Hinir óbólusettu gapastokksgyðingar.

Það líður varla sá dagur, að fréttastofa útvarps okkar allra upplýsi ekki eigendur sína um alla þá óbólusettu, sem þiggja lækningu á sjúkrahúsum landsins – athugasemda og gagnrýnislaust vitaskuld - að hætti RÚV.

Þessi þróun er ógnvænleg. Þó hefur miðillinn ekki gert því skóna ennþá, að þar sé sérstaklega um feðraveldisfauta að ræða. Það er í sjálfu sér undravert. RÚV er eins og tryggur hundur hins nýja þjóðardýrlings, Þórólfs sóttvarnarlæknis, sem berst með oddi og eggju fyrir því, að göróttu glundri Pfizer – „baby Pfizer“ – verði sprautað í landsins börn. Í skólanum á að draga börn í dilka til að vernda óbólusett börn fyrir gapastokksþjóðinni. Börnin hafa það, sem fyrir þeim er haft. En undirfurðuleg er ráðstöfunin og þjónar síður en svo tilgangi sínum.

Þetta varð mér hugstætt þegar ég gluggaði í grein í neðangreindum, norskum fjölmiðli. Haturfull aðskilnaðarstefna er í gerjun í Noregi líka – og miklu víðar. Nokkur dæmi:

„Leiðið bara hugann að þeim óbólusettu. Þeir eru djöfulsins froðuheilar, sem eiga gapastokkinn skilið. Gapastokkum skal koma fyrir á hverju torgi um allt land. Þar á að veita þeim léttvæga, en þó hæfilega, sáraukafulla barsmíð, …“ svo skrifar kvenfrelsarinn og rithöfundurinn, Sanna Sarromaa.

„Hinir óbólusettu hafa valið. Það verða þeir að lifa við. Eða deyja, ef svo verkast vill.“ (Anne Grenersen, blaðamaður).

Haft eftir gjörgæsluhjúkrunarfræðingi: „Sá dagur mun koma, að við verðum að velja. Þeir óbólusettu eiga ekki að komast fyrstir að.“ Annar hjúkrunarfræðingur: „Það tekur á að veita óbólusettum nauðsynlega umönnun.“ (Nettavisen)

Deildarlæknir, Per Urdahl, segir í viðtali við norska RÚV NRK: „Ég er fullur efasemda um að leyfa þátttöku óbólusettra í fjölskylduteiti.“

Hafi fólk áhuga á að kynna sér vísindin, sem Þórólfi þekkjast, bendi ég á þessa umfjöllun, þá bestu, sem ég hef rekist á – og yfirleitt á mannamáli. https://www.canadiancovidcarealliance.org/wp-content/uploads/2021/12/The-COVID-19-Inoculations-More-Harm-Than-Good-REV-Dec-16-2021.pdf

Þar upplýsa um fimm hundruð kanadískir læknar, vísindamenn og fræðimenn, um vísindin og siðferðið hjá Pfizer. Stofnanirnar, sem eru þrautalending Þórólfs, þegar hann semur minnisblöðin sín, eru margoft staðin að hagsmunagæslu og eftirlitsfúski. Hunsuðu til að mynda upplýsingar frá starfsmanni Pfizer, sem fékk velgju af vinnubrögum fyrirtækisins og tilkynni vamm þess til lögskyldra eftirlitsaðilja (CDC). Þórólfur gefur þeim einkunnina „ábyrgar stofnanir.“

Kokteill Pfizer handa börnum er kallaður „barna – Pfizer.“ Hann er áþekkur kokteili hinna fulllorðnu, inniheldur "hjartnæmt lyfefni," þó í minna mæli sé. Það má í þessu tilliti klappa Pfizer lof í lófa. Fyrirtækið lærir af reynslunni; hjartasjúkdómar – bólgur og tappar – eru kunnar aukaverkanir hjá fullorðnum. Allir foreldrar ættu að geta tekið upplýsa ákvörðun fyrir barn sitt (og sjálfa sig), þrátt fyrir þagmælsku Þórólfs um eðli „bóluefnisins“ og allt vísindafúskið á bak við þau.

https://steigan.no/2022/01/nytt-lavmal-i-hatpropagandaen-de-vaksinerte-hadde-fortjent-a-sta-i-gapestokk-pa-alle-offentlige-torg/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Feb. 2025

S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband