Færsluflokkur: Bloggar

Moðreykur um Múhammeðstrú og djöfulsleikar í Miðausturlöndum. IV: Landvinningar, stjórnmál og heimsveldi

Smám náðu Múslímar undirtökunum á Arabíuskaga, löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs, í Norður-Afríku, Persíu (Íran), suðurhluta Spánar, Tyrklandi og víðar.

Á síðmiðöldum og nýöld (1400) voru í uppsiglingu þrjú islömsk heimsveldi; Ósmanar í Anatólíu (Tyrklandi – Ottóman heimsveldið), Safavidar í Persíu (Íran) og Mógúlar [Mughal] á Indlandi. (Mughal er afbökun úr Mongol, vísar til mongólsks uppruna drottnaranna.)

Heimsveldi Ottómana og Safavida voru reist á rústum Seljuka (Seljuk Turks), sem í byrjun elleftu aldar hertóku þessi svæði. Aðrir tyrkneskir ættbálkar höfðu ráðið ríkjum á Norður Indlandi.

Mógúlaríkið var stofnað af afkomendum Chinggis Khan (Gengis Kan), sem vann lönd einkum á Norður-Indlandi. Það festist enn frekar í sessi í byrjun sextándu aldar fyrir atbeina tyrknesks-mongólsks hershöfðingja, Zahir-ud-din-Muhammad Babur (1483-1530), sem lagt hafði undir sig Afganistan.

Um sautján hundruð tók ríkið meira eða minna til alls Indlandsskaga. Persneska var opinbert mál í heimsveldinu. Gerðar voru miklar stjórnarumbætur með tiltölulega sjálfstæðum héraðsstjórum. Skipan fjögurra ráðherra; fjármála, hermála, dóms- og trúmála, og innanríkis- og samgöngumála.

Í fyrrgreindum veldum Íslams voru reist stórkostleg og fögur mannvirki, persneskri skrúðgarðahefð (gardening) var gert hátt undir höfði, ásamt ýmis konar list og menntun. Um miðja fimmtándu öldina lágu mikilvægar verslunarleiðir um ofangreind heimsveldi.

Á ofanverðri átjándu öld áttu íslömsku heimsveldin í vök að verjast. Safavidaveldið féll á fyrsta fjórðungi aldarinnar. Bretar lögðu undir sig Bengal um miðja átjándu öld. Næstu öldina réð Austur-Indía félag þeirra lögum og lofum á Indlandi.

Undir forystu Suleiman I (1494-1566) náði Ottóman heimveldið fótfestu við innanvert og sunnanvert Miðjarðarhaf. Það náði frá Egyptalandi til Anatólíu. Í norðri og vestri tók það til Ungverjalands, Rúmeníu, Moldavíu, sneiðar úr Póllandi og Úkraínu, og allar götur norður og austur að Kaspíahafi og til Mesópótamíu (Iraks). Mikligarður (Istanbul, Constantinobel) var höfuðborg veldisins.

Tyrkneska ríkið var stofnað, þegar Ottóman heimsveldið leið undir lok. Stofnandi þess og aðalhugmyndafræðingur var hinn frjálslyndi múlími, Mustafa Kemal Atatürk (1881-1938). Hann færði líf og trú hins forna Ottóman heimsveldis nær vestrænum samfélögum, t.d. með innleiðingu lýðræðis.

Mustafa gagnrýndi íslamskan fasisma. Hugtakið felur í sér andúð og gagnrýni á svonefnt guðaveldi eða klerkaveldi (theocracy) í Múhammeðstrú og viðleitni þeirra hreyfinga, sem vilja innleiða það. Um þessar mundir er iðulega átt við Íran, Sádí-Arabíu, Algeríu og Súdan, en skírskotun til fasisma er grundvölluð á fjöldamorðum leiðtoga Ottóman heimsveldisins eða kalífadæmis, Yavuz Sultan Selim (1465-1520), í byrjun sextándu aldar, á tyrkneskum ættflokkum (Turcomans).

Eftir fyrstu heimstyrjöldina fetuðu Bandaríkjamenn í slóð Breta, sem voru, ásamt Frökkum, atkvæðamesta heimsveldið fyrir botni Miðjarðarhafs, sem og í Afríku, á Indlandi og í Asíu. Bretum og Frökkum hafði verið falin umsjón með löndum íslamska Ottómans-heimsveldisins. Það gerði Þjóðabandalag sigurvegaranna.

Bretar sáu til þess, að Síonistum, þ.e. heimalandshreyfingu meðal Gyðinga í Evrópu, yrði „úthlutað“ landi, sem þá var Palestína (Balfour yfirlýsingin). Það átti eftir að hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir þróun heimshlutans.

Gyðingar kölluðu landnám sitt Ísrael og lýstu einhliða yfir sjálfstæði 1948. Ríkið hlaut viðurkenningu smávaxinna Sameinuðu þjóða, m.a. með atkvæði Bandaríkjamanna og Íslendinga, sem hafa verið dyggir stuðningsmenn Bandaríkjanna og Ísraels allar götur síðan.

Ísraelsríki var hernaðarfleygurinn, sem Bandaríkjamenn og Bretar beittu í sókn sinni eftir olíu, áhrifum og völdum, í heimshlutanum. Síðar hafa Bandaríkin líkt Ísraelsríki við flugmóðurskip eða herstöð.

Bretar höfðu – eins og bent var á - deilt og drottnað í Miðausturlöndum eins og í Kína og á Indlandi. M.a. öttu þeir ættkvíslum Araba ýmist saman eða sameinuðu til að berja á Ottómönum, sem voru komnir að fótum fram. Raunar hafa Bretar meira eða minna sett örlagaríkan svip sinn á lönd og ríki fyrir botni Miðjarðarhafs. Þeir „bjuggu“ t.d. til bæði Jórdan og Sádí-Arabíu.

Það var sömuleiðis draumur Breta og Bandaríkjamanna að vinna gegn áhrifum Ráðstjórnarríkjanna (Sovét-) í Vestur-Asíu. Því var haldið fram, að þau reyndu að bera víurnar í Miðausturlönd eins og heiminn allan reyndar. Þessi fásinna er enn á ný borin á borð fyrir Evrópumenn, svo efla megi Nató.

Bandaríkjamenn ætluðu sér að endurtaka Nató-leikinn í Miðausturlöndum, þ.e. að stofna „varnarbandalag“ gegn Ráðstjórnarríkjunum í Miðausturlöndum; t.d. „Varnarbandalag Miðausturlanda“ (Middle East Defense Organization), „Bagdað- bandalagið (Baghdad Pact) og „Miðaustur bandalagið“ (Central Treaty Organization – CENTO). Það fór út um þúfur. Í staðinn var Nató þanið út og umlykur hér um bil rússneska ríkjasambandið.

Eitt helsta vopn Bandaríkjamanna var ein öfgahreyfinga Múslima, kölluð Bræðralag Múhameðstrúarmanna (Ikhwan al Muslimin - Moslem Brotherhood). Öfgatrú þeirra er iðulega kennd við Wahhabism (Salafism – Sunni Islam), eftir spámanni þeirra, Mohammad ibn Abdul Wahhab (1703-1792), sem vildi taka upp lifnaðarhætti fyrri tíma.

Stofnandi Bræðralagsins var Hassan al-Banna (1905-1949). Það var stofnað 1928 í Egyptalandi með styrkjum frá Súesskurðarfélagi Englendinga. Bræðralagið var einnig dyggilega stutt af Sádum. Stofnaðar voru deildar í Amman, Jórsölum og Damaskus.

Bræðralagið sótti innblástur í önnur öfgasamtök, Al-Íslam (pan-islamic movement). Stofnandi þeirra var frímúrarinn, Jamal Eddine al-Afghani (1838-1897), á seinni hluta nítjándu aldar. Hann var Bretahollur mjög og vildi að þeir tækju að sér forystu samtakanna. Í annarri heimstyrjöldinni bættist sú þriðja við, „Íslamska fylkingin“ (Islamic Group) í Pakistan. Foringi hennar var Abul-A‘la Mawdudi (1903-1979).

Kenningar Jamal Eddine urðu sagnfræðingnum, Bernard Lewis (1916-2018), og Samuel Phillips Huntington (1827-2008), innblástur að hugtakinu um ásteyting siðmenninga (clash of civilizations). Í hnotskurn felst í hugtakinu sú staðhæfing, að allar götur frá landtöku Mára á Suður-Spáni og fram að öðru umsátri Tyrkja um Vínarborg, hafi Evrópa búið við stöðuga ógn frá Íslam.

Gyðingurinn, Bernard, fyrrum njósnari „hennar hátignar“ og aldavinur fyrrum forseta Ísraels, „jarðýtunnar,“ Ariel Sharon (1928-2014), les og túlkar söguna úr sjónarhorni anglósaxiskrar heimsvaldastefnu og ísraelskrar útþenslustefnu, sbr. Stór-Ísrael og Konungdæmi Gyðinga.

Fyrrgreindu vopni, þ.e. öfgahreyfingum Múslíma, beittu Bretar og Bandaríkjamenn gegn þjóðernishreyfingum Araba, m.a. í Egyptalandi og Íran, steyptu bæði forseta Egyptalands, Gamal Abdel Nasser (1918-1970), og forseta Írans, Mohammed Mossadegh (1882-1967), af stóli.

Í Íran náðu Bretar þannig undirtökunum í olíuiðnaði þjóðarinnar. Leyniþjónusturnar, CIA (stofnuð 1947 á grundvelli leyniþjónustu hersins, Office of Strategic Services - OSS) og MI6, höfðu veg og vanda af þessum ódæðum. (Vísir að MI6 varð til, þegar Bretar lögðu undir sig Indland.)

CIA greiddi íslömskum öfgasamtökum fyrir þátt þeirra í uppreisninni í Íran eins og þeir gera nú við uppþot kvenfrelsara og mannréttindasamtaka á þeirra vegum. CIA nýtur nú að vísu liðsinnis svokallaðra „frjálsra“ félagasamtaka (non-governmental organization) á vegum auðkýfinga eins og George Soros.

Leiðtogi íslamskra öfgamanna í Íran, bandamanna CIA og MI6, var Ayatollah Seyyed Abolqassem Kashnai (1882-1962), lærifaðir Ayatollah Ruhollah Khomeini (1902-1989), sem 1979 tók við völdum í Íran. Hann tók einnig þátt í aðgerð CIA. Íranska grein Bræðralagsins heitir „Aðdáendur Íslams,“ (Devotees of Islam), kennd við Navab Safavi (1924-1956).

Það voru íslamskir CIA-byltingarmenn, sem steyptu – eins og vikið var að - Mossadegh af stóli 1953, til að rýma fyrir Mohammad Reza Pahlavi (1919-1980). Það voru sömu byltingarmenn, sem svo steyptu Mohammad af stóli 1979. Örlaganornirnar eru bæði gráglettnar og kaldhæðnar.

Um miðbik síðustu aldar var CIA þó enn þá lærlingur MI6. Breska leyniþjónustan hafði langa reynslu í að etja fólki, ættkvíslum og þjóðum, gegn hver öðrum. Haldbestu reynsluna öðluðust þeir á Indlandi. Þeirra ær og kýr var að drottna og deila, spilla, stela og há stríð.

Þjófsnautarnir, Bretar og Bandaríkjamenn, skiptu olíuþýfinu á milli sín. Forseti Bandaríkjanna Franklin Delano Roosevelt (1882-1945) komst svo að orði við samningamann Breta, Lord Edward Wood Halifax (1881-1959): „Þið fáið … persnesku (írönsku) olíuna. En olíuauðævum í Kúvæt og Írak skiptum við á milli okkar. Olía Sádi-Arabíu kemur [hins vegar] í okkar hlut.“

Það er svo sem ekki furða, að Bandaríkjamenn hafi haldið hernaðartryggð við Sádí Araba, þrátt fyrir trú þeirra og samfélagshætti. Það er lítið um lýðræði og frelsi á þeim bæ. Hver forsetinn á fætur öðrum hefur játað þeim ást sína og tengst þeim frekari hernaðarlegum tryggðaböndum.


Moðreykur um Múhammeðstrú og djöfulsleikar í Miðausturlöndum. III: Menning og vísindi

Á miðöldum hafði trúin sem sé skotið rótum víða utan Arabíuskagans og fyrir botni Miðjarðarhafs, m.a. í Mið-Asíu og á Indlandi. Þannig tengdu múslímar Miðjarðarhaf og Indlandshaf og færðu sig smám saman upp á skaftið í Suðaustur-Asíu, Mið-Asíu og Kína.

Múslímar voru iðnir við að læra af öðrum. T.a.m. tileinkuðu þeir sér náttúruspeki grískra og rómverskra heimspekinga og stærðfræði Indverja; á áttundu og níundu öld voru fyrir tilstilli áhugasamra kalífa þýdd verk úr persnesku, grísku og indversku. Arabíska varð á miðöldum (800 til 1400) nýtt alþjóðatungumál.

„Með hliðsjón af atorku og sköpunarkrafti arabískrar eða múslímskrar menningar hafa fræðimenn fært rök að því, að aldirnar frá 800 til 1300 hundruð séu einar mestu afreksaldir mannkynssögunnar.

Um þær mundir er tímabilið hófst óf persneski fræðimaðurinn al-Khwarzimi (d. um 850) saman gríska og indverska speki og samdi á þeim grundvelli töflur, er lutu að stjarnfræðilegri stærðfræði, sem síðar urðu grunnur að rannsóknum bæði í austri og vestri. Hann lagði einnig stund á algebru (al-Jabr á arabísku) og í kennslubók hans um efnið kemur orðið fyrst fyrir.

Kunnátta Araba um lækningar tók kunnáttu Vesturlandabúa verulega fram. Al-Razi (865-925), búsettur í Babýlon, var fyrsti læknir sögunnar til að greina á milli mislinga og bólusóttar. Auk þess reit hann rómaða alfræði um lækningar, sem var þýdd á latínu og fór víða um hinn vestræna heim.

Starfsbróðir al-Razis, hinn nafntogaði skurðlæknir, al Zahrawi (d. 1013) skrifaði einnig mikilsmetið verk um lækningar. Þar ræðir hann m.a., hvernig sauma má saman sár ... og hvernig mylja skal steina í blöðrunni.

Vísindi múslíma risu hæst í verkum Ibn Sina frá Bukhara (980-1037). Í Vestur-Evrópu er hann þekktur sem Avicenna. Í lækningariti sínu, al-Qanun, skráði hann gervalla þekkingu Grikkja og Araba um lækningar, lýsti smithættu við berkla og aðra sjúkdóma. Þar að auki skráði hann 760 lyf.

Múslímskir fræðimenn gáfu einnig út verk um landafræði, lögspeki og heimspeki. Al-Kindi (d. um 870) var fyrstur manna til að spreyta sig á að steypa saman inntaki Kóransins og grískrar heimspeki. Sömuleiðis leitaðist hann við að samræma speki forngrísku heimspekinganna, Aristótelesar og Platós (429-347) um góða siði og gott hátterni í hugmyndum íslamskrar trúar um manninn, samband hans við alheiminn og Guð.

Hinn þekkti heimspekingur, al-Farabi (d. 950) skrifaði stjórnmálafræðilega ritgerð um fyrirmyndarborgina. Þar réði ríkjum yfirvald, sem bjó að fullkomnun bæði í greindarfarslegu og siðferðilegu tilliti, og hafði að keppikefli og leiðarljósi hamingju íbúanna.

Fyrrnefndur Avicenna hélt því fram, að sannleikur sá, er finna mætti með skynseminni, gæti ekki stangast á við þann sannleika, sem fólginn er á síðum Kóransins.

Ibn Rushid eða Averroës (1126-1198), dómari í Sevilla og síðar hirðlæknir, lagði út af verkum Aristótelesar. Hann gerðist talsmaður þess, að alla þekkingu mætti selja undir lög skynseminnar, nema trúarsetningar. Trúarbrögð og heimspeki ættu samleið, taldi hann.“ (Mckay, J.P. og fl. A History of World Societies, Bedford/St. Martin‘s, Boston 2012, bls. 259.)

Fræðimaður úr röðum kvenna, Fatima bint Muhammad Al-Fihriya Al Quarashiya/Fatima al-Fihri (800? – 880?) stofnaði Háskólann í Al Qarawiyyin í Marokkó árið 859 fyrir föðurarfinn. Það var fyrsti háskólinn í veraldarsögunni.

Arabar voru einnig miklir tónlistarmenn. Á miðöldum í Evrópu voru það oftar konur en karlar, sem kyrjuðu óði um hina hreinu og óaðfinnanlegu ást riddara til ástmeyjar sinnar; um þrá, fegurð, hreysti og fórnfýsi. Ástaróðurinn, er farandsöngvararnir (trúbadúrar) sungu, er að líkindum ættaður úr menningu Múhameðstrúarmanna á Suður-Spáni. Farandsöngurinn barst til Provance í Frakklandi og blómstraði þar. Orðið trobar úr mállýsku Provancemanna er dregið af arabíska orðinu, taraba, sem merkir að syngja ljóð.

Eins og fram hefur komið iðkuðu Arabar trú sína af mikilli samviskusemi. Trúarathafnir gerðust stundum langar, svo hressingar var þörf. Trúlega fór kaffidrykkju fyrst að gæta að ráði við tilbeiðslu íslamskra Súfista í Jemen. Kaffið hélt þeim vakandi við langdregnar tilbeiðslur rétt eins og teið Búddamunkunum á Indlandi.

Um miðja fimmtándu öld varð kaffidrykkja æ vinsælli í löndum Múhameðstrúarmanna. Fyrsta kaffihús veraldar var opnað í Miklagarði (Istanbúl) 1555 og breiddist þaðan út um allan heim. (Fyrsta kaffihús Íslands var opnað í Reykjavík 1837. Um miðja öldina var íbúafjöldinn rétt um eitt þúsund. Hinir lærðu deildu þá um heilsufarsáhrif kaffis og gera það óspart enn.)

Áfengir drykkir og vímuefni hvers konar áttu hins vegar ekki uppá pallborðið og voru blátt áfram bannaðir í Múhammeðstrú. Það er á þeim grundvelli, að Talibanar hafa upprætt opíumræktun í Afganistan.


Moðreykur um Múhammeðstrú og djöfulsleikar í Miðausturlöndum. II: Fjölskyldan og samskipti kynjanna

Muhammad fékk á unga aldri bónorð frá ríkri ekkju, Khaddija (555-620), sem var fimmtán árum eldri en hann. Verðandi spámaður giftist því til fjár. Að henni látinni kvæntist hann mörgum konum. Hann er sagður hafa verið kærleiksríkur eiginmaður og studdi eiginkonurnar til dáða, jafnvel hermennsku.

Síðar gerði persneski fræðimaðurinn, Abu Hamid Al-Ghazali (1058-1111), samskiptum kynjanna betri skil. Um hjónaband og kynlíf sagði hann m.a.:

„„Hjónabandið hefur fimm kosti; barneignir, fullnægingu kynhvata, heimilisstjórnun, vinskap og þá sjálfsögun að rækta það. Fyrsti kosturinn – barneignir – er meginkostur hjónabandsins og á þeim grundvelli var til þess stofnað. Tilgangurinn felst í því að viðhalda ættinni, svo að ekki hljótist af mannekla.“ …

„Það er áríðandi, að umsjónarmaður [eða faðir] meti, af umhyggju fyrir dóttur sinni, hvað tilvonandi eiginmaður hafi til brunns að bera. Því hún ætti ekki að giftast manni sem er ófríður sýnum, skortir góða siði, er veikur í trúnni, deigur við að halda réttindum hennar á lofti eða lakari henni að ætterni. Spámaðurinn sagði: „Hjónaband er þrælkun, því skyldi gæta varúðar við giftingu dótturinnar.““ ...

„Eigi [karlmaður] margar eiginkonur ætti hann að sýna þeim jafnan áhuga hverri og einni og ekki taka eina fram yfir aðra. Sé ferðalag í vændum og óski hann að hafa með sér eina [eiginkvennanna], ætti hann að varpa hlutkesti milli þeirra eins og Sendiboðinn [Muhammed spámaður] tamdi sér að gera. Svíki hann konu um nótt með sér, ætti hann að bæta henni nóttina. Það er skylda hans. ...

Karlmaðurinn ætti að gera konu sinni glingrur með hlýlegum orðum og kossi á vör. Spámaðurinn komst svo að orði: „Enginn skyldi fara á fjörurnar við konu sína eins og villidýr væri, ástúð (emissary) skyldi ríkja milli þeirra.“ Þá var hann spurður: „Hvað er ástúð, þú Sendiboði Guðs?“ Svarið var: „Kossar og [unaðs]orð.““ (McKay, J. og fl. A History of World Societies, Bedford, Boston 2012, bls. 250-151.)

Í heimi Múhameðstrúaramanna er vítt til veggja, þegar samskipti kynjanna eru annars vegar. Eitt dæmi er Woodabee/Bororo ættkvísl Fulaníþjóðarinnar (Fulani) í Afríku (í Tjad (Chad), Nígeríu, Kamerún (Cameroon) og Mið-afríska lýðveldinu (Central African Republic)).

Konur jafnt sem karlar njóta þar frjálsræðis í kynlífi. Þegar árleg menningarhátíð þeirra gengur í garð, dansa ógiftir karlar eins konar tilhugalífsdans. Þeir skreyta sig og fegra til að ganga í augu stúlknanna.

Kvendómarar velja þann snotrasta meðal karlanna. Þeir líta sérstaklega til hvítu í augum og tönnum. Og svo eiga þeir að vera hávaxnir og samræmis skal gæta í andlitsfalli. Konum er frjálst að velja sér eiginmann að geðþótta, eftir að hafa virt þá fyrir sér í dansinum og við uppröðun. Á hátíðum þessum er giftum konum einnig frjálst að taka sér ástmann meðal giftra karla, jafnvel giftast nokkrum körlum.

Annað dæmi er frá eyjunni Java í Indónesíu. Sagan segir, að eitt sinni hafi konungssonurinn, Pangeran Samodro, stungið af með stjúpu sinni, Nyai Ontrowulan. Uppi á fjalli einu, Kumukus (Gunung) eða Kynlífsfjallinu, áttu þau samræði. En þau náðu ekki að ljúka sér af, áður en þau voru gripin glóðvolg af útsendurum konungs, líflátin, og grafin í sömu holunni.

Sú trú hefur af sögunni sprottið, að eigi ókunnugir samræði sjö sinnum, muni happ þá henda. Þessi siður, viðhafður á rúmlega mánaðar fresti, hefur viðhaldist fram á okkar daga, en er nú á undanhaldi, eftir að fréttist um hinn stóra heim.

Kvennabúr (harem) tíðkuðust einkum meðal yfirdrottnara í samfélagi Múhammeðstrúarmanna, kalífum, rétt eins hjá kínversku keisurum. Kvennanna var venjulega gætt af karlkyns geldingum til að yfirvaldið hefði vissu fyrir því, að börn kvennanna væru getin af honum sjálfum. Sumar frillanna gátu hafist til verulegra metorða og þannig haft mikil áhrif á stjórnun hlutaðeigandi valdsmanna. (Orðið er dregið af arabísku orði, haram, sem merkir forboðið ellegar heilagt.)

Íslamskar konur bera oft og tíðum hulu, slæðu eða huliðsserk (veil, purdha, burca). Á voru méli hefur hugtakið sérstaka skírskotun til höfðuðhulu kvenna. Að öllum líkindum á siðurinn upphaf sitt í Persíu eða Býsanska ríkinu og greindi frjálsbornar konur frá ambáttum. Þetta átti einkum við í þéttbýli, þar sem hulan torveldaði vinnu til sveita og í eyðimörkinni. Kóraninn hefur engin ákvæði um huluna. Sums staðar í íslömskum samfélögum komst á sá siður að hylja líkama konunnar allrar. Huliðsserkurinn var einkum notaður í kvennabúrunum.

Helgiritin boða jafnræði, hvað varðar kynlíf og trúariðkun, og jafnframt hafa konur töluverð efnahagsleg réttindi. Boðaðar eru sömu refsingar fyrir hjúskaparbrot af hálfu karla og kvenna.

Í hinum arabíska heimi á miðöldum var menntun einkum sniðin að trúarskyldum, vísindum eða veraldlegri stjórnsýslu. Slíkt var hlutverk karla og því minni áhersla lögð á menntun kvenna. Engu að síður hlutu margar konur viðhlutamikla menntun fyrir tilstuðlan foreldra eða fjölskyldu; frumkvæði til þessa kom iðulega frá feðrum eða eldri bræðrum. (Svipað mynstur og á Vesturlöndum.)

Arabískar konur létu einnig að sér kveða í stjórnmálum og umsýslu eins og kynsystur þeirra meðal Frankanna. Nafntogaðar eru t.d. Aisha (614-678), dóttir fyrsta kalífans, og þriðja eiginkona Spámannsins. Hún er talin meðal bestu fræðimanna Múhammeðstrúarmanna. Sama má segja um sjöttu eiginkonu hans, Umm Salama/Hind bint Abi Umayya (596-681).

Konur; þ.e. mæður, eiginkonur, tíðleikakonur eða hjákonur, í kvennabúrum höfðingja, höfðu oft töluverð áhrif við hirðarnar, t.d. hirðar kalífanna.

Hlutverk kynjanna endurspeglast að nokkru leyti í söngvum kvenna, þegar þær hvöttu karlana til dáða. Í stríðsátökum í Arabíu árið 625 sungu konur m.a.:

Ó, þið synir Abdaldar,

ó, verndarar heimkynna okkar,

leggið til heiftúðugrar atlögu með sérhverju, beittu spjóti.

Við föðmum ykkur, ef þið sækið fram

og breiðum undir ykkur teppi mjúk.

En ef þið leggið á flótta, skulið þið yfirgefnir,

og ást okkar kólnar að eilífu.

Í kór þessum var kona, að nafni Hind bint Utbah (584-635). Hún hafði harma að hefna, því andstæðingarnir, hersveitir Múhammeðs spámanns, höfðu drepið son, frænda, bróður og föður hennar. Sigur vannst í stríðinu, sem kennt er við Uhud. Af því loknu örkuðu konurnar um vígvöllinn og svívirtu lík fylgisveina spámannsins. Þær skáru eyru þeirra og nef af höfði og andliti, og gerðu úr þeim arm- og öklahringi.

Hind bætti um betur. Hún skar lifrina úr búki banamanns föður síns, Hamza ibn Abd al-Muttlib (568-625), og lagði sér munns. En matarlystin hvarf henni. Hind spúði lifrarbitunum. Síðar gerðist Hind þó spakur fylgismaður Múhammeðs, sem fyrirgaf henni illgjörðirnar.

Í stríði Araba og Rómverja 636, gerði Hind bint Utbah, garðinn aftur frægan og hafði ásamt fleiri konum úrslitaáhrif um gang orrustunnar. Hún söng með kvennakórnum:

Ó þið, sem látið fætur toga á brott frá trygglyndum elskum,

sem geisla af fegurð og bifast ei.

Þið seljið þær í hendur Rómverjum,

sem grípa í hárlokka þeirra og góma.

Þeir munu njóta herfangsins til fullnustu

og berast innbyrðis á banaspjótum.

Valkyrjur þær, er kvennakórinn skipuðu, lögðu til atlögu við Rómverja, og reyndu að snúa veifiskötum og gungum til vígvallarins, þegar þær lögðu á flótta.

Þær kyrjuðu enn: Við erum dætur stjarnanna, er lýsa að nóttu.

mjúk teppi gæla við iljar okkar

og af okkur stafar vináttu.

Hendur okkar eru smurðar ilmsmyrslum

og perlur skrýða háls okkar.

Komdu því og vefðu okkur örmum.

Sá, sem við skirrist, mun einsamall verða.

Sér enginn elskhugi sóma sinn í að vernda þessar konur?

Enn er enginn hörgull á herskáum konum í Íslam. Ein þeirra er Írakinn, Samira Jassam/Samira Ahmed Jassim al-Azzwi (f. 1958), sex barna móðir, sem starfað hefur með ofbeldisfullum Múhammeðstrúarmönnum (Sunni), nefnd Móðir hinna trúuðu. Hún beitti m.a. nauðgunum á kynsystrum sínum til að sannfæra þær um að sprengja sjálfar sig í loft upp við hryðjuverk og styrkja þar með orðsporið.


Moðreykur um Múhammeðstrú og djöfulsleikar í Miðausturlöndum. I: Inngangur og trúarbrögð

Bandaríski blaðamaðurinn, Robert Dreyfus, hefur skrifað áhugaverða bók með titlinum, „Djöfulsleikar. Hvernig Bandaríkin leystu úr læðingi rétttrúnað í íslamskri trú“ (Devil‘s Game. How United States Helped Unleash Fundamentalist Islam). Bókin kom út 2005.

Höfundur segir á þessa leið: Þetta er sagan um það, hvernig Bandaríkjamenn fjármögnuðu og hvöttu hægrisinnaða öfgamenn meðal Múslíma til dáða, stundum fyrir allra augum, stundum í leyni. Í „Djöfulsleiknum“ leitast ég við að varpa ljósi á leyndina. Það er mikilvægt, þar eð fátt eru um þá stefnu vitað, en henni hefur verið fylgt í sex áratugi. Stefnan hefur alið af sér hryðjuverk Múslíma um víða veröld. Satt best að segja var hið verðandi heimsveldi Bandaríkjanna í Miðausturlöndum, Norður-Afríku, Mið- og Suður-Asíu, svo skipulagt, að Íslam sem stjórnarstefna yrði ein grunnstoða þess.

Nokkur orð um Múhammeðstrú eða Íslam, áður en lengra er haldið: Múhameðstrú, þ.e. trúin á spámanninn Múhammeð eða Muhammad ibn Abdullah (570?-632) er einnig kölluð á enskri tungu „Muslimism, Islam, Mohammedanism, Muhammadanism og Muslimism.“ „Islamism“ eða „Pan-Islamism“ er oft og tíðum notað um rétttrúnaðarhyggju, öfgatrú og yfirráðahyggju.

Muhammad, fæddur í Mekka á Arabíuskaganum, fékk opinberun í helli og gerðist boðberi Guðs, Alla (Allah). Múhammeð var talinn fjórði í röð hinna miklu spámanna. Hinir fyrri voru: Abraham, Móses og Jesús Maríuson. Um þá er fjallað í Biblíunni, Gamla og Nýja Testamentinu.

Múhammeðstrú eða Íslam merkir að gefa sig Guði á vald. Sá sem það gerir er trúmaður (muslim). Muhammad lofaði öllum hinum stríðandi ættkvíslum Arabíuskagans skjóli í stórum faðmi hins nýja íslamska ríkis hans, umma. (Umma merkir samfélag fólks, sem sameinast með skírskotun til sameiginlegrar trúar fremur ættbálkatengsla.)

Lesa má um boðskap Allah í trúarritinu Kóraninum – sambærilegt rit Biblíu kristinna manna og Gyðinga. Allah er í sjálfu sér ekkert mannlegt óviðkomandi. Trúræknin hvílir á fimm undirstöðum: (1) Bænagjörð fimm sinnum á dag, (2) föstum, (3) bænagjörð í hinum heilaga mánuði, Ramadan, (4) pílagrímsför til Mekka, að minnsta kosti einu sinni í lífinu, og (5) ölmusu handa fátækum trúarsystkinum.

Þegar andlátið bar að, var Muhammad máttugasti höfðingi Arabíu. Þá upphófust erjur um erfðaröðina. Sumir vildu að Ali bin Abu Talib (600-661), tengdasonurinn, tæki við. „Shiat Ali“ voru þeir kallaðri eða einfaldlega „Shia.“

„Imam“ er sá kallaður, er veitir bænahaldinu forystu, en „ulama,“ er sá hópur fræðimanna, sem trúað er fyrir (að hálfu Sunníta) túlkun Kóransins. „Jihad“ er lykilhugtak og merkir ýmist innri baráttu hvers og eins við samvisku sína eða baráttuna fyrir félagslegum og efnahagslegum rétti systra og bræðra í trúnni.

Hinn hópurinn, Sunnítar, sem er lang fjölmennastur, vildi hins vegar, að náinn vinur og tengdafaðir Spámannsins, Abu Bakr/Abd Allah Ibn Abi Quihafa (573-634), tæki við stjórnartaumunum. Hann varð fyrsti kalífinn. Fylgismenn hans kenndu sig við hefð (sunna) og urðu Sunni. Trúarlega er óverulegur munur á fylkingunum. Í Sádí-Arabíu eru Sunnítar fjölmennastir, Shia í Íran.

Safavidar er íslömsk trúarregla, sem stofnaði klerkaveldi í Persíu (Íran). Safavidar aðhylltust Shia tilbrigðið við Múhammeðstrú og beittu sér fyrir eflingu þess siðar. Í því tilliti var prestastéttin (ulama) einkar mikilvæg.

Löggjöf Múhammeðstrúarmanna er kölluð saría (sharia, shariah), þ.e. lög Guðs eða Alla. Þau tóku til stjórnunar, tengsla, afbrota, verslunar og trúar. Þau voru komin frá Guði, sem var óskiptur, einn og sannur. Lög- og guðfræði í Múhammeðstrú er stunduð í skólum, nefndum Madrasa. Bænahús Múhameðstrúarmanna eru moskurnar (mosque). Hadith er kallað spekisafn spámannsins – um orð hans og æði. Íslömsk lög grundvallast á túlkunum guðspekinga (ulama) á hinni helgu bók, Kóraninum og Hadith.

Áratugum og öldum eftir andlát Múhammeðs voru færð í letur boð hans eða skipanir í hina helgu bók, Kóraninn. Múhammeð var fyrirmynd hins fullkomna manns í guðslíki. Líferni hans skyldi vera til eftirbreytni, menn skyldu feta troðna slóð hans. Þessi eftirbreytni er kölluð sunna eða hefð eins og fyrr er ýjað að.

“Fyrstu tvær til þrjár aldirnar eftir dauða Múhameðs eru stundum nefndar öld arabískrar eingyðistrúar. Ýmis guðfræðileg og pólitísk atriði Íslams mótuðust: (1) Árið 651 (þ.e. tiltölulega snemma) kemst texti Kóransins, hins helga rits múslima, í endanlegt form. (2) Um kennivald Múhameðs og kalífans (eftirmanns hans). (3) Um lagaleg efni í tengslum við hadith (safn orða Múhameðs og sagna um hann). (4) Líf spámannsins varð siðferðilegt fordæmi, sunna (“hin farna leið” spámannsins, þ.e. afrek hans og ummæli sem leiðarvísir og fordæmi); fjórar meginstefnur (“skólar”). (5) Múhameð sem vammlaus maður, holdgervingur vilja guðs.“ …

“Fjórir „lagaskólar“ kenndir við stofnendur sína: (1) Abu Hanifah (699-767, Tyrkland, Mið-Asía). (2) Malik b. Anas (um 711-795; Norður-Afríka). (3) al-Shafi’I (767-820; A-Afríka, A-Asía). (4) Ibn Hanbal (um 780-855; Arabíuskaginn).

Tveir meginstraumar íslamskrar heimspeki, skólaspeki (kalam) og rökheimspeki (falsafa) sem byggði á kenningum [forngríska heimspekingsins] Aristótelesar [394-322].” (Sverrir Jakobsson. Námskeið í heimssögu, HÍ, haust 2013, glæra.)

Hlýðni við saría lögin er leiðin til hins góða lífs, lífs í guðsótta. Meginuppspretta laga og lagatúlkunar er sem sé Kóraninn sjálfur, svo og „Vegurinn“ (Sunnah, Hadith), orð og gjörðir Spámannsins. Túlkun saría er mismunandi eftir samfélögum. Sums staðar eins og í Tyrklandi gilda veraldleg lög. Annars staðar er farið beggja bil og í bland.

Íslömsk trú, þ.e. Múhammeðstrú og stjórnarhættir héldust hönd í hönd. Ættflokkar á Arabíuskaganum höfðu viðurkennt trúarreynslu Múhammeðs spámanns og kenningu hans um 632. Um öld síðar ríktu íslamskir leiðtogar meira eða minna í ríkjunum umhverfis Miðjarðarhafið, Írak og Persíu (Íran) og á Norður Indlandi.

Bagdad í Írak varð andleg miðstöð múslíma. Klofnings varð vart þegar á áttundu öld. Klofningur þessi hafði víðtækar afleiðingar, ekki einungis, hvað varðar yfirráð yfir heimsveldinu, heldur einnig með tilliti til trúarspeki og heimspeki. Innan Sunni hreyfingarinnar urðu til fjögur megintilbrigði eða lagastefnur.


Langþráð stríð ofstækismanna í Ísrael. Gyðingakóngurinn. Þjóðverjum stefnt fyrir Alþjóðadómstólinn

Bandaríski blaðamaðurinn, James Bamford, skrifar athyglisverða grein um leit hans í Ísrael fyrir þrem áratugum síðan að ódæðismanni, bandarískum Gyðingi, að nafni Robert Manning. Hann flúði bandaríska réttvísi til Landsins helga, þar sem Ísraelsmenn skutu yfir hann skjólshúsi og tóku hann í herinn, Varnarsveitir Ísraels (Israeli Defense Forces – IDF).

Robert fetaði í fótspor landa síns og trúbróður, prestsins (rabbi) Meir (Martin David) Kahane (1932-1990). Meir var fæddur í Brooklyn og stofnaði þar samtök 1968, „Varnarsveit Gyðinga“ (Jewish Defense League).

Þessi sveit minnir helst á Ku Klux Klan, kynþáttaofstækissamtök bleikskinna í Bandaríkjunum, dyggilega studd á sínum tíma af Frímúrarareglunni (Albert Pike). Meir var myrtur 1990. En hugmyndafræði hans lifir áfram í ofstækisflokknum, Kach, sem Meir stofnaði í Ísrael.

Gyðingaverndarsamtök Meir eru ábyrg fyrir fjölda ódæðisverka í Bandaríkjunum og Ísrael. Þar haslaði Meir sér völl í stjórnmálum. Hófstilltir þingmenn í Knesset sniðgengu hann meira eða minna. En þá kom Brjálaði Bensi til skjalanna og stofnaði kosningabandalag trúaröfgamanna með Kach innan vébanda sinna. Stjórnmálaarmur Kach er flokkur, sem ber heitið Otzma Yehudit (Hraustir Gyðingar).

Einn þessara hraustu Gyðinga, læknirinn, Baruch Goldstein (1956-1994), framdi fjöldamorð á Palestínumunnum; 129 lágu í valnum, þar af 29 dauðir. Sjálfsvígssprengingar Hamas fylgdu í kjölfarið. Þær kostuðu um eitt hundrað Ísraelsmenn lífið.

Annar þokkapiltur úr þessum hópi, Yigal Amir (1970-1995), myrti Yitzhak Rabin (1922-1995), fyrrum hryðjuverkaforingja og forsætisráðherra, sem snúist hafði hugur, og reyndi ásamt Yasser Arafat (1929-2004) að semja frið í Ósló.

Hópurinn hefur framið margvísleg óhæfuverk gagnvart Palestínumönnum eins og að hella bensíni ofan í sextán ára unglingspilt, Mohammad Abu Khdeir 2014, og kveikja síðan í honum.

Kach minnir á margt um annan öfgaflokk, Habayit Hayedudi (Heimahaga Gyðinga). Systurflokkur barnamorðingjans, Bibi, Likud, rekur sömuleiðis rætur sínar til hryðjuverkasamtaka ísraelskra landnema úr Austur-Evrópu. Þar er hryðjuverkasveitarforinginn og forsetinn, Menachem Begin (1913-1992), trúlega fremstur meðal jafningja. Öfgamenn unnu góðan sigur í kosningunum 2021.

Meir vandaði Palestínumönnum og Aröbum ekki kveðjurnar, kallaði þá t.d. hunda. Ísraelsk yfirvöld kalla þá dýr.

Meir naut stuðnings öfgahreyfingarinnar, Chabad, sem trúlega er stærsta öfgahreyfing meðal Gyðinga í veröldinni í dag. Stofnun einveldis í Ísrael er á stefnuskránni. Hún er stofnuð af prestinum (rabbi) Schneur Zalman frá Liade (1745-1812), sem rússnesk yfirvöld leystu úr haldi 1798. Foringi hreyfingarinnar er Yitzchak Feivish Ginsburgh (f. 1944), innflytjandi frá Bandaríkjunum eins og Meir. Kóngur vill hann verða í voðastóru Ísraelsríki.

Chabad rekur fjölda skóla í Ísrael, þar sem boðskapurinn er kenndur. Þeir eru fjármagnaðir af skattgreinendum og velunnurum í Bandaríkjunum.

Yitzchak kennir, að „gildi Gyðingsins sé ótakmarkað, [að] Gyðingur við búi óendanlega meiri helgi og sérstöðu en Ógyðingur.“ Þrátt fyrir þetta megi jafnvel deyða Ógyðing og taka úr honum líffæri til að bjarga Gyðingi.“

Hugmyndafræði Chabad er skýr; það er trúarleg skylda Ísraela að hefna sín, ríki Ísraels sé ekki réttlætanlegt, nema landið verði hreinsað. (Það liggur reyndar fyrir áætlun í þá veru.) Palestínumenn skal drepa eða reka á brott og Ísraelsmenn skulu lifa og hrærast í samræmi við ritninguna (Thorah) og koma á gyðinglegu trúræði (theocracy) meðal hinnar Guðs útvöldu þjóðar. Stofnun Ísraelsríkis 1948 sagði Yitzchak hefnd Guðs gegn hinum vantrúuðu.

„Ofbeldi Gyðinga til varnar hagsmunum sínum er aldrei slæmt,“ sagði Yitzchak einnig. Brjálaði barnamorðinginn og hirð hans virðist lifa samkvæmt þessari reglu, sbr. m.a. „hveitimorðin“ fyrir skemmstu, þegar hungrað fólk var strádrepið í hrönnum, örvæntingarfullt að verða sér úti um hveiti í brauð.

Þeim fjölgar í veröldinni, sem ofbýður morðæði ísraelskra stjórnvalda. Fyrrum hermenn í Bandaríkjunum krefjast þess t.d. að Bandaríkjamenn, sem eru beinir þátttakendur í aðgerðum á Gaza, hætti að senda vopn, og Nígaragúa hefur stefnt Þjóðverjum fyrir Alþjóðadómstólinn fyrir þátttöku í þjóðarmorði.

Forseti Brasilíu, Luiz Inacio Lula da Silva, líkir drápum Ísraels við helförina. Trúlega talar Luiz fyrir munn Latnesku Ameríku, Afríku og BRICS landanna. Barnamorðinginn hefur vitaskuld lýst hann „persona non grata“ (óalandi og óferjandi og óvelkominn til Ísraelsríkis).

Bandaríski blaðamaðurinn, Pebe Escobar, skrifaði grein þann 16. febrúar á vefmiðlinum, Cradle (ritskoðaður af Fésbók), þar sem hann færir rök að hliðstæðu árása Kænugarðsstjórnarinnar á íbúa í Donbas í borgarastríðinu í Úkraínu, sem hófst 2014.

Friðarumleitanir kynnu einnig að vera hliðstæðar. Það ætti að vera ljóst, að friðarsamningar í Úkraínu muni fela í sér uppgjöf Nató. Hassan Nasrallah, leiðtogi Hisbolla í Líbanon, hefur gefið í skyn, að svo muni einnig fara í Ísrael, þ.e. að verði yfirleitt samið um landamæri verði um að ræða þau, sem giltu 1948.

Þjóðverjar og Vesturlönd sitja föst við sinn keip og berjast áfram gegn Palestínumönnum í gengdarlausri hagsmunagæslu og von um viðskiptahagnað. Það gera Íslendingar líka, samkvæmt yfirlýsingum og fylgispekt við Evrópusambandið og Nató.

Fornar kennisetningar úr stjórnmálatrúfræðum Kristilegra jafnaðarmanna (Sjálfstæðisflokksins), systurflokks Olaf Scholz, ráða þar för. Utanríkismálastefna Íslendinga hefur allar götur frá hernámi Bandaríkjanna verið eins konar neðanmálsgrein við heimsvaldastefnu Bandaríkjanna. Fáir þjóðir eru hundtryggari, enda voru hermangssporslurnar góðar.

Vesturlönd berjast sem sé með hungurvofu og vopnum fyrir hagsmunum sínum í Miðausturlöndum, ásamt þeim ríkjum Araba, sem eru skuldunautar þeirra, og/eða njóta hernaðarverndar eins og Íslendingar og aðrar Norðurlandaþjóðir.

Egyptar, Jórdanir og Sádí-Arabar eru þar mest áberandi. Það eru allar líkur til, að nefndar þjóðir séu vitorðsmenn í samsærisstríði hernaðarforystu Hamas og Ísraela.

Vesturlönd leika sér að eldinum. Þau leika svipaðan leik og í Úkraínu. Þau vilja heldur láta vopnin tala en setjast að samningaborði. En andstæðingarnir eru keikir.

Ansarullah í Jemen eru hvergi smeykir, þrátt fyrir sífelldar árásir, og Hisbolla heitir hefndum fyrir eldflaugaárásir Ísraels langt inn í Líbanon. Enn hafa andstöðuveldin, þ.e. Hisbolla, Íran, Írak, Sýrland og Íran, varla látið til sín taka.

Bandaríkjamenn eru engu að síður kokhraustir, Tony Blinken ekki síst: „Þeir, sem ekki setjast að borðum alþjóðakerfisins [þ.e. samkvæmt geðþótta Bandaríkjamanna], munu verða etnir,“ sagði hann á Öryggisráðstefnunni í München nýlega.

https://alexkrainer.substack.com/p/the-power-behind-the-throne-and-the?utm_source=profile&utm_medium=reader2 https://forward.com/news/352016/the-kabbalist-who-would-be-king-of-a-new-jewish-monarchy-in-israel/ https://merip.org/2021/02/three-decades-after-his-death-kahanes-message-of-hate-is-more-popular-than-ever/ https://steigan.no/2024/02/korstogets-sivilisasjon/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/02/hezbollah-advarer-israel-sivilt-blod-vil-bli-betalt-med-blod/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/03/amalek-og-motsetningen-mellom-offer-og-overgriper/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2023/12/israelerne-og-deres-bruk-av-dahiya-doktrinen/ https://www.aljazeera.com/news/2024/3/1/more-than-25000-women-and-children-killed-in-gaza-us-defence-secretary https://julianmacfarlane.substack.com/p/the-west-guilty-of-genocide?utm_source=post-email-title&publication_id=837411&post_id=141302579&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=103ae5&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/a-false-flag-attack-operation-to-justify-the-israel-u-s-genocide-against-the-people-of-palestine/5847958 https://www.globalresearch.ca/israel-gas-oil-and-trouble-in-the-levant/5362955 https://expose-news.com/2024/02/16/energy-firms-face-legal-threat-over-israeli-licences-to-drill-for-gas-off-gaza/ https://www.globalpolitics.se/tredje-varldskriget-ar-har-asymmetriaxeln-gar-i-halsen-av-den-regelbaserade-ordningen/ https://www.timesofisrael.com/report-idf-intel-assesses-that-hamas-will-survive-as-terror-group-post-war/ https://electronicintifada.net/blogs/david-cronin/amid-genocide-eu-eyes-more-trade-israel https://www.globalpolitics.se/varfor-israels-krig-mot-unrwa-ar-sa-grymt/ https://informationclearinghouse.blog/2024/02/27/egypt-sells-out-palestinians-for-10-billion-loan-package/15/ https://www.voltairenet.org/article220453.html https://www.voltairenet.org/article220460.html https://www.globalpolitics.se/risk-for-storkrig-i-vastasien/ https://chrishedges.substack.com/p/the-chris-hedges-report-with-rabbi?utm_source=substack&utm_medium=email&utm_campaign=email-half-post&r=ry8jq https://steigan.no/2024/02/pa-sporsmal-om-dode-palestinske-barn-sier-rep-andy-ogles-drep-dem-alle/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.aljazeera.com/news/2024/2/18/brazils-lula-compares-israels-war-on-gaza-with-the-holocaust https://korybko.substack.com/p/lulas-holocaust-comparison-is-historically?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=141853894&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://steigan.no/2024/02/usa-gir-israel-gront-lys-til-a-drepe-sivile-i-rafah/?utm_source=substack&utm_medium=email https://libya360.wordpress.com/2023/12/05/the-greater-israel-scheme-and-its-global-power-play-a-delusional-recipe-for-armageddon/ https://derimot.no/david-og-goliat-har-hamas-vunnet-krigen-pa-gaza/ https://www.youtube.com/watch?v=ZRb5-_790wY https://www.youtube.com/watch?v=bFn7Zd_J69w J https://informationclearinghouse.blog/2024/03/02/us-veterans-demand-termination-of-weapons-to-israel/13/ https://archive.vn/4GSpv https://archive.vn/tcq16#selection-1211.0-1219.1 https://archive.vn/tcq16 https://archive.vn/ADRYW https://www.aljazeera.com/news/2024/3/2/nicaragua-drags-germany-to-icj-for-facilitating-israels-genocide-in-gaza https://archive.vn/b795N https://informationclearinghouse.blog/2024/03/02/israels-far-right-finally-gets-the-war-it-has-always-wanted/13/


Hryðjuverk í hugarfylgsnum. Taugatæknifræði og stjórn hugans

Flestir þekkja yfirvarp innrása Vesturveldanna í annarra manna ríki; frelsa íbúa og kenna þeim lýðræði - eða varðveita eigið frelsi og lýðræði. Þetta er eins konar vörumerki Bandaríkjamanna og Nató.

Færri gera sér grein fyrir, að ríkisstjórnir Vesturlanda vinna gegn eigin þegnum, að töluverðu leyti, til að ná yfirþjóðlegum markmiðum Sameinuðu þjóðanna og Alheimsefnahagsráðsins (World Economic Forum) - og Evrópusambandsins reyndar einnig, sbr. þróunar- og rannsóknaráætlunina, „Sjóndeildarhring Evrópu“ (Horizon Europe).

Það vakir t.d. fyrir yfirvöldum Evrópusambandsins aðlaga okkur að loftlagsbreytingum, rafmynt, snjallborgum og netöryggi (stafrænt aðgengi að netinu), svo eitthvað sé nefnt. Ofurtölvan og gervigreindin eru mál málanna.

Viðleitni stjórnvalda og ofangreindra aðilja til að ná beinni stjórn á huga vorum og taugakerfi, er á fárra vitorði. Vitundariðnaðurinn er svo sannarlega margfaldur í roðinu.

Þróun þessarar tækni er komin vel á veg. Beint inngrip í hugann og eftirlit er t.d. framkvæmt með stafrænni tækni, rafsegulbylgju-, örgjörva- og tölvuagnatækni (nanotechnology - ). Sú síðastnefnda var m.a. notuð við gerð bóluefna gegn covid-19 veirunni. En taugaflöguígræðsla er vissulega líka þekkt.

José Manuel Rodriguiez Delgado (1915-2011), var brautryðjandi við flöguígræðslu (chip) í heilabú manna og dýra. Hann skrifaði árið 1969 bókina: „Efnisleg stjórnun hugans: Áleiðis til sálsiðaðs samfélags (Physical Control of the Mind: Toward a Psychocivilized Society). Hann segir m.a.:

„Maðurinn hefur engan rétt til eigin hugþroska. Frjálslyndisleg viðhorf í þessu efni hafa víðtæka skírskotun. Það verður að raftengja heilann. Sá dagur mun koma, að herjum og hershöfðingjum verði stjórnað við raförvun heilans.“

Aukin þekking í líffræði og tölvutækni býður forsjárhyggju- og stjórnlyndisfólkinu sífellt upp á nýjar aðferðir við notkun tölvuagnstýra eða -ráða (nanobot). Fræðigreinin um þetta kallast tölvuagnfræði (nanobotics). Ofursmáar agnir úr gerviefnum eru forritaðar, svo þær megi örva eðlileg boð líkamans eða yfirtaka þau.

Raymond Kurzweil (f. 1948) hefur líka skrifað bók um efnið; „Sérstaðan er nálæg: Þegar mannkind rýfur múra eðlisins (The Singularity is Near: When Humans Transcend Biology). Hann hefur einnig skrifað um þetta grein í The Guardian.

Agntölvurnar, sem streyma um blóðrásina, má forrita með ýmsum hætti, t.d. til að greina og virkja varnir gegn sjúkdómum, endurræsa frumur eða styrkja, hugsanlega með þeim árangri, að við yrðum ódauðleg. Slík inngrip gera manninn að tölvumenni (transhumanism, cyborg (tölvuvélmenni)), blending lífveru og tölvu. Líftölvuagnfræði heitir sú grein (bionanotechnology).

Agnir (nano eða nanometre eða agnmetri er einn milljarðasti úr metra) voru t.d. notaðar til að koma hluta covid-19 veirunnar inn í frumur líkamans, sem þannig dreifðist með blóðrásinni og virkjaði ónæmiskerfið til varna. Tæknin hefur líka verið notuð til að hnitmiða notkun krabbameinslyfja.

Tékkneski heimspekingurinn og hagfræðingurinn, Mojmir Babacek (f. 1947) hefur skrifað athygliverðar greinar um þessa þróun. Hann hefur sömuleiðis ritað opið bréf til Evrópusambandsins, þar sem hann greinir frá þeirri ógn við frelsi, sjálfræði, sjálfsvirðingu og lýðræði, sem af þessari tækni stafar.

Mojir bendir eins og fyrrgreindur José Manuel, á, að hernaðaryfirvöld hafi líka fengið augastað á þessari tækni. Cornelis van der Klaauw, hollenskur herforingi í Nató og sérfræðingur í herkænskumiðlun (strategic communication), segir til að mynda:

Ástæða þess að fórnarlömbin (target) verða ekki vör við innrásina í huga sinn, er sú, að hún sneiðir hjá árvekni hugans, beinist að ómeðvitaðri deild hans, en þar eru flestar ákvarðanir teknar. Innrásir í fylgsni hugans eiga sér ekki bara stað í vísindaskáldsögum lengur. Þær eru raunverulegar.

Taugatölvutækni (neural nanotechnology) má beita til að koma stjórnráði (nano-sized robot) í blóðrásina, sem tekur sér bólfestu í námunda við tiltekna frumu. Þannig má beintengja heilann við gervigreindartölvu fram hjá vökulum skilningarvitum. Jafnvel þótt vinna megi áfangasigur á öðrum vígvöllum (tactical and operational victory), er mannshugurinn sá einasti vígvöllur, þar sem fullum sigri má ná.

Taugavopnin (neuroweapon) eru vopna farsælust og er beitt gegn einstaklingum, svo og hjörðum (crowd control technology, radio frequency weapons, directed energy weapons). Það er með þessi stríð sem önnur, minnir David Skripac okkur á; þau eiga rót sína í græðgi og hagsmunagæslu (https://www.bitchute.com/video/fo3pOKatXitc/).

Þróun taugahernaðartækni er stunduð víða. Hún er samtvinnuð annari þróun á boð- og snjallsviði. Vonir standa til, að sjötta kynslóð snjallsíma- eða boðkerfa (6G) sé þess megnug að tengja taugakerfi fólks beint við alnetið.

Ætli íslenska leyniþjónustan, sem nú er í örum vexti fyrir atbeina núverandi ríkisstjórnar, hugsi sér ekki gott til glóðarinnar?

https://frettin.is/2022/05/31/tolvuagnastyring-huga-og-heilsu-liftolvuagnfraedi-og-sjalfbaera-saelurikid/ https://www.globalresearch.ca/author/david-skripac https://www.globalresearch.ca/our-species-genetically-modified-witnessing-humanity-march-toward-extinction-viruses-friends-not-foes/5763670 https://rumble.com/v4gd9rw-trudeau-panics-as-arrest-warrants-issued-against-wef-young-global-leaders.html https://www.globalresearch.ca/moving-toward-global-empire-humanity-sentenced-unipolar-prison-digital-gulag/5818824 https://expose-news.com/2024/02/29/horizon-europe-is-a-euphemism-for-technocracy/ https://eufunds.me/articles-horizon-europe/ https://www.globalresearch.ca/if-democracy-win-world-united-nations-organization-must-become-democratic/5826398?utm_campaign=magnet&utm_source=article_page&utm_medium=related_articles https://www.globalresearch.ca/peoples-brains-bodies-not-protected-against-attacks-electromagnetic-waves-neurotechnologies/5820193 https://www.globalresearch.ca/why-governments-around-world-classify-information-about-effects-pulsed-mirowaves-extra-low-frequency-electromagnetic-waves-human-brains/5839545 https://www.globalresearch.ca/let-us-try-save-freedom-democracy/5839838 https://www.globalresearch.ca/world-competition-control-human-brains-should-stopped/5849422?utm_campaign=magnet&utm_source=article_page&utm_medium=related_articles https://www.globalresearch.ca/about-time-stop-world-competition-control-human-brains/5850919


Danir eru dásakvinnur og stríðsóðar eins og systurnar á Norðurlöndum - og Emmanuel. Tapaða stríðið í Úkraínu

Konan, sem lét drepa alla minnka í Danmörku, Mette Frederiksen, vill líka ganga á milli bols og höfuðs á Rússum með því að fórna karlpeningi í Úkraínu. Því samsinnir Diljá Mist Einarsdóttir, ein af efnilegustu flokkskonum Kristilega jafnaðarmanna og forkona utanríkismálanefndar Alþingis. Úkraínumenn eru jú að berjast fyrir okkur, segir Diljá Mist. Hún var í hópi fagurra skjaldmeyja þjóðanna í námunda við Eystrasalt, sem skunduðu til þinghalds í Kænugarði til að stappa stálinu í Volodomyr og félaga. Það eru undur og stórmerki, að Rússar skyldu ekki senda þeim eldheita ástarkveðju.

Betur má, ef duga skal, segja Mette og Emmanuel. Hann vill senda Nató herfylki til Úkraínu til viðbótar frönsku útlendingahersveitinni og öðrum utanaðkomandi stríðsmönnum, ekki síst frá Bandaríkjunum og Bretlandi, sem eru ábyrgir fyrir flugskeytaárásum á Rússa. Þeir eru svo byssuglaðir, að þeir skutu niður rússneska flugvél fulla af úkraínskum föngum á leið heim.

En Danir hafa verið seinheppnir í stríðum sínum, enda þótt þeim hafi við illan leik tekist að yfirbuga Jörund hundadagakonung á Íslandi. Mogens Glistrup, merkasta stjórnmálamanni Dana, datt í hug að setja upp sjálfvirkan símsvara, sem umsvifalaust tilkynnti Rússum í vígahug, að Danir myndu gefast upp.

Þegar Nató fór hamförum í Júgóslavíu við að verja frelsi vort og lýðræði, sendu Danir F16 orrustuþotur á vettvang. En sá var galli á gjöf Njarðar, að það var bara hægt að taka myndir úr þeim, til allrar hamingju fyrir saklaust fólk á jörðu niðri. En þeir áttu líka kafbát, sem var svo hæggengur, að í Gíbraltarsundi var honum snúið við, því stríðinu var lokið.

Nú ætla hinar fyrrum nýlendufrúr að taka til í vopnakistunum og senda allt, sem nota mætti til manndrápa til Kænugarðs. Það er ólíklegt að þau skrapatól lendi á svarta markaðnum.

Danir senda einnig gífurlegar fjárhæðir eins og Norðmenn, Svíar, Finnar og Íslendingar, til að fjármagna heljarslóðarorrustuna í Úkraínu. En enga þjóð veit ég um - aðra en Íslendinga - sem sent hafa sérútbúna þotu til að bjarga hundum og köttum undan Vonda-Valda. Það ætti að vera öðrum þjóðum til eftirbreytni.

Utanríkismálafrömuður Íslendinga, Diljá Mist, og hinar skjaldmeyjarnar, kæra sig kollóttar um, þótt almenningur í Nató hafi ekki minnstu trú á óskhyggju þeirra um sigur Úkraínumanna – og þeir reyndar ekki heldur. Almúginn vill frið, en þær setja barasta upp kollhúfur.

Stráklingarnir í Úkraínu greiða atkvæði með fótunum, því jafnréttið er svo skakkt. Ungu konunum er að mestu hlíft við bardögum, meðan karlar eru deyddir hundruðum þúsunda saman.

Skjaldmeyjunum hefur líklega ekki dottið í hug að taka sér drápstól í hönd og halda við orrustu við Rússa. Allt er hey í harðindum.

https://informationclearinghouse.blog/2024/02/27/nuland-accidentally-reveals-the-true-aim-of-the-west-in-ukraine/14/ https://steigan.no/2024/02/ogallala-underjordiske-sjo-og-framtida-for-usa/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.icj-cij.org/sites/default/files/case-related/166/166-20240131-jud-01-00-en.pdf https://english.almayadeen.net/articles/analysis/ukraine-crushingly-defeated-at-icj https://www.youtube.com/watch?v=gtTnyivBon0 https://www.globalresearch.ca/bombshell-nato-says-war-started-in-2014-nato-war-against-russia-fake-pretext-to-invoke-article-5-of-atlantic-treaty/5828312 https://www.indianpunchline.com/nuland-leaves-sense-of-foreboding-in-kiev/ https://korybko.substack.com/p/france-is-reeling-from-the-powerful?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=140955346&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=ElCTjWdfx80 https://www.youtube.com/watch?v=kmmohG3MdUE https://journal-neo.su/2024/01/02/the-eu-is-willing-to-go-to-war-over-lithium/ https://gilbertdoctorow.com/2024/01/08/are-there-any-winners-in-the-russia-ukraine-war/ https://www.globalpolitics.se/den-ryska-krigskonsten-hur-vast-ledde-ukraina-till-nederlag-1-januari-2024-jacques-baud/ https://anti-imperialist-u.blogspot.com/ https://gilbertdoctorow.com/2024/01/02/the-enabler-of-our-two-concurrent-world-wars-washington/ https://nieuwrechts.nl/96010-is-dit-chte-reden-van-oorlog-oekrane-lithium-nodig-voor-elektrische-autos https://www.bignewsnetwork.com/news/273989636/ukraine-very-cheap-way-to-fight-russia-nato-state-claims https://braveneweurope.com/michael-von-der-schulenburg-hajo-funke-harald-kujat-peace-for-ukraine https://www.indianpunchline.com/russia-readies-for-a-brave-new-world/ https://steigan.no/2023/12/general-til-general/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2023/11/intervju-med-en-dobbeltagent/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2023/11/ukraina-verdens-storste-pengevaskemaskin/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.bbc.com/news/world-europe-66542065 https://www.pravda.com.ua/eng/news/2023/10/23/7425340/ https://steigan.no/2023/10/ukraina-russland-pa-offensiven-langs-hele-frontlinja/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalpolitics.se/fler-bevis-pa-kiev-regimens-falskflagg-massaker-vid-begravning-i-by/ https://www.france24.com/en/live-news/20231010-russian-forces-close-in-on-east-ukraine-s-avdiivka https://steigan.no/2023/10/slaget-om-avdiivka/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/nazism-wokism-strange-world-zelensky-ukraine/5835405 https://steigan.no/2023/10/de-mange-laerdommene-av-ukrainakrigen-2/?utm_source=substack&utm_medium=email https://expose-news.com/2023/10/08/secret-collaboration-of-cia-mi6-and-nazis/ https://www.zerohedge.com/geopolitical/ukraine-corrupt-all-levels-says-former-eu-commission-chief-juncker https://informationclearinghouse.blog/2023/10/06/col-douglas-macgregor-the-russians-press-on-and-take-odessa/# https://steigan.no/2023/10/ukrainakrigens-mange-laerdommer-1/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2023/10/ukrainas-storste-vapenleverandor-orkestrerte-maidan-massakren-i-2014-ifolge-oyenvitner/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2023/10/ukraina-frykter-pengetorke/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2023/10/domt-til-a-tape-1/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2023/10/domt-til-a-tape-2/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2023/10/domt-til-a-tape-3/?utm_source=substack&utm_medium=email https://mearsheimer.substack.com/p/bound-to-lose https://libertarianinstitute.org/news/germany-denies-ukraine-cruise-missiles-marking-another-setback-for-kiev/ https://steigan.no/2023/10/europa-ei-jente-fra-vest-asia-voldtatt-igjen-av-en-amerikansk-okse/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2023/10/jeffrey-sachs-utover-den-neokonservative-fiaskoen-i-ukraina/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2023/10/angrepet-pa-nord-stream-og-norges-rolle/?utm_source=substack&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/the-financial-times-is-freaking-out?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=142122144&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&open=false&utm_medium=email https://ecfr.eu/publication/wars-and-elections-how-european-leaders-can-maintain-public-support-for-ukraine/?utm_source=substack&utm_medium=email https://gilbertdoctorow.com/2024/02/28/emmanuel-macrons-provocative-advocacy-of-nato-troops-on-the-ground-in-ukraine/ https://korybko.substack.com/p/the-ukrainian-intelligence-committee?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=142124790&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&open=false&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=uQTLLxH-RYQ https://expose-news.com/2024/02/26/bombshell-nyt-report-confirms-cia-built-12-secret-spy-bases-in-ukraine-waged-shadow-war-for-last-decade/ https://steigan.no/2024/02/new-york-times-om-usas-hemmelige-krig-mot-russland-siden-maidan-i-2014/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/02/tidligere-militaersjef-i-nato-ukrainakrigen-er-tapt/?utm_source=substack&utm_medium=email https://olatunander.substack.com/p/the-totalitarian-media-machine?utm_source=post-email-title&publication_id=1510517&post_id=141869107&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=103ae5&utm_medium=email https://julianmacfarlane.substack.com/p/russia-going-slow?utm_source=post-email-title&publication_id=837411&post_id=141688038&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=103ae5&utm_medium=email https://corbettreport.substack.com/p/a-brief-history-of-ukraine?utm_source=post-email-title&publication_id=725827&post_id=141837161&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=ZRb5-_790wY https://www.globalpolitics.se/jeffrey-sachs-hur-usa-betalade-for-statskuppen-i-kiev-utvidgade-nato-mm-och-gar-mot-kollaps/ https://nyheder.tv2.dk/politik/2022-03-29-mette-frederiksen-i-stort-interview-om-ukraine https://www.ruv.is/frettir/innlent/2024-02-23-mikilvaegt-ad-evropa-syni-ukrainu-samstodu-i-verki-405674 https://www.globalresearch.ca/sacrificing-denmark-usa/5850688


Verður El Salvador grafreitur Alheimsríkisins Svali einræðisherrann

Fyrir skemmstu var haldin ráðstefna í Bandaríkjunum á vegum íhaldsmanna. Þar tróð upp Nayib Amando Bukele Ortez (f. 1981), sem í hálfkæringi hefur kallað sig, „svala einræðisherra“ El Salvador. Nayib komst til valda í lýðræðislegum kosningum 2019 og hefur nú, eftir fimm ára forsetatíð, boðið sig aftur fram, enda þótt það fari í bága við stjórnarskrá landsins.

Í ræðu sinni varar Nayib okkur við örlögum frosksins, sem fann að pollurinn hans var farinn að volgna mjög, uns hann sauð, og hann með. Ætli það útleggist ekki á íslensku að fljóta sofandi að feigðarósi?

Nayib er kominn af kristnum Palestínumönnum frá Jórsölum. Faðir hans tók þó trú Múhameðs spámanns á fullorðins aldri. Eiginkonan er af spænskum Gyðingaættum.Nayib varð snemma athafnamaður, en lét síðar til sín taka á vettvangi stjórnmálanna.

Ástandið í El Salvador, þar sem íbúar eru hálf sjöunda milljón, er svipað og víða í Milli- og Suður-Ameríku. Þjóðir álfunnar lutu lengi vel Spánverjum og Portúgölum eða þar til Bandaríkin „ráku“ þá á brott samkvæmt svokallaðri Monroe stefnu (Monroe Doctrine), sem forseti þeirra, James Monroe (1758-1831) boðaði 1823. Vesturhvel allt er þar skilgreint sem áhrifasvæði eða bakgarður Bandaríkjanna.

Í þessum heimshluta er völdum víða enn skipti milli erlendra auðhringa, stjórnvalda og frjálsa félagasamtaka (non-governmental organizations), innlendra leppa þeirra og glæpagengja. Fátækt er landlæg.

Nayib hefur heldur betur tekið til hendinni, stakk tugþúsundum í fangelsi með hjálp hersins og rak spillta dómara og embættismenn úr sætum sínum. Slíka tilburði virðist almenningur kunna vel að meta. Vinsældir hans samkvæmt kosningum og viðhorfsmælingum eru ógnarlegar.

Boðskapur hins unga forseta hljómar eins og lýðræðisguðspjall. Stjórnmálamenn þiggja vald sitt frá alþýðu, starfi embættismanna felst í því að þjónusta almenning, rétt eins og stofnana landsins. Fjármálanykinn verður að reka af höndum sér, segir Nayib.

Nayib hljómar eins og skoski lýðræðiseldhuginn, Neil Oliver. Og það er svei mér þá ekki leiðum að líkjast. Forsetinn ungi virðist hafa haft erindi sem erfiði á heimavettvangi, almúginn dáir hann og þakkar fyrir nýfengið öryggi. Hrifningin afBitcoin sem þjóðargjaldmiðli er þó ekki jafn skær.

Nayib er ómyrkur í máli, þegar hann fjallar um myrkraöflin, þ.e. huldumannastjórnina, sem vill leggja undir sig heiminn. Þetta undrabarn stjórnmálanna er ófeimið við að taka afstöðu, stundum nýstárlega og eilítið undarlega. Hann leggur t.d. Hamas að jöfnu við glæpagengi í landi sínu, styður forsetaefni leyniþjónustu Bandaríkjanna í Venesúela, lofar Dónald Trump og hefur stofnað til innviðauppbyggingar í landinu í samvinnu við Kínverja.

Það fylgir sögunni, að Jósef vill alls ekki eiga orðastað við Nayib. Þá er reynslunni samkvæmt stutt í leyniþjónustuna, sprengjuregnið og „grænu stakkana.“

Það verður fróðlegt að fylgjast með þessum geðþekka, unga leiðtoga í framhaldinu. Hann lætur eins og bóndi í Brussel, ryður burtu spillingu og embættismönnum. Vonandi bruna þeir til Davos. En lánið er stundum fallvalt.

https://www.breitbart.com/middle-east/2023/10/09/el-salvadors-palestinian-president-nayib-bukele-hamas-get-rid-those-animals/ https://www.history.com/topics/19th-century/monroe-doctrine https://medium.com/lumerin-blog/titan-profiles-3-nayib-bukele-the-unconventional-president-3bcf0f048662 https://www.latimes.com/world-nation/story/2023-07-25/growing-cult-of-nayib-bukele https://www.bbc.com/news/topics/cyxzyr5ndpyt https://www.latimes.com/world-nation/story/2024-02-23/la-na-pol-el-salvador-bukele-cpac https://www.latimes.com/world-nation/story/2024-02-04/el-salvador-holds-election-that-self-described-worlds-coolest-dictator-has-path-to-win https://history-biography.com/nayib-bukele/ https://coinbrain.com/dictionary/nayib-bukele https://en.wikipedia.org/wiki/Nayib_Bukele https://steigan.no/2024/02/borgerkrigstilstander-i-brussel/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/02/robert-fico-vestens-strategi-har-feilet-fullstendig/?utm_source=substack&utm_medium=email https://informationclearinghouse.blog/2024/02/26/el-salvador-president-warns-of-dark-forces-in-anti-crime-speech-at-cpac/16/ https://www.youtube.com/watch?v=ATWG0bBWe_o https://www.globalresearch.ca/who-owns-world-small-group-big-money/5850681https://www.globalresearch.ca/who-owns-world-small-group-big-money/5850681 https://stopworldcontrol.com/salvador/


Drápu Bretar og Bandaríkjamenn Alexei Navalny eða var það Vondi-Valdi

Fyrir nokkrum mánuðum síðan lést bandaríski blaðamaðurinn, Gonzalo Lira, í fangelsi Úkraínumanna. Það þótti ekki merkileg frétt á Vesturlöndum. Gonzalo hafði dirfst að flytja fréttir frá Úkraínu, sem yfirvöldum þóttu óæskilegar.

Það var ekki síður sorglegt, að Alexei Navalny, hafi látist nýlega í rússnesku fangelsi. Bjarni Benediktsson, utanríkismálastjarna vor, lýsti því samstundis yfir, að rússnesk yfirvöld, Vondi-Valdimar, væri ábyrgður fyrir dauða hans. Sama gerði goð Bjarna og véfrétt, Jósef Biden.

Öllum, sem fylgst hafa með heimsmálunum, ætti að vera ljóst, að Alexei sálugi hafi verið málaliði M16 og CIA, og einn leiðtoga svokallaðra litaskrúðsbyltinga (color revolution) fyrrgreindra þjóða (og Vesturlanda) í Afríku, Austur-Evrópu og Vestur-Asíu, m.a. í Úkraínu, Georgíu og Hvíta-Rússlandi.

Söguþráðurinn er sá sami og við eiturbyrlun MI6 á rússneskum stjórnarandstæðingum, sbr. Sripal feðginin, Yulia og Sergei, í Englandi, þ.e. Vondi-Valdimar vill losa sig við andstæðinga. Sá Vondi hló nú reyndar hæðnislega að þessum áskökunum á sínum tíma og þótti lítið gert úr morðhæfni rússnesku leyniþjónustunnar.

Þegar allt kemur til alls, hafði Alexei sálugi afar takmörkuð áhrif í Rússlandi. Stundum var áróður hans eins og t.d. um einkahöll Vonda-Valda, bara broslegur. Þetta áróðursbragð ku hann hafa úthugsað með leyniþjónustuvinum sínum á sjúkrabeði í Þýskalandi. En þangað leyfðu rússnesk yfirvöld honum að fara, eftir fyrstu eitrun, sem misheppnaðist.

Vissulega á Valdi sínar vondu hliðar. En heimskur er hann varla, ber reyndar af öðrum stjórnmálamönnum á alþjóðavettvangi fyrir þekkingu, prúðmennsku, stjórnkænsku, rökvísi og samningsvilja.

En þó! Hann lét blekkjast af fagurgala nafna síns Zelensky, Emmanuel Macron og Angelu Merkel. En tæpast er Valdi svo skyni skroppinn að drepa andstæðing sinn svo lúalega og auglýsa, rétt fyrir kosningar – eða hvað?

Áróðursgildi dauðra útsendara og flugumanna er stundum meira en gjörningar þeirra í lifenda lífi. Þeir verða píslarvottar. Ætli það eigi við um Alexei?

Ætli það sé tilviljun, að dráp Alexei eigi sér stað, skömmu eftir viðtal Vonda-Valda við Tucker Carlson átti sér stað? Ríkisstjórnum Vesturlanda tókst ekki að múlbinda þá. En eins og kunnugt er telja þau boðskap Rússa og Tucker afar óhollan fyrir sálarlíf okkar.

Ætli það sé líka tilviljun, að Alexei sé drepinn rétt í þann mund, að stríðsfrúr Vesturlanda hittast til skrafs og ráðagerða um það einu sinni enn, hvernig megi klekkja á Rússlandi? Svo einkennilega vildi einnig til, að ekkja Alexei, Yulia, var kvödd til leiks, og er að eigin sögn staðráðin í að taka að sér hlutverk eiginkarlsins.

Gilbert Doctorow velkist ekki í vafa um sök. Bretar drápu Alexei, segir hann.

https://www.scottritterextra.com/p/the-tragic-death-of-a-traitor https://www.youtube.com/watch?v=B9MxNJzl-1o https://www.defenddemocracy.press/the-unraveling-of-the-scripal-case-did-anybody-really-attack-them/ https://www.youtube.com/watch?v=abYJ9WNHndo https://www.globalresearch.ca/alexei-navalny-death-curious-well-timed-coincidences/5850071 https://www.theinteldrop.org/2024/02/16/cia-murders-navalny-in-russian-prison-to-bury-ukraine-defeats-to-the-comic-page-truth-bomb/ https://michelchossudovsky.substack.com/p/navalnys-death-a-western-instigated https://gilbertdoctorow.com/2024/02/18/after-trt-world-failed-to-post-my-interview-on-the-death-of-navalny/ https://www.globalpolitics.se/mordades-navalnyj-av-vasterlandska-underrattelsetjanster-forbjuden-fraga/ https://korybko.substack.com/p/putin-had-no-reason-to-kill-navalny?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=141752237&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://www.globalpolitics.se/vem-var-avlidne-navalny/ https://gilbertdoctorow.com/2024/02/16/death-of-aleksei-navalny-the-brits-did-it/ https://steigan.no/2024/02/alexei-navalny-dode-i-fengsel-dodsarsaken-ikke-klarlagt/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/navalny-death-western-instigated-false-flag/5850124 https://korybko.substack.com/p/yulia-navalnayas-embrace-by-biden?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=142019964&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&open=false&utm_medium=email


Sú snjalla stjórnar

Einn af aðalhugmyndafræðingum bandarískrar heimvaldastefnu og Alheimsefnahagsráðsins (World Economic Forum), Henry Kissinger, sagði eitt sinn, að sú, sem stjórni fæðuöflun, ráði yfir fólkinu; sú, sem orkunni stjórni, ráði yfir heilu álfunum; og sú, sem fjármagninu stjórni, ráði yfir veröldinni.

Þetta eru reyndar leiðarstefin í baráttu Alheimsefnahagsráðsins, samtökum auðjöfra, stjórnmálamanna og ýmissa heilaþveginna handbenda þeirra.

Ráðið vill Nýja heimsskipan, endurbyggja betur, það, sem þeir hafa rústað. Úkraína á að verða fyrirmyndarríkið. Í Úkraínu eins og í Ísrael eru gerðar tilraunir með gervigreind. Hún er t.d. notuð til að beina drápsflaugum rétta leið að almenningi á Gaza.

Úrvalið hefur einnig tekið snjallvæðinguna og þriðju víddar tæknina í sína þjónustu til eftirlits og stýringar. Forustumaður kristilegra jafnaðarmanna á Íslandi, Bjarni Benediktsson, segir þessa byltingu í þágu fólksins.

Byltingin felur m.a. í sér eftirlit í gegnum snjallsíma og söfnun hins opinbera á gögnum, t.d. heilsufarsupplýsingum. Hið opinbera og fyrirtæki ýmis konar vinna saman. Mörgum brá í brún, þegar skólabróðir Katrínar Jakobsdóttur, Justin Trudeau, frysti bankareikninga vörubílstjórni í veirufaraldrinum.

Veirufaraldurinn var ein leið til að skapa fólki ótta og berja það til hlýðni. Önnur leið er hin grængolandi geggjun um helvítishlýnunina, endurtekið efni óprúttinna presta.

Valdagræðgi og drottnunarsýki heimsyfirvaldsins er skelfileg. Nú þegar liggja fyrir áætlanir um, hvað þú megir borða, hvernig þú skulir klæðast og ferðast – eða öllu heldur kyrrsetjast – á grundvelli útdeildra hlýðnistiga, þ.e. um sæluna í stundarfjórðungsborgunum. Samtímis er unnið markvisst að tölvuuppfærslu mannshugans.

Maria Zeee er ómyrk í máli. Hún á m.a. viðtal við ástralska þingmanninn, Malcolm Roberts, um fyrirætlanir Ráðsins. Orkumál eru í brennidepli. Það er sem sé víðar en á Íslandi, að orka er af skornum skammti. Orkunni er bæði í Ástralíu og í Suður-Afríku stjórnað gegnum snjallmæla. En slíka mæla nota íslensk orkufyrirtæki líka.

Skerðing orkunnar er einmitt – og Henry Kissinger sagði – beitt til að ná tökum á atvinnulífinu. Eitt af markmiðum Ráðsins er að afiðnvæða Vesturlönd. Skerðing orku eykur verð hennar. Samtengin milli landa auðveldar inngrip og yfirráð eiginlegra valdhafa, þ.e. auðjöfranna og hagsmunasamtaka þeirra eins og Ráðsins. Hækkun orkuverðs á sér stað um alla norðanverða Evrópu. Það verður t.d. Þýskalandi að falli, eftir að Bandaríkjamenn sprengdu gasleiðslu þeirra og fleiri ríkja í Eystrasalti.

Sólar- og vindorka er víða niðurgreidd af skattgreiðendum og einkum til þess fallin, að auðga eigendur veranna.

María hvetur okkur einarðlega til að taka aftur völdin. Malcom minnir á, að stjórnmálamenn þiggi vald sitt og umboð frá kjósendum. Kjósendur verði að vera þess minnugir að velja hæfa fulltrúa. Hann segir fá á ástralska þinginu vita nokkuð í sinn haus, hvað sé um að vera í veröldinni. Hvernig ætli því sé varið á Alþingi Íslendinga?

https://zeeemedia.com/interview/maria-zeee-senator-malcolm-roberts-on-infowars-globalists-begin-cutting-aussie-electricity/


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Okt. 2025

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband