Eru vísindin hóra stjórnmálanna? Menntun til þjóðarmorðs

Nýlega lýsti Guðlaugur Þ., umhverfismálaráðherra, því yfir, að íslensk umhverfisstefna ætti að taka mið af vísindunum. Það gera yfirvöld á Ítalíu líka. En þau fengu á þeim merka degi, 17. júní árið 2019, bréf frá hartnær fimmtíu vísindamönnum, þar sem þeim var boðið að ræða raunveruleg vísindi um umhverfi. Í bréfinu er þeim m.a. góðfúslega bent á, að koltvísýringur sé ekki mengunarvaldur, heldur lífsgjafi á borð við vatn.

Þeim er sömuleiðis bent á, að engar sönnur hafi verið færðar á hlýnun jarðar og aukin heldur séu fullyrðingar um hlýnun af manna völdum orðum auknar. Yfirvöld eru einnig minnt á, að gildi vísindalegrar aðferðar felist í staðreyndum, en ekki fjölda jámanna við getgátum.

Nefndir vísindamenn álykta, að með tilliti til mikilvægis jarðefnaeldsneytis fyrir mannkynið, sé óráð að fylgja gagnrýnislaust þeirri stefnu að stemma stigu við losun koltvísýrings. Það sé tálsýn að ætla sér að stjórna loftslaginu. Vonandi senda ofangreindir Guðlaugi líka bréf, enda þótt lítil von sé til, að vísindalegar staðreyndir verði til þess að breyta trúarbrögðum ríkisstjórnar Íslands.

Fyrir skemmstu fengu ítölsku vísindamennirnir stuðning frá alþjóðasamfélagi vísindamanna, þ.e. 235 vísindamönnum, sem gáfu út svonefnda „Yfirlýsingu“ um loftslagið í veröldinni (World Climate Declaration).

Í þessu ljósi er skiljanlegt, að þýski prófessorinn, Knut Löscke, kalli vísindin „hóru stjórnmálamannanna.“

Knut talar tæpitungulaust um tíðarandann: „Ég er langþreyttur á því, að misnotaðir unglingar skuli lesa mér pistilinn um það, sem ég ætti að skammast mín fyrir. … Mér verður óglatt af því, hvernig minnihlutahópar á sviði trúar og kynferðis misnota blygðunarlaust gjörþekkt réttindi sín með þrálátum stuðningi fjölmiðla [og] vilja stjórna því, hvernig ég tjái mig.“

Breski læknirinn, Vernon Coleman, tekur í sama streng um bólusetningarrétttrúnaðinn. „Læknavísindunum hefur verið rænt af hagsmunavörðum stjórnmálanna. Andófsmenn, sem leyfa sér að efast um nýjan rétttrúnað hópsefjunarþráhyggjumanna, eru sekir fundnir um hugsanaglæpi. Dómurinn kveður á um níð og kúgun. Ófrumleiki hóphugsunarinnar undirokar og kæfir. Bólusetningar eru einungis eitt þeirra sviða í læknisfræði, sem ekki má ræða.“

Kanadíski mannfræðingurinn, Philip Carl Salzman, skrifar grein með fyrirsögninni: „Menntun til þjóðarmorðs“ (National Suicide by Education). Þar lýsir hann því, hvernig hugmyndafræði kvenfrelsunar og annarrar fórnarlambshugsunar (wokeness) hefur komið í stað vísindalegra staðreynda og þekkingarleitar í skólum ríkisins.

Philip Carl segir m.a.: „Við kennum börnum okkar, að um sé að ræða tvo samfélagshópa, bjargarlaus fórnarlömb og grimma kúgara. Blakkskinnar, frumbyggjar, litað fólk og konur, eru hvert og eitt kúgað hvarvetna. Aftur á móti séu bleikskinnar og karlar, kristnir, Gyðingar og Asíubúar (eins undarlega og það hljómar) forréttindafólk, illir misyndismenn.“

Kennarar segja, að stæðfræðin sé kynþáttafordómur. Í raun séu svör stærðfræðinnar ógild. Það jafngildir kúgun að halda því fram, að 2+2 séu 4. Svipuð viðhorf eigi við um tungumálið. „Krafan um um rétt svör, rökfærslu og vísindalega sannreynd séu syndir „hvítleikans. Það ríði á að hafna þeim í samfélagi, þar sem félagslegt réttlæti ríki.“

Því er það, að aðgengi að námi ræðst af þeirri kúgun, sem þolandi verður fyrir, en ekki af verðleikum og námshæfni. „Þetta tryggir meðalmennsku eða fullkomna vanhæfni, sem smýgur inn í stofnanir okkar: í heilbrigðisþjónustu, fræðimennsku og kennslu, í tækni, blaðamennsku, á lagasviði og í opinberri stjórnun. Afleiðingin er hnignun og eyðilegging.“

Því er haldið að konum, að þær séu beittar kynmismunun í æðri menntun, enda þótt þær séu víðast hvar í meirihluta. Þær sækjast ekki eftir sumum námsgreinum. „Engu að síður glymur viðkvæðið stöðugt í eyrum þeirra, að þær séu fórnarlömb kynmismununar.“ Og karlnemendum er kennt um.

Eins og áður er ýjað að, eiga staðreyndir ekki upp á pallborðið: „Allt frá forskóla til æðri menntunar er lögð áhersla á það í kennslu að hafna líffræði, þeirri þekkingu, sem hún geymir um lífeðlislega þætti í mannlífinu. Kennt er, að eðliskyn skipti ekki máli í lífinu; það sem mestu máli skipti, sé kyntilfinningin. Börnum er kennt, að þau geti valið um hundruð kynja. Sumir kennarar temja börnin til að gerast stuðningsmenn eða bandamenn lesbía-homma-beggjakynja-kynskiptinga og hinsegin, og segja, að þau geti að vild gefið sig á vald þeim undirhópi, sem þeim þóknast.

Höfundur spyr: „Hvaða útsmognu öfl eru það, sem hrundu allri þessari menningareyðileggingu af stað. Hver sprautaði þessu tortímandi eitri inn í menntakerfi vort, sem verður sífellt brjálæðislegra?

https://dailysceptic.org/2022/08/23/declaration-saying-there-is-no-climate-emergency-trends-on-twitter-greenies-have-meltdown/ https://expose-news.com/2022/09/03/reality-check-of-climate-feedbacks-fact-check/ https://dailysceptic.org/2022/08/04/massive-coral-growth-at-the-great-barrier-reef-continues-to-defy-all-the-fashionable-doomsday-climate-predictions/ https://dailysceptic.org/2022/06/24/climate-scientist-says-humans-cause-less-than-0-05c-of-global-warming-and-warns-of-anarchy-from-delusional-net-zero-policies/ https://dailysceptic.org/2022/08/30/bizarre-fact-check-of-world-climate-declaration-claims-no-natural-climate-change-for-almost-200-years/ https://clintel.org/wp-content/uploads/2022/06/WCD-version-06272215121.pdf https://dailysceptic.org/2022/08/18/1200-scientists-and-professionals-declare-there-is-no-climate-emergency/ https://petizioneitalianasulclima.it/wp-content/uploads/2020/05/Petizione-Italiana-English.pdf https://www.theepochtimes.com/national-suicide-by-education_4734523.html https://www.vikendi.net/2021/10/22/science-is-made-the-whore-of-politics/


Gullingöndulheilkennið

Kanadíski enskuprófessorinn fyrrverandi, Janice Fiamengo, hefur marga hildina háð við kvenfrelsarana, eftir að hún losnaði úr álögum þeirra, frelsaðist frá kvenfrelsun.

En þó! Kvenfrelsunin tekur nefnilega stöðugt á sig nýjar myndir, sbr. hið nýja „gullingöndulheilkenni.“ Enda er kvenfrelsun iðnaður orðinn, stjórnsýslusvið og opinber stjórnunarhugmyndafræði. Stjórnsýslan færir stöðugt út kvíarnar og markaðssókn ofbeldisiðnaðarins er árangursrík, kostuð af skattgreiðendum og fyrirtækjum eins og Sjóvá.

Kvenfrelsarar eru eigin undirtegund mannkyns. Janice segir þá hafa ríka tilhneigingu til að misskilja meinlaust grín og flimtingar (gestures), athugasemdir og yfirsjónir, sem þeir túlka sem kynkúgun. Þeir eru viðskotaillir, vænisjúkir, móðgunargjarnir og sannfærðir um ágæti sjálfra sín.

Enn fremur segir hún, að viðmælendur um hugmyndafræði kvenfrelsaranna flækist óhjákvæmilega í umræður um ónógan stuðning við konur, skort á fjölbreytni og ónóga þátttöku kvenna í stjórnun, kuldalegt viðmót gagnvart þeim og svik við kvenfrelsunarmálstaðinn.

Aukin heldur er viðbúið, að viðmælendur kvenfrelsaranna fái skýr skilaboð um það, að ákveðin hegðun og röksemdafærsla skapi þeim óöryggi og sé því í sjálfu sér svívirðing í garð kvenna, kynferðisleg áreitni eða kynbundið ofbeldi. Umkvartanir um kynáreitni og kynfólsku svífa yfir vötnum, sérstaklega gegn körlum, sem láta hjá líða að biðjast velvirðingar á meintum forréttindum sínum.

Í áratugi hafa kvenfrelsarar frætt okkur um ágæti kvenna og nauðsyn þess, að þær tækju við stjórnartaumunum utan stokks eins og innan. Hin hagsýna húsmóðir myndi uppræta spillingu, bera klæði á vopn, sníða stakk eftir vexti í fjármálum - og væri hún jafnframt hin algóða móðir, myndi eðlislægt eða kvenlægt ástríki hennar skapa hlýju í mannlífinu öllu. En fyrst yrði vitaskuld að gera byltingu, losa sig við kúgaranna, karlmenn. Nú vantar bara að reka smiðshöggið á ætlunarverkið. Framtíðin er óumdeilanlega kvenlæg.

Hreðjatak kvenna er öflugt, enda láta karlmenn sífellt betur að stjórn, verða stimamýkri, lúpulegri og tilhliðrunarsamari. Ofbeldisiðnaðurinn, þar sem karlmenn eru hráefnið, blómstrar sem aldrei fyrr. Ný orð eins og „kynferðisbrot“ (RÚV mállýska) eru fundin upp til að rugla greyin í ríminu. Þeir „stíga til hliðar“ og víkja fyrir konum, sé þeim gefið að sök, að hafa litið konu hýru auga eða stigið í vænginn við hana eða látið hvort tveggja hjá líða. Þeir eru dæmdir til „geldingar,“ ef styggðaryrði hrýtur af vörum, því konur eru nefnilega svo viðkvæmar og kynstyggar. Enda sagði skáldið; „aðgát skal höfð í nærveru [kven]sálar.“ Það hafa karlmenn aldrei kunnað. En nú ku flestir þeirra reyna að gera bragarbót, tileinka sér kvenlægar tilfinningar og tjáningu þeirra á betrunarnámskeiðum. Sumir eru meira að segja dæmdir til þess háttar lærdóms.

En það virðist ekki duga til. Hvílíkir ónytjungar og öfuguggar, gersneyddir hæfileikum til mannlegra samskipta og kynlífs? Það hefur nú reyndar verið til umræðu í kynfræðunum í áratugi, hversu illa þeim gengur að fullnægja konum í kynlífi.

Ónytjungshátturinn á ekki síst við um karlmenn við æðri menntastofnanir. Þar eru þeir að verða eins og hvítir hrafnar. Þó virðast kvennemendur sýna þeim áhuga sem kynverum. Það hefur stigið gumunum svo til höfuðs, að sjálfsálitið bólgnar eins og verðlagið um þessar mundir. Þessi bólga er orðin nýjasta kynferðisbrot þeirra.

Karlnemendur eru nefnilega haldnir eins konar „Casanovasjúkdómi“ eða „gullingöndulheilkenni“ (Golden Penis Syndrome). Það lýsir sér í því að svíkja konur í tryggðum, vekja þeim falsar vonir, notfæra sér þær í kynlífi og yfirgefa svo með sárt ennið. (Þetta er nú reyndar sígild lýsing á kynsál karla.)

Clarisse Cooke, tengslaráðgjafi, skilgreinir heilkennið svo: „Í gullingöndulheilkenninu felst sú hugvilla, að hlutaðeigandi sé einstaklega vel gerður sem karlmaður á sviði kynlífs sem öðrum sviðum, og geti þess vegna virt að vettugi viðurtekin gildi um góða háttsemi, virðingu og stefnumótasiði.“

Hún bætir við: „Því er það, að konur verða vonsviknar og sárreiðar, þegar karlarnir losa sig við þær, eftir yfirborðsleg kynni á stefnumótum og hörmulegar bólfarir af þeirra hálfu.“

Eins og allir vita er margt skrítið, bæði í kýrhausnum og kúgun kvenna. Nýjasta tilbrigði kvenkúgunar felst í skorti á karlmönnum til mökunar á æðri menntastofnunum. Samtímis berjast kvenfrelsunarstjórnvöld fyrir fjölgun kvenna í æðri menntun, svo og sérstakri valdeflingu stúlkna og fullorðinna kvenna á öllum sviðum.

Nú er reyndar komin út bók, sem gæti glatt meyjar í sárum og vilja frelsast frekar: „Láttu til skarar skríða. Hin nýju stefnumótavísindi og ástæða þess, að konur eru við stjórnvölinn“ (Make Your Move: The New Science of Dating and Why Women Are in Charge).

Það sætir varla furðu, að skynsamir karlmenn skuli draga sig í hlé, búa á „Hótel mömmu,“ (oft fjármagnað af pabba og skattgreiðendum), totta jónur, bryðja alsælutöflur, sjússa sig og spila tölvuleiki eins og Alheimsefnahagsráðið reyndar spáir að verði bráðum tómstundagaman þeirra, sem mega missa sín úr mannmergðinni. Þessir auðnuleysingjar gefa skít í atvinnu og menntun, gantast við og gamna sér með gervikonum - og jafnvel gleðikonum.

https://fiamengofile.substack.com/p/the-last-thing-a-pro-liberty-conference?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.aei.org/carpe-diem/chart-of-the-day-female-shares-of-ba-degrees-by-major-1971-to-2017/ https://fiamengofile.substack.com/p/i-hope-the-future-isnt-female https://news.gov.bc.ca/releases/2020JEDC0005-000257 https://www.nbcnews.com/news/us-news/men-s-rights-activists-are-attacking-women-s-scholarships-programs-n947886 http://www.thefutureisfemale.co/ https://hbr.org/2020/12/research-women-are-better-leaders-during-a-crisis https://www.replicon.com/blog/17-reasons-women-make-great-leaders/ https://fiamengofile.substack.com/p/critics-tell-young-men-that-their?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.dailymail.co.uk/femail/article-10152727/How-golden-penis-syndrome-ruining-modern-dating.html


Bloggfærslur 30. september 2022

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Mars 2025

S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband