Er það ekki tímanna tákn, að sú fræðigrein, sem flestir fjölmiðla í veröldinni hafa sótt sannleik í um veirufárið, sé pantað svindl frá sóttvarnaryfirvöldum Bandaríkjanna? Ritstjóri hennar var meira að segja sjálfur æðsti veiruprestur Bandaríkjanna og Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (World Health Organization), Anthony Fauci, og aðalhöfundur hennar, Kristian G. Andersen, starfsmaður sama heiðursmanns.
Hver lygin hefur rekið aðra um rannsóknir á tilurð veirunnar, áhrif hennar, meinviðbrögð hinna bólusettu, þar sem hjarta- og krabbamein eru árberandi, andlát af völdum bólusetninga og viðbrögð yfirvalda og hagsmunatengsl við framleiðendur.
Það fjölgar stöðugt í hópi marktækra sérfræðinga, sem vara við bólusetningum, bæði við covid-19 bóluefnum og öðrum bólusetningum, sem lyfjaiðnaðurinn þrýstir á um. Það heyrast stöðugt háværari kröfur vammlausra vísindamanna og almennings um afhjúpun leyniskjala, leyniaðgerða stjórnvalda og hagsmunatengsla þeirra.
Krafist er skýringa á sviptingu lýðréttinda og njósnum. Það er víða, sem pottur í brotinn í því efni. Norska leynilögreglan skráir andmælendur bólusetninga, rétt eins og leyniþjónusta Ísraels, Kanada, Bandaríkjanna og víðar. Veirunjósnir voru stundaðar á Íslendingum á tímabili. Hvað varð um þau gögn?
Stjórnvöld auka sífellt eftirlit með þegnunum. Heilbrigðiskerfið býr nú þegar yfir viðkvæmum upplýsingum og yfirvöld dómsmála herða stöðugt róðurinn með tilliti yfir vöktunar og eftirlits með almenningi, sem og heimilda handa lögreglu til notkunar ofbeldisbúnaðar. Hvað skráir íslenska leynilögreglan í raun?
Samtímis auknu eftirliti ríkisvaldsins herðir alþjóðaauðvaldið og Alþjóðaheilbrigðisstofnunn takið á þjóðum heims. Hún er hvergi nærri af baki dottin við þá ráðagerð, að öðlast alræði yfir heilsu manna í veröldinni.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin lætur heldur ekki sitt eftir liggja við að viðhalda blekkingum um faraldurinn, sem hún ýtti úr vör. Hún hefur nú samið handbók um, hvernig megi fela afleiðingar bólusetninga og þeirra viðbragða, sem hún stjórnaði.
Stofnunin óttast, að þegar fólk sjái í gegnum bólusetningalygarnar, muni það rísa öndvert gegn yfirvöldum, sem hafa misst allan trúverðugleika. Þessi merka handbók heitir: Bólusetningakreppuhandbókin þrepskiptar leiðbeiningar um þjóðlegar ónæmisáætlanir (Vaccine Crisis Communication Manual a step-by-step guidance for national immunization programmes). Markmiðið með handbókinni er að leiðbeina stjórnvöldum við að endurreisa traust þegnanna á bólusetningum.
Í nýlegri grein, Hvernig sjúklingar létust fyrir gróða (How COVID Patients Died for Profit), segir bandaríski læknirinn, Joseph Mercola, á þessa leið:
Þegar í maí 2020 var ljóst, að sú lækning að stinga sjúklingum í öndunarvél, stappaði nærri dauðadómi í sjálfu sér. Á bilinu 50 til 86% covid-sjúklinga, sem fengu þessa meðferð, létust. Í sama mánuði höfðu læknar komist að því, að súrefnisholpípa í nefi, meðan sjúklingur lág á grúfu (cannulas and proning), var árangursríkari aðgerð en öndunarvél. Það var hugmynd Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, að með öndunarvél mætti takmarka loftúðasmit og vernda þannig aðra sjúklinga og starfsmenn. Með öðrum orðum var sjúklingum fórnað til að vernda aðra. Þegar þess er gætt, að margir covid-sjúklingar voru sjúkdómsgreindir á grundvelli ómarktæks, jákvæðs PCR prófs, verður þessi lækning enn þá rangsnúnari fyrir bragið. Sjúkrahúsin (í Bandaríkjunum) fengu auk þess dágóðar tekjur af því að sjúkdómsgreina fólk með covid-19 veiruna og stinga þeim í öndunarvél.
Ísraelskur sérfræðingur um lyfjaöryggi, Retsef Levi, segir:
Bólusetningum á að hætta, því þær hafa í för með sér fordæmalaust tjón, þar með talin andlát barna og unglinga. Sannanir eru ríkulegar og órækar, þess efnis, að mRNA bóluefnin hafi í för með sér alvarlegt tjón [ ], sérstaklega meðal hinna ungu.
https://steigan.no/2023/02/har-jeg-lost-en-folkehelseinstituttgate/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.nature.com/articles/s41591-020-0820-9 https://brownstone.org/articles/biomedical-security-state-british-edition/ https://steigan.no/2023/02/representantenes-hus-i-usa-vedtok-lov-som-avslutter-to-ar-med-grunnlovsstridig-maktovergrep/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2023/02/og-na-er-jeg-ogsa-dette-en-ekstremist/?utm_source=substack&utm_medium=email https://brownstone.org/articles/the-west-must-never-again-go-totalitarian/ https://expose-news.com/2023/02/02/ardern-caused-33x-increase-excess-deaths-with-mandatrory-covid-vaccination/ https://brownstone.org/articles/amendments-who-ihr-annotated-guide/ https://brownstone.org/articles/covid-insider-farrar-and-his-eugenics-agenda/ https://brownstone.org/articles/it-all-began-with-fear/ https://apps.who.int/iris/bitstream/handle/10665/352029/WHO-EURO-2022-3471-43230-60590-eng.pdf https://expose-news.com/2023/02/02/investigation-into-bhf-for-suppression-data/ https://mail.google.com/mail/u/0/#trash/FMfcgzGrcPPGWpNZdNxbCkVMzHfPTSnB https://www.hartgroup.org/joint-open-letter-to-charity-commission/ https://www.hartgroup.org/an-independent-review-of-vaccine-safety-is-urgently-required/ https://www.hartgroup.org/we-rightly-mourn-the-dead-but-mustnt-forget-the-disabled/ https://nyheter.swebbtv.se/professor-israel-morklagger-information-om-vaccinets-biverkningar/ https://twitter.com/DrAseemMalhotra/status/1619943713874259974 https://mail.google.com/mail/u/0/#inbox/FMfcgzGrcPPGFFMzlrZNRsMhNnNwXRXq https://articles.mercola.com/sites/articles/archive/2023/02/02/covid-lab-leak.aspx?ui=50823ccf152775dc8e8154c0ff79da522ef0aa959b384df904857f2fc49c6730&sd=20221129&cid_source=dnl&cid_medium=email&cid_content=art1ReadMore&cid=20230202&cid=DM1338917&bid=1710655680 https://articles.mercola.com/sites/articles/archive/2023/02/01/how-covid-patients-died-for-profit.aspx?ui=50823ccf152775dc8e8154c0ff79da522ef0aa959b384df904857f2fc49c6730&sd=20221129&cid_source=dnl&cid_medium=email&cid_content=art1HL&cid=20230201_HL2&cid=DM1338276&bid=1709638840 https://nyheter.swebbtv.se/professor-vaccinet-det-storsta-fiaskot-nagonsin-maste-stoppas-omedelbart/ https://twitter.com/DrAseemMalhotra/status/1619943713874259974 https://twitter.com/RetsefL/status/1619945525670981632?ref_src=twsrc%5Etfw
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021