Fyrir löngu síðan benti þýsk-bandaríski heimspekingurinn, Eric Hoffer (1902-1983), á þá staðreynd, að öfgahreyfingar, sem hefðu yfirráð á stefnuskrá sinni, beindu spjótunum iðulega að foreldrum og fjölskyldu. Þessi viska á einnig við um lýðræðissamfélög Vesturlanda, þar sem hið opinbera verður stöðugt fyrirferðarmeira í fjölskyldulífinu. Þessi valdafíkn er iðulega dulbúin sem barnavernd í einhverri mynd.
Skosk yfirvöld eru í engu eftirbátar þeirra íslensku. Þau flétta einnig saman frelsun barna og frelsun kvenna. Áherslur kvenfrelsunarhreyfingarinnar eru eins og alkunna er, barátta gegn karlkyni, bæði kyninu sem slíku og þeirri menningu, sem þeir hafa skapað.
Skoski fornleifafræðingurinn, Neil Oliver (f. 1967), lýsir þessu svo: Það er ekki bara sagan, sem er skotmarkið, heldur er fjölskyldunni ógnað um þessar mundir. ... Ríkisstjórn Skoska þjóðarflokksins virðist haldin þeirri þráhyggju að leita stöðugt leiða til að bora sér inn milli foreldra og barna. Alræmdustu tilburðir hennar í þá átt er frumvarpið um ríkisfulltrúa (named persons bill), sem á vegum hins opinbera hefði orðið hluti af lífi sérhvers barns og hefði umboð til að ræða í einrúmi við barnið til að safna upplýsingum, án leyfis foreldra. Til samanburðar má geta þess, að barnavernarnefnd Kópavogs fer hliðstæða leið með hjálp smáforrits, sem börnum er veittur aðgangur að.)
Eins og gefur að skilja leysti frumvarpið úr læðingi heiftarlega gagnrýni. Að lokum fór svo, að hæstiréttur dæmdi það ólöglegt árið 2016. En ríkisstjórnin er ekki af baki dottin og reynir nú að innleiða ásamt kennsluleiðbeiningum um jafnrétti hliðstæð vinnubrögð í opinberum uppeldisstofnunum.
Eins og á Íslandi og víðar á Vesturlöndum eru kynskiptingar komnir í eldheitan brennidepil þjóðmálaumræðunnar. Neil segir:
Fyrir skemmstu ákvað sama ríkisstjórn, að börn, niður í fjögurra ára aldur, skyldu vera þess umkomin að skilgreina sjálf sig af gagnstæðu kyni, velja annað nafn og klæðast öðrum fötum án vitundar foreldra.
Það vill svo skemmtilega til í þessu sambandi, að Skotar eiga sína Katrínu. Sú heitir Nicola Sturgeon (f. 1970) og hefur troðið upp á kvenfrelsunarráðstefnum Katrínar á Íslandi í boði skattgreiðenda. Hún er eins og gefur að skilja keikur kvenfrelsari og talsmaður kynskipta barna. Hún lætur sem sé ekki duga að berjast fyrir sjálfsagðri mannúð gagnvart fulltíða kynskiptingum, heldur berst hún á barnakynskiptaflóðbylgu líðandi stundar.
Þar með gefur hún kvenfrelsurum á sér höggstað. Þeir eiga eins og kunnugt er í stríði við karla, sem umbreytast vilja í konur, gera lespukynsystrunum glingrur og krefjast afnota af öryggisafdrepum kvenna, sem víðs vegar er að finna, t.d. í æðri menntastofnunum. (Meira að segja í Hörpu má finna tvö nauðgunarvarnabílastæði handa konum.) Nauðgari í dulargervi konu, segja ekta kvenfrelsarar - eins og úlfurinn í sögunni um Rauðhettu.
En Nicola er hvergi smeyk og svarar kokhraust: Við skyldum aldrei gleyma því, að konum stafar eins og ævinlega hefur verið hætta af ýgum körlum og skeinuhættum; af djúprættri kynfólsku og kvenhatri - og sums staðar í veröldinni frá löggjöfum, sem ætla sér að ræna [konur því] grundvallarfrelsi og [þeim] réttindum að ráða eigin líkama.
https://www.newstatesman.com/comment/2021/09/nicola-sturgeon-is-refusing-to-back-down-on-trans-rights-but-resistance-is-growing
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021