Frelsun barna frá feðrum sínum og konur frá körlum yfirleitt, er eitt sjálfbærnimarkmiða Sameinuðu þjóðanna og Alheimsefnahagsráðsins (World Economic Forum). Þar er íslenska ríkisstjórnin að sjálfsögðu með í för, með Katrínu Jakobsdóttur í broddi fylkingar.
Þessi frelsun á sér stað á öllum vígstöðvum og víða um heim, t.d. í Ástralíu. Hinn ötuli baráttumaður fyrir jafnrétti, Bettina Arndt, hefur ritað grein um aðför stjórnar Anthony Norman Albanese, leiðtoga Verkamannaflokksins.
Samkvæmt greininni skal umbylt fyrri endurbótum á fjölskyldulöggjöfinni, í þá veru að tryggja jafnrétti foreldra til ábyrgðar og uppeldis barna við skilnað, m.a. með því að tryggja gagnkvæman rétt föður og barns til samvista við hvort annað. Þessi löggjöf er nokkurn veginn sambærileg þeirri íslensku, sem varð til fyrir einarða baráttu feðra og hliðhollra stjórnvalda. Kvenfrelsunarhreyfingin hefur aldrei tekið þessar breytingar í sátt.
Meginvopn kvenfrelsunarhreyfingarinnar í baráttunni fyrir forréttindum mæðra eru ákærur um ofbeldi feðra. Það kemur því ekki á óvart, að í hinni nýju löggjöf sé öryggi alfa og ómega. Drottnunarvopi kvenna, ákærum um kynferðislega áreitni, kynbundið ofbeldi, ofbeldi karla gegn börnum, ofbeldis- og eitureðli karla, og svo framvegis, skal nú beitt til hins ýtrasta á vettvangi fjölskyldunnar.
En það eru svo sem ekki ný tíðindi. Á Íslandi börðust kvenfrelsarar á Alþingi og í lögreglunni hatrammlega fyrir innleiðingu svokallaðrar austurrískrar leiðar, sem felur í sér, að feður/karlar eru brottrækir gerðir af heimilum sínum, ásaki móðir/sambýliskona (eða einhver annar) þá um ofbeldi.
Kvenfrelsunarfræðimennirnir styðja drottnunartilburði kvenna með dæmalausum rannsóknum sínum, á borð við þær, sem Vinnumálastofnun nú auglýsir; þriðja hver kona á Íslandi telur sig hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni (óskilgreint og engin heimild gefin upp). Slíka kvenfrelsunarrannsóknir eru legio, bæði á Íslandi og Ástralíu og reyndar um allan hinn vestræna heim.
(Vinnumálastofnun hefur nú blásið í herlúðra kynjastríðsins gegn körlum, sem háð er undir gunnfána jafnréttis, og skotið Vel-virk-um, svo og bandalagi Rauða krossins, forsætisráðherra og Ríkislögreglustjóra, Stígamótum og fleiri, ref fyrir rass. Samkeppnin á karlfjandsamlegum ofbeldismarkaði er býsna kröftug. Stríðið er fjármagnað af skattgreiðendum.)
Sálfræðingurinn, Jennifer McIntosh, sem komst að því, að feðrum væri ekki treystandi fyrir börnum sínum að nóttu til, er dæmi um slíka rannsókn. Sú rannsókn eins og mýgrútur annarra, ritrýndra áróðursrannsókna, hefur sýnt sig að vera aðferðafræðileg vitleysa.
Eftirtalin atríði munu verða felld úr gildandi löggjöf eða fá minni þýðingu, að dómi Bettina: Börnum verður ekki tryggður réttur til uppbyggilegs samneytis við báða foreldra; heldur ekki rétti barna til að þekkja báða foreldra og njóta umhyggju þeirra; á sömu lund fer um rétt barna til að dvelja hjá báðum foreldrum og öðru þýðingarmiklu fólki í lífinu, eins og ömmu og afa; rýrð er skylda beggja foreldra til að eiga hlutdeild í ábyrgð og skyldunum í sambandi við þroskun og aðbúnað barna; sömuleiðis rýrnar vænting um, að foreldrar verði á eitt sáttir um uppeldi barns til framtíðar.
http://www.warshak.com/e-libe/wp-content/uploads/2017/05/CR68-e-Stemming-the-Tide-6.5.pdf https://www.bettinaarndt.com.au/articles/youve-been-mcintoshed/ https://www.theguardian.com/law/2023/jan/29/government-to-scrap-equal-time-test-for-parents-in-custody-disputes-with-child-welfare-paramount https://12ft.io/proxy?q=https%3A%2F%2Fwww.afr.com%2Fpolitics%2Ffederal%2Ftime-s-up-for-equal-rights-in-court-custody-battles-20230201-p5ch1n https://bettinaarndt.substack.com/p/winner-takes-all?utm_source=substack&utm_medium=email
Hvað veldur því, að greindin gufar upp? Hvað er um að vera? Orsakirnar eru vafalaust margar. Helmuth Nyborg eins og margir fleiri benda á hnignun æðri menntastofnanna á Vesturlöndum. Hann segir:
Frá árinu 1968 hefur atferlisrannsóknum hnignað við marga háskóla. Þeir eru orðnir að hugmyndafræðilegum vettvangi, þar sem vinstrisinnaðir starfsbræður lifa og hrærast í uppeldislegri bjartsýni sinni á jafnréttishugsjónir með tilliti til kynja og kynþáttar. Því þykir þeim að sér vegið, þegar stundaðar eru rannsóknir, sem beinast að þýðingu lífeðlis á frábrigði greindarinnar, jafnt milli einstaklinga og hópa. Þetta tekur út yfir allan þjófabálk, jafnvel svo, að lífvarða, vopnaða hríðskotabyssum, sé þörf til að vernda frelsi til rannsókna og tjáningar.
Helmuth tiltekur hugmyndafræði marxismans, kvenfrelsunar og andkynþáttahyggju, menningarróttækni, jafnréttishugmyndafræði, ásamt hugmyndum um Hvítu skömmina, og Nýlenduskömmina. Kjarni hennar er þessi gagnvart vísindum:
Vísindi má lesa eins og hvern annan texta, lesa með siðferðileg gleraugu á nefinu og endurtúlka i ljósi þeirra.
Vísindi eru tæki stjórnmálanna til að kynna þá hugmynd; 1) að maðurinn sé skapaður af samfélaginu; 2) að frábrigði í fari fólks, kyn og kynþáttur, séu óréttlátar hugsmíðar, sem þurfi að leiðrétta; 3) að lífeðli sé atkvæðalaus (neutral) jarðvegur frábrigða hópa og einstaklinga.
Vísindi eru kúgandi. 1) Þeir, sem öðruvísi hugsa, eru óheiðarlegir, þá verður að draga í dilk, smána og gera að djöflum. 2) Koma þarf í veg fyrir, að rannsóknarniðurstöður þeirra nái til eyrna þeirra, sem með völd stjórnmálanna fara.
Vísindi eru bylting. Fagleg þekking á sálfræði hæfileikanna, sálfræði frábrigðanna (mismunar) og erfðafræði atferlisins verður að víkja fyrir stjórnmálalegum rétttrúnaðarviðhofum og -fræðum. Þetta á sér stað í nafni framfara.
Helmuth segir enn fremur: Breytingar á viðhorfum og afstöðu gagnvart vísindum og mannlegu eðli, endurspegla kerfisbundin, fræðileg svik, sem eru öndverð fræðimennskunni. Svikin eru almenn í þeim skilningi, að nokkrir málsmetandi vinstrisinnar og stofnanir, auðsýna ólöglega sviksemi. Í samvinnu við hinn þögla meirihluta hefur þeim tekist að spilla atferlisvísindunum, og afvegaleiða stefnumörkun á Vesturlöndum á sviði mennta, atvinnu og innflutnings á fólki.
Fjölmargir mætir vísindamenn taka í sama streng. Raunar má segja, að ríki vísindakreppa í hinum vestræna heimi.
Þegar árið 2005 skrifaði grísk-bandaríski lækningatölfræðingurinn, John P.A. Ionanidis (f. 1965), grein í vísindatímarit um aðferð og endurgerð rannsókna. Titillinn var ógnvænlegur: Hvers vegna flestar birtar rannsóknaniðurstöður eru rangar (Why Most Published Research Findings Are False). Það er óhætt að segja, að rannsóknarniðurstöður hans hafi valdið titringi í vísindasamfélaginu og varla hefur um hægst.
John komst að þeirri niðurstöðu, að það væri býsna algegnt, að athuganir væri ekki unnt að endurtaka eða endurgera, svo sannreyna mætti fyrri niðurstöður. Niðurstöður hans hafa síðar verið staðfestar að töluverðu leyti í öllum greinum, ekki síst í lækningafræðum og félagsvísindum. Þetta er kallað endurgerðarkreppan (replication crises eða reproduction crises). Því er einboðið, að niðurstöður verði að skoða í gagnrýnu, aðferðafræðilegu ljósi.
Fátt er mikilvægara í lífi og starfi en hæfileikinn til að gera grein fyrir, að beita rökum og rökföstum hugtökum, að læra, beita skynsemi og dómgreind, sýna glöggskyggni og rökhyggju. Þetta eru sjálfar undirstöður hugþroska fullorðins manns.
Kanadíski sálfræðingurinn, Steven Pinker, sagði um hana: Fegurð rökhyggjunnar felst í því, að henni má beita til að brjóta rökleysurnar til mergjar.( Upplýsingu nú þegar. Málsvörn skynsemi, vísinda, mannúðarhyggju og framfara (Enlightenment Now. The Case for Reason, Science, Humanism, and Progress.) Hann heldur áfram:
Virðing fyrir vísindalegri hugsun er ekki fólgin í þeirri óbilandi trú, að allar vísindalegar tilgátur á líðandi stundu séu sannar. Flestar hinna nýju eru það ekki. Hringrás tilgátna og afsönnunar er sjálf lífæð vísindanna. Sett er fram tilgáta og síðan reynir á, hvort hún stenst tilraunir til að hafna henni.
Hin vísindalega aðferð er haldbest í baráttunni við hindurvitni, fáfræði og dómgreindarbrest. En sjálfsrýni og meðrýni annarra er nauðsynleg á vísindalegum vettvangi sem og annars staðar. Það er auðvelt að gera sig að fífli. Norður-ameríski eðlisfræðingurinn, Richard Phillips Feynman (1918-1988), sagði skorinort um fyrstu reglu vísindanna: [Þ]ú ættir ekki að blekkja sjálfan þig og þig er auðveldast að blekkja.
Bloggfærslur 9. febrúar 2023
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021