Færsluflokkur: Bloggar
Um þessar mundir er Palestínumönnum veitt rothöggið af Tvíhöfða þursinum, Samrunaheimsveldi Ísraela og Bandaríkjamann. Loftárásir eru linnulausar eins og þegar Bretar og Bandaríkjamenn sprengdu almenning í borgum Þýskalands sundur og saman, síðar í Vietnam og Japan.
Aðferðin er þaulreynd. Engu að síður hafa hersveitir friðarforsetans, Donald John Trump, gengið úr skaftinu í stríðinu gegn öðrum fátæklingum, Jemenum. En hinn helmingur þursans hamast enn.
Hvað getur skýrt svo ógnarlega stríðsgrimmd? Varnarlaust fólk er murkað niður þúsundum saman. Engu eirt.
Dónaldur Jón og Benjamin Netanyahu eru báðir Gyðingar. Í hirð friðarforsetans eru nær eingöngu Síonistar, Kristmenn og Gyðingar ísraelskir ríkisborgarar þar með taldir. Ætli trúin gefi vísbendingar?
Trúarrit, lögbók og lífsleiðarvísir Gyðinga, er Hebreska biblían (Tanakh) eða Gamla testamentið, þ.e. Þóra (Thorah). Viðbótarhelgrit eru Talmundur (Talmud) og Kabala (cabala). Þau fela í sér útleggingar prestanna (rabbi) á Þóru og reynslu Gyðinga, studdar orði Guðs. Prestarnir segjast vera í stöðugu sambandi við hann.
Í guðspekiritinu Kabala og Gamla testamentinu liggja leiðir Gyðingdóms og kristni saman. Í nefndum helgiritum er margt áhugavert að lesa til aukins skilnings.
Því að þú ert Drottni Guði þínum helgaður lýður. Þig hefir Drottinn Guð þinn kjörið til að vera eignarlýður hans um fram allar þjóðir, sem eru á yfirborði jarðarinnar. (5. Mósebók 7:6)
Hann segir: Það er of lítið að þú sért þjónn minn til að endurreisa ættkvíslir Jakobs og leiða aftur þá sem varðveittir eru af Ísrael. Ég geri þig einnig að ljósi þjóðanna svo að hjálpræði mitt nái til endimarka jarðarinnar. (Jesaja 49:6)
Og á mánuði hverjum, tunglkomudaginn, og á viku hverri, hvíldardaginn, skal allt hold koma til þess að falla fram fyrir mér segir Drottinn. (Jesaja 66:23)
Drottinn mun verða konungur yfir allri jörðinni. Á þeim degi mun Drottinn vera einn og nafn hans eitt. (Sakaría 14:9)
Boðskapurinn fer vart milli mála. Gyðingar eru Guðs útvalda þjóð, ljós þjóðanna. Þjóðir heims skulu njóta hjálpræðis Guðs og skulu falla honum til fóta, Drottni konungi. Það vofa grimmilegar refsingar yfir hinum óhlýðnu eins og fylgismönnum Mósesar, sem dönsuðu kringum gullkálfinn í Sínæ eyðimörkinni forðum daga.
Útlegging rússnesk-bandaríska Gyðingaprestsins, Harry Waton (1871-1959), á þessum orðum er áhugaverð. Hann segir:
Gyðingdómur er í senn kommúnismi, alþjóðahyggja og alheimsbræðralag manna, frelsun verkalýðs og mannlegs samfélags. Það er með þessu andans vopni, að Gyðingar munu sigra heiminn og mannkyn. Kynþættir og þjóðir munu í fögnuði gefa sig Gyðingdómi á vald. Allir mun gerast Gyðingar.
Túlkun Gyðingsins, Kurt Munzer (1879-1944) í bókinni, Leiðinni til Síon (Der weg nach Zion) frá 1907, er einnig fróðleg:
Við höfum spillt blóði allra þjóða Evrópu við gætum hafa smitað þær. Um þessar mundir er allt gyðingvætt (Jeweified). Hugsun okkar birtist í öllu sem hrærist, andi okkar stjórnar heiminum. Við erum herraþjóðin, því allt, sem öflugt er í veröldinni, er afkvæmi anda vors.
Í þessu ljósi eru orð Benjamin Disraeli (1904-1881), sem kastaði Gyðingtrú sinni, áhugaverð. Forsætisráðherrann sagði í breska þinginu 1852 um byltinguna í Frakklandi fjórum árum áður:
Áhrifa Gyðinga gætir í tortímingarlögmálinu (destructive principle), sem leiddi af sér síðustu róstur í Evrópu. Uppreisn á sér stað gagnvart hefð og aðli, trú og eignarhaldi. Lýst er yfir sjálfgefnu jafnræði manna og afnámi eignarréttar af hálfu leynifélaga, sem setja á stofn bráðabirgðastjórnir. Leiðtogar þeirra hverju sinni eru af ætt Gyðinga.
Forsætisráðherrann benti á, að fyrir þeim vekti að eyðileggja kristnina og sagði í því sambandi:
Hæfileikaríkustu undirróðursmennirnir (manipulators) taka höndum saman við kommúnistana; hinir sérstöku og útvöldu teygja sig til úrþvætta og síðri stétta Evrópu.
Gyðingdómur virtist sem sé alltumlykjandi í Evrópu í lok átjándu aldar og í upphafi þeirrar nítjándu. Trúboðið er skýrt; Við, herraþjóðin, munum frelsa mannkyn til Gyðingdóms og stofna eitt allsherjarríki.
Gyðingurinn, James Paul Warburg (1896-1969), af einni öflugustu ætt Gyðingaauðjöfra í veröldinni, boðar:
Það mun verða stofnað til alheimsstjórnar, hvort okkur líkar betur eða verr. Spurningin er; verður hún stofnuð með samþykki eða sigurvinningi. (Rússneska gyðingabyltingin 1917 var vissulega sigurvinningur.)
Gyðingavinurinn, Vladimir Ilyich Ulyanov eða Lenin (1870-1924), sagði sigurviss:
Við munum sjá, að kommúnisma verður komið á í Rússlandi. Annað stríð mun tryggja stjórn [byltingarstjórnarinnar] yfir Evrópu og þriðja styrjöldin er nauðsynleg til að tryggja hana um gervallan heim.
Tvær heimstyrjaldir eru að baki og enn hafa Bolsévikkagyðingar ekki náð heimsyfirráðum, þ.e. stofnað konungsríki Guðs síns á jörð.
En þeir vinna ötullega að því. Stofnun Stór-Ísraels er næsti áfangi, eftir að Vesturveldin (einkum Bretar, Frakkar og Bandaríkjamenn), tóku Síonistahreyfinguna hreyfingu ofstækisfullra Gyðinga í Austur-Evrópu upp á arma sína og beittu í heimsveldisbrölti sínu. Landtökumennirnir voru einnig vopnaðir af Sovétmönnum.
Fyrir stofnun Ísraelsríkis beittu landtökumennirnir bæði yfirstjórnendur Þjóðabandalagsins, Breta, sem og Palestínumenn, vopnavaldi. Fjöldamorðin í þorpinu, Deir Yassin, níunda apríl 1948, mörkuðu ákveðin þáttaskil í innrás Síonista. Hryðjuverkasveitir þeirra frömdu morð, rán, sundurlimanir og nauðganir. Þegar morðsvallinu lauk, lágu um 120 manns í valnum.
Morðingjarnir fóru að dæmi Sáls (Saul) konungs formæðra þeirra, þegar hann eyddi erkióvinunum, Amalek-ættkvíslinni. Sál hirti allt gull og silfur eins og ritningin bauð. Það heitir reyndar herem að eyða öllu lifandi og dauðu og helga Guði gull og silfur. En Sál var veikgeðja og hlífði Agag konungi Amaleka og nokkrum skjátum. Guð afneitaði honum fyrir bragðið. (Enn segja Ísraelar Amalek hyggja flátt og sækja að þeim.)
Fjöldamorðin í Deir Yassin skelfdu Palestínumenn svo um munaði. Nær 800.000 þeirra flúðu undan morðóðum hryðjuverkasveitum Síonistanna. Það kalla Palestínumenn Nakba (hamfarirnar). Tvíhöfða þursinn fremur nú Nakba öðru sinni.
Menachem Begin (1913-1992), síðar forseti Ísraels var foringi einnar hryðjuverkasveitar Ashkenazi Síonistanna frá Austur-Evrópu, Irgun. Hann hrósaði sér beinlínis af Deir Yassin-ódæðinu:
Der Yassin var annað framlag Irgun til þess fallið að flæma Arabana úr landinu og skapa rými handa innflytjendum. Hefði Aröbum ekki verið stökkt á flótta í kjölfar Deir Yassin, hefði ríkisstjórninni ekki verið kleift að taka við tíunda hluta innflytjenda. (Úr æviminningum hans, Uppreisn (Revolt).)
Samkvæmt ísraelska sagnfræðingnum, Ilan Pappé, var þetta ódæði fyrsti áfangi í hreinsun Palestínu. Hann segir:
Fólkshreinsun Palestínu ber ekki að líta á sem mikilvæga hernaðaraðgerð, heldur var um að ræða vandlega skipulagða stefnu, sem gekk undir nafninu Plan Dalet, sem [leiðtogi Ísraela] Ben-Gurion (1886-1973), lagði blessun sína yfir í mars 1948.
David Ben-Gurion varð eins og Menachem forsætisráðherra Ísraels, sá fyrsti af þeim. Menachem hlaut síðar friðarverðlaun Nóbels.
Morðæðið leiðir hugann að öðru slíku, öldum áður, í Jeríkó (Jericho). Gyðingagyðjan, Ester (Esther), hafi dregið Persakóng, Ahaseuerus (Xerxes I) á tálar fyrir atbeina uppeldisföður síns og frelsara Gyðinga, Mordecai.
Í ástarbríma seldi konungur feðginunum í hendur sjálfdæmi um hefndir fyrir Gyðinga. Embættismaður konungs, Haman, var nefnilega sagður hafa efnt til samsæris til að útrýma Gyðingum einn af mörgum í píslarsögu Gyðinga. Biblían segir svo frá:
Æpið heróp! Drottinn hefur selt ykkur borgina í hendur. Borgin og allt sem í henni er skal helgað banni, það tilheyrir Drottni. Aðeins skækjan Rahab og allir sem eru með henni í húsinu skulu lífi halda því að hún faldi mennina sem við sendum. En forðist hið bannfærða.
Ásælist hvorki né takið neitt af því sem hefur verið helgað banni því þá leiðið þið bann yfir herbúðir Ísraels og steypið þeim í glötun. Allt silfur og gull og gripir úr eir og járni er helgað Drottni og á að fara í fjárhirslu Drottins.
Allt sem í borginni var helguðu þeir banni, karla og konur, unga og gamla, nautgripi, sauðfé og asna, allt helguðu þeir banni með sverðseggjum.
Síðan brenndu þeir borgina og allt sem í henni var. En silfur og gull og gripi úr eir og járni settu þeir í fjárhirslu húss Drottins.
Þá sór Jósúa þennan eið: Bölvaður sé hver sá frammi fyrir Drottni sem hefst handa um að endurreisa þessa borg, Jeríkó. Það skal kosta elsta son hans lífið að leggja grunn hennar og líf yngsta sonarins að setja hlið fyrir borgina. Drottinn var með Jósúa og orðstír hans barst um landið allt. (Jósúabók 6. Kafli. Biblía)
Því má svo við bæta, að Haman og synir hans voru festir upp á gálga og Esther varð drottning Persa. En enga eiga Ísraelsmenn verri fjendur í dag, en einmitt Persa (Írana). Frelsun Gyðinga frá samsæri Haman er kölluð Purim. Það þótti við hæfi að hengja Þjóðverja, sem dæmdir voru við skríparéttarhöldin í Nürnberg, einmitt á þeim degi. Þar komu Gyðingar líka eftirminnilega við sögu.
Nú er að sjá, hvort sama bölvun Guðs hvíli á Dónaldi Jóni og Bensa-barnamorðingja eins og Sál. Þeir ætla sér að endurreisa Gaza og gera þar ferðamannaparadís.
Það er mikilvægt að muna, að Gyðingar túlka ritningu sína með mismunandi hætti. Fjöldi Gyðinga mótmælir t.d. um þessar mundir ofstopa og ofbeldi trúsystra sinna í Ísrael. Það er ekki í fyrsta sinn. Fyrir um áttatíu árum síðan sagði Judah Leon Magnes (1877-1948), rektor Hebreska háskólans í Tel Aviv:
Flóttamönnum skal aldrei beita sem trompum í höndum stjórnmálamanna. Það er hörmulegt, jafnvel ótrúlegt, að í kjölfar þjáninga Gyðinga í Evrópu, skuli Aröbum skapaður vergangsvandi í Landinu Helga.
Sannleikurinn mun koma í ljós, þegar allt kemur til alls: Við höfum í grundvallaratriðum engan rétt til að koma í veg fyrir, að Arabar snúi heim til landa sinna Hverju ætti Sameiningarflokkurinn [Ihud vildi sameina Gyðinga og Araba í einu ríki í Palestínu] að stefna að? Umbreyta eldfimu (perennial) púðurtunnunni (sem er Ísraelsríki, samkvæmt Pinhas Lavon, ráðherra [(1904-1976) fæddur í Galisíu, varnarmálaráðherra Ísraels] í friðsamlega vistarveru?
Hvaða vopnum á Sameiningarflokkurinn að beita? Vopnum sannleikans? Við höfðum engan rétt til að taka herfangi hús Araba, án þess að borga fyrir þau fyrst; og það sama gildir um trjálundi og tún, verslanir og verksmiðjur.
Við höfðum alls engan rétt til að láta Síonisma (heimlandshyggjuna) rætast á annarra kostnað. Þetta er rán; þetta er glæpastarfsemi
Öðru sinni teljum við okkur meðal hinna afar ríku þjóða, en þrátt fyrir það finnum við ekki til skammar við að ræna eigum landbúnaðarverkamannanna (fellaheen).
Látum breska blaðamanninn og sagnfræðinginn, Douglas Reed (1895-1976), fá síðasta orðið:
hið nýja ríki, sem sett var á fót í Palestínu 1948 var aldrei og verður aldrei ríki í nokkurri þekktri merkingu hugtaksins úr skráðri sögu. Það var útvörður heimshreyfingar með sérstakt aðgengi að sérhverri ríkisstjórn, þingi og utanríkisráðuneyti Vesturveldanna (einkum að ríkisstjórn, þingi og utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna, sem á sjötta áratugi síðustu aldar var öflugasta ríki jarðar).
Megintilgangur þess var að hafa taumhald á bandaríska lýðveldinu, en ekki að skapa Gyðingum heimsins heimili.
Þessi tilhögun mála var til þess fallin að auka íhlutun Bandaríkjanna í eldfimar aðstæður í Levantíu (Miðausturlöndum), gerviaðstæður, þrungnar hættunni á heimsstyrjöld.
Þessi orð skrifaði Douglas í bók sinni, Deilurnar um Síon (The Controversy of Zion), 1956. Bókin kom þó ekki fyrir almennings sjónir, fyrr en árið 1978. Þöggun og útskúfun er ekki nýlunda. Fleiri hafa komist að þessari niðurstöðu. T.d. bandaríski stjórnmálafræðingurinn, John Maersheimer.
https://www.aljazeera.com/news/2023/4/9/the-deir-yassin-massacre-why-it-still-matters-75-years-later https://www.haaretz.com/israel-news/2017-07-16/ty-article-magazine/testimonies-from-the-censored-massacre-at-deir-yassin/0000017f-e364-d38f-a57f-e77689930000
Svona skrifar valdamesti maður heims, Donald John Trump:
Aðvörun: Stöðva verður öll viðskipti með olíu og olíuafurðir frá Íran. Þeim verður að hætta nú þegar. Sérhver þjóð eða einstaklingar, sem festa kaup á svo miklu sem olíudreitli (any amount) eða afurðum frá Íran, munu mega þola viðbótar viðskiptaþvinganir (seconday). Hlutaðeigandi mun ekki fá leyfi til að eiga viðskipti við Bandaríkin í nokkru tilliti.
Ætli forsetinn bíði eftir því, að fleiri þjóðarleiðtogar biðji um að sleikja á honum rassinn (kiss my ass)? Annar afburðamaður í ræðu og riti, mannvitsbrekkan Peter Hegseth skrifar:
Skilaboð til Írans: Við gefum banvænum stuðningi ykkar við Húta [Ansar Allah] gaum. Okkur er fullkunnugt um, hvað fyrir ykkur vakir. Ykkur ætti að vera ljóst til hvers Bandaríkin eru megnug. Þið hafið verið varaðir við. Þið verðið að þola afleiðingarnar, þegar og þar sem þið viljið.
Hér mælir Þjóðaröryggisráðgjafi mesta stríðsveldis allra tíma (á leið til annarra verkefna). (Kannski hann gerist þroskaþjálfi í Hvíta húsinu?)
Er það nema von, að heimurinn sé á heljarþröm? Bandaríkjamenn fóru enn á ný í stríð við eina fátækustu en hugprúðustu þjóð veraldar. Hún er svo óforskömmuð að reyna að hindra djöfulskap Tvíhöfða þursins í Palestínu. Í þessari umferð hafa Bandaríkjamenn látið öflugum sprengjum rigna yfir Jemena, eitt þúsund skotmörk, hvorki meira né minna.
Friðarforsetinn hefur drepið almenna borgara hundruðum saman eins og Ísraelar í Gaza, Líbanon og Sýrlandi. Flugvélar þeirra detta líka af himni ofan. Sérstaklega rándýr njósnaflygildi (MQ-9 Reaper drone), líklega sjö að tölu, að andvirði 245 milljóna dala.
Flugskeyti Jemena hrella og skemma hinn ósigrandi flota Bandaríkjamanna, engu að síður. Árásarflugvél datt fyrir borð á einu flugvélamóðurskipanna. Þar fóru 70 milljónir til viðbótar. Hernaðarlega láta Jemenar engan bilbug á sér finna.
Dónaldur Jón reynir í sífellu að sverja af sér stríðið í Úkraínu, enda þótt hann ætti að axla sína ábyrgð. Í stjórnartíð hans var lögð gjörv hönd á þjálfun og útbúnað eins öflugasta (Nató)hers Evrópu.
Forsetinn segist vilja frið í Úkraínu. Það bólar ekkert á friðinum enn þá. Jafnvel þótt Evrópumenn Íslendingar meðtaldir séu honum andvígir, dygði að hætta austri fjármagns og vopna til landsins og hætta njósnum í þágu brjálæðinganna í Kænugarði.
Hirð forsetans gælir enn við þá firru, að Rússar muni hörfa og hrynja. Markmið þeirra hafa verið ljós í þrjú ár eða svo og stefna þeirra í öryggismálum í aldarfjórðung.
Jafnvel þótt John Neely Kennedy hafi hótað að mauka fiskafóður úr Rússum, ætti heilvita fólki að vera ljóst, að Rússar hafi unnið stríðið við Nató í Úkraínu. Nú hóta Nató ríkin hins vegar framhaldsstríði. Rússar búa sig undir það eins og Íranar við stríðið gegn Tvíhöfða þursinum, Íslendingar kaupa kafbát og ætla sér að styrkja Víkingasveitina.
Er það ekki með ólíkindum, að sú eina þjóð í veröldinni, sem beitt hefur kjarnorkuvopnum, og samþykkir kjarnorkuvopnaeign Ísraela, skuli ætla í stríð um hugarfóstur sitt, kjarnorkuvopna Írana. Tja! Þeir fóru líka í stríð þarna í grenndinni til að eyða gereyðingarvopnum, sem heldur ekki voru. Sams konar erindi átti Nató í Líbíu. Átyllan er orðin eilítið þvæld.
Hvaðan kemur Bandaríkjamönnum og Nató annars rétturinn til að angra fólk í þessum heimshluta? Frá Drottni? Ætli þeir séu enn á kommaveiðum? Hroki Dónaldar Jóns er skelfilegur, rétt eins og hroki Bensa-barnamorðingja.
Tvíhöfða þursinn eða Samrunaheimsveldið hefur varpað 100.000 sprengjum á Gaza. En líklega vara þeir sig ekki á því, að mengað ryk af sprengjum, byggingum og lífvana kroppum, gæti orðið þeim sjálfum skeinuhætt?
Tvíhöfða þursinn sækir réttlætingu fyrir morðum, hernámi, og öðru ofbeldi, í ritninguna eins og á árum áður.
Fyrsti forseti Ísraels, rússneski Ofstækissíonistinn, Chaim Weissmann (1874-1952), lýsti því einu sinni sem oftar yfir við friðarsamningana i kjölfar fyrri heimstyrjaldarinnar, að í Bíblíunni væru fyrirmæli Síonista/Gyðinga að finna.
Í fimmtu bók Mósesar (Deuteronomy), er t.d. í ýmsum úrskurðum og lagagreinum kveðið á um rétt Gyðinga (eða ættkvíslar Levíta) til að eyða að fullu og öllu, uppræta og kúga annað fólk. Ein tilskipananna hljómar svo:
Þegar Jehóva Guð þinn leiðir þig inn í landið sem þú ert að fara til að taka til eignar, og rekur margar þjóðir burt undan þér Hetíta, Gírgasíta, Amoríta, Kanverja, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta, sjö þjóðir sem eru stærri og öflugri en þú og Jehóva Guð þinn gefur þær þér og þú sigrar þær, þá skaltu helga þær eyðingu. Þú skalt ekki gera sáttmála við þær né sýna þeim miskunn.
Þú skalt ekki mægjast með þeim. Þú skalt ekki gefa syni þínum dætur þeirra og ekki taka dætur þeirra fyrir syni þína. Því að þær myndu leiða syni þína frá því að fylgja mér og þeir myndu dýrka aðra guði. Þá myndi reiði Jehóva kvikna gegn ykkur og hann myndi fljótt eyða ykkur.
Þannig skuluð þið fara með þær: Þið skuluð rífa niður altari þeirra, brjóta niður stólpa þeirra, höggva niður helga stólpa þeirra og brenna skurðgoð þeirra í eldi. Því að þú ert heilög þjóð Jehóva Guðs þíns. Jehóva Guð þinn hefur valið þig til að vera sérstök eign hans meðal allra þjóða á jörðunni.
Og slíkur gjörningur er Guði þóknanalegur:
Þú munt vera blessaður umfram allar þjóðir. Enginn karl eða kona meðal ykkar eða meðal búfjár ykkar verður ófrjór. Jehóva mun halda frá þér öllum sjúkdómum og ekki láta neina af þeim hræðilegu plágum, sem þú þekktir frá Egyptalandi, koma yfir þig. Hann mun láta þær koma yfir alla sem hata þig.
Þú skalt eyða öllum þjóðum sem Jehóva Guð þinn gefur þér. Þú skalt ekki sýna þeim miskunn og ekki dýrka guði þeirra, því að það yrði þér til gildru. Ef þú hugsar með sjálfum þér: 'Þessar þjóðir eru fleiri en við. Hvernig getum við rekið þær burt?' þá skaltu ekki óttast þær.
Mundu hvað Jehóva Guð þinn gerði við faraó og alla Egypta. Þú sást með eigin augum þær miklu refsingar, tákn og undur, sterka hönd og útréttan arm sem Jehóva Guð þinn notaði til að leiða þig út. Þannig mun Jehóva Guð þinn gera við allar þjóðir sem þú óttast.
Jehóva Guð þinn mun senda hornetinn [geitungur, vespa] meðal þeirra þar til þeir sem eftir eru og fela sig fyrir þér verða útrýmdir. Þú skalt ekki skelfast vegna þeirra, því að Jehóva Guð þinn, hinn mikli og ógurlegi Guð, er með þér.
Jehóva Guð þinn mun reka þessar þjóðir burt undan þér smám saman. Þú munt ekki geta eytt þeim öllum í einu, því að þá myndu villidýr fjölga sér gegn þér. En Jehóva Guð þinn mun gefa þær þér og valda mikilli ringulreið meðal þeirra þar til þær eru útrýmdar. Hann mun gefa konunga þeirra í hendur þér og þú munt eyða nöfnum þeirra undir himninum. Enginn mun geta staðist gegn þér þar til þú hefur útrýmt þeim. (Nýja Biblíuþýðingin.)
Tja! Það er eins gott að dansa ekki kringum gullkálfinn eins og nokkrir fylgismanna Mósesar reyndu í Sínæ eyðimörkinni, enda hafa Öfga- og ofstopagyðingar lifað samkvæmt þessu lögmáli um aldir og það er enn í heiðri haft, sbr. útrýmingu Palestínumanna.
Svoleiðis fólk í bland við kristna trúarbrjálæðinga, sem vilja heiminn feigan til að auðvelda endurkomu Krists, skipar hirðina í kringum Dónald Jón. Hluthafarnir í honum eru flestir af þessu sauðahúsi. Sumir embættis- og stjórnmálamanna í hirðinni eru ísraelskir ríkisborgarar.
Ég ætla rétt að vona, að Guð langömmu minnar, muni reyna að leiða þessa stríðsvarga til ljóssins og hræra kærleik í brjósti þeirra. Því þeir eru ekki einasta harðbrjósta. Þeir eru andlega rammvilltir og hugsjúkir í trú sinni, orði og æði.
Enn kemur annar keisari, Neró, og önnur amma í hug mér. Bæði spiluðu og sungu, meðan húsið brann. Bandaríkin (og Evrópa) raunar líka eru að fuðra upp eins og bandaríski dalurinn, hluta- og skuldabréfamarkaðurinn.
Þjóðir veraldar sjá líklega ekki lengur hag sinn í því að greiða niður efnahagsofbeldi Bandaríkjanna. Og heldur ekki stríðsofbeldið; 348 vopnaátök á 153 vígvöllum frá lokum annarrar heimstyrjaldarinnar. Til viðbótar koma stríðin í Afganistan og Írak, svo í Úkraínu, Palestínu og bráðum í Íran. Kínverjar eru líka á dagskrá.
Bandaríski rithöfundurinn, Eugene Luther Gore Vidal (1925-2012), sagði um þjóð sína 1995: Við þjáumst þrálátlega sem Bandaríki gleymskunnar. Við getum ekkert lært, því við erum minnislaus. Það eru orð að sönnu.
https://www.youtube.com/watch?v=L6TdD3bdb-o&t=295s https://alexkrainer.substack.com/p/is-trump-actually-taking-on-the-bankers?utm_source=post-email-title&publication_id=1063805&post_id=161977213&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://alexkrainer.substack.com/p/gods-of-finance-and-gods-of-war?r=cpxww https://voicefromrussia.ch/en/the-end-of-illusion/ https://glenndiesen.substack.com/p/criminalizing-speech-to-protect-israel?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=162240559&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.geopoliticaleconomy.report/p/us-military-war-china-silicon-valley?utm_source=post-email-title&publication_id=457596&post_id=162333493&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2025/04/i-ungarn-forutser-emmanuel-todd-usas-hoyst-forutsigbare-undergang/?utm_source=substack&utm_medium=email https://canadianpatriot.org/2021/06/15/financial-blowout-ahead-lobotomized-economists-clash-on-the-deck-of-the-titanic/ https://www.youtube.com/watch?v=z9puRcRbUz4 https://glenndiesen.substack.com/p/washingtons-rivalries-coups-wars?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=162310420&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://responsiblestatecraft.org/f-18-truman-yemen/?ct=t(RSS_EMAIL_CAMPAIGN)&mc_cid=7d78ab04fd&mc_eid=ae33554485 https://sonar21.com/donald-trump-not-barack-obama-is-responsible-for-ukraines-dramatic-military-expansion-between-2011-and-2021/ https://www.geopoliticaleconomy.report/p/donald-trump-us-dollar-system-desai-hudson-dunford?utm_source=post-email-title&publication_id=457596&post_id=162387393&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.voltairenet.org/article222165.html https://steigan.no/2025/04/formueskapitalen-i-usa-krakelerer/?utm_source=substack&utm_medium=email https://imetatronink.substack.com/p/evasive-maneuvers?utm_source=post-email-title&publication_id=1085164&post_id=162499370&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://glenndiesen.substack.com/p/the-economic-collapse-has-already?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=162511885&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=teyFkwi3n3U https://www.youtube.com/watch?v=Gls4MdbFNfk&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=10&t=141s https://chrishedges.substack.com/p/the-west-serves-as-israels-police?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=162578625&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://sonar21.com/us-is-flummoxed-by-yemen/ https://michaeltsnyder.substack.com/p/we-are-much-closer-to-a-major-war?utm_source=post-email-title&publication_id=1520363&post_id=162644858&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.thomasfazi.com/p/jeffrey-sachs-close-the-us-military?img=https%3A%2F%2Fsubstack-post-media.s3.amazonaws.com%2Fpublic%2Fimages%2F97cd8073-d595-4d2c-a419-52269f7442b0_640x644.webp&open=false https://steigan.no/2025/04/trumps-nedtur/?utm_source=substack&utm_medium=email
Bandaríski sjúkrasálfræðingurinn (clinical psychologist), Roger Mcfillin, skrifaði áhugaverða grein með ofangreindum titli (How Your Family Doc Became a Vaccine & Drug Enforcement Agent) um þróun, sem ég þekki alltof vel og á í raun við um alla heilbrigðisþjónustu.
Í hnotskurn (með ofurlitlum spuna frá sjálfum mér): Einu sinni var til fjölskyldu- eða heimilislæknir. Þegar fólk átti bágt, kom hann á vettvang og reyndi að lækna. Það fólst að sönnu mikil lækning í heimsókn og nálgun. Oft og tíðum hafði læknirinn sinnt sömu fjölskyldu í áratugi. Hann var einskis þræll og beitti lækningum samkvæmt reynslu kynslóðanna og hugsanlegum lækninganýjungum, sem reynst höfðu vel. Hann átti sína stofu, óháður öðrum um rekstur.
Svo kom lækningaiðnaðurinn til skjalanna. Gróðasjónarmið voru sett í fyrirrúm. Umsvif Rockefeller ættarinnar eru býsna lýsandi. Ættfaðirinn var svikull skottulæknir, sem seldi ólyfjan til þjáðra og auðtrúa. Það sama gerðu afkomendurnir, sem höfðu olíu að gróðalind. Vísindalegri læknisfræði var umbylt eins og menntun lækna. Menntastofnunum var komið á fót eða þær keyptar.
Samtímis reri iðnaðurinn, auðkýfingarnir, að því öllum árum að láta stjórnmála- og fagmenn sína semja og samþykkja heilbrigðislöggjöf, sem lögðu lækna í læðing. Heilbrigðishernaðurinn elfdist því stöðugt. Þaggað var niður í andmælendum þá eins og nú.
Það má til fróðleiks bæta því við, að svipuð þróun átti sér stað á öðrum fræðasviðum. T.d. réði Rockefeller-ættin sagnfræðinga til að skrifa réttu heimssöguna.
Auglýsingahernaður varð umsvifamikill og borið var fé á lækna og samtök þeirra, bæði vísindamenn og starfandi lækna. (Þessari aðgerð hefur í grundvallaratriðum líka verið beitt í herferðum gegn körlum (kvenfrelsunar- og ofbeldisiðnaðurinn) og gegn friði.) Jafnframt voru búin til alls konar greiningargögn við átakanlegt vísindafúsk.
Læknar (sjúkrasálfræðingar, heilbrigðisstarfsmenn) voru heilaþvegnir í þessum anda. Sjúkdómum fjölgaði stöðugt og viðskiptavinum heilbrigðiskerfisins sömuleiðis. Skjólstæðingar urðu að sjúklingum. Þá skyldi lækna með lyfjum. Annað var talið lýsa vondri fagmennsku. Landlæknir og lyfjaeftirlitið urðu vökular löggur lyfjaiðnaðarins. Villutrúarmenn voru tuktaðir til.
Barnalæknir nokkur lýsti þessu vel: Ef ég legg ekki greiningarlista fyrir dapurt barn (PHQ-9A) fæ ég skömm í hattinn. Gefi ég honum ekki þunglyndislyf við ákveðin viðmiðunarmörk (cut off point), er ég í vondum málum, jafnvel þótt vitað sé, að lyfin geti stuðlað að sjálfsvígi.
Hann sagði: Ef eitthvað kæmi fyrir unglinginn og í ljós kæmi, að ég hefði ekki fylgt verklýsingu hefði ég ekki boðið lyfin gæti ábyrgð verið lýst á hendur mér. Hendur mínar eru fjötraðar. (Það er til fjöldi slíkra greiningarlista, sem heilbrigðisstarfsmenn beita við vísindalega heilbrigðisþjónustu, m.a. við greiningu depurðar og ofvirkni. Íslenski ofvirknilistinn er skemmtilega skondinn, staðlaður samkvæmt svörum nokkurra tuga mæðra og kvenkyns leikskólakennara.)
Lyfjaát hefur sífellt vaxið. Samhliða stöðugri aukningu lyfjagjafar og þjónustu við dapra drengi, svo dæmi sé tekið, eykst sjálfsvígstíðnin, ofbeldið og fíkniefnaneyslan. Svo er beðið um meira af því sama. Þegar blóð var tekið úr George Washington í því skyni að lækna karl, hrakaði heilsu hans heldur. Þá var tekið meira blóð úr forsetanum. Hann dó að lokum Drottni sínum úr blóðleysi.
Hræðsluáróðri er óspart beitt, þegar sannfæra á foreldra og börn um gildi bóluefna og lyfja. Ef þú tekur ekki pilluna verður þú þunglyndur og gætir dáið. Ef þú þiggur ekki bóluefnasprautuna gætir þú orðið fórnarlamb drápsveiru.
Höfundur segir: Flestir [læknanna] hafa ekki vogað sér að skyggnast handan við starfsmenntunarnámskeið lyfjaiðnaðarins og fjölmiðlatilkynningar, eftir að þeir útskrifuðust úr læknaskólanum. Tímaritsgreinarnar, sem safna ryki í bókasafni hugans, fela í sér markaðssetningu í gervi vísinda. [Þar eru] af yfirlögðu ráði tíndar til niðurstöður, sem gætu stuðlað að aukinni sölu [lyfja, bóluefna]. Óþægilegar niðurstöður hverfa [hins vegar] eins og dögg fyrir sólu við tölfræðilega töfra (sleight-of-hand).
Sérfræðikunnátta [læknisins] eru uppsölur upplýsinga frá síðasta lyfjakynningarfundi, þar sem boðið var upp á hádegisverð. (Þessi sölustarfsemi getur tekið á sig miklu glæsilegri myndir eins og t.d. boð á lyfjaráðstefnur yfir hálfan heiminn.)
Breski læknirinn, Vernon Coleman, sagði viturlega eitthvað á þessa leið: Það gæti verið ráð að biðja um eins og þrjár óháðir rannsóknir og útskýringar á aukaverkunum, áður en þú þiggur lyf eða bóluefni þrátt fyrir ríkjandi heilbrigðisvísindakreppu.
https://drmcfillin.substack.com/p/how-your-family-doc-became-a-vaccine
Hershöfðinginn horski, Douglas Macgregor, komst svo að orði, að þegar menn réðu trúða til starfa, eignuðust þeir hringleikahús. Það á svo sannarlega við um erkitrúðinn, Donald John Trump, sem heldur veröldinni agndofa á hverjum degi. Sýningin í Hvíta húsinu er ævintýri líkust.
Það er eins með Dónald Jón og veðurguðinn á Íslandi. Enginn veit, hvaðan á sig stendur veðrið. Dónaldur Jón hefur ráðist til atlögu við allt og alla. Honum verður seint fullþakkað fyrir baráttuna gegn kven- og kynfrelsurum og frekari uppljóstranir um undirróðursstarf Bandaríkjamann um viða veröld. Sama má segja um friðarviðleitni hans í Úkraínu, enda þótt yfirlýst markmið sé að fara með ófriði í Vestur-Asíu og Kína í staðinn.
Dónaldur Jón hefur eins og kunnugt er skilgreint Kínverja sem helstu fjanda Bandaríkjamanna. En hann hefur vissulega líka horn í síðu Evrópusambandsins og Nató. Hvort tveggja stofnuðu Bandaríkjamenn á sínum tíma til að halda Evrópu í greip sinni.
Verum minnug orða fyrrum fjármálaráðherra Bandaríkjanna m.m., James Addison Baker III (f. 1930) í samtali við Mikhail Gorbachev (1931-2022) 9. febrúar 1990:
Nató var stofnað til þess að tryggja viðveru Bandaríkjanna í Evrópu. Ef Nató hverfur af sjónarsviðinu gufar sú trygging upp. Við höfum skilning á því, að það sé ekki einungis þýðingarmikið fyrir Ráðstjórnarríkin [Rússa] heldur einnig önnur ríki Evrópu, að verði Bandaríkin áfram í Þýskalandi innan vébanda Nató, muni hernaðarleg lögsaga þess ekki færast einn þumlung í austurátt.
Leyniher Nató (Gladio) var (er) beitt til að skapa stöðugan ótta við kommúnista, sem vildu ganga milli bols og höfuðs á Vesturlandabúum. Mannránum og hryðjuverkum var beitt í þessu skyni og kosningum hagrætt.
Grundvallaráætlanir í þá veru að umkringja Rússa og Kínverja og stugga þeim í sundur, eru komnar til ára sinna. Bandaríkjamönnum/Vesturlandabúum hafði hér um bil lánast að lima Ráðstjórnarríkin í sundur, þegar Vondi-Valdi kom til sögunnar eins og skrattinn úr sauðarleggnum og eyðilagði þær áætlanir.
En bandarískt og alþjóðlegt auðvald, sem á vestræn stjórnvöld að miklu leyti, lætur ekki deigan síga. Úkraínuáætlunin, þ.e. að egna upp snöru fyrir Rússa þar eins og í Afganistan forðum daga, var gagngert gerð til þess að koma Rússum á hné og þar með sá óeiningu milli þeirra og bandamannanna í Kína og Íran. En það hefur mistekist hrapallega.
Dónaldur Jón virðist gera sér grein fyrir því, að stríðið í Úkraínu sé tapað og vill losna undan okinu. En tilburðir í þá átt eru í senn mótsagnakenndir og klaufalegir. Forsetinn segist vilja spara peninga, en sést yfir það augljósa; draga heri sína til baka úr öllum heimshornum og hætta sífelldum stríðum. En það leyfa vopnaframleiðendur og Síonistar líklega ekki.
Samningar millum Rússa og Bandaríkjamanna virðast fyrst og fremst snúast um að tryggja eðlileg stjórnmálatengsl og endurheimt eigna Rússa í Bandaríkjunum, sem Bandaríkjamenn stálu til að refsa þeim fyrir kosningasvindlið, sem aldrei var. Sama á við um gjaldeyrisvaraforða Rússa, sem Bandaríkja- og Evrópumenn stálu.
Vopnaframleiðendum og Síonistum í Tvíhöfðaríkinu (Ísrael og Bandaríkjunum) hugnast friður illa og þeim dugar hvergi nærri dráp á Jemenum, Palestínumönnum, Sýrlendingum og Gazabúum.
Innrás í Íran er því næst á dagskrá. Yfirskinið er að koma í veg fyrir framleiðslu Írana á kjarnorkuvopnum, enda þótt það sé margsinnis sannreynt, að slík framleiðsla sé ekki á dagskrá. Æðstiprestur Írana hefur gefið út heilaga tilskipun (fatwa) eða bann þar um.
En Dónaldi Jóni er þó sléttsama um kjarnorkuvopn Ísraelsmanna, sem þeir smíðuðu með aðstoð Bandaríkjamanna og Frakka. Að vísu var líka um þekkingarstuld að ræða.
Viðskiptastríð við gjörvallan heiminn magnast. Dónaldur Jón sakar allar þjóðir veraldar um að vera vondar við Bandaríkin, hlunnfara þau og stela af þeim. Öðru vísi mér áður brá. Það telur Dónaldur Jón vera skýringuna á sjálfsprottinni afiðnvæðingu auðjöfranna við útvistun framleiðslunnar, samtímis hömlulausri eyðslu - ekki síst til hermála og styrjalda.
Kínverjar eru mestu skúrkarnir eins og vænta mátti og verðskulda því hæstu tollana. En Kínverjar svara fullum hálsi og í sömu mynt. Það munu þeir einnig gera, þegar Bandaríkin ráðast gegn þeim jafnvel þegar Vingullinn leggur til atlögu við bandamenn þeirra, Írana.
Það segir mikilvæga sögu, að nú hríðfellur dalurinn, eitt helsta viðskiptastríðstæki Bandaríkjamanna, en rúblan stígur. Um leið eflast BRICS+ ríkin og finna leiðir til að gefa viðskiptaofbeldi Bandaríkjamanna langt nef.
En Dónaldur Jón er kokhraustur: Ég segi ykkur, að þessi ríki [sem beitt eru ofurtollum] sleikja (kiss) á mér afturendann. Já, það gera þau. Þau emja á samninga. Vertu svo góður, herra minn, gjörðu svo vel að semja. Ég fórna öllu til, fórna öllu til. Hér er þroska og andlegu atgervi forsetans rétt lýst.
Það hefur ekki runnið upp fyrir trúðahirðinni í Washington, að þorri manna sé að snúast gegn þeim eins og morðingjunum í Ísrael fyrir dráp og önnur illvirki.
Nú eru bandarískir sakamenn meira að segja orðnir útflutningsvara og það jaðrar við fangelsi eða brottrekstur úr háskólum, taki menn ekki undir stríðsboðskap tvíhöfða þursins. Andófsmönnum er jafnvel ekki hleypt inn í landið, bregði þeir sér af bæ. Öðru máli gegnir um ísraelska undirróðursmenn.
Sagan ber órækan vitnisburð um, að ísraelsk-bandaríski þursinn sé ósamningshæfur. Aukin heldur gliðnar jörðin undan honum eins og Grindvíkingum. Í báðum herbúðum hans er greinilegur klofningur og óeining. Barnamorðinginn í Tel Aviv er að niðurlotum kominn.
Vingulshætti Dónaldar Jóns er viðbrugðið. Sumir spekingar eins og hinn grandvari Gilbert Doctorow, hafa talið, að í vingulshættinum fælist ógnarleg stjórnsnilld. En jafnvel hann biður nú til æðri máttarvalda um, að forsetinn haldi kjafti í eins og eina viku.
En það gæti runnið upp fyrir honum og fleirum, að forsetinn sé i raun berrassaður eins og keisarinn í nýju fötunum, andlega lasin tuskubrúða hóps milljarðamæringa í djúpríkinu, einkum þeirra, sem vilja veröldina feiga til að greiða fyrir endurkomu Krists.
Svo virðist sem Dónaldur Jón sé að ganga af síðustu leifum lýðræðis í Bandaríkjunum dauðum. Hann stjórnar með tilskipunum samkvæmt neyðarlögum. Hann vegur þungt að andstæðingum milljarðamæringanna í djúpríkinu, skapar réttaróvissu, ringulreið og fátækt.
Á hinum vígstöðvum Þursaríkisins í Ísrael sýna kannanir, að drjúgur helmingur þjóðarinnar búist við borgarastyrjöld. Mér er ekki örgrannt um, að staðan sé svipuð í Villta-Vestrinu.
Viðskiptastríð Dónaldar Jóns er tapað eins og öll hin stríðin gegn þjóðum veraldar, sama hvort þau hafa verið háð með vopnum, ógnum, viðskiptaþvingunum eða tollum. Þau auka almenningi í Bandaríkjunum vesöld, meðan auðjöfrarnir fitna eins og púkar á fjósbita. En því miður hefur bandarískum yfirvöldum tekist að draga Evrópu niður í svaðið með stríðóða og óhæfa forystu.
Andi John Fitzgerald Kennedy (1917-1963) er burtu blásinn. Í hinni frægu friðarræðu sinni við Ameríska háskólann í Washington 10. Júní 1963, sagði hann:
Og við verðum að horfast í augu við þá staðreynd, að Bandaríkjamenn séu hvorki alvitrir né almáttugir. Við erum [einungis] 6% [nú um 4.5%] jarðarbúa og höfum ekki rétt til að þvinga vilja okkar yfir 94% þeirra. Við erum þess ekki umkomnir að gera betrumbætur og leiða til betri vegar hvað eina það, sem úrskeiðis fer, og því finnst ekki bandarísk lausn við vanda hverjum.
Þessu hefur fólk því miður gleymt. Orðið, friður, er orðið skammaryrði og illskan er alls ráðandi. Þeim mun heldur óska ég gleðilegra páska og góðra stunda.
https://www.youtube.com/watch?v=xarj7O-VvNE&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=4 https://glenndiesen.substack.com/p/pax-americana-is-over?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=161722550&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=L5Z7LukIL78&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=1 https://steigan.no/2025/04/aipac-lederen-skryter-av-spesiell-tilgang-til-trumps-sikkerhetssjefer/?utm_source=substack&utm_medium=email https://marksleboda.substack.com/p/smashing-globalization?utm_source=post-email-title&publication_id=1083041&post_id=160972072&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://nypost.com/2025/04/09/us-news/trump-brags-countries-are-calling-us-up-kissing-my-ass-over-tariffs/ https://www.globalresearch.ca/tariff-war-first-step-slave-society/5883995 https://www.geopoliticaleconomy.report/p/trump-advisor-miran-tariff-pay-us-empire?utm_source=post-email-title&publication_id=457596&post_id=161016879&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://michaeltsnyder.substack.com/p/33-shocking-facts-that-prove-that?utm_source=post-email-title&publication_id=1520363&post_id=161061439&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://sonar21.com/who-knew-xi-jinping-is-a-tom-petty-fan/ https://21stcenturywire.com/2025/04/11/ukc-news-trump-tariff-wars-uk-vs-iran-zelenskys-conscription-goes-orbital/ https://michelchossudovsky.substack.com/p/america-war-against-china?utm_source=post-email-title&publication_id=1910355&post_id=161015262&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/another-week-twilight-zone-one-day-all-victims/5884141 https://www.youtube.com/watch?v=i1zs1D9G6IM https://www.youtube.com/watch?v=4LcjHxKHNfs&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=3 https://www.globalresearch.ca/anglo-american-zionist-empire-source-world-crisis/5877240 https://rumble.com/v6s2q1t-crosstalk-bullhorns-talks-more-talks.html https://www.geopoliticaleconomy.report/p/michael-hudson-robber-barons-trump-tariffs?utm_source=post-email-title&publication_id=457596&post_id=161307654&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=hxulHK2iPhM&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=1 https://www.youtube.com/watch?v=8FmrMp0-W98&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=5 https://www.thomasfazi.com/p/war-by-other-means-trumps-tariffs?utm_source=post-email-title&publication_id=560592&post_id=161365377&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://sonar21.com/i-am-dead-serious-about-being-dead-serious-seriously/ https://www.voltairenet.org/article222083.html https://steigan.no/2025/04/hvordan-usaid-blir-brukt-til-a-forme-det-globale-juridiske-systemet-i-usas-bilde/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/video-china-cuts-off-boeing-crippling-us-manufacturing/5884554 f https://www.youtube.com/watch?v=qWanSWG3wDY&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=2 https://sonar21.com/russia-aint-a-chinese-sidecar/ https://consortiumnews.com/2025/04/14/downplaying-ukraine-connection-in-latest-trump-plot/ https://steigan.no/2025/04/kina-endrer-spillereglene-og-verden-folger-etter/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=P_G66KXGto0&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=9 https://www.youtube.com/watch?v=RotWMZljITI&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=5 https://www.youtube.com/watch?v=JMIevaNwXMI&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=8 https://www.youtube.com/watch?v=JMIevaNwXMI&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=8 https://www.youtube.com/watch?v=JMIevaNwXMI&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=8 https://www.youtube.com/watch?v=-pTo4lSicsA&list=UUkF-6h_Zgf9zXNUmUB-MzTw&index=6 https://sonar21.com/inching-towards-a-deal-with-iran/?jetpack_skip_subscription_popup https://glenndiesen.substack.com/p/end-of-globalization-and-return-of?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=161722453&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=AXl-oGZv4fI&list=UUkF-6h_Zgf9zXNUmUB-MzTw&index=4 https://www.youtube.com/watch?v=NGfr2Xu8qt4&list=UUkF-6h_Zgf9zXNUmUB-MzTw&index=5 https://sonar21.com/donald-trump-to-europe-you-want-to-fight-russia-go-ahead-its-all-yours/ https://cynthiachung.substack.com/p/does-china-operate-the-panama-canal?utm_source=post-email-title&publication_id=309240&post_id=161646731&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://voicefromrussia.ch/en/everything-is-possible-unfortunately/ https://www.youtube.com/watch?v=syCuRbFbA7g&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=6 https://www.youtube.com/watch?v=7enFebtNyOU&list=UUkF-6h_Zgf9zXNUmUB-MzTw&index=3 https://voicefromrussia.ch/en/felix-abt-the-nixon-shock-and-trumps-tariffs-parallel-responses-to-military-setbacks/ https://www.youtube.com/watch?v=OcD7ifMDvoc https://michaeltsnyder.substack.com/p/the-us-dollar-is-crashing-and-our?utm_source=post-email-title&publication_id=1520363&post_id=161494483&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://chrishedges.substack.com/p/american-concentration-camps?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=161499187&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/trump-forces-declare-war-harvard/5884614 https://sonar21.com/iran-us-scenario-2-in-play-ball-is-now-in-trumps-court-and-trump-blinks-first-in-china-showdown/?jetpack_skip_subscription_popup
Breski læknirinn, Vernon Coleman, hefur skrifað athyglisverða bók; Sá lýgur sem heldur því fram, að bólsetningar séu öruggar (Anyone who tells you vaccines are safe and effective is lying).
Vernon segir m.a.:
Hrifning [heilbrigðisstarfsmanna] á bólusetningum er trúlega sá þáttur heilbrigðisþjónustunnar, sem síst er studdur vísindalegum gögnum. Hún líkist miklu fremur skottulækningum en nokkru því, sem vísindalegt má kallast.
Bóluefni eru ónógsamlega prófuð fyrir notkun og engin rannsókn fer fram á því, hvort mismunandi bóluefni séu samrýmanleg hvoru öðru eða öðrum lyfseðilsskyldum lyfjum.
Engar langtímarannsóknir eru unnar til að ganga úr skugga um áhrif bóluefna á ónæmiskerfið.
Það kastar þó líklega tólfunum, þegar öllum fullorðnum er gefið sama magn bóluefnis (og jafnvel börnum líka). Sami skammtur er gefinn, hvort heldur er um að ræða karla eða konur, unga eða aldna, granna eða spikaða. [En gervigreindin gæti bætt úr þessu eða hvað?]
Ei heldur er magn bóluefnis miðað við þyngd sjúklings. Það þykir ekki áhugavert að skoða, hvor sjúkdómar eins og krabbamein séu algengari meðal bólusettra en óbólusettra. [Þetta hefur þó breyst á undanförum misserum, einkum í sambandi við bóluefni við covid-19.]
Það er [óbrigðult] hald manna, að bólusetningar séu bjargráð og hver sá, sem efagirni sýnir, er umsvifalaust kallaður andófsmaður bólusetninga. Sumir leggja slíkt háttalag að jöfnu við hryðjuverkastarfsemi.
Það birtast stöðugt niðurstöður nýrra rannsókna á meinviðbrögðum við covid-19 bóluefnunum. Ný rannsókn sýnir fram á 86 hættumerki um geðtruflanir af þeirra völdum á borð við sjálfsvígshugsanir, vitsmunabrest, glöp, geðveiki og árásarhegðun. Rannsóknin er unnin á grundvelli tilkynninga um aukaverkanir hjá bandaríska lyfjaeftirlitinu. Rannsóknin hefur þó enn ekki verið ritrýnd.
Það hafa átt sér stað miklar breytingar, síðan Vernon skrifaði bók sína 2019. Heilbrigðisyfirvöldum og alþjóðlegum heilbrigðisstofnunum er mjög í mun að safna upplýsingum um heilsufar. Það er venjulega kallað þjónusta við þegnanna. Alþjóðlegt heilbrigðisvegabréf er innan seilingar.
Ísraelar eru framarlega á þessu sviði sem öðrum í sambandi við njósnir og eftirlit. Nýlega gerðu þeir samning um samvinnu á þessu sviði við fyrirtæki, sem samið hefur geðlækningaforritið, Taliaz. Það er þeim töfrum búið að geta á grundvelli samanburðar og greiningar á aragrúa heilbrigðis- og erfðaupplýsinga veitt sérsniðnar geðlyfjalækningar fyrir hvern og einn.
Þetta er greinilega þáttur í tölvuuppfærslunni á mannskepnunni, sem unnið er að, bæði til hugstjórnar og hernaðar. Samtímis eru undirbúin rafræn skilríki, sem tengd verða alþjóðlegum og þjóðlegum gagnabönkum, þar sem m.a. koma fram upplýsingar um bólusetningar og heilbrigði. Þau eru þegar í notkun í Kína og fyrsti vísir þeirra verður senn gefinn út í Bandaríkjunum og Evrópusambandinu.
Læknirinn, Mandy Dixon, segir: Í kjölfar faraldursins hefur þörfin fyrir nýjungar í geðheilbrigðisþjónustu vaxið og sértaklega með hliðsjón af aukinni þekkingu á efnahagslegum áhrifum bágrar geðheilsu á efnahagslega endurreisn.
Það eru svo sem ekki nýmæli að heilbrigðisvöld stjórni heilsu fólks og geði með hjálp lyfja. Á Íslandi er geðlyfjaneysla fullorðinna og barna í víðum skilningi skuggaleg. Konur eru gerðar glaðar með þunglyndislyfjum, órói er sefaður með róandi lyfjum og hressir drengir koðna niður undan ADHD-lyfjum.
Lyfja-, bólusetninga- og taugatækniiðnaðurinn blómstra sem aldrei fyrr.
https://www.amazon.co.uk/Anyone-Tells-Vaccines-Effective-Lying/dp/1091757712/ https://expose-news.com/2025/04/17/vaccines-and-vaccination-are-quackery/?jetpack_skip_subscription_popup https://michaeltsnyder.substack.com/p/33-shocking-facts-that-prove-that?utm_source=publication-search&utm_medium=email https://michaeltsnyder.substack.com/p/once-the-deadline-on-may-7th-arrives?utm_source=post-email-title&publication_id=1520363&post_id=161504194&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://expose-news.com/2025/04/18/sentient-world-simulation/?jetpack_skip_subscription_popup https://www.youtube.com/watch?v=6n4ab9UCK60 https://beeley.substack.com/p/predictix-dna-ai-and-the-zionist?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=161516285&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://michaeltsnyder.substack.com/p/drugged-into-oblivion-more-than-60?utm_source=post-email-title&publication_id=1520363&post_id=161571250&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2025/04/ny-studie-86-alvorlige-nevropsykiatriske-faresignaler-knyttet-til-covid-19-vaksinen/
Donald John Trump lofaði að birta skjöl í tengslum við morðið á John F. Kennedy (f. 1917) í nóvember 1963. Morðið hefur hvílt eins og mara á bandarísku þjóðinni og heiminum öllum. Ég var tólf ára, þegar þetta viðbjóðslega morð átti sér stað. Harmurinn er mér í fersku minni.
Það er svo undarlegt, að lýðræðisleg stjórnvöld telji sig þurfa að leyna þegnana upplýsingum um hvaðeina. Venjulega er það með skírskotun til öryggis- og þjóðarhagsmuna. Þegar blaðað er í gegnum skjölin eða sum þeirra rúmlega 60.000, sem birt hafa verið er þetta beinlínis hlægileg ástæða. Enn eru mörg skjöl óbirt.
Það er trúlega verið að draga fjöður yfir sitthvað misjafnt við starf þeirra, sem í hlut eiga. Það á áreiðanlega við um umrædd leyndarskjöl. Það fer ekki hjá því, að fólk hafi reynt að fá botn í jafn alvarlegan atburð og hér átti sér stað. Það leikur eftir áratuga rannsóknir varla á tveim tungum, að illvirkið var skipulagt af óvinum forsetans í djúpríkinu sjálfu.
Þar beinast spjótin að Leyniþjónustu Bandaríkjanna (Central Intelligence Agency CIA), sem stofnuð var 1947 á grunni Leyniþjónustu hersins. Innblástur var sóttur í Leyniþjónustu Þjóðverja. Yfirmaður hennar á austurvígstöðvunum, Reinhard Gehlen (1902-1979), var ráðinn að CIA. Hún var snemma samþætt ísraelsku leyniþjónustunni, Mossad.
John átti í erfiðu sambandi við CIA, sem narraði hann til innrásar á Kúbu. CIA hafði auk þess margsinnis reynt að koma Fidel Ruiz Castro (1926-2016) fyrir kattarnef. Það vakti fyrir forsetanum að leysa leyniþjónustuna upp. En það kom hún í veg fyrir.
Það kom einnig kurr í forsetann, þegar hann hafði veður af því, að Ísraelsmenn væru að koma sér upp kjarnavopnum með hjálp Gyðingamafíunnar og Gyðingavinasamtaka í Bandaríkjunum. Benjamin Netanyahu (f. 1949) var meðal þeirra, sem lögðu gjörva hönd á þessa áætlun.
Sömuleiðis hafði John krafist þess, að Ísraelar létu skrá hagsmunavörslufélög sín og þrýstihópa í Bandaríkjunum. Það var þeim meinilla við. Það kom ekki til þess.
Bandarísk löggæsla og leyniþjónusta vildi fá fólk til að trúa því, að Lee Harvey Oswald (1939-1963), hefði ráðið forsetanum bana upp á eigin spýtur. Það er augljós þvæla. Það var þaggað niður í honum líka.
Það gerði Gyðingurinn, Jacob Leon Rubenstein (1911-1967) eða Jack Ruby. Það sagðist hann gera fyrir þjóð sína.
Stofnun CIA var vopn í baráttu Bandaríkjanna við að festa sig í sessi sem heimsveldi í kjölfar heimstyrjaldanna. CIA hefur að sumu leyti gegnt sama hlutverki og Leyniherdeildir Nató stundum kenndar við ítölsku deildina, Gladio, þ.e. að tryggja rétt lýðræðisstjórnarfar í Evrópu og bylta óæskilegum ríkisstjórnum. Skæruhernaður, morð og hryðjuverk eru þáttur þeirrar starfsemi.
Þessum leyniherdeildum hefur verið betur ágengt en opinbera hernum, sem tapað hefur öllum eiginlegum vopnastríðum frá annarri heimstyrjöldinni. Og þau eru mýmörg.
(Er það ekki undarlegt, að þeir Íslendingar, sem haldnir eru aðsóknaræði og öryggisleysi, vilji på liv og död fá Nató og Bandaríkjamenn til að verja sig líkar norður á Melrakkasléttu.)
Snillingurinn, James Corbett, gefur staðgóða fræðslu um efnið eins og honum er einum lagið. Á vefsíðu hans má finna mýgrút greina og útsendinga til ítarlegri skoðunar fyrir lysthafa.
https://corbettreport.com/ganser-empire/ https://www.kennedysandking.com/articles/nato-s-secret-armies-operation-gladio-and-jfk https://corbettreport.com/what-i-learned-from-the-jfk-files/ https://en.wikisource.org/wiki/European_Parliament_resolution_on_Gladio https://corbettreport.substack.com/p/what-i-learned-from-the-jfk-files?utm_source=post-email-title&publication_id=725827&post_id=161440017&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email
Þegar tíðindamanneskja RÚV spurði utanríkisráðfrú Íslands, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, að því, hverju Íslendingar ætluðu sér að verjast í boðaðri öryggisáætlun, m.a. með kafbátakaupum, svaraði hún því til, að Íslendingar þyrftu að verjast Rússum, vegna þess, að þeir skemmdu neðansjávarstrengi og stælu börnum eins og Hund-Tyrkir forðum daga.
Hvort tveggja er að öllum líkindum tilbúningur úr smiðju upplýsingaherdeilda Vesturlanda með bresku snillingana á oddinum. Óháðir blaðamenn, sem hafa grafist fyrir um meint barnrán hafa ekki fundið neitt misjafnt. Sama máli gildir um skemmdir kínverskra og rússneskra skipverja á neðansjávarstrengjum.
En það er ekki bitið úr nálinni. Eistar hafa lagt hendur á skipshöfn rússnesks olíuskips úr svokölluðum skuggaflota Rússa. Um er að ræða skip, sem Loyds í Lundúnum neitar að tryggja. Það er þáttur í viðskiptaþvingunum á þá.
Eistar ásamt hinum Eystrasaltsþjóðunum eru meðal herskáustu þjóða og hafa tilkynnt þátttöku í félagi hinna viljugu þjóða til að andæfa tilburðum Donald John Trump til friðarsamninga. Félagið vill meira stríð.
Hinn nýi kanslari Þýskalands, Friedrich Merz sem Gilbert Doctorow líkir í sjálfan Adolf Hitler - virðist nú ætla að taka forystuna frá hinum fulltrúum alþjóðaauðvaldsins, Emmanuel Macron og Keir Starmer. Allir eru þeir lærisveinar Klaus Schwab, stofnanda Alheimsefnahagsráðsins (World Economic Forum).
Friðrik er afar stríðsgraður og lofar að senda Volodymyr sprengjuflaugar, sem gætu dugað til að eyðileggja skotmörk í Rússlandi eins og Kersch brúna, sem Bretum og Úkraínumönnum mistókst að gjöreyðileggja.
Eins og fólk væntanlega hefur haft veður af er nýju lífi nú blásið í upplýsingahernaðinn. RÚV þylur áróðursskeyti frá Volodomyr Zelensky í belg og biðu. Það mætti ætla, að RÚV sé orðið almannatengill fíkniefnaforsetans. Hinn hörmulegi atburður í Sumy, þar sem almennir borgarar voru drepnir í árás Rússa, er vel til áróðurs fallinn.
Volodomyr og RÚV halda því fram, að nú hafi Rússar brugðið út af venjunni og tileinkað sér árásarsiði Úkraínumanna, þ.e. að gera sérstakar árásir á almenna borgara. Sjálfir segja þeir, að skotmarkið hafi verið samkoma úkraínskra hermanna og Nató-liða. Yfirvöld buðu hins vegar almennum borgurum að taka þátt, segja þeir.
Andstyggilegur atburður, sem andófsfylkingin í hirð Dónaldar Jóns nú undir forystu Keith Kellogg, sem markvisst andæfir samningamanni forsetans gerir sér mat úr.
Alþjóðlegt auðvald gefst ekki svo auðveldlega upp. Það ætlar að sölsa undir sig auðævi Rússlands, sama, hvað tautar og raular. Aukin heldur eru stríð arðvænleg.
En kannski leggst stríðsauðvaldinu til íslenskur her, floti, herskipahöfn í Finnafirði og gríðarstór flugvöllur á Melrakkasléttu. Það gæti skipti sköpum. Og svo ætlar Þorgerður sem sagt að kaupa sér kafbát og jafnvel endurnýja kafbátalægin í Hvalfirði.
Svo innan skamms mætti jafnvel vænta þess, að Hvalur dragi rússnesk skemmdarverka- og njósnaskip að landi fremur en hvali. Það yrði að sönnu hvalreki fyrir sameiginlegar varnir friðelskandi lýðræðisþjóðir Vesturlanda.
https://krisis.info/it/2025/04/aree/europa/thomas-fazi-precisi-interessi-materiali-spingono-i-leader-europei-a-perpetuare-il-conflitto-in-ucraina/ https://gilbertdoctorow.com/2025/04/15/friedrich-merz-the-most-dangerous-german-leader-since-adolf-hitler/ https://sonar21.com/when-alleged-western-military-experts-insist-that-russia-is-not-making-progress-just-show-them-this/ https://korybko.substack.com/p/explaining-russias-restrained-response?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=161277387&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/sumy-war-crime-terrible-mistake-or?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=161366947&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email
Fyrir eigi alllöngu sátu tveir geðvillingar að skrafi í Hvíta húsinu í Washington. Þeir heita Donald John Trump og Benjamin Netanyahu. Það var létt á þeim brúnin, þegar þeir ræddu Gazadrauma sína um brottflutning og dráp á íbúum Gaza og byggingu afþreyingarmannvirkja.
Dónaldur Jón opinberaði enn á ný öskrandi fáfræði. Sannaðist þar hið fornkveðna, að oft bylur hæst í tómri tunnu. Bensi-barnmorðingi sýndi eina af sínum bestu hliðum; ástríðuþrungnar lygar.
Dráp á saklausu fólk fara honum ekki síður vel úr hendi. Nýlega réðist hryðjuverkaher hans á björgunarfólk í auðkenndum bifreiðum með blikandi ljós á Gaza. Þarna voru hryðjuverkmenn á ferð, sögðu soldátarnir og hófu aftökur. Þeir grófu skömmina eins og hundar bos.
Á meðal hinna myrtu var liðlega tvítugur piltur. Síðustu boð hans voru: Fyrirgefðu mamma! Mig langaði svo að bjarga fólki.
Afrekin eru miklu fleiri. Eftir að Ísraelsmenn rufu eigið vopnahlé hafa hundruð almennra borgara verið drepin og sprengjur falla af himni ofan. Rúmur þriðjungur drepinna barna var á aldrinum 6 til 12 ára, tæpur þriðjungur á 13-17 ára, rúmur fjórðungur 1 til 5 ára og reifabörn tæp 6 af hundraði. Þetta er sundurliðun á tæplega 16 þúsundum fórnarlamba frá því í október 2023. Metið í barnamorðum var 200 á einum degi, samkvæmt ísraelska fjölmiðlinum, Haaretz.
Ísraelsmenn gera auk þess loftárásir á Sýrland og Líbanon. Heimamenn á Suður-Sýrlandi veita ísraelska innrásarhernum viðspyrnu og Tyrkir eru farnir að ýfa sig. En Dónaldur Jón ætlar að redda því. Friði í Úkraínu ætlaði hann að redda á 24 tímum eins og menn muna.
Ísraelar hafa fengið Bandaríkjamenn til að sprengja Jemena fyrir sig. Yfirlýsingar Dónaldar Jóns, friðarforseta, eru digurbarkalegar í því sambandi eins og hans er vandi. Bandaríkjamönnum hefur tekist að myrða tugi almennra borgara, en fáum sögum fer af öðru tjóni.
Alla vega halda Jemenar áfram baráttu gegn siglingum til Ísraels um Rauða hafið og verja hendur sínar. Það hafa þeir gert í hálfan annan áratug eða svo. Þeir hafa sætt árásum og hernaðaraðgerðum frá Vesturveldum, Sádí-Aröbum og Persaflóaríkjunum.
Og svo er það hinn draumur geðvilltu leiðtoganna; að jafna Íran við jörðu. Það hafa þeir (og Vesturveldin) svo sannarlega reynt með alls konar bellibrögðum; etja saman nágrönnum (deila og drottna), svelta, lama atvinnulíf, kollvarpa stjórnum, innrásum og svo framvegis.
Nú bíta geðvillingarnir í skjaldarendur, berja sér á brjóst og reka upp stríðsöskur. Upplýsingahernaðurinn í samband við fyrirhugað stríð Samrunaheimsveldisins er hafinn. Það er oft örðugt að gera sér grein fyrir, hvar Ísrael endar og Bandaríkin taka við.
Stríð þeirra eru háð í samvinnu hins opinbera og einkaaðilja. Það hefur lengi verið þekkt, t.d. hvað varðar þróun eftirlits- og gervigreindartækni í hernaði gegn Gazabúum. Þar eru áberandi fyrirtæki á vegum tækniauðjöfranna í hirð Dónaldar Jóns. Tækni þeirra auðgreinir og eltir upp skotmörk.
Meta hefur nýlega ráðið til sín atgervismenn á þessu sviði frá Ísrael og stundar í samráði og samvinnu við stjórnvöld svæsna ritskoðun og aðför gegn lýðfrelsinu. Æruverndarbandalag Gyðinga (Anti-Defamation League) í Bandaríkjunum hefur stælt sig af samböndum við hirð Dónaldar Jóns. Hún er nær alfarið skipuð Síonistum
Drápstæknisnilld Ísraela kom líka glöggt í ljós, þegar þeir komu fyrir sprengjum í símboðum fólks í Líbanon. Gamla bragðið, þ.e. að koma fyrir rottum í herbúðum óvinarins er þó í fullu gildi, sbr. Hisbolla í Líbanon.
Rottur Ísraela er vafalaust líka að finna í Íran. En af því að Dónaldur Jón elskar friðinn sendir hann Steve Witkoff til Oman á morgun (12. apríl). Þar munu Íranar líka eiga fulltrúa. Fulltrúar Bandaríkjanna og Írans munu ekki tala saman.
Sáttasemjarinn kemur frá Oman. Þetta minnir óneitanlega á aðstoð við ósamlynd hjón. Það er hermt, að hinn snjalli utanríkisráðherra Rússa, Sergei Lavrov, hafi komið þessum fundi til leiðar.
Dónaldur Jón hótar hástöfum öllu illu, gangi Íranar ekki að kröfum hans og Ísraels um afvopnun. Þeir vilja sams konar fyrirkomulag og í Líbíu. Því samfélagi rústaði Nató. Svo má náttúrulega setja á fleiri viðskipaþvinganir og tolla á mánudegi og aflétta þeim á þriðjudegi.
Herafla Bandaríkjamanna á svæðinu hefur stöðugt vaxið ásmegin, t.d. í Diego Garcia herstöðinni á Indlandshafi. Þar er nú óvígur her og bíður eftir frekari skipunum frá Washington. Herinn dundar sér við að drepa Jemena á meðan.
Hvernig má það vera, að mannkyn velur eða sættir sig við geðvillta leiðtoga? Fyrrnefndir tveir geta auðveldlega komið mannkyni á vonarvöl. Báðir ráða yfir kjarnorkuvopnum. Bandaríkjamenn hafa reynslu af að beita þeim. Hvað hefur mannkyn til saka unnið?
Barnamorðinginn hefur níu líf eins og kötturinn. Réttarkerfið sverfur að honum, bæði innan lands og utan. Vonandi fellur hann bráðum af illvirkjastalli sínum. Samfélagið kynni þó að hrynja áður, en andspyrna hinna forsmáðu og kúguðu heldur áfram.
Því miður heldur líka áfram baráttan gegn hugarfóstrinu, Amalek. Heremḥerem heitir það á hebresku og útleggst eyðingar- eða bannfæringarhollusta.
Á okkar vígstöðvum er grimmilega barist við Kommagrýluna og gegn hryðjuverkaógninni í skýrslum Ríkislögreglustjóra. Hugarfóstur Don Kíkóta var vindmylla.
https://steigan.no/2025/03/israelske-pansrede-kjoretoy-feier-inn-i-syrias-quneitra-i-storste-inntrengning-hittil/?utm_source=substack&utm_medium=email https://sonar21.com/the-hard-facts-about-palestinian-terrorism-debunk-western-narrative/ https://sonar21.com/tucker-carlsons-interview-with-steve-witkoff-reveals-surprising-ignorance/ https://chrishedges.substack.com/p/the-last-chapter-of-the-genocide?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=159641554&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://trt.global/world/article/33afdef2d007 https://www.globalresearch.ca/carnage-gaza-global-195/5882570 https://steigan.no/2025/03/gazas-helsedepartement-offentliggjor-navnene-pa-15-613-barn-drept-av-israel-siden-oktober-2023/?utm_source=substack&utm_medium=email https://beeley.substack.com/p/trumps-military-expansionism-and?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=159972872&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.dropsitenews.com/p/statement-israel-killing-hossam-shabat-journalist-gaza https://21stcenturywire.com/2025/03/27/the-untold-story-of-israels-nuclear-deception/ https://21stcenturywire.com/2025/03/26/midweek-wire-franco-israeli-nuclear-scandal-with-guest-freddie-ponton/ https://kucinichreport.substack.com/p/trump-very-bad-things-are-going-to?utm_source=post-email-title&publication_id=1441588&post_id=160304293&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://gilbertdoctorow.com/2025/04/01/trumps-attack-on-elite-american-universities-just-punishment-but-for-wrongly-identified-offenses/ https://21stcenturywire.com/2025/04/01/a-mass-grave-of-heroes-the-fate-of-gazas-first-responders/ https://evakarenebartlett.substack.com/p/israeli-barbarians-point-blank-execute?utm_source=post-email-title&publication_id=3046064&post_id=160320029&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://rumble.com/v6rakgo-whitney-webb-why-the-elites-are-terrified-of-her-research.html https://substack.com/inbox/post/160694225?utm_source=post-email-title&publication_id=4027686&post_id=160694225&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2025/04/aipac-lederen-skryter-av-spesiell-tilgang-til-trumps-sikkerhetssjefer/?utm_source=substack&utm_medium=email https://beeley.substack.com/p/fake-news-stoking-regional-war-trump?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=160998690&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=OIois3lr804&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=8 https://21stcenturywire.com/2025/04/09/midweek-wire-trump-and-bibis-path-to-persia-with-guest-ibrahim-majed/ https://trackingpower.substack.com/p/how-israel-uses-seductive-imagery-305?utm_source=post-email-title&publication_id=1151094&post_id=161016913&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://voicefromrussia.ch/?s=vom+Opfer+zum+T%C3%A4ter+zum+Opfer https://21stcenturywire.com/2025/04/07/israeli-army-new-claims-on-aid-workers-death/ https://glenndiesen.substack.com/p/diplomacy-at-an-impasse-trump-escalates?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=160690523&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://sonar21.com/anti-zionist-but-not-anti-semitic/?jetpack_skip_subscription_popup https://www.youtube.com/watch?v=Sq56DJFgcJU&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=11 https://steigan.no/2025/03/israel-begikk-den-storste-barnemassakren-i-sin-historie/?utm_source=substack&utm_medium=email
Bloggar | 11.4.2025 | 15:51 (breytt kl. 15:51) | Slóð | Facebook
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er tvímælalaust merkasti utanríkismálaráðherra Íslendinga. Hún þorði, þegar aðrir sýndu heigulshátt. Þórdís Kolbrún sleit stjórnmálasambandi við Rússa vegna tilefnislausrar allsherjarinnrásar þeirra í Úkraínu. Aðgerðin var innsigluð með kossi.
Þórdís Kolbrún reit gagnmerkan pistil um sögu Bandaríkjamanna fyrir skemmstu. Þar rennir hún stoðum undir þá staðreynd, að þeir hafi aldrei komið nálægt stríðinu í Úkraínu.
Hin merka grein Þórdísar Kolbrúnar ber fyrirsögnina, Land hinna frjálsu, heimkynni hugdjarfra. Hún segir m.a.:
Undir lok átjándu aldar tóku þrettán nýlendur Breta í Norður Ameríku sig saman, mynduðu her og tóku ákvörðun um að berjast fyrir frelsi frá öflugasta herveldi heims. Aflsmunurinn var mikill á pappírnum þegar nýlendubúar byrjuðu að velta fyrir sér hvort það væri þess virði að berjast fyrir sjálfstæði.
Annars vegar þrautþjálfaðir og agaðir hermenn heimsveldis búnir fullkomnustu vopnum þess tíma. Hins vegar uppreisnarmenn úr ýmsum stéttum; bændur og handverksmenn með ýmis konar samtíning skotfæra og takmarkaða þjálfun.
Patrick Henry [hélt] ræðu sem hreif marga og hefur endurómað i gegnum aldirnar. Menn geta talað um frið og aftur frið, en það er enginn friður, sagði hann og lauk orðum sínum svona: Ég veit ekki hvað aðrir velja, en hvað sjálfan mig varðar þá er valið skýrt; frelsi eða dauði (Give me liberty or give me death).
Þessi hetjulega hugsun var ekki öllum að skapi þá og er enn í dag illskiljanleg okkur sem höfum aldrei þurft að horfast í augu við slíka valkosti og getum ekki ímyndað okkur að þurfa að fórna neinu sem skiptir máli fyrir nokkurn skapaðan hlut; ekki einu sinni peningum eða þægindum.
Úkraínskt samfélag hefur í margar kynslóðir verið markað af rótgróinni spillingu sem tengist beint rússneskri undirokun. Samfélagið í Sovétríkjunum, og síðar í Rússlandi, er ekki bara þjakað af spillingu. Það er beinlínis byggt á spillingu. Mútur og klíkuskapur eru ekki undantekning heldur meginregla.
Þetta er ástæða hinna miklu svokölluðu Maidan mótmæla í kringum áramótin 2013 og 2014 (sem sumir einfeldningar trúa að hafi verið skipulögð af bandarísku leyniþjónustunni).
Úkraínumenn berjast fyrir frelsi og fullveldi, að verða raunverulega frjáls til að lifa og í dag er það Úkraína sem vill ávinna sér réttinn til þess að kallast land hinna frjálsu og heimkynni hugdjarfra.
Þess vegna er barátta Úkraínumanna barátta allra sem standa fyrir frelsi. Án frelsis er friðurinn orðin tóm.
Þó undarlegt megi virðast eru ófáir fræðingar og rýnendur alþjóðamála á öndverðum meiði við Þórdísi Kolbrúnu. Þeir eru margir góðir með sig og sannast nú einu sinni sem oftar, að sælir eru einfaldir. Sumir úr sauðahúsi Þórdísar Kolbrúnar kalla þá líka nytsama sakleysingja.
Þau tíðindi hafa meira að segja orðið, að bandaríska leyniþjónustan í landi hinna hugprúðu og frjálsu, CIA, hefur liðkað fyrir grein í Nýja Jórvíkurtímanum (NYT), þar sem ljóstrað er upp um þátt Bandaríkjanna í stríðinu.
Greinin ber titilinn: Félagið: Leyndarsagan um stríðið í Úkraínu (The Partnership: The Secret History of the War in Ukraine). Í hnotskurn er niðurstaðan sú, að hér hafi Bandaríkin/Vesturveldin háð stríð gegn Rússum og beitt fyrir sig Úkraínumönnum. Bandaríkjamenn og Bretar höfðu veg og vanda af undirbúningi og hernaðaráætlanir voru yfirleitt gerðar í bandarískri herstöð í Wiesbaden í Þýskalandi.
Engu að síður hlýtur hinum einföldu að vera ljóst, að Bandaríkja- og Úkraínumenn séu eins og Þórdís Kolbrún bendir svo eftirminnilega á að verja frelsi og lýðræði Íslendinga, Bandaríkjamanna og annarra frjálsra samfélaga í Vestrinu. En stríðið er tapað eins og öll önnur stríð Bandaríkjamanna og þau hafa verið mörg - eftir að síðustu heimstyrjöldinni lauk.
Því er sorglegt til þess að vita, að einfeldningarnir á NYT skuli grifla slíka dellu. Því leyfi ég mér í allri auðmýkt að leggja til, næst þegar Þórdís Kolbrún drepur niður penna, að NYT verði lesinn pistillinn. Það er hefð fyrir því, að íslenskir stjórnmálamenn viðri skoðanir sínar í bandarískum fjölmiðlum, sbr. grein Katrínar Jakobsdóttur um bakslag kvenfrelsisbaráttunnar. Hún rassskellti Bandaríkjamenn hressilega. Enda horfa þeir löngunaraugum til íslensku vekni- eða vókparadísarinnar.
Það gæti verið snilldarbragð hjá Þórdísi Kolbrúnu að hrósa Donald John Trump í leiðinni fyrir tilburði til að semja frið við Rússa, enda þótt þeir tilburðir gagni í berhögg við öll skilyrði Rússa og Bandaríkjamenn tefli fram viðvaningum.
Þórdís Kolbrún vandaði forsetanum nefnilega ekki kveðjurnar á sínum tíma: Trump er þröngsýnn, fáfróður, fordómafullur fábjáni. Hans málflutningur er markmið hryðjuverkamanna. Að hans fylgjendur telji okkur hin naív er hjákátlegt.
En, en! Rússar og Bandaríkjamenn tala enn saman og Vindhaninn í Washington lét hjá líða að setja enn frekari tolla á Rússa, þegar upp rann nýr Frelsisdagur (Liberation Day) annan apríl. Og svo hafa meira að segja bandarísk fyrirtæki sótt um að taka þátt í ráðstefnu í Sankti Pétursborg í næsta mánuði.
Þar mun sjálfur Vondi-Valdi líklega birtast. Svo, það er von, þó enn hvíli ógnin um viðskiptaþvinganir úr helvíti yfir Rússum. Þessu hótar Evrópusambandið. Það gæti verið sama helvítið og Nató bauð Serbum 1999. En þeir afþökkuðu eins og Rússar nú.
Það mætti hugga Dónald Jón og Vonda-Valda með orðum Williams Shakespeare (1564-1616): Sæt eru mótlætisins not, sem eins og padda ljót og eitruð ber þó dýrmætan gimstein í höfði sér. (Helgi Hálfdánarson)
Þrátt fyrir samræður Rússa og Bandaríkjamanna virðist stórsókn Rússa í undirbúningi, enda eru þeir í óða önn að sprengja hergögn sem Dónaldur Jón og óvinir hans í Evrópu þar á meðal núverandi utanríkisráðfrú Íslendinga, hin efnilega Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - senda hinum hugprúðu og frjálsu í Úkraínu.
Það er skelfilegt til þess að hugsa, að stríðshryllingurinn skuli halda áfram. Rússar taka um þessar mundir fermingarstráka og kvennaherdeildar til fanga. Það er engu líkara en að við séum að nálgast Berlin 1945.
En það verður að herða upp hugann. Vonandi kemur að því, að Úkraínumenn syngi með Ingimari Oddssyni - og verði jafn frjálsir af Rússum og Íslendingar: https://www.youtube.com/watch?v=L3nYI4SQwCo
Ég er frjáls eins og fuglinn, flogið næstum ég gæti.
Mér er ekkert til ama flest nú eykur mér kæti.
Alsæll er ég því orðinn, ekki kann ég mér læti.
Ég er frjáls, ég er frjáls.
Það á vissulega líka við um ástmögur Íslendinga í Úkraínu, Volodymyr Zelensky. Hann fangelsaði alúðarvin sinn, Oleksandr Dubinsky, sem ber Volodymyr slæma sögu. Enda er hann einfeldingur. En Oleksander má reyndar hrósa happi. Venjulega lætur vinur hans og frelsisins drepa andmælendur.
Utanríkismálasérfræðingur okkar, Þórdís Kolbrún, á fjölda aðdáenda. Einn þeirra er Þorsteinn Pálsson, sem segir um Þórdísi Kolbrúnu og öryggismál:
Forysta utanríkisráðherra um aukna varnarsamvinnu og uppbyggingu aðstöðu á Keflavíkurflugvelli var mikilvæg. Umræðan hefði þó mátt vera meiri, ekki síst um þau gildi, sem að baki búa. [Því hefur Þórdís Kolbrún væntanlega bætt úr núna.)
Brýnt er að þessum samstarfsverkefnum verði markvisst fylgt eftir á nýju kjörtímabili. Reyndar þarf að útvíkka þau meðal annars vegna vaxandi ógna gegn innviðum og netöryggi.
Margir hafa tilhneigingu til þess að líta á alþjóðlega samvinnu í efnahagsmálum annars vegar og varnar- og öryggismálum hins vegar sem tvo aðskilda hluti. Raunveruleikinn er allt annar.
Þegar Bandaríkin höfðu frumkvæði að varnarsamvinnu Evrópu og Ameríku á sínum tíma beittu þau sér samhliða fyrir innbyrðis efnahagssamstarfi Evrópuríkja. Æ síðan hafa þetta verið tvær hliðar á sama peningi.
Þórdís Kolbrún berst vissulega fyrir frelsi okkar og öryggi. Hún á öflugan stuðning vísan, bæði í Litla-Sjálfstæðisflokknum (Viðreisn) og Stóra-Sjálfstæðisflokknum (Sjálfstæðisflokknum). Öryggið skal á oddinn og hverjir eru öruggari og hollari en Bandaríkjamenn?
Fleiri forystuhugsuðir í utanríkismálum hafa tekið til máls um nauðsyn slíkrar hollustu, íslensks hers, fleiri flugherstöðva og flotaherstöð. Einn þeirra er Jón Magnússon. Hann segir í sambandi við fundhöld íslenskra og bandarískra stjórnvalda:
Að sjálfsögðu mundum við krefjast þess að Bandaríkin afnemi alla tolla á íslenskar vörur og hefji viðræður um aukna hervernd, m.a. með því að byggja flotastöð í Finnafirði og myndarlegan flugvöll á Melrakkasléttu til að gæta sameiginlegra varnarhagsmuna.
Hernaðarhyggjan blómstrar á Íslandi eins og víðar.
https://therealistreview.substack.com/p/americas-new-lost-cause https://rumble.com/v6rl46z-crosstalk-losing-peace.html?e9s=src_v1_upp https://voicefromrussia.ch/en/the-war-of-two-worlds-has-begun-part-1/#:~:text=No%20sustainable%20financing%20possible https://voicefromrussia.ch/auch-die-usa-schreiben-die-geschichte-um/ https://sonar21.com/trump-putin-a-deal-yalta-or-no-deal/?jetpack_skip_subscription_popup https://www.indianpunchline.com/russia-and-the-us-made-three-steps-forward-after-two-days-of-consultations-in-washington/ https://www.kitklarenberg.com/p/collapsing-empire-the-delusion-of?utm_source=post-email-title&publication_id=552010&post_id=160879734&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://glenndiesen.substack.com/p/the-war-is-effectively-over-and-russia?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=160926539&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/evolution-nato-aggression-serbia-russia/5883790 https://glenndiesen.substack.com/p/former-zelensky-ally-speaks-out-from?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=160121716&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.visir.is/g/20252693792d?fbclid=IwY2xjawIsan9leHRuA2FlbQIxMQABHWcBExPQn1Uuk6GdyaoZSVXrk12R4bCpOvwCCMWYnN06L4eUIKZOJIVutA_aem_PTRo6saVKscr9CXh04Rd1w https://jonmagnusson.blog.is/blog/jonmagnusson/entry/2312697/?fb=1&fbclid=IwY2xjawJjI5FleHRuA2FlbQIxMQABHru-npoROlD79viPtgomyHAcfqqsOGN6ao4piR0gzP1LbIEVca28zcN6kidq_aem_5Gjx3leKdwhcs86TcAFFCQ https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/03/18/ottast_erlenda_ihlutun_a_islandi/?fbclid=IwY2xjawJGdAdleHRuA2FlbQIxMQABHUVjXLFhaCIEnAqFTteUdOKvWxDanLAJLDrAoaTSZVwoFxVc_iGTIl4XtQ_aem_K8Qk2Kss3XnRq0J-iaPayg https://www.indianpunchline.com/trump-putin-parley-is-a-bit-under-the-weather/ https://gilbertdoctorow.com/2025/04/02/why-is-donald-trump-in-such-a-rush-to-conclude-a-cease-fire-in-ukraine/ https://www.kitklarenberg.com/p/echr-finds-ukraine-responsible-for?utm_source=post-email-title&publication_id=552010&post_id=160179175&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=85_qJLCd_c8 https://therealistreview.substack.com/p/the-unnecessary-war?utm_source=substack&utm_medium=email https://mearsheimer.substack.com/p/sergey-karaganov-vs-jjm?utm_source=post-email-title&publication_id=1753552&post_id=160379412&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://marksleboda.substack.com/p/russia-advances-across-frontline?utm_source=post-email-title&publication_id=1083041&post_id=160887021&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.kitklarenberg.com/p/its-official-ukraine-conflict-is?utm_source=post-email-title&publication_id=552010&post_id=160406409&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=NRQAZubiGu4 https://www.nytimes.com/interactive/2025/03/29/world/europe/us-ukraine-military-war-wiesbaden.html?unlocked_article_code=1.8E4.eCjt.YhxP1GmiLJY-&smid=url-share
Rússar, sem höfðu fylgt þýska hernum á flóttanum, voru gefnir í helgreipar Rauða hersins. Winston Churchill og Jósef Stalin hafa vafalaust glaðst yfir því, að níu milljónir Þjóðverja til viðbótar hafi dáið af völdum stríðsins á millistríðsárunum.
Fleiri hefðu fallið í valinn hefði áætlun Gyðinga um að eitra neysluvatn Þjóðverja tekist. En þeim tókst að eitra fyrir þýskum föngum í fangabúðum. Skæruliðasamtök Gyðinga, Nakam (Hefnd), stóðu að baki : Vilji okkar stóð til að eitra fyrir sex milljónum Þjóðverja. Við vorum hópur, sem taldi það skyldu sína. Við litum á okkur sem fulltrúa Gyðinga. Stofnandi hópsins var Hvítrússinn, Abba Kovner (1918-1987). Vígorðið var: Þjóð fyrir þjóð.
Forseti Ísraels, Chaim Weissmann, efnafræðingur að mennt, lagði á ráðin með hópnum og blessun sína yfir áætlunina. Það er óvíst, hversu margir voru drepnir. En fórnarlömb eitrana komu til viðbótar þeim, sem leyniþjónustan, Mossad, myrti. Það gæti verið upp undir hálft annað þúsund.
Winston Churchill var eins og Franklin Delano Roosevelt, Gyðingakær. Hann var líka umvafinn gyðinglegum ráðgjöfum. Gyðingurinn, Frederick Alexander Lindemann (1886-1957), lagði til loftárásir á íbúðahverfi í þýskum borgum til að skapa Adolf Hitler (1889-1945) óvinsældir.
Winston sagði um þessar árásir: Þýskar borgir skulu þola eldraun meiri en nokkur þjóð hefur mátt þola með tilliti til samfellu, umfangs og afls Það eru engin takmörk fyrir því ofbeldi, sem við erum reiðubúnir að beita í því skyni.
Gyðingaást Bandamanna, þ.e. Bandaríkjamanna, Breta, Frakka og Rússa, vakti athygli hins vígreifa bandaríska herforingja, George Smith Patton (1885-1945). Hann sagði:
Í dag fengum við skipun um að veita Gyðingum sérstakt húsaskjól. En því ekki líka kaþólikkum, Mormónum og svo framvegis? Við eigum sömuleiðis að afhenda Frökkum þúsundir stríðsfanga til þrælabúða í Frakklandi.
Sé það kallað frelsi, sem við nú gerum Þjóðverjum, bið ég um dauðann. [Hann framdi sjálfsmorð skömmu síðar.] Mér er fyrirmunað að skilja, að Bandaríkjamenn sýni slíka lágkúru.
Það ber ekki á öðru, en að hefndarsýkill [Gyðingsins, Henry] Morgenthau [1891-1967], þ.e. hefnd Semíta [Gyðinga] gegn Þjóðverjum, sé enn í fullu fjöri. (Henry var fjármálaráðherra Franklin Delano Roosevelt og höfundur New Deal, Morgenthau áætlunarinnar um tortímingu þýsks iðnaðar og fjármagnaði aðild Bandaríkjanna að annarri heimstyrjöldinni.)
Yfirmaður George Patton, Dwight David (Eisenhauer) Eisenhower (1890-1969), sem síðar varð forseti Bandaríkjanna, virtist einnig smitaður af nefndum Morgenthau-sýkli. Í bréfi til eiginkonunnar tjáði hann sig um Þjóðverjahatrið: Guð minn góður, ég hata Þjóðverja. Það er svo sem ekki að furða, að þessi Þjóðverjahatari hafi látið rúma milljón þeirra deyja í opnum fangabúðum, vísað á Guð og gaddinn.
Dwight tók við skipunum herra sína í Hvíta húsinu. Hann, þ.e. Franklin Roosevelt, sagði:
Við verðum að sýna Þjóðverjum hörku. Ég á við þýsku þjóðina, ekki eingöngu Nasista. Það verður annað tveggja að gelda þýsku þjóðina eða veita henni slíka meðferð, að hún verði ófær um að tímagast og halda áfram á sömu braut og áður.
Víkjum þá aftur að hugmyndafræðiarfi Bolsévikkagyðinganna. Aðalhugmyndafræðingurinn og fyrirmynd Benjamin Netanyahu var Vladimir Zeev Jabotinsky/ Vladimir Yevgenyevich (Yevnovich) Zhabotinsky[ (1880-1940). Hann sagði 1934 í franska tímaritinu, Gyðingi (Juif), á þá leið að brýna nauðsyn bæri til að eyða Þjóðverjum, þar sem Gyðingum stafaði hætta af þeim.
Ári síðar lét hann út úr sér: Það er í raun aðeins ein tegund valds, sem skiptir máli; stjórnmálaaflið. Við, Gyðingar, erum valdamesta þjóð veraldar, því við búum yfir þessu valdi og kunnum að nota það. (Jewish Daily Bulletin)
Menachem Begin (1913-1982), hryðjuverkasveitarforingi, fjöldamorðingi og síðar forsætisráðherra Ísraels, sagði:
Kynþáttur (race) vor er yfirburðakynþáttur (master race). Við erum heilagir (divine) guðir jarðarinnar. Við erum jafn frábrugðnir öðrum kynþáttum og þeir eru skordýrum Aðrir kynþættir eru skepnur, dýr, í mesta lagi nautgripir. Það eru forlög vor að ríkja yfir óæðri kynþáttum. Fjöldinn mun sleikja fætur vora og þjóna sem ánauðugir menn.
David Ben-Gurion, síðar forsætisráðherra Ísraels, (1886-1973), sagði:
Við verðum að flæma Arabana á brott og taka land þeirra og þurfi að beita valdi til að tryggja rétt okkar til að byggja landið, þá gerum við það. (5. okt. 1937 í bréfi til sextán ára sonar síns, Amos.)
Í dagbókinni, klykkir hann út með þann 18. júlí 1948: Við verðum að gera allt, sem í okkar valdi stendur til að tryggja, að þeir [Palestínumenn] snúi aldrei aftur.
En svona hugsuðu ekki allir Gyðingar, t.d. rithöfundurinn snjalli, Stefan Zweig (1881-1942, sem fótaði sig á framabrautinni undir handarjaðri Theodore Herzl. Stefán sagði:
Það er viðbjóðslegt að sjá, hvernig Gyðingar æða yfir allt eins og stormsveipur. Ætti það ekki að vera á okkar ábyrgð að sjá fyrir and-semítiska hneykslan og koma vitinu fyrir fólkið okkar?
Þessi mikli andans jöfur varð vitni að upplausn hins umburðarlynda Austurríska-ungverska keisaradæmis í logandi helvíti stríða, óeiningar og eyðileggingar. Hann flúði land, ásamt pólskri eiginkonu sinni, Charlotte Elizabeth (Lotte) Altmann Zweig. Þau tóku líf sitt í Brasilíu.
https://us.europathelastbattle.net/watchnow-beta-test.html https://ia803407.us.archive.org/19/items/a-jewish-defector-warns-america-te-2488/A%20Jewish%20Defector%20Warns%20America%20TE%202488.pdf https://counter-currents.com/2013/10/wall-street-and-the-march-1917-russian-revolution/ https://counter-currents.com/2013/10/wall-street-and-the-november-1917-bolshevik-revolution/ https://nationalvanguard.org/2010/10/a-jewish-defector-warns-america/ https://www.globalresearch.ca/remembering-reval-meeting-117-years-later/5883711 https://cynthiachung.substack.com/p/the-special-relationship-how-the?utm_source=cross-post&publication_id=309240&post_id=65952111&utm_campaign=309240&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://en.wikipedia.org/wiki/Rush_Holt_Sr. https://rielpolitik.com/2020/01/26/hidden-history-who-financed-bolshevik-revolution/ https://matthewehret.substack.com/p/the-ancient-occult-roots-of-the-fabian?utm_source=post-email-title&publication_id=260045&post_id=140439126&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&utm_medium=email https://theconversation.com/ashkenazic-jews-mysterious-origins-unravelled-by-scientists-thanks-to-ancient-dna-97962?fbclid=IwAR0jeWHFIwOfqRGi2AgOOz-WD-jsZcuh8W3jQXkc2XYyG20CuZMVxlcEzPo https://theconversation.com/uncovering-ancient-ashkenaz-the-birthplace-of-yiddish-speakers-58355 https://www.britannica.com/biography/Vladimir-Jabotinsky https://www.britannica.com/biography/Golda-Meir https://www.youtube.com/watch?v=vD5VmGkqfAg https://archive.org/details/benjamin-h-freedmans-1961-speech-at-the-willard-hotel-in-washington-dc https://www.britannica.com/biography/Cordell-Hull https://www.jewishvirtuallibrary.org/cordell-hull#google_vignette https://www.nytimes.com/1933/07/21/archives/world-jews-push-boycott-of-reich-for-inhuman-acts-amsterdam-session.html https://en.wikipedia.org/wiki/Karl_Liebknecht https://plato.stanford.edu/entries/luxemburg/ https://www.encyclopedia.com/people/history/german-history-biographies/karl-liebknecht https://www.historytoday.com/archive/spartacist-uprising-berlin https://en.wikipedia.org/wiki/William_Boyce_Thompson https://en.wikipedia.org/wiki/Olof_Aschberg https://www.history.com/articles/russo-japanese-war https://spartacus-educational.com/SPYcda.htm https://en.wikipedia.org/wiki/Committee_to_Defend_America_by_Aiding_the_Allies https://chatgpt.com/c/67efb346-b614-8011-a25a-653300364498 https://www.britannica.com/biography/William-Allen-White https://www.jewishbookcouncil.org/pb-daily/the-nakam-affair-seeking-revenge-for-the-holocaust https://www.vanguardnewsnetwork.com/the-heroic-general-george-v-h-moseley/ https://en.wikipedia.org/wiki/Hugh_Lincoln_Cooper https://www.youtube.com/watch?v=igeqrB4h_88 https://www.youtube.com/watch?v=0JYVTkPl5kU https://www.encyclopedia.com/religion/encyclopedias-almanacs-transcripts-and-maps/sverdlov-yakov-mikhailovich https://noeticpirate.substack.com/p/andrei-shkuro-and-the-white-wolves https://en.wikipedia.org/wiki/Martin_Latsis https://www.jewishvirtuallibrary.org/text-of-the-balfour-declaration#google_vignette https://www.history.com/articles/romanov-family-murder-execution-reasons https://www.jewishvirtuallibrary.org/abba-kovner https://en.wikipedia.org/wiki/Abba_Kovner https://en.wikipedia.org/wiki/Nakam https://www.history.com/articles/dwight-d-eisenhower https://www.history.com/articles/10-things-you-may-not-know-about-george-patton https://en.topwar.ru/192029-stepnoj-volk-shkura.html https://en.wikipedia.org/wiki/Henry_Morgenthau_Jr. https://ia601402.us.archive.org/24/items/Buecher_Hefte_vor_1945_Teil_2/Morgenthau%2C%20Henry%20-%20Der%20Morgenthau-Plan%20%281944%2C%2015%20S.%2C%20Text%29.pdf https://www.encyclopedia.com/history/encyclopedias-almanacs-transcripts-and-maps/kerensky-alexander-1881-1970 https://www.history.com/articles/george-smith-patton https://www.encyclopedia.com/people/science-and-technology/physics-biographies/frederick-alexander-lindemann https://archive.org/details/judea-declares-war-on-germany-24-mar-1933-2_202407 https://www.encyclopedia.com/people/literature-and-arts/russian-and-eastern-european-literature-biographies/ilya-grigoryevich-ehrenburg https://www.history.com/articles/charles-a-lindbergh https://www.encyclopedia.com/people/history/israeli-history-biographies/chaim-weizmann https://www.youtube.com/watch?v=NIXlNX2IWu8 https://www.jewishvirtuallibrary.org/chaim-weizmann#google_vignette https://www.encyclopedia.com/religion/encyclopedias-almanacs-transcripts-and-maps/lecache-bernard https://archive.org/details/samual-untermeyers-sacred-war-speech-7-august-1933-and-comments https://www.encyclopedia.com/religion/encyclopedias-almanacs-transcripts-and-maps/untermyer-samuel https://pl.wikipedia.org/wiki/Jerzy_Potocki_(ambasador) https://www.rbth.com/history/326857-admiral-kolchak-patriot-or-agent https://biographs.org/olof-aschberg https://en.wikipedia.org/wiki/Olof_Aschberg https://www.jewishencyclopedia.com/articles/3437-b-nai-b-rith https://spartacus-educational.com/SPorlov.htm https://en.wikipedia.org/wiki/Alexander_Orlov_(Soviet_defector) https://en.wikiquote.org/wiki/Harry_Waton https://radiochristianity.com/rabbi-harry-waton-the-jews-are-an-intellectual-aristocracy/ https://archive.org/details/AProgramForTheJewsAndAnAnswerToAllAntiSemites https://www.jewishvirtuallibrary.org/kaganovich-lazar-moiseyevich https://www.rbth.com/history/332916-stalin-comrade-lazar-kaganovich https://spartacus-educational.com/RUSyagoda.htm https://www.encyclopedia.com/history/encyclopedias-almanacs-transcripts-and-maps/yagoda-genrikh-grigorevich https://en.wikipedia.org/wiki/Alexander_Kerensky https://isgp-studies.com/russian-revolution https://www.jpost.com/magazine/was-the-russian-revolution-jewish-514323 https://www.history.com/articles/vladimir-lenin https://www.marxists.org/archive/lenin/works/1919/mar/x10.htm https://en.wikipedia.org/wiki/Leon_Trotsky https://www.realnewsandhistory.com/jacob-schiff/ https://en.wikipedia.org/wiki/Felix_M._Warburg https://www.jta.org/archive/death-of-mortimer-schiff-son-of-jacob-schiff-and-brother-in-law-of-felix-m-warburg-head-of-boy-sco https://www.jewishvirtuallibrary.org/kahn-otto-hermann https://en.wikipedia.org/wiki/Otto_Hermann_Kahn https://www.myjewishlearning.com/the-hub/jacob-schiff-a-most-honorable-jew/ https://en.wikisource.org/wiki/Zionism_versus_Bolshevism https://archive.org/details/1976-interview https://www.ynetnews.com/articles/0,7340,L-3342999,00.html https://paulcudenec.substack.com/p/the-false-red-flag-a-despotic-dead
Eldri færslur
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021