Bjargvættur Bandaríkjanna, Donald Trump. Byltingartilraunin í Bandaríkjunum. Tröllin takast á. Seinni hluti

Árið 2016 naut Donald hylli þeirra, sem þreyttir eru orðnir á yfirgangi „kerfisins“ eða „djúpríkisins.“ Þetta er gömul atkvæðaveiðabrella Franklin D. Roosevelt. Hann þóttist ætla að berjast gegn spillingu bankaveldisins í þágu almennings, en sendi í staðinn syni alþýðunnar á vígvelli Evrópu. En það ber ekki á öðru, en að Donald leiti á sömu, fengsælu mið.

Í því ljósi ber að líta á val varaforsetaefnis, James David Vance (James Donald Bowman - f. 1984). Sá er vasaútgáfa af foringjanum. Hann er hreykinn af uppruna sínum og uppvexti, sveitastrákur af keltneskum landnemum kominn og meira að segja úr fátækt. Hann lýsir t.d. í bók sinni, „Sorgaróði afdalanna“ (Hillbilly Elegy), hvernig amma hans kveikti í afanum sofandi, því henni þótti karl of drykkfelldur.

Sjóndeildarhringur James D. er þó stærri. Hann setur ástandið í heimahögunum í sambandi við þróunina í Bandaríkjunum almennt; útvistun iðnaðar, upplausn í samfélaginu vegna ofbeldis og fátæktar, sem m.a. hefur leitt til ofdrykkju og áfalla, upplausnar fjölskyldna og svo framvegis.

Þó ótrúlegt megi virðast gagnrýnir James D. utanríkisstefnu Jóseps á trúarlegum grunni, talar m.a. um eyðileggingu kristinna samfélaga við innrás Bandaríkjamanna í Írak og nú í Úkraínustríðinu. En það kemur hins vegar eins og skrattinn úr sauðarleggnum, að James skuli hrósa Kínverjum, sem Nató hefur gert að aðalfjandmanni Vesturlanda, samkvæmt samþykkt afmælisfundarins nýverið.

En James David (Donald) hefur fleira til brunns að bera. Eins og títt er um bandaríska (og breska) þingmenn á hann sér efnaðan bakhjarl, Peter Thiel, sem er einn eiganda „Palantir,“ framleiðenda netnjósnabúnaðar. Leyniþjónusta Bandaríkjanna er bæði hluthafi og viðskiptavinur, ásamt fjölmörgum stofnunum og fyrirtækjum í Bandaríkjunum, Ísrael og víðar. Búnaði þess er m.a. beitt í stríðunum í Ísrael og Úkraínu. Forstjórinn, Alex Karp, tók þannig til orða, að tækni fyrirtækisins „væri endrum og sinnuð notuð til að drepa fólk.“

Peter, stjórnarmaður í Bilderberg auðjöfrafélaginu, hjálpaði líka „fóstursyninum“ til að koma fjármálafyrirtæki á koppinn og kynnti hann fyrir Donald. James David hefur líka – eins og svo margir aðrir – þegið fé frá hollvinum Ísraelsríkis. Það orkar varla tvímælis, að Donald vilji auka hróður Bandaríkjanna. Vígorðin eru „Bandaríkin á oddinn“ (America first) og „Gerum Bandaríkin stór á nýjan leik“ (Make America Great Again – MAGA). MAGA er reyndar orðin að eins konar kosningahreyfingu innan Lýðveldisflokksins (Repúbikana), sem hugsanlega nýtur stuðnings upp undir helmings flokksmanna.

Eins og áður leikur Donald á strengi útlendingaþreytu innan lands, innflutnings fólks frá latnesku Ameríku og löndum Múhammeðstrúarmanna. Hann bannaði á tímabili meira að segja heimsóknir þegna frá þessum löndum. (En Grænland vildi hann þó kaupa.)

Eins og áður er ýjað að er full ástæða til að ætla, að Donald haldi áfram þeirri stefnu Jósefs og Lýðræðisflokksins (Demókrata) að efla og auka viðveru bandaríska heraflans í Suðaustur-Asíu í kjölfar friðarsamninga við Úkraínu og eflingu hervarna Evrópubúa sjálfra. Kyrrahafið vilja Bandaríkjamenn gera að „heimatjörn.“

Fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, „stríðsdrottningin“ sjálf, Hillary Diane Rodham Clinton, lét hafa eftir sér um „eign“ Bandaríkjanna, Kyrrahafið:

„Við frelsuðum það, við vörðum það. […] Og [í raun] mætti endurskíra það, „Bandaríska hafið“ (American Sea), sem næði frá vesturströnd Kaliforníu og alla leið til Filippseyja [fyrrum nýlendu Spánar og Bandaríkjanna]. … Við ætlum okkur að umkringja Kína með eldflaugavörnum og staðsetja meira af flota okkar á svæðinu [Suður-Kína hafi].“

Donald hefur með réttu verið hrósað fyrir að hefja ekki stríðsrekstur á erlendri grundu. En aftur á móti hefur hann heldur ekki lokið eða dregið úr stríðum þjóðar sinnar í veröldinni. Hersetan í Sýrlandi og Írak er eitt dæmi. Hvorki Donald né James David eru friðardúfur, þótt þeir tali utan af því að stofna til friðarsamninga í Úkraínu – sem vitaskuld er jákvætt.

Í ljósi umróts, upplausnar og vansældar almennings með stjórnvöld, spyrja nokkrir stjórnmálaskýrendur þeirrar spurningar, hvort koma muni til forsetakosninga í ár. Um fimmtungur þjóðarinnar virðist líta svo á, að við slíkar aðstæður sé réttlætanlegt að grípa til vopna.

Byltingaráætlanir eru kunnar í sögu Bandaríkjanna, eftir að borgarastríðinu lauk. Líf og starf hins margverðlaunaða hershöfðinga í Bandaríkjaher, Smedley Darlington Butler (1881-1940), er afar áhugaverð í þessu sambandi. Þá tókust líka á auðkýfingatröllin í Bandaríkjunum.

Önnur meginfylkinganna kom að máli við Smedley 1933, þ.e. hópurinn í kringum veldi Éleuthére Irénée du Pont de Nemours (1771-1834) og John Pierpoint Morgan (1837-1913), og reyndi að fá hann til að leiða „Bandarísku herdeild“ (American Legion) þeirra í uppreisn gegn yfirvöldum (The Business Plot, Wall Street Putsch, White House Putsch) og steypa Frank D. Roosevelt af stóli.

Samsærismennirnir komu úr hópi „Bandaríska frelsisbandalagsins“ (American Liberty League). Flestir þeirra voru einnig úr hópi stofnanda „Utanríkismálaráðsins“ (Council on Foreign Relations), sem enn mótar utanríkisstefnu Bandaríkjanna, að verulegu leyti. Bandalagið hafði tengsl, bæði við Adolf Hitler (1889-1945) og Benito Mussolini (1883-1945). Enginn þeirra var dreginn fyrir dóm.

Talið er, að opinberar framkvæmdir forsetans (New Deal) og afnám gullfótarins 1933 hafi valdið mestu um. Síðar ullu glingrur hans við Rússa titringi og vanþóknun, þrátt fyrir að Frank D. hefði fest hergagnaiðnaðinn í sessi með þátttöku í annarri heimstyrjöldinni og gert gull almúgans upptækt.

Smedley afþakkaði heiðurinn um að gerast fasískur einræðiherra auðjöfranna. Í bók sinni, „Stríð eru fjárglæfrar“ (War is a Racket), segir Smedley m.a.:

„Ég hef varið 34 árum ævi minnar í herþjónustu og lungann úr þeim árum hef ég þjónað sem háttsett vöðvatröll (muscle man) fyrir viðskiptajöfrana. … Ég lagði gjörva hönd á plóg, þegar plægður var jarðvegur Haiti og Kúbu, svo bankastrákarnir í National City Bank [Rockefeller banki] gætu uppskorið.“

Smedley sótti heim Þingnefnd um andbandarísk málefni og sagði henni alla sólarsöguna. Gyðingamiðillinn, New York Times, sagði frásögnina, „Tröllaukna samsæriskenningu.“

Viðbrögð Franklin D. voru m.a. þessi: „… við höfum skapað nýjar stofnanir almannavaldsins. Þessi völd eru af hinu góða í höndum ríkisstjórnar fólksins. En ræni stjórnmáladúkkur auðjöfrayfirstéttarinnar þessum völdum verða lýðréttindi þess færð í fjötra. Séu völdin færð auðjöfrunum í hendur munu þeir taka sömu stefnu og allar yfirstéttir fortíðar – beita völdunum í eigin þágu og hneppa almenning í þrældóm.“

(Grant Hamilton Stone hefur skrifaði um þetta bók 2021: „The Business Plot: Smedley D. Butler, Anti-Democratic Dissidence, and the Recession of the American Right 1932-1936.)

Nú eru það aðrir bankastrákar og athafnamenn, sem takast á. Í grófum dráttum eru það gömlu auðkýfingastéttirnar, sem glíma við þær nýju, tækniauðkýfingana í Silicon Valley. Þar er PayPal-gengið áhrifamikið, ekki síst Mark Zuckerberg og Elon Musk, sem eys fé í kosningasjóði Donald.

Bæði Elon og Peter Thiel eru „ungir leiðtogar“ Alheimsefnahagsráðsins og virkir við mótun markmiða þess um fjórðu iðnbyltinguna, endurreisnina miklu og alheimsstjórn undir vökulu tækniauga. Keppikefli fylkinganna er það sama; yfirráð yfir djúpríkinu, skattheimtu og hernum. Það má ljóst vera, að Alheimsefnahagsráðið hafi nú náð hreðjataki á Donald.

Hugsanlega má þó greina vonarglætu í viðsjárverðri veröld. Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands og æðsti talsmaður ráðherraráðs Evrópusambandsins (Council of the European Union – Consilium) út þetta ár (2014), virðist ættaður úr sauðahúsi en hinir leiðtogar í Evrópu. Viktor vil tala og semja í stað þess að skjóta og drepa. Nefndum leiðtogum til sárrar gremju heilsaði hann upp á Volodymyr Zelensky, Vladimir Putin, Xi Jinping, og nú síðast Donald Trump. Vonandi plægir hann frjósaman jarðveg fyrir samninga, svo forðast megi ragnarök. Viktor hefur fengið bágt fyrir.

Viktor sagði: „Kínverjar eiga friðaráætlun í pússi sínu. Bandaríkin semja stríðsáætlanir. Og Evrópa afritar einfaldlega áætlanir Bandaríkjanna í stað eigin nálgunar.“

Vegna óvinsælda og vanþóknunar gæti því miður svo farið, að Viktor muni deila örlögum með japanska stjórnmálamanninum, Shinzo Abe (1954-2022) og fleirum. Shinzo var andsnúinn Alheimsefnahagsráðinu og áætlunum þess um alheimsyfirráð, en trúlega myrtur af trúarlegum hefndarhvötum.

Forsætisráðherra Slóvakíu, Robert Fico, hefur eins og fyrrgreindur, aflað sér óvinsælda. Hann vann sér til óhelgi að tala fyrir friði í Úkraínu og rannsókn á bólusetningaglæpum lyfjaiðnaðarins, stjórnvalda og alþjóðastofnanna. Hann hlaut „makaleg málagjöld“ fyrir „hættulegar samsæriskenningar.,“ sögðu fjölmiðlar í þjónustu þeirra.

Lyfja- og stríðsauðvaldið fer hamförum gegn þeim, sem andæfa gjörningi þeirra og fyrirætlunum. Evrópusambandið, Sameinuðu þjóðirnar og auðjöframiðlarnir, hafa lýst stríð á hendur þeim, sem dreifa „falsupplýsingum“ og skapa „upplýsingaóreiðu.“ Robert er sem sé einn þeirra.

Grunur vaknaði t.d. um maðk í mysunni við andlát afrísku leiðtoganna; forseta Burundi, Pierre Nkurunziza (1964-2020), forsætisráðherra Fílabeinsstrandarinnar, Hamed Bakayoko (1965-2021), forsætisráðherra Eswatini, Ambrose Mandvulo Dlamini (1868-2020) og forseta Tansaníu, John Pombe Magufuli (1959-2021).

Leiðtogarnir þráuðust, að sögn, við að meðtaka boðskapinn um bólusetningar og aðrar „varnaraðgerðir“ gegn covid-19. Einn þeirra, forseti Tansaníu, lét meira að segja gera PCR prófun á kálhausum og geitum. Kálið og geiturnar þjáðust, samkvæmt niðurstöðum prófsins, af covid-19.

Bandaríski blaðamaðurinn, Chris Hedges, segir um stöðuna í Bandaríkjunum: „Einasta von okkar er að umbylta sameignarríkinu [corporate state – samtvinnun valds stjórnmálamanna og atvinnuveganna í ríkisvaldinu], sem seldi upp Trump. Lýðræðislegar stofnanir okkar, þar með talin löggjafarsamkunda, dómstólar og fjölmiðlar, eru gíslar sameignarríkisins. Þær eru ekki lengur lýðræðislegar [í raun].“

Kanadíski sagnfræðingurinn, Cynthia Chung, segir í þessu sambandi: „Hvenær mun það renna upp fyrir Bandaríkjamönnum, að þeim stafi ekki mestri ógn að utan heldur innan eigin víggirðingar. Þar hafa hinir ógnvænlegu grafið um sig síðustu 116 árin.“

Þýski blaðmaðurinn, Patrik Baab kynnir til sögu svipaðar hugleiðingar og Chris og Cynthia. Hann gagnrýnir stríðsæsingamennina í Evrópu fyrir fátæklega hugsun og nefnir utanríkismálaráðherra Þýskalands, Annalena Baerbook, og fyrrum forsætisráðherra Eistlands, Kaja Kallas, sem dæmi. Patrick segir á þessa leið:

Þegar þýskir stjórnmálamenn í æðstu stöðum sýna málþroska á við börn, er skiljanlegt, að þeir telji hvern þann, sem er fær um að segja þrjár villulausar setningar á þýsku, hallan undir Vladimir Putin. Þannig er ógöngum stjórnmálaumræðunnar vel lýst, segir Patrik.

Þessi lýsing gæti sem hægast átt við um marga íslenska stjórnmála-, Alþingis- og fjölmiðlamenn, bæði hvað varðar málfar og stjórnvisku.

Bandaríski málfræðingurinn, Noam Chomsky, sagði í anda Peter Baab: „Til að stuðla að hlýðni og dauðýflishætti [þegnanna] er affararsælast að afmarka nákvæmlega tækan umræðuvettvang, en leyfa og örva gagnrýna andófsumræðu innan marka hans. Þá trúir fólk því, að frjáls hugsun eigi sér stað, en samtímis festast í sessi forsendur kerfisins vegna skorðanna, sem umræðunni eru reistar.“

„Vitfirringarnir teyma blindingjana fram á vígvöllinn,“ sagði breska skáldið, William Shakespeare (1564-1616). Það er hverju orði sannara.

Eftirmáli: Josep hefur nú dregið sig í hlé sem forsetaframbjóðandi. Varaforsetinn, Kamala Harris, tekur nú (að öllum líkindum) við keflinu eins og væntanlega var ákveðið í hrossakaupunum við síðustu kosningar. Kamala er sárabót fyrir sneypu stríðsdrottningarinnar og erkikvenfrelsarans, Hillary Rodham Clinton (Lady Macbeth). Varla verður breytt um búktalara.

„Samsæriskenningin“ um elliglöp Jósefs varð býsna skammlíf. Hún er nú hverju orði sannari. „Já, það er fjör,“ sagði Eiríkur Fjalar. Almenningur er fíflaður með alls konar fimbulfambi.

En það er þó of snemmt að útloka aðra frambjóðendafléttu; kynskiptinginn, Michelle Obama, fyrrverandi forsetafrú, eða stríðsdrottninguna sjálfa. Eymdarhyggja (woke), kven- og kynfrelsun, er rykið, sem þyrlað hefur verið í auga almennings til að draga dul á heimsveldisstefnuna. Fáni kvenfrelsunarfóstureyðinga hefur þegar verið dreginn að húni.

Stuðningsmenn skipta um hest í vaðinu miðju. PayPal-gengið úr Silicon Valley, sem hefur auðgast með dyggri hjálp leyniþjónustunnar, CIA, hefur nú gegnið í raðir Donald Trump. Haukarnir í því gengi eru handgengnir Alheimsefnahagsráðinu. Því má varlega álykta sem svo, að nýi auðkýfingaherinn sæki í sig veðrið til að vinna að sameiginlegum markmiðum Ráðsins og Sameinuðu þjóðanna. Soros feðgar sitja við sinn „Kamala-keip.“

En grundvallarstefnan verður sú sama, hvort heldur vinnur, Donald eða Kamala. Kosningabaráttan er eins og hvert annað öldugjálfur. Það snertir varla djúpsævið. Það vekur óneitanlega athygli, að Jósef sitji áfram, enda þótt hann sé metinn óhæfur sem frambjóðandi. Það er margt skrítið í kýrhausnum og heimskan ríður sjaldan við einteyming.

Bæði Donald og Kamala virða samþykktir Sameinuðu þjóðanna. Þær lúskra á okkur stöðugt, skapa skelfingu, plægja jarðveginn fyrir alræðisstjórn á heimsvísu. Framtíðarráðstefnan, haldin fyrir skemmstu, ályktar:

„Við glímum við sífellt fleiri tivistarógnir og hamfarahættur. Ef við tökum ekki nýja stefnu sem skjótast, er hætta á því, að við hrötum inn í framatíð þrálátrar kreppu og eyðileggingar, sem ekki verður ráðin bót á.“

https://archive.org/details/TheMoneyMasters1996 https://realnewsandhistory.com/anyt-07-22-24/ https://steigan.no/2024/07/oligarkenes-kupp-i-usa-de-dumpet-biden/?utm_source=substack&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/kamalas-coronation-as-the-de-facto?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=146869982&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://chrishedges.substack.com/p/my-thoughts-on-biden-dropping-out?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=146891414&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://caitlinjohnstone.com.au/2024/07/22/genocide-monster-drops-out-endorses-fellow-genocide-monster/ https://drjacobnordangard.substack.com/p/is-donald-trump-the-elites-wreck?utm_source=post-email-title&publication_id=1015075&post_id=146661783&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://covertactionmagazine.com/2023/11/26/contrary-to-dominant-folklore-evidence-indicates-that-like-oswald-john-wilkes-booth-was-part-of-wider-conspiracy/#post-62683-footnote-ref-2 https://www.youtube.com/watch?v=0MwusRGpRvg https://www.indianpunchline.com/this-isnt-the-time-to-engage-sullivan-in-a-conversation/ https://www.aljazeera.com/news/2020/5/3/tanzania-president-questions-coronavirus-kits-after-animal-test?traffic_source=KeepReading https://corbettreport.substack.com/p/a-brief-history-of-political-assassinations?utm_source=post-email-title&publication_id=725827&post_id=146843268&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=hTdx6vEUtIA https://allthatsinteresting.com/the-business-plot https://gilbertdoctorow.com/2024/07/19/is-trump-jd-vance-going-to-transform-the-us-foreign-policy-interview-with-nima-alkhorshid-on-dialogue-works/ https://www.youtube.com/watch?v=zMqcGrgHKZg https://expose-news.com/2024/07/21/trump-and-the-crowd-shot-by-multiple-shooters/ https://unlimitedhangout.com/2024/07/investigative-reports/the-man-behind-trumps-vp-pick-its-worse-than-you-think/?ref=unlimited-hangout https://unlimitedhangout.com/2024/07/press/redacted-14/?ref=unlimited-hangout https://cynthiachung.substack.com/p/the-origins-of-americas-secret-police-c7d?utm_source=cross-post&publication_id=309240&post_id=119756256&utm_campaign=260045&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://covertactionmagazine.com/2024/07/16/sugar-daddy-of-trumps-vp-pick-has-deep-ties-to-cia/ https://www.youtube.com/watch?v=4pdFI3iUlIY https://corbettreport.com/how-palantir-conquered-the-world/ https://corbettreport.substack.com/p/are-you-not-entertained-new-world?utm_source=podcast-email&publication_id=725827&post_id=146741097&utm_campaign=email-play-on-substack&utm_content=watch_now_button&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://geopoliticaleconomy.substack.com/p/trump-threat-deep-state-war?utm_source=post-email-title&publication_id=457596&post_id=146656721&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalpolitics.se/trumps-val-av-vicepresident-ar-en-uttalad-kritiker-av-usas-bistand-till-ukraina/ https://bmanalysis.substack.com/p/brilliant-sniper-interview?utm_source=post-email-title&publication_id=1105422&post_id=146626864&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=103ae5&triedRedirect=true&utm_medium=email https://stopworldcontrol.com/trumpvaccines/?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTEAAR3oQv-UdlCn5tyiOXxb_p1shOnqXnagzTz24BlV0-ZJ_YJa-4AK7Qq8O-Y_aem__ZS5qDUDtI5dadQ387sjEQ https://rumble.com/v5736cy-leaked-secret-service-video-proves-trump-assassination-attempt-was-inside-j.html https://tuzarapost.substack.com/p/deleted-world-economic-forum-memo = https://rumble.com/v4w7mjw-deleted-wef-memo-reveals-trump-is-on-hit-list-of-leaders-to-be-assassinated.html https://www.nbcnews.com/news/tucker-carlson-says-us-speeding-assassination-trump-stoking-conspiraci-rcna102976 https://www.realnewsandhistory.com/anyt-07-15-24/ https://www.britannica.com/topic/MAGA-movement https://www.globalresearch.ca/russiagate-2-0-donald-trump-has-opted-for-real-peace-negotiations-with-a-foreign-adversary/5862691 https://www.townandcountrymag.com/society/politics/a61622921/secret-service-history-explained/ https://www.youtube.com/watch?v=8474PcH-eXY https://x.com/RandomTheGuy_/status/1812826935635890635 https://www.secretservice.gov/sites/default/files/reports/2023-06/secret-service-fy23-27-strategic-plan-final.pdf https://www.kpbs.org/news/2015/09/10/marine-corps-study-finds-all-male-combat-units https://matthewehret.substack.com/p/breaking-history-ep-54-the-uncomfortable?utm_source=post-email-title&publication_id=260045&post_id=146754216&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://rumble.com/v57ep6c-breaking-history-ep-54-the-uncomfortable-truth-behind-presidential-assassin.html https://www.youtube.com/watch?v=cpp4-HXuJU4 https://www.youtube.com/watch?v=lYrwhCSzV60 https://www.politico.com/news/2024/07/16/iran-plot-assassinate-trump-00168830 https://www.politico.com/news/2024/07/16/iran-plot-assassinate-trump-00168830 https://beeley.substack.com/p/trump-elevated-to-the-chosen-status?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=146740962&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://simplicius76.substack.com/p/ruling-class-finally-awakens-to-the?utm_source=post-email-title&publication_id=1351274&post_id=145853907&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=103ae5&triedRedirect=true&utm_medium=email https://corbettreport.substack.com/p/theyre-finally-revealing-the-deep?utm_source=post-email-title&publication_id=725827&post_id=146592752&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/trump-barely-escapes-assassination-attempt/5862601 https://www.caitlinjohnst.one/p/the-us-came-close-to-having-two-presidential https://geopolitiq.substack.com/p/maria-zakharova-and-dmitry-peskov?utm_source=post-email-title&publication_id=2232768&post_id=146598185&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=103ae5&triedRedirect=true&utm_medium=email https://simplicius76.substack.com/p/special-bulletin-america-teeters?utm_source=post-email-title&publication_id=1351274&post_id=146588043&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=103ae5&triedRedirect=true&utm_medium=email%C3%A4l https://bmanalysis.substack.com/p/welcome-to-plan-b?utm_source=post-email-title&publication_id=1105422&post_id=146598276&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=103ae5&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.igor-chudov.com/p/trump-questioned-vaccines-on-june?utm_source=post-email-title&publication_id=441185&post_id=146590273&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=emailhttps://www.igor-chudov.com/p/trump-questioned-vaccines-on-june?utm_source=post-email-title&publication_id=441185&post_id=146590273&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.urmedium.net/c/presstv/130106 https://chrishedges.substack.com/p/my-thoughts-on-the-attempted-trump?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=146606276&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.thomasfazi.com/p/the-fracturing-of-the-american-psyche https://www.realnewsandhistory.com/anyt-07-14-24/ https://korybko.substack.com/p/america-was-less-than-an-inch-away?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=146594110&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=ge41WdMgpS4 https://darkfutura.substack.com/p/cracks-begin-to-show-at-davos https://rawnews.com/how-peter-thiel-and-silicon-valley-funded-the-sudden-rise-of-jd-vance/ https://steigan.no/2024/07/misbruket-av-begrepet-konspirasjonsteori-en-57-ar-gammel-psyops/?utm_source=substack&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/in-defense-of-jd-vance-as-trumps?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=146703028&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://rumble.com/v57d59t-wef-memo-reveals-three-more-trump-assassination-attempts-incoming.html https://www.globalresearch.ca/trump-use-assassination-attempt-save-america-ukraine/5862662?utm_campaign=magnet&utm_source=article_page&utm_medium=related_articles https://steigan.no/2024/07/hva-vil-j-d-vance-bety-for-europa/?utm_source=substack&utm_medium=email https://frettin.is/2023/09/17/vitundarmotun-og-vitfirring-lygar-stjornmalamanna-og-fjolmidla/ https://www.youtube.com/watch?v=ChwSTuDa9RY https://www.secretservice.gov/careers/women https://fiamengofile.substack.com/p/fight-fight-fight-vs-diversity-diversity?utm_source=post-email-title&publication_id=846515&post_id=146763849&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


Bjargvættur Bandaríkjanna, Donald Trump. Byltingartilraunin í Bandaríkjunum. Tröllin takast á. Fyrri hluti.

(Ítarlegur heimildarlisti fylgir seinni hluta.)

Það var fyrir rétt um ári síðan, að bandaríski blaðamaðurinn, Tucker Carlson, spáði fyrir um morðtilræði gegn forsetaframbjóðenda og fyrrum forseta Bandaríkjanna, Donald Trump. Spáin rættist fyrir fáeinum dögum síðan.

Tilræði og morð á forsetum og forsetaframbjóðendum, sem hinum máttugu stafar ógn af, er reyndar engin nýlunda í Bandaríkjunum. Síðan 1835 hefur níu slíkum verið sýnt banatilræði, en ellefu ráðnir af dögum. Þessi fjöldi bliknar þó vitaskuld í samanburði við fjölda morðtilræða Bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) gegn Fidel Castro (1926-2016). Samkvæmt göngum hennar voru þau 638 að tölu.

Fyrir liðlega fjörutíu árum síðan (1981) var Ronald Reagan (1911-2004) sýnt banatilræði. Áttatíu árum fyrr var William McKinley ráðinn af dögum (1843-1901). Þá var Öryggisleyniþjónustunni (Secret Service) falin vernd forseta og frambjóðenda.

Tilræðið gegn Donald minnir óhugnanlega á morðtilræðið gegn Theodore Roosevelt (1958-1919) 1912, þegar hann bauð sig fram gegn William Howard Taft (1857-1930). Bakhjarlar Theodore voru auðjöfrarnir, Bernard Mannes Baruck (1970-1965), Jacob Henry Schiff (1847-1920) og Paul Moritz Warburg (1868-1932). Allir voru þeir Gyðingar og fulltrúar alþjóðaauðvaldsins. Framboð Theodore tryggði Woodrow Wilson (1856-1924) sigur. Almælt var, að Bernard hefði forsetann „í bandi.“

Einnig var reynt að ráða frænda Theodore, Franklin Delano Roosevelt (1882-1945), af dögum. Hann var kjörinn til forseta í nóvember 1932. Um mánuði fyrir embættistökuna var forsetanum sýnt morðtilræði. Tilræðismaðurinn hæfði augljóslega ekki, en borgarstjóri Chicago, Anton Cermak (1873-1933), týndi lífi.

Það gerði einnig Thomas James Walsh (1859-1933), sem Franklin D. hafði skipað dómsmálaráðherra (U.S. Attorney General). Sá hafði svarið að fjarlægja yfirmann Alríkislögreglunnar (Federal Bureau of Investigation), John Edgar Hoover (1895-1972). Sá næsti, sem reyndi, Hale Boggs (f. 1914), lést í flugslysi 1972. Hann hafði einnig gert athugasemdir við rannsókn á morði John Fitzgerald Kennedy (1917-1963). Þá tókust tröllin á eins og nú.

En þekktust eru trúlega morðin á Abraham Lincoln (1809-1865) og bræðrunum, Robert Francis Kennedy (1925-1968) og fyrrgreindum, John Fitzgerald. Það var reyndar í sambandi við gagnrýni á vinnubrögð svokallaðrar Warren nefndar, sem rannsakaði morðið á þeim síðastnefnda, að CIA tók upp á því að nota hið margþvælda hugtak, „samsæriskenningu.“ Nú sýslar Öryggisleyniþjónustan við að rannsaka sjálfa sig í sambandi við síðasta harmleik.

Öryggisþjónustan hefur tekið stakkaskiptum í áranna rás. Joseph Biden skipaði t.d. kvenforstjóra, Kimberley A. Cheatle. Jafnrétti er hennar hjartans mál. Þjónustan skal tryggja þátttöku kvenna, kynskiptinga, fatlaðra og svo framvegis. Samkvæmt forstjóranum er lögð sérstök áhersla á ráðningu kvenna eins og hefur átt sér stað í hernum. Þá má einu gilda sú staðreynd, að konur séu öðruvísi af Guði gerðar með tilliti til afls, úthalds og vinnubragða, við álag. Sem lífverðir og hermenn standa þær körlum að baki, samkvæmt fjölda rannsókna. Fjórðungur starfsmanna Öryggisleyniþjónustunnar eru konur. Konur og karlar þjálfa saman.

Kimberley segir: „Í faðmi okkar rúmast fjölbreytni (diversity), meðvera (inclusion), réttlæti (equity) og aðgengileiki (accessibility) (DEIA) alls staðar í stofnuninni. Þessu verða allir að lúta og sýna í verki við sérhvert verkefni á degi hverjum.“

Það er væntanlega ljóst hverjum manni, sem upptökur hefur séð frá morðtilræðinu gegn Donald Trump, að Öryggisleyniþjónustan stóð sig ekki í stykkinu. Samkvæmt gögnum hennar skal þjálfun og starfi þannig háttað, að engin mistök eigi sér stað. Svo var ekki í þetta sinn og engu líkara, en að sjónleikur hefði verið settur á svið. Eins og jafnan er, þegar slíkir sjónleikir eru samdir, er tilræðismaðurinn sagður brjálaður undanvillingur. Þannig er það líka nú. Skýringa á tilræðinu er ákaft leitað.

Donald hefur verið þyrnir í augum Nató, gerir kröfu um, að bandalagsþjóðirnar kosti sjálfar eigin varnir í meira mæli. Framverðir Bandalagsins og hins frjálsa heims í Úkraínu hafa fengið kul í iljarnar. Donald hefur nefnilega látið að því liggja, að hann efist um getu herafla Úkraínu og Nató til að bera sigurorð af Rússum og leggja undir sig rússneska stórveldið.

Sjálfur hefði Donald fyrirskipað, væri hann forseti, að sprengja bæði Moskvu og Bejing, þ.e. ef Kínverjar legðu undir sig Taívan. Hann sagði upp samningunum um takmörkum meðaldrægra kjarnorkuvopna (Intermediate-Range Nuclear Forces – INF) og samningnum um „Opna himna“ (Open Skies Treaty) við Rússa.

Og svo má ekki gleyma því, að Donald dró Bandaríkin út úr samningum við Írani um kjarnorku 2018. Í ljósi stuðnings hans við hernað Ísraela þætti mér ekki ólíklegt, að hann sendi heita kveðju til Teheran líka.

Nató þróast reyndar nú þegar í átt að eins konar hernaðar-Schengen með Þýskaland í forystu. Varnarlínan, sem allt kapp er lagt á að efla frá norðri til suðurs, er kennd við Evrópusambandið. Það mætti jafnvel búast við því, að Evrópusambandið og Nató stofnuðu í alvöru Evrópuher. Donald fór fram á það á sínum tíma, að bandlagsríkin hækkuðu útgjöld sín til hernaðar í 4% af þjóðarframleiðslu.

Donald samsinnir leiðtogum Nató um hættuna af Kína. Þar á bandaríski herinn að gera garðinn frægan og ef til vill að hjálpa Ísraelum að ganga milli bols og höfuðs á Palestínumönnum. (Líklega heimsækir hann líka þorpið á hinum sýrlensku Golanhæðum, „Trump hæðir,“ sem Benjamin Netanyahu, vinur hans skírði svo.) Steve Bannon, herkænskufræðingur Hvíta hússins, sagði reyndar fullum fetum, að Bandaríkin ættu í stríði við Kína.

Stofnun fyrrgreinds Evrópuhers myndi létta þrýstingi af Bandaríkjamönnum í Evrópu. Vonandi verður hann ekki jafn „heilalaus“ og Nató, samkvæmt Emmanuel Macron.

Alheimsefnahagsráðinu (World Ecomic Forum) hefur þótt Donald tregur í taumi og lyfjafyrirtækin sýna ygglibrún. George Soros, öflugasti stuðningsmaður eymdarhyggjunnar (woke) og litaskrúðsbyltinga um víða veröld, segir Donald oddaóvin samkundunnar í Davos.

Í Íran nýtur Donald heldur ekki vinsælda. Íran hefur verið gert af skotspóni bandarískra yfirvalda eins og Írak fyrir rúmum tveim áratugum síðan, þegar tvíburaturnarnir voru jafnaðir við jörðu.

Vissulega hafa Íranir margs að hefna í garði Bandaríkjanna; umfangsmikilla og þrálátra viðskiptaþvingana, morðsins á írakska hershöfðingjanum, Abu Nahdi al-Muhandis (f. 1954), og íranska hershöfðingjanum, Qasem Soleimani (f. 1957), árið 2020, og þátttöku í morðum Ísraelsmanna á fulltrúum Írans- og Sýrlandsstjórnar. Dómstólar í Írak hafa gefið út handtökuskipun á hendur Donald Trump, sem fyrirskipaði fyrrgreind morð.

Það er einnig skynsamlegt að hafa í huga, þegar „afrek“ Donald eru skoðuð, að undir stjórn hans var beitt sígildri utanríkismálastefnu Bandaríkjanna í Mið- og Suður-Ameríku. Stjórnvöldum í Bólivíu var steypt af stóli og sams konar tilraun gerð í bæði í Venesúela og Nígaragúa.

Á innlendum vettvangi eru líka viðsjár. Sitjandi forseti hefur lýst keppinauti sínum, Donald Trump, sem tilvistarógn við Bandaríkin og talað um hann sem skotmark. Leyniþjónustan (CIA) og Alríkislögreglan (FBI) líta Donald hornauga. Sumir muna, ef til vill, herferð FBI gegn Donald til að sýna fram á tengsl hans við Rússa (Crossfire Hurricane var aðförin kölluð).

Eymdarherinn (woke) hefur grafið upp stríðsöxina og kvenfrelsarar sérstaklega beina að Donald spjótum sínum fyrir margs konar ávirðingar gegn konum. (Hatur kvenna nær að vísu út fyrir landsteina og alla leið til Íslands. Erna Magnúsdóttir við Læknadeild HÍ óskaði sér í „nokkrar sekúndur … að „árásarmaðurinn hefði hitt.“)

https://fiamengofile.substack.com/p/fight-fight-fight-vs-diversity-diversity?utm_source=post-email-title&publication_id=846515&post_id=146763849&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


Bloggfærslur 23. júlí 2024

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Sept. 2024

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband