Hatursfyllsti maður Bretlands, Tommy Robinson

Tommy Robinson eða Stephen Yaxley Lennon eins og hann eiginlega heitir, afplánar átján mánaða fangelsisdóm. Hann dúsar í einangrun – í því skyni að vernda hann, segja fangelsismálayfirvöld.

Tommy afplánar dóm fyrir birtingu heimildarmyndarinnar, Þöggun (Silenced). Hann stofnaði félagsskapinn, „Varnarsveit Englands“ (English Defence League), árið 2009.

Myndin fjallar um áhrif öfgafullrar Múhammeðstrúar eða Íslam, sem merkir undirgefni við Guð. Hún skaut rótum í Sádí-Arabíu á sjöundu öld.

Þessi öfgafulla túlkun Kóransins varð hugmyndafræðilegur grundvöllur Bræðralags Múhammeðstrúarmanna, sem Bretar hafa óspart beitt í nýlendustríðum sínum og Vesturveldin beita nú í Sýrlandi, áður í Afganistan, Írak og víðar, í búningi ISIS, al-Nushra og svo framvegis. Vesturlönd (Bretar og Bandaríkjamenn) styrktu trúarskóla, sem öfgarnar kenndu.

Nú kalla þessir öfgafullu morðingjar sig, Hayat Tahrir Al-Sham. Þeir segjast þó ekki sækjast eftir stofnun alheimsveldis eða kalífats (ummah) eins og herskáir Íslamistar gjarnan gera.

Houari Boumedienne (1932-1978), forseti Algeríu, sagði í ræðu hjá Sameinuðu þjóðunum í september 1974: „Milljónir manna munu kveðja Suður-hálfhvelið og leita norður. Þeir koma ekki með vinarþel í brjósti. Það vakir fyrir þeim að sigra, og þeir munu tímgast fyrir tilstilli sona sinna. Frjósemi kvennanna mun tryggja sigur yfir Evrópu og veröldinni.“

Recep Tayyip Ergodgan, forseti Tyrklands, áður borgarstjóri Miklagarðs (Istanbul): „Moskurnar [í löndum Vestursins] eru herskálar (barracks), hvelfingarnar eru hjálmar okkar, bænaturnarnir sverð og trúmennirnir hermenn.“

Hófsamir Múhammeðstrúarmenn hafa varað við þessum öfgum. Palestínumaðurinn, Sami Aldeeb, prófessor í Sviss, segir t.d.:

„Íslamskar hreyfingar reyna að koma í veg fyrir hvers kyns gagnrýni á Íslam með aðstoð frá vestrænum dómstólum. Það ber nauðsyn til að veita þessu réttarfari (inquisition) viðnám til verndar mannkyni. Dómarar á Vesturlöndum, sem styðja þess háttar réttarfar eru hinir eiginlegu, gagnlegu bjálfar, sem bjóða eigin þjóðum hinum verstu hættum heim.“

Tommy mótmælir útbreiðslu Íslam. Hann segir einstaka trúmenn Múhammeðs ekki vera til vandræða, heldur öfgafulla róttæklinga. Tommy hefur verið tíðrætt um svokallaðan „hugstuld“ (grooming) barna, þ.e. eins konar forstig heilaþvottar til að sannfæra þau um gildi ákveðinnar hugmyndafræði og lífernis, þekkt t.d. hjá áróðursmönnum kynskipta.

Í raun á Tommy við ósæmilegar kynlífsathafnir íslamskra karlmanna – jafnvel nauðganir – á ungum, hvítum stúlkum. Hann hefur líka bent á, hvernig umfjöllum um glæpi innflytjenda er þögguð niður eða afbökuð.

Annar blaðamaður, Simon Heffer, segir: „Í orði kveðnu er þetta [Bretland] frjáls samfélag, en við lifum á tímum stjórnmálalegs rétttrúnaðar og ritskoðunar, sem gerir það að verkum, að mörg okkar fá hroll við tilhugsunina um að viðra fullkomlega gjaldgengar skoðanir af ótta við fordæmingu. Þar með er málfrelsinu stefnt í voða, mikilvæg málefni eru ekki rædd, og fólk sættir sig við, að stórar lygar verði óumdeildur stórisannleikur.“

Þetta er vitaskuld ekki bundið við Bretland, en bresk yfirvöld hafa síðustu árin farið yfir stokk og stein í ritskoðun, eftirliti og ofsóknum gegn blaðamönnum - og „öðruvísi“ þenkjandi.

Trúaröfgar eru algengar, sérstaklega í trúarbrögðum, sem hafa greinilegt stjórnmálayfirbragð (political religions), einkum Abrahamstrúarbrögð eins og kristni, Múhammeðstrú og Gyðingtrú. Dæmi er slíkt er til að mynda sú túlkun Bíblíunnar, að Gyðingakörlum sé heimilt að nauðga stúlkum í Palestínu, því þær séu ekki af úrvalsstofni Gyðinga og því ekki menn. Í Bretlandi virðast fylgimenn Öfgaíslams, snúa þessu á haus.

Bandaríski heimspekingurinn, Hilary Putnam (1926-2016) hitti naglann á höfuðið: „Mönnum sést yfir kjarna trúarbragða, þegar þeir leita sannanna [um þau]. Það er beiting þeirra, sem máli skiptir.“

https://www.rebelnews.com/breaking_charges_dismissed_against_tommy_robinson https://www.nationalreview.com/2018/05/tommy-robinson-grooming-gangs-britain-persecutes-journalist/ https://www.rebelnews.com/tommy_robinson_reports_on_britains_grooming_gangs https://www.thatalexwoman.com/p/why-i-interviewed-tommy-robinson https://www.conservativewoman.co.uk/the-tcw-teams-pick-of-our-2024-blogs-jordan-peterson-gives-tommy-robinson-the-fair-hearing-he-deserves/ https://www.youtube.com/watch?v=Q96elyZaxq8 https://x.com/calvinrobinson/status/1817527443013390591 https://humanevents.com/2025/01/03/breaking-tommy-robinson-speaks-out-from-prison-says-hes-being-tortured-for-his-journalism https://www.globalresearch.ca/western-democracies-threat-social-disintegration/5876002 https://www.timesofisrael.com/liveblog_entry/uk-court-clears-far-right-activist-of-refusing-to-leave-london-march-against-antisemitism/ https://www.youtube.com/watch?v=zG4WKjHasxY&rco=1


Ljáðu okkur eyra, segja hin úkraínsku Diana Panchenko og Andriy Derkach

Diana er blaðamaður í Úkraínu. Þrátt fyrir bönn og ofsóknir af hálfu glæpræðisstjórnar lýðræðishetju Íslendinga, hinum umboðslausa Volodymyr Zelensky, hefur hún og félagar haldið áfram rannsóknum á spillingu og þjóðlífi í Úkraínu. Þeim reiknast til, að peningastuldurinn nemi 60 milljörðum Bandaríkjadala.

Andryi er þingmaður og hefur átt sæti í nefndum, sem rannsaka fjárreiðuspillingu. Hann hefur m.a. upplýst um sérstakan sjóð utan fjárlaga til að fjármagna hryðjuverk á erlendri grundu og varpar frekara ljósi á spillingu Biden fjölskyldunnar (Burisma hneykslið).

Jospeh Biden hefur, hvað eftir annað, hlutast til um stjórnmál í Úkraínu. Frá 2014, þegar stjórninni var steypt af stóli af vestrænum lýðræðisríkjum undir forystu Bandaríkjamanna og Breta, hefur enginn stjórnmálamaður í Úkraínu verið óháður.

Mig hreinlega sundlaði við að hlýða á greinargerðir þeirra um stuld á skattfé, sem Þórdís Kolbrún tók úr vösum okkar og sendi í austurveg.

Tal um frið og friðaraðstoð hefur verið siðferðilegt klám frá því að þetta svívirðilega stríð hófst. Enn vilja stríðsæsingaöfl á Íslandi og á Vesturlöndum öðrum láta karlpeninginn berast á banaspjótum í Úkraínu og Rússlandi.

Heilli kynslóð ungra karla hefur verið útrýmt í Úkraínu, fórnað á altari stríðsóðra auðkýfinga og aumkunarverðra stjórnmálamanna.

Kynlífsiðnaðarkóngurinn, Vitaliy Klitchko, sætir einnig rannsókn af hálfu téðs blaðamannahóps. Hann ku stjórna útflutningi á stúlkum til Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. Þar að auki stjórnar hann hundruðum nektarskemmtistaða og skækjuhúsa. Eiturlyfjasala er aukabúgrein.

Regnbogavalkyrjurnar ætla enn að höggva í sama hnérunn, þrátt fyrir heitstrengingar um að fara að alþjóðalögum. Þau bjóða að stuðla skuli að friði. Það gerir reyndar Nató samningurinn einnig.

En valkyrjurnar þurfa þá að gera gangskör, því Rússar nálgast Kænugarð. Stríð spillingar- og stríðsæsingafólks á Vesturlöndum er gjörtapað. (Til allrar hamingju eiga stöðugt fleiri úkraínskir karlar fótum fjör að launa, segja upp í sláturhúsinu.)

Það eru ekki allir svo heppnir. Því miður er líkum úkraínskum hermanna stungið í poka og send heim til fjölskyldnanna, eiginkvenna og barna. Sömu örlög hljóta rússneskir karlar, franskir, bandarískir, pólskir, sænskir og breskir. Á meðan hrapar efnahagur, virðing og siðferði Vesturlanda. Stjórnmálamenn þeirra eru ómerkingar orða sinna.

Friðarlíkur í bráð eru óraunhæfar, dauðvona Nató ógnar enn með annarri innrás í Rússland eða Hvíta-Rússland, Íran (í samvinnu við Ísrael) og Kína. Það yrði trúlega „síðasta heimstyrjöldin,“ svo notuð séu orð hernaðarsérfræðingsins, William Schryver.

Hversu há verða verðlaun íslenskra skattgreiðenda til glæpagengisins í Úkraínu á þessu ári? Ætli forseti Íslands og utanríkisráðherra smelli viðurkenningarkossi á lýðræðislega valdaránsforsetann, Volodymyr Zelensky, í ár? Hvenær ætli honum verði boðið að ávarpa Alþingi Íslendinga aftur og reka sjálfri Fjallkonunni koss?

https://21stcenturywire.com/2024/05/02/the-roots-of-u-s-corruption-in-ukraine-interview-with-andriy-derkach/ https://21stcenturywire.com/2024/01/17/derkach-interview-new-documents-connect-biden-corruption-and-burisma-scandal-ukraine/ https://www.youtube.com/watch?v=3VU7gKrmnpg https://21stcenturywire.com/2025/01/02/peace-through-strength-a-gateway-to-war/ https://www.moonofalabama.org/2025/01/ukraine-sitrep.html#more https://www.youtube.com/watch?v=t5RKi8cgEj0 https://unherd.com/2025/01/why-trump-wont-end-the-war-in-ukraine/?utm_source=substack&utm_medium=email https://kyivindependent.com/old-guard-pushback-continues-to-haunt-ukraines-arms-procurement-cleanup/ https://www.politico.eu/article/ukraines-defense-problems-warfront-corruption-poland-defense-production-dpa-weapons/ https://www.france24.com/en/europe/20240128-ukraine-uncovers-40-million-embezzlement-corruption-bogus-arms-deal-defence-officials https://thehill.com/opinion/international/5060257-zelensky-ukraine-corruption-waste/ https://steigan.no/2024/12/tretten-rolls-roycer-vesten-er-forferdet-over-korrupsjonen-i-ukraina/ https://x.com/Panchenko_X/status/1845912862385922548 https://x.com/Panchenko_X/status/1807853700830085592?ref_src=twsrc%5Etfw%7Ctwcamp%5Etweetembed%7Ctwterm%5E1807853700830085592%7Ctwgr%5Ec4672a657a3195b1ef4e8a3e5170276d8e484d89%7Ctwcon%5Es1_&ref_url=https%3A%2F%2Fsteigan.no%2F2025%2F01%2Fthe-hill-hold-ukraina-ansvarlig-for-korrupsjonen%2F https://imetatronink.substack.com/p/welcome-to-the-last-world-war?utm_source=post-email-title&publication_id=1085164&post_id=153945271&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


Bloggfærslur 8. janúar 2025

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Jan. 2025

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband