Nú er dansað dátt í höllu Síonfasistanna um heim allan. Þeir íslensku dansa af gleði eins og dansað var í Hruna forðum. (Ég skýt þeirri hugmynd að söfnuðinum að bjóða Lindey Graham til dansmessu. Game on, pray for Israel, sagði hann.)
Það er von, að Síonistar dansi og dufli. Leyniþjónusta Ísraela, Mossad í samvinnu við starfssystur sínar í leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA), Bretlands (MI6) og Úkraínu (SBU) ásamt með stuðningi Frakka og Þjóðverja, hefur enn á ný afrekað slíkan djöfulskap, nú í Íran, að bærilega heilbrigt fólk hlýtur að drúpa höfði í sorg.
Leyniþjónustur Vesturlanda (Nató) virðast hafa samhæft njósnir, undirróður og aðferðir við ódæðis- og hryðjuverk. (Ísrael er ekki einasta talið Evrópuríki í Söngvakeppninni, heldur líka á hernaðarsviðinu.)
Árásin á Íran var vandlega undirbúin eins og árásin á Írak á sínum tíma, svo og árás Nató langt inn í Rússland. Það var nauðsynlegt að ná yfirráðum yfir lofthelgi Sýrlands. Það var gert í samvinnu við Tyrki (Nató).Lofthelgi Jórdaníu er Ísraelum opin, enda leppriki Bandaríkjanna eins og furstadæmin við Persaflóa, sem leyfðu afnot af herstöðvum Bandaríkjanna.
Lofhelgi Íraks er á valdi Bandaríkjanna, þar til í september. Bretar veittu aðgang að herstöð sinni á Kýpur. Það ber ekki á öðru, en þar sé að finna skjól fyrir orrustuvélar Ísraels undir árásum Írana á flugvelli í Ísrael. Þýskar flugvélar hafa líka sést á sveimi.
Því skal ekki neitað, að samvinna Bandaríkjanna (tækniauðjöfranna í hirð Donald Trump) og Ísraela á sviði njósna, eftirlits og gervigreindar, gerir það að verkum að þeir eflast af allri dáð í drápsdjöfulskapi sínum eins og dæmin hafa sannað í stríði þeirra gegn Palestínumönnum, Líbönum og Sýrlendingum.
Við nánari eftirgrennslan hefur þó komið í ljós, að um hefðbundin sprengjutilræði hafi einnig verið um að ræða í skyndiárásinni um daginn, þegar netárás (cyber attack) var gerð á eldflaugavarnarkerfi Írana. Því var slegið út í átta klukkutíma eða svo.
Samningsgildran, sem Íranar voru teymdir í, var þó algert meistarastykki eins og þegar Rússar og Austur-Úkraínumenn undirrituðu Minsk samningana, sem Öryggisráðið og Nató (Þýskaland, Frakkland) ábyrgðust.
Svo lést Dónaldur Jón vera spældur út í Bensa-barnamorðingja, fordæmdi fautaskap forvera sinna, þáði tilboð Arabaþjóða um fjárfestingar og dávænar fúlgur fjár handa sjálfum sér. Veröldin skyldi halda, að hann væri orðinn afhuga Síonistahluthöfum sínum og Ísrael.
Samtímis þessu sjónarspili var gjörspillt Alþjóðakjarnorkuráð (International Atomic Energy Commission) látið greiða atkvæði um skýrslu, þar sem komist var að þeirri niðurstöðu, að Íranar hefðu brotið gegn ákvæðum samnings um útbreiðslu kjarnorkuvopna (non-proliferation treaty). Ráðið liggur líka undir grunsemdum um njósnir fyrir Ísrael, sem myrti átta kjarnorkuvísindamenn Írana, til viðbótar almennum borgurum og herforingjum.
Gvöð, hvað þú ert bjútífúll sagði Dónaldur Jón við spegilmynd sína þann örlagaríka morgun og þóttist enn vilja gera betrun og yfirbót vegna riftunar fyrri samnings um kjarnorkuvopn og semja á ný.
Samtímis raupinu í honum og hinum fasteignasalanum, Steve Witkoff, lagði hann sem sagt, þ.e. leyniþjónustan og herinn, á ráðin um sams konar aðgerð í Íran og áður hafði verið framkvæmd í Rússlandi.
Bandaríkin styrktu einnig stöðugt herafla sinn í námunda við Íran og B52 stórsprengjuflugvélar þeirra bíða átekta í Diego Garcia herstöðinni. Bandaríkjamenn og fleiri Natóríki (t.d. Ítalir og Þjóðverjar) senda Ísraelum vopn.
Hinn hausinn á Tvíhöfða þursinum, Bensi-barnamorðingi, skyldi nú loksins sjá fjörutíu ára draum Ísraels og Bandaríkjanna rætast, stjórnarbyltingu í Íran, og fleiri launmorð. Beitt var sams konar bragði og í Írak, forðum daga; ásökun um yfirvofandi beitingu gereyðingarvopna. Gjörspillt eftirlitsnefnd Sameinuðu þjóðanna, samdi ruglskýrslu um brot Írans á alþjóðasamningum eins og áður var imprað á.
Þetta sagði Dónaldur Trump, sem hefur endanlega misst allt niður um sig, svo Jeffrey Epstein eða Lólítuhreðjatak Mossad blasir við:
Ég gaf Íran endurtekið tækifæri til samninga. Ég tjáði þeim tæpitungulaust; gangið umyrðalaust til samninga. En það mátti einu gilda, hversu mjög þeir lögðu að sér og hversu nærri lá undirritun. Þeir heyktust.
Ég gerði þeim grein fyrir, að svo færi sem horfði, ættu þeir yfir höfði sér meiri skelfingar en þeir gætu gert sér í hugarlund. Þeir voru líka upplýstir um, að Bandaríkin framleiddu langtum betri og banvænni vopn en nokkur annar í heimi hér. Þau væru óviðjafnanleg og Ísraelar kynnu að beita þeim og ættu nægar birgðir og miklu meira væri á leiðinni.
Í Íran voru nokkrir, sem töluðu digurbarkalega. En þá grunaði ekki, hvað í vændum var. Nú eru þeir allir dauðir. Og enn harðnar á dalnum.
Nú þegar hefur ringt eldi og brennisteini [yfir Íran], en enn þá gefst tóm til að ljúka þessari slátrun, hún mun aukast enn og verða miklu hrottalegri. Þess vegna verða Íranar að haska sér til samninga, áður en þeir verða máðir út og bjarga þannig Íranska stórveldinu. [Bjálfinn á líklega við Persíu hina fornu.] Forðist frekari dauða og eyðileggingu, gerið gangskör [til samninga], áður en það verður um seinan. Guð blessi ykkur öll.
Þessi hraksmánarlegi hræsnari og böðull sagði í viðtali, að samningamenn Írana hefðu verið ráðnir af dögum; þeir drápust hvorki af flensu né covid, sagði hann kankvíslega.
Síðasta viðbótin við fasistahjal hins nýja keisara heimsbyggðarinnar er:
Íranar hefðu átt að undirrita samninginn, sem ég lagði að þeim að undirrita. Hvíklík skömm og fórnir mannslífa. Skorinort; Íranar skulu ekki komast yfir kjarnorkuvopn. Ég hef marglýst því yfir. Allir ættu að flýja Teheran.
Í Teheran búa um sextán milljónir villuráfandi sálna. Trúlega er um helmingur þeirra kvenkúgarar. Ísraelska ríkisstjórnin segist ætla að brenna Teheran til grunna og Pakistanar ýja að því að senda Írönum kjarnorkuvopn sem svar við kjarnorku- og efnavopnum Ísraela. Það er fjör!
Andspyrnuhreyfingin og stjórnvöld í Írak hafa lýst yfir, að þau muni ekki sitja hjá í þessu stríði, Persaflóaríkin sverja af sér alla ábyrgð, en Kínverjar virðast birgja Írana upp af hergögnum og Rússar hafa tekið af öll tvímæli um stuðning við bandamenn sína. Í stærra samhengi má skoða árásir Vesturveldanna (alheimsauðvaldsins) á Rússa og Íran sem aðför að BRICS+.
Það er beinlínis átakanlegt, að öryggi heimsins barna sé undir geðbiluðum, tvihöfða þursi, Síonfasistunum, Benjamin Netanyahu og Donald John Trump, komið. Þeir eru reknir áfram af gengdarlausri græðgi eftir völdum og auðæfum með skírskotun til ofstækisfullra túlkana á Gamla testamentinu (Hebresku bíblíunni).
Áður dýrkuðu hinir fornu Gyðingar/Ísraelsmenn guð illsku og blóðfórna, Molok (Moloch, Molech), með því að fórna börnum. Gamla testamentið skammar konunga Júdeu, Ahaz (732-716), Manasseh (697-643) og sjálfan Salómon (970-931) fyrir slíkt háttalag.
Nú eru börnin skotin og sprengd í loft upp til dýrðar Molok og ísraelskum börnum kennt að hata börn í Palestínu. Þeim er enn kennt, að þau séu ofurbörn, sem ekki megi samlagast öðru fólki af þeim sökum. Í jólasöngvum sínum syngja þau t.d. óð til Ísraelska varnarhersins, sem drepur Palestínumenn. (Mæli í þessu sambandi t.d. með heimildarmyndinni: Israelism. (https://www.youtube.com/watch?v=Z7E13ODKsA8)
Það er svo sem ekki að furða, að verulegur hluti Ísraelsmanna styðji að bestu og kunnugustu manna yfirsýn, studd könnunum útrýmingu Gazabúa og fari í mótmælagöngur til stuðnings nauðgurum.
Menn, þjóðir, ættbálkar, velja sér guði eða guðlegar útleggingar - samkvæmt innræti sínu og hagsmunum. Samkvæmt skilningi Douglas Reed (1895-1976) (The Controversy of Zion);
Afkomendur Levi Jakobssonar og Leu, hinir landlausu Levítar (ættstofn Levi), töldu sig yfir aðra afkomendur Jakobs og barnsmæðra hans (Rakel, Bila og Zilpa) hafna. Prestar þeirra (af ætt Arons) lögðu grundvöll að hebresku Bíblíunni (Gamla testamentinu).
Ættfaðir Gyðinga, Abraham og afi Jakobs, fæddist í Ur í Mesópótamíu (Írak). Þaðan kom líka amma hans, Sara. (Það er athyglivert, að Jakob giftist náfrænku sinni, dóttur Laban, sem var bróðir Rebekku. Rachel fæddist líka í hinni fornu Mesópótamíu (nú norður Sýrland eða Tyrkland) í borginni, Haran. Hún var einnig náskyld eiginmanninum, Ísak, bróðurdóttir Abrahams.)
Í hinu sérstaka afbrigði eða skrumstælingu Gyðingdóms Levíprestanna er rík áhersla lögð á guðlegan rétt þessa ættstofns til yfirgangs, ofbeldis og einangrunar. Illska og hefndarþorsti er áberandi.
Þetta er í aðalatriðum sá stofn, sem m.a. Persar herleiddu og Rómverjar tvistruðu um Miðausturlönd og löndin umhverfis Miðjarðarhaf. (Svokallaðir Spánargyðingar (Sephardic Jews) voru trúlega öflugasti hópurinn og átti nána samvinnu við arabíska drottnara á sunnanverðum Spáni.) Hinir ellefu ættstofnarnir (afkomendur sona Jakobs) samlögðust fólki í heimshlutanum. Þá sleppir Douglas Reed.
Samanburður við trúarspeking Persa (Írana) gæti verið forvitnilegur, nú þegar Ísraelar og Bandaríkjamenn (Nató) hafa gert árás á Írana til að steypa stjórn þeirra af stóli (aftur) til að frelsa konur, kenna lýðræði og mannréttindi en eiginlega til að komast yfir auðlindir þeirra. (Kjarnorkuvopnin eru yfirvarp eins og efnavopnin í Írak fyrir aldarfjórðungi síðan) og 9/11 fyrir stríðið gegn hryðjuverkamönnum í Vestur-Asíu.)
Hinn forni Guð Persa, Zaraþústra, sem þrátt fyrir Múhammeðstrú landsmanna, á djúp ítök i sálu þeirra, latti til stríðs eins og allir góðir guðir, en bauð þeim þó að verja hendur sínar.
Andleg og siðferðisleg stríð taldi Zaraþústra nauðsynleg. Það gæti verið skýringin á því, að Íranar eru seinþreyttir til vandræða og hafa engin stríð háð um áratugi, nema það, sem Írakar (og Bandaríkjamenn) háðu gegn þeim. Persía eins og Afganistan eru sögulega kunn sem kirkjugarðar heimsvelda. Nú þarf að taka stóra gröf fyrir Samrunaheimsveldið, meðan hrundansinn er stíginn.
Orð sonar John Adams (1735-1826), forseta Bandaríkjanna, stjórnvitringsins, John Quincy Adams (1867-1848), sem líka var forseti Bandaríkjanna, gætu þjónað sem grafskrift. Hann kvengerir Bandaríkin í ræðu 4. júlí 1821 og segir: (Ég leyfi mér að láta gervigreindina um að þýða, lítillega lagfært.)
Hún [bandaríska fjallkonan] fer ekki utan til að leita að skrímslum til að tortíma. Hún veit vel að með því einu að ganga undir öðrum fána en sínum eigin jafnvel þótt það væru fánar erlends sjálfstæðis myndi hún flækja sig í óleysanlegan vef allra þeirra stríða sem snúast um eiginhagsmuni og ráðabrugg, græðgi einstaklinga, öfund og metnað sem taka sér frelsislitina og stela merki frelsisins. Grundvallarstefnur hennar í stjórnmálum myndu smám saman breytast úr frelsi í vald. Ljóminn á enni hennar myndi ekki lengur geisla með óræðri dýrð frelsis og sjálfstæðis, heldur yrði í staðinn sett keisarakóróna sem glitrar í fölskum og flekkuðum ljóma, dimmum geislum drottnunar og valds. Hún gæti orðið drottningarvaldið yfir heiminum en hún væri ekki lengur drottnari eigin anda. (Krýning Dónaldar Jóns gæti verið innan seilingar.)
Þess má til fróðleiks geta, að Zaraþústra átti aðdáun Jóns Þorlákssonar. Jón stofnaði Sjálfstæðisflokkinn, sem er löngu horfinn í aldanna skaut. Þar hafa hreiðrað um sig herskáustu eintök Íslendinga og þar þrífst Síonistakirkjan.
https://glenndiesen.substack.com/p/col-lawrence-wilkerson-from-perpetual?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=166060307&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://michaeltsnyder.substack.com/p/there-are-signs-that-us-military?utm_source=post-email-title&publication_id=1520363&post_id=166119061&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://sonar21.com/donald-trump-doubles-down-on-crazy/ https://steigan.no/2025/06/kilder-usa-vil-ga-inn-i-israels-krig-mot-iran/?utm_source=substack&utm_medium=email https://savageminds.substack.com/p/the-folly-of-a-war-with-iran?utm_source=post-email-title&publication_id=65949&post_id=166138810&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://glenndiesen.substack.com/p/jeffrey-sachs-us-prepares-to-join?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=166145886&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://responsiblestatecraft.org/israel-iran-war/?ct=t(RSS_EMAIL_CAMPAIGN)&mc_cid=c6c3492c5a&mc_eid=ae33554485 https://www.globalresearch.ca/zenith-western-asymmetric-warfare-iran-ukraine/5891309 https://www.globalresearch.ca/israeli-weapons-of-mass-destruction-a-threat-to-peace-israel-s-nuclear-arsenal/4365 https://steigan.no/2025/06/64-av-israelerne-sier-ingen-uskyldige-mennesker-i-gaza/?utm_source=substack&utm_medium=email - https://archive.vn/Vl5Kv https://steigan.no/2025/06/iran-med-massiv-gjengjeldelse-mot-israel/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.cbsnews.com/news/iran-israel-drone-attack-retaliation-strikes-on-nuclear-sites-and-commanders/ https://www.kitklarenberg.com/p/hidden-history-how-israel-acquired?utm_source=post-email-title&publication_id=552010&post_id=165902079&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://sonar21.com/the-silver-lining-in-the-dark-war-cloud-over-iran/ https://corbettreport.substack.com/p/israel-attacks-iran-an-open-source?utm_source=post-email-title&publication_id=725827&post_id=165911534&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=0oGP6bj1F8Q&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=4 https://www.youtube.com/watch?v=Vp91gF8mMvM&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=5 https://www.youtube.com/watch?v=eX2NDHmfJXw https://www.youtube.com/watch?v=tog35UINyBE https://www.youtube.com/watch?v=CgKlIrXJqY4 https://www.youtube.com/watch?v=TTUpoY-vWA8 https://www.defensenews.com/naval/2017/07/03/netanyahu-on-israel-a-mighty-aircraft-carrier-of-the-us/ https://21stcenturywire.com/2025/06/14/us-secret-missile-shipment-to-israel-before-strike-on-iran/ https://steigan.no/2025/06/israelske-styrker-dreper-103-palestinere-i-gaza-inkludert-21-som-ba-om-hjelp/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.aaronmate.net/p/trumps-pretend-diplomacy-enabled?hide_intro_popup=true https://21stcenturywire.com/2025/06/15/sunday-screening-israels-bomb-a-radioactive-taboo-2012/ https://www.youtube.com/watch?v=522M-pv0qhY https://www.youtube.com/watch?v=7bzgC-alNlo&list=UUkF-6h_Zgf9zXNUmUB-MzTw&index=1 https://www.youtube.com/watch?v=Bsm7aMDKLBE&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=5 https://www.youtube.com/watch?v=AEHK-R1q_1A&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=2 https://www.youtube.com/watch?v=Bsm7aMDKLBE&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=5 https://www.youtube.com/watch?v=1GUN3Kukb9Q&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=1 https://kucinichreport.substack.com/p/tame-the-rising-lion-before-it-eats?utm_source=post-email-title&publication_id=1441588&post_id=166099256&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://savageminds.substack.com/p/eb8a20d5-859b-4210-98f9-435e57a8e744 https://21stcenturywire.com/2025/06/16/despite-us-help-iran-delivers-crushing-blow-to-zionist-regime/ https://www.youtube.com/watch?v=qQHUro6u6Kc https://www.youtube.com/watch?v=Z7E13ODKsA8 https://www.declassifieduk.org/permoid/ https://www.globalresearch.ca/italy-germany-war-front-manlio-dinucci/5891154 https://www.globalresearch.ca/memo-iran-ready-washington-policy/5891033 https://www.globalresearch.ca/israel-attacks-iran-consequences-the-turning-of-the-tables-peter-koenig/5891152 https://sonar21.com/trumps-schizophrenic-middle-east-policy-facilitating-disaster/?jetpack_skip_subscription_popup https://www.moonofalabama.org/2025/06/lies-used-to-justify-war-on-iraq-get-reused-to-wage-war-on-iran.html https://www.youtube.com/watch?v=9L-A8bx8-X0&list=UUkF-6h_Zgf9zXNUmUB-MzTw&index=4 https://beeley.substack.com/p/israel-isnt-a-state-with-an-army?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=166055197&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://beeley.substack.com/p/vanessa-beeley-following-israels?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=166085741&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://alexkrainer.substack.com/p/trumps-iran-deception-is-it-regular?utm_source=post-email-title&publication_id=1063805&post_id=166061336&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.geopoliticaleconomy.report/p/israel-war-iran-us-trump-support?utm_source=post-email-title&publication_id=457596&post_id=165931477&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email
Kjarnorkuvopn Ísraela voru lengi vel opinbert leyndarmál. Aðdragandinn að útvegun þeirra er samofin tilurðarsögu Ísraelsríkis.
Forsagan er í hnotskurn þessi: Alþjóðlegt bankaveldi Gyðinga hafi náð tökum í fjármálaheimi Bandaríkjanna og Evrópu á nítjándu öld úthallanda. Sókn þess í völd og auðlindir var óhamin. Gyðingaprestarnir, þ.e. af stofni Levíta, höfðu um aldir alið á þeirri trú, að þeir væru öðrum mönnum fremri, reyndar einustu mennirnir sem slíkir, og þeirra væri rétturinn til heimsyfirráða. Svo hafði Guð gefið þeim Palestínu og löndin þar um kring (Sýrland, Líbanon, Jórdan, og vænar sneiðar úr Írak, Tyrklandi, Egyptalandi og Sádí Arabíu). Stór-Ísrael heitir það.
Fyrsta heimsstríðið var m.a. háð til að hrekja Ottóman-veldið (Tyrki) á brott frá Palestínu til að fá þar fótfestu. Nýlenduveldin Bandaríkin þar meðtalin þurftu múrbrjót til að reyna enn á ný að komast yfir auðlindir svæðisins. (Bandaríkjamenn kalla Ísraelmenn framverði sína i Vestur-Asíu eða landfast flugmóðurskip.)
Bretar og Rússar höfðu löngum eldað grátt silfur vegna auðæva hinnar fornu Persíu (Írans). Bretar og Bandaríkjamenn kollvörpuðu lýðræðislega kjörinni stjórn Írans og komu á ógnarveldi Mohammad Reza Pahlavi (1919-1980). Sá var Vesturlöndum eftirlátssamur. M.a. börðust íranskir flugmenn við hlið velunnara sinna í Víetnam.
Það kom að því, að almenningur varpaði af sér oki Pahlavi stjórnarinnar og klerkastjórn tók við. Hún aðhyllist Shia útgáfu Múhammeðstrúar. Sunni útgáfan á þó flesta fylgjendur.
Vesturveldunum hefur ævinlega verið í nöp við nýja stjórn Írans og Bandaríkjamenn öttu þáverandi vini sínum Saddam Hussein (1937-2006) gegn þeim. Siðar var Saddam myrtur eins og Muammar Gaddafi (1942-2011) í Líbíu.
Hvað sagði ekki Heinz (Henry) Kissinger: Óvinum Bandaríkjanna er hætta búin, vinum þeirra þó mest.
Þjóðabandalag sigurvegaranna í fyrstu heimstyrjöldinni fól Bretum eins og við mátti búast stjórn á Palestínu. Þó gerðu Bretar og Frakkar með sér leynilegt samkomulag um skiptinu svæðisins, Sykes-Picot samkomulagið.
Áratugina á undan hafði heimalandshreyfingu Gyðinga vaxið mjög fiskur um hrygg. Ofstækisgyðingar, Síonistar, úr Austur-Evrópu, Ashkenazi, náðu þar undirtökunum og tryggðu sér smám saman stuðning Alþjóðgyðingaauðvaldsins, sem stofnað hafði bandaríska seðlabankann (Federal Resvere) 1913 með Englandsbanka að fyrirmynd. (Eins og fyrsti banki þeirra í Bandaríkjunum, stofnaður af Alexander Hamilton (1755?-1804)). Fjármálamiðstöðvar heimsins höfðu þá flust til City of London og Wall Street.
Nürnbergréttarhöld sigurvegaranna í annarri heimstyrjöldinni skiptu sköpun um afdrif Síonistaríkisins í Palestínu. Þau höfðu sálhreinsunargildi fyrir Bandamenn. Allri sök var varpað á Þjóðverja, grimmdarverk Bandamanna hulin og Gyðingar gerðir að útvöldum fórnarlömbum og Þjóðverjum gert að greiða þeim og Ísraelsríki skaðabætur um áratugi. (Það er svo kaldhæðni örlaganna, að hreyfing nasista var fjármögnuð af alþjóðaauðvaldinu eins og byltingin í Rússlandi.)
Vitund almennings um skelfingar annarrar heimstyrjaldarinnar eru einkum sóttar í skrumstælingar hinnar gyðinglegu Hollývúdd, bæði undir réttarhöldunum og eftir. Þar svífur andi Gamla testamentisins yfir vötnum; Gyðingar eru Guðs útvalda þjóð, sakalaus fórnarlömb ómenna. Guði þeirra er þóknanlegt, að þeir líti niður á aðra og heygi stríð á hendur þeim. (Góðu heilli mótmæla ungir Gyðingar þessum trúarfasisma um þessar mundir.)
Dráp Þjóðverja á Gyðingum voru kölluð Helförin. Dráp þeirra á öðrum hafa ekkert nafn fengið og dráp Bandamanna á Þjóðverjum heldur ekki. Þessum hörmungum hefur verið beitt með kaldrifjuðum hætti af Síonistum til að vekja samúð fólks og viðhalda samviskubiti Þjóðverja.
Raunar hefur sprottið upp eins konar Helfariðnaður samtímis banni við umfjöllun um Gyðinga, gagnrýni á Síonista og Ísraelsríki. Það heitir því skrítna nafni, Semítahatur, enda þótt tiltölulega fáir Ísraelsmenn geti með einhverju móti rakið ættir sínar til Semíta. Enn það geta Palestínumenn hins vegar.
Það er því ekki að undra, að Þjóðverjar hafi gefið Ísraelum fjóra kafbáta til að ferðast með kjarnorkuvopn sín um heiminn. Ísraelsstjórn getur tortímt veröldinni á augabragði með kjarnorkuvopnum.
Þar til Charles André Joseph Marie de Gaulle (1890-1970) tók við völdum í Frakklandi en hann var andsnúinn óskabarni Bandaríkjanna og Breta, Nató voru Frakkar iðnastir við að koma kjarnorkuvopnaframleiðslu á koppinn í Ísrael.
Þjóðverjar lögðu einnig sitt af mörkum og Bandaríkjamenn, þegar John Fitzgerald Kennedy (1917-1963) hafi verið rutt úr vegi og djúpríki vopnaframleiðenda og síoniskra bankamanna hafði náð endanlegum völdum þar um slóðir og óbeint í Nató. Því tókst ekki, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir að ráða Charles af dögum.
Síðan hafa geisað látlaus stríð og þriðji kafli í stríðinu um alheimsvöldin og auðlindir heims stendur nú yfir; styrjöldin gegn Rússlandi og ríkjunum fyrir botni Miðjarðarhafs (Levantíu, Vestur-Asíu). Áætlunin var unnin í samvinnu ísraelskra og bandarískra stjórnvalda (Clean break). Íran skal nú loksins lagt að velli.
Áætlun Samrunaheimsveldisins (Tvíhöfða þursans, Ísraels og Bandaríkjanna) með fulltingi Nató um yfirráð sjö ríkja á svæðinu var eins konar undiráætlun í utanríkisstefnu Bandaríkjanna um að ná tökum á Rússum og Kínverjum. Bandaríkjamenn rembast eins og rjúpa við stein og hafa girt þá af með herstöðvum, tæpum sjö hundrað að tölu.
Það er ekki bara svo, að Ísralesmenn geti virkjað Samson-stefnu sína, þ.e. beitt kjarnorkuvopnum, eigi þeir í vök að verjast, heldur er þeim í lófa lagið að eyða veröldinni að geðþótta.
Í Ísrael situr eins og alheimur veit, geðbilaður barnamorðingi við stjórnvölinn, ásamt fleiri trúarbrjálæðingum, sem eiga þann draum heitastan með kristnum sionistum að tortíma veröldinni, svo guð þeirra sígi af himni ofan - og um leið tryggja sér auðlindir og auðævi í Íran og Stór-Ísrael.
https://corbettreport.substack.com/p/israel-attacks-iran-an-open-source?utm_source=post-email-title&publication_id=725827&post_id=165911534&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://corbettreport.substack.com/p/israel-attacks-iran-an-open-source?utm_source=post-email-title&publication_id=725827&post_id=165911534&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://21stcenturywire.com/2025/06/15/sunday-screening-israels-bomb-a-radioactive-taboo-2012/
Bloggfærslur 17. júní 2025
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021