisnir af svipuðu tagi og við keimlikar aðstæður, hafa Vesturveldin gert í Kasakstan með betri árangri - og Úsbekistan.
Það gæti verið til skilningsauka í stöðunni, að eftir misheppnaða valdaránstilraun Y. Prigozhin féllu hlutabréf stríðsiðnaðarins í verði á mörkuðum.
https://www.voltairenet.org/article219564.html https://steigan.no/2022/01/etter-kasakhstan-er-fargerevolusjonenes-epoke-over/ https://www.visionnews.online/post/government-plan-looks-like-extermination-of-its-own-population-ukraine-soldier-tells-vice?postId=bf44e518-2a40-47ba-ba04-b9ceff330128&utm_campaign=df42d1c5-9228-4484-b93d-1223670da7bf&utm_source=so&utm_medium=mail&utm_content=47c935f3-9fd0-438a-b010-43e7385bd58a&cid=13822ff6-9cac-4fec-a138-6b457b06a2f5 https://astanatimes.com/2022/11/kazakh-law-enforcement-prevent-coup-detat-planned-for-election-day-video/ https://eng.belta.by/president/view/lukashenko-west-is-preparing-coup-dtat-in-belarus-159294-2023/ https://thecradle.co/article-view/5668 https://www.rt.com/russia/578777-lukashenko-belarus-wagner-coup/ https://steigan.no/2023/06/aksjekursene-til-vapenindustrien-falt-etter-det-mislykte-kuppforsoket-i-russland/?utm_source=substack&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/exiling-prigozhin-and-his-collaborators?utm_source=substack&utm_medium=email https://roloslavskiy.substack.com/p/the-kremlin-is-reneging-on-the-wagner?utm_source=substack&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/the-us-manipulated-alt-media-into?utm_source=substack&utm_medium=email https://corbettreport.substack.com/p/wtf-just-happened-in-russia-with?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/creating-havoc-in-moscow-wagners-pmc-short-lived-rebellion-against-putin-who-was-behind-it/5823526 https://www.realhistorychan.com/anyt-06262023.html https://steigan.no/2023/06/aksjekursene-til-vapenindustrien-falt-etter-det-mislykte-kuppforsoket-i-russland/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.voltairenet.org/article219514.html https://www.indianpunchline.com/fsb-spooked-the-cia-on-prigozhin-coup/ https://www.globalresearch.ca/the-russian-coup-that-wasnt/5823660 https://www.indianpunchline.com/the-rise-and-fall-of-a-russian-oligarch/
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021