Dolores Cahill er gagnmenntaður, þaulreyndur, írskur ónæmis- og sameindaerfðafræðingur. Hún hefur m.a. stundað rannsóknastörf við Max Planck stofnunina í Þýskalandi og starfað sem ráðgjafi hjá Evrópusambandinu.
Í viðtali við Maria Zeee lýsir Dolores óhugnanlegum áætlunum illra auðvaldsafla til að kollvarpa veröldinni og fækka fólki. Sjónarhornið er þróun heilbrigðis- og efnahagskerfis.
Dolores er meðstofnandi og forseti Alheimsfrelsissamtakanna (World Freedom Alliance) og jafnframt forseti Alheimssamtaka lækna (World Doctors Alliance).
Hér er stiklað á stóru í viðtalinu, endursagt og þýtt, með skírskotun til viðeigandi greinar í Exposé.
Rannsóknir Dolores og félaga við Max Planck stofnuninna leiddu í ljós, að margar þeirra greiningaraðferða, sem beitt var við sjúkdómsgreiningar á t.d. sjálfsónæmissjúkdómum og krabbameini, voru rangar. Síðar gerði hún þá uppgötvun, að kornabörn á aldrinum tveggja til fjögurra mánaða létust í kjölfar bólusetninga.
Tilraunir til að koma þessari vitneskju á framfæri hjá írsku ríkisstjórninni og Evrópusambandi báru ekki árangur. Fræðasamfélagið og lyfjafyrirtækin brugðust eins við, bæði með tilliti til uppgötvana hennar og ráðgjafar um lækningar.
Dolores fullyrðir, að covid-19 sé áttunda alheimsfarsóttin, sem skipulögð hefur verið. Sumar þeirra tókst þýska örveirufræðingnum, Wolfgang Wodarg, að stöðva, eins og t.d. svínaflensuna góðkunnu árið 2009. Það var um hneyksli að ræða, sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin var ábyrg fyrir [eins og covid-19]. Það kom m.a. í ljós við rannsókn Evrópuþingsins, að sérfræðingarnar í hinum breska Vísindalega neyðarráðgjafahópi (Scientific Advisory Group for Emergencies - SAGE) voru hallir undir lyfjafyrirtækin og áttu hagsmuna að gæta.
Ef sprautað er eiturefnum í fólk, sér í lagi börn eins og kvikasilfri og áli verða eituráhrifin ofnæmi, sjálfsónæmissjúkdómar, þarmasjúkdómar eins og Chrohn sjúkdómur ófrjósemi. Kvikasilfur og ál eitra einnig taugakerfið, þannig að skerðing verður á hugsun, viti og taugum (neuro-cognitive impairment) eins og sést í Alzheimers [eða] einhverfu.
Dolores þótti nauðsyn bera til að skyggnast bak við tjöldin hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni með svokallaða Áætlun 21 (Agenda 21) í brennidepli. Í þeirri áætlun fólst m.a. stjórn á fjölmiðlum. Hún hafði fengið nasaþefinn af skjölum, sem lýstu samvinnu Sameinuðu þjóðanna (SÞ) og Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA), þar sem lýst var áætlunum um að skelfa og kúga andófsmenn meðal sérfræðinga og vísindamanna.
Áætlun 21 er þróunaráætlun SÞ fyrir 21stu öldina, sem gefin var út árið 1992, og nær fram til 2099. Það eru styttri áfangar í sjálfri megináætluninni, þ.e. áætlun 2020, 2040 og 2050. Það er skipulagt í smáatriðum. Áætlunin tekur m.a. til þess tiltækis lögreglu að láta vælur sínar hljóma í tíma og ótíma og myrkva stræti og torg. Tilgangurinn er að hrella fólk og skapa því óöryggi.
Þessar áætlanir lýsa í grundvallaratriðum skipulagi og framkvæmd eyðileggingar samfélags vors í hvívetna - innan frá.
Í þessu sambandi nefnir Dolores tvær bækur; Enginn þorir að kalla það samsæri (None Dare Call It Conspiracy), þar sem m.a. er fjallað um áðurnefnda Áætlun 21. Bókin kom út 1971 og er eftir Gary Allen, Larry Abraham og John G. Schmitz. Hún er þannig kynnt á bókarkápu: Á grundvelli nákvæmra heimilda sýnir Allen fram á, hvernig samsærisöfl að tjaldabaki stjórni og ráðskist með stjórnvöld okkar og stjórnmál.
Hin bókin er skrifuð af breska leyniþjónustumanninum úr M16, John Coleman: Valdastigi samsærismannanna. Þrjú hundruð manna nefndin (The Conspirators Hierarchy: The Committee of 300). Hún var gefin út árið 1991. Þar er m.a. fjallað um þá eitrun, sem Dolores hafði fengið nasasjónir af. (Krækja á netútgáfu og upplestur formála í heimildalista.)
Þegar hlutabréfamarkaðurinn hrundi um miðjan september árið 2019 [v]issi ég að það ætti að leysa úr læðingi næstu farsótt og það var mánuði fyrir Atburð 201 (Event 201). Það [var engu líkara en] að ég væri að fylgjast með í rauntíma. [Atburður 201 var allsherjaræfing viðbragða við veiru á borð við covid-19, með þátttöku fjölda samtaka, m.a. CIA, fulltrúum meginstraumsfjölmiðla og Alheimsefnahagsráðsins. Æfingin var haldin í húsakynnum John Hopkins háskólans, fjármögnuð að mestu af Bill Gates.]
Í mars 2020 hafði Dolores samband við Hagstofu Írlands (Central Statistics Office) og innti eftir því, hversu margir hefðu fram að því látist úr covid-19. Það reyndist enginn vera.
Aftur er vikið að Áætlun 21; Í henni er kveðið á um fækkun manna og aukningu ófrjósemi með þessum sprautum. Fyrir tuttugu/þrjátíu árum síðan var upplýst, að drápsárin yrðu á árabilinu 2020 til 2026. Á þessum tíma væri takmarkið að bólusetja fólk við farsótt og samhæfa blekkingar og hrellingar.
[Tilgangurinn er sá] að veikja fólk, minnka lífslíkur þess og myrða. [Þ]að virðist vera, að þessari mRNA [sprautu] sé ætlað að trufla frjósemi hjá bæði körlum og konum. Yngri kynslóðirnar eru í brennidepli. Okkur er ókunnugt um, að ófrjóseminni verður smitað við samfarir í kynlífi, þannig að umtalsverð fólksfækkun eigi sér stað í lok aldarinnar.
Þetta hefur þegar verið æft í raun og veru, því að í stífkrampa bóluefnunum, sem notuð voru í Afríku áratugum saman, voru orsakavaldar ófrjósemi. Þegar þessi bólusetning er samþætt bólusetningu gegn vörtuveirunni (BV - Human papillomavirus HVP) á sér stað brenglun í ónæmiskerfinu, þannig að það ræðst gegn eggjastokkunum.
Ungu stúlkurnar, sem fengu BV við tólf ára aldur fá tíðablæðingar of snemma [sem einnig] hefur áhrif á frjósemi þeirra. [Lyfjafyrirtækin hafa leikið svipaðan leik t.d. bæði í Mið-Ameríku og Indlandi.]
Dolores bendir á, að fram að 2020 hafi mRNA bóluefni hvergi verið leyfð, sökum þess, að tilraunardýr, sem efnið var gefið, hefðu drepist. Hún bendir líka á, að sumar framleiðslueininganna (batch) séu tiltölulega meinlausar vegna framleiðslugalla og aðrar séu beinlínis hugsaðar sem lyfleysa (placebo). En þeir sem fá mRNA í ríkum mæli mega eiga von á því, að ónæmiskerfið bregðist öndvert við og ráðist að eigin frumum.
Dolores blæs okkur von í brjóst. Þar sem enginn sé hafinn yfir lög og rétt, megi andæfa aðgerðum alheimsstjórnunarsinna (globalist), hvort heldur sem er á heilbrigðis- eða efnahagssviðinu.
https://zeeemedia.com/interview/infertility-a-diabolical-agenda/ https://childrenshealthdefense.org/defender/censorship-facebook-cia-fbi-cola/?utm_source=salsa&eType=EmailBlastContent&eId=0c550131-8348-4e4d-9490-3429aa191707 https://expose-news.com/2022/11/06/warfare-manual-on-dealing-with-political-dissidents/ https://trovetandeochvetenskap.se/langa-harda-gummi-liknande-strangar-i-blodet-hos-covid-19-vaccinerade-20/ https://www.transparenztest.de/post/alarmierend-1-von-35-geboosterten-hat-laborwerte-die-auf-akute-herzschaedigung-hinweisen https://usawatchdog.com/cv19-vax-destroys-hearts-brains-of-billions-of-people-dr-sucharit-bhakdi/ https://steigan.no/2022/11/a-blo-fra-underlivet-i-manedsvis-er-ikke-kraftig-menstruasjonsblodning/?utm_source=substack&utm_medium=email https://brownstone.org/articles/how-dangerous-was-covid-anyway/ https://jamesroguski.substack.com/p/pfuck-pfizer https://www.pandata.org/cock-up-or-conspiracy/ https://expose-news.com/2021/09/14/building-an-empire-the-united-nations-using-the-world-economic-forum-to-roll-out-its-agenda/ https://www.goodreads.com/en/book/show/159444.Conspirators_Hierarchy https://archive.org/details/pdfy-V85INOCl0G4CrnMp/page/n1/mode/2up https://www.bitchute.com/video/g47q37lNuKdG/ https://www.goodreads.com/en/book/show/811022.None_Dare_Call_It_Conspiracy https://rumble.com/v1k62qv-dr-philip-altman.html https://expose-news.com/2022/11/06/agenda-21s-depopulation-and-undermining-society/ https://profdolorescahill.com/ https://www.bitchute.com/video/GSe1ZmRB1yWq/ https://www.bitchute.com/video/Avc6_ftzk3w/ https://rumble.com/v1osjuf-uncensored-prof.-dolores-cahill-were-in-the-mass-killing-phase-of-agenda-21.html
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021