Fyrsta tilraun bandarískra yfirvalda í boði lyfjaiðnaðarins til að skapa alþjóðaalræði í heilbrigðismálum, nánar tiltekið alræði um viðbrögð við faröldrum, sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin telur vera ógn við heilsu heimslýðsins, mistókst fyrir skemmstu á Alþjóðaheilbrigðisþinginu (World Health Assembly). Þingið tekur ákvarðanir í málefnum, er lúta að Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (World Health Organization WHO.)
Eins og vænta mátti greiddu angló-saxískar þjóðir (og fylgihnettir þeirra) atkvæði með. En andstaðan var sterk. Það var eftirtektarvert, að tæplega fimmtíu Afríkuríki greiddu atkvæði gegn og sameinuðust um sameiginlega yfirlýsingu. Það gerðu einnig fleiri ríki eins og Kína. Það kom á óvart. Brasilíumenn voru óstýrilátir að vanda og hótuðu að segja sig úr félagsskapnum. Eins og lesendur vafalaust muna, andæfðu þeir einnig skilgreiningu WHO á covid-19 heimsfaraldri og viðbrögðum við honum.
En það væri einfeldingslegt að trúa því, að nefndir hagsmunaaðiljar og áhugamenn um heimsyfirráð séu af baki dottnir. Eftir tvö ár verður önnur atlaga gerð.
Nokkurn veginn samtímis var haldinn önnur athyglisverð samkoma í hinni fornu lækningaborg Keltanna, Baði (Bath) á Englandi, þ.e. 20. til 22. maí 2022. Skipuleggjandi ráðstefnunnar var
Alþjóðaheilbrigðisráðið (World Council for Health), sem er eins konar svar við Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni. Aflvaki ráðsins er Tess Lawrie, sem er ráðgjafi við heilbrigðisrannsóknir. Alþjóðaheilbrigðisráðið er rekið á frjálsum fjárframlögum. Það er ekki gróðafyrirtæki og ekki ein af mörgum velgjörðasamtökum (non-governmental organization) á vegum auðkýfinga eða stjórnvalda með vafasaman tilgang.
Í stefnuyfirlýsingu segir m.a.: Starf okkar er helgað varðveislu mannréttinda og frjálum vilja, ásamt viðleitni til að hjálpa fólki til að taka stjórn á eigin heilsu og vellíðan.
Samtökin segja einnig: Við höfum trú á heimi, þar sem heilbrigði ríkir, og allir hafa óheft aðgengi að upplýsingum, sannreyndum lyfjum og njóta jafnframt raunverulegra heilbrigðisráðstafanna, þegar sjúkdómar herja. Við viljum, að virtar séu ákvarðanir fólks um heilsu sína, án ótta við mismunun eða ofsóknir. Við berjumst fyrir veröld með aðgengi að vatni, hreinu lofti, ómengaðri fæðu og samheldni í fjölskyldum.
Kynnirinn, Del Bigtree, lét nokkur skynsamleg orð falla um vísindi, sem eiga undir högg að sækja sökum ofríkis þeirra, sem eignleg völd hafa og hagsmuna hafa að gæta. Hann segir:
Vísindi ber ekki að skilja sem rétttrúnaðaríþrótt (consensus sport). Þau eru ekki einræður vísindamanna og fréttamanna víðs vegar um heiminn. Þau spyrja spurninga, sem okkur er ljóst, að aldrei verður svarað til fullnustu. Endanlegar vísindaniðurstöður eru ekki til. Þrátt fyrir þetta höfum við neyðst til að halda út hræðilega reynslu. Þau okkar, sem búum yfir hæfileikanum til gagnrýninnar hugsunar, höfum lifað erfiðasta skeið í lífi okkar.
Í fréttatilkynningu frá skipuleggjendum ráðstefnunnar kemur m.a. fram, að þátttakendur úr öllum heimshornum hefðu kynnt hugmyndir um heilbrigðisþjónustu og velsæld á grundvelli eiginábyrgðar, sjálfsvalds og upplýsts samþykkis.
Ráðstefnugestir ljáðu rödd sína fórnarlömbum aukaverkana af bólusetningum og vörpuðu ljósi á hæfileika mannkyns til að endurheimta vísindin, efla virkni fólks og umbylta lögum og fjölmiðlum í því skyni að skapa mannkyni betri framtíð. Þátt tóku þúsundir fulltrúa frá rúmlega sextíu ríkjum, ýmist á staðnum eða gegnum fjarfundabúnað.
https://www.facebook.com/StephenAndrewMP https://steigan.no/2022/05/om-a-finne-en-bedre-vei/ https://worldcouncilforhealth.org/ https://betterwayconference.org/ https://www.youtube.com/watch?v=wDwu4vKB_Rk
Nýjustu færslur
- Fyrirgefðu mamma! Mig langaði svo að bjarga fólki. Óþverri og...
- Sælir eru einfaldir. Úkraína, öryggið og Þórdís Kolbrún Reykf...
- Rússneska Gyðingabyltingin 1917 og stríð í Evrópu. IV: Yfirbu...
- Rússneska Gyðingabyltingin 1917 og stríð í Evrópu. III: Stríð...
- Rússneska Gyðingabyltingin 1917 og stríð í Evrópu. II: Byltin...
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
Bloggvinir
Af mbl.is
Erlent
- Barn hafi látist vegna árásar Ísraels á spítala
- Kveikt í heimili ríkisstjóra Pennsylvaníu
- Pútín sýnir hið rétta andlit Rússlands
- Fulltrúi Trumps: Rússar fóru yfir öll velsæmismörk
- Loftárás gerð á Ísrael
- Án þrýstings halda Rússar áfram að draga stríðið á langinn
- Þorgerður fordæmir árás Rússa
- Skora á Bandaríkin að afnema með öllu gagnkvæma tolla
- Tugir féllu í árás Rússa
- Tala látinna hækkar: 226 látnir
Fólk
- Börn og listamaður leggja saman
- Laskaður Lótus
- Það eru svikin sem eru verst
- Gestur hátíðarinnar handtekinn
- Breskar poppstjörnur á Húsavík
- Fræg TikTok-stjarna opnar sig um ofbeldissamband
- Ósátt við forsjárkerfið
- Mikilvægt að búa til sýnileika
- Faðir hennar þegar byrjaður að skipuleggja greftrunina
- Tvö ný lög frá Sycamore Tree