Athyglisverður fyrirlestur um námsskrá skóla í Portland í Bandaríkjunum. Þar er börnum talin trú um, að kyn sé í raun ekki til og því verði þau að taka ákvörðun um kyn sitt sjálf. Þessi kynleysukennslufræði hefur einnig náð til Íslands, sprottin úr hugmyndaheimi kvenfrelsaranna, sem eru í þann mund að útrýma karlmennsku og "vana" karlmenn. Í Reykjavík eru þegar til leikskólar, þar sem fræðin eru kennd. Í einum grunnskólanna er börnum kennt um stráka, sem eru stelpur að innanverðu. Hvernig ætli standi á því, að börnum og unglingum líði illa?
Valdafíknar- forsjárhyggjustjórnmálamenn beita hinu opinbera valdi í sífellt auknum mæli til að ná valdi yfir hugum ungviðisins, foreldrum og fjölskyldum. Við látum þetta gerast og förum í gleðigöngu yfir öllu saman. Kynjafjölbreytnin eða kynleysan er frábær - ekki satt? Það segir allavega Katrín Jakobsdóttir og fjólubláa ríkisstjórnin hennar.
Ætli það sé tilviljun eða jafnvel falsfrétt að benda á, að þessi hreyfing náði sért fyrst verulega á strik fyrir rúmri hálfri öld síðan, þegar auðmenn á Vesturlöndum (Bandaríkjunum fyrst og fremst) tóku að fjármagna hana. Það eru reyndar sömu auðmenn, hringar þeirra og sjóðir, sem ráða að mestu fjölmiðlum og æðri menntun, hittast í Davon í Sviss, kalla sig Alheimsefnahagsráðið, og vilja eina alheimsstjórn. Það er auðvelt að stjórna villuráfandi, ístöðulausu og fáfróðu fólki.
https://www.youtube.com/watch?v=W4q3YkE-05I
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021