Hér er að finna viðtal við Hönnu Björk Vilhjálmsdóttur, forkonu siðanefndar Kennarasambands Íslands, forvígismann kyn- jafnréttisfræðslu (les: kynfrelsunarfræða) í Borgarholtsskóla og nefndarmann í nefnd, skipaðri af Lilju Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra, til að endurskoða námsefni og námstilhögun í kynjafræðum (gender studies) í íslenska skólakerfinu.
Nú er svo komið, að nemendur verða að ljúka námi í kynjafræði hjá Hönnu til að geta orðið bifvélavirkjar og rafvirkjar. Það er jafnan svo, þegar fólk af sama sauðahúsi og Hanna Björk opnar munninn um jafnrétti, á það við jafnrétti í skilningi kvenfrelsunarfræða. Grundvöllur þeirra fræða er eins og flestir munu vita, kennisetningin um feðraveldið eða illsku karla, sem kúga konur og gera þeim allt til foráttu. Einn nemenda hennar skrifaði fróðlega grein í dagblað fyrir nokkrum árum síðan um það, hvernig augu hans hefðu opnast fyrir þessari staðreynd. Samkvæmt orðum Hönnu endurtekur sagan sig. Mæður hlaða hana lofi. Þær hafa nú betri stjórn á sonunum.
Í mars síðastliðnum skrifaði umrædd Hanna, ásjóna KÍ út- og innávið, grein með titlinum, Hreyfiaflið er í skólastofunni. Þar segir hún m.a.:
Lagalegt jafnrétti ríkir á Íslandi en engu að síður horfumst við í augu við kynjamisrétti á flestum sviðum samfélagsins og vísbendingar eru um bakslag í baráttunni.
Jafnréttissjónarmið verða að vera eðlilegur og sjálfsagður hluti af öllu skólastarfi og lífi nemenda og til þess að það gerist þarf allt starfsfólk skóla að búa yfir jafnréttisnæmi. Jafnréttisnæmi er grundvallarþekking á stöðu kynjanna í samfélaginu, þjálfun og hæfni í að grípa til aðgerða í skólastofu þegar neikvæð orðræða um kyn ber á góma, greining kennsluefnis með tilliti til kynjasjónarmiða og meðvitund um kynjuð samskipti kennara og nemenda. Jafnréttisnæmi hefur það að markmiði að stuðla að betra samfélagi með því að fá nemendur, kennara og starfsfólk skóla til að horfa á jafnrétti frá öllum hliðum, innleiða jafnréttishugsun í allt skólastarf og líf nemenda og kennara. Útskrifaðir nemendur munu líta á jafnrétti sem sjálfsögð lífsgæði og réttindi allra og lifa samkvæmt því.
Aðkeypt fræðsla er algeng í skólum. Mikilvægt er að þekkja vel aðferðafræði og málflutning þeirra, sem keyptir eru til að uppfræða nemendur um jafnrétti, kynjaímyndir og kynhegðun. Fræðslan verður að styðja við það jafnréttisstarf sem unnið er í skólanum en ekki gegn því. Hafa verður í huga að slíkar heimsóknir eru engan veginn nóg eða fullnægjandi til að uppfylla kröfur um vandaða kyn- og kynjafræðslu og jafnréttismenntun í víðara samhengi, væntingar nemenda og siðferðis- og lagalegar skyldur skólakerfisins eru meiri en svo.
Það er væntanlega jafnréttisnæmi, þegar konur öskra út á sjó eða á torgum um vansældina, og óréttlætið, sem þær búa við ekki síst hið kynferðislega óréttlæti og ofbeldi.
Það er væntanlega jafnréttisnæmi, að dómarar skuli ekki umyrðalaust leggja trúnað á sakargiftir þeirra um nauðgun. Og svo mætti lengi telja. Það er sömuleiðis áhugavert að lesa um aðkeypta kynjafræðikennslu í skólum. Aðferðafræði og málflutning þarf að grandskoða. Hverjir ætli veljist til þeirra starfa? Í Ráðstjórnarríkjunum sálugu hétu þessir eftirlitsmenn og túlkendur hugmyndafræðinnar, kommisarar.
Í væntanlegum tillögum fyrrnefnds starfshóps undir forystu hins hálfþrítuga laganema, Sólborgar Guðbrandsdóttur, hvatamanni síðustu me-too bylgju og þolanda kynferðislegs ofbeldis mun kommisara-kerfið, að vonum verða útlistað.
Íslenska skólakerfið er á hraðferð í átt að því fyrirkomulagi, sem víða gildir í Vesturheimi. Þar er víða svo í pottinn búið, að nemendur geta ekki einu sinni lokið háskólanámi, án þess að ljúka áfanga í kvenfrelsunarfræðum (gender studies). Þessi fræði eru kennd á öllum stigum náms í skólakerfinu vestra.
Konur og/eða kvenfrelsunarhreyfingin er nær allsráðandi við námsefnisgerð, í kennslu og uppeldi, við félagsmálastofnanir og barnavernd - og ekki síst í heilbrigðiskerfinu. Kvenfrelsarar gerast æ umsvifameiri í forustu ASÍ.
Eins og öllum mun kunnugt og kvenfrelsararnir hreykja sér af, eru lögin stöðugt sniðin að hugmyndafræði þeirra. Hugmyndirnar um feðraveldi og karlillsku hafa gripið Alþingismenn heljartökum. Formaður Sjálfstæðisflokksins, sem ber þunga ábyrgð á því, að VG drottningin, okkar eigin Katrín mikla, settist í stól forsætisráðherra. Hann segir kvenfrelsun að verulegu leyti ráðandi hugmyndafræði í störfum ríkisstjórnar og Alþingis.
Nú fara kosningar í hönd. Hvaða á karlaumingi, einlægur lýðræðis- og jafnréttissinni, að kjósa, dauðuppgefinn á íslenskum stjórnmálamönnum, dauðskelkaður við kvenfrelsunaröfgar (einkum barnabarnanna vegna), gerræðishyggju, aðför að lýðræðislegum réttindum, málfrelsi m.a., dómstól götunnar og félagsmiðla, múgsefjun og almenna sátt lýðsins við forræðishyggju. Ábendingar eru vel þegnar.
https://www.visir.is/g/20212110487d/-hvad-i-fjandanum-er-eg-ad-gera-i-kynjafraedi-?fbclid=IwAR13CMeuJYwln9efG4yoz5VuidVePcXpcSof-8gwtQr0hFNmhrQNxOwcFMY
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
Bloggvinir
Af mbl.is
Erlent
- ESB bannar notkun á BPA í umbúðum um matvæli
- Níu handteknir vegna brunans á skíðahótelinu
- Trump myndi hugnast kaup Musks á TikTok
- Hafa til klukkan 17 til að senda starfsmenn í leyfi
- Heita því að tryggja þjóðaröryggi sitt
- Sakar biskupinn um viðurstyggilegan tón
- Fjórir særðir eftir stunguárás í Tel Aviv
- Náðun stuðningsmanna Trumps vekur ólík viðbrögð
- Skotinn til bana við skyldustörf
- Sársauki okkar er nístandi