Mirotvorets og morð í Kænugarði. Oles Buzina

Dr. Knut Erik Aagaard, norskur, rússneskumælandi sálfræðingur – eiginlega fjölfræðingur – hefur skrifað margt áhugavert um norskt samfélag og menningu Slava. Nýjasta þáttaröð hans fjallar um norrænar rætur Rússa og þróun rússneska ríkisins. Fyrsti þáttur ber titilinn, „Væni guttinn Ólafur Tryggvason.“ Afar fróðlegt.

Einn af heimildarmönnum Knúts Eiríks var Oles Oleksiovych Buzina/Buzyna (1969-2015), úkraínskur mál- og sagnfræðingur, sem m.a. hafði skrifað bókina: „Rússar fyrir tíma Kænugarðs.“

Oles hélt því fram, að Rússar, Hvít-Rússar og Úkraínumenn, væru ein og sama þjóðin. Það þóttu ekki góð fræði í Kænugarði, þegar frumstæður þjóðernisrembingur náði þar heljartökum á huga fólks og úkraínskar nasistabullur voru settar á stall.

Hreyfingu nýnasista nýttu sér bandaríska og breska leyniþjónustan – ásamt mannréttinda og lýðræðishreyfingu George Soros – til að kynda undir lýðræðislega kjörinni stjórn Úkraínu, sem lyktaði með blóðugri byltingu og kollsteypu hennar 2014.

Oles var Þrándur í Götu þessarar valdaránshreyfingar. Enda var hann settur á drápslista (mirotvorets) Úkraínustjórnar. Þann sextánda apríl 2015 var hann myrtur. Knútur Eiríkur hefur þýtt minningargrein um Oles, sem birtist í rússneska dagblaðinu „Argumenty i Fakty,“ fimm árum eftir morð hans.

Morðingjarnir eru þekktir, ganga lausir, eftir skamma fangelsisvist. Því þeir eru þjóðhetjur í augum valdhafa og nasista. Morðið á Oles var eitt af mörgum.

Oles starfaði einnig sem blaðamaður og andæfði ofbeldi nasistanna. Fólk af því sauðahúsi þolir illa gagnrýni eins og sýnir sig sömuleiðis á vígstöðvum síonistanna í Palestínu. Þar eru þeir markvisst drepnir.

Í Úkraínu heldur harmleikurinn áfram. Þúsundum úkraínskra og rússneskra karla er fórnað á altari alþjóðaauðvaldsins og handbenda þess í stjórnmálum í Bandaríkjunum og Evrópu. Íslendingar taka virkan þátt í þessum drápum og hvetja Úkraínumenn til þess að berjast til síðasta (karl)manns.

Þar fer fremst í flokki skjaldmærin af Skaganum, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Það liggur við, að hún slái við eistnesku valkyrjunni, Kaja Kallas, sem nú tekur við sem „utanríkismálaráðherra“ Evrópusambandsins.

Stjórnmálamenn - einkum í Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki og VG – biðja okkur um að endurnýja umboð sitt og lofa umboðslausum forseta Úkraínu frekari stuðningi til stríðsrekstrar í töpuðu stríði.

https://www.youtube.com/watch?v=P2riqNJDqlo https://www.bbc.com/news/world-europe-32337621 https://steigan.no/author/knuterikaagaard/ https://steigan.no/2024/11/mord-i-kiev/?utm_source=substack&utm_medium=email


Upplaun Ísraelsríkis. Saga af blóðþyrstum fasistafólum og stúlkuskinni

Ísraelskir hermenn komu auga á grunsamlega bifreið. Þeir skutu á hana 355 skotum. Litla stúlkan, sem í henni sat, var tryggilega drepin. Og einnig þeir, sem þustu á vettvang við ódæðið. Ætli komi að því, að eilífur eldur verði látinn brenna til minningar um myrt börn Palestínumanna eins og þau bosnísku í Sarajevó?

Fáir eru knárri við morð á börnum en ísraelski varnarherinn. Listina lærði hann af bandaríska og breska hernum, sbr. Hamborg, Dresden, Víetnam, Serbíu og Líbíu, svo dæmi séu tekin.

Stór-Ísrael skal verða að veruleika, hvað sem tautar og raular. Svo virðist sem Ísraelsmenn færist allir í aukana, eftir kosningu Donald Trump til forseta Bandaríkjanna. Bandarískum og vestur-evrópskum sprengjum rignir yfir íbúa Líbanon og Gaza. Bandaríkjamenn hafa í hótunum við Sýrlendinga og Ísraelar láta að því liggja að ráða Basher al-Assad af dögum. Bæði Líbanon og Sýrland eru hluti þess Stór-Ísraels, sem er í burðarliðnum.

Gaza er eins og allir ættu að vita, í rúst. Ísraelsher einbeitir sér að norður hlutanum, sem er mikilvægari með tilliti til uppbyggingar olíuiðnaðar. Erlendir leigumorðingjar koma að mótun framtíðarskipulags fyrir svæðið. Í bígerð eru víggirtar fangabúðir fyrir þá íbúa Gaza, sem lifa af kerfisbundna útrýmingu með vopnavaldi og svelti. Meðan Bandaríkjamenn og Nató halda verndarhendi yfir ísraelsku ríkisstjórninni, fer hún sínu fram. Blóðþorstann þarf að slökkva.

Þó kynnu raðir stuðningsmanna hinnar fasísku Ísraelsstjórnar að riðlast, bæði innan lands og utan. Réttvísin verður til að mynda nærgöngulli við Bensa-barnamorðingja. Þó ekki vegna stríðsglæpa, heldur spillingar og svika. Raddir, sem krefjast rannsókna á þætti hans í árásum Hamas og gíslatökunni, verða háværari. Bensi-barnamorðingi rekur þá, sem láta í ljósi ágreining, jafnvel þótt samsekir séu. Varnarmálaráðherra, Yoav Galant, var t.d. látinn fjúka. Mannréttindasamtök í Ísrael krefjast vopnahlés.

Á erlendum vettvangi ókyrrast fleiri leiðtogar hins „frjálsa heims.“ Þó ekki þeir íslensku. Malasía leggur til að Ísrael verði vikið úr Sameinuðu þjóðunum, enda er aðild þess skilyrt því, að ríkið fari að lögum og reglum samtakanna, sbr. ályktun Allsherjarráðsins nr. 273. Samþykktir þess hafa verið virtar að vettugi tæplega þrjú hundruð sinnum.

Ríki í Samtökum Arabaríkja (Arab League) og Samtökin um samvinnu meðal Múhammeðstrúarmanna (Organization of Islamic Cooperation), 79 að tölu, áttu fund í Riyad um daginn. Hvor tveggju fordæmdu þjóðarmorð Ísrael í Palestínu og Líbanon. En hætt er við, að látið verði sitja við orðin tóm. Jemen er þó undantekning og Sýrlendingar neita að beygja sig og bukka fyrir Bretum, Bandaríkjamönnum og Ísraelum, og bjóða þeim birginn eins og bandamönnum þeirra í ISIS.

Þeir morðingjar og hrokagikkir, sem ríkinu stjórna hafa ekki einungis gefið Sameinuðu þjóðunum langt nef og kallað þær „hryðjuverkasamtök“ heldur er aðalritaranum meinað að drepa niður fæti í ríkinu. Hann dirfðist að mótmæla árásum á friðarliða í Líbanon.

Tyrklandsforseti hefur skýrlega gefið í skyn, að hann muni beita sér fyrir vopnasölubanni til Ísraels. Það er þó líklega „sjálfsímyndarfegrunaraðgerð.“ Honum væri í lófa lagið að skrúfa fyrir olíuna, sem streymir frá Aserbædsjan. Sú olía, sem Bandaríkjamenn stela frá Sýrlendingum, dygði skammt til að halda drápsvél Ísraela gangandi.

Annars virðist varnarher Ísraela eiga heldur bágt um þessar mundir. Hamasliðar berjast enn og Hisbolla hleypir þeim ekki inn í Líbanon landleiðina. En vitaskuld drepa þeir óbreytta borgara í hrönnum í loftárásum.

Um leið og flughernum er veitt mótspyrna lyppast hann niður. Ísraelski flugflotinn gerði – með aðstoð Bandaríkjamanna eins og endranær – árásir á aðalfjanda þeirra beggja, Írana. Hann þurfti þó að snauta heim og vann takmarkað tjón. Nú bíða Ísraelar, Bretar og Bandaríkjamenn, milli vonar og ótta, eftir næstu árás Írana. Undirbúningur er á fullum snúningi. Árásin mun koma. Allt bendir til, að Rússar hafi útvegað bandamönnum sínum vopn, sem duga. Kínverjar virðast líka reiðubúnir.

Upplausn Ísraelsríkis er að öllum líkindum óhjákvæmileg, enda þótt stjórn ríkisins sé vígreif. Innlimum Vesturbakkans (Galelíu og Samaríu) með stuðningi Donald Trump (ein hæðanna ber nafn hans), er handan við hornið. Það er þó skammvinn huggun. Hyggnir Ísraelsmenn eiga fótum sínum fjör að launa. Um það bil 600.000 þeirra hafa yfirgefið landið. Fyrst og fremst virðist um að ræða menntað fólk með tvöfalt ríkisfang. Vondi-Valdi hefur boðið „Rússana“ velkomna „heim.“

Ísraelska ríkisstjórnin skammast heiftúðlega út í þá Gyðinga, sem taka afstöðu gegn morðæði vitskertra Síonista. Hún kallar þá (og okkur hin, sem það gerum) And-Semíta. Í orðabók Bensa-barnamorðingja eru Semítar fasistarnir, sem kenna sig við Síonisma. En þeir hafa samið velþekka áróðursbók um Gyðinga í Evrópu og stofnun Ísraelsríkis.

En líklega er fólk farið að tvístíga í trúnni á goðsagnirnar um Gyðinga sem sérstök fórnarlömb vonda Evrópumanna. Fórnarlömbin hafa því miður verið skelfilega mörg. Gyðingar eru þar vissulega meðtaldir, en Slavar og Armenar þó flestir.

Ísraelska ríkisstjórnin reynir að glæða goðsagnirnar lífi í samvinnu við vestræna þjóðarleiðtoga og fjölmiðla. Þó með ámáttlegum hætti. Eins og RÚV skýrði frá fyrir skemmstu brutust út óeirðir í Amsterdam, þegar knattspyrnubullur frá Ísrael réðust að fólki og unnu skemmdarverk í borginni, einkum í tengslum við andstöðuhreyfinguna gegn þjóðarmorði ríkisstjórnar þeirra í Ísrael. Mossad stjórnaði og Bensi-barnamorðingi sendi flugvélar eftir „fórnarlömbunum.“

Leiðtogar víðs vegar náðu ekki andanum af vanþóknun; Gyðingaofsóknir (progrom) á nýjan leik. Fjölmiðlar tóku undir eins og í veirufaraldrinum, töluðu einum rómi með leiðtogunum.

Á meðan héldu drápin á saklausum borgurum í Líbanon og Gaza áfram. Um 85.000 tonnum af sprengjum hefur verið sleppt yfir Gaza, síðan að útrýming Gazabúa hófst. Bandaríkjamenn fjármagna um 70% stríðsrekstrar Ísraels. Sú upphæð nemur um tuttugu milljörðum (billion) dala.

Það þarf varla að taka fram, að í augum heimsins eru það ekki hryðjuverk heldur varnaraðgerðir. Þegar ísraelsku hryðjuverkasamtökin lýstu yfir ríki sínu, Ísrael, breyttist skilgreiningin á gjörningi þeirra. Hryðjuverk og hernaður urðu að vörnum.

https://www.globalresearch.ca/german-unifil-forces-lebanese-christian-party-helps-israel-kidnapping-civilian/5872009 https://www.globalresearch.ca/joint-summit-organization-islamic-cooperation-arab-league-embargo-israel/5872733 https://www.globalresearch.ca/appeal-superpowers-stop-zionist-israeli-genocide/5872739 https://mideastdiscourse.com/2024/11/13/trumps-partner-for-peace-in-middle-east/ https://www.globalresearch.ca/wp-content/uploads/2024/11/iran-x.png 60.000 https://beeley.substack.com/p/israel-expands-genocidal-aggression?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=151278796&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalpolitics.se/den-vanarade-cia-chefen-vill-tjana-pengar-pa-koncentrationslager-i-gaza/?jetpack_skip_subscription_popup https://steigan.no/2024/11/netanyahu-sparker-forsvarsminister-gallant/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=oI6dYNDtjQY https://www.youtube.com/watch?v=RNXvmzTe4so https://www.youtube.com/watch?v=SxqUeUXcMGE https://www.youtube.com/watch?v=tzW1fWXs2pM https://www.youtube.com/watch?v=gvZXTlRCN5U https://steigan.no/2024/11/amerikanske-bombefly-ankommer-midtosten-for-a-stotte-israel/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/11/israelske-pogromer-herjer-byer-pa-vestbredden/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/11/jodisk-professor-arrestert-i-storbritannia-etter-pro-palestinsk-tale/?utm_source=substack&utm_medium=email https://2vbqh.r.a.d.sendibm1.com/mk/mr/sh/1t6AVsd2XFnIGLnFwrW29TkyPWsf5d/t8OqjjKm_RWX https://www.voltairenet.org/article221333.htmlhttps://www.voltairenet.org/article221333.html https://www.globalpolitics.se/tvekar-israel-att-sla-till-mot-iran/ https://www.youtube.com/watch?v=bFEurGy05ps&rco=1 https://sonar21.com/israel-continues-to-play-the-victim-while-killing-more-palestinian-and-lebanese-civilians/ https://www.youtube.com/watch?v=wyCrEsbOAk0 https://www.moonofalabama.org/2024/10/the-birth-pangs-of-the-new-middle-east-may-not-be-the-ones-the-us-has-wished-for.html#more https://gilbertdoctorow.com/2024/10/05/countdown-in-iran-to-israels-counterstrike-spotlight-on-press-tv/ https://www.youtube.com/watch?v=jvQ8ARthUn0 https://chrishedges.substack.com/p/genocide-as-colonial-erasure-w-francesca?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=150902670&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.voltairenet.org/article221376.html https://en.wikipedia.org/wiki/United_Nations_General_Assembly_Resolution_273 https://www.globalresearch.ca/present-state-israel-vs-israel-bible/5870275 https://www.youtube.com/watch?v=Hcn8jew42Dg https://www.youtube.com/watch?v=Hcn8jew42Dg https://www.voltairenet.org/article221463.html https://steigan.no/2024/11/israel-har-sluppet-over-85-000-tonn-bomber-inne-i-gaza-siden-folkemordet-startet/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=pnpt3ackC5Ihttps://www.youtube.com/watch?v=pnpt3ackC5I https://libertarianinstitute.org/news/washington-is-funding-70-of-israels-wars/ https://steigan.no/2024/11/smotrich-sier-trump-seier-gir-israel-mulighet-til-a-annektere-vestbredden/?utm_source=substack&utm_medium=email https://winteroak.org.uk/2024/11/13/amsterdam-gaslighting-and-the-horrible-truth/ https://palestinewillbefree.substack.com/p/israelspeak-a-guide-to-the-zionist-dictionary https://www.globalpolitics.se/maccabi-supportrar-drabbades-inte-for-att-de-ar-judar/?jetpack_skip_subscription_popup https://www.middleeasteye.net/news/turkey-severs-all-relations-israel-says-erdogan https://beeley.substack.com/p/steadfast-syrian-president-rejects?utm_source=substack&utm_medium=email#media-d1fbd4a5-818f-46c2-a60c-f8a00c601155 https://steigan.no/2024/11/smotrich-sier-trump-seier-gir-israel-mulighet-til-a-annektere-vestbredden/?utm_source=substack&utm_medium=email https://winteroak.org.uk/2024/11/13/amsterdam-gaslighting-and-the-horrible-truth/ https://www.aftonbladet.se/kultur/a/WRGrrg/upprop-om-kritik-av-staten-israel https://www.globalresearch.ca/israelis-amsterdam-chanting-fu-you-palestine/5872447 https://www.youtube.com/watch?v=5mDuxFnn2RY https://www.kitklarenberg.com/p/hasbaras-birth-israels-war-on-media?utm_source=post-email-title&publication_id=552010&post_id=151508209&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://gilbertdoctorow.com/2024/11/11/irans-press-tv-on-postponement-of-netanyahus-corruption-trial/ https://www.aftonbladet.se/kultur/a/5EWWvW/mikael-nyberg-om-usa-s-roll-i-israel-palestinakonflikten https://www.youtube.com/watch?v=5cXIn3LOsmg https://www.globalresearch.ca/israel-exterminating-northern-gaza-killing-journalists/5872395 https://steigan.no/2024/11/israelsk-droneangrep-skader-seks-unifil-soldater-i-libanon/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/11/netanyahu-anklaget-for-a-ha-forfalsket-utskrifter-fra-krigsmoter/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.uncaptured.media/p/us-authorizes-cia-mercenaries-to?utm_source=post-email-title&publication_id=976824&post_id=150538857&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://beeley.substack.com/p/never-allow-normalisation-of-genocide?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=150655039&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.kitklarenberg.com/p/how-zionists-invented-terrorism?utm_source=post-email-title&publication_id=552010&post_id=150705585&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=vd153dBOpDs https://libertarianinstitute.org/foreign-policy/report-shin-bet-warned-of-possible-hamas-assault-hours-before-october-7-attack/ https://www.youtube.com/watch?v=6R9dAsDlkng&rco=1 https://chrishedges.substack.com/p/the-world-according-to-trump-w-col?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=151352525&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2024/11/israelsk-politi-arresterer-to-franske-konsulat-gendarmer-i-jerusalem-frankrikes-utenriksminister-avlyser-besok/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.arte.tv/en/videos/115065-000-A/israel-extremists-in-power/


Bloggfærslur 15. nóvember 2024

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Nóv. 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband