Bólusetningablessun: Tvíburafaraldur einhverfu og hraðkrabba - Paracetamol (Tylenol - acetaminophen)

Umræða um bólusetningar eru enn litnar hornauga af heilbrigðisyfirvöldum og þeim, sem trúa yfirvöldum eins og Biblíunni. Þó virðist hilla undir breytingar. Youtube virðist til að mynda sjá að sér og með nýjum heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna, Robert Kennedy, kom nýr andblær í Ráðuneyti heilbrigðis og almannaþjónustu (Department of Health and Human Services – HHS).

Það ber ekki á öðru, en að Róbert geri sér far um að taka til í heilbrigðisgeiranum. T.d. var forstýra CDC (Heilsugæslustöðva – Centers for Disease Control and Prevnention), Susan Monarez, rekin úr starfi.

Hún mælti með bólusetningum ungbarna svo heiftarlegum, að þau fá í sig um 25 taugaeiturefni á fyrsta aldursári. Í nafni lýðheilsu fá börn um 70 bólusetningar, áður en yfir lýkur, stundum fjórar í einu. Það sýndi sig, að forstjórinn brottrekni var á mála hjá lyfjafyrirtækjunum.

Nýlega hélt Róbert blaðamannafund ásamt forseta sínum. Þar var m.a. varað við því, að þungaðar konur neyttu Paracetamóls, sem er algengt verkjalyf, oft og tíðum notað gegn sótthita – einnig hjá börnum.

Íslenska heilbrigðisráðfrúin, Alma Möller, var fljót til að mæla starfsbróður sínum í mót. Sagði ekkert geta hnikað sannfæringu íslenska læknasamfélagsins. Aukin heldur bar hún Rúnu Hauksdóttur Hvannberg, forstjóra Lyfjastofnunar, fyrir því, að Paracetamol væri öldungis meinlaust og gagnlegt – eins og covid-19 bóluefnin.

Upplýsingaóreiða staðhæfa forystumenn íslenska heilbrigðiskerfisins. Svo bendir Alma á, að Robert Kennedy sé umdeildur maður. En sjálf er hún óumdeild valkyrja heilbrigðismála á Íslandi.

Nicolas Hulscher, faraldursfræðingur við Mccullough stofnunina í Bandaríkjunum, er ósammála Ölmu og Rúnu.

Hann bendir m.a. á þetta: Paracetamol, sem ósjaldan er gefið við sótthita í kjölfar bólusetninga, bæði hjá þunguðum konum og kornabörnum, yfirgæfir afeitrunarviðleitni líkamans og bælir eða veikir þannig viðspyrnu/ónæmisviðbrögð við öðrum eiturefnum eins og áli í bóluefnunum. Það getur valdið skemmdum í miðtaugakerfi (heila), sem beint eða óbeint valda einhverfu. Tíðni einhverfu hefur aukist skelfilega.

Það liggur fyrir fjöldi rannsókna (þótt Alma viti ekki um þær) – um 100 - sem benda til samhengis milli taugaþroskasjúkdóma (einhverfu – autism) hjá börnum og bólusetninga. Dýrarannsóknir gefa svipaðar niðurstöður.

Aðrar rannsóknir benda til sambands bólusetninga barna við asma og skyndidauða hvítvoðunga (Sudden Infant Death Syndrome). Eitrun, sem berst milli kynslóða, kynni að skýra umframdauðsföll meðal nýbura á þessu Herrans ári.

Tony Rogers, sem hélt áhugavert erindi fyrir bandaríska þingmenn, er sérstaklega áhugavert: https://x.com/newstart_2024/status/1965495998232338696?ref_src=twsrc%5Etfw%7Ctwcamp%5Etweetembed%7Ctwterm%5E1965495998232338696%7Ctwgr%5E2c507335fe3b8f90c644340ed4b620c8081e6ce2%7Ctwcon%5Es1_&ref_url=https%3A%2F%2Fsteigan.no%2F2025%2F09%2Ftvillingvaksineepidemiene-autisme-og-turbokreft%2F

Niðurstaða Tony, eftir grandskoðun á rúmlega eitt þúsund rannsóknum, er þessi:

„Einhverfa og faraldur langvinnra sjúkdóma (chronic disease epidemics) orsakast fyrst og fremst af eiturefnum, að mestu leyti úr bóluefnum og um það bil tylft annarra eiturefna.“

Margir eiga um sárt að binda vegna lækninga og lýðheilsuframtaks yfirvalda, ekki síst vegna krabbameins, sem birtist eins og skrattinn úr sauðarleggnum, greinist oft á fjórða stigi, og drepur hratt.

Eitt fórnarlambanna er krílið Calum frá Kanada. Hann reynir af veikum mætti að brosa gegnum (bóluefna)tárin. Krabbinn er að eta upp heila hans. Hraðkrabbinn (turbo-cancer) hlífir engum.

https://thehill.com/policy/technology/5517922-youtube-reinstates-banned-creators/ https://blog.maryannedemasi.com/p/exclusive-fda-lab-uncovers-excess https://www.globalresearch.ca/red-alert-issued-excess-deaths-skyrocketing-covid-vaxxed-children/5876292 https://www.globalresearch.ca/covid-mrna-vaccine-injury-turbo-cancer-4-months-old-canadian-baby/5876297 https://steigan.no/2025/09/sjokkerende-innrommelse-vaksinene-ble-aldri-testet-for-dna-fragmenter/ https://x.com/newstart_2024/status/1965495998232338696?ref_src=twsrc%5Etfw%7Ctwcamp%5Etweetembed%7Ctwterm%5E1965495998232338696%7Ctwgr%5E2c507335fe3b8f90c644340ed4b620c8081e6ce2%7Ctwcon%5Es1_&ref_url=https%3A%2F%2Fsteigan.no%2F2025%2F09%2Ftvillingvaksineepidemiene-autisme-og-turbokreft%2F https://x.com/NicHulscher/status/1965416435867390088?ref_src=twsrc%5Etfw%7Ctwcamp%5Etweetembed%7Ctwterm%5E1965416435867390088%7Ctwgr%5Ecf22ed0643911308501a9a892b519d3b417cf7fb%7Ctwcon%5Es1_&ref_url=https%3A%2F%2Fsteigan.no%2F2025%2F09%2Ftvillingvaksineepidemiene-autisme-og-turbokreft%2F https://www.thefocalpoints.com/p/breaking-first-population-wide-study?utm_source=publication-search https://www.thefocalpoints.com/p/the-twin-vaccine-epidemics-autism?hide_intro_popup=true  https://forumgeopolitica.com/article/all-disinformation-how-the-state-interferes-with-freedom-of-expression-and-freedom-of-the-press https://expose-news.com/2025/09/28/moldova-elections-today-more-important-than-you-think/?utm_medium=email&utm_source=es


Vísindahernaður, heilsa og heilbrigðisyfirvöld

Fréttamanneskjur RÚV veita mér stöðugan innblástur til umhugsunar. Í bítið (29. sept. 2025) voru endurteknar fréttir þess efnis, að vísindamenn hefðu nú komist að því með óyggjandi hætti, að umsvif manna á jörðinni væru orsök helvítishlýnunar eins og framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna orðaði það.

Áður hafa Sameinuðu þjóðirnar gefið út, að þau ættu vísindin og væru handhafar vísindalegs sannleiks um efnið – og hananú.

Slíkur þvættingur er sífellt á borð borinn fyrir oss, einfeldningana. Trú á vísindi hefur komið í staðinn fyrir trú á guð eða sauðkindina. Það er lítil von til þess, að fréttamenn RÚV búi yfir vísindalegri þekkingu. Það gera eigi heldur heilbrigðisstarfsmenn yfirleitt. Þeim er venjulega ekki kennd vísindaheimspeki, vísindasaga, vísindaleg aðferð og ei heldur félags- og sálfræði vísindasýslu. Það er langt nám og strangt.

Það er sjaldan fjallað um nauðsyn þess að gaumgæfa, hverjir fjármagni vísindarannsóknir, í hvaða tilgangi og hvaða hagsmunir liggi að baki. Eins og flestum er líklega kunnugt, gera lyfjafyrirtækin sjálf rannsóknir á söluvöru sinni. Stofnanir á vegum hins opinbera veita vörunni blessun sína á grundvelli þeirra rannsókna.

Þessar stofnanir eru oft og tíðum skipaðar fólki á vegum lyfjafyrirtækjanna eða þeim, sem hafa annars konar hagsmuna að gæta. Það ætti að gefa auga leið, að slíkar rannsóknir séu meira og minna ónýtar. Sundum eru þær bókstaflega sérframleiddar í auðgunarskyni eins og dæmi voru um í covid vitfirringunni.

Almenningur er ekki upplýstur um þetta, frekar en áratuga langa kreppu í fleiri vísindagreinum – ekki síst heilbrigðisvísindum. Hagsmunaárekstrar eða ógnir geta t.d. valdið því, að niðurstöður séu ekki birtar eins og átti við um rannsókn Marcus Zervos og félaga við Henry Ford læknastofnunina.

Niðurstöður hans voru á þá leið, að bólusett börn þjáðust rúmlega tvöfalt oftar af alls konar langvinnum sjúkdómum eins og öndunarerfiðleikum (astma), húðútbrotum (eksem), sjálfsofnæmissjúkdómum (autoimmune) og taugaþroskatruflunum (neuro developmental), en börn, sem sloppið höfðu við bólusetningar.

Um svipað leyti komust James Lyons-Weiler og Paul Thomas að svipuðum niðurstöðum. Grein þeirra var dreginn til baka. Þetta höfum við æði oft séð gerast í vísindatímaritum, séu niðurstöðurnar ekki taldar boðlegar. En svo er líka svindlað stórt.

Útgáfufyrirtækið, Wiley, lokaði t.d. 19 vísindatímaritum sökum svikavísinda. Í yfirlitsgrein í Nature er aukin heldur bent á, að 70% rannsakanda hafi gert sér far um að komast að sömu niðurstöðu og starfssystur og -bræður, án árangurs. En það er kjarni vísindalegra athuganna að ganga megi úr skugga um, að niðurstöður séu „réttar eða sannar.“

Svo virðist sem hinn nýi heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna geri sér far um að skoða þessi tengsl og þær afurðir, sem samþykktar hafa verið til neyslu og (iðulega) niðurgreiðslu af hinu opinbera.

Nýverið olli ógnarlegu fjaðrafoki umfjöllun um hugsanlegt orsakasamhengi Paracetamol-neyslu þungaðra mæðra og ýmis konar þroskaskerðinga hjá afkvæmunum. En áhyggjur þar að lútandi eru ekki nýjabrum.

Efnið hefur verið töluvert rannsakað. Bendi t.d. á norska rannsókn frá 2013 (Ragnhild Eek Brandlistuen og fl.), danska (Zeyan Liew og fl.) frá 2015 og rannsókn Viktor H. Ahlqvist (og fl.) við Karólinska sjúkahúsið frá 2024.

Niðurstöður þessara rannsókna benda í mismunandi mæli til hugsanlegs orsakasambands milli neyslu verðandi móður á Paracetamól og þroskafrávika hjá börnum – skilyrt magni vitaskuld. Beitt var mismunandi aðferðum eins og vera ber. Það tekur venjulega um áratug eða svo, þar til sameiginlegur hljómgrunnur vísindamanna finnst.

Það eru fleiri en Robert Kennedy og forseti Bandaríkjanna, sem hafa bólusetninga- og lyfjaáhyggjur. Það hefur t.d. líka þingmaðurinn, Ron Johnson. Nýlega átti sér stað yfirheyrsla (hearing) í þinginu.

Tilgangur þess var að varpa ljósi á, hvernig spillingin í vísindunum mótar skynbragð almennings og bólusetningarstefnu yfirvalda (How the Corruption of Science has Impacted Public Perception and Policies Regarding Vaccines).

Ron sækir opnunarorð sín til orða Marcia Angell, sem um tveggja áratuga skeið starfaði sem ritstjóri við hið virta tímarit, The New England Journal of Medicine. Hún segir m.a.: „Það er einfaldlega borin von að bera traust til lunga birtra sjúkrarannsókna (clinical) eða leggja trúnað á dómgreind viðurkenndra lækna eða gildi opinberra leiðbeininga. Þessi niðurstaða er mér ekki gleðiefni. En ég komst að henni hægt og bítandi og ófús þá tvo áratugi, sem ég var ritstjóri The New England Journal of Medicine.“

Grein þessa kvennaljóma heitir: „Lyfjafyrirtæki og læknar: spillingarsaga (Drug Companies & Doctors: A Story of Corruption). Hún birtist 15. janúar 2009 í „New York Review of Books.“

https://www.msn.com/en-us/health/other/unpublished-henry-ford-study-at-center-of-vaccine-safety-debate/ar-AA1NitwX https://pmc.ncbi.nlm.nih.gov/articles/PMC7709050/?utm_source=chatgpt.com https://onlinelibrary.wiley.com/doi/abs/10.1002/aur.1591?utm_source=chatgpt.com https://jamanetwork.com/journals/jama/fullarticle/2817406?utm_source=chatgpt.com https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/24163279/ https://thehighwire.com/ark-videos/shocking-new-covid-vaccine-side-effects/?utm_source=chatgpt.com https://thehighwire.com/ark-videos/an-inconvenient-study-the-pushback/ https://thehighwire.com/ark-videos/dr-paul-thomas-vs-the-cdc/?utm_source=chatgpt.com https://player.fm/series/the-highwire-with-del-bigtree/episode-425-failure-to-warn?utm_source=chatgpt.com https://www.hhs.gov/press-room/autism-announcement-fact-sheet.html?utm_source=chatgpt.com https://www.hsgac.senate.gov/subcommittees/investigations/hearings/how-the-corruption-of-science-has-impacted-public-perception-and-policies-regarding-vaccines/?utm_source=chatgpt.com https://www.hsgac.senate.gov/subcommittees/investigations/hearings/the-corruption-of-science-and-federal-health-agencies-how-health-officials-downplayed-and-hid-myocarditis-and-other-adverse-events-associated-with-the-covid-19-vaccines/?utm_source=chatgpt.com https://www.youtube.com/watch?v=Wb0kOsKYjXA https://www.hsgac.senate.gov/wp-content/uploads/Entered-into-hearing-record-Impact-of-Childhood-Vaccination-on-Short-and-Long-Term-Chronic-Health-Outcomes-in-Children-A-Birth-Cohort-Study.pdf https://thehighwire.com/ark-videos/paradigm-shift-autism-findings-shake-vaccine-debate/ https://x.com/newstart_2024/status/1969133263319883796?ref_src=twsrc%5Etfw%7Ctwcamp%5Etweetembed%7Ctwterm%5E1969133263319883796%7Ctwgr%5E8bf1c8e4c5e784fefe1c5518a554f018a470be4e%7Ctwcon%5Es1_&ref_url=https%3A%2F%2Fsteigan.no%2F2025%2F09%2Fstudie-utfort-av-vaksinetilhenger-ga-vaksinene-strykkarakter%2F https://steigan.no/2025/09/studie-utfort-av-vaksinetilhenger-ga-vaksinene-strykkarakter/?utm_source=rss&utm_medium=rss&utm_campaign=studie-utfort-av-vaksinetilhenger-ga-vaksinene-strykkarakter


Bloggfærslur 29. september 2025

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Sept. 2025

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband