Barátta hetjunnar, karlmannsins, við drekann, snýst um að frelsa sjálfan sig og mannkyn allt, frá Miklu móður. Eða öllu heldur hinum illa og dimma eðlisþætti hennar.
Í bók Jóns Gíslasonar (1909-1980) skólastjóra og þýðanda grískra bókmennta, Goðafræði Grikkja og Rómverja, frá árinu 1944, má lesa þennan fróðleik: Hetjur og menn eru ekki í eðli sínu mjög frábrugðnar hvorir öðrum, nema hvað hetjurnar eru gæddar svo miklu líkamlegu atgervi, að venjulegir dauðlegir menn hafa sjaldan neitt svipað til að bera. Engan veginn voru allir menn hinnar sagnauðugu fortíðar taldir hetjur. Það voru aðeins afburðarmennirnir, ættfeður höfðingjanna, er með afreksverkum sínum höfðu rutt úr vegi hindrunum menningarinnar: frelsað landið úr heljargreipum villtra ræningja og skaðsemdardýra, þurrkað upp fen, yrkt skóga og beizlað ár í föstum farvegum. Í verkum sínum birtast þeir öðrum mönnum máttugri og virðast því vera synir guða, af æðri uppruna en meginþorri venjulegra manna, sem skapaðir höfðu verið úr leir eða kviknað höfðu af steinum eða trjám.
Þar má einnig lesa um hina grísku Persefónu og Bellerófon:
Í Persefone undirheimagyðju eru fólgnir tveir andstæðir eðlisþættir. Annars vegar er hún sem drottning undirheima mikilúðlegt og ægilegt goð, því að hún dregur allt lifandi miskunnarlaust niður í hið dimma djúp, enda voru grafir nefndar herbergi Persefone. Þessi skoðun er ríkjandi hjá Hómer og öðrum [forngrískum] söguljóðaskáldum. Hún stendur þeim fyrir hugskotssjónum sem hin ósveigjanlega drottning í gleðisnauðu ríki draumheima, og er ekki svo aumlegt hlutskipti til á jörðinni, að það sé ekki marfalt betra en vistin þar.
Hins vegar er hún Kore, hin ljúfa mær, dóttir hinnar blessunarríku móður jarðar, ljós ímynd þess mikla sköpunarmáttar, sem ár hvert knýr gróðurinn upp úr moldinni. Það var því ofur eðlilegt, að hugmyndir manna um ódauðleika sálarinnar tengdust þessum eðliþætti gyðjunnar.
Sagan um Bellerófon hefur sérstaka skírskotun á okkar tímum, þar sem þráhyggjan um kynbundið ofbeldi tröllríður hugun manna og er snar þáttur í andlegu lífi kvenfrelsara og Alþingismanna:
Fyrir víga sakir varð hann að flýja átthagana og komst undan til hirðar Proitosar, konungs í Tirynsborg. Hans drottning var Stenoboia, dóttir Iobatesar, konungs í Lykíu. Stenoboia varð ástfangin í Bellerófon. En er sveinninn vildi ekki þýðast hana, rægði hún hann við Proitos og sagði, að hann hefði ætlað að beita sig ofbeldi. Sendi Proitos þá hetjuna til Iobatesar, tengdaföður síns, með samanlagt spjald, sem á voru ristir helstafir, þ.e. dauðdómur yfir Bellerófon. En Lýkíukonung skorti hug til að fram fylgja þeim dómi sjálfur. Lagði hann þess í stað fyrir hann að vinna óvættina Kimeru, ljón að ofanverðu, dreka að neðanverðu, en hauðnu í miðju. Með aðstoð goðanna tókst Bellerófon að bana þessari ófreskju. Sendu þau honum vængjaðan hest, Pegasos, sem Aþena hjálpaði honum með að temja við bitil. (Jón Gíslason)
Þessi forna, gríska sögn, hefur beina skírskotun til nútímamenningarinnar samtímis því að lýsa baráttu mannkyns fyrir tendrun heimsljóssins, skilningsljóssins, menningarljóssins, baráttunni við hið illa eðli, lýst sem viðeign hinar karlkenndu, hugprúðu og hugljómuðu hetju, sem baðar sig í kvenkenndu ljósi góðu gyðjunnar, alúðarmóðurinnar, Aþenu, og þiggur af henni styrk. Aþena er verndari og frömuður allrar andlegrar viðleitni, vizku og snilli. [Hún er] hin herskáa og hervædda skjaldmær, (Jón Gíslason)
Svipaðir sagnir eiga flestar menningarþjóðir. Germönsk og norræn menning geymir fjöldann allan af lærdómsríkum arfsögum. Sagan um Sigurð Fáfnisbana, skráð í Völsungasögu, er ein þeirra. Þar segir frá ástum, svikum í tryggðum, fjölkynngi kvenna, flærð þeirra og samkeppni, hefndardrápum þeirra á börnum, stjúpu, sem eitrar fyrir stjúpsyni sínum, konum, sem kjósa það hlutskipti að láta sig brenna með körlum sínum, eðlun systkina, vígaferlum, mannáti, blóðblönduðum eiturmiði og átökum kónga.
Hjördís, móðir Sigurðar Fáfnisbana, hafði átt ástarfar við bróður sinn að yfirlögðu ráði: Það er nú sagt að Hjördís fæðir sveinbarn og er sveinninn færður Hjálpreki konungi. Konungurinn varð glaður við er hann sá þau hin hvössu augu er hann bar í höfði og sagði hann öngum mundu líkan verða eða samjafnan og var hann vatni ausinn með Sigurðar nafni. Frá honum segja allir eitt, að um atferð og vöxt var engi hans maki. Hann var þar fæddur með Hjálpreki konungi af mikilli ást. Og þá er nefndir eru allir hinir ágætustu menn og konungar í fornsögum, þá skal Sigurður fyrir ganga um afl og atgervi, kapp og hreysti, er hann hefir haft um hvern mann fram annarra í norðurálfu heimsins.
Í fyllingu tímans lagði hetja vor til atlögu við orminn skelfilega: Og er ormurinn skreið til vatns varð mikill landskjálfti svo að öll jörð skalf í nánd. Hann fnýsti eitri alla leið fyrir sig fram og eigi hræddist Sigurður né óttast við þann gný. Og er ormurinn skreið yfir gröfina þá leggur Sigurður sverðinu undir bægslið vinstra svo að við hjöltum nam. Þá hleypur Sigurður upp úr gröfinni og kippir að sér sverðinu og hefir allar hendur blóðgar upp til axlar. Og er hinn mikli ormur kenndi síns banasárs þá laust hann höfðinu og sporðinum svo að allt brast í sundur er fyrir varð.
Eftir atlöguna hittir hann Brynhildi Buðladóttur, yndisfríða, vopnglaða og vitra völvu: Sigurður mælti: "Aldrei finnst þér vitrari kona í veröldu og kenn enn fleiri spekiráð." Eitt spekiráð Brynhildar var: Lát eigi tæla þig fagrar konur þótt þú sjáir að veislum svo að það standi þér fyrir svefni eða þú fáir af því hugarekka. Teyg þær ekki að þér með kossum eða annarri blíðu.
En Sigurður sá ekki að sér. Fyrir sakir vélráða móður Guðrúnar Gjúkadóttur gekk hann að eiga þá síðarnefndu. Brynhildur varð harmi slegin, réð Sigurði bana og gekk á líkbál hans.
Það verður seint bitið úr nálinni. Kvenfrelsunarríkisstjórn Íslands er svo auðug sökum skattpíningar og lántöku að deila má fé út um hvippinn og hvappinn. Hreðjatak Katrínar er þéttingsfast. Kynofbeldi af hálfu karla er þráhyggja ríkisstjórnar og fjölmiðla. Margendurteknar rannsóknir eru léttvægar, þegar þráhyggja er annars vegar. Og þegar hreðjatak Katrínar á reðursveinum sínum í ríkisstjórninni er svo öflugt, sem raun virðist bera vitni um, er breytinga varla von. Ný ráðstefna um "ég-líka" múgsefjunina skal haldin. Katrínu halda hvorki veirur né skynsemisbönd. En nú er leiðangursstjóri hennar í kvenfrelsismálum, sem skipulagt hefur ráðstefnur hennar áður, Halla Gunnarsdóttir, komin til hlýjan kvenfrelsunarfaðm ASÍ. Henni hefur vafalaust þótt það tryggari faðmur.
Borgarstjórn Reykjavíkur lætur sitt ekki eftir liggja. Ætli Dagur bregði sér í málarabúninginn í tilefni dagsins. og máli götur borgarinnar í öllum regnbogans litum kvenfrelsurum til dýrðar? Alla vega lætur borgarsjóður fé af hendi rakna. Katrín er eiðsvarinn málsvari bæði rannsóknarinnar merkilegu, "Áfallasögu kvenna," og Stígamóta. Hún veitir skattfé til þeirra samtaka eins og Kvennaathvarfs. RÚV útvegar bakgrunnstónlist í sama dúr; sífelldan óhróður um karla, og hvikar hvergi frá kvenfrelsunarstefnu sinni við val umfjöllunarefna, efnistökum og viðmælendum. Þjóðin ýmist styður þessa þróun eða yppir öxlum. Trúlega rynnu þó tvær grímur á menn, yrðu höfð kynjaskipti og konur gerðar að blórabögglum kynofbeldis og kvenmennskan kölluð eitruð. Hvernig ætli ungu kynslóðirnar hugsi, sem alast upp við karlóhróður og og áróðurssíbylju gegn bræðrum, feðrum, frændum og öfum?
Hvernig má það vera, að fólk loki augunum fyrir þeirri vá, sem stafar af öfgaofstækinu? Hér er hið lýðræðislega sjónarspil skýrt og greinilegt. Hugmyndafræðingar öfgahóps er kosnir til setu á Alþingi af tiltölulega fámennum hluta þjóðarinnar. Hugmyndafræðilegur rétttrúnaður, hagsmunapot og valdagræðgi ýfa sjó og skapa þann öldugang, sem nægir til að fleyta Katrínu og öfgahreyfingu hennar á valdastól. Lýðræðisofbeldinu er síðan blygðunarlaust beitt til að stuðla að markmiðinu; opnaðar eru gáttir kvenfrelsunar og kvenofríkis með jafnréttisdullyklinum. Tilstyrkur er sóttur til opinberra, hálfopinberra og alþjóðlegra stofnanna og fyrirtækja. Við fljótum sofandi að feigðarósi.
Hvenær ætli skynsamar konur og karlar bindist fastmælum um að hrifsa fólk meira að segja konur eins og Steingrímur, forseti Alþingis, sagði eitt sinn, þegar þingmenn töluðu ósiðlega um kjósendur úr klóm kvenfrelsaranna, frelsa konur frá kvenfrelsurum?
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020/03/08/althjodleg_radstefna_um_kynbundid_ofbeldi_haldin_he/?fbclid=IwAR1_IKtSCsrjBaDU4TNRHw0ZC6ZqOkAhBA595x0HaWRmZ6Nd_4eusLPDd2c
Milli heimsstríða reit enski rithöfundurinn, Aldous Leonard Huxley (1894-1963), merkilega bók, skáldsögu um framtíðarsamfélagið, staðleysu eða «útópíu». Nokkrar hafa áður verið skrifaðar. Skáldverk þessa merka höfundar hafa mörgum veitt innblástur. Mál og Menning gaf bókina út árið 1988. Kristján Oddsson íslenskaði.
Kynning á bókarkápu hljómar svo: Veröld ný og góð (Brave New World) er ein þekktasta framtíðarsaga allra tíma. Hún var skrifuð árið 1932. Höfundurinn hefur reynst skarpskyggn um marga hluti, og er saga hans tímabær hugvekja nú á tímum glasabarna og öflugrar fjölmiðlunar.
Í sögunni er lýst Alheimsríkinu, ríki framtíðar, sem spannar alla jörðina og byggist á afar róttækri, líffræðilegri og sálrænni innrætingu eða skyldögun allra þegna. Fæðing manna er úr sögunni og þykir dónaleg tilhugsun öll börn eru getin í glösum. Stéttaskipting er líffræðilega ákvörðuð og kynlíf markað af reglunni Allir eiga alla.
Bernhard Marx og Lenina Crown fara í skemmtiferð á amerískt verndarsvæði og hafa heim með sér framstæðan mann, villimanninn, sem verður eins konar sýningargripur í Alheimsríkinu. Hann fær hvorki útrás fyrir áhuga sinn á listum, trúhneigð né ást í hinni nýju og góðu veröld. Af því skapast undarleg atburðarás.
Í sögunni ber ýmislegt nýtt fyrir augu (eða gamalt vín á kunnuglegum belgjum) eins og múgsefjunarfræðinga, villimannaþjóðgarð, klakstöð, endurskyldögunarstöð, sambura, samlyndismessu, svefnskóla, dákennslu, getnaðarígildi, múgsefjunarháskóla, girndarígildismeðferð, áróðursskrifstofur og fengimeyjar.
Sagan hefst í Klak- og skyldögunarstöð Mið-Lundúna, nánar tiltekið í frjóvgunarsalnum. Forstjóri þessarar merku stofunnar, mikilmennið, fer fyrir hópi nýnema. Þeir eru náfölir, taugaóstyrkir, og næstum lotningarfullir, fylgdu fast á hæla hans. Sérhver þeirra var með stílabók, sem hann hamaðist við að skrifa í í hvert skipti sem hinn mikli maður opnaði munninn. Beint af vörum Mikilmennisins.
Í Klakstöðinni eru framleiddar hamingjusamar mannverur. Forstjórinn útskýrir: [E]ins og allir vita, þá verða menn dyggðugir og hamingjusamir af að huga að hinu smáa, víðsýni og alhæfing eru ill nauðsyn. Það eru ekki heimspekingar, heldur smásálir og frímerkjasafnar sem eru máttarstólpar samfélagsins.
Lögð er áhersla á gott úrval í mannræktuninni: Þess vegna leyfum við um það bil 30% kvenfóstranna að þroskast eðlilega. Hin fá skammt af karlhormón Árangurinn: Þau koma úr flöskunum sem kynleysingjar, alveg eðlileg að líkamsbyggingu (nema þau hafa örlitla tilhneigingu til skeggvaxtar) en ófrjó.
Forstjórinn: [Þ]að er lykillinn að hamingju og dyggð að elska örlög sín, nauðugur viljugur. Öll skyldögun beinist að því að láta fólk fella sig við sín óumflýjanlegu, þjóðfélagslegu örlög. Skyldögun er fólgin í því að maður gerir ekkert nema það sem á að gera. Og allt sem menn gera er svo skemmtilegt og þægilegt, frjálsræðið svo mikið að engar freistingar eru til að standast. Ef svo ólíklega vill til að eitthvað óþægilegt kæmi fyrir þá höfum við alltaf soma til að grípa til, það losar okkur við öll óþægindin. Soma er alltaf við hendina til að sefa menn ef þeir reiðast, sætta þá við óvini sína og gera þá þolinmóða og umburðarlynda.
Fóstur eru framleidd til að gegna ákveðnum hlutverkum. Eftirtektarverð er framleiðsla þotuverkfræðinga: Forstjórinn útskýrði, að sérstakur tækjabúnaður héldi flöskum [ræktunarglösum] þeirra á stöðugum snúningi til þess að auka jafnvægisskyn þeirra. Það er erfitt að stunda viðgerðir utan eldflaugar úti í geimnum. Við minnkum næringargjöfina þegar þeir snúa höfðinu upp, þannig að þeir hálfsvelta, en tvöföldum næringargjöfina þegar höfuðið veit niður. Á þann hátt tengja þeir vellíðan þeirri stöðu, já eiginlega eru þeir þá fyrst alsælir þegar þeir standa á höfði. Hér gætir greinilega kenninga rússneska lífeðlissálfræðingsins, Ivan Pavlov (1849-1936) og norður-ameríska sálfræðingsins, John Broadus Watson (1878-1958) um óvirka skilyrðingu. Sá síðarnefndi hélt því reyndar fram, að móta mætti mannveruna eins og leir með því að stjórna því, hvernig hún væri skilyrt.
Og norður-ameríski snillingurinn, Burrhus Frederic Skinner (1904-1990), sem ól á sams konar hugmyndum, er heldur ekki langt undan í Alheimsríkinu. Þar er kenningu hans um virka skilyrðingu beitt, m.a. við að venja börnin við dauðann. Á sjúkrahúsi hinna deyjandi, en í Heimsveldinu deyja allir um sextugt, eftir hamingjusamt og heilbrigt líf: Þar er mikið og gott úrval leikfanga og þegar einhver deyr fá þau súkkulaði með rjóma. Þeim lærist að taka dauðanum sem eðlilegum hlut. Eins og hverri annarri lífeðlislegri framvindu.
Innræting hvítvoðunganna fer fram í sefjunarsölum, sem forstjórinn alvitri kallar mesta siðunar- og þjóðnýtingarafl allra tíma. Stefnt er að því, að hugur barnsins verði sefjunin og sefjunin í heild er hugur barnsins. Og ekki aðeins hugur barnsins, heldur líka hugur þess þegar það er orðið fullorðið allt þess líf. Mannhugurinn, sem dæmir, þráir og ákvarðar hann er byggður upp af þessari sefjun. En öll þessi sefjun er runnin undan okkar rifjum sefjanir frá Ríkinu.
Sálfræðingar eru innan handan, þegar viðgerða er þörf. Lítill pjakkur, sem sýndi óyndi í kynleikjum við sambura sinn af kvenkyni (barni úr sömu ræktunarlotu), þurfti á hjálp að halda. Það fylgdi þó ekki sögunni, hvort hann væri með áfallastreituröskun. Barnfóstran segir: Ég ætla að fara með hann til aðstoðarforstjóra sálfræðideildarinnar til að vita hvort eitthvert óeðli sé í stráknum. Líklega hefur hann þegið hugræna atferlismeðferð, því hún sýnir sannreyndan árangur, að sögn þeirra, sem ekkert annað kunna.
Forstjórinn fræðir nemendur sína um guðinn, Ford: Okkar Ford eða Freud, eins og hann var vanur að kalla sig af einhverjum óskiljanlegum ástæðum þegar hann fjallaði um sálræn efni okkar Freud var fyrstur til að fletta ofan af skelfingum fjölskyldulífsins. Heimurinn var fullur af feðrum þess vegna fullur af eymd, alls staðar voru mæður þess vegna blómstraði óeðli, allt frá sadisma [kvalalosta] til skírlífis. Heimurinn úði og grúði af bræðrum og systrum, frændum og frænkum fullur af brjálæði og sjálfsmorðum. (Hér er vafalítið skírskotað til bifreiðajöfursins, Henry Ford (1863-1947), sem tók færibandið í notkun, og Sigmund Freud (1856-1939), upphafsmanns sálkönnunar.)
Þeir, sem efast um rétttrúnað og innrætingu, sæta refsingum, annað hvort sendir í endurskyldögunarstöð eða til Íslands. Forstjóri gefur undirtyllu ákúru: Ef ég frétti nokkurn tíma framar að þér víkið frá réttu og stöðluðu líferni mun ég óska eftir að þér verið fluttur til einhverrar undirstöðvar helst til Íslands.
Villimannanýlendurnar eru áhugaverðar. Þar er fjölskyldan greinilega enn við lýði. Forstjórinn lýsir hinu forna heimili: [F]áein lítil herbergi, ódaunn, nokkrar manneskur kúldrast saman, maður, kona (sem oftast var ófrísk) og skari af krökkum á öllum aldri. Loftleysi, þrengsli, óheilnæmt fangelsi. Myrkur, sjúkdómar, ólykt.
Villimaður úr nefndri nýlendu er gestur í Heimsveldinu og spyr í sífellu eins og Lísa í Undralandi. Honum brestur skilningurinn. T.d. fær hann svofellt svar við fyrirspurn sinni um mismun lífsins nú og á tímum Óþelló (sögupersóna í leikriti breska leikritsskáldsins, William Shakespeare (1564-1616)): Heimurinn er stöðugur núna. Allir eru hamingjusamir, allir fá allt sem þeir vilja og vilja aldrei neitt sem þeir geta ekki fengið. Mönnum gengur vel og þeim er borgið. Þeir eru aldrei veikir og óttast ekki dauðann. Þeir hafa ekki hugmynd um hvað ástríða eða elli er. Þeir eru ekki háðir eða plagaðir af foreldrum. Þeir eiga hvorki eiginkonur né börn, ekki heldur ástmeyjar sem gætu komið róti á hugi þeirra. Í stuttu máli sagt, þeir eru skyldagaðir þannig að þeir geta ekki hagað sér á annan hátt en þeim ber að gera. En ef eitthvað fer úrskeiðis þá höfum við soma. Soma er eins og fyrr er drepið á, sæluefni, drukkur eða -töflur.
Í samtali söguhetja ber vísindi á góma, en í dákennslunni var kennt, að þau væru undirstaða alls. Sögumaður: Ég var ágætis eðlisfræðingur í eina tíð, kannski of góður því ég komst fljótt að raun um að öll okkar vísindi voru aðeins matreiðslubók með réttum uppskriftum sem enginn mátti dirfast að vefengja og engu mátti bæta í nema með sérstöku leyfi frá yfirmatreiðslumanninum.
Það er í senn gagnlegt og fróðlegt að bera saman hugarflug Aldous árið 1932 og tilhneigingar í þróun samfélags vors í dag. Kynlífsbyltingin átti sér stað um þrem áratugum síðar og festist að einhverju leyti í sessi með byltingum í getnaðarvörnum.
Enda þótt upplausn fjölskyldunnar í sæluríki byltingarmanna í Austur-Evrópu tækist ekki sem skyldi, festi boðorðið rætur á Vesturlöndum. Það gerði einnig fullyrðingin um frelsunarmátt launavinnu einkum fyrir konur. Arbeit macht frei, sagði Adolf Hitler (1889-1945). Þennan boðskap tóku kvenfrelsarar annarrar bylgju kvenfrelsunar að hjarta sér, sem og þann, að hið opinbera ætti að sjá um uppeldi barna. Auðhyggjumenn sáu sér leik á borði og fjármögnuðu baráttu kvenfrelsaranna. Afleiðingin var sú m.a. að ódýr vinnudýr streymdu út á vinnumarkaðinn með hlutfallslegri lækkun launa og auknum kostnaði fyrir heimilin.
Öfgahreyfingar kvenfrelsaranna sá Aldous ekki fyrir, en engu að síður sá hann fyrir sér þá hina sömu æxlunar- eða undaneldisstjórnun, sem þá dreymir um, þ.e. fækkun karla niður í um tíunda hluta mannkyns. Innræting á vegum hins opinbera er um það bil að verða að veruleika, enda þótt hún eigi sér ekki stað í dásvefnsölum enn sem komið er. Alþingismenn hamast við að semja alls konar stefnumótanir og smáatriðalög og reglugerðir. Ofbeldisfjölmiðlun boðar rétta kvenfrelsunartrú. Trúin á karldjöfulinn skýtur öðrum trúarbrögðum ref fyrir rass. Samfélag kynleysingjanna er í burðarliðnum samfara aukinni áherslu hins opinbera á ofsóknir gegn körlum (sérstaklega feðrum), á uppeldi barna og á upplausn fjölskyldunnar.
Alheimsríkið virðist einnig í burðarliðnum. Hin auðugu kvenfrelsunarsamfélög Vesturlanda munu væntanlega verða kjarni þess. Þrátt fyrir viðspyrnu í Mið-Austurlöndum, Austur-Asíu og Austur-Evrópu mun auðhyggju- og kvenfrelsunaráróður hola andspyrnuna eins og dropinn steininn. Sameinuðu þjóðirnar eru nú þegar vígvöllurinn, þar sem hikandi þjóðir þriðja heimsins eru beittar skefjalausu efnahagslegu og hugmyndafræðilegu ofbeldi. En það er dynur fyrir dyrum. Vel kynni svo að fara, að efnahagslegt veldi Vesturlanda hrörni, þegar karlar missa flugið í auknum mæli. Efnahagslegur vöxtur og menning hefur verið knúin afli karlanna. Enn sjást ekki sannfærandi merki þess, að konur muni taka við því kefli. Kvenfrelsunarvísindamenn stunda um þessar mundir niðurrif (deconstruction) í algleymi.
Alvöru vísindi standa þegar höllum fæti. Kvenfrelsunarmatreiðsla þeirra er algeng. Sumar greinar samfélags- og hugvísinda eru þegar mettaðar kvenfrelsunarhugmyndafræði og kvenfrelsarar eru í óða önn að aðlaga raunvísindin sömu hugmyndafræði, þ.e. sannleikurinn er það, sem kona hefur hugboð um, og standi konur höllum fæti, skal minnka kröfur um námsgetu.
Lyfjatæknileg stjórnun hátternis og sálar er þegar langt komin. Það er ekki ólíklegt, að um helmingur þjóðarinnar neyti ýmis konar lyfja til að halda sjálfu sér og kerfunum gangandi. Óhamingja kvenna er í því efni áberandi og þörfin til að hemja drengi frá unga aldri. Líklega þætti það afspyrnu púkalegt að ganga um með stílabók í dag.
Líklega veldu nemendur eins hvers konar hugsanaskrásetjara, þegar nema ætti orð hinna vísu. En það verður aðalgyðja, en ekki forstjóri.
Það er spaugilegt að Aldous hafi valið Ísland sem útlagaeyju. Það var hún að vísu fyrir þúsund árum eða svo. Hvernig hefði hann með nokkru mót getað séð fyrir, að þar yrði stofnuð ofurjafnréttisparadís jarðarbúa, án tillits til höfðatölu.
Bloggfærslur 7. maí 2021
Nýjustu færslur
- Bólusetningabjargráð, heilbrigðisnjósnir og gervigreindargeðl...
- Leynd, lygar, leyniher og launmorð. John Fitzgerald Kennedy
- Eistar ybba kíf og ætla í stríð með Íslendingum
- Fyrirgefðu mamma! Mig langaði svo að bjarga fólki. Óþverri og...
- Sælir eru einfaldir. Úkraína, öryggið og Þórdís Kolbrún Reykf...
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021