Ég fjallaði á sínum tíma um kynskiptarannsóknir bandaríska blaðamannsins, Abigail Shrier, sem skrifaði bókina: Óafturkræft tjón: Dætur okkar eru dregnar á tálar í kynskiptabrjálæði, (Irreversible Damage: The Transgender Craze Seducing Our Daughters). Þessi umfjöllun leiddi til kæru frá þrýstihópi kynskiptinga. Höfundur hélt fyrirlestur um bók sína hjá PragerU, en átti áður viðtal við Candace Owens við sama háskóla.
Sumum er líklega minnisstætt fjaðrafokið í kringum kanadíska sálfræðinginn, Jordan Peterson, sem tók undir sjónarmið Abigail þess efnis, að um væri að ræða eins konar faraldur, sem stjórnvöld litu með velþóknun á og ýttu jafnvel undir, bæði í skólakerfi og heilbrigðiskerfi.
Janice Fiamengo gerir að umtalsefni kvenfrelsunar- eða kvenmiðunarsjónarhorn ofangreindra. En eins og kunnugt er hafa kvenfrelsarar fátt uppörvandi að segja um karla, enda séu þeir eitraðir, og ættu að gleyma sérstaklega séu þeir bleikskinnar forréttindum sínum, vera þess minnugir, að framtíð þeirra sé kvenlæg, játa syndir sínar í þar til gerðum skriftaklefa, horfast í augu ofbeldiseðli sitt og þar fram eftir götunum.
Þessi boðskapur dynur á drengjum frá kvenfrelsunarríkisstjórn Íslands og kvenfrelsunarstofnunum á vegum hins opinbera, sem rekur sístækkandi karlmiðaðan ofbeldisiðnað og ofbeldisstjórnsýslu auðvitað. Fjölmiðlar og menntakerfi eru einnig iðin við kolann í þessu efni.
Útskúfun, áróður og kærur eru megintól þessa iðnaðar, sbr. pistil Gunnars Júlíus Helgasonar, þar sem hann lýsir ofsóknum gegn knattspyrnumanni af hendi ÍSÍ, KSÍ og ráðneyti íþróttamála.
Framan af voru karlmenn í miklum meirihluta þeirra, sem völdu kynskipti. Nú kann að verða breyting þar á, en enn þá halda piltar gríðarlegu forskoti á kynsystur sínar með tilliti til tíðni sjálfsmorða.
Janice farast svo orð: Kvenfrelsarar hafa árum saman kennt sífellt yngri stúlkum og konum um samskipunarvaldið (intersectional þ.e. allir, sem kúgaðir megi teljast, skipi sér saman í baráttu gegn sameiginlegum óvini, karlkyninu). Enginn er móttækilegri en stúlkur á gelgjuskeiði fyrir boðskapnum um kynskilning eða líklegri til að láta til skarar skríða í þeim efnum. Þannig hefur það alltaf verið og kynskipti eru, ef til vill nýjasta og hugsanlega skeinuhættasta birtingarmynd siðferðilegs fórnarlambshlutverks. Kvenfrelsarar verða að taka verulega ábyrgð á afleiðingum eigin áróðurs.
Janice spyr, hvort drengir hafi ekki líka orðið fyrir áhrifum af þrálátum áróðri gegn körlum. Hún svarar: Það kynni að vera, að sjálfsmorð, fremur en kynskipti, hafi verið ráðandi svar við árásum á karlmennsku (masculinity) þeirra.
https://www.dailymail.co.uk/news/article-9625609/Lockheed-Martin-defense-execs-Zoom-course-unlearn-white-male-privilege.html https://www.yesallmen.org.uk/ http://www.suzannawalters.com/blog/why-cant-we-hate-men/ https://www.dictionary.com/e/slang/male-tears/ https://www.globalfundforwomen.org/movements/me-too/ https://banbossy.com/ https://goodmenproject.com/gender-sexuality/violence-against-women-is-a-mens-issue/ https://www.yahoo.com/lifestyle/the-history-of-take-our-daughters-to-work-day-130654900.html?guccounter=1&guce_referrer=aHR0cHM6Ly9maWFtZW5nb2ZpbGUuc3Vic3RhY2suY29tLw&guce_referrer_sig=AQAAABJwLTz_AYOmUJ-W0vftG1t5KyYSG75ZojrHAOUCPNM72iOWOUyIkG0RXFY0ze6RrYk3vYwbb1_w46hjm1_CUGUzPtMcS3o7AsoguVJArHPns4PbLJbW0xtQvZsoezBHDRWWfPEGNqgFDvaVe1j9agYLr-CqIPEaHXmYbHrexGI5 https://nationalpost.com/news/canada/university-of-reginas-masculinity-confession-booth-invites-male-students-to-come-and-share-your-sins http://www.thefutureisfemale.co/ https://www.prageru.com/video/why-girls-become-boys https://www.prageru.com/video/the-candace-owens-show-abigail-shrier https://www.theguardian.com/commentisfree/2006/nov/02/whyihatemen https://fiamengofile.substack.com/p/girls-who-transition-are-victims?utm_source=post-email-title&publication_id=846515&post_id=75874210&isFreemail=true&utm_medium=email
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021