Sáttmáli framtíðardauðans; fagurgali um fautaskap og valdarán. Örlög þín eru ráðin

Þjóðabandalagið var stofnað í kjölfar fyrstu heimstyrjaldarinnar, stríðsins, sem koma átti í veg fyrir öll stríð. Til að gulltryggja friðinn var Þjóðabandalagið stofnað af sigurvegurum. Það var í raun tímabundið vopnahlé, fram að næstu heimstyrjöld.

Hvatinn að báðum styrjöldunum var græðgi öflugustu auðjöfranna beggja vegna Atlantsála. Tugum milljóna manna og gífurlegum verðmætum var fórnað í þessum styrjöldum – svo endurbyggja mætti betur. Það er líka yfirlýst markmið þeirra – í grundvallaratriðum sömu hagsmunaöfl – sem nú hafa leyst þriðju heimstyrjöldina úr læðingi.

Hin nýja endurræsing er líklega flestum kunnug orðin; úthlutun kyns, valdefling kvenna, ríkisuppeldi barna, leyfi til að fjölga sér (mannrækt), orkuskipti, takmörkun lýðréttinda og frelsis, rafmynt, rafræn örmerkingarauðkenni, bólusetningar, og líf í stundarfjórðungsborgum, þar sem tölvuppfærð börn og fullorðnir dunda sér við kynlíf (kennt í leikskólum ríkisins) og tölvuleiki - og eta skordýr eða frumuræktað kjöt úr framleiðsluveri.

Grundvallarútfærslu þessa samfélags má lesa um í aldargömlum ritum alheimsstjórnarsinna eins og Herbert George Wells (1866-1946) og Huxley bræðra. Annar þeirra, Aldous Leonard (1894-1963), er – eins og Herbert George - þekktur fyrir skáldsögurnar, sem vísuðu veginn.

Færri vita, að Herbert George var athafnasamur við stofnun Sameinuðu þjóðanna, sem tóku óbeint við hlutverki Þjóðabandalagsins. Hann færði m.a. þessa hugsun um mannréttindi í búning:

„Réttindum þessum og frelsi má aldrei beita þannig að í bága fari við markmið og grundvallarreglur Sameinuðu þjóðanna.“

Julian Sorell Huxley (1887-1975) fékk enn þá veigameira hlutverk, sem framkvæmdastjóri Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Hann skrifaði í ritinu; Hlutverk og heimspeki MVM-Sþ (UNESCO: its purpose and its philosophy), árið 1946:

„Á líðandi stundu má líklegt teljast, að óbein áhrif siðmenningarinnar stuðli að hrakandi arfi (dysgenic) en ekki arfbótum (eugenics). Alla vega er líklegt, að ok (dead weight) arfgengs fávitaháttar, veiklulegra líkamsburða, andlegs ójafnvægis og sjúkdómsveiklunar, sem þegar má greina í mannskepnunni, muni reynast þung í skauti, eigi raunverulegur árangur að nást.“

Julian telur sjálfur ólíklegt, að slík mannbótastefna verði samþykkt á hans dögum, en leggur áherslu á, að UNESCO haldi vöku sinni. Heimsins börnum gæti síðar meir hugnast þessi stefna, þannig að hið óhugsandi yrði þrátt fyrir allt hugsanlegt.

Stefnu Julian og heimspeki UNESCO gerðu Alheimsefnahagsráðið (World Economic Forum) og Sameinuðu þjóðirnar að grundvelli samvinnu sín á milli. Þar á bæ hefur í áratugi verið unnið að markvissri áætlanagerð. Margir kannast vafalaust við Sjálfbærnimarkmiðin, sem íslenska ríkisstjórnin hyggst ná.

Hver stofnun Sameinuðu þjóðanna á fætur annarri fellur að fótum Alheimsauðvaldsins. Nefna má t.d. Kvenfrelsunarstofnunina (UN Women), UNESCO og Alþjóðaheilbrigðisstofnunina.

Nýjustu útfærsluna má sjá í „Framtíðarsáttmálanum,“ (Pact for the Future). Hinn glöggi James Corbett kallar þetta þó „Sáttmálann um dauða framtíðarinnar.“

En fagurgalinn er blekkjandi. Hvað ætla íslensk yfirvöld sér? Hefur orðið umræða um þetta mikilvæga mál í fjölmiðlum?

Sameinuðu þjóðirnar I: Forsaga og Þjóðabandalagið https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2306234 Sameinuðu þjóðirnar II: Þjóðabandalagið og Ísland https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2306237/ Sameinuðu þjóðirnar. III: Aðdragandi og útþenslustefna Bandaríkjanna https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2306238 Sameinuðu þjóðirnar IV: Aðdragandi og kalda stríðið fyrra https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2306239 Sameinuðu þjóðirnar. V: Aðdragandi og millistríðsárin https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2306241 Sameinuðu þjóðirnar. VI: Fjármögnun styrjalda Rothschild. Heimsstríðin og ráðagerðin um alþjóðlega friðarstofnun https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2306242 https://www.stjornarradid.is/verkefni/utanrikismal/althjodamal/um-althjodastofnanir/mannrettindayfirlysing-sth/ https://www.stjornarradid.is/verkefni/utanrikismal/althjodamal/um-althjodastofnanir/sattmali-sth/ https://brotkast.is/spjallid-med-frosta-logasyni/s02e38-markmid-sameinudu-thjodanna-ad-splundra-vestraenni-menningu/ https://expose-news.com/2024/03/24/gppp-is-a-scam-that-robs-the-poor-to-give-to-richest/ https://kristinthormar.blog.is/blog/kristinthormar/entry/2290221/ https://frettin.is/2023/11/16/bannfaerdir-baendur-og-bualid-sjalfbaernimarkmid-sameinudu-thjodanna-og-rikisstjornar-islands/ https://voluntarytube.com/videos/watch/4c8be0f6-53bf-4599-8e77-647bf23ca844?utm_source=substack&utm_medium=email https://drjacobnordangard.substack.com/p/un-leaders-pact-for-the-future-a-9a1?utm_source=post-email-title&publication_id=1015075&post_id=138460114&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://drjacobnordangard.substack.com/p/the-latest-globalist-plans-revealed?utm_source=post-email-title&publication_id=1015075&post_id=137862495&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://utvarpsaga.is/sameinudu-thjodirnar-feta-i-spor-ognarstjorna-i-ritskodun-a-andmaelendum/?fbclid=IwAR24IZM_1Ent_2f4X9kKLWb5uCFdmuOs4A56Khd8X_1-PWdHtsicfCQ79y0 https://drjacobnordangard.substack.com/p/un-seeks-digital-world-brain-and?utm_campaign=email-post&r=ry8jq&utm_source=substack&utm_medium=email https://www.voltairenet.org/article220196.html https://expose-news.com/2023/12/05/effort-to-reduce-the-worlds-population-through-un/ https://expose-news.com/2024/02/10/organisations-that-make-up-the-un-world-government/ https://expose-news.com/2024/02/08/the-united-nations-is-stealing-your-future/ https://drjacobnordangard.substack.com/p/summoning-the-pact-for-the-future?utm_source=post-email-title&publication_id=1015075&post_id=137860657&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://brownstone.org/articles/three-new-pacts-to-be-approved-at-the-un-summit/ https://www.un.org/en/about-us/universal-declaration-of-human-rights https://corbettreport.com/nordangard-un/ https://drjacobnordangard.substack.com/p/the-adoption-of-the-pact-for-the?utm_source=post-email-title&publication_id=1015075&post_id=148256254&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://drjacobnordangard.substack.com/p/the-ultimate-goal-of-the-pact-for?utm_source=post-email-title&publication_id=1015075&post_id=147193532&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://expose-news.com/2024/09/21/us-must-oppose-the-uns-pact-for-the-future/ https://merylnass.substack.com/p/the-disaster-that-is-the-pact-for https://corbettreport.substack.com/p/the-uns-death-pact-for-the-globalist?utm_source=podcast-email&publication_id=725827&post_id=149141574&utm_campaign=email-play-on-substack&utm_content=watch_now_button&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


Bloggfærslur 23. september 2024

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Sept. 2024

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Af mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband