Væntanlega hafa flestir orðið varir við aðvörunarorð frá alþjóðlegu samfélagsmiðlunum. Það er varað við falsfréttum, óhollu lesefni, og samtímis bent á annað betra, að dómi hlutaðeigandi miðils. Þetta er afar áberandi, þegar umræða um Covid-19 á í hlut. Stundum eru miðlarnir hreinsaðir af tilteknum viðhorfum og skoðunum.
Þessi ósköp eru mörgum hugleikin, m.a. Larry nokkrum Romanoff. Hann er fyrrverandi stjórnunarráðgjafi og athafnamaður. Larry fræðir m.a. um Poynter stofnunina (Poynter Institute) í grein, sem krækt er neðanmáls:
Poynter er fjármagnað af m.a. George Soros (Stofnuninni til framdráttar opnu samfélagi Foundation to Promote Open Society), Mannvinastofnun Bill og Melinda Gates, Fésbók, Charles Koch stofnuninni, Fréttafrumkvæðisdeild Google (Google News Initiative), Þjóðlega lýðræðissjóðnum (hið borgaralega andlit leyniþjónustu Bandaríkja Norður-Ameríku CIA), Pierre Omidyar (eBay), sem fjármagnar alheimsveiruáróður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, ásamt fleirum. Það var einnig fyrirtæki Pierre, Luminate, sem fjármagnaði áróðurmynd um Hvíthjálmana, mannvina- og undirróðurssamtök í Sýrlandi.
Poynter kynnir sig sem ágóðasnauðan (non-profit) alheimsleiðtoga á sviði blaðamennsku, sem í þjónustu lýðræðisins menntar, þjálfar, styður við og talar fyrir siðsemi og sjálfstæði í fréttamennsku.
Fyrirtækið gumar af undirdeild sinni sinni, Craig Newmark miðstöð siðfræði og stjórnunar, svo og þrem sannreyndarfyrirtækjum, þ.e. PolitiFact og Media Wise til viðbótar Alþjóðlega sannreyndarnetkerfinu (International Fact-Checking Network IFCN).
Ofangreint netkerfi semur staðla fyrir staðreyndamálaliða á heimsvísu. Þeir, sem þráast við að fylgja stöðlunum, eiga það á hættu að heltast úr leitarvélalestinni. Því má líta á fyrirtækið sem eins konar upplýsinga- og fréttalöggæslu.
Þessi fréttalögga stjórnar í raun ritskoðun á Fésbókinni og öðrum svipuðum vettvöngum. Poynter hefur fleiri járn í eldinum. Það er líka blaðamannaskóli, sem þjálfar rithöfunda og blaðamenn. Fyrirtækið stefnir að algjöru fjölmiðlunargerræði.
Poynter njósnar sömuleiðis og safnar upplýsingum í því skyni að öðlast yfirráð yfir auglýsingamarkaðnum. Forstjóri þess, Barrett Golding, lét orð falla á þessa leið: Falskar fréttir eru atvinnugrein. Stór hluti hennar sækir tekjur sínar til auglýsinga. Það er von okkar að skráin (yfir 515 óáreiðanlegar fréttastofur) komi auglýsendum, sem vilja spyrna vilja gegn falsfréttum, að gagni, rétt eins og blaðamönnum, fréttaáhugamönnum og rannsakendum.
Larry er ekki kunnugt um staðreyndamálaliða, sem starfa utan netkerfisins, enda þótt sumir séu á mála hjá almannatengladeildum nokkurra háskóla, því þær eru fjármagnaðar af sömu aðiljum. Þreifiarmar Poynter ná víða. Í Noregi heitir armurinn Faktisk.no.
Ofangreindur Larry er viðfangsefni Poynter meðal margra annarra. Krækju á boðskap þeirra má sjá neðanmáls. Vinnubrögðin virðast dæmigerð. Staðreyndamálaliðinn býr til fullyrðingu, sem eignuð er Larry, áður en lesandinn er leiddur í staðreyndan sannleika, sem reyndar er margsannaður erkiþvættingur, sóttur í sérpantaða vísindagrein, skrifuð fyrir atbeina Anthony Fauci, veirueinvalds Bandaríkja Norður-Ameríku.
Atlaga staðreyndamálaliða Agence France-Presse (AFP) á Samtök kanadískra fræðimanna um covid-19 (Canadian Covid Care Alliance) fyrir greiningu á vísindafúski Pfizer, er annað dæmi um vinnubrögð sannreyndarfyrirtækjanna. AFP kynnir sig til leiks á alþjóðavísu sem áreiðanlegan, ágóðasnauðan (non-profit) miðil, sem flytji lesendum sínum sannreyndar og yfirgripsmiklar fréttir af heimsmálunum.
Hlutleysi og áreiðanleiki fyrirtækisins fellur um sjálfan sig við fyrstu skoðun. Í stjórn þess sitja m.a. fimm menn með bein stjórnmálaleg tengsl; tveir þeirra við ríkisrekna fjölmiðla og þrír við fulltrúa ríkisstjórnarinnar. Aukin heldur er félagsskapurinn fjármagnaður að mestu leyti af franska ríkisvaldinu, sem er mikið í mun að sannfæra franska þegna um covid-19 bólusetningarboðskapinn. Það yrði of langt mál að tíunda umræðuna hér. Bendi á krækju.
Það eru fleiri, sem leggjast á sveif með Poynter. Trúverðugleikasamsteypan (Credibility Coalition) er mikilvægur samherji við að breiða út réttar skoðanir. Bakhjarlarnir eru engir aukvisar eða afturkreistingar. Gamlir kunnningar á borð við Mannkærleikastofun Bill og Melinda Gates og leyniþjónustu Bandaríkjanna í borgaralegu gervi sínu, birtast þar ljóslifandi, sem og hugsmiðja (think tank), tengd Nato, Atlantic Council. Það vekur athygli, að meðal fjölda sjóða, mannþrifasamtaka, hagsmunasamtaka, auðkýfinga og opinberra bakhjarla, er að finna Norsk Kringkasting (norska RÚV) og norska rannsóknarráðið (Forskningsrådet Norge).
Trúverðugleikasamsteypan segist vinna að því markmiði að skapa sameiginlegan staðal fyrir trúverðugleika upplýsinga með því að eiga frumkvæði að aðgerðum, þar sem fólk og stofnanir hittast við margvíslega sýslu. Blaðamenn, fræðimenn, háskólakennarar, nemendur, leiðtogar, tækimenn og hinir ósérhæfðu, en áhugasömu, skapa marksækið umhverfi til rannsókna. Markmiðið er sem sagt að efla samvinnu í leit að sannleikanum, gæðum og áreiðanleika upplýsinga á netinu. En það skiptir sköpum fyrir samfélag borgaranna, segja hinir vísu.
Ég slæ botninn með orðum Larry: Það er ekki leitin að sannleikanum, sem er mikilvægasti tilgangur þessa staðreyndaiðnaðar, heldur er um að ræða lævíslegt tilbrigði við ritskoðun, hinsta viðleitni til að snerkja snærið um upplýsingaskjattann til að varna því, að óþægilegir sannleiksmolar velti úr honum. Fari svo, er þeim eytt umsvifalaust. Annar áhrifaríkur tilgangur sannreyndarinnar er að kæfa vitneskju um glæpi og óhæfuverk, sem framin eru af Alþjóðlegum samtökum launráðamanna (International Cabal of Gangsters) og hlífa þeim við vítum almennings. Einasta skilyrði fyrir brautargegni þeirra er trúgjarn og óupplýstur almúgi.
https://www.poynter.org/?ifcn_misinformation=larry-romanoffs-statements-claiming-who-has-taken-part-in-creating-various-viruses-in-the-laboratories-the-organization-has-spread-the-new-coronavirus-in-the-world-so-that-the-pharmaceutica
https://www.canadiancovidcarealliance.org/wp-content/uploads/2022/01/Fact-Checking-The-Fact-Checkers-1.pdf
https://steigan.no/2021/06/faktasjekker-industrien-er-en-global-kampanje-for-a-sla-ned-dem-som-vil-avlore-sannheten/
https://www.atlanticcouncil.org/
https://thegrayzone.com/2019/02/18/ebay-oligarch-pierre-omidyar-funding-media/https://thegrayzone.com/2019/02/18/ebay-oligarch-pierre-omidyar-funding-media/
https://thegrayzone.com/2019/02/20/pierre-omidyar-regime-change-cia-cutouts/
https://www.poynter.org/major-funders/
https://www.moonofshanghai.com/2021/06/en-larry-romanoff-propaganda-and-media_28.html
https://www.moonofshanghai.com/2021/06/en-larry-romanoff-propaganda-and-media_28.html
Bloggar | 23.2.2022 | 14:57 (breytt kl. 14:58) | Slóð | Facebook
PCR-prófið hefur dunið í eyrum okkar síðustu tvö árin eða svo. Það hefur skilið á milli feigs og ófeigs. Þeir, sem fallið hafa á prófinu, hafa verið skikkaðir af Sóttvarnaeinræðisherra ríkisins (Embætti landlækni) til sóttrefsivistar á heimilum sínum eða sóttvarnafangabúðum.
Reyndar hafa allar greinar ríkisvaldsins tekið undir í sóttvarnahljómkviðunni. Embætti ríkislögreglustjóra tekur virkan þátt í sefjuninni. Lögreglumaður embættisins er einn helsti sérfræðingar þjóðarinnar í sóttvörnum með grímuskyldu sem sérsvið. Íslenskur dómstóll lagði blessun sína yfir frelsissviptingu einkennalauss fólks, öndvert við dómara í Portúgal.
Sá góði dómari studdist við rannsóknir á PCR-prófinu og hélt í heiðri læknisgjörningnum: Læknisfræðileg sjúkdómsgreining felur í sér læknisgjörning, sem eingöngu er á valdi læknis, lögum samkvæmt, og sem hann einn er fullkomlega ábyrgur fyrir. (Úr þýsku, portúgölsk krækja neðanmáls.)
Dómarinn í Portúgal studdist einkum við rannsókn Rita Jaafar og félaga, sem greint er frá í tímaritinu Smitsjúkdómum (Clinical Infectious Diseases). Með skírskotun til rannsóknarinnar segir dómarinn, að sýni veirugreining með greinimörk við 35 snúninga (lotur) eða fleiri (í greiningarþeytivindu) - eins og lenska er í rannsóknarstofum í Evrópu og Bandaríkjunum - jákvæða niðurstöðu, séu líkur á sýkingu 3%.
Í veirufárinu á Íslandi hefur heilbrigðiskerfið verið tekið í gíslingu eina ferðina enn, nú með PCR prófið að vopni. Viðbúnaður hefur miðast við alvarlegan eða banvænan sjúkdóm, enda þótt snemma í faraldrinum hafi verið ljóst, að svo var ekki.
Einkennalausir starfsmenn heilbrigðiskerfisins eins og annarra þjónustugeira og fyrirtækja, hafa umvörpum verið sendir í einangrun og nær viðstöðulaust er hrópað; úlfur, úlfur. Þar er stöðugt uppi fótur og fit, hverju neyðarstiginu á fætur öðru lýst yfir.
Þar að auki tala ábúðarmiklir forsvarsmenn heilbrigðiskerfisins ákaft fyrir varhugaverðum og mannfrekum bólusetningum alls þess, sem kvikt er og tvífætt, og heimta meiri peninga frá skattgreiðendum, því að öðrum kosti sé líf sjúklinga í hættu. (Það er reyndar þrástef, þegar kerfið eða starfsmenn þess hafa hagsmuna að gæta.)
Sömu talsmenn taka að öðru leyti virkan þátt í sefjuninni. Í samvinnu við RÚV berast stöðugar harmafréttir af fólki, sem látist hefur vegna covid-19. Fréttamanneskjur RÚV taka bókstaflega andköf, þegar skýrt er frá afdrifum þeirra óbólusettu. Látlaust er aldið á sóttarskelfingu. Aldrei er sauðsvörtum almúganum gerð grein fyrir því, hvort sjúklingar hafi látist af völdum veirunnar eða verið einkennalausir hýslar hennar. Þaðan af síður er okkur gerð grein fyrir, hvað felst í PCR-prófi og hvað það í raun sýnir. En það hafa aðrir gert.
Höfundur PCR-prófsins er Christan Drosten (f. 1972), þýskur veirufræðingur. Þegar þýskir rannsóknarblaðamenn reyndu að sannreyna upplýsingar um Christian, kom eitt og annað dularfullt í ljós. Skráning og eintak af doktorsritgerð hans fannst ekki, hvorki í brottskráningarháskóla hans, Goethe háskólanum í Frankfurt, né Þjóðarbókhlöðu.
Þrátt fyrir þetta hefur Christian verið helsti ráðgjafi þýskra yfirvalda í sóttvarnarmálum og próf hans notað samkvæmt tilskipun Alþjóðheilbrigðisstofnunarinnar um allan heim til greiningar á veirunni. Christian er margverðlaunaður fyrir vísindaleg afrek sín. Þó hefur hann engan veginn reynst spámannlega vaxinn, þegar aðrar farsóttir hefur borið á góma, t.d. SARS (Severe acute respiratory syndrom önnur kórónuveirusýking) og svínaflensan, sællar minningar.
Þýska blaðið, Stern, kallaði hann, þegar í mars 2020, veirustjörnu, eftirsóttasta mann Þýskalands. Á sama ári var hann sæmdur heiðursmerki. Christian féll þessi heiður í skaut, fyrir PCR-próf sitt, sem hann bjó til með ógnarhraða. Prófið var tilbúið í janúar 2020, í sama mánuði og veirunnar varð vart í Evrópu - próf ársins. Christian hélt því fram, að svo næmt væri prófið, að það greindi sérhverja erfðasameind veirunnar.
Prófhöfundur sagði m.a.: Ef slík sóttkveikja flögraði um slímhimnuna í nösum hjúkrunarkonu daglangt, án þess að hún kenndi sér nokkurs meins eða yrði hennar vör, væri hún skyndilega orðin MERS (Middel east respiratory syndrome kórónuveirutengd öndunarfærasýking) sjúklingur.
Það er svo sem ekki að furða, að um leið og prófið var tekið í notkun, hafi sjúklingum fjölgað nógu skart til þess, að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin gæti þann 12. mars 2020, lýst yfir neyðarástandi á hverju byggðu bóli jarðarinnar. Stofnunin átti áður í vandræðum með að réttlæta slíka skelfingu, þar sem staðfest tilvik á heimsvísu voru aðeins nokkrir tugir. En PCR prófið bætti hressilega úr skák í því efni.
Próf Christian var framleitt af vini hans, Olfert Landt, sem einnig er meðhöfundur að prófinu og rannsóknanna að baki því. Olfert þessi á Berlin Biotech Company TIB Molbiol Syntheselabor GmbH. Þeir félagar höfðu fengið þessa frábæru viðskiptahugmynd um tveim áratugum áður, þegar þeir framleiddu PCR-próf fyrir greiningu á SARS og fleiri veirum síðar.
Í Berliner Zeitung segir Olfert á þessa leið: Hugmynd og hönnun kom frá Charité Berlin (háskólasjúkrahús og rannsóknarstofnun, sem Christian veitir forstöðu). Við bjuggum til útgáfu í öskju. Veiran var bara til í Wuhan, en við vorum snöggir að setja saman erfðamengið (genome) úr gervierfðavísum (synthetic gene).
Þegar í upphafi faraldursins framleiddi fyrirtækið eina og hálfa milljón PCR öskjuprófa í viku hverri. Mánuði síðar hafði framleiðslan þrefaldast. Christian hlaut ríkulega umbun fyrir þessa örlagaríku uppgötvun sína. Mest munaði um þá upphæð, sem Mannkærleikssjóður Bill og Melinda Gates gaukaði að honum; 335.000 dali. Því má svo við bæta, að tólbaksiðnaðurinn hefur verið býsna gjafmildur einnig.
Það fer fjarri því, að allir séu jafn sannfærðir um ágæti vísindanna að baki prófinu og gildi þess og Alþjóðaheilbrigðisstofnunin. Tuttugu og tveir víðkunnir vísindamenn gerðu frekari rannsóknir, sem liggja til grundvallar þeirri niðurstöðu, að prófið sé ónothæft sem greiningartæki.
Í bréfi til hins ritrýnda vísindarits, Evrópukögunar (Eurosurveillance), sem birti niðurstöður Christian og félaga 23. janúar 2020, fóru þeir fram á, að greinin yrði dregin til baka. Í útgáfustjórn tímaritsins situr títtnefndur Christian og Chantal Reusken, meðhöfundur umræddrar greinar.
Mike Yeadon, einn hinna tuttugu og tveggja höfunda, og Stefano Scoglio, sem tilnefndur var til Nóbelsverðlauna í læknisfræði árið 2018, hafa báðir reynt að vara við PCP prófinu. Kary Mullis, sem hlaut Nóbelsverðlaun í efnafræði fyrir PCR kjarnsýrugreininguna (polymerase chain reaction), sagði aðferðina engan veginn fallna til sjúkdómsgreininga. (Staðreyndaflugumennirnir segja þó, að hann hafi ekki haft vit á þessu.)
Gagnrýni á PCR-prófið hefur einkum lotið að eftirfarandi meginatriðum:
Veiran góða er manngerð, hönnuð og framleidd á tilraunastofum við háskólann í Norður-Virginíu og Wuhan. Því er hvergi til náttúrlegt sýni af henni til rannsókna og viðmiðunar við greiningu. Þetta hafa m.a. spænsk og íslensk heilbrigðisyfirvöld gefið út.
Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður Landlæknis, segir: Við höfum engin frumgöng varðandi Sars-CoV-2 eða þau gögn er varða einangrun veirunnar og þá lífeðlisfræðilegu og sameinda líffræðilegu ástæður sem tengja veiruna við veirusjúkdóminn Covid-19.
Tæknin við hönnun veirunnar er í grundvallaratriðum sú sama og beitt er við erfðabreytingar dýra og plantna. Framleiðsla veirunnar var fjármögnuð af bandarískum yfirvöldum gegnum stofnunina, Umhverfisheilsubandalagið (Eco Health Alliance).
Til upplýsingar má geta þess, að Mannvinastofnun Bill og Melinda Gates verðlaunaði kínversku veiruhöfundana með 900.000 dölum. Stofnunin lét ekki þar við sitja. Kínverska vísindaakademían fékk 359.820 dali í sinn hlut. Annar rannsóknarhópur kínverskur var verðlaunaður með 71.700 dölum af parinu gjöfula.
Á heimsvísu er ósamræmi í greiningu og mælingu veirunnar, þ.e. sú veiruögn, sem greind er, sýnið, er stækkað mismikið. Við tuttugu snúninga magnast sýnið meira en milljónfalt. Christian hefur reyndar sjálfur viðurkennt, að það sé harla tilviljunarkennt, hvort niðurstaða slíkrar rannsóknar sé já- eða neikvæð. Kínverskar og þýskar athuganir benda til, að 75 til 80% séu rangar, þ.e. jákvæðar niðurstöður.
Við greininguna er sjónum eingöngu beint að hluta umræddrar veiru, þ.e. tiltekinni röðun erfðavísa í henni, þ.e. ekki veirunni allri, sem reyndar aldrei hefur tekist að einangra. Verði þessarar erfðavísaraðar vart, er út frá því gengið, að um sýkingu sé að ræða. Útgefin erfðavísaröð frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni er auk þess svo almenn, að vænta má, að hún finnist í sérhverjum manni. Því geta allir greinst jákvæðir.
Sjálf prófgögnin hafa reynst varhugaverð, þ.e. þegar smituð af kórónaveirunni. T.d. hafa þau verið notuð í Þýskalandi. Þrjú hundruð manns voru send í sóttkví vegna gallaðra prófa. Bretar endursendu 741.000 próföskjur.
Í öllu því handapati, sem fjöldasýnatöku fylgir, ásamt vanþekkingu og þjálfunarskorti nýliða, má augljóslega gera ráð fyrir spillingu sýna, bæði sökum smits í andrúmslofti og ófullkomins hreinlætis. Þar að auki er jafnaðarlega að finna í koki og nösum alls konar smitandi örverur, sem kynnu að valda sjúkdómseinkennum, ef einhver eru. Einkenni allra öndunarfærasýkinga eru svipuð.
Ulrike Kämmerer við háskólann í Würzburg, segir um PCR-prófið: Jafnvel þó skilyrði við greiningu séu ákjósanleg, er þaðð engan veginn nothæft sem góður staðall óklínískra aðgerða í því skyni að hefta útbreiðslu veiru. Sérstaklega er hætt við því, að fjöldaprófanir, án strangrar aðgerðaviðmiðunar, leiði til ónákvæmra prófniðurstaðna.
Einkum er fyrsta verklýsing frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni léleg tæknilega séð, villugjörn og líkleg til að gefa af sér falskar niðurstöður. [Aðferðin] dugar ekki til að segja fyrir um, hvort sýni, fundið jákvætt, bendi til sýkingar hjá hlutaðeigandi.
Ulrike spyr sig, hvers vegna próf Christian hafi orðið fyrir valinu, þegar Kínverjarnir höfðu próf þegar á reiðum höndum. En það kynni að skýrast af hagsmunatengslum. Mannvinasjóður Bill og Melinda Gates styður stofnun Christina veglega.
PCR-hagsmunatengslin liggja vitaskuld einnig til Íslands, sem er stórkaupandi PCR askjanna. Íslenskir skattgreiðendur greiða einnig fyrirtæki góðagjörðaparsins, Bill og Melinda Gates, Íslenskri erfðagreiningu, fyrir greiningar. Greiningaræði Landlæknisembættisins er orðið skattgreiðendum feikna dýrt.
Reynt var að birta pistilinn á Facebook, sem ritskoðar og neitar birtingu með þessum orðum:
"This URL goes against our Community Standards on spam: pandemic.news. To protect people on Facebook from spam, we don't allow content that contains such URLs.
https://www.eurosurveillance.org/content/10.2807/1560-7917.ES.2020.25.3.2000045 https://www.gatesfoundation.org/about/committed-grants/2020/03/inv005971 https://mittval.is/kari-hagnadist-tifalt-a-pcr-profunum/ https://dailyexpose.uk/2021/12/03/new-study-proves-covid-is-a-fraud/ https://pandemic.news/2021-10-25-moh-has-never-isolated-the-sarscov2.html https://www.telegraph.co.uk/news/2020/03/30/uks-attempt-ramp-coronavirus-testing-hindered-key-components/ https://dailyexpose.uk/2022/02/16/debunking-the-corona-conspiracy-debunkers-by-a-top-british-biomedical-scientist/ https://usercontent.one/wp/www.ooc.one/wp-content/uploads/2020/12/THE-INVENTED-PANDEMIC-the-lack-of-VIRUS-ISOLATION-and-the-INVALID-COVID-19-test.pdf https://vlex.pt/vid/851822033?_ga=2.155956985.353358071.1605737091-350727261.1605737091 https://www.eurosurveillance.org/board https://www.kla.tv/17953 https://www.charite.de/service/pressemitteilung/artikel/detail/erster_test_fuer_das_neuartige_coronavirus_in_china_entwickelt/ https://dailyexpose.uk/2022/02/16/debunking-the-corona-conspiracy-debunkers-by-a-top-british-biomedical-scientist/ https://academic.oup.com/cid/article/72/11/e921/5912603 https://www.kla.tv/Vaccination-en/18870 https://cormandrostenreview.com/report/ https://www.kla.tv/17757 https://www.youtube.com/watch?v=7SKDHfA82HAhttps://www.youtube.com/watch?v=7SKDHfA82HA https://taz.de/Produzent-von-Corona-Tests/!5671485/ https://www.transparency.org.uk/corruption-coronavirus-covid-19-latest https://www.bmj.com/content/371/bmj.m4425
Bloggfærslur 23. febrúar 2022
Nýjustu færslur
- Síonistabyltingin og gjöfulir Gyðingar. Byltingargyðingaprest...
- Baráttan fyrir betri heimi á nítjándu öldinni. Jafnaðar- og b...
- Baráttan fyrir betri heimi á nítjándu öldinni. Jafnaðar- og b...
- Gáttir Helvítis munu yður opnast. Stríðsyfirlýsing Ísraels og...
- Uppreisn í Ísrael og friðarhöfðinginn í Hvíta húsinu
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021