Opiđ bréf til Skólameistarafélags Íslands

(Birtist í Morgunblađinu 15. nóv. 2022.)

Virđulegi formađur, Helga Kristín Kolbeins!

Í kvöldfréttum RÚV 7. okt. 2022 var tekiđ viđtal viđ varaformann Skólameistarafélags Íslands, Sigríđi Huld Jónsdóttur. Hún sagđi: ”Ef ég hef ekki lögmćtar ástćđur fyrir ţví, ţá getur nemandinn, ég tala nú ekki um ef hann er yngri en átján ára, ađ ţá fer hann í mál viđ skólann. Og hann vinnur ţađ mál. Ţađ eru ţau mál sem ađ skólameistarar eru ađ vísa í núna, ţví ţađ hefur gerst, ađ nemendur, sem hafa beitt ofbeldi inn í skóla, hefur veriđ vísađ úr skóla, en annađ dómsstig segir svo, ”ţér ber ađ taka viđ nemandanum aftur.” Ţannig ađ ţessi lögfrćđilega hliđ, ţađ ţarf ađ skýra hana. … Sem samfélag verđum viđ ađ fara ađ koma í veg fyrir ţađ, ađ ţessi nauđgunarmenning sé til stađar, hún er til stađar ţví miđur, henni er viđhaldiđ ţví miđur. Viđ viljum í skólunum leggja okkur fram til ţess ađ hćtta ţessu, nauđgunarmenningu. Og okkur tekst ţađ aldrei ţví miđur. Viđ erum bara mannkyn, viđ erum mannleg og vont fólk verđur áfram til. En viđ skulum ekki reyna ađ búa ţađ til. Ţađ er algjörleg markmiđ allra skóla ađ huga ađ velferđ allra nemenda í skólunum.“

Í viđtalinu kemur ekkert fram um, hvađ í hugtakinu, nauđgunarmenningu, felst, en Sigríđur Huld nefndi, ađ stundum sé ekki fótur fyrir ákćrunum. (Hugtakanotkunin er í sjálfu sér athygliverđ. Hvernig má ţađ vera, ađ nauđgun lýsi menningu í framhaldsskólunum?) Ekki er upplýst, hvernig ţađ sé leitt í ljós, hvort um sé ađ rćđa innri dómstól skólanna eđa alvöru dómstóla. Ţađ er hvorki upplýst um fjölda ákćra um nauđganir, né hlutfall saklausra pilta eđa stúlkna af heildarfjölda ákćrđra.

Ţessi nauđgunar(ó)menning skapar mér ugg. Á grundvelli upplýsinga frá Sigríđi Huld biđ ég vinsamlegast um skilgreiningu Skólameistarafélagsins á nauđgunarmenningu; nánari skýringar á ţví, hvernig skólarnir leiđi í ljós sekt eđa sakleysi ákćrđra; nánari upplýsingar um umfang ţessarar menningar, ţ.e. heildartölu og kynhlutfall ákćrđra á vettvangi skólans, hlutfall ákćrđra og kyn ţeirra, sem vísađ er til lögreglu, og hlutfall dóma sektar og sýknu ákćrđra nemenda viđ dómstóla landsins og kyn hlutađeigandi.

Ađ lokum falast ég eftir upplýsingum um viđbrögđ skólanna viđ fölskum ákćrum. Er ţeim, sem setja fram falskar ákćrur, vísađ úr skóla eđa ţeir kćrđir til lögreglu? Hver eru kynjahlutföll falskra sakarábera, hvernig er nauđgunarmenningu „viđhaldiđ“ í framhaldskólum landsins og hverjir eru ábyrgir fyrir slíku viđhaldi?


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamađur um samfélagmál á grundvelli mannúđlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Sept. 2025

S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband