Færsluflokkur: Bloggar

Fljúga hvítu Rússaflygildin. Rússaveikin

Það er nú almælt í ranni íslenskra stríðsmanna, að Rússar ógni Nató um austurvíglínuna endilanga frá Grikklandi til Samalands. Óþokkarnir hafa lagt síg í líma við að stríða Mette-minnkabana, sem dreymir um að verða Rússabani.

Hún er stórtækari en íslenska stríðsráðfrúin, sem lætur sér nægja (í bili) að stofna íslenskan her og kaupa sér kafbát. Mette-minnkabani ætar að ganga i berhögg við ráðleggingar Mogens Glistrup (1926-2008) og kaupa sér flugskeyti frá Dónaldi ”pabba” Jóni. Að öðrum kosti hætti hann að kaupa sér beikon í Baunalandi – og osta jafnvel.

Snillingurinn, Mogens, vildi koma upp gjallarhornum um gervalla danska mörk, þar sem lýst væri yfir uppgjöf Danmerkur, ef birtust herir, gráir fyrir járnum. Þá voru stríðsflygildin ekki komin til sögu.

Í ljósi þess að hvissast hefir út, að fannhvít flygildi, merkt rússneska fánanum (eða ætli það hafi verið sá bélarússneski eins og RÚV hefði sagt) væru á flögri við Sumba á Suðurey (Færeyjum), væri rétt að senda F35 eða 6 á loft.

Flygildin gætu hafa verið á leiðinni til Finnafjarðar, annað tveggja til að mynda hann eða varpa á hann sprengjum. Rússar hafa vafalaust hlerað, að verstu óvinir þeirra á Vesturlöndum, Íslendingar, hyggi á herbækistöð þar, og ætli sér meira að segja að gefa Nató alla Melrakkasléttu líka.

Enda þótt Rússar séu ekki sleipir í stærðfræði, hafa þeir vafalítið lagt saman tvo og tvo og reiknað út, að þar muni íslenska stríðsráðuneytið koma sér upp kafbátalægi. En vonandi er þetta allt ranghermi, falsfréttir eða barasta upplýsingaóreiða. Greiningardeild stríðsráðuneytisins mun ugglaust brjóta fregnir og fiskisögur til mergjar.

En það er fjör í falsfréttaflutningi um þessar mundir. RÚV skýrir nú frá því, að Rússar hafi afskipti af kosningum í Moldóvu eins og áður í Bandaríkjunum. Vondi-Valdi Putin er samur við sig, holdgervingur Rússagrýlunnar, sem er bæði leið og ljót, enda var bandarískum börnum í upphafi kalda stríðsins kennt að skýla sér undir borðunum í skólastofunum fyrir yfirvofandi árás kommúnista.

Eins og allir vita var líka stofnað Rússagrýlufélag á Íslandi. Skelfingin í garð Rússa greip um sig frá fjöru til fjalla og varð að nýju tilbrigði við ofsafælni og aðsóknarkennd; Rússaveikinni. Íslendingar eru enn þá illa haldnir af þessum fjára, langveikir eins og af „langa-covid-19.“

Rússagrýlufélagið stjórnar utanríkismálum Íslendinga af röggsemi, gaf Rússum langt nef og sleit við þá talsambandi eins og eistneska undrabarnið, Kaia Kallas, sem einu sinni var forsætisráðherra Eistlands, en stjórnar nú – ásamt annarri undraynju, Úrsúlu frá Læjen – Evrópusambandinu. Stjórn Rússagrýlufélagsins dreymir um að bindast Evrópusambandinu tryggðaböndum og gerast vopnasystur þess, enda þótt það sé nár eins og Nató, öflugasta stríðsbandalag veraldar.

Í því efni er þó hængur á. Volaði-Valdi í Úkraínu og Bensi-barnamorðingi hafa verið svo þurftafrekir á drápstól, að birgðir eru uppurnar – líka vestan hafs. Því er hætt við að stjórnmálaskörungurinn, Dónaldur „pabbi“ Jón, hafi bara loft og rándýrt gas að selja.

En, en! Hann gæti loksins lifnað úr litlum vonum, þó varla hjálpi í bráð að skipta um skoðun. Það gerði hann nýlega um stríðið í Úkraínu. Hann er steinhættur við að stöðva stríðið og hvetur nú Volaða-Valda og Dvergana sjö í Evrópu til að leggja undir sig Rússland að sléttum Úralfjalla.

Það er eins gott fyrir íslenska herinn (Landhelgisgæsluna og Víkingasveitina) að vígbúast. Hershöfðinginn, Björn Bjarnason, og lærisveinka hans, Þorgerður Katrín, eru vígreif og skekja skildi.

Eins og fyrr sagði er nú kynnt undir kötlunum í Moldóvu. Í næsta ríki er Rúmenía, þar sem Nató hefur öfluga herbækistöð. Hreinsun andspyrnufólks úr stjórnmálunum er lokið. Bæði í Moldóvu og Rúmeníu – eins og í Georgíu, Armeníu, Aserbædsjan, Íran og Úkraínu – starfar hulduher Vesturlanda undir stjórn MI6 og CIA. Milli Úkraínu og Moldóvu liggur Transnistría, landræma þeirra, sem enn hafa ekki séð frelsisljós Vesturlanda. Þar hafa Rússar friðargæslulið, sem telur um hundrað manns.

Hin forna rússneska Svartahafsborg Katrínar miklu, Ódessa – þar sem Síonfasisminn kom undir – er rétt handan landamæra Moldóvu og í grennd við Transnistríu. Þar er önnur tveggja meginaðflutningsleiða Nató með hergögn til Úkraínu.

Í ljósi þess, að Rússar hafa gefist upp á friðarsamningum í anda Minsk (sem Vesturlönd misnotuðu) og Miklagarðs (sem Nató hindraði), er stefnan nú (vafalítið) að ná yfirráðum yfir Ódessa - og Kænugarður (sem RÚV kallar Kéf) mun tekinn í kjölfarið.

Þetta er enn eitt stríðið, sem alþjóðaauðvaldið háir gegn fólki, sem vill frið fyrir hermönnum og sturluðum stjórnmálamönnum.

Það eru mörg börn í Úkraínu og Rússlandi, sem gráta feður sína og syrgja. En íslensku valkyrjurnar ætla að berjast til síðasta Úkraínumanns, svo tryggja megi frelsi, mannréttindi og lýðræði.

Sumir binda enn vonir við, að Dónaldi „pabba“ Jóni snúist hugur. Hann var barasta að æfa sig í kaldhæðni, þegar hann hvatti Evrópumenn til stríðsdáða í austurveg, segja jafnvel gleggstu greinendur eins og Larry Johnson.

En ég er ekki öldungis viss um – eins og svissneski leyniþjónustumaðurinn, Jacques Baud – að forsetinn sé í vitsmunalegum færum til þess. Armageddon-hirð hans kynni að hafa párað á Truth Social töflu leiðtoga síns skilaboðin furðulegu, sem öll veröldin tók andköf yfir, hér í þýðingu Halls Hallssonar frá 25. september:

““Eftir að hafa kynnt mér og skilið Úkraínustríðið og áttað mig á hernaðarlegum og efnahagslegum vandræðum sem stríðið er að valda Rússlandi, þá held ég að Úkrar og Evrópusambandið séu í stöðu til að berjast og vinna alla Úkraínu eins og þeir upphaflega ætluðu. Með tíma og þolinmæði og fjárhagsstuðningi Evrópu og alveg sérstaklega Nato, þá er hægt að vinna aftur sömu landamæri og voru þegar stríðið hófst.

Af hverju ekki?

Rússar hafa barist án markmiða í 3 1/2 ár í styrjöld sem átti að taka viku að vinna. Þetta lýsir ekki Rússum heldur líta þeir út eins og Pappírs-tígur. Þegar fólk í Moskvu og öllum hinum miklu borgum, bæjum og héruðum um allt Rússland kemst að því sem raunverulega er að gerast, sú staðreynd að nánast ómögulegt er að fá olíu nema vera í löngum biðröðum, sú staðreynd að mest af peningum þeirra fer í stríðsefnahag og stríð við Úkraínu, þar sem bjartsýni ríkir. Úkraína ætti því að vera fært [um] að taka land sitt til baka miðað við ítrustu kröfur og upphafleg landamæri.

Og hver veit, jafnvel lengra. Pútin og Rússar eru í MIKLUM efnahagsvanda, svo þetta er tíminn fyrir Úkraínu að bregðast við. Hvernig sem allt veltur, þá óska ég báðum þjóðum velfarnaðar og við munum halda áfram að selja vopn til Nato til að gera það sem Nato vill. Bestu óskir til allra. DONALD JOHN TRUMP, FORSETI BANDARÍKJANNA.“”

Og svo dreymir Dónald „pabba“ Jón vota drauma um stríð í Venesúela og Íran, og um yfirráð yfir Grænlandi og gamalli herstöð Ráðstjórnarríkjanna sálugu í Afganistan.

https://covertactionmagazine.com/2025/02/11/the-next-nato-russia-proxy-war-could-be-in-a-country-youve-never-heard-of/ https://steigan.no/2024/03/novorossiya-reiser-seg-som-fugl-foniks-fra-asken/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.rt.com/russia/554330-uprising-transnistria-donbass-ukraine/ https://www.voltairenet.org/article149653.html https://www.voltairenet.org/article215271.html https://korybko.substack.com/p/will-moldova-soon-attack-transnistria?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=153565363&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://glenndiesen.substack.com/p/supporting-or-destroying-democracy?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=152813802&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=9dH_dE2lk64 https://www.youtube.com/watch?v=1fkxC_3dVzY&list=UUkF-6h_Zgf9zXNUmUB-MzTw&index=3 https://www.youtube.com/watch?v=yz89ux5TTHQ&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=2 https://www.youtube.com/watch?v=QuAzS6he3Tk&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=4 https://www.youtube.com/watch?v=PUBaDd4287w&t=1531s https://expose-news.com/2025/09/27/us-dod-key-role-in-global-covid-crisis/?utm_medium=email&utm_source=es https://marksleboda.substack.com/p/nato-eager-to-shoot-down-russian?utm_source=post-email-title&publication_id=1083041&post_id=174658836&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=04ZFTQ9jOA0&list=UUkF-6h_Zgf9zXNUmUB-MzTw&index=12 https://www.youtube.com/watch?v=WpstsiS2Suk&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=5 https://glenndiesen.substack.com/p/mike-benz-how-ngos-and-the-cia-hijacked?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=173258231&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/svr-revealed-that-british-and-french?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=174512318&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=duS5PYgYRhc&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=4 https://www.youtube.com/watch?v=o_shXxrGTEc https://glenndiesen.substack.com/p/jeffrey-sachs-nato-warmongers-and?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=174679235&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=PtiOOI-1XlA https://marksleboda.substack.com/p/europes-war-lust?utm_source=podcast-email&publication_id=1083041&post_id=174287349&utm_campaign=email-play-on-substack&utm_content=watch_now_button&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2025/09/usa-reduserer-kapasiteten-og-alliansene-faller-fra-hverandre/?utm_source=rss&utm_medium=rss&utm_campaign=usa-reduserer-kapasiteten-og-alliansene-faller-fra-hverandre https://pascallottaz.substack.com/p/on-the-road-not-taken?utm_source=post-email-title&publication_id=2735407&post_id=173633835&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://21stcenturywire.com/2025/09/26/the-invisible-enemy-beware-of-nato-cognitive-warfare/


Hefndarenglar Gyðinga; hryðjuverk og morð

Benjamin Netanyahu eða Bensi-barnamorðingi verður ófeimnari með árunum. Hann fer t.d. ekki lengur með það í launkofa, að hann sé „Endurskoðunarsíonisti“ (revisionist zionist) í anda guðföðurins rússneska frá Ódessa, Vladimir Jabotinski (1890-1940).

Endurskoðunarsinnar berjast fyrir stofnun Gyðingaheimsveldis, Stór-Ísrael, þ.e. yfirráðum yfir Palestínu og löndunum umkring. Bensi-barnamorðingi sagði það í senn trúarlega og sögulega köllun sína.“ (Þann 23. ágúst 2025 á i24News.)

Það er í þessu sögunnar samhengi að skoða verður brottrekstur og útrýmingu íbúa á Gaza og Vesturbakkanum (Júdeu og Samaríu). Það er öðru sinni, að Síonistar gera slíka aðför að Palestínumönnum. Fyrri aðförin eða hamfarirnar(Nakba), áttu sér stað í tengslum við stofnun Ísraelsríkis 1948. Þá var stór hluti Palestínu gerður að (austur)evrópskri nýlendu. Nú skal verkið fullkomnað.

Stofnun Ísraelsríkis á sér harmsögulegan aðdraganda, sem of langt mál yrði að rekja hér. En rauði þráður sögunnar eru óumdeildar ofsóknir á hendur Gyðingum – einkum í Evrópu.

Um það leyti, sem Gyðingaauðjöfrarnir á Wall Street hrundu rússnesku byltingunni af stað, þ.e. 1917, hófu rússneskir Gyðingar upp raust sína og sögðu sex milljónir Gyðinga hafa verið drepnar. Álíka margir Þjóðverjar voru drepnir í öðrum áfanga heimstyrjaldarinnar.

Trúarlegan áróður rússneskra Gyðinga gripu yfirvöld í Ráðstjórnarríkjunum á lofti og sögðu Þjóðverja hafa útrýmt þessum fjölda í Auschwitz. Stundum virðist um að ræða útrýmingu Gyðinga í Evrópu allri. Hugtakið, Helför, er einnig töluvert á reiki.

Fyrrgreindur áróður er orðinn að sannleika margra. T.d. sagði hópur Gyðinga – að mestu Síonistar í Austur-Evrópu - þetta heilagan sannleik. Þeir vildu leita hefnda í anda Gamla testamentisin og kölluðu sig „Hefndarenglana“ (Nakam/Nokmim - Avengers). Hvítrússinn og skáldið, Abba Kovner (1918-1987), fór fyrir hópnum.

Aðrir áberandi félagar voru t.d. Pólverjinn, Vitka Kempner (1920-2012), Pólverjinn, Ruzka (Rozka) Korczak (1921-1988), Pólverjinn, Hasia Warshawski, Hvítrússinn, Yehuda (Poldek) Maimon (1924-2020), síðar trúarmálaráðherra Ísraels, Pólverjinn, Pasha Reichmann /Yutzchak Avidov(1917-2004/5) og Jospeh//Yulek Harmatz (1925-2016) frá Lithaugalandi (Litháen).

Ísraelski sagnfræðingurinn, Dina Porat, telur, að 250 aflifendur Helfararinnar (Holocaust) hafi tekið þátt með einum eða öðrum hætti. Fleiri hópar Gyðinga í Evrópu tóku lögin í eigin hendur eins og t.d. Gyðingaherdeildin (Jewish Brigade).

Það var staðfastur ásetningur Hefndarenglanna að myrða sex milljónir Þjóðverja til að ná hefndum fyrir sex milljónir Gyðinga. Hugmyndin var að eitra vatnsból þýskra borga. Eitrið fengu þeir frá vísindamönnum við háskólann í Jórsölum, Rússunum/Úkraínumönnunum, Ephraim (1916-2009) og Aharon Katzir (1914-1972).

Ephraim varð fjórði forseti Ísraels. Verðandi fyrsti forseti Ísraels, Hvítrússinn, Chaim Weizmann (1874-1952), lagði – að því er virðist – blessun sína yfir gjörninginn. Sá var efnafræðingur og mikilvirkur formælandi stofnunar Ísraelsríkis.

Þegar hér var komið sögu störfuðu í Palestínu nokkur hryðjuverkasamtök Síonista (Hashomer, Haganah, Irgun, Sterngengið), undir forystu manna, sem síður urðu forustumenn Ísraelsríkis eins og Pólverjinn, David Ben Gurion (1886-1973), Palestínumaðurinn, Yizak Rabin (1922-1995), Hvítrússinn, Menachem Begin (1913-1992) og landi hans, Yitzhak Shamir (1915-2012).

Víkur þá sögu aftur að Hefndarenglunum. Abba var tilneyddur til að losa sig við Gyðingaeitrið. Þar féll áætlun A um sjálfa sig. Þá var virkjuð áætlun B, þ.e. að eitra fæðu þýskra SS fanga. Hefndarenglarnir náðu að smyrja brauð þeirra með eitri, arseniki. Fleiri sögum fer af árangrinum; líklega varð Hefndarenglunum heldur ekki kápan úr þessu klæðinu. Þeir sluppu undan réttvísinni, þar eð aðstæður „voru svo sérstakar.“

Hefndarenglarnir kunnu væntanlega óljós skil á sögunni, t.d. aðlútandi samvinnu Vladimir Jabotinski og hreyfingar hans við þýska nasista og fasista á Ítalíu, en þar stofnaði Vladimir ungliðahreyfingu sína 1923, Betar (Beitar), eftir síðasta virki Gyðinganna í uppreisninni, Bar Kokhba, gegn Rómverjum 135. Nasistar leyfðu ungliðunum meira að segja að klæðast svörtum einkennisbúningum sínum.

Hreyfing Endurskoðunarsíonista naut stuðnings þýska nasistaflokksins. Einn félaganna var Ungverjinn/Rúmeninn, Rezsö/Rudolf Kasztner (1900-1957), síðar framámaður í Ísrael. Hann samdi t.d. við Adolf Eichmann (1906-1962), félaga í SS eða Schutzstaffel. Síðar féll Rezsö í ónáð. Hann var myrtur undir réttarhöldunum. Sagnfræðingurinn, Nadav Kaplan, telur það hafa verið gert að undirlagi David Ben-Gurion.

Í augum þýskra nasista var gerður greinarmunur á Gyðingum, sbr. aðgreiningu Reinhard Tristan Eugen Heydrich (1904-1942), böðulsins í Prag, þ.e.milli þeirra Gyðinga, sem studdu brottflutning til Ísraels og svo hinna. Reyndar var það hugmynd Pólverja, Frakka og Þjóðverja – með stuðingi Síonista - að senda Gyðinga til Madagascar.

Það var svokölluð „Endlösung“ (lokalausn) á „Gyðingavanda“ þeirra (og fleiri þjóða Evrópu) en ekki drepa þá með aflúsunargasi og brenna - í ofnum, sem aldrei hafa fundist – í nokkrum tortímingarbúðum, oft eftir flutninga um þvera og endilanga Evrópu. Hins vegar frömdu nasistar af mörgu þjóðerni, t.d. Úkraínumenn og Króatar, hryllileg fjöldamorð á „üntermenschen“ (t.d. Gyðingum og Slövum) eins og Gyðingar á „Ógyðingum“ í rússnesku byltingunni - og síðar á Þjóðverjum.

Síonistar og þýskir nasistar sömdu um að greiða götu þýskra Gyðinga til Palestínu (Haavara (brottflutnings-) samningurinn). Þjóðverjar sendu 1933 samninganefnd til Palestínu, Tékkann og SS manninn, Leopold von Mildenstein (1902-1968), og vin hans, Gyðinginn, Kurt Tuchler (1894-1978). Sá var þýskur Pólverji og félagi í hreyfingu Síonista.

Leopold réð Adolf Eichmann til að annast þessa „Endlösung“ af Þjóðverja hálfu. Sjálfur fór Adolf til Palestínu í embættiserindum 1937. Svartstakkarnir eða ungliðahreyfing Síonista fylgdi samningnum eftir af Síonista hálfu. Hinn þýski flokkur Endurskoðunarsíonista (Staatszionisten) leið undir lok 1938.

Síonistar og þýskir nasistar voru hvorir tveggju mannbótasinnar (eugenics). Því ömuðust þeir við blönduðum hjónaböndum, vildu aðgreina „úrvalskynþætti sína“ og auka lífsrýmið, stofna heimsveldi. Það þýska varð að Evrópusambandinu og það síoniska er í smíðum með dyggum stuðningi þjóðarinnar, sem telur sig knúna til góðra verka fyrir guðlega forsjón, Bandaríkjamenn. Þeir sækja um málefni Ísraels og Vestur-Asíu andlegan og fræðilegan þrótt til þýsku Gyðinganna, Leo Strauss (1899-1973, og Heinz Alfred eða Henry Kissinger (1923-2023).

Hugmyndafræði þýskra nasista og Síonista var sem sé náskyld eins og David Ben-Gurion benti á. Valdimir Jabotinsky sagði hann „öruggglega vera fasista og kannski nasista.“ Mannbætur og hreinleiki stofnsins var mergurinn málsins í trúarlegum skilningi. T.d. lýsti pólsk-þýski Gyðingurinn, Georg/Gedalya Karenski (1878-1947), yfir stuðningi við kynþáttalög þýskra nasista frá 1935. Valdimar var þó ekki titlaður „Heiðursnasisti“ eins og fleiri útlendingar.

En fjölmargir Gyðingar urðu slíks heiðurs aðnjótandi sem og „blendingar“ (Mischlinge). Dæmi: Flughetjan Helmut Wilberg (1880-1941), læknirinn, Hans Eppinger (1879—1946) og Johann „Hans“ Hinkel (1901-1960), sérstakur ráðgjafi um Gyðingamenningu. Werner Goldberg (1919-2004), flugkappi og „Hálfgyðingur,“ var sagður „Fyrirmyndarhermaður Þjóðverja.“

Gyðingar voru á þessum árum áberandi í þýsku þjóðlífi, menningu og atvinnulífi. Það vakti fyrir Þjóðverjum að auka „eigin“ hlut. En Gyðingar (þýskir ríkisborgarar) voru þeim mikilvægir eins og t.d. Max Warburg (1867-1946), sem starfaði fyrir þýska banka til 1938. Hann var bróðir sjálfs Paul Warburg (1868-1932), Gyðingaauðjöfurs á Wall Street og innsta kopps í búri Seðlabankans (Federal Reserve).

Síonistar náðu fljótt undirtökum í leyniþjónustunni, Mossad, með stuðningi Yitzhak Shamir. Leyniþjónustan, sem starfaði í sama anda og Hefndarenglarnir og hryðjuverkasamtök Gyðinga í Palestínu, framdi fjölmörg ódæðisverk í Asíu, Latnesku Ameríku og Afríku.

Þau störfuðu undir hlífiskildi þeirrar bandarísku (sem tók við af leyniþjónustu hersins), CIA. Leyniþjónusturnar fengu til liðs við sig austurríska SS foringjann, Otto Skrozeny (1908-1975). Fjöldi þýskra nasista hafði þá gengið til liðs við bandamenn beggja vegna járntjaldsins.

Samstarf ísraelskra Síonfasista og úkraínskra nasista (afsprengi þeirra þýsku) stendur enn í blóma með Gyðingana, Volodymyr Zelensky og Benjamin Netanyahu í fararbroddi undir verndvængi þriðja Gyðingsins, Donald J. Trump. Heimsveldisdraumar deyja hægt.

Í Ísrael leikur þjóðaröryggisráðherrann, Itamar Ben-Gvir (f. 1976), og fjármálaráðherrann, Bezalel Smotrich (f. 1980), fylgismenn ofstækisprestsins bandaríska, Meir Kahane (1932-1990), lærisveins Vladimir Jabotinsky, aðra fiðlu við útrýmingu Palestínumanna. Sá var stofnandi skæruliðasveitar (paramilitary) í Bandaríkjunum og Ísrael.

https://winteroak.org.uk/2025/05/08/adolf-hitler-and-the-zio-imperialist-mafia/ https://informationclearinghouse.blog/2023/09/28/who-owns-the-united-states/ https://beeley.substack.com/p/israel-and-ukraine-zionists-and-nazis?utm_source=substack&utm_medium=email https://beeley.substack.com/p/the-zionist-movement-is-a-global?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=160513256&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://winteroak.org.uk/2025/03/14/a-decade-of-dissent-zionism-and-the-criminocracy/ https://winteroak.org.uk/2025/03/12/zionism-the-bigger-picture/ https://trackingpower.substack.com/p/the-rise-and-fall-of-zionism-in-scotland?utm_source=post-email-title&publication_id=1151094&post_id=158656894&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://winteroak.org.uk/2025/01/20/zionism-versus-the-world/ https://palestinewillbefree.substack.com/p/zionism-must-die https://sonar21.com/why-most-of-the-worlds-population-dont-have-a-clue-about-zionism/?jetpack_skip_subscription_popup https://21stcenturywire.com/2025/09/21/sunday-screening-how-israel-won-the-west-the-big-picture-2024/ https://www.youtube.com/watch?v=K9rr3j7vZGo https://www.youtube.com/watch?v=ttyPp4P-Tqs https://www.amazon.com/Avengers-Jewish-War-Story/dp/0375405461 https://www.menemshafilms.com/plan-a?utm_source=chatgpt.com https://www.voltairenet.org/article222826.html https://allthatsinteresting.com/nakam-abba-kovner https://www.warhistoryonline.com/world-war-ii/jewish-avengers.html https://etd.ohiolink.edu/acprod/odb_etd/ws/send_file/send?accession=case1365174634&disposition=inline&utm_source=chatgpt.com https://en.wikipedia.org/wiki/Nakam https://www.historytoday.com/archive/nazi-travels-palestine?utm_source=chatgpt.com https://www.timesofisrael.com/when-a-nazi-toured-the-holy-land-to-find-a-solution-for-the-jewish-problem/?utm_source=chatgpt.com https://en.wikipedia.org/wiki/Joseph_Harmatz https://caravan-media.com/production/holocaust-the-revenge-plot/?utm_source=chatgpt.com https://www.youtube.com/watch?v=fpC1pYxSku0 https://www.theguardian.com/world/2008/jul/26/second.world.war https://rumble.com/v6yw96y-sad-history-of-world-war-ii-atrocities.html https://www.wearethemighty.com/mighty-history/jewish-assassins-avenging-the-holocaust/ https://www.warhistoryonline.com/war-articles/the-first-avengers.html https://ihavenotv.com/holocaust-the-revenge-plot-secret-history?utm_source=chatgpt.com https://www.jewishnews.co.uk/the-holocaust-avengers-most-wished-they-could-have-killed-more-nazis/


Fimbulfamb um flögrandi flygildi og fölsk flögg. Rússneskar herþotur yfir Eistlandi

Fyrir fáeinum dögum síðan tóku fréttamenn RÚV andköf og sögðu frá því, að Rússar hefðu gert flygindaárás á Pólland. En einhverra hluta vegna gleymdu þeir flygildinu yfir Rúmeníu.

Stjórnmálamenn og herforingjar Póllands hafa þó ekki komið sér saman um, hversu mörg flygildi flögruðu um pólska lofthelgi og hversu mörg voru skotin niður. Alla vega lenti eitt þeirra óskemmt á hænsnakofa, sem var óvenju sterkbyggður. Hann stóð af sér árásirnar.

Síðustu fréttir frá hernum herma, að þrjú flygildi hafi verið skotin niður. Pólverjar og Úkraínumenn voru sammála um, að flygildin væru rússnesk. Nokkur Nató-ríki sendu herþotur til að berjast við gerviflygildin. Pólverjum brást bogalistin og skutu á eigin ættjörð, hús friðsamra bænda.

Hver á flygindin og hver á sök? Rússar skutu þeim ekki á Pólland með hjáleið um Hvíta-Rússland. Þau eru of skammdræg til þess. Hvorki báru þau vopn né njósnaútbúnað. Rússar báðu um viðræður um málið. Því var hafnað.

Að athuguðu máli er líklegast, að Volaði-Volodomyr og breska leyniþjónustan (með vitorði CIA), sé að leika nýjan tálbeituleik, þ.e. að æsa Nató (Bandaríkin) til sóknar gegn Rússum.

Pólverjar (Duda) hafa viðurkennt, að það hafi forseti Úkraínu áður reynt – drap reyndar tvo Pólverja við þá tilburði – og sömuleiðis reynt að draga Pólverja frekar á asnaeyrunum til átaka við Rússa. Fjöldi Pólverja hefur barist í liði Úkraínumanna. Pólverjar, Nató (Mark Rutte) og Evrópusambandið hafa fordæmt Rússa og hótað öllu illu. Það hefur líka íslenska stríðsmálaráðfrúin gert. Samráð hafa átt sér stað innan Nató og farið var fram á, að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fjallaði um málið.

Það eru óumdeilanlega blikur á lofti. Nató hefur síðustu mánuði elft hernaðargetu sína á austurvígstöðvunum um Evrópu endilanga, skilgreint Eystrasalt sem Natóhaf, kynnt áætlanir um hertöku Kalingrad og abbast upp á olíuflutningaskip Rússa á Eystrasalti.

Bandaríkjamenn senda enn hergögn fyrir eigin reikning og fyrsta sending, greidd af evrópskum skattgreiðendum, er í undirbúningi.

Evrópubúar og Bandaríkjamenn hafa „fryst“ eigur rússneskra skattgreiðenda og nota vextina af þeim til að greiða stríðsrekstur gegn þeim niður. Nú er leitað leiða til að stela höfuðstólnum „löglega.“ Venesúelabúar eru í sömu stöðu.

Samtímis eykst stöðugt stríðsglamrið í Mark Rutte, Úrsúlu og eistneska undrabarninu hennar, Kaia Kallas. Nú boðar þrenningin t.d. enn þá fleiri viðskiptaþvinganir bæði gegn Rússum og þeim, sem við þá versla. Og valkyrjurnar taka undir stríðsópin.

Líklega er svo komið, að Rússum sé farið að leiðast þófið og taki af sér silkihanskana. Ætli sé nú komið að „allsherjarinnrásinni,“ sem RÚV – í samræmi við uppskrift „hinna trúverðu miðla“ – jórtrar stöðugt á. Það klikkar stundum, en Dagný Hulda Erlendsdóttir klikkar aldrei.

Ég geri því ekki skóna, að fyrrnefndir fréttamenn skyggnist á bak við skeytin og reyni að kynna sér staðreyndir. En bendi lesendum á merkilegt viðtal Glenn Diesen við Harald Kujat, þýskan herforingja, sem var einn af innstu koppum í búri Nató.

Og Guð forði okkur frá því, að þriðja heimstyrjöldin breiðist frekar út. Aðrir virðast ekki ætla að gera það.

Það má til fróðleiks geta þess, að Myrotvorets (morðlisti) Úkraínumanna skilgreinir andstæðinga á barnsaldri. Það yngsta er þriggja ára. Svo stríðið tekur til sífellt fleiri aldursskeiða, þótt það sé tapað á vígvellinum.

Úkraínumenn ætla sér t.d. að drepa Lula de Silva, Viktor Orban, Woody Allen og Roger Waters og marga fleiri. Svo það er nóg að sýsla á þeim vígstöðvum.

https://glenndiesen.substack.com/p/harald-kujat-former-head-of-the-german?utm_source=podcast-email&publication_id=2670149&post_id=174032380&utm_campaign=email-play-on-substack&utm_content=watch_now_button&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/eu-supercharges-war-bundeswehr-quadruple-poland-training-mothers/5900459 https://glenndiesen.substack.com/p/dmitry-polyanskiy-drones-in-poland?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=173750853&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://thjodolfur.is/aras-russa-sem-eydilagdi-hus-i-pollandi-reyndist-polskt-flugskeyti/?fbclid=IwY2xjawM3vcZleHRuA2FlbQIxMQABHvBWnPSOOkVvQHLNjNQIKhnrm6PcAQ3DbgfrYy0Kx_eoM9T883TkaieIJhGD_aem_xdxJSAUuAPQ6sMZbZ7ipnA https://forumgeopolitica.com/article/geopolitical-overview-by-simon-hunt https://www.globalresearch.ca/nato-false-flag-operations-warn-russian-drone-incursions-europe/5900333 https://www.globalresearch.ca/video-false-flags-playing-with-fire-michel-chossudovsky-and-drago-bosnic/5900296 https://www.globalresearch.ca/nato-false-flag-operations-warn-russian-drone-incursions-europe/5900333 https://glenndiesen.substack.com/p/lawrence-wilkerson-america-is-retrenching?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=173412305&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://marksleboda.substack.com/p/russia-has-every-right-to-strike?utm_source=post-email-title&publication_id=1083041&post_id=173479425&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://libertarianinstitute.org/news/germany-to-add-more-than-100000-troops-to-army-in-preparation-for-war-with-russia/ https://sonar21.com/the-murder-of-charlie-kirk-and-unrelated-the-polish-false-flag/?jetpack_skip_subscription_popup https://steigan.no/2025/09/russland-benekter-at-de-skjot-droner-inn-i-polen/?utm_source=rss&utm_medium=rss&utm_campaign=russland-benekter-at-de-skjot-droner-inn-i-polen https://www.globalresearch.ca/poland-claims-russian-drone-attack-ukrainian-false-flag/5900385 https://korybko.substack.com/p/did-the-polish-deep-state-try-to?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=173827706&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=ShWxrWtCiKI https://www.globalresearch.ca/kiev-regime-adding-children-kill-list/5900647 https://glenndiesen.substack.com/p/russian-mig-31-fighters-breach-nato?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=174049293&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.bbc.com/news/articles/czrp6p5mj3zohttps://www.bbc.com/news/articles/czrp6p5mj3zo https://korybko.substack.com/p/the-reported-russian-drone-incursions?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=173328806&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/duda-belatedly-confirmed-that-zelensky?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=173328485&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


Geðvillustjórnun, geðlyf og samsæriskenningar. Illskustjórnun. Heimildarmynd

Snillingurinn, James Corbett, hefur unnið enn eitt afrekið; samið heimildarmynd með sögulegu sniði um geðlækningar, njósir, hugstjórnun og «rangar» skoðanir. Þetta hefur fólk flest væntanlega orðið illþyrmilega vart við, meðan covid-19 geðveikin stóð sem hæst.

Þá varð til ný sjúkdómsgreining „covidaðgerðavantrú.“ Vantrú á frásögn yfirvalda í sambandi við harmleikinn 9/11 var líka sjúkdómsgreind. Sjúklingarnir voru lagðir inn á sjúkrahús og fengu vitanlega geðlyf.

Geðlyf eru reyndar orðin hluti af „hollustufæði“ almúgans, jafnvel ungra barna. Sjúkdómsgreiningum fjölgar nefnilega stöðugt. Það er ekki ósjaldan, að erfiðleikar í uppeldi barna sé t.d. skilgreindir sem sjúkdómur barns eins og uppivöðslusemi, ofvirkni og þrjóska.

Skilyrðislaus hlýðni og undirgefni við yfirvöld er æskileg. Að öðrum kosti beitir ríkisvaldið ofbeldi. Það reyndum við öll og Vítisenglar fyrir skömmu.

Það má til fróðleiks geta þess, að Benjamin Rush, geðlæknir og einn stofnfeðra Bandaríkjanna (1745-1813), var meðal þeirra fyrstu, sem gerði sjúkdóm úr stjórnmálalegum viðhorfum; „anarchia.“

Ríkisvaldið hefur ýmsar leiðir til að tryggja fylgispekt. Í myndinni er fjallað um nokkur tilbrigði við ofbeldið, m.a. lyfjanotkun til að deyfa eða breyta huga fólks og beita vísindum, t.d. sálvísindum, í þágu valdhafa.

James fjallar um þetta í sögulegum aðdraganda að ástandinu í dag. Hann leggur áherslu á hugtökin geðvillu og siðblindu (psychopathy, sociopathy) og „geðvillustjórn“ í framhaldi af því.

Í umfjöllun höfundar ber á góma merka bók um efnið eftir pólskan sálfræðing.

Í fyrri pistli um efnið, „Siðblindir stjórnmálamenn, sálsýkisræði og hjarðmorð“ stendur skrifað:

„Árið 1984 var gefin út á pólsku merkileg bók með titlinum, „Stjórnmálafræðileg illskufræði“ (Ponerologia Polityczna). Bókin var þýdd á ensku ári síðar. Enski titillinn er: „Political Ponerology: A Science on The Nature of Evil adjusted for Political Purposes.“ Aukin útgáfa forlagsins, Red Pill, heitir: „Political Ponerology: The Science of Evil, Psychiatry and the Origins of Totalitarianism.“

Höfundur er pólski sjúkrasálfræðingurinn (clinical psychologist), Andrzej Lobaczewski/Andrew M. Lobaczewski (1921-2007) og fleiri. Andrzej hafði þá einstöku lífsreynslu í farteskinu að hafa lifað og starfað undir tvenns konar gerræðisstjórnum; stjórn byltingarmanna (kommúnista) og þjóðernisjafnaðarmanna (nasista). …

Höfundur segir rannsóknir sínar og félaganna hafa snúist um „kjarnasálsýki“ (essential psychopathy). Samfélög, sem búa við forystu hinna sálblindu eða geðveiku kallar hann „brjálræði“ eða „sturlunarræði“ (pathocracy).

Andrzej heldur því fram m.a., að í sérhverju samfélagi stofni siðblindingjar og aðrir afbrigðungar (deviants) á þeirra valdi, félög til leynimakks og undirróðurs. Félög þessi eru bara að litlu leyti á vitorði almennings.

Hann bendir einnig á þátt tilfinningaalgleymisins (emotionalism) í lífi einstaklinga, hópa og þjóða. Þegar það keyrir úr hófi fram, samþætt dómgreindarleysi og blindu á staðreyndir, örvast sjálfhverfa og sefasýkislegt næmi. Fólk verður ofurviðkvæmt fyrir áreitni, sem veldur sífelldum erjum. Það verður öfugsnúið og ofurgagnrýnið. Slíkt ástand virkar eins og mykjuskán á mý, dregur að sér illa innrætt fólk, sem talar tungum, og kyndir undir hinum illu öflum í samfélaginu.“

Handritið er skrifað af þekkingu og glöggskyggni. James leitar víða fanga í sögu sálfræðilegra rannsókna, geðlækninga og stjórnmála.

Að leiðarlokum lýsir hann óbilandi trú á því, að „geðspillinguna,“ þ.e. „bólfarir“ lækna, heilbrigðisyfirvalda og lyfjaiðnaðar, megi uppræta, og hemja megi „geðvillingana“ í stjórnmálunum – en þar eru þeir hlutfallslega fleiri en í öðrum kimum samfélagsins – og leiða okkur götuna fram eftir veg; að friði, réttlæti, jöfnuði og sálþroska.

https://drmcfillin.substack.com/p/how-psychiatric-drugs-really-work?utm_source=post-email-title&publication_id=1656473&post_id=173182821&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/american-rage-propelled-big-pharma-prescription-meds/5899069 https://drmcfillin.substack.com/p/what-i-know-that-most-of-the-public?utm_source=post-email-title&publication_id=1656473&post_id=171192997&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://corbettreport.substack.com/p/new-documentary-dissent-into-madness?utm_source=podcast-email&publication_id=725827&post_id=173703877&utm_campaign=email-play-on-substack&utm_content=watch_now_button&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


Öryggið á oddinn. Íslenskar kaldastríðshetjur. Nikita Khrushchev og Nató

Fréttamenn RÚV eiga það til að spyrja gáfulegra spurninga. Einn þeirra spurði t.d. íslenska stríðsráðherrann, Þorgerði Katrínu, sem dreymir um að kaupa sér kafbát og vinna hernaðarsigur gegn Rússum, hverju Íslendingar væru að verjast.

Stríðsmálaráðherrann var hvumsa við, átti greinilega erfitt með að botna í slíkri einfeldni. Rússum auðvitað! Innrás þeirra væri yfirvofandi (hefur reyndar verið það í þrjá aldarfjórðunga). Svo vilja þeir líka ræna íslenskum börnum. Þegar flökkuflygildaævintýri Úkraínumanna og Pólverja var lesið í fréttatíma RÚV með andköfum, kvað hún í viðtali fast að orði: Rússa verður að stöðva, sagði hún ábúðarfull.

Og nú hefur samráðshópur þingmanna úr öllum flokkum komist að sömu niðurstöðu. Um hóp þennan sagði utanríkisráðuneytið:

„Í tengslum við mótun stefnu í öryggis- og varnarmálum Íslands hefur utanríkisráðherra skipað samráðshóp þingmanna sem tilnefndir eru af þingflokkum allra stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi. Hlutverk samráðshópsins er að fjalla um inntak og áherslur öryggis- og varnarstefnu fyrir Ísland.

Í hópnum eiga sæti Dagur B. Eggertsson frá Samfylkingunni, Ingibjörg Davíðsdóttir frá Miðflokknum, Pawel Bartoszek frá Viðreisn, Sigurður Helgi Pálmason frá Flokki fólksins, Sigurður Ingi Jóhannsson frá Framsóknarflokknum og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir frá Sjálfstæðisflokknum. Utanríkisráðherra hefur falið Aðalsteini Leifssyni, varaþingmanni Viðreisnar og aðstoðarmanni ráðherra, að leiða starf hópsins.“ Einvala lið hér á ferð, gagnmenntað um alþjóðamál.

Aðsóknarkennd gagnvart Rússum á sér langa sögu, allar götur aftur fyrir rússnesku byltinguna 1917, sem ofsaríkir Gyðingar – aðallega á Wall Street – fjármögnuðu og hrundu af stað. Flestir forystumanna hennar voru Gyðingar eða sérstakir Gyðingavinir eins og t.d. Vladimir Ilyich (Ulyanov)Lenin (1870-1924).

Gyðingaauðjöfrarnir sendu austur um haf Gyðinginn, Leon Trotsky (Lev Davidovich Bronstein – 1879-1940), sem þeir höfðu búið undir „trúboðið“ í Nýju Jórvík. Trúboðið var kallað „kommúnismi.“ Stefnan er veraldleg hliðstæða Síonisma, þ.e. að samfélaginu og veröldinni skal stjórnað af hinum útvöldu. Ríkisvald þeirra afnemur eignarrétt fólks, elur upp börnin og hefur einkarétt á sannleikanum. Síonistar (Gyðingar) eru útvaldar af Guði almáttugum, forystusveit kommúnista af gáfumönnum flokksins. (Samyrkjubúin í Ráðstjórnarríkjunum og Ísrael (kibbutz) störfuðu samkvæmt þessari hugmyndafræði.)

Það gefur að skilja, að alheimsbylting í kommúniskum/sínoniskum anda sé á stefnuskrá flokks kommúnista eins og Síonista. Svo var lengi vel og alheimshreyfing kommúnista stofnuð. Angi hennar náði alla leið til Íslands.

Leon var uppeldi sínu og hugmyndafræði samkvæmt mikill talsmaður alheimsbyltingar. En það var Jósef Stalin (Ioseb Besarionis dze Jughashvili – 1878-1953) hins vegar ekki. Sá fyrrnefndi tapaði valdabaráttunni, eftir lát Leníns, og var drepinn í Mexíkó, samkvæmt skipun félaga Jósefs.

Jósef Stalín hreinsaði hressilega til í flokknum. Sjálfur var hann Gyðinghollur og stofnaði sjálfsstjórnarhérað (oblast) handa Gyðingum innan Ráðstjórnarríkjanna. Aðalböðull hans var Gyðingur, Lazar Moiseyevich Kaganovich (1893-1991).

Jósef þótti sem sé nóg um áhrif Síonista, alheimsbyltingartalið og njósnir embættismanna í þágu Ísraels og Bandaríkjanna, jafnvel þótt hann hefði stutt stofnun Ísraelsríkis. Hann gekk meira að segja svo langt, að ákæra vinkonu (annarrar) eiginkonu sinnar og eiginkonu eins helsta samstarfsmanns síns, utanríkisráðherrans, Vyacheslav Mikhailovich (Skryabin) Molotov eða „sleggjunnar“ (1890 – 1986), Gyðinginn, Polina Semyonovna Zhemchuzhina (Perl Karpovskaya -1(897–1970), fyrir slíkar njósnir.

Þrátt fyrir hreinsanir og glæpsamlegan fautaskap í sambandi við umbreytingu Ráðstjórnarríkjanna frá landbúnaðarríki til iðnvædds stórveldis, féll hann hvergi í ónáð hjá bandarísku þjóðinni, Gyðingaauðjöfrunum og forseta Bandaríkjanna, Franklin Delano Roosevelt (1882-1945).

Reyndar dældu Bandaríkjamenn ómældu fjármagni og hergögnum til Ráðstjórnarríkjanna til að klekkja á öðrum „dýrlingi“ auðjöfranna á Wall Street og í heimahögunum, Adolf Hitler (1889-1945). Það féll m.a. í hans hlut að reyna að vinna á Ráðstjórnarríkjunum – eins og margir fleiri fyrir hans tíma - og leggja drög að sameiningu Evrópu (síðar Evrópusambandið).

Þegar hillti undir styrjaldarlok lögðu Bandaríkjamenn og Bretar á ráðin um kjarnorkuvopnaárás á Rússa (æfðu sig áður á Japönum) og innrás landhers. Af hvorugu varð. Ráðstjórnarríkin voru orðin hættulegur andstæðingur. Því var horfið á það ráð að hefja kalt stríð. Forsenda þess var áróðursstríð. Dýrlingurinn, Josef Stalin, var nú gerður að skratta með horn og klaufir.

Stofnun Nató, að frumkvæði Bandaríkjanna 1949, var mikilvægt vopn í kalda stríðinu; þ.e. að halda Rússum úti, Þjóðverjum niðri og hafa taumhald á hinum, Íslendingum og fleirum.

Rússar urðu hvumsa við. Hvar var fyrri vinátta og hernaðarleg samvinna? Á sjötta áratugnum, jafnvel þótt Nató hefði verið stofnað til höfuðs þeim, dreymdi þá um samvinnu við Vesturlönd í öryggismálum.

Hinn litríki, Nikita Sergeyevich Khrushchev (1894 – 1971) ámálgaði meira að segja þátttöku í Nató 1954. Því var vísað á bug af kaldastríðsmönnunum á sama hátt og tillögu Jósefs um sameiningu Þýskalands og hlutleysi 1952.

Austurríkismenn tóku hins vegar vel í slíkt fyrirkomulag þrem árum síðar. Íslendingar völdu fremur að gefa hlutleysið upp á bátinn fyrir viðskiptasambönd, leituðu skjóls hjá böðlum sínum og gerðust stríðsþjóð.

Hafnað af Nató stofnuðu Rússar Varsjár(varnar)bandalagið ásamt leppríkjum sínum í kjölfarið eða 1955. Það var eins og kunnugt er leyst upp 1991 í sambandi við upplausn Ráðstjórnarríkjanna.

Nató lifði hins vegar góðu lífi og óx eins og ilkynja æxli – þrátt fyrir gefin loforð um annað – inn á fyrrum áhrifasvæði Rússa. Áhyggjur Rússa af eigin öryggi voru virtar að vettugi. Sömuleiðis endurteknar aðvaranir Vladimir Putin þess efnis, að Rússar myndu verja land sitt gegn ágangi Nató.

Merkilegri friðartilraun Ráðstjórnarríkjanna og Bandaríkjanna undir forystu Nikita og John Fitzgerald Kennedy (1917-1963) lauk, þegar leyniþjónustur Bandaríkjanna og Ísraels myrtu hann í umboði djúpríkis Bandaríkjanna.

Beiðni um inngöngu í Nató var endurtekin skömmu eftir að Vladimir Putin varð forseti Rússlands. Á fundi George W. Bush og rússneska forsetans 2001 í Slóveníu, bar þetta á góma í vinsamlegu andrúmslofti. George sagði sem var, að Rússar væru vinir Bandaríkjanna (sérstaklega frá forsetatíð Abraham Lincoln (1809-1865), þegar Rússar vörðu Bandaríkin gegn Bretum og Frökkum).

En samtímis voru brugguð launráð nýíhaldsmanna í Washington. Leggja skyldi Rússland í rúst eins og fyrirhugað var 1917 og blása lífi í síoniskan kommúnaisma; alheimsríkið, sbr. stefnu og drauma Alheimsefnahagsráðsins (Word Economic Forum).

Stríðið í Úkraínu, byltingartilraunir í Georgíu, Hvíta-Rússlandi, Armeníu, Aserbædsjan og víðar, eru þáttur í þeim áætlunum eins og yfirráð Ísraela og Bandaríkjanna í Vestur Asíu/fyrir botni Miðjarðarhafs.

Henry (Heinz) Kissinger (1923-2023) hafði einu sinni á orði, að það væri hættulegt að vera óvinur Bandaríkjanna en þó hættulegra að vera vinur þeirra. Það reyndu stjórnvöld í Katar um daginn eins og margir þar á undan.

Engu að síður komst öryggismálavitringanefnd Alþingis að því, að Íslendingar skyldu áfram vera taglhnýtingar Bandaríkjamanna og Nató, njóta verndar hvorra tveggju og taka meiri og kostnaðarsamari þátt hernaðarbröltinu.Það væri fróðlegt að vita, hvernig herkostnaðurinn dreifist á fjölskyldur í landinu.

Herskáasti hluti Sjálfstæðismanna vill ólmur stofna Íslenskan her – þ.e. stærri en Víkingahersveitina, sem stöðugt hefur í fleiru að snúast – og bjóða Melrakkasléttu sem herstöð og vígvöll.

Það mætti huga að því að sameina Víkingasveitina og Landhelgisgæsluna í einn her og færa undir hermálaráðuneytið. Landhelgisgæslan er sögð á heimsmælikvarða í sprengjuleit. Það er talsvert öryggi í því fyrir landsins börn. Sjálfskipaður hershöfðingi Íslands er Björn Bjarnason.

https://voiceofeast.net/2022/04/08/vladimir-putin-monster-madman-or-mastermind/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.youtube.com/live/lGnw3J-xlkk https://sonar21.com/putins-speech-announcing-the-special-military-operation/?jetpack_skip_subscription_popup https://steigan.no/2025/05/den-russiske-folkesjelen/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/vladimir-putin-klaus-schwab-go-way-back/5865075 https://glenndiesen.substack.com/p/fyodor-lukyanov-new-era-of-us-russia?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=159603906&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://jewishmag.com/148mag/molotov_jewish_wife/molotov_jewish_wife.htm https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2025/04/11/Samradshopur-thingmanna-vegna-motunar-oryggis-og-varnarstefnu-hefur-storf/ https://sonar21.com/more-on-charlie-kirk-the-qatar-strike-and-the-russias-netcentric-military-doctrine/ https://georgewbush-whitehouse.archives.gov/news/releases/2001/06/20010618.html?utm_source=chatgpt.com https://www.youtube.com/watch?v=HJzEnlzlT20 https://transcripts.cnn.com/show/se/date/2001-06-16/segment/01?utm_source=chatgpt.com https://www.c-span.org/clip/white-house-event/user-clip-putin-on-nato-expansion-first-meeting-with-bush/5068261?utm_source=chatgpt.com https://glenndiesen.substack.com/p/brian-berletic-nato-panics-as-ukraine?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=173172391&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://sonar21.com/hey-george-w-bush-whats-so-damn-funny/?jetpack_skip_subscription_popup https://savageminds.substack.com/p/a-new-foreign-policy-for-europe?utm_source=post-email-title&publication_id=65949&post_id=171418509&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


Illskan og eldhafið í Nýju Jórvík11. september 2001. Hryðjuverkastríð Bandaríkjanna og Ísraels

Almenningi er margt sjónum hulið. Því geymir sagan mýgrút tilvika um opinber illvirki og lygar hulduhersins og stjórnmálamanna þeirra. Þetta á ekki síst við um sviðsetta atburði eða tilvik í því skyni að tæla þjóðir eða hópa til árása, svo réttlæta megi eigið stríðsbrölt, átyllustríð. Önnur leið algeng í sama skyni er að ala á ótta með áróðri. Óttinn gerir okkur leiðitöm.

Ytri ógn þjappar okkur saman og treystir leiðtoga vora í sessi – þar til upp kemst um blekkingarnar. En skilgreindur óvinur getur einnig verið innanlands eða jafnvel skilgreindur sem íbúar alls heimsins. Árásirnar eða stríðin eru einatt háð í áföngum og stigbundið. Það má færa rök að því, að á efsta stigi sé um átök almennings annars vegar og auðjöfra eða bankaveldis, hugmyndafræðinga þeirra og stjórnmálamanna, hins vegar.

Fólk flest hefur varla komist hjá því að skynja blekkingarnar í sambandi við síðasta veirustríð. Samtímis bylur á því áróðurinn gegn Rússum og fólki Múhammeðstrúar. Það er skilgreint sem ytri ógn. Von valdhafa (strengjabrúða hins alþjóðlega auðvalds) er að treysta stöðu sína og réttlæta vopnakaup. Það er í sjálfu sér yfirfærsla fjármuna frá skattgreiðendum til vopnaframleiðenda. Íslensk yfirvöld eru t.d. á bólakafi í slíkum gjörningi.

Lygar, blekkingar og heilaþvottur hafa valdið mestri skelfingu og harmi í sögu mannkyns; stríðum og tortímingu fólks og verðmæta. Nokkur dæmi má nefna eins og stríð Bandaríkjanna og Spánar, þegar USS Maine var sökkt í höfninni í Havana 1898; fyrsta áfanga heimstyrjaldarinnar, þegar Franz Ferdinad og Soffía voru myrt í Sarajevo 1914; annar áfangi hennar, þegar Þjóðverjum var sagt stríð á hendur 1939 vegna innrásar þeirra í Pólland til að stöðva ofsóknir gegn þýskum borgurum og endurheimta þýskt land; stríð Bandaríkjanna við Víetnama í kjölfar upploginnar árásar á Tonkin flóa 1964. Flestir muna líklega lygarnar um Saddam Hussein (1937-2006), fyrrum bandamann Bandaríkjanna, og Muhammad Gaddafi (1942-2011). Svona mætti enn telja.

Í gær (11. september) var merkisdagur í þessari samfelldu harmsögu. Árið 2001 voru Tvíburaturnarnir sprengdir í loft upp – ásamt annarri byggingu – og árás gerð á varnarmálaráðuneytið (Pentagon), sem núverandi forseti hefur endurskírt stríðsmálaráðuneyti. Osama bin Laden (1957-2011), fyrrum starfs- eða bandamanni bandarísku leyniþjónustunnar, og „Alkæda“ (Al-Quaeda) var umsvifalaust um kennt.

Alkæda var í raun einungis listi yfir múslimska ofsatrúarmenn, sem Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra á Vesturlöndum, í Ísrael og í Arabaríkjunum, beittu í skæruhernaði gegn Ráðstjórnarríkjunum (Rússum) í Afganistan.

Einn af böðlum Alkæda hefur nú verið gerður að forseta Sýrlands. Annar armur varð að Talíbönum. Þeim hafa Vesturlönd hins vegar snúið við baki.

Hin opinbera skýring á hryðjuverkinu er þessi í grófum dráttum: Nítján flugræningjar, að mestu þegnar Sádí-Arabíu (bandamanns Bandaríkjamanna og Ísraela) réðust til atlögu gegn áhöfnum fjögurra farþegaflugvéla með klippum. Foringi Alkæda, Osama bin Laden, stjórnaði aðgerðinni. Tveim vélanna var flogið á Tvíburaturnana með þeim afleiðingum, að þeir hrundu. Þriðju vélinni var flogið á Pentagon, en sú fjórða féll til jarðar, þegar farþegarnir gerðu uppreisn gegn ræningjunum. (Sértaklega stuðst við grein Philip Giraldi.)

Þess má geta, að Osama bin Laden lá á sóttarsæng á sjúkrahúsi í Pakistan, þegar atburðirnir áttu sér stað. Hann neitaði fram andlátið þátttöku sinni í ódæðinu. Hann var engu að síður myrtur af Barrack Obama.

Skýringar bandarískra yfirvalda hafa margir dregið í efa. Eftir tveggja áratuga rannsóknir má ljóst vera, að hún heldur ekki vatni eins og lesa má um í hjálögðum heimildum. Turnarnir voru vafalítið sprengdir.

En sögulegur aðdragandi illvirkjanna í Nýju Jórvík er í hnotskurn þessi:

„Yinon áætlunin“ (Yinon Plan) um landvinninga Ísraelsríkis fyrir botni Miðjarðarhafs kom út árið 1982. Tíu árum síðar birtist svo „Hreini skurðurinn. Ný landvinningaáætlun“ (A Clean Break: A New Strategy for Securing the Realm). Þá höfðu nýíhaldsmenn (neoconservatives) í anda þýska Gyðingsins og stjórnmálaheimspekingsins, Leo Strauss (1899-1973), og nemenda hans, Henry (Heinz) Kissingar (1923-2023) fengið verulegan hljómgrunn í bandarískum stjórnmálum.

Síonistar voru áhrifamiklir og áberandi í þessum hópi eins og nú. Pólverjarnir, Zbigniew Brzezinski (1928-2017) og Paul Wolfowitz, voru áhrifamenn við mótun utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Þess má geta, að flestir leiðtoga Ísraelsmanna eru af austur-evrópsku bergi brotnir. Nýíhaldsmenn sömdu einnig áætlunina um „Nýju bandarísku öldina“ (New American Century). Rauði þráðurinn er kunnuglegur; guðsgefin forlög Bandaríkjamanna að vísa jarðarbúum veginn – eins og frumbyggjum Ameríku fyrrum – og ráða veröldinni. Bandaríkin skyldu vera þungamiðja alheimsins (leiðtogar Alheimsstjórnarinnar).

Þeir hafa markvisst unnið í anda þessarar sannfæringar allt frá lokum annars áfanga heimstyrjaldarinnar 1945. Ísraelsríki er í þeirra huga (sbr. orð Robert Kennedy þessa efnis) framvörður þeirra og skjöldur í Miðausturlöndum. Þar er enn næga olíu að finna eins og í Venesúela.

Árið 1995 varaði Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, við hryðjuverkum í Miðausturlöndum. Hryðjuverkamenn gætu sem hægast haslað sér völl í Bandaríkjunum og t.d. gert árás á Tvíburaturnana, sagði hann. Þess vegna myndu Ísraelsmenn óska liðsinnis vina sinna við að uppræta meinið.

Síðar sagði Bensi-barnamorðingi, inntur eftir viðbrögðum við ódæðinu: „Þetta er mjög gott. Það er að segja ekki mjög gott í sjálfu sér, en það mun engu að síður ala af sér samúð [og] styrkja böndin milli þjóða okkar, því við höfum búið við hryðjuverk áratugum saman. Nú hafa Bandaríkjamenn reynt ógnarlega hryðjuverkablóðtöku (hemorrhaging of terror).“

Benjamin bætti við: „Þetta snýst ekki eingöngu um bin Laden, heldur ekki um samtökin (networks). Það snýst einnig um ríkin, sem húsa og styðja þau – Írak, Íran, og Taliban í Afganistan.“

Hann tjáði sig sérstaklega um Saddam Hussein: „Það þarf alls enginn að velkjast í vafa í vafa um, að Saddam Hussein vinnur að því að útvega kjarnorkuvopn – alls engin spurning. Sé Saddam fjarlægður get ég lofað viðbrigðagóðum áhrifum á svæðinu. … Að 9/11 liðnum (sprengingu turnanna) verða Bandaríkin að verða fyrri til og bregðast við (act preemptivlely) hryðjuverkayfirvöldum.“

Varaforsetinn, Richard Bruce (Dick) Cheney var heldur ekki í vafa: „Við búum yfir vitneskju um, að [Saddam Hussein] skjóti skjólshúsi yfir hryðjuverkamenn, þar á meðal Alkæda.“ Síðar kom svo lygaþvælan um gereyðingarvopn og sögurnar um írakska hermenn, sem réðust gegn kornabörnum í súrefniskössum.

Framhaldið er lesendum vafalaust kunnugt; Ísraelar sprengdu í loft upp kjarnorkuver Íraka og þeim og Írönum var att saman. Hvorir tveggju voru studdir af Bandaríkjamönnum. Forseti Bandaríkjanna, George W. Bush, lýsti yfir stríði gegn illskunni, nánar tiltekið hinum illu öxulveldum (axis of evil), gegn hryðjuverkaríkjum í Vestur-Asíu og víðar.

Þegar þessir atburðir áttu sér stað var samin áætlun Samrunaheimsveldisins (Bandaríkjanna og Ísraels – með dyggum stuðningi Breta að sjálfsöðu) að leggja undir sig sjö ríki Múhammeðstrúarmanna í Vestur-Asíu og Afríku.

Nú standa Íran og Jemen ein eftir, þrátt fyrir látlausar árásir Sádí-Araba, Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna. Sýrland var síðast hernumið. Þjóðernishreinsanir og endaleg hertaka lands Palestínumanna stendur yfir.

Það vekur athygli, að tveim árum, áður en umrætt hryðjuverk átti sér stað, hafði bandaríski herinn æft sams konar árásir. Það sama gerðu „veiruhryðjuverkamennirnir,“ áður en covid-19 veirunni var sleppt lausri og bólusetningaherferðin hófst.

https://www.globalresearch.ca/9-11-analysis-where-was-osama-bin-laden-on-september-11-2001/20986 https://corbettreport.substack.com/p/james-corbett-answers-911-questions?utm_source=post-email-title&publication_id=725827&post_id=148840073&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/10-bush-bin-laden-connections-raised-few-eyebrows/5697119 https://ia601409.us.archive.org/24/items/demolition-access-to-the-wtc-towers/Demolition_access_to_the_WTC_towers.pdf - Kevin Ryan https://www.youtube.com/watch?v=C_j3Kj0Tlec https://corbettreport.substack.com/p/who-had-access-to-the-twin-towers?utm_source=post-email-title&publication_id=725827&post_id=146662554&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://beeley.substack.com/p/genocide-and-empire-examining-october?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=140884550&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/was-911-a-false-flag-americas-just-war-against-muslim-countries-self-defense-against-the-civilizational-war-of-islam-against-the-west/5843516 https://rumble.com/v3wpl0y-trump-nobody-has-gotten-to-the-bottom-of-9-11.html https://realnewsandhistory.com/dancing-israelis/ https://kitklarenberg.substack.com/p/third-911-hijacker-may-have-been?utm_source=post-email-title&publication_id=552010&post_id=137763621&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/9-11-analysis-from-ronald-reagan-and-the-soviet-afghan-war-to-george-w-bush-and-september-11-2001/20958 https://articles.mercola.com/sites/articles/archive/2023/09/21/what-really-happened-on-9-11.aspx?ui=50823ccf152775dc8e8154c0ff79da522ef0aa959b384df904857f2fc49c6730&sd=20221129&cid_source=dnl&cid_medium=email&cid_content=art1ReadMore&cid=20230921&foDate=false&mid=DM1466981&rid=1917872991 https://frettin.is/2023/09/13/huldustjornendur-ad-baki-9-11-bush-neitadi-ad-birta-njosnaskyrslur/ https://corbettreport.substack.com/p/the-911-emergency-from-gladio-to?utm_source=post-email-title&publication_id=725827&post_id=137036553&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://www.corbettreport.com/interview-1206-michel-chossudovsky-on-911-and-the-war-on-terror/ https://www.corbettreport.com/the-real-cost-of-the-war-of-terror/ https://www.corbettreport.com/ptech-and-the-9-11-software/ https://www.corbettreport.com/page/7/?s=war https://www.globalresearch.ca/death-thousand-cuts-many-ways-rights-usurped-911/5832196 https://www.globalresearch.ca/9-11-analysis-from-ronald-reagan-and-the-soviet-afghan-war-to-george-w-bush-and-september-11-2001/20958?doing_wp_cron=1694275789.0335359573364257812500 https://markcrispinmiller.substack.com/p/peace-war-and-911-a-great-new-documentary?utm_campaign=email-post&r=ry8jq&utm_source=substack&utm_medium=email https://derimot.no/blir-ikke-ferdig-med-9-11-sa-lett-hva-fikk-kameraene-til-a-riste-for-tarnene-falt/ https://michelchossudovsky.substack.com/p/911-analysis-reagan-al-qaeda-bush-911?utm_campaign=email-post&r=ry8jq&utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/latest-news-and-top-stories https://expose-news.com/2023/09/11/what-really-happened-on-911/?cmid=3cc77790-4459-4c1f-a5f4-9a15ea8f55d7 https://www.informationclearinghouse.info/57817.htm https://rumble.com/v3gn3po-covid-911-from-homeland-security-to-biosecurity-watch-along-and-q-and-a.html https://www.corbettreport.com/covid911/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.realnewsandhistory.com/e-team-9-11/ https://www.globalresearch.ca/osama-bin-laden/5688305 https://www.facebook.com/kla.tv.island/videos/987518719155330/ https://www.globalresearch.ca/it-took-long-time-face-what-knew-true-about-911/5761325 https://corbettreport.substack.com/p/peace-war-and-911-ted-walter-on-the?r=ry8jq&utm_source=substack&utm_medium=email https://michelchossudovsky.substack.com/p/911-unanswered-questions?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/documentary-film-peace-war-911/5830612 https://corbettreport.substack.com/p/james-corbett-on-the-nature-of-false?utm_source=substack&utm_medium=email https://expose-news.com/2022/10/09/james-corbett-9-11-al-qaeda-and-the-war-on-terror/ https://www.tmz.com/2023/03/20/9-11-the-fifth-plane-suspicious-passengers-hijackers-documentary-fox/ https://www.israelnationalnews.com/news/368982 https://www.tmz.com/2023/03/20/9-11-the-fifth-plane-suspicious-passengers-hijackers-documentary-fox/ https://www.israelnationalnews.com/news/368982 https://search.brave.com/search?q=5th+plane+9%2F11+documentary https://www.corbettreport.com/911wargames/ https://shoestring911.blogspot.com/2011/04/many-false-hijackings-of-911.html https://twitter.com/AE911Truth/status/1636512601957072897 https://www.youtube.com/watch?v=SI9OdnyvQew https://corbettreport.substack.com/p/ted-walter-dissects-the-911-phone https://sonar21.com/from-11-september-to-7-october-the-fake-war-on-terror-collapses/ https://expose-news.com/2024/09/14/we-know-theyve-told-lies/ https://corbettreport.substack.com/p/senator-ron-johnson-dares-to-question?utm_source=podcast-email&publication_id=725827&post_id=172916746&utm_campaign=email-play-on-substack&utm_content=watch_now_button&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/9-11-analysis-where-was-osama-bin-laden-on-september-11-2001/20986 https://truthblitzkrieg.com/2024/09/02/1379/#aioseo-conclusion https://www.globalresearch.ca/what-happened-on-the-planes-on-september-11-2001-the-911-commission-script-was-fabricated/5428771 https://www.globalresearch.ca/the-bin-ladens-the-bushes-and-911-a-former-us-president-meets-osamas-brother-not-subject-to-anti-terrorism-legislation/5582436 https://www.globalresearch.ca/how-did-perpetrators-do-911/5756408 https://www.globalresearch.ca/the-truth-behind-9-11-who-is-osama-bin-laden-2/3198 https://www.globalresearch.ca/language-mind-control-911/5900051 https://www.globalresearch.ca/video-september-11-2001-the-global-war-on-terrorism/5899827 https://rumble.com/v6xtnzu-codex-911-premiering-aug-24th-6pm-et.html?utm_source=substack&utm_medium=email https://kucinichreport.substack.com/p/reflections-on-the-24th-anniversary?utm_source=post-email-title&publication_id=1441588&post_id=173376649&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email Viðbót: https://realnewsandhistory.com/dancing-israelis/ https://michelchossudovsky.substack.com/p/pakistan-mysterious-meeting-september-11-capitol-hill?utm_source=post-email-title&publication_id=1910355&post_id=173357995&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


Helfúsir hálfvitar. Dvergarnir sjö dansa stríðsdans

Dónaldur „pabbi“ Jón er mönnum ráðgáta. Hann er augljóslega sjálfumglaður, uppdráttarsjúkur og fákænn (veit þó að kynin eru tvö) flautaþyrill, illa lasinn af ungæðislegri sjálfsást. Tjáning hans ber skýran vott um vitsmunalega bresti. Þrátt fyrir þetta eða jafnvel í ljósi þess telja sumir hann stjórnvitring. Í þessum hópi eru fróðir menn og snjallir greinendur alþjóðamála eins og Alex Krainer og Gilbert Doctorow. Ætli þeir hafi rétt fyrir sér?

Dónaldur „pabbi“ Jón er líka lýðskrumari, en það eru vissulega fleiri stjórnmálamenn. Hann vann hylli Bandaríkjamanna einkum vegna loforðs um að ljúka staðgengisstríði Nató í Úkraínu. Það værri einungis sólarhringsgjörningur. En margir sólarhringar hafa síðan liðið og ekkert bólar á friðinum. Forsetanum dygði að fyrirskipa bandarísku leyniþjónustunni að yfirgefa Úkraínu, bandarísku herstjórninni í Þýskalandi að hætta afskiptum og stöðva herflutninga.

En í ljósi heimsvaldastefnu Bandaríkjanna gerist það skiljanlega ekki. Og þá má einu gilda, hver í Sameiningarflokknum situr á forsetastóli. Nýjasta útfærslan á stefnu Paul Wolfowitz, Zbigniew Brzezinski (1928-2917) og Henry Kissinger (1923-2023), er kölluð „herkænskuframvindan“ (strategic sequencing), þ.e. að skipta liði (division af labour), gera atlögu, veikja, gera vopnahlé, breyta um brennidepil og koma svo fílelfdir til baka.

Þessi stefna raungerist nú í Úkraínu. Dónaldur „pabbi“ Jón vill leika „Minsk-leikinn“ aftur, skapa Bandaríkjunum andrými, spara aurinn og efla bandarískan hergagnaiðnað með peningum evrópskra skattgreiðenda. Og hinir helfúsu leiðtogar Evrópu, flestir helteknir af Alheimsefnahagsráðinu, dansa með, því eftir höfðinu dansa limirnir.

Fremstir í fylkingunni fara Dvergarnir sjö; Emmanuel Macron, Keir Starmer, Giorgia Meloni, Friedrich Merz, Mark Rutte, Ursula von der Leyen og Finninn, Alexander Stubb. Sá síðastnefndi getur sér gott orð fyrir Rússahatur. Hann er herskár með afbrigðum og gefur stefnu stjórnvitringsins, Uhro Kekkonen (1900-1986) langt nef.

Friedrich Merz hefur útnefnt Vonda-Valda mesta stríðsglæpamann sögunnar og vitringurinn, Mark Rutte, segir forseta Rússlands ámóta valdamikinn og ríkisstjóra Texas. Því ætti lýðum að vera ljóst, að hér er mannval á ferðinni. Það leiðir þjóðirnar 26 til baráttu gegn Rússlandi, ýmist með vopnasendingum, hermönnum eða annars konar stuðningi við áframhaldandi hernaðarbrölt.

Meðal ríkjanna 26 er Ísland og frænkur vorar á Norðurlöndunum. Íslenska stríðsríkisstjórnin hefur nýverið hækkað þátttökugjaldið í stríðsleiknum. Það heita útgjöld til varnarmála. Trúlega er kafbátur Þorgerðar Katrínar innifalinn, svo og sérstakar barnaránsvarnir gegn Rússum.

Það ber ekki á öðru, en að gamall draumur alheimsstjórnarsinna um evrópskan her, þ.e. her Evrópusambandsins, sé í burðarliðnum og verði stefnt gegn Rússum. Þegar er dregin víglína frá suðri til norðurs. Bandaríkjamenn hafa fjölgað herstöðvum sínum á Norðurlöndunum, Þjóðverjar dregið saman skriðdrekalið í Lithaugalandi og Eistar gera Rússum skráveifur á Eystrasalti og í Finnska flóanum, sem og Nató í grennd við Múrmansk. Finnar taka líka þátt í þessum ögrunum.

Aukin heldur skipuleggja Bandaríkjamenn innrás í Kalingrad og halda áfram undirróðursstarfsemi sinni í Kákasus og Austur-Evrópu, t.d. í Moldóvu og Rúmeníu. Þar hefur varasamur forsetaframbjóðandi, Cälin Georgescu, andsnúinn Nató uppbyggingu í landinu, verið fjarlægður og niður í honum þaggað.

Þöggun andmæla gegn staðgengisstríði Nató í Úkraínu tekur á sig ýmsar myndir. Andmælendur eru ofsóttir af hugsanalögreglu og dómstólum, aðrir hugsanlega teknir af lífi. Sex liðsmenn „Valkosts handa Þýskalandi“ (Alternative für Deutschland) létust skyndilega.

En hver veit, nema almenningur grípi í taumana og raski draumórastríðs- og helstefnu yfirvalda sinna. Í Tékklandi blómstar flokkur óánægðra kjósenda. Efnahagsástandið í stóru Evrópuríkjunum er bágborið, bæði vegna veiruhernaðar gegn eigin þegum og andstyggðarstríðinu í Úkraínu. Íbúar Úkraínu vildu ekki stríð. Þeir kusu Volaða-Valda til að tryggja frið. Aðrir Evrópubúar vilja heldur ekki stríð.

Það væri ekki úr vegi að rifja upp framvinduna í samskiptum Rússa og Nató síðustu áratugina, sbr. grein Larry Johson, fyrrverandi starfsmanns Leyniþjónustu Bandaríkjanna:

Tímabil 2000 til 2001: Rússar lýsa yfir vilja til samvinnu, jafnvel að ganga í Nató.; 2001 til 2002: Enn tala Rússar fyrir samvinnu og friðsamlegri sambúð; 2007 til 2008: Rússar verða gagnrýnir, líta á útþenslu Nató sem ögrun af bandalagsins hálfu; 2014: Rússar andmæla og spyrna við fótum. Svara áætlunum Nató um umsvif á Krím (Sevastopol) með því að beita sér fyrir innlimun Krímskagans í Rússland; 2021 til 2022: Rússar krefjast lögmætra takmarkana með tilliti til útþenslu Nató og ógna, draga upp ”rauðar línur” í því sambandi; 2022 til 2025: Nató er skilgreint sem fjandi. Rússar gerast herskáir í tali. Staðgengisstríð við Nató brýst út.

Þá höfðu Minsk samningarnir verið vanvirtir og stríði Kænugarðsstjórnarinnar gegn „rússnesku“ héröðunum fram haldið. Samtímis hafði Nató byggt upp einn öflugasta her Evrópu, samhæfðan herjum Nató-landa.

Íslendingum og öðrum Vesturlandabúum var talin trú um, að aðild að Nató væri nauðsynleg, þar eð Rússar (Ráðstjórnarríkin) ásældust Vesturheim. Það var hluti kaldastríðsáróðurs angló-saxisku ríkjanna, sem vildu láta hné fylgja kviði gagnvart Rússum við lok seinni heimstyrjaldarinnar. Þau treystu sér þó ekki til að vinna á Rússum í heitu stríði, enda þótt Bandaríkjamenn hefðu undirbúið kjarnorkuvopnaárás á Ráðstjórnarríkin og Bretar lagt drög að innrás. Kalt stríð varð fyrir valinu. En markmiðið var og er hið sama; að rústa Rússlandi og hirða auðævi þess.

Hinum eiginlega tilgangi Nató var eðlilega haldið leyndum, þ.e. að tryggja Bandaríkjamönnum tögl og haldir í kjölfar annars áfanga heimstyrjaldarinnar með því að halda Rússum úti, Þjóðverjum niðri og hinum í taumi.

Fólk var heldur ekki frætt um neðanjarðarstarfsemi Nató, leyniherdeildarnar, sem bæði höfðu afskipti af lýðræðislegum kosningum og ólu á ótta, m.a. með hryðjuverkum, til að skapa frjósaman jarðveg kaldastríðsáróðursins, rétt eins og gert var í síðasta veirustríði.

Sumir fóru að bila í trúnni á varnarhlutverkið, þegar Nató gerði loftárásir á Júgóslavíu og síðar Líbíu. Þegar árásirnar á Júgóslavíu hófust var utanríkisráðherra Rússa, Yevgeny (Yewgeny) Primakov (1929-2015), í mars 1999 á leið til Washington til að ræða vonir og drauma Rússa um hið sameiginlega „evrópska heimili“ og varnarsamstarf. Yevgeny sneri flugvélinni við í mótmælaskyni.

Þessi atburður markaði tímamót. Nýíhaldsmenn í Bandaríkjunum glæddu heimsveldisdrauma djúpríkisins (alheimstjórnarsinna) nýju lífi og skelltu skollaeyrum við friðsamlegri nálgun Rússa í öryggismálum.

Og sum sé: Dvergarnir sjö leiða nú djöfladansinn, meðan Dónaldur „pabbi“ Jón snýr sér að drápum og niðurrifi í Miðausturlöndum og Austur-Asíu. Þannig skipta Nató-ríkin með sér verkefnum.

Úkraína nálgast hengiflugið. Rússar sækja fram á öllum vígstöðvum, en ítreka án afláts stríðsmarkmið sín; vernda Rússa í Úkraínu, eyða úkraínskum nasistum og draga máttinn úr úkraínska hernum. Það eru engin teikn um annað. Engu að síður er gömlu Rússagrýlunni haldið á lofti. Grýlutrúin nístir merg og bein, meira að segja hinna fluggáfuðu og fróðu.

(Helgað minningu þeirra þúsunda úkraínskra og rússneskra hermanna, sem fallið hafa vegna ofbeldis, græðgi og mannhaturs helsjúkra yfirvalda.)

p.s. Í þann mund, að þessi skrif eru send á öldur ljósvakans skýrir RÚV frá því með andköfum, að Rússar hefðu rofið lofthelgi Póllands. Vitnað var í nokkra af Dvergunum sjö og Donald Tusk, sem er ámóta stríðsbrjálaður og Dvergarnir. Rússar voru ekki inntir álits.

Það má teljast harla ólíklegt, að ögranir vaki fyrir Rússum. Hvers vegna ættu þeir að ögra grönnum sínum? En hins vegar hafa þeir drepið pólska hermenn í Kúrsk. En slys geta átt sér stað.

Óneitanlega minnir þetta atvik á atburðinn, þegar Volaði-Valdi í Úkraínu sendi flugskeyti inn í Pólland og kenndi Rússum um. Ætli Dvergarnir sjö reyni nú þegar að finna tilefni til árása á Rússland?

Pólverjar og Úkraínumenn geta ekki komið sér saman um tölur þeirra árásarflygilda, sem rufu lofthelgina. Heldur ekki, hversu mörg voru skotin niður. Pólski herinn leitar með „lys og lygte“ að leifum þeirra. Eins og vænta mátti taldi Dónaldur Tusk flest flygildi eða 19, samkvæmt NYT.

https://www.bbc.com/news/articles/c147065pzdzo https://www.nytimes.com/2025/09/10/world/europe/poland-russia-drones-ukraine-attack.html?auth=login-google1tap&login=google1tap https://marksleboda.substack.com/p/trumps-new-war?utm_source=post-email-title&publication_id=1083041&post_id=173211256&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://glenndiesen.substack.com/p/scott-ritter-nato-and-eu-will-collapse?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=172807015&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=JHXU_aMRqX4 https://www.youtube.com/watch?v=06QPFDdeadw https://www.youtube.com/watch?v=GOD-g8YUWuI https://www.youtube.com/watch?v=pJgaZLcPK2Y https://michaeltsnyder.substack.com/p/are-they-setting-the-stage-for-nato?utm_source=post-email-title&publication_id=1520363&post_id=172829642&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.dailymail.co.uk/news/article-15054555/Europe-prepares-WW3-MONTHS-France-orders-hospitals-ready-war-year-Germany-warns-alert-Putin-use-forthcoming-military-drills-ATTACK-Europe.html https://cynthiachung.substack.com/p/breaking-history-ep-35-how-natos-7b1?utm_source=post-email-title&publication_id=309240&post_id=149517418&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://michelchossudovsky.substack.com/p/peace-planet-earth-cancel-membership-nato?utm_source=post-email-title&publication_id=1910355&post_id=161614352&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=wvynCKVfMWw https://www.youtube.com/watch?v=JzHKAIWCqkQ https://korybko.substack.com/p/ukraines-romanian-moldovan-flank?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=170758762&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://savageminds.substack.com/p/nato-b69?utm_source=post-email-title&publication_id=65949&post_id=169324388&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://glenndiesen.substack.com/p/daniele-ganser-natos-dirty-wars-the?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=166709072&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://savageminds.substack.com/p/the-people-want-peace-and-progress?utm_source=post-email-title&publication_id=65949&post_id=165848106&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://sonar21.com/why-the-hell-was-nato-expanding-as-the-size-of-the-russian-military-shrank/?jetpack_skip_subscription_popup https://alexkrainer.substack.com/p/europe-is-drilling-for-world-war?utm_source=post-email-title&publication_id=1063805&post_id=162553198&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://glenndiesen.substack.com/p/the-end-of-nato?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=162512026&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2025/04/tyske-bild-hvis-ukraina-faller-er-nato-dodt/?utm_source=substack&utm_medium=email https://sonar21.com/the-road-to-war-in-ukraine-the-history-of-nato-and-us-military-exercises-with-ukraine-part-1/?jetpack_skip_subscription_popup https://sonar21.com/the-road-to-war-in-ukraine-the-history-of-nato-and-us-military-exercises-with-ukraine-part-3/ https://steigan.no/2025/09/trump-fiaskoen-3/?utm_source=rss&utm_medium=rss&utm_campaign=trump-fiaskoen-3 https://www.youtube.com/watch?v=_YZc3l3rhoY https://www.youtube.com/watch?v=YUWr7SW_7CI https://www.youtube.com/watch?v=9-it4OcGsWohttps://www.youtube.com/watch?v=9-it4OcGsWo https://glenndiesen.substack.com/p/brian-berletic-nato-panics-as-ukraine?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=173172391&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://sonar21.com/hey-george-w-bush-whats-so-damn-funny/?jetpack_skip_subscription_popup https://www.aljazeera.com/news/2025/3/3/russia-ukraine-war-whats-a-coalition-of-the-willing-europes-new-plan?utm_source=chatgpt.com https://steigan.no/2025/09/de-villige-26-marsjerer-mot-krig-norge-ma-si-nei-for-det-er-for-sent/?utm_source=rss&utm_medium=rss&utm_campaign=de-villige-26-marsjerer-mot-krig-norge-ma-si-nei-for-det-er-for-sent f


Vátíðindi frá Venesúela. Friðarforsetinn froðufellir

Allt frá upphafi sextándu aldar hafa evrópsku nýlenduveldin; Bretar, Frakkar, Hollendingar, Belgar, Þjóðverjar, Rússar, Danir og Portúgalar stundað arðrán, ofbeldi og yfirgang annan nánast um heim allan. Bandaríkin urðu svo nýlenduveldi í stríðinu við Spánverja, sem þeir hófu á Kúbu fyrir hartnær 130 árum síðan. Herfang þeirra voru Filippseyjar. Síðar „keyptu“ þeir nýlendur með manni og mús af Rússum, Mexíkönum (Spánverjum) og Frökkum.

Fyrir tveim öldum síðan lýstu Bandaríkjamenn yfir drottnun sinni í Ameríku gervallri. Forseti Bandaríkjanna, James Monroe (1758-1831), gaf 1823 út yfirlýsingu þess efnis (Monroe Doctrine). Yfirlýsingin var samin af utanríkisráðherra hans, John Quincy Adams (1767-1848), sem síðar varð meðal merkustu forseta Bandaríkjanna.

Á grundvelli téðrar yfirlýsingar hafa Bandaríkjamenn ráðið lögum og lofum, deilt og drottnað í Mið og Suður-Ameríku. Stjórnarbyltingarnar eru orðnar á fimmta tug. Þá eru ótalin allra handa afskipti af ríkjum latnesku Ameríku. Bandaríski herinn hefur rutt brautina fyrir bandarísk fyrirtæki.

Smedley Butler (1881-1940), fyrrum herforingi, sem þátt í þessu tók, hefur lýst reynslu sinni á bók. Áður en hún kom út, reyndu fasistaauðjöfrarnir í Bandaríkjunum, sem m.a. studdu Adolf Hitler (1889-1945) til valda, að ginna Smedley til að veita forystu stjórnarbyltingu í Bandaríkjunum í tíð Franklin Delano Roosevelt (1882-1945).

Enn hafa Bandaríkin ekki sleppt kverkatakinu á ríkjum suðurhluta álfunnar. Fyrir skömmu var spjótunum beint að Panama (ríki, sem Bandaríkin bjuggu í raun til). Nú er röðin aftur komin að Venesúela. Dónaldi „pabba“ Jóni er sérstaklega í nöp við stjórnendur þess lands. Á fyrra kjörtímabili vildi hann gera Juan Gido að forseta. Það tókst ekki. Í síðustu kosningum var Edmundo González att fram. Það tókst ekki heldur. Þá eru góð ráð dýr, en nærtæk.

Friðarforsetinn sagði: „Þegar ég yfirgaf [forsetaembættið], rambaði Venesúela á barmi upplausnar. Við hefðum átt að leggja landið undir oss; við hefðum átt að láta greipar sópa um olíuauðævin.“

Olíunni náðu þeir ekki, en – ásamt Bretum – tóku þeir gjaldeyrisvaraforða íbúanna traustataki eins og Rússa síðar. Og svo voru þeir náttúrulega beittir viðskiptaþvingunum eins og allir, sem ekki lúta höfði við yfirgangi Bandaríkjanna.

Bandaríkin virðast nú leggja drög að nýjum árásum á Venesúela. Uppskriftin er kunnugleg. Forsetinn, Nicolas Maduro Moros, er skrímslaður og tylliástæða til stríðs fundin.

Nikulás er nú sagður leiðtogi ímyndunarsamtaka eiturlyfjahringja (CIA er þó undanskilin), sem stofna öryggi Bandaríkjanna í hættu eins og hvað eina það, sem Friðarforsetanum dettur í hug; íbúar Chicago, Jemenar, Íranar og Rússar, svo nokkrir séu nefndir.

Það er nefnilega svo, að með yfirlýsingum um þjóðaröryggisógn getur Dónaldur „pabbi“ Jón hagað sér eins og Jörundur hundadagakonungur fyrrum, þegar hann ríkti sem einvaldur á „landinu bláa.“ En hann hefur hins vegar allan heiminn undir. Bandaríkjamenn hafa þegar sent herskip á vettvang og drepið ellefu manns í skipsskel, sem hann sagði ógn við Bandaríkin. Friðarforsetinn er í senn dómari og böðull.

Bandaríkjamenn ágirnast olíuauðæfi Venesúela eins og Írans. Í Venesúela eru líka dýrmæta góðmálma að finna. Einn hluthafa í Dónaldi „pabba“ Jóni hefur sérstakan augastað á þessum auðlindum. En kannski hann vilji barasta rækta bjúgaldin og vera góður granni.

En góðir hálsar! Nú er tækifærið til að auðgast, svo um muni. Dónaldur „pabbi“ Jón hefur lofað 50 milljónum dala hverjum þeim, sem veitir gagnlegar upplýsingar til handtöku eða morðs á Nikulási. Alkædahryðjuverkamaðurinn, sem Friðarforsetinn gerði að forseta Sýrlands, var léttvægur fundinn miðað við Nikulás; aðeins 10 milljónir.

https://americanswhotellthetruth.org/portraits/major-general-smedley-butler/ https://sonar21.com/donald-trump-authorizes-murder-and-pouts-about-china-russia-and-north-korea/ https://steigan.no/2025/09/hendene-vekk-fra-venezuela/?utm_source=rss&utm_medium=rss&utm_campaign=hendene-vekk-fra-venezuela https://21stcenturywire.com/2025/09/03/venezuela-the-tren-de-aragua-myth-vs-reality/ https://www.youtube.com/watch?v=GOD-g8YUWuI https://www.telesurenglish.net/censorship-of-venezuelan-films-reveals-fascism-at-the-malaga-film-festival/?utm_source=planisys&utm_medium=NewsletterIngles&utm_campaign=NewsletterIngles&utm_content=23 https://www.globalresearch.ca/venezuela-trump-cancels-chevron-oil-license/5881101 https://www.globalresearch.ca/pro-ukrainian-mercenaries-plotting-against-maduro-venezuela/5876980 https://steigan.no/2024/09/presidentvalget-i-venezuela-usa-og-medskyldige-til-venstre-griper-etter-halmstra/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/venezuelan-national-electoral-council/5864502 https://www.youtube.com/watch?v=q_ViMqMXGGs https://www.mintpressnews.com/venezuela-while-us-politicians-call-fraud-american-election-observers-endorse-results/288010/ https://geopoliticaleconomy.substack.com/p/us-funds-electoral-fraud-venezuela?utm_source=post-email-title&publication_id=457596&post_id=147325973&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=_x1JN-uuxww https://thegrayzone.com/2024/07/16/corporate-coup-assassination-venezuelas-maduro-boltons-plot/ https://steigan.no/2024/08/hva-skjedde-under-valget-i-venezuela/?utm_source=substack&utm_medium=email https://thegrayzone.com/2024/07/30/grayzone-pr-fiasco-us-govt-regime-change-leaked-emails/ https://matthewehret.substack.com/p/cia-coups-in-venezuela-zionist-chaos?utm_source=post-email-title&publication_id=260045&post_id=147224090&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://geopoliticaleconomy.substack.com/p/us-government-edison-poll-venezuela-fraud?utm_source=post-email-title&publication_id=457596&post_id=147144079&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/venezuela-unknown-retired-professor-leading-polls/5862857 https://www.telesurenglish.net/venezuela-repowers-itself-as-a-key-actor-in-global-energy-stability/?utm_source=planisys&utm_medium=NewsletterIngles&utm_campaign=NewsletterIngles&utm_content=5 https://mailchi.mp/mintpressnews/alan-macleod-new-lines-magazine-washington-weaponizes-media-818628?e=9fc32eb52b https://steigan.no/2023/01/opposisjonen-i-venezuela-sparket-juan-guaido-som-leder-hele-den-usa-styrte-farsen-gjort-til-latter/?utm_source=substack&utm_medium=email http://www.informationclearinghouse.info/57530.htm https://covertactionmagazine.com/2024/02/23/essequibo-means-no-escape-for-brazil-in-the-event-of-conflict-and-more-2/?mc_cid=fc1c41a9ea&mc_eid=5cd1ec03b1 https://covertactionmagazine.com/2024/02/22/bolivarian-revolution-celebrates-25th-year-anniversary/?mc_cid=fc1c41a9ea&mc_eid=5cd1ec03b1 https://libertarianinstitute.org/news/us-sends-more-warships-near-venezuela/


Samfélag hinna dofnu og sljóu sálna

Fljótum við sofandi að feigðarósi? Það er óneitanlega margt uggvænlegt að sjá, þegar litast er um í „aldingarði“ Íslands (og Vesturlanda). Það hefur t.d. ekki farið fram hjá neinum, að menntun barna – sérstaklega pilta – hrakar á Íslandi og utan landssteina einnig. Ný evrópsk rannsókn bendir t.d. til, að um 780.000 Svíar á fullorðinsaldri og 400. 000 Norðmenn séu fákunnandi um lestur og skrift.

Kennarar og skólayfirvöld virðast leggja áherslu á annars konar menntun. Viðhorf í skólastarfi endurspegla óhjákvæmileg almenn viðhorf í samfélaginu. Í því efni er af nógu að taka, en vek sérstaklega athygli á menningarbyltingunni, sem kennd er við kvenfrelsun og kynleysu, lyfja- og bólusetningarheilbrigðisþjónustu, svo og stafræna tæknibyltingu.

Flestir þekkja menningarbyltingu Maós formanns og hippabyltinguna á Vesturlöndum. Í fyrra tilvikinu var áherslan á stjórnmálalegan rétttrúnað, í því seinna á frjálsar ástir, uppreisn og fíkn. Færri hafa líklega gert sér grein fyrir því, að við erum á bólakafi í þeirri þriðju, kvenfrelsunar- og kynleysubyltingunni, þar sem karlhatur er í fyrirrúmi. Að sumu leyti má líta á þá menningarbyltingu sem framhald af hippabyltingunni. Gömlum gildum, siðvenjum og þekkingu er kastað fyrir róða með ýmis konar ofbeldi og áróðri.

Frjálsar ástir og kynlíf er nú beinlínis kennt í skólum, svo dæmi sé tekið. Þar er líka kennt, að kyn sé síbreytilegt og háð ákvörðun hvers og eins. Sama á við um þekkingu yfirleitt. Staðreyndir eru púkalegar og gagnslausar í sannleiksleitinni.

Skjábyltingin hefur alið af sér nýja fíkn og gerbreytt samskiptaháttum. Í Bandaríkjunum benda kannanir til þess, að fólk verji um tíu tímum á dag við að sýsla á netinu. Þekktir eru áhrifavaldar og kimar, sem geta haft afdrifarík áhrif á líf fólks, ekki síst barna og unglinga, sem inni í þeim lokast.

Kynskiptakiminn er einn þeirra og endurómar umræðu og baráttu kvenfrelsunar- og kynleysisbaráttumanna í þjóðlífi og skóla. Ungmenni finna þar oft og tíðum farveg fyrir óöryggi og einsemd. Þar er að finna lífsspeki og samhug, sem einnig bergmálar í heilbrigðisþjónustunni og stjórnmálum.

Kynskiptaspekin rennur þó ekki ósjaldan af fólki. Þá er verr farið en heima setið, sbr. kynskiptinginn eða karlkonuna, sem fyrir skömmu stytti sér aldur, eftir fjöldamorð í Bandaríkjunum. Hún hafði orð á því, að hún héldi í síða hárið sem hinsta tákn þess, að hún væri kynskiptingur. „Ég er svo þreytt á því að vera kynskiptingur. Ég óska þess að hafa aldrei heilaþvegið sjálfa mig,“ sagði hún.

Menningarbyltingar eru vitanlega heilaþvottur, múgsefjun. Slíkar byltingar verða vitaskuld ekki til af sjálfu sér. Hugmyndafræði, loforð eða lausnir á vanda, eru nauðsynlegur þáttur í menningarbyltingu. En byltingar, sem eitthvað kveður að, eru knúnar áfram af eiginlegum valdhöfum, leynt og/eða ljóst. Vald yfir miðlun og fjölmiðlum er augljóslega mikilvægt og nauðsynlegt.

Í menningarbyltingu, múgsefjun og áróðri er nefnilega fólgin lýðstjórnun. Það hljóta Jón og Gunna að hafa skynjað í bólusetningabyltingunni. Henni er reyndar ekki lokið. Nýjar veirur eru í smíðum.

Þegar skyggnst er að baki byltinganna er skilmerkilegast að beina sjónum að hagsmunum. Það orkar varla tvímælis, að lyfjaiðnaðurinn græddi á tá og fingri á bóluefnunum eins og öðrum lyfjum. Bólusetningaherferðin var öðrum þræði tilraun í múgsefjun, þ.e. kúska fólk til hlýðni og auðsveipni við að magna sóttarótta og kvíða.

En lyfjaiðnaðurinn á fleiri svör við ótta, kvíða og depurð. Stór hluti vestrænna þjóða er háður hinum ýmsu geðlyfjum, sem hann býður stórum og smáum upp á í boði hins opinbera og lækna. Skattgreiðendur borga brúsann. Allir þekkja væntanlega yfirgengilegar sjúkdómsgreiningar á ofvirkni og athyglisbresti hjá börnum. Færri gera sér þó grein fyrir, að geðlyf séu orðin ótrúlega algengur kostur barna, enda er hegðun þeirra stöðugt sjúkdómsgerð. Sums staðar er janvel talað fyrir skipulagðri leit að andlegum kvillum hjá skólabörnum yfirleitt.

Geðlyfjanotkun fullorðinna er beinlínis óhugnanleg. Rétt um fjórðungur Bandaríkjamanna neytir geðlyfja. Notkun þunglyndislyfja er ofur algeng. Það eru nokkur ár síðan, að þótti jaðra við læknamistök, væri slíkum lyfjum ekki ávísað, ef fólk kvartaði undan kvíða, depurð og tómleika.

Fólk útvegar sér einnig lyf handan opinberrar heilbrigðisþjónustu til að slæva þjáningar. Tæpar 48 milljónir Bandaríkjamanna svöruðu því til, að þeir hefðu neytt ólöglegra lyfja eða fíkniefna síðustu 30 daga. Könnunin er frá 2023.

Aukaverkanir þunglyndislyfja eru algengar. Það leiðir fjöldi rannsókna í ljós. En umræða um þær virðast vera feimnismál eins og aukaverkanir téðra bóluefna. Í nýlegri rannsókn frá Nýja Sjálandi segir 60% sjúklinga, að lyfin geri þá tilfinningalega dofna, 52% finnst þeir vera handan sjálfra sín og tæp 40% fundu til minni umhyggju í garð annarra. En innri ólga og tilhneigingar til ofbeldis gegn sjálfum sér og öðrum eru þó skelfilegastar.

Í Kanada er hópur sagnfræðinga, sem reynir að brjóta aflvaka menningarbyltinga til mergjar. Nýlega kom fyrir almennings sjónir fyrri hluti heimildarmyndar um hippabyltinguna og nýja tónalistarstrauma upp úr miðri síðustu öld. Myndir heitir því skuggalega nafni; „Djöfullinn í Woodstock.“ Þar er bent á þátt kvikmynda- og menningarauðjöfranna í Bandaríkjunum við að koma byltingunni á koppinn.

Það var líka um þær mundir, að auðjöfrarnir tóku upp á arma sér kvenfrelsunar- eða karlhaturshreyfinguna. Kynleysuhugmyndafræðin skaut þar síðar rótum.

Hvaða tilgangi þjónar að raska eða rústa viðteknum gildum, siðum, tilfinningum, þekkingu og hugsun og skapa umrót, óeiningu, ótta og fjandskap. Hverra hagsmuna er gætt? Líklega þeirra, sem fyrir vakir að deila og drottna.

Leyniþjónustumaðurinn sovéski, Yuri Alexandrovich Bezmenov (1939-1993), benti, árið 1984, á fjögur skeið samfélagsniðurrifs: siðrof, ójafnvægi, kreppa og nýsiðun (normalization). Hvar skyldum við vera stödd?

https://ageofmuses.substack.com/p/full-documentary-the-devil-at-woodstock?utm_source=cross-post&publication_id=440277&post_id=171760824&utm_campaign=260045&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=pzeHpf3OYQY https://steigan.no/2023/02/antipsykotika-og-verdensherredomme/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2025/08/antallet-analfabeter-oker-og-mange-havner-utenfor-arbeid-og-utdanning/?utm_source=rss&utm_medium=rss&utm_campaign=antallet-analfabeter-oker-og-mange-havner-utenfor-arbeid-og-utdanning https://steigan.no/2025/08/hvorfor-blir-det-flere-analfabeter-i-sverige-og-norge/?utm_source=rss&utm_medium=rss&utm_campaign=hvorfor-blir-det-flere-analfabeter-i-sverige-og-norge https://nypost.com/2025/07/27/us-news/americans-spend-nearly-half-their-day-online-whether-its-work-or-play-eye-opening-poll-shows/ https://www.live5news.com/2025/08/24/mom-believed-have-killed-husband-2-kids-before-killing-herself-apparent-murder-suicide-police-say/ https://drugabusestatistics.org/ https://expose-news.com/2025/08/25/we-are-medicating-our-children-to-death/?utm_medium=email&utm_source=es https://childrenshealthdefense.org/defender/psychiatric-drugs-chemical-restraints-children-mental-health/?utm_source=luminate&utm_medium=email&utm_campaign=defender&utm_id=20231219 https://civicscience.com/trend-to-watch-the-percentage-of-americans-taking-four-or-more-prescription-medications-daily-continues-to-rise/#:~:text=More%20Americans%20Are%20Taking%204,the%20least%20common%20option%20used. https://drmcfillin.substack.com/p/what-i-know-that-most-of-the-public?utm_source=post-email-title&publication_id=1656473&post_id=171192997&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://expose-news.com/2025/01/24/the-side-effects-of-anti-depressants/?jetpack_skip_subscription_popup https://drmcfillin.substack.com/p/the-brainwashing-of-america?utm_source=post-email-title&publication_id=1656473&post_id=170674608&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.oecd.org/en/about/programmes/piaac.html https://www.breitbart.com/2nd-amendment/2025/08/28/report-attacker-who-opened-fire-during-catholic-school-mass-said-he-was-tired-of-being-trans/ https://michaeltsnyder.substack.com/p/the-irrepressible-emptiness-of-modern?utm_source=post-email-title&publication_id=1520363&post_id=172220519&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


Rændu börn Rússa

Alþjóða sakamáladómstóllinn (International Criminal Court – ICC) gaf út handtökuskipun á hendur Vladimir Putin og mannréttindafulltrúa barna, Maria Lvova-Belova.

Þau eru sökuð um rán (deportation) úkraínskra barna af stríðshrjáðum svæðum í Austur-Úkraínu. Þar heitir í Donbass. Íbúar eru flestir rússneskumælandi og neituðu að samþykkja valdrán Nató 2014. Stjórnin í Kænugarði sagði þeim þá stríð á hendur. Þar hafa fallið um 14.000 manns. Rússneskumælandi íbúar Krím höfðu áður farið sömu leið.

Nató hefur nú viðurkennt, að stríð þess í Úkraínu hafi hafist 2014.

Donbassbúar sendu ákall til Rússa um hjálp. Þeir höfðu forgöngu um tvo friðarsamninga, kennda við Minsk. Þá braut Úkraína með virkri hvatningu frá Vesturveldunum, sem hugðu flátt.

Friður var saminn til að gefa Úkraínumönnum og Nató andrými til að efla her sinn. U.þ.b. mánuði eftir, að Rússar réðust inn í Úkraínu, gerðu Úkraínumenn við þá friðarsamning. Honum var líka spillt af Vesturlöndum.

Donbassbúar eins og Krímverjar áður, óskuðu eftir innlimun í Rússland. Þingið, Dúman, varð við þeirri beiðni.

Samkvæmt alþjóðalögum (Law of Armed Conflict) um vopnuð átök ber stríðsaðiljum að vernda almenna borgara og stofnanir. Það var á þeim grundvelli, að Rússar hófu björgunarstarf árið 2014.

Almennum borgurum – og börnum vitaskuld – var komið í skjól, ýmist í Rússlandi eða í Donbass, enda þótt Rússar ættu þá ekki beina aðild að stríðinu. Mörg barnanna eru munaðarlaus. Þeim er séð fyrir fæði, húsnæði og menntun. Sum þeirra eru ættleidd.

Hlutlausir, erlendir fréttamenn eins hafa ekki þá sögu að segja, sem tvær síðustu ríkisstjórnir Íslands hafa sagt. Þær fylgja réttum söguþræði áróðursmiðla Vesturlanda. Áróðurssögunni hefur verið lyft á háskólastig af skrifstofu í Yale háskóla, sem er fjármögnuð af bandarískum yfirvöldum. Sögu fréttamannanna má lesa í hjálögðum krækjum.

Fyrrverandi utanríkisráðherra Íslands segir mörlandanum nefnda áróðurssögu. Hún fer hér á eftir: (Viðtal á morgunvaktinni á rás 1 18. ágúst 2025).

Þórdís Kolbrún lýsir þeirri sannfæringu sinni að virða eigi alþjóðleg landamæri Úkraínu og styðja enn við bakið á þjóðinni við að uppræta spillingu, og berjast fyrir lýðræði, mannréttindum og frelsi. Til þess hafi þjóðin einmitt kosið Volodomyr Zelensky til valda.

Árangur úkraínska foringjans hafi skelft Vladimir Putín, „yfirlýstan stríðsglæpamanninn,“ og því hafi hann hafið „allsherjarinnrás“ í Úkraínu. En Þórdís Kolbrún telur, að en geti Úkraínumenn unnið stríðið með stuðningi Vesturlandabúa.

Vondi-Valdi á ekki að komast upp með að „taka land og terrorisera“ fólk. Það er óneitanlega „dálítið óþolandi,“ segir Þordís Kolbrún. Hann rennir hýru auga til Evrópu. Það á heldur ekki að semja við forsetann rússneska, því hann heldur ekki samninga.

Steininn tók þó úr, þegar Vondi-Valdi tók að ræna börnum Úkraínumanna. Úkraínsk yfirvöld eiga í fórum sínum – samkvæmt Þórdísi Kolbrúnu – lista yfir tugþúsundir rændra barna. Hún upplýsir enn fremur, að Yale háskóli í Bandaríkjunum sé að „trakka“ 35.000 börn.

En útlitið í þessu efni er miklu svartara segir utanríkisráðherrann fyrrverandi, því á yfirráðasvæði Rússa í Úkraínu hafi þeir stolið (allavega eru börnin týnd og tröllum gefin) 1.6 milljón barna.

Þordís Kolbrún fer ekki í grafgötur með, hver örlög þeirra séu: „… þau eru heilaþvegin, ættleidd, sögu þeirra er eytt.“ Rússar undirbúa þessi börn fyrir hermennsku og til að „ráðast á móðurlandið sitt og mögulega einhverja aðra.“

Væntanlega mun sagan geyma minningu Þordísar Kolbrúnar sem versta utanríkisráðherra í sögu þjóðarinnar, m.a. fyrir að slíta stjórnmálasambandi við Rússa.

Það gætu verið þessir heilaþvegnu hermenn, sem sitjandi utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín – sem er einlægur aðdáandi forveru sinnar - óttast að muni skulda á Frón og ræna börnum mörlandans eins og Hundtyrkir frá Alsír forðum. Þess vegna m.a. ætlar hún að kaupa okkur kafbát.

p.s. Herþjálfunarbúðir Úkraínumanna fyrir börn þykja hvorki sakarefni né fréttir.

https://www.ruv.is/utvarp/spila/morgunvaktin/23614/ave15d https://savageminds.substack.com/p/a-new-foreign-policy-for-europe?utm_source=post-email-title&publication_id=65949&post_id=171418509&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/military-training-for-young-children-at-ukraines-neo-nazi-summer-camp-recruitment-of-ukraines-child-soldiers-financed-by-us-nonlethal-military-aid/5472801 https://www.globalresearch.ca/ukraine-repression-leads-to-humanitarian-crisis-thousands-of-refugees-leaving-donbass-for-russia/5386745 https://michelchossudovsky.substack.com/p/icc-arrest-warrant-vladimir-putin?utm_source=post-email-title&publication_id=1910355&post_id=171281625&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


Næsta síða »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Sept. 2025

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband