Hirð Donald Trump; Vitfirringar eða vitringar. Guðleg köllun Bandaríkjamanna: Seinni hluti

Ríkasti maður heims, Elon Musk, er dyggur stuðningsmaður og hefur fjárfest ótæpilega í húsbónda sínum. Hann er fulltrúi nýríkra tækniræðisauðmanna (surveillance capitalism) í Bandaríkjunum, sem berjast (málamyndabaráttu) gegn þeim gömlu, sem eiga bankana, fjölmiðla og lyfjaiðnaðinn.

Elon mun verða í fyrirsvari fyrir eins konar „Ráðdeildarráðuneyti.“ Hann ætlar sér að spara tvær billjónir (trillion) á fjárlögum. Þess má geta, að hann og Peter Thiel, önnur stjarna úr eftirlits- og tækniauðræðinu, hafa auðgast á samvinnu við Leyniþjónustuna og ráðuneytin.

Kristi Noem er tilnefnd til Þjóðaröryggisstofnunarinnar (Homeland Security). Hún mun enn sem fyrr beita sér af hörku gegn ólöglegum innflytjendum.

Marco Rubio er stríðshaukur af kúbönskum ættum. Honum ætlar Donald embætti utanríkismálaráðherra (secretary of state). Hann virðist styðja öll stríð Bandaríkjamanna í veröldinni, fyrr og síðar, hafði í hótunum við Nicolás Maduro, forseta Venesúela, og talar fyrir fleiri stríðum, t.d. við Kínverja.

Þegar Marco var inntur eftir því, hvort hann styddi vopnahlé á Gaza, sagði hann: „Þvert á móti. Ég hvet þá [Ísraela] til að tortíma öllum Hamasliðum, sem þeir komast yfir. Þeir eru háskaleg dýr.“ Hann velkist heldur ekki í vafa um, að Guð hafi gefið Ísraelsmönnum Palestínu. (Marco hljómar óneitanlega eins og hugmyndafræðingar Sjálfstæðisflokksins.)

Í ljósi þessa er skiljanlegt, að Marco vandi hvorki Hisbolla né Írönum kveðjurnar. Það ætti að vera markmið Bandaríkjamanna að kollvarpa stjórn þeirra, segir hann. Dráp Ísraela á leiðtogum Hisbolla og óbreyttum borgurum í Líbanon telur hann greiða við mannkyn.

Að þessu sögðu kemur varla á óvart, að þrýstihópar í þágu Ísraels hafi fjárfest ótæpilega í Marco eins og Donald. Það sama hefur hergagnaiðnaðurinn gert.

Stríðshauknum þykir ekki nóg að gert með vopnavaldi. Aukin heldur talar hann fjálglega um að beita hinu meginvopni Bandaríkjanna, einhliða viðskiptaþvingunum, sem reyndar eru ólöglegar samkvæmt alþjóðalögum.

Marco er – eins og fleirum í hirð Donald – afskaplega illa við málfrelsi. Mótmæli gegn stríðum Ísraels við æðri menntastofnanir sagði hann væri „gagngera upplausn laga og reglna.“ Hann styður dyggilega fyrirætlanir Donald um að vísa úr landi erlendum námsmönnum, sem „um tveggja áratuga skeið hefur verið innrætt, að heiminum sé skipt í ofbeldismenn og fórnarlömb, og að ofbeldismennirnir í þessu tilviki, þeir sem kúgi fólk, séu Gyðingar í Ísrael.“

Nýr sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum verður Elise Stafanik, sem áður var ráðgjafi George W. Bush. Hún er einkum þekkt fyrir að hafa skammað rektora við bandaríska háskóla fyrir linkind gagnvart mótmælendum. Einn af stærstu gyðinglegu hluthöfunum í Donald, Miriam Adelson, veitti henni sérstök peningaverðlaun fyrir bragðið.

Blaðamaðurinn, Dave DeCamp, hefur lýst Elise sem „stríðsóðri mýrarófreskju úr herbúðum andstyggilegustu hugveitna nýíhaldsmanna í Washington.“ Elise hefur ekki vandað Sameinuðu þjóðunum kveðjurnar. Þar sé að finna andgyðinglega rotnun, fullyrðir hún.

Mike Huckabee er úr sama sauðahúsi. Hann verður sendiherra í Ísrael við mikinn fögnuð þarlendra. Mike og Bensi-barnamorðingi fallast í faðma í einskærri trú á þá náð Guðs að hafa gefið Gyðingum Ísrael. Mike rataði í sjötta sæti á lista Spillingarvaktarinnar (Judicial Watch) í Bandaríkjunum. Það þarf varla að taka fram, að þessi heiðursmaður studdi ákaflega innrásina í Írak, enda fyrst og fremst í þágu Ísraelsmanna.

Söguskilningur hans er óneitanlega skringilegur. „Í grundvallaratriðum eru engir Palestínumenn til. … Það eru til Arabar og Persar.“ Það er heldur ekkert hernám á Vesturbakkanum. Það er helst á honum að skilja, að Palestínumenn hafi verið fundnir upp til að reka Ísraela af landi sínu. Mike segir að finna megi land handa Palestínumönnum (sem ekki eru til) annars staðar á jarðarkringlunni. Nægt sé rýmið. (Ætli þessi sé innanbúðar í hugmyndafræðideild Sjálfstæðisflokksins?)

Stríðshaukurinn, Pete Hegseth, var tilnefndur til embættis varnarmálaráðherra. Hann hefur nú dregið sig í hlé sökum mótmæla. Pete er afar illa við konur og kynleysingja í hernum og stjórnaði pyndingahúsinu (torture house) í Guantánamo herstöðinni af mikilli röggsemi.

John Ratcliffe verður nýr forstjóri Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA). Hann hefur m.a. unnið sér til frægðar að stýra með George W. Bush „stríðinu gegn hryðjuverkum“ og vinna að nánari njósna- og eftirlitssamvinnu Bandaríkjamanna og Ísraela. Elon Musk og John munu vafalaust finna bylgjulengd.

Í desember 2020 sagði John: „Ef ég mætti koma með eina ábendingu til bandarísku þjóðarinnar … er hún sú, að Bandaríkjunum stafi mestri hættu af Kínverjum um þessar mundir. [Kínverjar eru] stærsta ógn við lýðræði og frelsi, eftir lok annarrar heimstyrjaldarinnar.“

Síðast, en ekki síst, Susan Wiles. Hún mun verða starfsmannastjóri Hvíta hússins. Susan hefur þá sérstöðu að vera inni á gafli lyfjafyrirtækjanna og eins konar tengiliður milli Donald og lyfjaiðnaðarins (Big Pharma). Áður var Susan einn stjórnarmanna í hagsmunavörslufyrirtækinu, Mercury Public Affairs, sem var í þjónustu Pfizer, GAVI (bólusetningarsamtaka Bill Gates og nokkurra ríkisstjórna) og Gilead Sciences. Það verður fróðlegt að sjá, hvernig samvinnu verður háttað milli Susan, Jay og Robert.

Yfirlýsingar Donald rugla fólk oft og tíðum í ríminu. Hann sagði t.d. 2016:

„Ég segi við alheimssamfélagið; ég mun ævinlega setja hagsmuni Bandaríkjanna á oddinn, [en] ég mun koma fram við aðra af sanngirni – allar þjóðir, allt fólk. Ég mun leita vináttu, ekki illinda, samstarfs, ekki átaka.“

Sýrlendingar, Íranar, Írakar, Jemenar og íbúar Venesúela, gæfu Donald varla góða einkunn fyrir samstarf og sanngirni og friðsemd. Mexíkóbúar líta hann væntanlega hornauga fyrir innrásartal hans og varla klappa Afríkumenn honum lof í lófa fyrir þau ummæli, að þeir búi í „rassgatslöndum“ (ass hole). Og ætli ríki í Mið og Suður-Ameríku þakki Donald fyrir allar viðskiptaþvinganirnar, sem hann beitti þau.

Þrátt fyrir, að Donald kynni að virða vilja bandarísku þjóðarinnar, þ.e. hætti hernaðarstuðningi við Úkraínumenn og friðmælist við Rússa, er engin ástæða til að ætla, að hann svíki Ísraelsmenn við stríðsiðju þeirra. Þar hefur hann fullan stuðning hirðar sinnar. Pete Hegseth vildi t.d. sprengja Teheran.

Jackson-sinninn, Donald Trump, tæki væntanlega undir orð Pete þess efnis, að Sionismi og „Amerikanismi“ (Americanism) séu framverðir vestrænnar menningar og frelsis í heiminum. Því hafi það verið blessunarlegur gjörningur að hafna samningum um framleiðslu kjarnorku við Írana og flytja sendiráð Bandaríkjanna til Jórsala. Pete sagði:

„Þessi forseti [Donald Trump] er sannur vinur ísraelska ríkisins. Vináttan er hin eilífa, trausta taug, sem bindur saman trú, frelsi og tryggð við sögulegar, trúarlegar og menningarlegar hefðir, sem andstæðar eru veraldarhyggju (secularism), Múhammeðstrú og Andgyðingshyggju (anti-semitism).“

Því má gera ráð fyrir, að styrjöld við Írana sé í undirbúningi. Þar gæti Donald slegið tvær flugur í einu höggi, þ.e. gjörsigrað Írana og komið Kínverjum á vonarvöl einnig, þar sem þeir eru algjörlega háðir olíu frá Íran.

Enn það er afdrifaríkur hængur á. Samkvæmt skýrslu RAND hugveitunnar, sem mótar utanríkis- og hermálastefnu Bandaríkjamanna, að verulegu leyti, ásamt Utanríkismálaráðinu (Council of Foreign Relations) er her heimsveldisins ekki í stakk búinn til slíkra hernaðaraðgerða – frekar en her hinna hundtryggu bandamanna, Breta. Án hersins eru Bandaríkin úr sögunni sem heimsveldi. „Pax Americana“ er sem sé á hverfanda hveli hernaðarlega – og efnahagslega sömuleiðis.

Eins og allir vita, ætlar Donald að gera Bandaríkin máttug og mikil á nýjan leik (Make America Great Again – MAGA). Stríð gegn Íran og Kína er þáttur í þeirri áætlun.

Annar þáttur í þeirri stórfenglegu áætlun er endurheimt Bandaríkjanna sem iðnaðarveldis. Þar verður líka við ramman reip að draga. Þeim mætti glutruðu Bandaríkjamenn niður smám saman. Nú eru það BRICS+ löndin, sem tekið hafa forystuna á þeim vettvangi með Kína, Indland og Rússland í forystu. Í skipasmíðum eru Kínverjar t.d. 230sinnum öflugri en Bandaríkjamenn og eiga stærsta flota í heimi.

Donald hefur endurvakið gömul ráð fyrri forseta á borð við Abraham Lincoln (1809-1865) og William McKinley (1843-1901) um verndartolla. En þá var öldin önnur. Beiti Donald því úrræði að einhverju marki er ljóst að bresta mun á alheimsviðskiptastríð, verðbólga innanlands mun aukast enn og hrikta mun enn frekar í undirstöðum dalsins sem alþjóðagjaldeyris.

Skuldir Bandaríkjamanna eru nú rúmlega 35 billjónir (trillion) Bandaríkjadala, sem samsvarar nokkurn veginn vergri þjóðaframleiðslu (GDP). Stór hluti af þeirri „framleiðslu“ eru fjármálaumsvif. Útgjöld til hernaðarmála eru langt yfir einni billjón árlega, um það bil það sama og greitt er í vexti af skuldum.

Það blæs ekki byrlega fyrir bandaríska heims- og herveldinu. Til að bæta gráu ofan á svart ber ekki á öðru, en að vitfirringarnir í Washington ætli sér að heyja kjarnorkustyrjöld við Rússa.

https://krossgotur.is/tilnefning-roberts-kennedy-til-heilbrigdsradherra/?fbclid=IwY2xjawGr2M1leHRuA2FlbQIxMQABHUahpFT3QZlLogIOXN_9Uh7WR4pg-Dvtj-c2safl03NlJacNs4Hnv78Sfg_aem_s7_Zt1ox8mDK9gSBv_n2Kw https://www.kitklarenberg.com/p/collapsing-empire-rip-royal-navy?utm_source=post-email-title&publication_id=552010&post_id=152064556&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2024/11/spionene-frykter-tulsi-gabbard-og-bigpharma-frykter-robert-f-kennedy-jr/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.theamericanconservative.com/poll-majority-of-americans-back-ending-military-aid-to-ukraine/ https://steigan.no/2024/11/patrick-henningsen-usa-har-vunnet-mye-pa-krigen-i-ukraina-intervju/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=EJQKIwe2BYo https://www.youtube.com/watch?v=po2_gHsmpKM https://www.commondreams.org/opinion/icc-arrest-warrant-netanyahu https://www.youtube.com/watch?v=R0lPWGlwPvk https://steigan.no/2024/11/trump-velger-john-ratcliffe-til-a-lede-cia/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=uNDnHL40lo4 https://expose-news.com/2024/11/13/bewildered-scientists-and-journalists/ https://www.youtube.com/watch?v=i7iGPm0vloA https://www.indianpunchline.com/russia-india-are-early-birds-as-pax-americana-is-ending/ https://www.youtube.com/watch?v=aHfNus7C9nk https://www.youtube.com/watch?v=87zQuzmtLYs https://steigan.no/2024/11/det-er-ingen-enkle-kriger-igjen-a-kjempe-men-ikke-ta-feil-av-lengselen-etter-en/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/11/kritikeren-og-stanford-eksperten-jay-bhattacharya-nominert-til-a-lede-trumps-helsepolitikk/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.rt.com/news/607508-changes-us-foreign-policy-trump/ https://derimot.no/russisk-vurdering-av-trump-seieren-endringene-blir-mindre-enn-det-mange-tror/ https://www.globalresearch.ca/trump-picks-neocon-warhawks-devoted-israel/5872821 https://www.globalresearch.ca/trump-war-peace-manlio-dinucci/5872340 https://www.globalresearch.ca/trump-war-deep-state-increasing-own-powers/5872966 https://www.voltairenet.org/article221504.html https://www.voltairenet.org/article221523.html https://www.globalresearch.ca/who-presidents-team-manlio-dinucci/5872963 https://www.aljazeera.com/news/2024/11/13/who-is-pete-hegseth-the-pro-israel-fox-news-host-picked-to-head-pentagon https://steigan.no/2016/12/tulsi-gabbard-d-hi-usa-finansierer-terroristgrupper-i-syria/ https://www.globalresearch.ca/long-range-missiles-targeting-russia/5873147 https://www.globalresearch.ca/harris-trump-debate-manlio-dinucci/5867948?utm_campaign=magnet&utm_source=article_page&utm_medium=related_articles https://www.globalresearch.ca/eight-reasons-marco-rubio-disastrous-secretary-state/5873044 https://covertactionmagazine.com/2024/11/19/marco-rubio-an-abhorrent-choice-for-secretary-of-state/?mc_cid=0b59ca8213&mc_eid=5cd1ec03b1 https://www.igor-chudov.com/p/trump-picks-covid-vaccine-supporter?utm_source=post-email-title&publication_id=441185&post_id=152080281&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=wBz68F1vTlw https://www.youtube.com/watch?v=gVshqS0UvXE&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=5 https://steigan.no/2024/11/kinas-skipsbyggingskapasitet-230-ganger-storre-enn-usas/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/11/en-grunn-til-at-de-hater-henne-tulsi-gabbard-advarte-mot-ulovlige-biologiske-laboratorier-i-ukraina/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=lZbELPHVeZI&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=1 https://www.youtube.com/watch?v=O6X7LusQ3mM https://caitlinjohnstone.com.au/2024/11/19/another-psychopath-for-us-secretary-of-state/


Hirð Donald Trump; Vitfirringar eða vitringar. Guðleg köllun Bandaríkjamanna: Fyrri hluti

(Heilmildaskrá fylgir seinni hluta.)

Margir binda vonir við, að kosning Donald Trump muni valda straumhvörfum á ýmsum sviðum í Bandaríkjunum og á alþjóðavettvangi. Donald auglýsir t.d., að hann sé eins konar friðardúfa, því hann hafi ekki att Bandaríkjunum út í stríð. Það mætti til sanns vegar færa, en þó beitti hann bandaríska hernum til morðárása á fulltrúa Írana og Íraka og hefur hvergi hvikað í hernámi Bandaríkjanna í Sýrlandi og í Írak.

Hann hefur jafnframt verið staðfastur stuðningsmaður hernaðaruppbyggingar í Ísrael og lagt sig fram um að steypa stjórn Venesúela af stóli. Donald gekk meira að segja svo langt að skipa þar nýjan forseta alveg eins og Vesturlönd reyna enn á ný, meðan þau liggja á gulli þjóðarinnar.

Donald er flokkaflakkari, en samkvæmt hinum snjalla blaðamanni, Thierry Meyssan, er Donald „Jackson-sinni,“ þ.e. nemandi fyrrum forseta, Andrew Jackson (1767-1845). Andrew var svarinn andstæðingur alþjóðaauðvaldsins og barðist einarðlega gegn tilburðum þess til að stofna seðlabanka í Bandaríkjunum. Hann vann orrustur, en Bandaríkjamenn töpuðu stríðinu. Seðlabanki alþjóðaauðvaldsins var stofnaður á öðrum áratugi tuttugustu aldar.

En Andrew hafði fleiri hliðar. Honum var mjög umhugað um að stugga Indíánum burt frá fornum lendum þeirra og smala saman á verndarsvæði. Hann var ákafur talsmaður „sjálfgefinna forlaga“ (manifest destiny) hvítra Bandaríkjamanna, svo sérstakir væru þeir undir augliti Guðs.

Andrew sagði það forlög, „[a]ð breiða úr okkur yfir alla álfuna. Guðleg forsjón (providence) býður oss þetta land til til frjálsrar þróunar í þágu þeirra milljóna íbúa, sem fjölga sér á ári hverju.“

Í anda Andrew varð síðar til trúboð Bandaríkjamanna, þ.e. að boða „hið fullkoma stjórnunarfyrirkomulag“ (the perfect form of government).

Kynþáttafordómar Andew lifðu einnig áfram í bandarískri stjórnsýslu. Theodore Roosevelt (1958-1919), fyrsti heimsveldisforseti Bandaríkjanna, sagði t.d.:

„Það væri mér mjög að skapi, ef koma mætti algerlega í veg fyrir, að óheppilega (wrong) fólkið tímgaðist. Þegar að því kemur, að hið illa eðli þessa fólks blasir við augum, ætti það að vera gerlegt. Ófrjósemisaðgerð ætti að framkvæma á afbrotamönnum og vanvitum (feeble-minded) bannað að eignast afkomendur.“

Þetta viðhorf lifir enn góðu lífi í bandarískum stjórnmálum og atvinnulífi, sbr. viðhorf til Palestínumanna, eitrunartilburði lyfjaiðnaðarins og Bill Gates, svo og fólksfækkunarfyrirætlanir alheimsstjórnarsinna í Davos.

Gyðingurinn og sagnfræðingurinn, Norman Finkelstein, horfir með skelfingu til þeirra tíma, sem í hönd fara. Donald mun valda hörmungum, hryllingur er í augsýn, segir hann.

Það er ástæða til að ætla, að það fólk, sem Donald tilnefndir til embætta í stjórninni, muni hafa veruleg áhrif á stefnuna. Allir virðast þeir herskáir stuðningsmenn jafn herskárrar Ísraelsstjórnar og sumir hafa í hótunum við Alþjóða glæpadómstólinn (International Criminal Court - ICC) vegna handtökuskipunar á hendur Bensa-barnamorðingja.

En engin ákæra hefur verið gefin út sökum þátttöku Bandaríkjamanna í þjóðarmorðinu á Palestínumönnum. Bandaríkjamenn hóta jafnvel árás nú rétt eins og þeir gerðu, þegar dómstóllinn orðaði réttarhöld vegna stríðsglæpa þeirra í Afganistan.

Hér eru mikilvægustu hirðmennirnir kynntir til sögu:

Útnefning Robert Kennedy til embættis heilbrigðisráðherra hefur vakið andspyrnu lyfjarisanna, enda er Robert einarður andstæðingur bóluefnanna við Covid-19 og fleiri slíkra, sem valda tjóni á heilsu fólks. Það verður fróðlegt að sjá, hvernig honum gengur baráttan við ofurefli þeirrar mafíu. Robert er einarður stuðningsmaður Ísraelsstjórnar.

En Robert mun vafalítið fá liðstyrk frá sómalækninum, Jay Bhattacharya, sem var einn upphafsmanna Barrington yfirlýsingarinnar, þ.e. baráttu fagmanna gegn skaðlegum bóluefnum við Covid-19.

Tulsi Gabbard kynni að vera „litli, ljóti andarunginn“ í hirðinni. Tulsi er flóttamaður frá Lýðræðissinnum (Demókrötum) eins og Donald reyndar sjálfur. Hún reyndi á sínum tíma að fá Nató til samninga við Rússa um sýklavopnaverksmiðjur Bandaríkjanna í Úkraínu.Tulsi er talsmaður friðar í landinu, varaði við kjarnorkustríði og hefur tjáð sig um ábyrgð Nató á stríðsinu og samtímis andmælt andrússneskri þráhyggju landa sinna.

Tulsi hefur einnig bent á, að Bandaríkjamenn fjármagni og beiti hryðjuverkahópum eins og ISIS í Sýrlandi. Hún er þó eindreginn stuðningsmaður ísraelsku ríkisstjórnarinnar.

Það er líka Sebastian Gorka, sem tilnefndur er til Þjóðaröryggisráðsins. Hann segir m.a.: „Ég skal afhjúpa eitt atriði, sem forsetinn [Donald Trump] hefur haft á orði. „Hann mun segja við hinn morðóða, fyrrverandi offursta í leyniþjónustunni; þú skalt setjast að samningaborði nú þegar ellegar mun hjálpin, sem Úkraína hefur fengið, líta út sem hnetur væri. Þann ætlar hann [Donald] að þvinga herra þessa til samninga, sem stöðvi blóðsúthellingar.“

Pam Bondi er tilnefnd í embætti dómsmálaráðherra. Hún verður yfirmaður Alríkislögreglunnar (FBI). Sú góða kona er lítt hrifin af málfrelsi – alla vega falli henni ekki inntak þess í geð. Hún hefur í löngu máli gert grein fyrir örlögum námsmanna, sem styðja Hamas. Þá skal reka umsvifalaust fyrir Gyðingahatur. Hún segir m.a.:

„Gyðingahatur (anti-semitism) fer eins og eldur í sinu um landið um þessar mundir. Það nístir að hjartarótum að verða vitni að aðsúgi gegn öllum Gyðingavinum okkar í landinu.“

Mike Waltz er tilnefndur þjóðaröryggisráðgjafi. Hann hótar ICC öllu illu og kallar hann andgyðinglegan. Félagi hans, Tom Cotton, hefur beinlínis lagt til að senda herinn á vettvang, samkvæmt „Hag innrásarlögunum“ (Hague Invasion Act). Lögin heimila slíka hernaðaraðgerð til að bjarga bandarískum ríkisborgurum eða vinum þeirra undan fári dómstólsins.

Bandaríkjaþing hefur einnig með yfirgnæfandi meirihluta samþykkt lög, sem heimila þvinganir (sanctions) gegn dómstólnum og þeim þjóðum, sem standa að honum. „Við skulum rústa efnahagi ykkar,“ sagði Lindsey Graham. Efnahagsþvinganir eru Bandaríkjamenn frægir fyrir að endemum. Svo eru þeir líka duglegir að tapa stríðum, líka stríðinu í Úkraínu, sem Mike hefur mikið dálæti á. Hann varð snemma stuðningsmaður þess að senda langdrægar eldflaugar inn í Rússland.

Jeanette Nesheiwat hefur fengið útnefningu sem Landlæknir Bandaríkjanna (surgeon general). Jeanette lofsöng bóluefnin við Covid-19 og hélt varla vatni yfir bólusetningaherferð Donald (Warp Speed). Donald heldur því fram, að herferðin hafi bjargað tuttugu milljónum mannslífa. Upp á síðkastið hefur hún þó dregið stuðning sinn til baka.

https://caitlinjohnstone.com.au/2024/11/19/another-psychopath-for-us-secretary-of-state/


Bloggfærslur 30. nóvember 2024

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Júní 2025

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband