Nýlega sagði hinn kunni bandaríski fjölmiðlamaður, Tucker Carlson, á þessa þeið: Ég hef alltof lengi tekið þátt í útskúfunarlygamenningu fjölmiðlanna, þar sem þeir, er okkur þótti öðruvísi og ótilhlýðilega þenkjandi, voru sagðir samsæriskenningasmiðir.
Eini tilgangur fjölmiðla er að ljúga og blekkja. Það er ekki tilgangur þeirra að upplýsa um covid-19, efnahaginn og gang heimsmála, til dæmis, hin stóru mál. Þeir eru í þjónustu fámenns hóps manna sem í raun stjórnar veröldinni, Fjölmiðlar eru þjónar þeirra og lífverðir. Þeir eiga ekkert nema fyrirlitningu skilið.
Þessi fámenni hópur, sem Tucker talar um, á sér mörg nöfn eins og kært barn, m.a.: Þriggja hundraða ráðið, Hin lögmæta mafía, Hinir útvöldu og Ljósálfarnir (Illuminati). Þá er í hnotskurn átt við auðkýfingaættir, sem standa á gömlum mergi, m.a. Rauðskjöldungar (Rothschield) og Svarti aðalinn.
Þeir gömlu sameinast hinum nýríku í alls konar hugveitum og alþjóðlegum samtökum eins og Alheimsefnahagsráðinu (World Economic Forum), í viðleitni sinni til að ná enn þá betra taki á oss, aumingjunum. Hópurinn á fulltrúa víða í ríkisstjórnum og stjórnsýslu.
Tucker fetar í fótspor annars blaðamanns, sem hefur helst úr lygalestinni, hins þýska Udo Ulfkotte (1960 2017). Skömmu áður en hann varð bráðkvaddur, kom hann með þessa játningu:
Ég hef verið blaðamaður í aldarfjórðung. Ég var menntaður til að ljúga, svíkja og fela sannleikann fyrir almenningi. En nú er nóg komið og engin leið til baka, þegar ég verð vitni að því, hvernig þýskir og bandarískir fjölmiðlar leitast við að efna til stríðs í heimahögum Evrópubúa og eggja til stríðs við Rússa.
Ég spyrni við fótum og játa fyrri mistök, þ.e. að hafa fólk að ginningarfíflum og semja áróður gegn Rússum. Starfsbræður og -systur hafa rangt við nú sem endranær. Þeim er mútað til að svíkja fólk, ekki einungis í Þýsklandi, heldur um alla Evrópu.
Í neðangreindu viðtali lýsir Udo, hvernig fjölmiðlaheimurinn lítur út að tjaldabaki. Þar deila og drottna auðmenn, eigendur fjölmiðlanna síðustu öldina eða svo, og panta heimildalausar, upplognar áróðursgreinar, sem styðja við stefnu þeirra og völd. Leyniþjónusturnar sér í lagi hin bandaríska, CIA eru oft og tíðum potturinn og pannan í slíkri fjölmiðlun.
Það er svo sem ekki að undra, að Udo hafi fengið hjartaáfall, sem dró hann til dauða. Það er hjartnæmt að heyra hann lýsa æðruleysi sínu: Koma það sem koma vill. Ég hef ekki lengur fyrir börnum að sjá og hef tvisvar fengið hjartaáfall. Mér er ljóst, að uppljóstranir mínar hafi ekkert nema erfiðleika í för með sér.
Udo gaf út bókina Blaðamenn til leigu (Gekaufte Journalisten). Hún er til í enskri þýðingu: Journalists for hire. How the CIA Buys the News. Norski rithöfundurinn, Lars Birkelund, pantaði verkið hjá Amazon fyrir sex árum síðan. Hún er ekki komin enn.
Udo fetar í slóð landa síns, sem sumir hinna eldri lesenda kynnu að muna eftir, Hans Günter Wallraff (f. 1942), rithöfundi og blaðamanni. Hann gaf einnig alþýðu manna innsýn í fjölmiðlasóðaskapinn fyrir áratugum síðan.
Áhugi manna á fjölmiðlavændi er þó hvergi nærri nýr af nálinni eins og ýjað er að. Árið 1998 skrifuðu t.d. Norðmennirnir Björn Nilsen og Finn Sjue bókina, Dulda dagskrá. Fjölmiðlarnir og leyniþjónusturnar (Skult dagsorden: Mediene og de hemmelige tjenestene). Þar er m.a. að finna játningar bandarísks leyniþjónustumanns um ráðningar málaliða úr norskri blaðamannastétt.
https://steigan.no/2020/08/udo-ulfkotte-brente-alle-broer/ https://www.b92.net/eng/news/world.php?nav_id=113347 https://www.youtube.com/watch?v=kAaFEOCHE4I&t=9shttps://www.youtube.com/watch?v=kAaFEOCHE4I&t=9s https://www.youtube.com/watch?v=O3AW2YFbqJE https://www.dailymotion.com/video/x2h265y https://www.youtube.com/watch?v=App8hfb_e1U
Nýjustu færslur
- Bandaríkin. Dónaldur trumpar um undirróður, stríð og bólusetn...
- Trumpur og eldingar. Kolsvarti, stríðsóði tíkarsonurinn og mo...
- Úrkynjun, ósigur og hrunadans Vesturlanda. Emmanuel Todd
- Þegar Íslendingar seldu sálu sína og frelsi: Seinni hluti
- Munu kosningar í Þýskalandi verða ógiltar eins og í Rúmeníu
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
Bloggvinir
Af mbl.is
Erlent
- Ófögur aðkoma við líkfund
- Móna Lísa fær sérherbergi
- Mexíkóflói verður Ameríkuflói á Google Maps
- Buðust til að senda hermenn til Grænlands
- Þrjár sprengingar í Svíþjóð og tveir handteknir
- Myndskeið: Fékk sálina og lífið til baka
- NATO og ESB þegja þunnu hljóði
- Stærsti núverandi baráttuvettvangur stórveldanna
- Forsætisráðherrann segir af sér
- Greindist með fuglaflensu í Bretlandi
Fólk
- Zellweger og Grant glæsileg á bleika dreglinum
- Hefur lést um 18 kíló með aðstoð þyngdarstjórnunarlyfja
- Skopmynd af stóra skómáli Ingu Sæland vekur athygli
- Bað kærustunnar á ógleymanlegan hátt
- Gwyneth Paltrow selur herragarðinn í LA fyrir 22 milljónir dollara
- Portrett af forsetafrúnni opinberað
- Áttburarnir orðnir 16 ára
- Gagnrýndur fyrir óviðeigandi brandara
- Ekkert var til sparað á sjö ára afmælinu
- Nick Cave um sonamissinn og drifkraft fjölskyldunnar