Bylting í Evrópu. Haustið í Prag

Mér er enn í fersku minni innrás Ráðstjórnarríkjanna í Tékkóslóvakíu árið 1968. Það var um vor og ég var eins og fleiri önnum kafinn við járnabindingar, þegar í hátölurum vinnusvæðisins glumdi við frétt; herjir Ráðstjórnarríkjanna, Póllands og fleiri Varsjárbandalagsríkja höfðu ráðist inn í Prag og brotið á bak aftur uppreisn hugrakkra Tékkóslóvaka gegn „alræði öreiganna.“ Það varð hljótt, meira að segja kranarnir hættu að ískra og snúast.

Nú rísa Tékkar upp í Prag. Haustið í Prag og hugsanlega Evrópu allri (nema Íslandi líklega) er andóf gegn stríðsvitfirringunni í Úkraínu. Ríkisstjórn, Evrópusambandi og Nató er mótmælt. Burtu með Grænþursana (Green deal) í Evrópu og fjandskap gegn Rússlandi, svo semja megi um orkuinnflutning og orkuverð, segja mótmælendur. En eins og flestum ætti að vera kunnugt ýta leiðtogar Evrópuríkja þjóðum sínum fram af efnahagslegu hengiflugi í barnaskapi sínum, hefndarhugi og heimsku.

Íbúar Prag bætast í raðir bænda, sem einnig mótmæla Grænþursum og stríðsæsingafólki. Meðan almenningur herðir sultarólina hækka þingmenn laun sín. Atvinnulausir Ítalir brenna straumreikningana. „Fin de l‘abondance,“ (nú er bruðlinu lokið) segir Emmanuel Macron.

Samkvæmt lögreglunni í Prag tóku 70.000 manns þátt í mótmælunum. Hvar var fréttaritari RÚV? Fjarri góðu gamni. Líklega er RÚV hrætt um ónáð, þ.e. hrætt við ásökun um upplýsingahryðjuverk eins og þeir, sem falla í ónáð hjá fjölmiðlum og yfirvöldum Evrópuríkja vegna skoðana á Úkraínustríðinu og óæskilegs vitnisburðar um það. Útrýmingarlisti úkraínsku leyniþjónustunnar og Nató vekur þeim vafalaust skelfingu líka.

https://steigan.no/2022/09/bondeprotestene-fortsetter-i-europa/?utm_source=substack&utm_medium=email https://georgeeliason.substack.com/p/is-zelensky-disappearing-and-murdering https://steigan.no/2022/08/macron-det-er-slutt-pa-overfloden/ https://winepressnews.com/2022/09/01/german-foreign-minister-says-she-will-put-ukraine-first-no-matter-what-my-german-voters-think-or-how-hard-their-life-gets/ https://www.liberation.fr/politique/fin-de-labondance-gauche-et-syndicats-taclent-le-message-decale-et-le-mepris-pour-le-peuple-demmanuel-macron-20220824_GCF7RDIHM5BGHFPLZX7YKOMHR4/ https://steigan.no/2019/02/vanessa-beeley-den-grove-politivolden-mot-de-gule-vestene-i-frankrike/ https://thewallwillfall.org/2022/05/18/torture-in-ukraine-interview-with-laurent-brayard/ https://beeley.substack.com/p/journalists-who-challenge-nato-narratives https://unherd.com/2022/08/europe-has-lost-the-energy-war/ https://thesaker.is/europe-now-cheats-or-suffers/ https://www.lastampa.it/cronaca/2022/09/02/news/tornano_le_proteste_in_piazza_a_napoli_da_parte_dei_disoccupati-8236519/ https://steigan.no/2022/09/kjempedemonstrasjon-i-praha-mot-regjeringa-energiprisene-nato-og-eu/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.blesk.cz/clanek/regiony-praha-praha-zpravy/721998/desetitisice-lidi-protestovaly-na-vaclavaku-proti-vlade-fiala-demonstraci-svolaly-proruske-sily.html


Uppljóstrari og íhald - undur og stórmerki í breskum stjórnmálum

Baráttan um formannssætið í breska íhaldsflokknum hefur líklega ekki farið fram hjá neinum. Fyrrum fjármálaráðherra, Rishi Sunak, og fyrrum utanríkisráðherra, Mary Elizabeth (Liz) Truss, bitust um embættið.

Arfurinn eftir Boris Johnson og afstaðan til hans varð óhjákvæmilega ásinn, sem allt snerist um í baráttunni. Striðshaukurinn, Liz, styður enn sem fyrr stríðsbrjálæðið í Úkraínu. Það má gera ráð fyrir því, að hún haldi áfram að eggja Úkraínumenn til dáða eða öllu heldur etja þeim á foraðið. Boris spillti friðarviðræðum við Rússa og beitti breska hernum í Úkraínu, m.a. í dauðadæmdum árásum á kjarnorkuver og í nýlegri hrakfallaárás í Suður-Úkraínu. Boris er ein fyrirmynd Liz. Önnur er sjálf járnfrúin fyrsta, Margaret Thatcher (1925-2013). Liz verður ugglaust járnfrú önnur. Bresku leiðtogarnir hafa ekki farið í grafgötur með stuðning sinn við þá stefnu Joseph Biden að lengja sem mest dauðastríð Úkraínumanna. Íslensk stjórnvöld leggja sitt lóð á þá vogarskál.

Vafalítið mun Liz einnig fylgja fordæmi Boris og leggja til nöfn á útrýmingarlista Myrtotvorets, samstarfsverkefnis úkraínskra og evrópskra stjórnvalda (Nató, Bretar eru þar áberandi eins og víðar). Rússneski blaðamaðurinn, sem Boris hafði „augastað á“, hefur nú verið afgreiddur inn í eilífðina. Vonandi er nýju Járnfrúnni þó ofboðið eins og þýskum stjórnvöldum, sem lögðu að útrýmingardeildinni að fjarlægja nafn Gerhard Schröder af listanum. Viktor Orban og Zoran Milanovic hafa einnig ratað á hann.

Rishi fór hina leiðina eins og Framsóknarflokkurinn forðum á dögum Steingríms Hermannssonar, gagnrýndi Boris og tók afstöðu gegn örlagaríkum veiruaðgerðum stjórnarinnar. Hann segist nú hafa verið andvígur þeim, veirulygi og lokunum. Hann hefur í uppljóstrunum sínum m.a. bent á múgstjórnunaraðgerðir eigin stjórnar sem og Alþjóðaefnahagsráðsins, Sameinuðu þjóðanna og fleiri. Fyrir skömmu hefðu þetta heitið falsfréttir.

Það er eftirtektarvert, að Bretar fóru svipaða leið og Íslendingar, samþykktu nánast hvaðeina, sem frá skipaðri nefnd vísindamanna kom (SAGE eða Scientific Advisory Group for Emergencies), sem var sambærilegt fyrirbæri íslenska þríeykinu (þar virtist þó lögreglumaður oft sérfræðinga mestur). Frelsissvipting, handtökur, einangrun og íþyngjandi efnahagsaðgerðir áttu sér stað með skírskotun til vísinda fyrrgreinds ráðs. Ofbeldisofstækið var ógnvænlegt. Þróunin er afskaplega lærdómsrík. Bretar eru á kúpunni, en Liz ætlar að láta skattgreiðendur greiða niður eymdina og ætlar aukin heldur senda fleiri pund og hermenn til Úkraínu.

Liz ætti að hlusta á Oscar Lafontaine, sem tekur þýska stjórnmála- og fjölmiðlamenn til bæna um utanríkisstefnu. Hið eiginlega stríð hófst löngu fyrir 24. febrúar á þessu ári, segir hann. Í raun hafa Þjóðverjar aldrei verið fullvalda heldur þjónað Bandaríkjunum sem eins konar lénsveldi. (Það má svo sem segja um Íslendinga og fleiri.) Hann hryllir við þeirri stefnu þýskra stjórnvalda að vopnvæðast af nýrri ákefð til þess að „eyða Rússlandi“ eins og Annalena Baerbock orðar það. En þýsk stjórnvöld hafa eins og þau bresku einnig sagt eigin skattgreiðendum og atvinnurekendum stríð á hendur.

https://www.rferl.org/a/germany-calls-kyiv-remove-enemy-of-the-state-list-mirotvorez-peacemaker-website-after-schroeder-listed/29603746.html https://www.craigmurray.org.uk/archives/2022/06/biden-works-to-prolong-ukraine-war/ https://www.berliner-zeitung.de/politik-gesellschaft/oskar-lafontaine-deutschland-handelt-im-ukraine-krieg-als-vasall-der-usa-li.261471 https://www.bbc.com/news/uk-politics-58575895 https://steigan.no/2022/09/statsledere-og-politikere-pa-den-ukrainske-dodslista/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.riotimesonline.com/brazil-news/modern-day-censorship/kiev-puts-hungarys-orban-and-croatias-milanovic-on-ukraine-state-enemy-list/ https://myrotvorets.center/1588417-about-myrotvotrets-center/ https://nclalegal.org/2022/09/ncla-suit-uncovers-army-of-federal-bureaucrats-coercing-social-media-companies-to-censor-speech/ https://www.moonofalabama.org/2022/09/the-ukrainian-counteroffensive-was-destined-to-fail-today-it-did-so.html https://www.indianpunchline.com/moment-of-truth-in-the-ukraine-war/ https://expose-news.com/2022/09/05/sunak-blows-the-whistle-on-whos-been-controlling-uk/ https://www.theguardian.com/politics/2022/aug/24/sunak-says-it-was-a-mistake-to-empower-scientists-during-covid-pandemic https://www.spectator.co.uk/article/the-lockdown-files-rishi-sunak-on-what-we-werent-told https://www.bbc.com/news/uk-politics-62664537


Bloggfærslur 7. september 2022

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Mars 2025

S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband