Alþýðuréttarhöld (fordæmisréttarhöld common law, natural law) við yfirheyrslur í kviðdómi (grand jury) eru nú hafin á alheimsgrundvelli. (Grand Jury Proceeding by the Peoples Court of Public Opinion.) Rannsóknin beinist að meintum glæpum gegn mannkyni, þar sem sökudólgar eru m.a. lyfjafyrirtæki, veirusérfræðingar og stjórnvöld.
Alþýðuréttur grundvallast á þeirri sannfæringu, að hver og einn sé jafngildur þegn samfélagsins og að sjálfsvald hans megi ekki skerða, nema almenningsheill liggi við, svo metið af jafningjum eða ríkisvaldi. Alþýðuréttur starfar handan hins opinbera réttarkerfis ríkisvaldsins, en réttarhöldin miða að því að safna vitnisburði, sem gæti dugað til saksóknar í hinu opinbera réttarkerfi.
Dómstóll alþýðunnar rekur ættir til uppreisnar almennings og aðals í Englandi gegn konungi vegna allra handa ofbeldis og ofríkis af hans hálfu. (Lögbókin, Magna Carta Libertatum, birt 1215.)
Nefnd grundvallarhugsun um mannhelgi og mannréttindi endurómar t.d. í sjálfstæðisbaráttu Bandaríkjamanna, frönsku byltingunni, Nürnberg- yfirlýsingunni (gegn tilraunaofbeldi), mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna, yfirlýsingu Mennta-, vísinda og menningarmálastofnunar SÞ (United Nations Eductional, Scientific and Cultural Organization UNESCO) um lífsiðferði og mannréttindi (2005).
Það eru fjórir meginliðir í umfjöllun kviðdómsins (hér endursagt í grófum dráttum á grundvelli framsögu þýska lögfræðingsins, Reiner Füllmich):
1)Það er í raun engin kórónaveirufarsótt, heldur ásetningur um að baka tjón m.a. við beitingu PCR prófa til að hrella þjóðir heims og halda þeim í heljargreipum óttans. Áætlunin á langa forsögu. Hún dregur dám af svínaflensunni fyrir u.þ.b. tólf árum síðan, sköpuð af hatursfullu, geðveikluðu fólki, sem rekið var áfram af hvötinni til að ríkja yfir veröldinni. Þetta fólk nýtur stuðnings stjórnvalda og fjölmiðla, sem margir hverjir eru í þeirra eigu.
2)Veirusýkinguna má lækna með ýmsum hætti. En meðferð var bönnuð af yfirvöldum til að stuðla að bólusetningu með hættulegu bóluefni.
3)Það eru sömu aðiljar, sem með sviksömum hætti og endurskilgreiningu á farsótt, settu svínaflensuna á svið, sem einnig sköpuðu Covid-19 fárið. Þá eins og nú snerist málið um auð. Stjórnvöld hafa gengið í eina sæng með auðjöfrunum í Alheimsefnahagsráðinu (World Economic Forum) og ganga erinda þeirra. Þau er því ekki okkar stjórnvöld lengur. Bill Gates og Angela Merkel voru útskrifið úr skóla þess árið 1992. Síðar komu m.a. Sebastian Kurz, Justin Trudeau, Jacinda Ardern, Francois Macron. [Katrín okkar Jakobsdóttir er einnig skólagengin hjá Alþjóðaefnahagsstofnuninni og virkur þátttakandi.]
4)Takmark umræddra er að ná völdum í veröldinni með því að rústa minni og meðalstórum fyrirtækjum, takmarka fólksfjölgun og ráðskast með erfðavísa mannkyns. Lýðræðið er þeim fjötur um fót eins og stjórnarskrá og löggjöf. Í því skyni að eyðileggja hvort tveggja, skapa þeir ringulreið og skelfingu. Alheimsstjórn er undirbúin undir merkjum Sameinuðu þjóðanna, sem nú þegar er undir stjórn þeirra og Alheimsefnahagsráðsins. Þannig verða þurrkuð út séreinkenni þjóða og menning. Fólk verður skyldað til að bera stafrænt vegabréf, þar sem allt er skráð. Það auðveldar taumhald á fólki. Þar að auki er í bígerð rafmynt fyrir alla veröldina, sem útgefin verður í einum Alþjóðabanka.
Skipulagning kórónuveirufaraldursins hófst í síðasta lagi vorið 2001, áætlun myrkur vetur (operation dark winter). Síðar komu æfingar eins og sporgöngu og fótfjötra -æfing Rockefeller stofnunarinnar (Lockstep exercise) árið 2010 og að endingu Atburður 201 (Event 201) í október 2019 í Nýju Jórvík (NY).
Bakhjarlar þeirrar síðastnefndu voru Miðstöð heilsufarsöryggis við John Hopkins háskólann, Rockefeller stofnunin, Alheimsefnahagsráðið og Stofnun Bill og Melinda Gates. [Þær tvær síðarnefndu hafa einnig veitt ógnarlegum fjármunum í kvenfrelsunarbaráttuna. Markmið kvenfrelsaranna er líka að tæta sundur fjölskylduna, siði og menningu þjóða.]
Spjótin beinast einkum að eftirtöldum:
Christian Drosten (f. 1972), veirufræðingi frá Þýsklandi (föður PCR prófsins).
Anthony Fauci (f. 1940), forstjóra Ofnæmis- og smitsjúkdómastofnunar BNA (National Institute of Allergy and Infectious diseases).
Tedros Adhanom Ghebreyesus (f. 1965), ættaður frá Eritreu, MA í ónæmisfræði og doktor í lýðheilbrigði (community health).
Bill Gates (f. 1955), bandarískum auðjöfri, sem hefur ítök víða um heim.
Black Rock, alþjóðlegum fjárfestingasjóði, sem teygir anga sína um alþjóðasamfélagið.
Pfizer, alþjóðlegt lyfjafyrirtæki. [Fyrirtækið hefur í áratugi verið alræmt fyrir svik og pretti. Íslensku Pfizer fóstbræðurnir, Þórólfur og Kári, höfðu að fyrra bragði samband við fyrirtækið til að bjóða því til tilraunasamvinnu á Íslendingum með bóluefni þess.]
Almenningur víða um heim gerir á líðandi stundu uppreisn gegn veirufári stjórnvalda. Mótmæli almennings í Þýskalandi (mánudagsgöngutúrarnir) og vörubifreiðarstjóra í Kanada eru mest áberandi, en málshöfðanir í hinu opinbera réttarkerfi eiga sér einnig stað. T.d. fara nú indverskir foreldrar fram á skaðabætur fyrir börn sín, sem fallið í valinn vegna bólusetningar. Þeir fara jafnframt fram á rannsókn á spillingu í stjórnkerfinu.
Þekkt er málshöfðun á Íslandi, þar sem látið var reyna á gildi PCR prófs og lagaheimild fyrir þeirri ráðstöfun að þvinga sakarábera í sóttvarnareinangrun. Það mál tapaðist. Þórólfur varðist með tilvísun til ábyrgra stofnana í útlöndum, m.a. til stofnunar Anthony Fauci.
Nýlega var Pfizer dæmt til að opinbera öll grundvallargögn í sambandi við framleiðslu á og tilraunir með bóluefni sitt. Fyrirtækið færist undan með þeirri röksemd, að gögnin séu svo viðamikil og starfslið svo fámennt, að það muni taka áratugi að ljósrita þau.
https://www.tiktok.com/@cavemoux/video/7061591429088414982?lang=en
https://steigan.no/2022/02/storjuryen-for-a-avdekke-covid-forbrytelsene-mot-menneskeheten/
https://www.grand-jury.net/
https://www.youtube.com/watch?v=ELTFNkCdzjA
Bandaríski þingmaðurinn, Ron Johnson, er einn þeirra, sem leita þekkingar og svara við ýmsum áleitnum spurningum um veiruvána og bólusetningar. En það er við ramman reip að draga. Leyndarhyggjan er yfirþyrmandi, sama hvert litið er. Stjórnvöld, kosin af almenningi, kinoka sér við eins og þau íslensku að starfa fyrir opnum tjöldum. Svo það er von, að fólk spyrji, hvað búi að tjaldabaki. Þrátt fyrir leyndarhyggjuna hafa nokkrir ljóstrað upp samvisku sinnar vegna, ekki síst um aukaverkanir af lyfjunum, sem stjórnvöld jafnvel sprauta í fólk undir þvingunum.
Í réttarhaldi Alríkisþings BNA fyrir skömmu síðan, ljóstraði lögfræðingurinn, Thomas Renz, því upp, að aukaverkanir bólusetningar á bandaríska hermenn hefðu farið hljótt. Venjulega er það þannig, að aukaverkanir megi tilkynna til opinberra fylgikvillaskráa, en almennt er talið að einungis eitt til tíu prósent aukaverkana rati þangað. Hins vegar er aðra sögu að segja, þegar markviss leit er gerð að fylgikvillum.
Thomas upplýsti um eftirfarandi bráðbirgðatölur samkvæmt herlæknunum Samuel Sigoloff, Peter Chambers og Theresa Long. Hér er stiklað á stóru. Samanburðargrundvöllur er meðaltal fimm síðustu ára, áður en pestin skall á:
Tilvikum háþrýstings hefur fjölgað um 2.181%.
Miðtaugarkerfissjúkdómar hafa aukist um 1.048%.
Illkynja æxlum í vélinda hefur fjölgað um 894%.
Heila- og mænusiggssjúkdómnum (multiple sclerosis) hefur fjölgað 680%.
Guillain-Barré heilkenni (ónæmiskerfið ræðst á eigið úttaugkerfi) hefur fjölgað um 551%.
Brjóstakrabbamein hefur aukist um 487%.
Tilvikum um eyðingu taugaslíðurs (demyelination) hefur fjölgað um 487%.
Illkynja æxlum í skjaldkirtli og öðrum innkirtlum hefur fjölgað 474%.
Tilvikum um ófrjósemi kvenna hefur fjölgað um 471%.
Tilvikum um starfsemistruflanir í eggjastokkum hefur fjölgað um 437%.
Fósturlátum hefur fjölgað um 300%.
Afmynduðum nýburum hefur fjölgað um 150%.
Krabbi í eistum hefur aukist um 300%.
Tilvikum um hjartsláttaróreglu hefur fjölgað um 302%.
Thomas benti enn fremur á, að fjarlægð hefðu verið gögn úr gagnabanka hersins um hjartaáföll (myocarditis). Hann bendir einnig á staðreyndir úr þríelfdu gagnsafni, Áætlun Salus (Project Salus); þ.e. gagnasafni á vegum Varnarmálaráðuneytisins (Defense Medical Epidemiology Database DMED), samþættum gagnagrunni Varnarmálaráðuneytisins (military-civilian integrated health database) og gagnagrunni Miðstöðvar sjúkdómsstjórnunar og heilsuverndar (Centers for Disease Control og Prevention - CDC).
Þar kemur m.a. fram, að 71% nýrra sjúklinga er að fullu bólusettur og 60% sjúklinga, innlagðra á sjúkrahús, eru að fullu bólusett. Þetta er spilling á efsta stigi. Rannsókna er þörf. Rannsaka verður varnarmálaráðherrann. Rannsaka þar CDC. Hann heldur áfram:
Gerðar eru tilraunir á hermönnum okkar, þeir bíða heilsutjón og eru stundum jafnvel drepnir, segir Thomas. [Bandarískir hermenn voru einnig tilraunadýr, þegar búa átti til svínaflensufaraldur á sínum tíma.]
Jósef Biden hefur skyldað herfólkið til bólusetningar með bóluefni Pfizer og bóluefni góðkunningja síns, Anthony Fauci, hluthafa í Moderna, og farsóttarleiðtoga Bandaríkja Norður-Ameríku (þeirra Þórólfur).
En nokkrir þráast við og hafa stefnt ríkisvaldinu.
https://openvaers.com/images/r18hs017045-lazarus-final-report-20116.pdf
https://vaccineimpact.com/2022/genocide-military-medical-whistleblowers-reveal-miscarriages-birth-defects-and-infertility-rates-exploded-in-2021-following-covid-vaccines/
https://childrenshealthdefense.org/defender/covid-vaccines-miscarriages-cancer-neurological-disorders-military/
https://childrenshealthdefense.org/defender/covid-policies-serve-big-pharma-not-people/
https://childrenshealthdefense.org/defender/ron-johnson-dod-respond-covid-vaccine-injuries/
https://palexander.substack.com/p/senate-discussion-with-senator-johnson?token=eyJ1c2VyX2lkIjo0Njk0NzAxNCwicG9zdF9pZCI6NDgyOTc1MzUsIl8iOiJvVEw4TCIsImlhdCI6MTY0NDMzOTY2MiwiZXhwIjoxNjQ0MzQzMjYyLCJpc3MiOiJwdWItNTc5MzU2Iiwic3ViIjoicG9zdC1yZWFjdGlvbiJ9.LEwKIAWIRdW-4a7z13WaSqjeZD7WPBBhF_BxNCMfZK4
https://www.bitchute.com/video/8i91cq2LTdfP/
https://www.youtube.com/watch?app=desktop&v=9jMONZMuS2U
https://rumble.com/vt7f7z-attorney-thomas-renz-statement-on-dod-whistleblowers-findings.html
Bloggfærslur 8. febrúar 2022
Nýjustu færslur
- Síonistabyltingin og gjöfulir Gyðingar. Byltingargyðingaprest...
- Baráttan fyrir betri heimi á nítjándu öldinni. Jafnaðar- og b...
- Baráttan fyrir betri heimi á nítjándu öldinni. Jafnaðar- og b...
- Gáttir Helvítis munu yður opnast. Stríðsyfirlýsing Ísraels og...
- Uppreisn í Ísrael og friðarhöfðinginn í Hvíta húsinu
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021