Körlum er nauðgað í alla enda undir niðri

Bettina Arndt er ötull andstæðingur kvenfrelsunarofbeldisins gegn körlum. Nýlega skrifaði hún grein um svikamylluna í kringum peningasöfnun, tengda samkeppninni um virðulegasta yfirvaraskeggið.

Eins og flestum ætti að vera ljóst – en er það hugsanlega ekki – er miklu meiri fjármunum varið til heilbrigðisþjónustu við konur en karla. Ofangreindri peningasöfnun er ætlað að bæta úr því.

En, en! Í Ástralíu stendur til að nota fjármunina til að „aðstoða unga karla og stráklinga til að temja sér holla siði í nánum samböndum í því skyni að stemma stigu við kynbundu (gender-based) ofbeldi.“ Um er að ræða, 3.2 milljónir dala.

Það er ekki kyn, að Bettina spyrji? „Hvernig ætli karlar í Ástralíu rísi úr rekkju á hverjum morgni? Ég get ekki ímyndað mér, hvernig þeir rísa undir látlausum óhróðri og sviksemi stjórnvalda?“

Og hvernig ætli úngum drengjum líði við þetta stöðuga illkvittnibergmál um okkur, "ófullkomnu konurnar," sem brýna nauðsyn ber til að fækka.

Það er í þessu sambandi kuldaleg staðreynd – samkvæmt áströlsku hagstofunni – að sambandsslit eru talin ein helsta orsök sjálfsvíga karla. Og þau eru margfalt fleiri en kvenna. Það er heldur ekkert leyndarmál, að margir þeirra þjást vegna skerðingar tengsla við börnin eða jafnvel tengslarofs. Oftast eru það konur, sem taka frumkvæði að sambandsslitum.

Samtímis nefndum peningastuldi veitir ástralska ríkisstjórnin 3.4 milljörðum dala til stríðsins gegn körlum. Það er dulbúið sem fjárveiting til „kvennaöryggis“ (women‘s safety). Það dugar ekki til, segja ófullnægðir kvenfrelsarar.

Allar konur eru ekki kvenfrelsarar eins og sést m.a. af því, að félagsskapurinn, „Mæður sona,“ berst einbeittur fyrir réttarfarslegu réttlæti fyrir karla, sem lent hafa í hinni svikamyllunni, fölskum ákærum og kvenhollu dómskerfi.

Ofbeldisiðnaðurinn í Ástralíu blómstrar eins og á Íslandi. Það er ekki ýkja langt síðan Katrín Jakobsdóttir og stjórn hennar stofnaði kvennaathvarf á Akureyri til að efla atvinnu á staðnum – að sögn.

Allir stjórnarflokkarnir aðhyllast kvenfrelsun. Meira að segja Bjarni Ben II segir hugmyndafræði kvenfrelsara leiðarljós við allar ákvarðanatökur Kristilega jafnaðarmannaflokksins.

Undir stjórn Framsóknarflokksins tóku Íslendingar 2015 forystu á alþjóðavettvangi í kvenfrelsunarmálum (auglýst sem jafnrétti). Þá hélt utanríkismálaráðherra, Gunnar Bragi Sveinsson, hina frægu rakarastofuráðstefnu á vegum Sameinuðu þjóðanna.

Kvenfrelsunarástríðu Vinstri-grænna þarf varla að fjölyrða um.

https://vb.is/frettir/gunnar-bragi-rakarastofuradstefnu/ https://bettinaarndt.substack.com/p/movember-is-a-fake?utm_source=post-email-title&publication_id=448263&post_id=147984407&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


Riðum, ríðum, ríðum yfir Rússland - syngur Nató

Mörgum hefur þótt Rússland sýnd veiði, en gefin er hún ekki eins og dæmin sanna; musterisriddararnir, Mongólar, Englendingar, Tyrkir, Þjóðverjar, Frakkar, svo dæmi séu tekin. Napóleon fór fyrir herjum Frakka, sem í raun var blandaður her Evrópuþjóða. Allir hafa þessir herir beðið afhroð.

Tilburðir Bandaríkjamanna og Evrópuþjóða til staðgengisstríðs við Rússa í Úkraínu er nýr harmleikur, sem hefur kostað fleiri hundruð þúsund mannslíf, að mestu karlmenn í blóma lífsins, sem skilja eftir sig syrgjandi ekkjur og föðurlaus börn. Enn er bitið í skjaldarrendur. Íslendingar eru þó hættir að senda þangað skæði og sokka og sækja hunda og ketti.

En friðarsamtökin, Nató, eru engan veginn af baki dottin. Þau gerðu innrás í Rússland og hælast af því. Englendingar og Þjóðverjar metast um, hver eigi bestu bryndrekana á vettvangi. Vopn frá Vesturlöndum flæða inn.

Bretar eru iðnir við kolann og aumingja Danirnir reyna nú einu sinni enn að blandar sér í stríð. Orrustuþoturnar, sem flögruðu yfir Serbíu við myndatöku í stríði Nató við Serba, eru nú komnar til Úkraínu, liggja í leyni og bíða eftir langdrægum drápsflaugum.

Það er von að Mette minnkabani sé hamingjusöm. Hún ku líka að vera að ná sér, eftir að pólska fyllibyttan stuggaði við henni. En það fer engum sögum af kafbátnum, sem sendur var af stað til Serbíu, en sneri við í Gíbraltarsundi, því þá var stríðinu lokið. Það væri upplagt að senda hann í austurveg aftur. Fleyið mætti lóna í námunda við Azkovhaf eða Krímskaga, ef Bretar vildu spreyta sig á að sprengja Kerch brúna einu sinni enn.

En innrásin gæti spillt lífinu í Natóskóginum. Þar eru ekki allir vinir eins og í Hálsaskógi. Það má ljóst vera, að hvorki Slóvakar né Ungverjar vilji hafa neitt með þetta flas að gera. Öðru máli gegnir um Breta, sem eru ámóta stríðsóðir og Eystrasaltsríkin. Þeir eru reyndar svo blóðölvi, að Bandaríkjamenn, sem kalla ekki allt ömmu sína í þeim efnum, verða hálffeimnir.

Varla er um að kenna hræðslu þeirra við heimsstyrjöld, því rýmkaðar hafa verið reglur um beitingu kjarnorkuvopna og mikilvægum samningum á því sviði sagt upp. Trúlega kæmi það ónotalega við kosningasjónarspilið á heimavelli.

En, en! Aðal-stríðsóvitarnir í Nató syngja; Ríðum, ríðum, ríðum yfir Rússland. Þeir hafa ekkert lært eins og óvitum er tamt. Það er ekki ólíklegt, að þangað hafi ratað nasistar og ISIS-liðar víðsvegar úr veröldinni, jafnvel þeir, sem lifað hafa af átökin við Rússa, innan (fyrrverandi) landamæra Úkraínu.

Þeir ríða með allt niður um sig og flýja eins og hræddar hænur króaðir af inni í Rússlandi. Allar 174 þjóðir (eða þjóðernisbrot) Rússneska ríkjasambandsins virðast flykkjast um rússneska herinn og mana hann til að tortíma Úkraínu. Þess vegna hefur Vondi-Valdi í vök að verjast. Hann vill ekki lengur reyna að semja, en vonandi brestur hann þó ekki þolinmæði og varkárni. Hann skilgreinir innrásina sem hryðjuverk Nató.

Joseph Biden er sigurviss: „Bendið á eina þjóð í veröldinni, sem ekki lítur svo á, að Bandaríkjamenn séu leiðtogar heimsins. Án Bandaríkjanna – hugsið, þetta er ekki brandari – ég tala bókstaflega; hver er betur í stakk búinn en Bandaríki Norður-Ameríku til að stjórna veröldinni. Og viti menn! Bandaríkin eru að vinna og veröldin er betri staður fyrir bragðið.“

Sjálfbirgingshátturinn er hryggilegur og dómgreindarleysið átakanlegt. Þessi maður er leiðarljós Íslendinga í utanríkismálum.

Viðundrið, Volodymyr, sem fórnað hefur þjóð sinni og heldur í kúgunarkrumlum, hefur pakkað föggum sínum. Síðasta kúgunartilbrigðið var að banna rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna. Vonandi krefjast íslenskir kjósendur þess, að íslenska stríðsríkisstjórnin fari að dæmi Volodymyr.

https://steigan.no/2024/08/ukrainas-kursk-angrep-framskynder-nederlagene-langs-fronten/?utm_source=substack&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/kievs-plan-to-ban-the-ukrainian-orthodox?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=147991789&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2024/08/det-ukrainske-parlamentet-vil-forby-ortodoks-kirke-med-historiske-band-til-russland/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.realnewsandhistory.com/anyt-08-21-24/ https://gilbertdoctorow.com/2024/08/20/dialogue-works-ukraines-defeat-in-kursk-region/ https://www.youtube.com/watch?v=KU0OsMBaP28 https://www.moonofalabama.org/2024/08/ukraine-sitrep-western-media-dismiss-ukraines-kursk-offensive.html#more https://www.youtube.com/watch?v=8CwXbyxocTM https://www.youtube.com/watch?v=Uq2YWan_h7c https://gilbertdoctorow.com/2024/08/20/can-the-ukrainian-invasion-of-kursk-province-destabilize-russia/ https://www.prospectmagazine.co.uk/world/europe/ukraine/67583/natos-folly https://www.kitklarenberg.com/p/britains-kursk-invasion-backfires?utm_source=post-email-title&publication_id=552010&post_id=147955395&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=e6s6k7r0lbs https://www.bild.de/politik/ausland-und-internationales/ukrainer-ruecken-mit-deutschen-panzern-in-russland-vor-66b45f700e364e6d0ab328d9


Bloggfærslur 22. ágúst 2024

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Mars 2025

S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband