Vindhaninn í Washington. Samningar og stríð

Vindhaninn gefur vísbendingu um, hvaðan á okkur stendur veðrið. Snúist hann í hringi eru úti veður vond. Vindhaninn í Washington, öðru nafni Donald John Trump, snýst yfirleitt á ofsahraða, það er rok og óveður í kringum hann. Kappinn heldur áfram að trumpa út og suður. Dónaldur Jón er ofurstjarna og hann dáist einlæglega að sjálfum sér. „Nú er ég forseti,“ segir hann drjúgur með sig.

Stundum hægist þó um, svo varla bærist hár á höfði og sól skín á notalega sjávarströnd fyrir botni Miðjarðarhafs. Þar sötrar Forsetinn ljúfan drukk með Benjamin Netanyahu sér við hlið og stormsveitarforingjann, Elon Musk, sem hvomar í sig flatböku í grenndinni. Arabísku dansmeyjarnar, sem dilla sér fyrir framan þá, eru augnayndi, og tónlistin hreinasta eyrnakonfekt: „Donald Trump frelsar yður.“

Þannig sér Dónaldur Jón fyrir sér lífið á Gaza. Gazabúar verða þá komnir í eyðimerkur Egyptalands eða upp á Grænlandsjökul. Lágkúruviðbjóður og átakanlegt dómgreindarleysi af hálfu Leiðtogans.

Í framhaldsmyndinni kynni hann að bæta við syni vinar síns, Bensa-barnamorðingja, sem um þessar mundir lifir lífi hins ísraelska útlaga á Florida á kostnað skattgreiðenda. Hann ku hafa slæmt hendi í pabba, en áreiðanlega heimildir liggja ekki fyrir.

Það lék um Dónald Jón sunnan þeyr, þegar honum datt í hug að tala við Vladimir Putin eða Vonda-Valda, sjálft rússneska skrímslið, sem ógnar frelsi, lýðræði og mannréttindum Vesturlandabúa. Utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, kærleiksbarnið, Kaja Kallas, kallaði hann stríðsglæpamann. Því ætti ekki að yrða á hann. Sá fyrri, Joseph Borell, sagði Evrópu aldingarð. Aðeins óræktar- og ótuktarfólk byggi handan hans. Svo Dónaldur leggst lágt.

Nú funda Rússar og Bandaríkjamenn í Miklagarði (Istanbúl). Líklega einbeita samningamenn sér að því að tvinna saman slitin stjórnmálatengsl. En trúlega verða þeir hugsi yfir trumpum vindhanans í Washington.

Hann tekur um þessar mundir við hverjum Evrópuleiðtoganum á fætur öðrum og setur á sig snúð. En þó gefur hann undir fótinn hugmyndum um evrópsk herlið í Úkraínu, sem Rússar aftaka með öllu, og lætur vopnin streyma á vígvöllinn.

Samningamennirnir fylgjast – eins og sum okkar hinna – agndofa með litríkri sýningu Leiðtogans um sjaldgæfa málma. Dónaldur Jón hrökk upp við þá staðreynd, að Bandaríkjamenn dæla gríðarlegum fjárhæðum til Úkraínu og um leið til eigin hergagnaiðnaðar.

Því flaug Foringjanum í hug sú frumlega hugsun að láta blæðandi Úkraínumenn, fórnarlömbin í stríði Nató gegn Rússlandi, borga með málmum í jörðu. Þeim dugar greinilega ekki gjaldeyrisvarasjóður Rússa, sem þeir og Evrópumenn stálu.

Snjallræðið hafði golffélagi Dónaldar Jóns, Lindsey Graham, þó bent á fyrir alllöngu síðan. Og rúsínan í pylsuenda óvitans er ádráttur um vernd Úkraínu. Þegar Bandaríkjamenn hefja námuvinnslu mun nefnilega enginn (Rússar) þora að abbast upp á Úkraínu, segir hann.

Það er þó tvöfaldur hængur á þessum viðskiptum; hinn volaði Volodymyr seldi Bretum málmana fyrst, og auk þess er um sjötíu af hundraði þeirra að finna á rússnesku yfirráðasvæði í Donbass. Svona gerast kaupin á Eyrinni.

Ætli Rússum bregði í brún? Hvað segja Vondi-Valdi og skynsemdartröllið, Sergei Lavrov, við þessu? Rússar hafa lært síðustu þrjá áratugina eða svo, að Vesturveldin séu ekki samningshæf, vanvirða gerða samninga.

Það gerir heldur ekki framlenging þeirra í Ísrael. Ísraelsmenn eru um þessar mundir aðiljar að tveim vopnahléum og halda hvorugt. Þeir eru einnig óbeint aðiljar að þreifingum Bandaríkjamanna í húsi Írana. Þar mætir þeim fálæti, enda von, því þeir hafa sýnt svívirðilega hegðun; steypt ríkisstjórnum, stundað undirróður, framið morð og svo framvegis. Slíku fólki er ekki treystandi.

Þrátt fyrir friðarviljann undirbýr Samrunaheimsveldið (Bandaríkjamenn og Ísraelar) árás á Íran. Bandaríkjamönnum virðist fyrirmunað að skilja, að Rússar, sem þeir sitja að samningaborði með, hafa bæði hagsmuna að gæta og vináttu við Írana að virða.

Dónaldur Jón stefnir fyrrgreindum viðræðum í hættu og leggur gjörva hönd á stríðsplóginn í Miðausturlöndum, þar sem Arabar virðast treysta böndin. Egyptar og Jórdanar og jafnvel Líbanar ýfast. Íran er til í tuskið og Tyrki dreymir um nýtt Ottómanveldi.

Herir Egypta og Tyrkja eru, að sögn kunnugra, vel þjálfaðir og búnir bandarískum vopnum. Það er vopnaglamur og ófriður í lofti, friðurinn er sundurslitinn. Ísrael hefur lagt undir sig u.þ.b. 15% af Sýrlandi hinu nýja milli Gólanhæða og Damaskus og neitar að yfirgefa Líbanon. Þetta er gert með blessun Vindhanans í vestri.

En vindhaninn snýst, trumpar og blaðrar, og hellir olíu á eldinn. Alþjóðlegt viðskiptastríð verður trúlega í algleymingi innan skamms og stormsveitarforingi hans, Elon Musk, veður um opinbera stjórnsýslu vopnaður keðjusög eins og sálufélagi hans í Argentínu, Javier Milei. Stjórnsýslan er hreinsuð af óæskilegu fólki og nú er röðin komin að hernum.

Formaður sameinaðrar hernaðarnefndar (Joint Chief of Staff), sem Dónaldur Jón sjálfur skipaði í embætti á fyrri forsetatíð sinni, Charles Quinton Brown, er látinn fjúka, þrátt fyrir yfirburðahæfni, samkvæmt hermálasérfræðingnum, Dennis Fritz.

Við hlutverki hans tekur John Daniel Caine. Dónaldur Jón hefur lýst því yfir, að herforinginn sá „elski hann“ og „myndi fórna lífi sínu“ fyrir Foringjann.

Yfirmenn í flota og flugher eru einnig á útleið. Skynsamt fólk talar um valdatöku í Bandaríkjunum. Það merkir borgarastríð. Andspyrnuhreyfingunni, „AltGov,“ sem skaut rótum á fyrra tímabili Dónaldar Jóns, virðist nú hafa vaxið ásmegin.

„Ölmusuherinn,“ þ.e. fólk, sem lifir á matarbjörgum ríkisins, telur 100 milljónir manna. Dónaldur Jón og Róbert Kennedy eru staðráðnir í að bæta hag þeirra og heilsu. Róbert beitir sér t.d. fyrir meiri skynsemi við bólusetningar og skráningu aukaverkana - og þingið hefur nýverið aflétt sköttum af þjórfé, yfirvinnu og lífeyri frá hinu opinbera.

Engu að síður fjölgar lögbrotum og efnahagur þjóðarinnar er að hruni kominn. Samtímis halda áfram sjónhverfingar í sambandi við hernaðarútgjöldin. Allt útlit er fyrir, að þau muni aukast, en ekki minnka. Það munar um vopnvæðingu Ísraela og viðhald F35 flugsveita þeirra.

https://sonar21.com/trump-and-europe-fail-to-realize-that-russia-has-a-vote/?jetpack_skip_subscription_popup https://gilbertdoctorow.com/2025/02/27/the-trump-starmer-press-conference-today/ https://michaeltsnyder.substack.com/p/a-secretive-movement-known-as-altgov?utm_source=post-email-title&publication_id=1520363&post_id=158076224&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://sonar21.com/uk-busy-trying-to-polish-a-turd/ https://steigan.no/2025/02/vi-blir-israelsk-krigssjef-lover-ubestemt-okkupasjon-av-libanon-syria/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/global-implications-18-february-2025-us-russia-riyadh-meeting/5880542 https://steigan.no/2025/02/splittelsen-mellom-ukraina-og-usa-er-blitt-en-avgrunn/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.unz.com/pgiraldi/trumps-first-month-panders-to-israel/ https://www.globalresearch.ca/hold-applause-trump-peacemaker/5880563 https://korybko.substack.com/p/trump-is-unlikely-to-pull-all-us?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=157669670&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2025/02/kash-patel-er-ny-sjef-for-fbi-og-lover-store-forandringer/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=hKEiuGQFwsI https://www.youtube.com/watch?v=_gPw6InobEA&list=UUOxLhz6B_elvLflntSEfnzA&index=1 https://www.youtube.com/watch?v=G_kMjyxdsBc&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=4 https://www.youtube.com/watch?v=s1eLg68ZpyM&list=UUkF-6h_Zgf9zXNUmUB-MzTw&index=1 https://www.youtube.com/watch?v=G_kMjyxdsBc&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=4 https://michaeltsnyder.substack.com/p/17-signs-that-americas-long-economic?utm_source=post-email-title&publication_id=1520363&post_id=157922725&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://sonar21.com/trump-reins-in-europe-and-israel-while-daniel-levy-shines-before-the-unsc/ https://korybko.substack.com/p/russia-and-the-us-diplomatic-choreography?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=157874519&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://rumble.com/v6ong23-crosstalk-bullhorns-kabuki-theater.html?utm_source=substack&utm_medium=email https://gilbertdoctorow.com/2025/02/24/the-ever-changing-trump-latest-new-position-on-ukraine-security-guarantees-can-only-lead-to-failure-of-his-peace-initiative/ https://www.youtube.com/watch?v=-kPeZFCvuoc&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=5 https://www.youtube.com/watch?v=FQJfDx0Rbsg&list=UUkF-6h_Zgf9zXNUmUB-MzTw&index=2 https://www.youtube.com/watch?v=j0X8R2VEA8M&list=UUkF-6h_Zgf9zXNUmUB-MzTw&index=3 https://www.youtube.com/watch?v=8U6Ft6X2Rtc&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=9 https://steigan.no/2025/02/representantenes-hus-budsjettresolusjon-vil-oke-militaerutgiftene-med-100-milliarder-dollar/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=tcxSavCciZw&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=5 https://michaeltsnyder.substack.com/p/alert-the-economic-numbers-that-we?utm_source=post-email-title&publication_id=1520363&post_id=158064238&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://kucinichreport.substack.com/p/the-plunder-of-ukraine-a-story-of?utm_source=post-email-title&publication_id=1441588&post_id=158037662&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=iS1HQq-29cU&list=UUkF-6h_Zgf9zXNUmUB-MzTw&index=2 https://michaeltsnyder.substack.com/p/this-could-be-the-hook-in-the-jaw?utm_source=post-email-title&publication_id=1520363&post_id=157855713&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.yahoo.com/news/trump-posts-bizarre-ai-video-092545359.html https://www.snopes.com/fact-check/trump-gaza-ai-video/


Úrhrök í Ísrael og sviknar skjáskottur

Bezakel Smotrich, fjármálaráðherra Ísraels, lét ljós sitt skína (enn á ný) fyrir skemmstu: Hann undirbýr okkur:

„Í fyllingu tímans, þegar aðgerðir hefjast á ný á Gaza munu þær vekja furðu, þar eða þær verða allt í senn; aflmiklar, nákvæmar og banvænar. Ég get með fullvissu sagt, að IDF [Ísraelski varnarherinn] sé á bólakafi við undirbúning undir stjórn væntanlegs starfsmannastjóra, Eyal Zamir, í samræmi við beinskeytta tilskipun – með óbifanlegum stuðningi Trump forseta.“

Nissim Vaturi, félagi í flokki Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra, og varaforseti þingsins, Knesset, er einnig ómyrkur í máli:

„Hver er saklaus á Gaza? Óbreyttir borgarar þustu út á götu og slátruðu fólki með köldu blóði. Það ber nauðsyn til að skilja að börn og konur og drepa fullorðna karlmenn á Gaza. Við sýnum yfirdrifna linkind. … [E]nginn í heimi hér vill sjá óbreytta borgara á Gaza. Öllum virðist umhugað um að ota þeim að Ísrael. Þeim er fullkunnugt um, að þeir eru úrhrök og ekki fólk að telja.“ (Þetta gæti verið tekið úr munni íslenskra sálufélaga hans, Síonistanna.)

Þessi ofurmenni láta standa hendur standa fram úr ermum á Vesturbakkanum og hita upp fyrir næstu tortímingu á Gaza – og væntanlega Líbanon.

Við munum umbreyta Jenin [flóttamannabúðunum] í nýtt Gaza,“ segir Nissim. „Það er betra að sprengja byggingar og brenna, heldur en að stefna hermönnum í hættu.“ Nissim þessi leggur landa sína, sem mótmæla morðum og drápum, að jöfnu við óvini, deild í Hamas.

Á Vesturbakkanum er fólk flæmt frá heimilinum sínum með leyniskyttum, jarðýtum og skriðdrekum. Mynstrið er það sama, hvort heldur er á Gaza, Vesturbakkanum, í Líbanon eða á Sýrlandi.

Varnarherinn kippir sér ekki upp við að slátra ómennum, hvort heldur er í fangelsum, almannarými eða á vígvöllum.

Nú ríkir vopnahlé á Gaza eins og í Líbanon, enda þótt Ísraelsher brjóti það stöðugt. Það gengur illa að halda drápsfýsninni í skefjum. En til allrar hamingju hafa gíslar í haldi Hamas og í fangelsum Ísraelsmanna, verið látnir lausir.

Það kemur æ betur í ljós, að upphaf þessara hjaðningavíga má rekja til samsæris ísraelskra yfirvalda og Hamas. Vitnisburður „skjáskottanna“ (spotter), sem látnar hafa verið lausar úr haldi Hamas, skiptir í þessu sambandi miklu máli.

Skjáskotturnar voru ungir, kvenkyns hermenn, sem höfðu þann starfa með höndum að vakta landamærin með hjálp fullkomnustu tækni á því sviði. Ein þeirra sagði eitt sinn, að trúlega kæmist ekki mús í gegn, án þess að verða uppgötvuð. Enda vöruðu þær – eins og egypskir leyniþjónustumenn t.d. – við því, sem í uppsiglingu var harmsögudaginn 7. október 2023.

Bensi-barnamorðingi veit upp á sig sökina og reynir stöðugt að koma í veg fyrir rannsókn á þessari ólíkindaárás Hamas og viðbrögðum Varnarhersins, sem voru svifasein og máttlaus. Það alvarlegasta er þó, að hermennirnir, sem um síðir komu á vettvang, fengu skipun um að drepa ísraelska gísla (Hannibal tilskipunin).

Hugsanlega tekst réttarkerfinu að koma á Bensa böndum fyrir vitorð í harmleiknum, svo svik og spillingu.

Það gerist vonandi, áður en Donald Trump og morðóð yfirvöld Ísraels láta til skarar skríða gegn Írönum. Sú árás er í undirbúningi eins og frekari ódæði á Gaza og í Líbanon. Það er heldur ekki bitið úr nálinni, hvað upprætingu Jemena og Hisbolla varðar.

Sýrland, sunnan Damaskus, er í raun ísraelsk landsvæði eins og landræma norðan líbönsku landamæranna. En Ísraelar láta ekki duga að sprengja fólk með símum, eldflaugum og úr flugvélum. Þeir minna stöðugt á tilvist sína og vekja ótta. Síðasta uppátækið var að láta þotur fljúga rétt yfir höfðum þátttakenda í fjölmennri útför Hassan Nasrallah, fyrrum leiðtoga Hisbolla, í Beirút.

Það er þó huggun harmi gegn, að til sé fólk eins og ísraelsk-breski Gyðingurinn, Daniel Levy. Hann talar um nauðsyn þess, að skapa öðruvísi samfélag og þar með afmá aðgreiningu Palestínumanna og Ísraela, sbr. ræðu hans hjá Sameinuðu þjóðunum.

https://www.youtube.com/watch?v=6Q0KUQfm8oA (Daniel Levy) https://www.youtube.com/watch?v=8146WZewdpA&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=7 https://michaeltsnyder.substack.com/p/chaos-everywhere-chaos-in-dc-iranian?utm_source=post-email-title&publication_id=1520363&post_id=157931743&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://x.com/Osint613/status/1894026502205034673 https://www.timesofisrael.com/liveblog_entry/noa-argamani-tells-un-security-council-the-hostages-feel-abandoned-by-the-world-pleads-for-full-deal/ https://steigan.no/2025/02/nestleder-i-israelske-knesset-sier-at-alle-voksne-menn-i-gaza-bor-drepes/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.timesofisrael.com/liveblog_entry/noa-argamani-tells-un-security-council-the-hostages-feel-abandoned-by-the-world-pleads-for-full-deal/ https://steigan.no/2025/02/nestleder-i-israelske-knesset-sier-at-alle-voksne-menn-i-gaza-bor-drepes/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.newarab.com/news/israeli-likud-mk-calls-killing-subhuman-palestinian-men https://glenndiesen.substack.com/p/the-destruction-of-gaza-and-the-medias?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=157883716&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/what-really-happened-october-7-2023-part-i/5880518 https://www.globalresearch.ca/netanyahu-pretends-idf-spotters-forefront/5864134?utm_campaign=magnet&utm_source=article_page&utm_medium=related_articles https://michelchossudovsky.substack.com/p/pentagon-recognizes-israel-nuclear-power?utm_source=post-email-title&publication_id=1910355&post_id=157610530&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.brighteon.com/0284b87a-c5bb-4024-8fae-6b722fa94d52 https://www.newarab.com/news/israeli-likud-mk-calls-killing-subhuman-palestinian-men


Bloggfærslur 28. febrúar 2025

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Feb. 2025

S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband