Ævi mín er orðin tiltölulega löng miðað við aldur afa minna beggja. Á ævikjaginu hefur aldrei verið hörgull á fólki, sem vildi kunna fótum mínum forráð eða sem vissi, hvað mér væri fyrir bestu, og vildi veita mér forsjá. Þessa hugulsömu menn er vitaskuld einnig að finna í fræðunum.
Einn þeirra er bandaríski hagfræðingurinn, Richard H. Thaler. Árið 2009 skrifaði hann bók, sem ellefu árum síðar kom út í nýrri útgáfu. Meðhöfundur er landi hans, lögfræðingurinn, Cass Robert Sunstein (f. 1954), reglugerðarmeistrari Barrack Obama, fyrrum forseta Bandaríkja Norður-Ameríku. Bókin heitir: Hnipp: Hvernig bæta má ákvarðanatöku í sambandi við heilsufar, auðlegð og hamingju (Nudge: Improving Decisions about Health, Wealth, and Happiness). Richard uppskar hvorki meira né minna en Nóbersverðlaun í hagfræði fyrir verk sitt árið 2017.
Höfundar leggja út af kenningum sál- og félagsfræðinga um atferli manna, hvernig megi móta hegðun þeirra með beinum og óbeinum hætti. Fræði þeirra eru kölluð upplýsingafræði eða atferlishagfræði (behavioural economics). Innblástur er greinilega einnig sóttur til sálstýringarstjórnmála eða sálstýringarfræða (psychopolitics).
Bandaríska sálfræðingafélagið skilgreinir sálstýringafræði svo: 1) fræðin um sálræn tilbrigði við stjórnmálalegt hátterni og umhverfi stjórnmálanna, svo sem áhrif mismunandi samfélagsgerða [eða stjórnarhátta] (lýðræði, fasismi, sósíalismi) á samfélag og þegna þess; 2) fræðin um beitingu sálrænna kænskubragða eða stefnumótunar til að ná stjórnmálalegum markmiðum.
Orðið, sálstýringarstjórnmál, mun vera ættað frá bandaríska bókmenntafræðingnum, Armstrong Richards (1893-1979). Náskylt seinni tíma orð yfir sama eða svipað hugtak er félagstæknifræði (social engineering).
Yfirmaður leynilögreglu Joseph Vissarionovich Stalin (1878-1953), fyrrum einvalds hinna horfnu Ráðstjórnarríkja (Sovétríkja), Lavrentiy Pavlovich Beria (1899-1953), stundaði hagnýta sálstýringarfræði. Hann sagði:
Aðferðin snýst um að skapa sem mestan glundroða í menningu óvinarins. Það er fyrsta skref okkar. Við uppskerum í jarðvegi glundroða, vantrausts, fjárhagsþrenginga og vísindalegs umróts. Örvinglaður lýðurinn getur í það minnsta eingöngu sótt huggun hjá alræðisríki öreiganna (Communist state). Að lokum kemst lýðurinn að því, að þrautalendingin sé [hugmyndafræði] kommúnismans.
Það er harla skammt milli auglýsinga og áróðurs. Listin er að læða þeirri hugmynd í djúpvitundarhugskot manna, að vilji þeirra, þarfir, langanir, tilfinningar og hugsun, sé í samræmi við áróður og auglýsingar. Fáir skutu áróðursmeistara eða hnippara nasista, Paul Joseph Göbbels (1897-1945), ref fyrir rass í áróðri og auglýsingum.
Þokkapiltarnir, Göbbels og Bera, lögðu báðir áherslu á að skapa ótta og óöryggi, deila og drottna, sundra, vekja upp úlfúð og vekja aðsóknarkennd með hugmyndafræðilegum áróðri, þöggun, bann við málfrelsi, afskræmingu vísinda, ríkisuppeldi og sálstýringu. M.a. lögðu þeir að börnum að ljóstra upp um rangtrúnaðarhugmyndir foreldra sinna, vina og vandamanna. Kunn er áhersla þeirra á blóraböggla.
Í ofangreindu ljósi er boðskapur bókarhöfunda að mestu leyti gamalt vín á nýjum belgjum eða gjöf í nýjum og aðlaðandi umbúðum, hvort sem litið er til sálfræði- og samfélagsfræðilegra kenninga eða mannkynssögu.
Richard segir m.a.: Hugmynd okkar um hnipp tekur til tiltekinna þátta í umhverfinu, sem við veitum athygli og hafa áhrif á hátterni okkar. Hnippið hefur áhrif, án þess að þvingun sé beitt eða lofað sé hagfelldum verðlaunum.
Hann nefnir sem dæmi þá tillitssemi Breta við gesti sína að mála leiðbeiningarörvar á götur til að forða útlendingum frá umferðarslysum. Málið snýst um að örva fólk til að veita athygli og nota svona skynsamlegar leiðbeiningar, til að taka skynsamlegar ákvarðanir í valumhverfi (choice architecture) sínu.
En stundum dugar það skammt. Við leggjum á það áherslu, að þegar hátterni fólks hefur í för með sér hættu fyrir aðra, er valfrelsi ekki kjörhugmyndin en jafnvel þótt svo sé í pottinn búið, geta hnipp komið að gagni. Við gerum okkur einnig grein fyrir, að taki fólk verulega, skelfilegar ákvarðanir, og skemmi þar með fyrir framtíðarhorfum sínum, dugi hnippin skammt.
Richard er talsmaður skyldubólusetninga og kolefnisskatts. Að mínum dómi væri það góð, opinber stefna, að þvinga hinu óbólusettu til frekari einveru.
Það að upplýsa fólk um nýjabrum eða það, sem á döfinni er t.d. á sviði sjálfbærni getur leyst úr læðingi sjálfdrifna vitrun (self-fullfilling prophecy). Mörgum er annt um að staðsetja sig réttu megin í sögunni. Sú hugsun gæti hvarflað að þeim og verið óhjákvæmileg, að komast mætti yfir hjalla, sem virtist óyfirstíganlegur og jafnvel ókleifur.
Tilgangur okkar er að leggja fólki lið eins og því sýnist best, rétta þeim hjálparhönd við að ná markmiðum, sem það skilgreinir. Það á þó ekki við um hinn þrjóska, ofurlitla, grenjandi minnihluta bandarískra þegna, sem hann segir um þriðjung þjóðarinnar.
Bók Richard og Cass hefur notið gífurlegra vinsælda og á grundvelli hennar hafa verið stofnuð svokölluð atferlisinnsæisteymi eða -stjórnvaldseiningar (Behavioural Insights Unit) hjá stefnumótandi yfirvöldum víðs vegar um heiminn. Þau munu nú vera um fjögur hundruð, m.a. hjá ríkisstjórnum og alþjóðastofnunum, t.d. Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. Teymin, sálstýringarteymin, bera mismunandi nöfn. T.d. kallar Írska sjálfbærnistofnunin sitt teymi, atferlishagteymi eða atferlisupplýsingateymi (Behavioural Economics Unit).
Zain Afif, samfélagsfræðingur og talmaður Alþjóðabankans (World Bank), skrifaði fyrir fimm árum síðan: Það mætti segja sem svo, að fyrsta teymið hafi verið stofnað árið 2009, þegar bandarísk stjórnvöld réðu Cass Sunstein til að leiða Skrifstofu upplýsinga og reglugerða (The Office of Information and Regulatory Affairs OIRA) til að sníða agnúa af reglugerðum. Árið 2010 stofnaði forsætisráðuneytið (Cabinet Office) í Stóra-Bretlandi fyrstu atferlisinnsæiseininguna (Behavioural Insights Unit) til reynslu. Aðrar þjóðir hafa fylgt í fótspor þess. (Það skoða ég í næsta pistli um efnið.)
Sálstýringarteymi Alþjóðabankans er liðtækt við að koma slíkum teymum á fót víðs vegar um veröldina, segir Zain [S]tofnanavæðing atferlisvísinda í stjórnkerfinu gæti tryggt kerfisbundna, vaxtarvæna (scalable) og sjálfbæra notkun [þessarar] þekkingar til umbreytinga. Við erum ekki lengur innt eftir því, hvort ríkisstjórnir skyldu koma sér upp umræddum teymum, heldur hvernig og hvenær.
https://blogs.worldbank.org/developmenttalk/nudge-units-where-they-came-and-what-they-can-do
https://www.youtube.com/watch?v=dlr4ct3fzx4
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021