Nafn auðjöfursins, William Henry eða Bill Gates þriðja (f. 1955), ber oft á góma, enda hefur mörg járn í eldinum, og, að því er virðist, sterka þörf fyrir að dást að sjálfum sér í spegli fjölmiðlanna.
Bill fjármagnar fyrirtæki; á sviði jarðartækni (geoengineering Stratopheric-Controlled Perturbation Experiment) til breytinga á loftslagi; á sviði gervitunglaeftirlits (EarthNow Global Surveillance Project), verkefni, þar sem ráðgert er að skjóta 500 gervitunglum, hlöðnum myndtækni, á loft, svo fylgjast megi með jarðarbúum allan sólarhringinn; á sviði örflögubólusetninga og heilsufarsupplýsingatækni (Quantum Dot Tattoo), sem gerir yfirvöldum kleift að viðhafa eftirlit með smáforriti í snjallsíma; á sviði lífftækni (Oxitec), sem vinnur að bólusetningum með stungum úr erfðabreyttum mýflugum; á sviði dýrabólusetninga, sbr. rannsóknaáætlun við háskólann í Eðínaborg (Edinburgh). Einkunnarorðin eru: Ein jörð, ein heilsa, eitt tækifæri, eins skringilega og það hljómar.
Eins og sjá má er Bill er fátt óviðkomandi. Á líðandi stundu kaupir kann upp bújarðar í erg og gríð til að vernda umhverfið, og fjárfestir eins og ýjað er að, í allra handa líftæknirannsóknum, sem einkum beinast að matvælaframleiðslu, æxlun, lyfjum og bólusetningum.
Bill birtist nær undantekningalaust og hvarvetna, þegar heilbrigðismál eru rædd eða veraldar gagn og nauðsynjar eru brotnar til mergjar. Hann er kynntur sem mannvinur, kraftaverkamaður, völva, vitringur og viðskiptajöfur, svo snjall, að fáir komast með tærnar, þar sem hann hefur hælana.
Síðast gerði hann út á skattgreiðendur með fyrirgreiðslu stjórnvalda í lýðræðisríkjum Vesturlanda, seldi þeim, þ.e. fyrirtæki hans, lyf eða bóluefni með ofboðslegum hagnaði. Ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur tók þátt í þeirri auðgun Bill.
Víða er komið fram við Bill eins og hann væri þjóðhöfðingi, enda hefur hann keypt, stutt eða mútað á báðar hendur í heimi fjölmiðla, stjórnmála og viðskipta heima við, og á alþjóðlegum vettvangi.
Ítök hans í heilbrigðisþjónustu eru ógnvænleg. T.d. er hann stærsti fjárfestir í Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (World Health Organization - WHO) og atkvæðamikill innan Alheimsefnahagsráðsins (World Economic Forum). Ráðið hefur markvisst unnið að alheimsþróunaráætlun, sem í meginatriðum er sú sama og Sjálfbærniáætlun Sameinuðu þjóðanna, enda eru þar að miklu leyti sömu hagsmunaöfl, sem ráða för.
Það er mikið vatn runnið til sjávar, síðan mamma hans bað auðkýfinginn, Warren Buffet, að taka piltinn upp á sína arma og kenna honum um auð og rétt viðhorf til tilverunnar. Bill var sendur í læri hjá International Business Machines (IBM), sem var hluti tölvuþróunarumhverfis í Kaliforníu. Þar var líka Steve Jobs (1955-2011). Þeir félagar rifust síðar um, hvor hefði stolið meiru af annarra hugbúnaði og hugmyndum, sjálfum sér til framdráttar.
Báðir sköruðu eld að eigin köku. Bill hagðaðist ofsalega á hugbúnaði sínum í skjóli bellibragðaeinokunar. Hann var sökum þessa dreginn fyrir dómstól og dæmdur. Thomas Penfield Jackson (1937-2013), dómari, lýsti Bill svo: Hann lítur á sjálfan sig sem eins konar Napóleon og [lítur stórum augum á] fyrirtæki sitt. Hrokinn á rætur í valdi og óbrigðulli (unalloyed) velgengni,
Bill var námsfús. Í bók sinni, Á rölti meðal risanna (Walking among giants) sagði hann m.a.:
Við drógum þann lærdóm af skoðun og samstarfi við Rockefellerfjölskylduna, að árangur í bíræfinni áætlun væri undir því kominn, að stofnað væri til samstarfs við félaga með sams konar viðhorf. Og okkur lærðist [líka], að ekki dygði að hugsa til skemmri tíma.
Rockefellerfjölskyldan vinnur að laust erfiðra verkefna í marga ættliði. Rockefellerfjölskyldan hafði m.a. komist að því, að ásýndin og orðsporið skipti meginmáli. Því voru ímyndartæknifræðingar ráðnir til starfa og stofnaðir allra handa velgjörða og mannúðarsjóðir, háskólar m.m. sem þjónuðu því hlutverki að stuðla að framgangi áhugamála fjölskyldunnar og auka auð hennar.
T.d. fjármagnaði hún svokallaða erfðabótaskráningarstofu (eugenics record office) í heimalandinu og erfðabótarannsóknir við Kaiser Wilhelm háskólann í Þýskalandi. Það var grunnurinn að rannsóknum og stefnu þýskra nasista og síðar að Mannfjöldaráðinu (Population Council), mannvinastofnun (non-governmental organization) Rockefellerfjölskyldunnar hjá SÞ.
Mannvinaviðskiptabrellan reyndist auðjöfrunum happasæl, enda hafði löggjafinn séð til þess, að slík viðskipti yrðu ekki skattlögð, að marki. Bill fetar í svipaða viðskiptaslóð og aðrir úr hans sauðahúsi.
Bill hefur eins og Rockefellerfjölskyldan og góðkunninginn, Jeffrey Epstein (1953-2019), brennandi áhuga á mannkynbótum. Hann setti á stofn sjóð (eftir krókaleiðum) með Jeffrey, samkvæmt frétt New York Times, til að fjármagna mannkynbætur að hætti þýskra nasista. Aðalsæðisgjafinn var Jeffrey sjálfur. Hugmyndin var að sæða 20 konur í kippum. Ég þekki ekki til nánara fyrirkomulags þessarar merkilegu mannræktar. En það er óhætt að fullyrða, að líkur sæki líkan heim.
Í framhaldinu verður fjallað lítillega um bólusetningaherferðir Bill stundum í beinu samstarfi við SÞ, einkum WHO og Barnaverndarstofnun þeirra (UNICHEF - United Nations International Childrens Emergency Fund). Viðskiptahugmyndin er líklega ættuð frá David Rockefeller (1915-2017), sem einnig studdi kvenfrelsunarhreyfinguna og átti hugmyndina að hamfarahlýnun. Það er nú reyndar svo, að eitt fyrirtækja hans hefur sett á markað fjarstýrða örflögugetnaðarvörn, sbr. skýrslu Nordplant frá árinu 1988.
Eins og kunnugt er, stefnir Bill að bólusetningu allra heimsins barna fyrir hinum og þessum sjúkdómum, ekki síst fyrir covid-19, og þeim pestum framtíðar, sem hafa verið boðaðar, sumar hverjar. (Bill hefur nú fengið samkeppni frá öðrum mannúðarauðfursta, Mark Zuckerberg, sem ætlar að koma í veg fyrir heilsufarsraunir jarðarbúa fyrir 2100.)
Sums staðar eins og t.d. i Keníu, hefur kveðið svo rammt að spillingu í sambandi við bólusetningar, sbr. bólusetningar við stífkrampa (tetanus), að almenningur hefur sent Gates (í þessu tilviki kvenfrelsaranum Melinda Gates) erindi þess efnis, að þau hætti fjáraustri til yfirvalda. Þar var forsætisráðherrann, Uhuru Kenyatta, í brennidepli.
Þetta gerðist á ráðstefnu í Naróbí árið 2019, þar sem saman kom fjöldi leiðtoga og fræðimanna til að leggja á ráðin um aðgerðir til að stöðva dauða af barnsförum og kynbundið ofbeldi, svo og stuðla að fjölskylduáætlunum. Uhuru var stefnt fyrir alþjóðlegan dómstól fyrir glæpi gegn mannkyni, en ákæru var vísað frá.
Nefnd bólusetningarherferð hófst árið 2013 í samvinnu við WHO og Unicef með það fyrir augum að uppræta stífkrampa hjá brjóstmylkingum. Hún beindist gegn konum á barnseignaraldri, þ.e. stúlkum frá 14 ára aldri. Sami leikurinn hefur verið leikinn í Mexikó, í Gvatemala og á Filippseyjum.
Í bóluefnið er laumað mótefnisvaka (tetanus toxoid), sem vinnur gegn kynkirtil- eða æxlunarvakanum (hormóni - human chorionic gonadotropin - hCG), sem verður til í fylgjunni, þegar kona hefur þungast. Þar af leiðandi stundum kallaður þungunarvakinn. Það er í grundvallaratriðum sama aðferð og notuð er við getnaðarvarna (anti-fertility vaccine) - og fóstureyðingabólusetningar (abortifacient vaccine).
Því má við bæta, að Kenía virkar á lyfja- og bólusetningaiðnaðinn eins og mykjuskán á mý. Enska er nefnilega opinbert tungumál, arfur frá breska heimsveldinu. Innviðir eru betri í flestu tilliti samanborið við önnur lönd Afríku og fáar hindranir í vegi iðnaðarins til að fara sínu fram. Því er ekki að undra, að mannvinaauðvaldið sjái sér leik á borði í Keníu til að gera tilraunir á auðtrúa fólki, börnum ekki síst.
Tilraunirnar í Keníu minna óneitanlega á bóluefnagetnaðarvarnartilraunir í Ródesíu/Zimbawe á áttunda áratugi síðustu aldar, í þeim tilgangi að fækka fólki. Lyfið eða bóluefnið heitir Depo-Provera. Algengar aukaverkanir eru; þyngdaraukning, truflun tíðablæðinga, trúlega auknar líkur á krabbameini hjá konum yngri en 35, blóðskortur (anemia), beinþynning (oseoporosis) og hætta á alnæmissmiti.
Tilraunin var síðar gerða á konum í Ghana á árunum 1999-2006 í boði Alþjóðaþróunarstofnunar Bandaríkjanna (United States Agency for International Development UDAID), Mannfjöldaráðinu og Rockefellerstofnuninni (Rockefeller Foundation). Rocekfellerfjölskyldan hefur eins og áður sagði, veruleg ítök í mannfjöldaráðinu. Í þessari tilraun var markmiðið einnig fólksfækkun. Níu þúsund konum var talin trú um, að um væri að ræða reglubundna heilbrigðisþjónustu.
Bóluefnið hefur nú fengið nýtt heiti, Sayana press. Bill, USAID og Barnafjárfestingasjóðurinn (Childrens Investment Fund Foundation), hafa sett það á markað víða í Afríku, en það er bannað í BNA. Markmið Barnafjárfestingasjóðsins er að bæta líf barna. (Framhald með heimildalista.)
Fólksfækkun, þ.e. getnaðarvarnir, ófrjósemisaðgerðir og fóstureyðingar, m.a. við bólusetningar, er afar vinsælt viðfangsefni.. Rannsóknir í þessu skyni stunda, auk WHO; Mannfjöldastofnun SÞ (UN Population Fund), Þróunaráætlun SÞ (UN Development Programme), Alþjóðabankinn (World Bank), Mannfjöldaráðið (Population Council), Rockefellerstofnunin, Barnaheilbrigðis- og mannþróunarstofnun Bandaríkjanna (US National Institute of Child Health and Human Development), Læknavísindastofnun Indlands (All India Institute of Medical Sciences), Ríkisháskólinn í Ohio og háskólarnir í Uppsölum og Helsingfors.
Indverjar fengu á tímabili nóg af bólusetningartilraunum Bill Gates í landinu. Honum var vísað að brott með allt sitt bólusetningahyski, en náði að kaupa sér náð síðar, þ.e. veitti forsætisráðherranum Narendra Modi verðlaun fyrir bólusetningar. Líklega bar hæst tilraun Bill með bóluefni við lömunarveiki (polio/oliomyelitis) og bóluefni við leghálskrabbameini (cervical cancer).
Síðastnefnda bólusetningatilraunin átti sér stað í Khamman héraði í Andhra Pradesh. Sextán þúsund stúlkur á aldrinum 9 til 15 voru bólusettar með Gardasil (Human Papilloma Virus Vaccine HVP) Stúlkuskinnin fengu alls konar aukaverkanir, nokkrar létust. Svipuð tilraun var gerð í Vadodara í Gujarat á rétt um 14.000 stúlkum, en nú notað bóluefnið Cervarix. Um var að ræða stúlkur minnihlutaþjóðarbrota (ethnic) í Indlandi, sem almennt bjuggu í opinberum skólabúðum.
Algengar aukaverkanir eru krampar, magaverkir, höfuðverkir, geðsveiflur, snemmkomnar tíðablæðingar og tíðakrampar.
(Sú grátbroslega markaðsvæðing hefur átt sér stað, að piltar eru nú líka bólusettir, þótt ekkert hafi legið að því að talið er. Því er haldið fram, að leghálsveiran geti valdið krabbameini í hálsi.)
Svipaða sögu er að segja af tilraunum með bóluefni við lömunarveiki. Þar hefur bóluefnið leitt til faraldurs, sem er skæðari en sá, sem stafar af villtu veirunni. Trúlega hefur tæp hálf milljón barna orðið lömunarveiki að bráð við bólusetningar á árabilinu 2010-2017. Þetta hneyksli varð til þess, að þing landsins samþykkti að vísa starfsemi Bill úr landi eins og áður er bent á.
Bill hefur gert svipaðar tilraunir víða í Afríku. Í litlu þorpi í Chad, Gouro, voru 500 börn bólusett með nýju bóluefni hans og félaga, MenAfriVac. Að minnsta kosti 40 þeirra á aldrinum 7 til 18 hafa lamast, fengu krampa og ofskynjanir. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur lagt blessun sínar yfir öryggisrannsóknir á bóluefninu.
Tilraunabólusetningar á börnum þriðja heimsins eru reyndar ekki nýjar af nálinni. Bill fetar sem sé troðnar slóðir. Á níunda áratugi síðustu aldar voru t.d. gerðar bólusetningatilraunir á börnum, frá sex mánaða aldri til þriggja ára, með þríeinu bóluefni (DTP) við stífkrampa (tetanus), barnaveiki (diphtheria) og kíghósta (pertussis) í Gínea Bissau. Rannsóknir Sören Wengel Mogensen og félaga sýndu aukna dánartíðni í kjölfar bólusetninganna.
Árið 2008 fór svo GAVI (sjóður, fjármagnaður af Bill og nokkrum ríkisstjórnum) á kreik með svipaða bólusetningaáætlun, en nú fyrir börn á fyrsta ári. Þetta er hluti áætlunar Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, Alheims bólusetningarframtaksins (Global Vaccine Action Plan). Það virðist engu máli skipta, að bóluefnið hafi verið bannað á Vesturlöndum. UNICHEF hefur nú tekið við boltanum.
Enn eru niðurstöður rannsókna þær sömu. Peter Aaby, sem einnig tók þátt í fyrri rannsókninni, segir: Allar aðgengilegar rannsóknaniðurstöður (evidence) bendir til að DTP bóluefnið kynni að drepa fleiri börn af öðrum orsökum en barnaveiki, stífkrampa og kíghósta. Aukin andlátstíðni hjá bólusettum stúlkubörnum var tíföld. Baráttumaðurinn, Robert F. Kennedy yngri, kallar þetta Bill Gates bólusetningalögmálið (effect).
Stjórnvöld þróunarríkjanna eru orðin vör um sig eins og t.d. í Nígeriu, þar sem Bandarísk stjórnvöld, þ.e. Sjúkdómavarnamiðstöðin (Centers for Disease Control CDC) og Þjóðarheilbrigðisstofnunin (National Institute of Health) gerðu, í samvinnu við WHO, bólusetningartilraun á 17.000 þunguðum konum, í þeim yfirlýsta tilgangi að vernda börn þeirra fyrir alnæmi (HIV). Bóluefnin höfðu ekki tilætluð áhrif. Þvert á móti smituðust 1000 börn af veirunni. Það var raunar fjöldi ríkja, sem tók þátt. Tólf þúsund konur lögðu líkama sinn til.
Tveim árum siðar, þ.e. 1996, mætti Pfizer á staðinn, þegar lömunarveikifaraldur hafði brotist út, til að gera tilraunir á fólki með Trovan, sýklalyfi, sem ekki var viðurkennt í BNA. Lyf, kallað Ceftriaxona, var prófað á 200 börnum. Ellefu þeirra létust. Aukaverkanir voru m.a.; heyrnarleysi, málleysi, lömun, heilaskaði, sjóntap og þvöglumælgi.
Þessi reynsla kann að hafa leitt til þess, að mútutilburðir Bill síðar voru uppgötvaðir af fjölmiðlum þar í landi. Bill hafði boðið 10 miljónir dala, gegn því, að þingið samþykkti á hraðbergi tillögu til laga um bólusetningaskyldu. Þetta er ekki einsdæmi í Nígeríu heldur lýsir aðferðum mannvinaauðvaldsins gagnvart fyrrum nýlenduríkjum. Þetta er ný-nýlendukúgun.
WHO og alþjóðabólusetningaauðvaldið láta það ekki endasleppt, því nú er bóluefni við malaríu komið í tilraunadreifingu víða um Afríku. Mosquirix heitir það, fyrsta bóluefni sinnar tegundar. Það hefur fengið markaðsleyfi, en þó er einungis bólusett með því í tilraunaskyni (pilot) á almenningi. Því rannsóknir hafa bent til þess, að eitt meinviðbragðanna sé lömunarveiki. Áhættan er tíföld almennt. Hjá stúlkubörnum tvöfaldast hætta á malaríu í heila (cerebral malaria) og einnig tvöfaldast áhætta á dauða af hvers konar völdum. Bólusetja á hvorki meira né minna en 720.000 börn.
Það vekur óneitanlega athygli, hversu áberandi eru tilburðir til fólksfækkunar, fóstureyðingar og getnaðarvarna, í viðleitni Bill og annarra úr hans sauðahúsi, til að hlúa að heilsu barna. Hugmyndir vestrænna auðjöfra og ríkja má rekja til 19. aldarinnar.
Í þessu sambandi er athyglisverð skýrsla nokkur, hálfrar aldar gömul, kennd við sjálfan Henry Kissinger, sem heitir því skrítna nafni; Þýðing mannfjölgunar í veröldinni fyrir öryggi Bandaríkjanna og hagsmuni handan hafs (Implications of Worldwide Population Growth For U.S. Security and Overseas Interests).
Þessi eftirtektarverða skýrsla var unnin af Leyniþjónustunni (Central Intelligence Agencey CIA), Alþjóðaþróunarstofnun Bandaríkjanna (United States Agency for International Development (USAID) og þrem ráðuneytum. Það hefur greinilega ekki verið kastað til höndunum.
Niðurstaðan kemur varla á óvart. BNA stafar ógn af mannfjöldaukningu og hagmunir þeirra eru í húfi með tilliti til auðæva heimsins. Því beri nauðsyn til að fækka (ákveðnu) fólki. Fjölmennustu ríkjunum skal fyrst hjálpa til fækkunar.
Hér endurspeglast óneitanlega erfðabótahugmyndir nasista og valinna auðkýfinga eins og Rockefellerfjölskyldunnar, Warren Buffet og Bill Gates.
Að þessu sögðu væri ekki úr vegi að íhuga orð írska skáldsins, George Bernhard Shaw (1856-1950), rituðum árið 1944:
Á voru méli þurfa greindir foreldrar ekki að láta bólusetja börn sín. Lög bjóða heldur ekki, að það skuli gert. Það leiðir ekki til þess, að mannkindinni verði þar með útrýmt af völdum bólusóttar (small pox) eins og fylgjendur [Edward] Jenner [1749-1823 sem fyrstur gerði tilraun með bólusetningar] hafa spáð fyrir um. Aftur á móti er það svo, að fleiri deyja af völdum bólusetninga en af sóttarinnar völdum.
Þessi orð virðist hafa skírskotun enn þann dag í dag.
https://expose-news.com/2023/01/04/bill-gates-gives-ukaid-tens-of-millions/ https://www.bmj.com/content/368/bmj.m734/rapid-responses https://www.nytimes.com/2021/05/16/business/bill-melinda-gates-divorce-epstein.html https://expose-news.com/2023/01/08/gates-schwab-depopulation-agenda-covid-vaccine-exposed/ https://21stcenturywire.com/2022/12/29/war-on-global-agriculture-the-unsustainable-sustainable-un-agenda-2030/ https://childrenshealthdefense.org/research_db/whos-malaria-vaccine-study-represents-a-serious-breach-of-international-ethical-standards/ https://www.wired.com/story/opinion-the-world-loses-under-bill-gates-vaccine-colonialism/ https://expose-news.com/2023/01/08/australian-lives-lost-to-vaccine-profiteering/ https://expose-news.com/2023/01/08/triple-jabbed-35x-likely-hospitaised-study/ https://talkafricana.com/4-unethical-medical-experiments-that-used-africans-as-guinea-pigs/ https://childrenshealthdefense.org/defender/gmo-mosquitoes-human-malaria-vaccine-study-nih/ https://expose-news.com/2023/01/09/cdc-ukgov-oxford-uni-covid-vaccine-kills/ https://stopworldcontrol.com/fuellmich-update/ https://www.dailymail.co.uk/news/article-2908963/Judges-demand-answers-children-die-controversial-cancer-vaccine-trial-India.html https://www.standardmedia.co.ke/health/health-science/article/2000093238/kenyan-patients-being-used-as-guinea-pigs-by-researchers https://www.bbc.com/news/world-africa-52192184 https://www.wemos.nl/wp-content/uploads/2016/06/The_Clinical_Trials_Industry_in_Kenya.pdf https://www.hli.org/resources/exposing-the-global-population-control/ https://pdf.usaid.gov/pdf_docs/Pcaab500.pdf http://www.whale.to/v/shaw1.html https://journals.sagepub.com/doi/10.1080/20508549.1995.11878318 https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/12266649/ https://www.scirp.org/journal/paperinformation.aspx?paperid=81838 https://www.gavi.org/sites/default/files/publications/progress-reports/Gavi-Progress-Report-2018.pdf https://www.sott.net/article/244118-Child-Paralyzed-By-Vaccines-And-Stolen-From-Her-Mother-By-The-State https://www.gavi.org/sites/default/files/document/performance-based-funding-information-sheetpdf.pdf https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC4975064/ https://childrenshealthdefense.org/news/the-bill-gates-effect-whos-dtp-vaccine-kills-more-children-in-africa-than-the-diseases-it-targets/ https://www.biospace.com/article/releases/dtp-vaccine-associated-with-increased-rate-of-total-mortality-in-low-income-countries-says-peter-g%C3%B8tzsche-in-new-expert-report/ https://markets.businessinsider.com/news/stocks/dtp-vaccine-associated-with-increased-rate-of-total-mortality-in-low-income-countries-says-peter-g%C3%B8tzsche-in-new-expert-report-1028452847 https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/28188123/ https://dailypost.ng/2020/05/04/bill-gate-offered-house-of-reps-10m-bribe-for-speedy-passage-of-compulsory-vaccine-bill-cupp-alleges/ https://www.ncronline.org/news/world/kenyas-catholic-bishops-tetanus-vaccine-birth-control-disguise https://stdavidandstpatrick.org/catholic-doctors-speak/ https://www.thedailybeast.com/melinda-gates-warned-bill-gates-about-jeffrey-epstein https://www.bibliotecapleyades.net/sociopolitica2/sociopol_win-micro-gates109.htm https://archive.org/details/a-deleted-bill-gates-documentary-has-been-revived https://www.bibliotecapleyades.net/sociopolitica2/sociopol_win-micro-gates142.htm https://www.thelastamericanvagabond.com/pharma-co-license-suspended-vaccine-blamed-sterilization-500000-women-children/ https://www.sundayguardianlive.com/news/ethical-questions-surround-vaccine-reduce-fertility https://vactruth.com/2013/01/06/paralyzed-after-meningitis-vaccine/ https://www.who.int/news-room/questions-and-answers/item/poliomyelitis-vaccine-derived-polio https://tokentube.net/view?v=2930245124 https://vactruth.com/2018/05/30/fertility-regulating-vaccines-india/ https://nationalpost.com/health/more-polio-cases-currently-caused-by-vaccines-than-the-wild-virus-who-report https://www.thehindu.com/news/cities/Delhi/vaccine-induced-paralysis-calls-for-action-says-study/article24740588.ece https://www.scidev.net/global/news/oral-polio-drops-linked-to-paralysis-in-india-1x/ https://economictimes.indiatimes.com/industry/healthcare/biotech/healthcare/controversial-vaccine-studies-why-is-bill-melinda-gates-foundation-under-fire-from-critics-in-india/articleshow/41280050.cms https://www.citizen.digital/news/who-to-support-president-kenyattas-healthcare-plan-187642 https://www.lifenews.com/2019/12/10/warren-buffet-foundation-spent-77-million-on-abortion-enough-to-kill-220000-babies-in-abortions/ https://www.huffpost.com/entry/warren-buffett-foundation-donation-contraception_n_55bfc47de4b0d4f33a03a567 https://www.bloomberg.com/news/articles/2015-07-30/warren-buffett-s-family-secretly-funded-a-birth-control-revolution https://www.thelancet.com/journals/lancet/article/PIIS0140-6736(16)32184-5/fulltext?rss%3Dyes https://nairobinews.nation.africa/please-dont-give-our-president-any-cash-kenyans-beg-melinda-gates/ https://www.thelancet.com/journals/lancet/article/PIIS0140-6736(09)60885-0/fulltext https://www.bitchute.com/video/oS9FBzThQfJP/ https://www.corbettreport.com/who-is-bill-gates-full-documentary-2020/ https://www.politico.com/news/2022/09/14/global-covid-pandemic-response-bill-gates-partners-00053969 https://www.theguardian.com/global-development/2020/sep/02/vaccine-derived-polio-spreads-in-africa-after-defeat-of-wild-virus https://apnews.com/article/virus-outbreak-health-middle-east-africa-united-nations-619efb65b9eeec5650f011b960a152e9 https://newsrescue.com/africans-used-guinea-pigs-risky-big-pharma-drug-trials/
Bloggfærslur 10. janúar 2023
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021