John Bumpass Calhoun (1917-1995) var bandarískur hátternisfræðingur, sem gerði merkilegar tilraunir á nagdýrum, bæði músum og rottum. Hann skóp þeim umhverfi allsnægta og öryggis. Í upphafi fjölgaði dýrunum hratt, þau átu og drukku, forvitnuðust, lærðu á umhverfið, sýndu hverju öðru áhuga og viðeigandi kynhegðun. En þegar fjölgunin náði ákveðnu marki, fór að síga á ógæfuhliðina. Smám saman dó þetta sæla samfélag út.
Þegar fjöldinn hafði vaxið á þriðja þúsund fóru blikurnar að sjást á lofti. Nagdýrin tóku að hegða sér afbrigðilega, sýndu ýgi og urðu fráhverfar kynlífi (tímgun). Kvendýrin drápu undan sér eða stugguðu afkvæmunum burt, samkynhneigð jókst og þær gleymdu því, hvernig stíga ætti í vænginn við hitt kynið. Þegar um sex hundruð dagar voru umliðnir frá stofnun sæluríkisins sáust merki sjálfstortímingar.
Í músasamfélaginu, þar sem rými varð af skornum skammti vegna fjölgunar, gaumgæfði John eftirtektarverða þróun. Stétt úrhraka varð til. Það voru karlmýs, sem hópuðust saman og gerðu árásir á þær eðlilegu, nauðguðu og drápu. Eðlilegar karlmýs fengu misstu móðinn (fengu áfallastreituröskun), mæðurnar vörðust ekki lengur og beindu grimmd sinni að ungunum. Svo fór, að þær sóttu í einangrun, urðu sífellt árásargjarnari og misstu áhuga á kynlífi. Skiljanlega féll fæðingartíðnin og nýburadauði jókst.
Enn urðu tíðindi í samfélagsþróuninni. Meðal karldýranna varð til ný undirtegund, þ.e. fagurfírarnir. Þeir virtust í hátt eins og eðlilegar karlmýs. En það var bara á ytra borðinu. Í raun voru þeir dauðir úr öllum æðum og létu hjá líða að iðka kynlíf og berjast fyrir eigin umdæmi. Þær skeyttu einungis um að sofa og eta. John lýsir þessu svo:
Einhverfulegar verur sáu dagsins ljós í þessu ferli. Þær kunnu einungis skil á því allra nauðsynlegasta til að lifa af. Andinn hafði látist. Þær voru ófærar um þá flóknu hegðun, sem var forsenda þess að halda tegundinni við. Enda dó samfélagið út.
Sjálfstortímingin átti sér stað á tveim stigum. Fyrsta stigið einkenndist af klofningi milli músanna, þær drógu sig í hlé, týndu tilgangi lífsins, misstu löngun til kynmaka, til að ala upp ungviðið og öðlast hlutverk. Andinn hvarf þeim. Í kjölfarið fylgdi hinn eiginlegi dauði.
Það er eftirtektarvert, að þegar samfélagið fór að byltast um í eigin fjöbrotum, fór að bera á samkynhneigð, kynleysugirnd (pansexualism), ofbeldi og músaáti. Fjölgun múskyns hafði sem sé í för með sér tortímingu. Þróun í átt til hennar varð ekki við snúið.
Rannsóknir John voru m.a. fjármagnaðar af Rockefeller stofnuninni, unnar undir handarjaðri Bandarísku þjóðarheilbrigðisstofnunarinnar (National Health Institute).
https://www.youtube.com/watch?v=7CXj0AGuh4c https://www.smithsonianmag.com/smart-news/how-mouse-utopias-1960s-led-grim-predictions-humans-180954423/ https://www.physicsoflife.pl/quotes/cytaty/eksperyment_calhoun'a.html#9789873723094:106 https://www.physicsoflife.pl/dict/calhoun's_experiment.html https://expose-news.com/2022/09/20/societal-collapse-brings-about-extinction/ https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC1644264/pdf/procrsmed00338-0007.pdf https://en.wikipedia.org/wiki/John_B._Calhoun https://www.cabinetmagazine.org/issues/42/wiles.php https://rumble.com/vmk1bu-37886394.html https://www.iflscience.com/universe-25-the-mouse-utopia-experiment-that-turned-into-an-apocalypse-60407 https://en.wikipedia.org/wiki/Behavioral_sink https://eprints.lse.ac.uk/22514/1/2308Ramadams.pdf https://crasgaitis.medium.com/the-universe-25-experiment-115230c91515 https://mysteriousuniverse.org/2015/03/the-amazing-rise-and-fall-of-a-rodent-utopia/
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021