Rannsóknarréttur Knattspyrnusambands Íslands

Sífellt fleiri kvenstjörnur stíga fram á sjónarsviðið í leit að kvenréttlætinu, kveða upp jafnréttisrefsidóma með fulltingi götunnar og fjölmiðla og gera kröfur um að stjórna því, hverjir leiki í íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu og hverjir megi þjóna KÍ. Þórhildur Gyða Arnarsdóttir skín nú skærust, miðlæg í stjörnuþoku ótiltekins fjölda stjarna. Því miður sést einungis af þeim bjarminn enn þá. En stjörnusjónaukanum skal nú beina að ósvinnunni samkvæmt fallinni stjórn KSÍ. Sjónaukinn, sem rýna skal til gagns og brjóta til mergjar, er annað kvenfrelsunarnýtstirni, Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir (f. 1978), sem alla jafnan veitir forstöðu merkri stofnun, Jafnréttisskóla Reykjavíkurborgar.

Á heimasíðu hans er skólastarfi lýst svo: „Jafnréttisskóli Reykjavíkur var settur á laggirnar í október 2013. Markmið skólans er að skapa vettvang fyrir jafnréttismenntun í skóla- og frístundastarfinu.

Í aðalnámskrá segir að á öllum skólastigum skuli nemendur fræddir um jafnréttismál en jafnrétti er ein af grunnstoðum menntunar. Hlutverk Jafnréttisskólans er m.a. að skapa vettvang og miðla þekkingu á jafnréttismálum til starfsfólks leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva Reykjavíkurborgar í samræmi við áherslur aðalnámskrár. Annað hlutverk skólans er að veita ráðgjöf og stuðning varðandi ýmis málefni sem varða jafnréttismenntun, mannréttindi og kynheilbrigði. Heimasíðan Jafnréttistorg er á vegum Jafnréttisskólans og þar má finna margvíslegt kennsluefni og leiðbeiningar sem styðjast má við í jafnréttis- og kynfræðslu á öllum skólastigum.“

Það er sem sé skólastýra þessa skóla, sem nú haslar sér völl í íþróttahreyfingunni, sjónaukinn, sem beint er að „eitraðri knattspyrnumenningu.“ Kolbrún Hrund er auðmjúk (samkvæmt Fréttablaðinu): „Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, sem leiðir hópinn, segist ætla að skoða menninguna alveg niður í yngstu iðkendur. Við vitum að það er mikil vinna fram undan en við ætlum að gera það vel, af auðmýkt og fagmennsku,“ segir Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir … Hópurinn mun rýna vel í alla verkferla Knattspyrnusambandsins og skoða vel hvað þurfi að gera betur og hvernig eigi að gera það, enda ljóst að það er margt sem ekki hefur verið nógu vel gert.“

Rannsóknarrétturinn skal horfa til hæstu siðvitundarhæða: „Það er alveg ljóst að við þurfum að skapa umhverfi þar sem ofbeldi er alfarið hafnað og þar sem þolendur finna að öruggt er að segja frá. Ábyrgðin á ávallt að vera geranda en ekki þolanda. Verkferlarnir verða að vera skýrir og öll viðbrögð hrein og skýr.“

Svo að ekkert fari nú úrskeiðis hefur „Kolbrún, sem hefur mikla þekkingu á þessum málum, bæði hjá Reykjavíkurborg og innan ÍSÍ, … boðið Hönnu Björgu Vilhjálmsdóttur, framhaldsskólakennara og formanni jafnréttisnefndar Kennarasambands Íslands, og Steinunni Gyðu- og Guðjónsdóttur, talskonu Stígamóta, sæti í hópnum.“

Sérstakar faglegrar forsendur Kolbrúnar Hrundar felast í námi í kynjafræði frá Háskóla Íslands undir leiðsögn Þorgerðar Einarsdóttur (f. 1957). Meistararitgerð hennar ber titilinn; „„Strákar geta haft svo mikil völd.“ Upplifun stúlkna á kynlífsmenningu framhaldsskólanema.“

Í úrdrætti stendur: „Tilgangur þessarar ritgerðar er að skoða upplifun stúlkna á þeirri kynlífsmenningu sem ungt fólk á framhaldsskólaaldri býr við í dag. Rýnt er í þá þætti sem stúlkurnar telja helst hafa áhrif á kynlífsmenningu þeirra svo sem vinahópinn, samskiptamiðla, klám, útlitsdýrkun og kynlífs- og klámvæðingu.

Leitast er eftir því að skoða hvort stelpurnar upplifi þrýsting til að stunda kynlíf eða ákveðnar kynlífsathafnir, hvaðan þrýstingurinn kemur og hver birtingarmynd hans er. Einnig er ljósi varpað á upplifun viðmælenda á kynfræðslu og jafnréttisfræðslu í grunn- og framhaldsskólum.

Rannsóknin er eigindleg, tekin voru alls tíu viðtöl við þrettán stúlkur þar af níu einstaklingsviðtöl og eitt rýnihópaviðtal. Ein þátttökuathugun var framkvæmd. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að stúlkur upplifi mikinn þrýsting varðandi útlitið, kynþokkann, kynlíf og ákveðnar kynferðislegar athafnir, bæði frá dægurmenningu samfélagsins, vinahópnum og ekki síst strákum.

Niðurstöður benda einnig til þess að kynlífs- og klámvæðing hafi veruleg áhrif á kynlíf og „kynlífshandrit“ ungmenna. Viðmælendur telja sterk tvöföld skilaboð ríkja í samfélaginu varðandi kynhegðun stráka og stelpna og stelpur séu undir mun strangara eftirliti en strákar. Kyn- og jafnréttisfræðslu er verulega ábótavant í íslensku skólakerfi samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar. Viðmælendur óska eftir því að fræðslan verði bætt verulega og að innan hennar verði jákvæðum hliðum kynheilbrigðis gert hærra undir höfði.“

Fræðileg undirstaða er kunnugleg, hugleiðingar félagsfræðingsins breska, Sylvia Walby (f. 1953) um kynjakerfi, í túlkun lærimeistarans, Þorgerðar: „[H]ún útskýrir hvernig samfélagið leitast við að flokka einstaklingana niður eftir kyni. Hún bendir okkur á að hér sé um að ræða ævagamalt félagslegt valdakerfi sem ekki aðeins aðgreinir kynin heldur viðheldur órétti og valdamisræmi á milli þeirra.

Þannig fylgi þeim eiginleikum sem karlmennskunni eru ætlaðir völd og rými á meðan konurnar fá valdaleysi og undirskipun í vöggugjöf. Walby tekur þó fram að ekki sé sjálfgefið að allir karlar græði á kynjakerfinu völd og rými og að ekki séu allar konur sjálfkrafa undirskipaðar. Kerfið er fljótandi, það er bæði sýnilegt og falið, tekur breytingum eftir stað og stund en teygir anga sína inn á flesta fleti þjóðlífsins. Kerfið má finna bæði á opinbera sviðinu sem og á einkasviðinu og skiptir Walby því niður á sex svið: Vinnumarkað, fjölskyldu, menningu, kynverund, ofbeldi og ríkisvald (Þorgerður Einarsdóttir, 2006).“ Þessa fræðilegu forsendu þykir Kolbrúnu Hrund ekki ástæða til að skoða með gagnrýnu hugarfari og varla hvött til þess af leiðbeinanda sínum.

Kolbrún Hrund segir um ríkjandi karlmennsku, öðru nafni eitraða karlmennsku: „Með karlmennskuhugtakinu fylgir gjarnan ímynd valda og líkamlegra yfirburða og í samfélagslegri umræðu er hugtakið m.a. notað til þess að aðgreina karla frá konum. Það sem telst vera kvenlegt er álitið andstæða þess sem talið er karlmannlegt (Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 2004).“ Ingólfur Ásgeir (f. 1954) hefur m.a. skrifað bókina: „Jafnréttisuppeldi,“ kjörgrip kvenfrelsara. Með núverandi forstýru Jafnréttisstofu, Katrínu Björgu Ríkharðsdóttur (f. 1967) skrifaði hann einnig ritgerðina: „Er hægt að bjóða kynjakerfinu birginn“ um reynslu átta kvenna.

Kolbrún Hrund styðst við skilgreiningu SÞ á menningu (sem er prýðileg í sjálfu sér): „„…samsafn þeirra trúarlegu, efnislegu, vitrænu og tilfinningalegu þátta sem einkenna hvert samfélag eða samfélagshóp. Listir og bókmenntir teljast til menningar, en einnig lífsstíll, sambúðarform, mannleg gildi, hefðir og skoðanir.“(UNESCO, 2002).“

Ritgerðin er forvitnileg að öllu leyti. Hana má – sýnist mér - að hluta lesa sem „staðal“ fyrir kvenfrelsunarritgerðir frá Háskóla Íslands. En það er líka athyglivert, hvernig konur – að sögn Kolbrúnar Huldar - beita líkama sínum til byltinga:

„Með brjóstabyltingunni má segja að ungar konur séu að veita andspyrnu við hinum styðjandi kvenleika, þær sýna gerendahæfni sína með því að brjótast út úr hinum karllæga ramma samfélagsins, koma mikilli umræðu af stað og hrófla þannig við stoðum kynjakerfisins. Þær berjast einnig gegn þeirri kúgun og misnotkun sem fylgt hefur hinni nýju tækni með því að ákveða sjálfar birtingarmynd líkama síns. Ungu konurnar telja sig vera í stöðu sem formæður þeirra þekkja ekki og því hafi þær eldri ekki forsendur til að skilja hvers vegna þær völdu þessa leið til að láta í sér heyra.“

Ætli konur beiti fleiri líffærum í byltingartilgangi? Það ætlar Kolbrún Huld væntanlega m.a. að kanna sem forstýra rannsóknarnefndar Knattspyrnusambands Íslands. Árnaðaróskir!!!

https://www.frettabladid.is/sport/faghopur-skodar-eitrada-knattspyrnumenningu/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Jan. 2025

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband