Þrátt fyrir Friðarráðstefnuna í París 1919, friðarsamninga í Versölum og fögur fyrirheit Þjóðabandalagsins um frið á jörðu, rétt þjóða og þjóðarbrota til sjálfsákvörðunar um eigin málefni, ríkjastofnun og helgi hefðbundinna búsvæða, fór veröldin öll í bál og brand seint á fjórða áratugi síðustu aldar. Auðgunarþörf auðdrottnanna á fjármálamörkuðum hins vestræna heims, einkum í Bandaríkjunum, sem tekið höfðu við drottnunarhlutverki Bretlands, var friðarást, frelsi og réttlæti yfirsterkari.
Auðdrottnar og stjórnvöld Vesturlanda seildust til áhrifa, bæði í austri og vestri. Í upphafi fyrsta heimsstríðs var rússneska stórveldið í upplausn og andófi gegn Nicholas II Alexandrovich Romanov (1868-1918) keisara. Brauðbylting húsmæðra í Sánkti Pétursborg og hrakfarir gegn Japönum í austri gerðu það líklega að verkum, að upp úr sauð.
Þjóðverjar sáu sér leik á borði, og hleyptu Vladimir Lenin/Vladimir Ilyich Ulyanov (1870-1924) til borgarinnar og Bandaríkjamenn Leon Trotsky/Lev Davidocich Bronstein (1879-1940). Þessir undirróðurmenn og fylgismenn þeirra, bolsévikkar, hleyptu upp byltingarstjórninni, myrtu zarinn og fjölskyldu hans. Í kjölfarið fylgdi borgarastyrjöld í Rússlandi. Vesturlönd blésu óspart í glæðurnar.
Auðævi hins víðfema Rússlands hafa ævinlega haft magnað aðdráttarafl. En það hafði reyndar einnig hugmyndafræðin um alræði öreiganna og leiðtogakenning Vladimir, þ.e. að úrval gáfumanna skyldi leiða öreigana til fyrirheitna landsins, þar sem allri kúgun væri aflétt, öreigarnir hefðu bæði til hnífs og skeiðar, hefðu nóg að bíta og brenna, og yndu glaðir við sitt, í þeirri fullvissu, að þeim væri borgið í faðmi stjórnenda sinna.
Þetta alsælufyrirkomulag, sem Karl Heinrich Marx (1818-1883) og Friedrich Engels (1820-1895), sáu í hillingum og lýst var í Kommúnistaávarpinu, var í sjálfu sér þekkt hugmyndafræði frá miðöldum, sbr. jafnaðardraumórasamfélög auðkýfinganna, Claude-Henri de Rouvroy, Comte de Saint-Simon (1760-1825), Robert Owen (1771-1858) og Francois-Marie-Charles Fourier (1772-1837).
Í þessu sambandi og með tilliti til þróunar fasisma, nasisma og tækniauðræðis á líðandu stundu, mætti til skilningsauka nefna verkalýðshyggju Georges Eugéne Sorel (1847-1922). Hann var franskur heimspekingur og verkfræðingur, sem boðaði eignarhald verklýðsfélaga á atvinnutækjunum (syndicalism), aðdáandi fasisma Benito Mussolinis (1883-1945). Það var einmitt Benito sem talaði um samvinnuríkisvaldið (corporate state), þ.e. samvinnu fyrirtækja og stjórnmálamanna. Það er grundvallarhugmyndafræði þjóðernisjafnaðarstefnunnar (nationalsozialismus), ríkisauðvaldsstefnunnar (state capitalism) og sameignarfélags auðdrottna og ríkisvalds (public-private partnership).
Fyrrgreindir hugsjónaauðjöfrar reyndu að láta samfélagsdrauma sína rætast, en án árangurs. Karl og Friedrich leituðu skýringa og gripu í því skyni til framvindukenninga um mannsandann, sem runnar voru undan rifjum þýska heimspekings, Georg Wilhelm Friedrich Hegel (1770-1831). Sá mikli hugsuður taldi menningu heimsins hafa náð hæstum hæðum, þegar hann barði augum franska keisarann, Napoleon Bonaparte (1769-1821), ríða inn í Jena á glæstum, hvítum stóðhesti.
Karl og Friedrich litu hins vegar svo á, að hreyfiafl sögunnar væri framleiðsluhættirnir eða eignarhald á þeim. Þeir töldu, að innbyggðar andstæður í auðvaldsskipulaginu myndu sjálfkrafa verða því að fjörtjóni í fyllingu tímans, á æðsta stigi þess.
Rússneskir byltingarmenn sáu vitanlega í hendi sér, að slík skilyrði væru ekki til staðar í Rússlandi. Í þessu ljósi má skilja velvilja gagnvart iðnjöfrum og fjármagnseigendum Vesturlanda og fyrirgreiðslu þeirra. Í raun réttri má líta á þetta fyrirkomulag, þ.e. þegar úrval öreiganna stjórnar atvinnulífi með hjálp fjármagnseigenda sem eins konar sameignarfélagi (corporate socialism).
Þetta fyrirkomulag hefur eins og drepið var á, gengið í endurnýjun lífdaganna undir heitinu blandað eignarhald hins opinbera og einkageirans (private-public ownership), sem auðkýfingar Vesturlanda, Sþ og Alheimsefnahagsráðið (World Economic Forum) hafa tileinkað sér í ríkum mæli. Það má t.d. sjá við framleiðslu lyfja og bóluefna.
Í sjálfu sér skeyta auðdrottnar ekkert um hugmyndafræði. Það vakir yfirleitt fyrir þeim að afla fjár, að mata krókinn. Því er engin mótsögn í því, að milli stríða og þegar að önnur heimsstyrjöldin hafði skollið á, græddu sömu aðiljar beggja vegna víglínunnar.
T.d. fjárfestu bandarískir iðnjöfrar bæði í Rússlandi og Þýskalandi. Henry Ford (1863-1947), sem Adolf Hitler (1889-1945) taldi læriföður sinn í mannræktarfræðum (eugenics), reisti bílaverksmiðjur í landi lærisveins síns og einnig í Rússlandi á fjórða áratugi síðustu aldar. Adolf veitti Henry meira að segja orðu, svo hugfanginn var leiðtoginn af hugmyndafræðinni.
Iðnjöfurinn, William Averell Harriman (1891-1986), sendiherra Bandaríkjanna í Mosku, síðar borgarstjóri í Nýja Jórvík (NY) og einn tíu utanríkismálavitringa (The Wise Men) Bandaríkjanna, var í miklu dálæti hjá úrvalsmönnum rússneska byltingarflokksins.
Í meðmælabréfi frá Franklin Delano Roosevelt (1882-1945) til Joseph Vissarionovich Stalin (1878-1953), aðalritara Kommúnistaflokksins, segir: Ég er þess fullviss, að opnast munu leiðir til að útvega það (material and supplies), sem duga má til að berja á Hitler á öllum vígstöðvum, þínum meðtöldum. Franklin talar einnig um hetjulegar varnir sovéska hersins. Nokkrum árum síðar ráðgerðu Bandaríkjamenn kjarnorkuvopnaárás á þessa vini sína í austrinu.
Averell hafði fjárfest ógnarlegum upphæðum í málmvinnslu. En þegar Joseph sagði samningum við hann upp, í þeirri viðleitni að draga úr fjárfestingum erlendra aðilja, voru fjárfestingarnar endurgreiddar með rausnarlegum hætti. Avarell bar hvergi skarðan hlut frá borði.
Annar auðjöfur skipar eftirminnilegan sess í sögu millistríðsáranna, Gerard Swope (1872-1957), forstjóri General Electric. Hann er heilinn á bak við svokallaða Swope áætlun, sem fól m.a. í sér New Deal hugmyndafræði Frank Roosevelt, þ.e. samvinnu auðjöfra og ríkisvalds í atvinnumálum.
Sömu auðjöfrar fjármögnuðu einnig Hina nýju skipan Adolf Hitler, sem sótti bæði innblástur í þessu efni til Rússa og Benito Amilcare Andrea Mussolini (1883-1945), sem rak ítalsk samfélag samkvæmt sams konar fyrirkomulagi, sameignarríkinu (corporate state). Svipað fyrirkomulag er nú kallað public-private partnership. Gerard Swope tók einnig þátt í fjármögnun þýskra nasista og rafvæðingu Ráðstjórnarríkjanna.
Þekkt er einnig þátttaka John Pierpoint Morgan (1837-1913), sem fjármagnaði svonefnda Dawes áætlun (Dawes Plan) frá árinu 1924, svo endurreisa mætti iðnað Þýskalands, eftir fyrsta heimsstríð. Þess má geta, að J.P. Morgan menntaðist m.a. við háskólann í Göttingen, Þýskalandi. Umrædd áætlun er kennd við Charles Gates Daws (1865-1951), bandarískan bankamann og síðar varaforseta þjóðar sinnar og friðarverðlausahafa Nóbels).
Fjórum árum síðar fylgdi í kjölfarið svokölluð Young áætlun, kennd við Owen D. Young (1874-1962), forstjóra General Electric, hafði forgöngu um auknar lánveitingar til Þjóðverja, samhliða lækkun þeirra stríðsskaðabóta, sem ákveðnar voru í Versalasamningunum. Áætlunin kvað einnig á um brottflutning erlends herafla frá þýskri grundu og stofnun ofuralþjóðabanka, sem enn lifir góðu lífi, Bank for International Settlements. Þegar lánabrunnurinn þornaði upp í heimshreppunni um 1930 fór Þýskaland aftur á hvolf.
https://www.presidency.ucsb.edu/documents/letter-introducing-w-averell-harriman-stalin https://www.history.com/topics/19th-century/manifest-destiny https://www.history.com/topics/19th-century/mexican-american-war https://www.youtube.com/watch?v=26raYPP4n7Q https://www.history.com/this-day-in-history/u-s-takes-possession-of-alaska https://www.smithsonianmag.com/history/how-the-louisiana-purchase-changed-the-world-79715124/ https://www.britannica.com/biography/James-Monroe https://www.britannica.com/event/Monroe-Doctrine https://spartacus-educational.com/GERfunk.htm https://www.bis.org/ https://history.state.gov/milestones/1914-1920/paris-peace https://history.state.gov/milestones/1921-1936/dawes#:~:text=Under%20the%20Dawes%20Plan%2C%20Germany's,currency%2C%20the%20Reichsmark%2C%20adopted. https://propagandainfocus.com/wall-street-the-nazis-and-the-crimes-of-the-deep-state/ https://alphahistory.com/coldwar/truman-doctrine/ https://www.history.com/news/world-war-i-russian-revolution https://propagandainfocus.com/wall-street-the-nazis-and-the-crimes-of-the-deep-state/ https://propagandainfocus.com/in-a-compromised-media-environment-western-intelligence-agencies-escalate-natos-proxy-war-in-ukraine-unchallenged/ https://thegrayzone.com/2022/04/01/war-us-weaponized-ukraine-russia/ https://thegrayzone.com/2022/11/03/british-spies-terror-army-ukraine/ https://jackmurphywrites.com/169/the-cias-sabotage-campaign-inside-russia/ https://www.mintpressnews.com/facebook-fact-checking-organizations-ukraine-funded-washington/281618/ https://responsiblestatecraft.org/2023/02/21/we-made-putin-our-hitler-zelensky-our-churchill-and-the-media-fell-in-line/ https://www.britannica.com/event/Truman-Doctrine https://kitklarenberg.substack.com/p/anatomy-of-a-coup-how-cia-front-laid?utm_source=profile&utm_medium=reader2
Iðnaðarnasistarnir voru potturinn og pannan í ofuralþjóðabankanum í Sviss (Bank for International Settlements), sem stofnaður var m.a. að undirlagi bandaríska seðlabankans (Federal Reserve), samkvæmt Young áætluninni. Þar var hluti Gyðingagullsins síðar geymdur.
Einn þessara nasista var gullintannarbankamaðurinn, hagfræðingurinn og ráðgjafi Adolf Hitler, Walther Funk (1890-1960), síðar efnahagsráðherra Þýskalands og bankastjóri seðlabanka þess. Hann er kunnur fyrir að hreinsa gull úr tönnum fanga í útrýmingarbúðum nasista. Bandaríkjamenn komust yfir verulegan hluta Gyðingagullsins með hjálp leyniþjónustu nasista, sem þeir áttu góða samvinnu við. Þýfið skilaði sér aftur sem Marhall aðstoð til Íslands og annarra Evrópuríkja.
Auðjöfrum Bandaríkjanna óx svo ásmegin í fyrsta heimsstríði, að þeir sóttu fram bæði á alþjóðavettvangi og á heimavelli. Á kreppuárunum lögðu þeir á ráðin um stjórnarbyltingu í Bandaríkjunum sjálfum, vildu nýta eigin kreppu út í ystu æsar.
Gróðafíkn og tvískinnungur auðjöfranna og sjóða þeirra var reyndar í fullu gildi síðar í öðru heimsstríði, Kóreu og Víetnam stríðunum og reyndar í flestum stríðum og vopnaskaki síðan. Það má færa gild rök að því, að sömu fjármagnstæknilegu bolabrögð gildi sömuleiðis í veirustríðinu, sem háð er um þessar mundir.
Þegar Stalin, Churchill og Roosewelt höfðu samið um skiptingu heimsins, að öðru heimsstríði loknu, sótti hið nýja heimsveldi stöðugt í sig veðrið í öllum heimsálfum. Þeir tóku nú að ástunda leynihernað í áður óþekktum mæli. Leyniþjónusta þeirra var stofnuð árið 19 . Hún hefur unnið margt myrkraverkið víða um heim og lætur hvergi deigan síga. Hún vinnur að sumu leyti eftir fyrrgreindu sameignarfyrirkomulagi. Undirróður, uppreisnir, uppþot og önnur myrkraverk eru oft og tíðum unnin í samvinnu við auðjöfra og sjóði þeirra. Þar ber nafn George Soros hátt.
Upplýsingahernaður þeirra jókst einnig stig af stigi, því með einhverjum hætti þurfti að réttlæta myrkraverkin fyrir bandarískum skattgreiðendum og alþjóðasamfélaginu. Samuel Huntington afhjúpaði þá staðreynd, að frásögnin um kalda stríðið hefði verið samin í áróðursskyni til að réttlæta bandarísku heimsvaldastefnuna og reyndar einnig til að skapa skelfingu á Vesturlöndum.
Samuel sagði: Það verður að haga sölu [íhlutunar í málefni annarra ríka], svo fólk ruglist í ríminu og haldi, að barist sé við Ráðstjórnarríkin (Sovét-). Það er einmitt það, sem Bandaríkin hafa stundað, síðan Truman stefnan (Truman Doctrine) sá dagsins ljós. (Truman Doctrine er sú stefna bandarískra stjórnvalda að veita aðstoð hverju því lýðræðisríki, sem þau teldu ógnað af byltingaröflum. Þinginu var kynnt hernaðar- og fjármagnsaðstoð til Grikklands og Tyrklands árið 1947 til að kæfa uppþot almennings, sem Harry S. Truman (1884-1972), Bandaríkjaforseti, sagði að undirlagi Ráðstjórnarríkjanna. Ætlunarverkið var að efla frið, frelsi og lýðræði, eins og Joseph Biden gerir nú í Úkraínu, með dyggum stuðningi Íslands og annarra Evrópuríkja.)
Samfara upplýsingahernaði voru njósnir elfdar til muna. Það átti sér uppruna í Atlantic Charter, sem Churchill og Roosevelt komu sér saman um, en þróaðist í samstarf milli fleiri ríkja í Evrópu og Eyjaálfu. Það er stundum kallað Fimmaugna (Five Eyes) njósnasamstarfið. Með stofnun CIA og FBI má segja, að bandaríska öryggisríkið (seccurity state) hafi verið komið á koppinn.
Á Íslandi var kaldastríðsógnin kölluð Rússagrýlan. Einnig hún er endurvakin. Meira að segja fluggáfað og menntað fólk hræðist hana enn. Enda er ætlunum að firra borgaranna dómgreind og gagnrýninni hugsun, rétt eins og tekist hefur með veirugrýlunni. Við lifum á afturgöngu- og tröllatímum.
Það var engu líkara en Bandaríkjaforsetar væru í samkeppni um fjölda myrkraverka. Eisenhower lagði blessun sína yfir 104 leyniaðgerðir í fjórum álfum á átta árum, John F. Kennedy sló honum við með 163 aðgerðum á þriggja ára tímabili.
Það var með skírskotun til Rússagrýlunnar að Bandaríkin gengust fyrir stofnun Norður Atlantshafsbandalagsins (Nato North Antlantic Trety) árið 1949. Íslendingar hoppuðu á vagninn, þrælslundin leyndi sér ekki, enda hafði þjóðin búið við nýlendukúgun um aldir og hersetu Breta og Bandaríkjamanna í áratug eða svo.
Það fór með hana eins og fangann, sem var látinn laus úr langri fangavist. Hann vildi heldur helsi en frelsi. í Á Íslandi er Nató kallað varnarbandalag, svo sauðsvartur almúginn velkist ekki í vafa um tilgang þess.
Sþ voru stofnaðar 1945. Kurt Waldheim, fyrrum leyniþjónustumaður úr þýska hernum, var gerður að aðalritara þeirra á tímabilinu 1972-1981.
https://www.presidency.ucsb.edu/documents/letter-introducing-w-averell-harriman-stalin https://www.history.com/topics/19th-century/manifest-destiny https://www.history.com/topics/19th-century/mexican-american-war https://www.youtube.com/watch?v=26raYPP4n7Q https://www.history.com/this-day-in-history/u-s-takes-possession-of-alaska https://www.smithsonianmag.com/history/how-the-louisiana-purchase-changed-the-world-79715124/ https://www.britannica.com/biography/James-Monroe https://www.britannica.com/event/Monroe-Doctrine https://spartacus-educational.com/GERfunk.htm https://www.bis.org/ https://history.state.gov/milestones/1914-1920/paris-peace https://history.state.gov/milestones/1921-1936/dawes#:~:text=Under%20the%20Dawes%20Plan%2C%20Germany's,currency%2C%20the%20Reichsmark%2C%20adopted. https://propagandainfocus.com/wall-street-the-nazis-and-the-crimes-of-the-deep-state/ https://alphahistory.com/coldwar/truman-doctrine/ https://www.history.com/news/world-war-i-russian-revolution https://propagandainfocus.com/wall-street-the-nazis-and-the-crimes-of-the-deep-state/ https://propagandainfocus.com/in-a-compromised-media-environment-western-intelligence-agencies-escalate-natos-proxy-war-in-ukraine-unchallenged/ https://thegrayzone.com/2022/04/01/war-us-weaponized-ukraine-russia/ https://thegrayzone.com/2022/11/03/british-spies-terror-army-ukraine/ https://jackmurphywrites.com/169/the-cias-sabotage-campaign-inside-russia/ https://www.mintpressnews.com/facebook-fact-checking-organizations-ukraine-funded-washington/281618/ https://responsiblestatecraft.org/2023/02/21/we-made-putin-our-hitler-zelensky-our-churchill-and-the-media-fell-in-line/ https://www.britannica.com/event/Truman-Doctrine https://kitklarenberg.substack.com/p/anatomy-of-a-coup-how-cia-front-laid?utm_source=profile&utm_medium=reader2
Bloggar | 22.9.2024 | 11:42 (breytt kl. 11:43) | Slóð | Facebook
Stórsókn bresk-bandaríska auðvaldsins helst í hendur við þróun stjórnmála Bandaríkjanna innan lands og utan. Iðnaðarauðvald Norðurríkjanna færðist í aukana. Hún endurspeglast í stefnu James Monroe (1758-1831), Bandaríkjaforseta, frá 1823, sem m.a. segir, að litið yrði á ásókn Evrópuríkja á vesturhveli jarðar sem fjandskap gegn Bandaríkjunum. Þessi stefna markaði átök við evrópsku nýlenduveldin í Ameríku, Rússland, Frakkland, Spán og Bretland sjálft. Það leiddi sem kunnugt er til borgarastríð árið 1861.
Hugur auðdrottna og stjórnvalda, stóð til landvinninga. Thomas Jefferson (1743-1826), keypti Louisaina af Frökkum (1803), og sagði Spánverjum stríð á hendur. Flórída var innlimað 1845.
En græðgi eftir landi og auðlindum var óseðjandi. Bandaríkin og auðkýfingar þeirra höfðu augastað á spænsku nýlendunum, sem nú voru orðnar Mexíkó. James Knox Polk (1795-1849) taldi það guðleg forlög Bandaríkjamanna að þenja út ríkið og boða lýðræði og auðvaldsskipulag (capitalism) um alla álfuna, þ.e. Norður-Ameríku. Stefna var kölluð, Yfirlýst örlög (Manifest Destiny), mótuð árið 1845.
James Polk innlimaði Texas (sjálfstætt ríki 1936) og bar víurnar í Oregon, Kaliforníu , Utah, Nevada, Arizona og Nýju-Mexíkó. Mexíkó þráaðist við að selja. Bandaríkjamenn plægðu jarðveginn fyrir vopnaskak, samkvæmt Bandaríkjaforseta, Hiram Ulysses S. Grant (1822-1885). Í kjölfar þess sögðu Bandaríkin grönnum sínum stríð á hendur árið 1846. Stríðið stóð til 1848, þegar friðarsamningur (treaty) var gerður í Guadalupe Hidalgo.
Útþenslustefna Bandaríkjanna kemur greinilega fram í orðum utanríkisráðherra þeirra, William Henry Seward (1801-1872), árið 1848. Það eru forlög þjóðar okkar að streyma sem óstöðvandi flóðbylgjur væru í átt að ísflákum (ice barriers) norðursins og eiga stefnumót við menningu Austurlandabúa á ströndum Kyrrahafsins. Enda fór það svo, að Andrew Johnson (1808-1875), Bandaríkjaforseti, Alaska af Rússum (1867).
Þegar þjóðir indíána höfðu verið gersigraðar af sameinuðum ríkjum Norður-Ameríku (að Kanada undanskildu) og fluttar úr heimahögum sínum, samkvæmt löggjöf (Indian Removal Act) Andrrew Jackson (1808-1875), voru lögð á ráðin um alþjóðlega útþenslustefnu, þ.e. heimsvaldastefnu Bandaríkjanna. Hún fékk byr undir báða vængi í heimsstyrjöldunum tveim og kristallaðist í stefnu Harry S. Truman (1884-1972).
Smiðshöggið á útþenslustefnu Bandaríkjanna í Vesturálfu var rekið með stríðinu við spænska heimsveldið. Það hófst árið 1898. Lok stríðsins mörkuðu dauða þess. Ránsfengur Bandaríkjamanna var ríkulegur. Bandaríkjamenn fóru að eins og í stríðinu við Mexíkó. Tylliástæða bandarískra afskipta var sú, að bandaríska herskipinu, USS Maine, var sökkt í höfninni í Havana á Kúbu. Þegar Bandaríkjamenn viðurkenndu sjálfstæði Kúbu, var Spánverjum nóg boðið og lýstu yfir stríði. Henni var svarað með stríðsyfirlýsingu af hendi William McKinley (1843-1901) Bandaríkjaforseta. (William McKinley er einn þeirra forseta Bandaríkjanna, sem fallið hafa fyrir hendi morðingja.)
Sigur á evrópsku nýlenduveldunum og frumbyggjunum, samfara landakaupum og landvinningum í Vesturálfu, auðgaði Bandaríkin svo um munaði. Því var gósentíð hjá bresk-bandaríkja iðn- og fjármagnsauðvaldinu í City of London og Wall Street. En græði þeirra var enn ekki södd. Fyrsta og önnur heimsstyrjöldina eins og hin þriðja, sem er yfirvofandi buðu ný auðgunartækifæri.
https://www.presidency.ucsb.edu/documents/letter-introducing-w-averell-harriman-stalin https://www.history.com/topics/19th-century/manifest-destiny https://www.history.com/topics/19th-century/mexican-american-war https://www.youtube.com/watch?v=26raYPP4n7Q https://www.history.com/this-day-in-history/u-s-takes-possession-of-alaska https://www.smithsonianmag.com/history/how-the-louisiana-purchase-changed-the-world-79715124/ https://www.britannica.com/biography/James-Monroe https://www.britannica.com/event/Monroe-Doctrine https://spartacus-educational.com/GERfunk.htm https://www.bis.org/ https://history.state.gov/milestones/1914-1920/paris-peace https://history.state.gov/milestones/1921-1936/dawes#:~:text=Under%20the%20Dawes%20Plan%2C%20Germany's,currency%2C%20the%20Reichsmark%2C%20adopted. https://propagandainfocus.com/wall-street-the-nazis-and-the-crimes-of-the-deep-state/ https://alphahistory.com/coldwar/truman-doctrine/ https://www.history.com/news/world-war-i-russian-revolution https://propagandainfocus.com/wall-street-the-nazis-and-the-crimes-of-the-deep-state/ https://propagandainfocus.com/in-a-compromised-media-environment-western-intelligence-agencies-escalate-natos-proxy-war-in-ukraine-unchallenged/ https://thegrayzone.com/2022/04/01/war-us-weaponized-ukraine-russia/ https://thegrayzone.com/2022/11/03/british-spies-terror-army-ukraine/ https://jackmurphywrites.com/169/the-cias-sabotage-campaign-inside-russia/ https://www.mintpressnews.com/facebook-fact-checking-organizations-ukraine-funded-washington/281618/ https://responsiblestatecraft.org/2023/02/21/we-made-putin-our-hitler-zelensky-our-churchill-and-the-media-fell-in-line/ https://www.britannica.com/event/Truman-Doctrine https://kitklarenberg.substack.com/p/anatomy-of-a-coup-how-cia-front-laid?utm_source=profile&utm_medium=reader2
Sá merki maður, Íslandsráðherra m.m., Einar Arnórsson (1880-1955), þingmaður Sjálfstæðisflokks, reit í Árbók Háskólans árið 1934:
Þjóðabandalagið er stofnað mest fyrir atbeina Wilsons Bandaríkjaforseta, sem virðist hafa verið bjartsýnn maður á eðli stjórnmálanna í framtíðinni, en ekki að sama skapi slyngur til ráðagerða eða skipulagningar. Ber Þjóðabandalagið þess ýmsar minjar.
En auk þessa hefur það í framkvæmdinni oft gert meira í því að sýnast en vera. Það hefur að vísu gert ýmislegt þarfleg og gott, en höfuðtakmarki sínu, að halda upp friði milli ríkja og draga úr herbúnaði, hefur það alls ekki náð, og engar líkur til þess, að það nái því um langan aldur, þó að það kunni að halda tilvist sinni áfram, sem ýmsir eru nú teknir að efast um.
Meðan styrjöldin mikla stóð, var mönnum miklu ljósara en áður, hver nauðsyn á því væri, að komið yrði í veg fyrir styrjaldir framvegis. Hörmungar styrjaldarinnar vöktu þá hugsun með mörgum hugsandi mönnum.
Samkvæmt a-lið 23.gr. sm. Eiga meðlimir bandalagsins að leitast við að tryggja mönnum, konum og börnum, sanngjörn og mannúðleg vinnukjör, bæði í sínum eigin löndum og í löndum, er þeir hafa verzlunar eða fjármálaskipti við, og að stofna og halda við nauðsynlegri milliríkjastofnun í þessu skyni.
Töluverð umræða um Þjóðabandalagið, eðli þess og hlutverk, átti sér stað á Alþingi Íslendinga. Annar merkur maður, Einar Olgeirsson (1902-1993), síðast þingmaður Alþýðubandalags, lagði t.d. þessi orð í belg (Skrípaleikur Þjóðabandalagsins. Rjettur 1928: 13. árg. 2. hefti):
Svo sem kunnugt er, hefur þjóðabandalagið það hlutverk á höndum fyrir stórveldin, að dylja sem best að hægt er með fögrum nöfnum og fríðum loforðum alt hið ófagra framferði verstu kúgara heimsins. Eitt af þeim hlutverkum, sem það nú mest fæst við og gengur erfiðlegast, er að dylja hinn augljósa undirbúning undir nýjar styrjaldir, sem stórveldin reka af kappi.
Þjóðabandalaginu er falið að reyna að leiða athygli lýðsins, sem síðar skal leiddur á blóðvöllinn, frá herbúnaðinum, með því að hjala svo hátt um frið, að skvaldur hinna herklæddu friðarengla yfirgnæfi hávaða vopnaverksmiðjanna. Því svívirðilegri sem tilgangurinn er, því slóttugri verða brögð þessara herra.
Þegar svæfa skal meðvitund þjóðanna fyrir hinum nýju ógnum, er bíða þeirra, grípa þeir einmitt til þess að misnota hina heitu þrá allra þeirra eftir friði, sem kvalist hafa í síðasta stríði, sem mist hafa sína nánustu og aldrei geta hugsað til annara eins skelfinga á ný.
Þessum er talin trú um að þjóðabandalagið sje að berjast fyrir heitustu ósk þeirra, blöðin endurtaka sömu blekkingarnar, rósamál .deyfa skynsemi þeirra og þannig er fjöldinn blindaður uns valdhafarnir loksins einn góðan veðurdag uppgötva, að friðurinn, sem þeir hafa verið að vernda allan þennan tíma, er í hættu vegna t.d. Rússlands (sem er eina landið, er lagði til fullkomna afvopnun) og nú þurfi allir friðelskandi menn að hætta lífi sínu í síðustu styrjöldinni, sem háð verði, styrjöldinni fyrir friðnum (eins og síðast)! Þjóðabandalagið á að vera besta tækifærið, til að svæfa fjöldann, uns næsta stríð er undir búið og það er eins og því takist allvel að leiða athygli manna frá því, að alt frá því að Versalafriðurinn var saminn, hafa stórveldin sífelt átt í ófriði við að kúga fátækar þjóðir, sem voru að berjast fyrir frelsi sínu.
Alþýðuflokksmaðurinn, Haraldur Guðmundsson (1892-1971), var afar andsnúinn aðild að Þjóðabandalaginu. Hann sagði:
En hitt er augljóst, að Þjóðabandalagið er ekkert annað en hernaðarbandalag stórvelda Vestur-Evrópu undir forustu Breta. Annarsvegar er því beint gegn Bandaríkjum Norður-Ameríku, hinsvegar gegn ráðstjórnarríkjunum, og er það aðalhlutverk þess að reyna að brjóta kommúnismann á bak aftur. Þeir, sem ekki sjá slíkt, eru annaðhvort haldnir brezkum anda eða blindaðir af friðarglamri borgaralegra hræsnara.
Ísland væri því fríviljuglega að ofurselja sig þessum stórveldum, ef það ætlaði að ganga í þetta bandalag. ... Þar sem öllum sjáandi mönnum er vitanlegt, að stríðshættan vex nú með degi hverjum, er það hreinn glæpur að ætla að fleka Ísland til að gefa upp hlutleysi sitt, ganga í hernaðarbandalag og draga landið þannig inn í næsta heimsófrið, sem auðvaldsríkin efna til.
Að gefa upp það eina, sem Ísland hefir þó verndað á öllum sínum þrengingartímum. Það að vera friðarríki út á við þrátt fyrir allan styr innanlands. ... Allt hneyksli hátíðar þeirrar, sem í hönd fer, er smáræði hjá því, ef Ísland yrði tekið í Þjóðabandalagið.
Það er skylda allrar alþýðu að hugsa það mál rækilega, hvort Íslandi á að reyna að vera til sem friðarríki að nafninu til að minnsta kosti, eða hvort við eigum að leggja okkur af frjálsum vilja undir járnhæl stórveldabandalagsins og gera af fúsum vilja landið að blóðvelli þess, hvenær sem Bretar bjóða.
Það er skylda allra hugsandi manna að mótmæla einum rómi, svo máttugt, að hlýða verði rödd þeirri, þeim höfuðglæp, sem á að kóróna kúgun og svívirðingu síðustu 1000 ára, að gefa upp hlutleysi Íslands til að fylkja því af frjálsum vilja inn í fjandaflokk auðvaldsbandalagsins gegn hinum uppvaxandi frjálsu alþýðuríkjum heimsins, ráðstjórnarríkjunum.
Hvorki Bandaríkjamenn eða Íslendingar urðu þó aðiljar að Þjóðabandalaginu. En nafnarnir, Olgeirs og Arnórssynir, reyndust fremur sannspáir. Sigurvegararnir fyrstu heimsstyrjaldar fóru í öllum aðalatriðum sínu fram, deildu saman og drottnuðu, drógu upp landamæri samkvæmt hagsmunasamkomulagi sínu á milli í öllum heimsins álfum, fóru með stjórnun landa og heimshluta (mandate system) og héldu yfirráðum yfir flestum nýlendnanna.
Það mun óhætt að fullyrða, að Þjóðabandalagið hafi að miklu leyti plægt jarðveginn fyrir þær hörmungar mannkyns, sem við búum við í dag. Enn er til að mynda barist um olíuauðlindir í Miðausturlöndum og Litlu-Asíu/Evróasíu/Kákasus. Í þessum skrifuðu orðum hersitja Bandaríkjamenn olíuauðugasta hluta Sýrlands. Þeir reyndu árangurslaust að kollvarpa stjórn Írans og Georgíu. Bretar og Bandaríkjamenn tóku Írak herskildi eins og kunnugt er.
Á millistríðsárunum, sem svo eru kölluð, vígbjuggust stórveldin, Auðdrottnar hins nýja stórveldis og heimsveldis í burðarliðnum, Bandaríkjanna, sáu sér leik á borði og fjárfestu ótæpilega í iðnaðaruppbyggingu Þýskalands. Eins og oft áður var talað tveim tungum og margir voru tvöfaldir í roðinu.
Einar Olgeirsson sagði á þessum árum: Það hefir ennfremur gerzt nú á síðustu árunum, að úr Þjóðabandalaginu hafa farið þau ríki, sem nú þegar eru komin á kaf í blóðugar styrjaldir og búast nú óðum við nýrri heimsstyrjöld, --- þau ríki, sem með hernaðarbrölti sínu og harðstjórn hafa sett sig út úr menningarlegu sambandi þjóðanna, svo sem Þýzkaland, Japan og Ítalía. Það síðast talda er að vísu ennþá meðlimur Þjóðabandalagsins, en hagar sér eins og það væri þegar gengið úr því.
Árið 1930 var Þjóðabandalagið samband auðvaldsríka, með Bretland í broddi fylkingar, og notað sem verkfæri til þess að halda þeim þjóðum niðri, er undir höfðu orðið í heimsstyrjöldinni, og til þess að sameina krafta auðvaldsríkjanna gegn sovétríkjunum. Að sjálfsögðu hlaut þá afstaða verkalýðshreyfingarinnar í heiminum að vera sú, að berjast á móti hinum ríkjandi öflum í Þjóðabandalaginu. Síðan hefir viðhorfið gerbreytzt.
Baráttan stóð þá fyrst og fremst milli verkalýðs og auðvalds, sósíalisma og kapítalisma. Nú stendur baráttan í heiminum fyrst og fremst milli fasismans og lýðræðisins, milli fasistaríkjanna annarsvegar og borgaralegra og sósíalistískra lýðræðisríkja hinsvegar.
Nú er svo komið, að Bandaríki Norður-Ameríku virðast tilleiðanleg til náins samstarfs við Þjóðabandalagið, og síðast en ekki sízt eru sovétríkin nú orðin meðlimur þess. Þjóðabandalagið er að verða samband þeirra afla í heiminum, sem vilja frið og framfarir.
En svo fór þó ekki. Ný lýðræðisleg þjóðernisstjarna reis í Þýskalandi, m.a. fyrir tilstuðlan fjármagnseigenda og iðnjöfra Vesturlanda, nasistaforinginn Adolf Hitler (1889-1945).
Það átti eftir að koma í ljós, að Þjóðverjar tileinkuðu sér það besta úr tækni andstæðinganna. Áróðurstækni er þar meðtalin. Friður var úti og Þjóðabandalagið dó drottni sínum.
https://www.breitbart.com/environment/2023/02/15/u-n-chief-guterres-warns-of-mass-climate-exodus-on-a-biblical-scale/ https://www.britannica.com/event/Peace-of-Westphalia https://www.historytoday.com/archive/months-past/treaty-westphalia https://reclaimthenet.org/un-says-that-censoring-disinformation-will-protect-free-speech https://www.tv4.se/artikel/12XMxo8NdUhochVvvJV15z/kritik-mot-fn-ukrainachefen-foer-unhcr-tjaenar-enorma-summor?utm_medium=social&utm_source=t.co&utm_campaign=kallafakta https://www.history.com/topics/world-war-i/treaty-of-versailles-1 https://www.bbc.co.uk/history/worldwars/wwone/league_nations_01.shtml https://www.history.com/this-day-in-history/wilson-delivers-fourteen-points-speech https://www.history.com/topics/world-war-i/league-of-nations https://www.youtube.com/watch?v=wr5MBrvnPLw https://www.visindavefur.is/svar.php?id=10568 https://www.althingi.is/altext/52/r_txt/2400.txt https://www.althingi.is/altext/cv/is/?nfaerslunr=119 https://www.althingi.is/altext/cv/is/?nfaerslunr=130 https://www.althingi.is/altext/cv/is/?nfaerslunr=237 https://www.evropuvefur.is/svar.php?id=66226 https://timarit.is/page/4915970#page/n115/mode/2up
Það líður varla sá dagur, að Sameinuðu þjóðirnar (Sþ) séu ekki nefndar á nafn. Tíðindi úr herbúðum þeirra hafa oft og tíðum yfir sér guðlegan sannleiksblæ. Enda ýta embættismenn þeirra undir slíkan skilning. Einn þeirra sagði t.d. Sþ eiga loftlagsvísindin. Anthony Fauci, fyrrum heilbrigðiseinvaldur Bandaríkjanna og innsti koppur í einni undirstofnanna hennar, Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni, sagði árás á sig jafngild árás á vísindin. Embættismaður Sþ lét sér þau orð um munn fara, að Vladimir Putin hefði séð rússneskum (karl)hermönnum fyrir stinningarlyfi til að auðvelda þeim nauðgun úkraínskra kvenna. Undirstofnun þeirra er ábyrg fyrir skilgreiningu gervialþjóðafaraldurs og önnur fyrir gervihamfarahlýnun. Þriðja undir stofnunin boðar aðgerðir gegn hatursorðræðu og falsfréttum til að tryggja málfrelsi og rétt viðhorf. Aðalritari þeirra boðar ragnarök, hvenær sem færi gefst. Hjá Sþ fer nú fram umræða um að myrkva himininn til að verjast loftlagsbreytingum. Aðalritarinn og Öryggisráðið heykjast við að bera klæði á vopnin í Úkraínustríðinu og láta rannsaka hryðjuverkin í Eystrasalti. Launaspilling þrífst. Hver er trúverðugleiki Sþ.?
Hér verður fjallað um forsögu Sþ til að glöggva okkur betur á trúverðugleika, skipulagi og starfsháttum.
Í Evrópu miðalda voru háð látlaus stríð öldum saman. Þekkt eru t.d. áttatíu ára stríðið og þrjátíu ára stríðið. Um 8 milljónir manna voru lögð að velli. Árið 1648 tókust sögulegir friðarsamningar, kenndir við Westphalen í Þýskalandi. Hvorki meira né minna en 194 ríki tóku þátt.
Það fór ekki hjá því, að vitrir menn reyndu að gera sér í hugarlund, hvernig mætti tryggja frið og komast hjá stríðshörmungunum. Evrópuhugsjónin varð til. Kjarni hennar er fullveldi ríkja innan viðurkenndra landamæra.
Hinn ágæti sagnfræðingur, Guðmundur Hálfdánarson, segir svo frá á Vísindavefnum:
Á 17. öld, þegar nútímalegt ríkjaskipulag festi sig í sessi í álfunni, komu fram nýjar hugmyndir um sameiningu Evrópu. Einn helsti frumkvöðull þeirra var franski klerkurinn og stjórnarerindrekinn Charles-Irénée Castel de Saint-Pierre (16581743), sem gaf út ritið Projet pour rendre la paix perpétuelle en Europe (Áætlun um að koma á varanlegum friði í Evrópu) árið 1713 (frumútgáfa ritsins, Mémoires pour rendre la paix pérpetuelle en Europe, kom út ári áður).
Ritið skrifaði hann sem eins konar uppgjör við stjórnarár Lúðvíks XIV. Frakkakonungs (konungur 16431715), en sólkonungurinn hafði leitt miklar hörmungar yfir þegna sína og íbúa nágrannaríkjanna með stöðugu stríðsbrölti.
Til að binda endi á slíkt ástand lagði Saint-Pierre til að komið yrði á evrópsku ríkjasambandi (fr. Fédération Européenne), með aðild 18 helstu kristnu ríkja álfunnar, og Evrópuþingi (fr. Diète générale dEurope). Markmiðið var að stofna með þessu eins konar eilífan gerðardóm (fr. un Arbitrage perpétuel), sem tryggði stöðugleika í stjórn ríkjanna, kæmi í veg fyrir stríð á milli þeirra og legði grunn að frjálsum viðskiptum á milli þjóða.
Með þessu vildi hann auka velmegun þegnanna, því að aukin milliríkjaverslun örvaði efnahagslífið og meiri friður dró úr ríkisútgjöldum og þar með þörf ríkjanna fyrir skattheimtu. Ekkert varð úr þessum áætlunum, en greina má enduróm frá hugmyndum Saint-Pierres í skrifum ýmissa heimspekinga upplýsingarstefnunnar, svo sem Jean-Jacques Rousseaus og Immanuels Kants (sbr. rit hans Zum ewigen Frieden, 1795).
Ríkjasamband samkvæmt hugmyndum Charles-Irénée átti eðlilega erfitt uppdráttar í álfu, þar sem gráðugir hagsmunaaðiljar áttust við. Ásóknin í land, hlunnindi, völd og auðlindir, varð æðisgengin. Samfara nýlendustríðunum og aukinni áherslu á fullveldi þjóðríkja, jókst ásteyting á heimaslóðum Evrópuveldanna. Hildarleikur braust út í Evrópu, sem umbreyttist í fyrstu heimsstyrjöldina með þátttöku Rússa og Japana.
Trúlega hefur blóðbað og hörmungar fyrstu heimsstyrjaldarinnar fengið fólk til að rumska. Allir, nema fjármagnseigendur og hertólaframleiðendur töpuðu á slíku stríði. Sigurvegarar stríðsins settust niður og sömdu um frið í Versölum (Treaty of Versailles), glæsihöll Loðvíks XIV. Sigurvegararnir hirða allt (the winner takes it all), sungu Abba. Þau kynnu að hafa haft Versalasamningana í huga, því Þjóðverjum voru settir afarkostir og neyddir til að axla einar sök á harmleiknum.
Sumir hafa reyndar kallað þetta vopnahlé. T.d. sagði franski yfirhershöfðinginn, Ferdinand Foch (1851-1929): Þetta eru ekki friðarsamningar, heldur tveggja áratuga vopnahlé. Því miður reyndist hann sannspár.
Sigurvegarar fyrstu heimsstyrjaldar gerðu með sér bandalag, Þjóðabandalagið (League of Nations), sem koma skyldi í stað ráðstefna stórveldanna á síðmiðöldum. Þannig raungerðist hugmynd Woodrow Wilson (1856-1924), Bandaríkjaforseta, um samráðsvettvang sjálfstæðra ríkja, stórra og smárra. Þessar hugmyndir hafði hann sett fram árið 1918 í frægri fjórtán atriða ræðu, við friðarumræðurnar í Versölum.
Þjóðabandalagið skyldi annast skiptingu veraldarinnar í ríki og jafna ágreining. Það var sérstaklega tekið fram að gilda skyldu grundvallarreglur um fullvalda þjóðríki, sem virtu hvers annars fullveldi og landamæri. Hér var sem sé fylgt grundvallarreglunni frá friðarsamningunum í Westphalen árið 1648. Kveðið var á um, að hernaðarbandalög skyldu heyra sögunni til og gagnkvæm trygging öryggis koma í staðinn; afvopnun skyldi stuðla að heimsfriði og talað skyldi orðum en ekki vopnum.
En hvaða áhrif hafði stofnun Þjóðabandalagsins á Ísland?
https://www.breitbart.com/environment/2023/02/15/u-n-chief-guterres-warns-of-mass-climate-exodus-on-a-biblical-scale/ https://igorchudov.substack.com/p/the-un-discusses-darkening-the-skies?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.britannica.com/event/Peace-of-Westphalia https://www.historytoday.com/archive/months-past/treaty-westphalia https://reclaimthenet.org/un-says-that-censoring-disinformation-will-protect-free-speech https://www.tv4.se/artikel/12XMxo8NdUhochVvvJV15z/kritik-mot-fn-ukrainachefen-foer-unhcr-tjaenar-enorma-summor?utm_medium=social&utm_source=t.co&utm_campaign=kallafakta https://www.history.com/topics/world-war-i/treaty-of-versailles-1 https://www.bbc.co.uk/history/worldwars/wwone/league_nations_01.shtml https://www.history.com/this-day-in-history/wilson-delivers-fourteen-points-speech https://www.history.com/topics/world-war-i/league-of-nations https://www.youtube.com/watch?v=wr5MBrvnPLw https://www.visindavefur.is/svar.php?id=10568 https://www.althingi.is/altext/52/r_txt/2400.txt https://www.althingi.is/altext/cv/is/?nfaerslunr=119 https://www.althingi.is/altext/cv/is/?nfaerslunr=130 https://www.althingi.is/altext/cv/is/?nfaerslunr=237 https://www.evropuvefur.is/svar.php?id=66226 https://timarit.is/page/4915970#page/n115/mode/2up
Það voru ekki bara Rómverjar, sem deildu og drottnuðu. Það hafa trúlega öll stórveldi gert og allir, sem sóst hafa eftir yfirráðum í veröldinni. Það á einnig við um þessar mundir.
Árangursríkast er að hræða, hrella og smána, skapa staðalmyndir óvina. Það getur t.d. átt við fólk af öðrum kynþáttum eða jafnvel þá, sem þráast við skaðræðisbóluefnum. Hræðslan gerir okkur auðsveip gagnvart yfirvaldinu og lokar fyrir rökrásina í heilabúinu.
Þessu hljóta allir að hafa gefið gaum í veirufaraldrinum. Grundvallaraðferðin er sú sama á öllum sviðum. Líka í svokölluðu stríði menningarheima.
Stríð menningarheima boðaði bandaríski stjórnmálafræðingurinn, Samuel Philips Huntington (1927-2008), í bók sinni Átökum menningarheimanna og endursköpun veraldarinnar (Clash of Civilizations and the Remaking of World Order), þegar Ráðstjórnarríkin liðu undir lok. Menning Múhameðstrúarmanna yrði vestrænni menningu skeinuhætt, fullyrti hann.
Það sama boðaði bresk-bandaríski sagnfræðingurinn, Bernard Lewis (1916-2018). Menningu Múhameðstrúarmanna taldi hann skör lægra setta en menningu Vesturlanda. Bernard var ráðgjafi nýíhaldsstjórna (neo-consverative) í Bandaríkjunum, enda studdi hann heils hugar stríðið gegn Írökum.
Fordómar Bernard lifa góðu lífi. Það er ósjaldan kölluð byrði hvíta mannsins að koma vitinu fyrir íbúa handan aldingarðs Evrópu eins og utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, tók til orða.
Þörf Alþjóðaauðvaldsins fyrir völd og auðlindir hefur hvergi nærri verið fullnægt. Enn er seilst. Því ríður á að blekkja almúgann á Vesturlöndum, svo berja megi hann til hlýðni við árásir í austurveg. Kommagrýlan dugar enn vel gegn Rússum. Múhammeðstrúargrýlan hefur verið í mótun, áhrifamest síðasta aldarfjórðung eða svo.
Trúarbrögð og menning Múhammeðstrúarmanna koma því í brennidepil eins og þegar Írökum var att út í stríð við Írana með ógnarlegu mannfalli á báða bóga. Þá var það Sía gegn Sunni. Áður, þ.e. þegar Mohammad Reza Pahlavi (1919-1980), var steypt af stóli, beittu þeir trúarleiðtoganum, Ruhollah Musavi Khomeini (1900/1902-1989).
Þegar Bretar og Bandaríkjamenn lyftu Mohammad upp í hásætið, var lýðræðislega kjörinn forseti Írana, Mohammad Mosaddegh (1882-1967), fjarlægður. Hann gerðist svo ósvífinn að þjóðnýta olíu Írana.
Að mörgu leyfi lýsa afskipti Vesturlanda af Íran hátterni þeirra annars staðar í Vestur-Asíu og fyrir botni Miðjarðarhafs. Þessi afskipti helgast af sókn í auðlindir, en ekki hætis hót um trúarbrögð og frelsun kvenna eins og iðulega er haldið fram.
Stofnun Ísraelsríkis átti sér stað í samvinnu Evrópuþjóða, einkum Breta. Hugsunin var að stofna bækistöð eða herstöð, framvörð vestrænna auðjöfra og stjórnvalda þeirra til að tryggja yfirráð yfir auðlindunum, sérstaklega þó olíu.
Vestræn ríki mótuðu Miðausturlönd og lögðu grundvöllinn að því ósætti, sem þar ríkir. Þau deildu og drottnuðu. En nú eru líkur á, að þau verði rekin heim til sín og Ísrael líði undir lok.
Réttlætingarhugmyndafræðin fyrir stofnun Ísraelsríkis var sótt til evrópskra Síonista og heittrúaðra Kristmanna í Bandaríkjunum, sem lagt höfðu rækt við arf evrópsku Pílagrímanna. Þeir sigldu yfir hafið og stofnuðu nýlendu í Massachusetts í upphafi sautjándu aldar. Yfirgangur afkomenda þeirra og dráp á frumbyggjum Ameríku töldu þeir sjálfgefin forlög ( manifest destiny) sín. Herskáir Bandaríkjamenn eru enn haldnir þessari grillu gagnvart öllum, sem eru þeim vanþóknanlegir.
Það vill svo til, að stofnandi Bush ættarveldisins, guðfræðingurinn, George Bush (1796-1859), var einn hugmyndafræðilaukanna. Hann skrifað bókina, Hugsjónadalinn eða endurlífgun Ísraelsmanna (The Valley of Vision or the Dry Bones of Israel revived), sem kom út árið 1844.
Eins og sumir kunna skil á, sameinuðust ofsatrúarmenn Gyðinga og Kristmanna um þá túlkun Ritningarinnar, að Guð hafi gefið Ísraelsmönnum Stór-Ísrael og stuðla bæri að Ragnarökum, svo Messías mætti snúa aftur og endurbyggja betur (build back better), alveg eins og vakir fyrir Alþjóðaauðvaldinu í Alheimsefnahagsráðinu (World Economic Forum).
Sé litið til fyrrgreindra áætlana stendur nú yfir nauðsynlegt menningarstríð gegn þjóðum, sem viðurkenna Múhammeð sem spámann sinn. Um er að ræða um 50 lönd. Ekkert þeirra hefur þó lýst yfir stríði á hendur Bandaríkjamönnum eða Evrópubúum. Ei heldur stofnað bandalag til höfuðs þeim, nema síður sé.
Meira að segja Íranar rétta út sáttahönd, þrátt fyrir, að Bandaríkjamenn, Bretar og Frakkar, hafi eins og bent var á - vaðið um Miðausturlönd á skítugum skónum og egnt trúflokkum, ættbálkum og þjóðum gegn hver annarri. Þeir eru iðnir við þann kolann.
Árásirnar á tvíburaturnana í Nýju Jórvík var átyllan til stríðsins. Það er gömul brella að skapa átyllur til að réttlæta eigin stríð. Í kjölfar árásarinnar var efnt til svokallaðs Stríðs gegn hryðjuverkum, þ.e. gegn ríkjum Múhammeðstrúarmanna. Írak varð fyrsta fórnarlambið. En stríðsáætlunin náði/nær einnig til Afganistan, Jemen, Sýrlands, Palestínu og Írans.
Á slóðum Írakans, Abrahams, ættföður Ísraelsmanna, stendur sem sé yfir stríð gegn hryðjuverkaþjóðunum; Palestínumönnum, Jemenum og Líbönum. Stríðsmenn Jahve fara þar fremstir í flokki. Bandaríkjamenn og Bretar (Nató) bíða átekta, en styðja þá dyggilega með vopnum og fjármunum, auk þess að verja þá á alþjóðavettvangi.
Það hefur lækkað rostinn í Vesturveldunum, eftir að tátiljustríðsmennirnir í Jemen sendu þeim ofurhraðadrápsflaug um daginn. Loftvarnakerfið (Iron Dome) klikkaði.
Mossad, ísraelska leyniþjónustan, gæti reynt að senda Jemenum símboðasprengjur eins og Líbönum. Þeir kunna þessum sprengjum Ísraelsmanna illa. Lái þeim, hver sem vill.
https://julianmacfarlane.substack.com/p/the-me-connecting-dots?utm_source=post-email-title&publication_id=837411&post_id=149044808&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=103ae5&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.kitklarenberg.com/p/british-support-for-iran-revolution?utm_source=post-email-title&publication_id=552010&post_id=149095964&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email Moðreykur um Múhammeðstrú og djöfulsleikar í Miðausturlöndum. I: Inngangur og trúarbrögð https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2300151/ Moðreykur um Múhammeðstrú og djöfulsleikar í Miðausturlöndum. II: Fjölskyldan og samskipti kynjanna https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2300160/ Moðreykur um Múhammeðstrú og djöfulsleikar í Miðausturlöndum. III: Menning og vísindi https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2300186/ Moðreykur um Múhammeðstrú og djöfulsleikar í Miðausturlöndum. IV: Landvinningar, stjórnmál og heimsveldi https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2300250/ Moðreykur um Múhammeðstrú og djöfulsleikar í Miðausturlöndum. V: Bræðralag múslima og íslamskrar baráttuhreyfingar https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2300254/ Moðreykur um Múhammeðstrú og djöfulsleikar í Miðausturlöndum. VI: Tvöfeldni Ísraels- og Bandaríkjamanna https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2300291/ Moðreykur um Múhammeðstrú og djöfulsleikar í Miðausturlöndum. VII: Hagsmunagæsla og Ný öld Bandaríkjanna https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2300307/ Moðreykur um Múhammeðstrú og djöfulsleikar í Miðausturlöndum. VIII: Átylluárásir, stríð og hryðjuverk https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2300369/ https://www.youtube.com/watch?v=pT_moiU2WCU https://chrishedges.substack.com/p/the-systemic-roots-of-western-islamophobia?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=149064252&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email Viðbót: https://julianmacfarlane.substack.com/p/israels-crime-americas-shame?utm_source=post-email-title&publication_id=837411&post_id=149096001&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=103ae5&triedRedirect=true&utm_medium=email
I Morgunblaðinu birtist eftirfarandi frétt um fjárlagagerðina: Á næsta ári skal ausa 6.8 milljörðum í Úkraínuhítina. Markmiðið er að styðja við sjálfstæði, fullveldi, friðhelgi landamæra, öryggi borgara, mannúðaraðstoð og uppbyggingarstarf í Úkraínu.
Hvergi eru færð rök fyrir því, hvernig ógnarlegur fjáraustur úr hirslum skattgreiðenda í stríðs- og spillingarhítina i Úkraínu stuðli að mannúð og uppbyggingu. Það vita líklega allir, nema íslenskir stjórnarliðar, að fjármunir íslenskra skattgreiðenda renna til vopnakaupa og drápa fyrst og fremst á körlum Úkraínu og Rússlands.
En þetta ku vera mat íslenska utanríkisráðherrans, sem áður hefur sent skæði og sokka og prjónles til viðbótar öllum milljörðunum. Furðulegust er þó sú ráðstöfun að slita stjórnmálasambandi við Rússa og senda þotu eftir hundum og köttum.
Þórdís Kolbrún er valkyrja mikil. Hún hefur strengt þess heit að berjast, þar til yfir lýkur, þ.e. til síðasta karlmanns i Úkraínu alveg eins og ríkisstjórn Bandaríkjamanna og fleiri.
En það fýkur í flest skjól. Nató réðist inn i Úkraínu. Ekkert var talað um brot á alþjóðalögum af því tilefni. Natóliðið er nú sundurskotið eins og undravopnið, F16, sem barst að vestan. Volodymyr suðar eins og randafluga og biður um langdrægari drápsflaugar. Hann virðist enn halda, að með því að drepa almenna borgara í Rússlandi stuðli hann að falli Vonda-Valda. Það dreymir marga vota drauma um það. Honum verður seint fyrirgefið að reisa Rússland úr þeirri öskustó, sem Alþjóðaauðvaldið hafi valið því. Þvert á móti eflast Rússar við hverja raun.
Rússneskir ráðamenn ráða nú ráðum sínum um viðbrögð við herskáum leiðtogum Vesturlanda, sem gefa Volodymyr ádrátt um enn langdrægari flaugar en þeir ráða nú þegar yfir.
Rússar gætu sem hægast sent drápsflaugar á ofurhraða til Lundúna, Washington, Berlínar og Parísar og velgt þarlendum undir uggunum eins og gert var í Poltava. Þar fundu flaugarnar sér leið gegnum þrenns konar loftvarnakerfi Vesturlanda eins og flaugar Jemena, Hisbolla og Írana, gegnum Járnhvelfingu (Iron Drome) Ísraela.
En Vonda-Valda hefur komið til hugar að fara mýkri leið, enda er maðurinn varkár og vill ekki efna til kjarnorkustríðs. Hann gæti sem hægast svarað í sömu mynt efnahagslega, leikið ljóta leikinn Breta og Bandaríkjamanna og Vesturlanda allra, meira að segja eymingjans Islendinga að beita viðskiptaþvingunum. Rússar geta nefnilega lamað að töluverðu leyti starf kjarnorkuvera, flugvéla- og eldsneytisframleiðslu Bandaríkjamanna. Þá yrði Vondi-Valdi enn þá verri í augum Vesturlandabúa.
Vonska Valda og villimennska var staðfest með innrásinni í Úkraínu 24. febrúar 2022. Í huga Þordísar Kolbrúarn er það upphafsdagur sögu samskipta Úkraínumanna, Rússa og Vesturlanda/Nató. Útþensla Nató, samningssvik við Rússa og endurteknar aðvaranir þeirra um rauð strik i öryggismálum, létu þeir sem vind um eyra þjóta.
Vondi-Valdi hunsaði lengi vel þrábeiðni Donbassbúa (rússneskra Úkraínumanna) um hjálp í stríði Úkraínustjórnar gegn þeim. Sem náttúrulega er brot a alþjóðalögum. Þegar um 12.000 Donbassbúar lágu í valnum, svöruðu Rússar kalli. En áður viðurkenndu Rússar sjálfstæði Donbass, sem lýst var yfir samkvæmt alþjóðalögum. Samkvæmt sömu lögum komu Rússar til hjálpar.
Áður en til innrásar kom, höfðu tveir friðarsamningar, kenndir við Minsk, verið virtir að vettugi. Þeir voru til þess gerðir, að Nató fengi ráðrúm til að þjálfa heri Úkraínumanna.
Þegar að því kom, að Rússar réðust til atlögu með fámennu liði til að knýja fram samninga, var úkraínski herinn grár fyrir vestrænum járnum, trúlega besti her Evrópu. Volodymyr valdi að setjast að samningaborði i Tyrklandi. Þegar samningar voru tilbúnir til undirritunar, var Boris Johnson sendur á vettvang til að spilla væntanlegum friði.
Úkraínumönnum var lofað gulli og grænum skógum, ef þeir i broddi fylkingar berðust til síðasta karlmanns fyrir frelsi, lýðræði og mannréttindum Vesturlanda. En lýðræðislegri stjórn Úkraínu höfðu Bandaríkjamenn kollvarpað 2014. Þangað nær ekki þekking Þórdísar Kolbrúnar. Hugsanlega er það þó þrælslundin, sem mestu máli skiptir. Við gerum bara eins og hinir er viðkvæðið hjá íslenskri ríkisstjórn, þ.e. Bandarikjamenn/Nató.
Hernaðarbrölt Nató í Úkraínu hefur kostað líf um einnar milljónar úkraínskra og rússneskra karlmanna, sem flestir skilja eftir sig börn og buru. Enn heimtar Þórdís Kolbrún fleiri líf. Hún segir það lýðræði, frelsi og mannréttindi. Þetta er ósiðlegt.
Það fer hver að verða síðastur, Þórdís Kolbrún, því senn hrynur Úkraínuspilaborgin, jafnvel þótt Íslendingar og Svíar hreyki sér á heimahaugnum.
Meðan íslensk yfirvöld reyta fé úr vösum skattgreiðenda á Íslandi til vopnakaupa, heldur undirbúningur að kjarnorkustríði áfram.
Eins og fólki flest er kunnugt, vörpuðu Bandaríkjamenn kjarnorkusprengjum á Hírósíma og Nagasaki í seinni heimstyrjöldinni. Vopnin höfðu ekki þagnað, þegar hafist var handa um kjarnorkuvopnaáætlun til að láta kné fylgja kviði Rússa. Samkvæmt henni skyldi kjarnorkusprengja tugi borga í Rússlandi. Winston Churchill var hógværari. Vildi bara hefðbundna innrás i Rússland. Auðævi landsins hafa ævinlega haft öflugt aðdráttarafl á auðkýfinga Vesturlanda.
Það varð þó ekki kápa úr klæðinu, en leyniþjónustur Breta og Bandaríkjanna voru elfdar til dáða gegn samfélögum í Ráðstjórnarríkjunum. Þær höfðu erindi sem erfiði. Í Úkraínu má sjá fótspor þeirra hvarvetna. En valdarán Bandaríkjanna/Nató 2014 markaði tímamót.
Bandaríkjamenn sögðu einnig upp samningum við Rússa um takmörkun meðaldrægra kjarnorkuflauga og aðstoðuðu Ísraela við að koma upp kjarnorkuvopnum. Rússar hafa bent á, að kjarnorkuárás Vesturlanda verði svarað í sömu mynt. Þar eru líka herskáir stríðsmenn.
Það er hætt við því, að í vopnabúri Rússa finnist skeyti með miði á herstöð Nató á Íslandi. Þordís Kolbrún hefur gert Ísland að óvinveittu ríki gagnvart Rússum. Því er harla ólíklegt, að Rússar bjóðist til að hlífa Hólmanum og hlaupa undir bagga, næst þegar vinirnir snúa við Íslendingum baki eða efnahagur vinnanna hrynur.
En, en! Mestu varðar, að Þórdís Kolbrún sé sátt við afrek sín á sviði utanríkismála. Og það segist hún vera. Barátta fyrir lögleiðingu bókunar 35 er annað afrekið.
Sjálfstraustið er óbilandi eins og vera ber. Samtímis þverr traustið til hennar, ríkisstjórnarinnar og stjórnmálamanna yfirleitt.
https://glenndiesen.substack.com/p/an-act-of-war-against-russia-putins?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=148877517&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=-VOXPneEJio https://gilbertdoctorow.com/2024/09/13/putin-to-reporter-pavel-zarubin-nato-will-then-be-at-war-with-us/ https://www.moonofalabama.org/ https://www.globalresearch.ca/putin-most-serious-warning/5867766 https://www.theguardian.com/world/2024/sep/11/blinken-hints-us-will-lift-restrictions-on-ukraine-using-long-range-arms-in-russia https://steigan.no/2024/09/putin-langdistanseraketter-vil-bety-at-nato-er-i-krig-med-russland/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/09/ble-starten-pa-3-verdenskrig-avtalt-11-september-i-kiev/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/09/10/aukinn_varnartengdur_studningur_vid_ukrainu/?fbclid=IwY2xjawFPiBlleHRuA2FlbQIxMQABHZM204fY_xUD2XBmBKL0j0i4aQzv9_DCcE7uzItXdVP6muF3ueithpcmQA_aem_t_nzuhrAla4IJJmVlQruyg https://www.youtube.com/watch?v=yEZ_X0YtE9A https://steigan.no/2024/09/ukrainas-propagandaseier-i-kursk-far-en-skyhoy-pris/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/austin-zelensky-ramstein/5867504 https://www.youtube.com/watch?v=j-VbBZRMfOk Alex https://steigan.no/2024/09/victoria-nuland-usa-fraradet-ukraina-a-signere-fredsavtale-med-russland-i-2022/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/hidden-face-war/5867499 https://www.globalresearch.ca/ukraine-sacrifice-kursk-invasion/5867391 https://www.youtube.com/watch?v=XMb9nxEzzKA https://michael-von-der-schulenburg.com/how-the-chance-was-lost-for-a-peace-settlement-of-the-ukraine-war/ https://steigan.no/2024/09/cia-og-mi6-berommer-ukrainas-kursk-invasjon-for-a-bringe-krig-til-vanlige-russere/?utm_source=substack&utm_medium=email https://edition.cnn.com/2024/09/08/europe/ukraine-military-morale-desertion-intl-cmd/index.html?utm_source=substack&utm_medium=email https://braveneweurope.com/glenn-diesen-the-increase-in-ukrainian-casualties https://gilbertdoctorow.com/2024/09/05/judging-freedom-edition-of-5-september/ https://geopoliticaleconomy.substack.com/p/europe-peace-talks-ukraine-war-weapons?utm_source=post-email-title&publication_id=457596&post_id=148523753&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2024/09/ukraina-taper-pa-alle-fronter-og-store-deler-av-regjeringa-gar-av/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/09/ukraina-rothschild-og-blackrock-tar-kontrollen/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalpolitics.se/ukraina-ryskt-missilangrepp-traffar-svenska-instruktorer-i-poltavla/ https://steigan.no/2024/09/nato-forbereder-seg-pa-storkrig-har-de-gatt-fra-vettet/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.reuters.com/world/russia-warns-united-states-risks-world-war-three-2024-08-27/ https://www.indianpunchline.com/ukraines-complicated-history-with-neighbours/ https://ukranews.com/en/news/1030830-russia-accelerates-its-advance-to-pokrovsk-british-intelligence#google_vignette https://www.forbes.com/sites/davidaxe/2024/08/28/if-ukraines-invasion-of-russias-kursk-oblast-was-a-diversion-it-has-failed/ https://steigan.no/2024/09/burkina-faso-mali-og-niger-anklager-ukraina-for-stotte-til-terrorisme/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/has-president-putins-patience-reached-its-limits%E2%80%A8/5865408 https://www.globalresearch.ca/has-president-putins-patience-reached-its-limits%E2%80%A8/5865408 https://korybko.substack.com/p/interpreting-sikorskis-proposal-for?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=148637309&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.schweizer-standpunkt.ch/news-detailansicht-en-international/how-the-chance-was-lost-for-a-peace-settlement-of-the-ukraine-war.html https://steigan.no/2024/09/tysklands-scholz-oppfordrer-til-press-for-fred-i-ukraina/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=xW6wZ0uVqZo https://korybko.substack.com/p/russia-and-the-west-are-engaged-in?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=148909771&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=4e6D8uUaoGs https://www.globalresearch.ca/neo-nazi-junta-lose-us-made-f-16/5867059 https://korybko.substack.com/p/what-would-really-be-achieved-by?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=148914668&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://consortiumnews.com/2024/09/13/raising-the-stakes-in-ukraine/ https://expose-news.com/2024/09/14/we-know-theyve-told-lies/ https://www.youtube.com/watch?v=moaP1EdcPVk https://www.youtube.com/watch?v=LRWzgjJLFn0 https://korybko.substack.com/p/korybko-to-karaganov-russias-nuclear?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=148800986&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://abcnews.go.com/International/russia-appears-launched-initial-major-counterattack-ukraine-kursk/story?id=113589694 https://steigan.no/2024/09/kina-og-russland-gjennomforer-stor-marineovelse/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.rt.com/business/604028-russia-uranium-titanium-us/ https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/09/06/studningur_islands_nemur_um_thremur_milljordum/ https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/09/10/aukinn_varnartengdur_studningur_vid_ukrainu/?fbclid=IwY2xjawFPiBlleHRuA2FlbQIxMQABHZM204fY_xUD2XBmBKL0j0i4aQzv9_DCcE7uzItXdVP6muF3ueithpcmQA_aem_t_nzuhrAla4IJJmVlQruyg https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/09/12/thordis_bodar_eitt_frumvarp_bokun_35/?fbclid=IwY2xjawFQE4VleHRuA2FlbQIxMQABHXKmKppdOJsRtPvOlBcb4i0twbiaybKCXAO3EQa13Ko4iXLL0QhIPWdItg_aem_dQ5jop4ASsK_v7nJhKX3-w
Kvenfrelsarar eru skrítnar skepnur, sem skipast í mörg horn. Móðureðli, hjónaband, vændi, kynskipti og kvenlíki (cyborg feminism), hafa valdið heiftarlegum deilum í sögu hreyfingar þeirra og klofið í herðar niður. Þeir eru þó allir sammála um, að karlar séu kúgarar kvenna.
Síðustu áratugina hafa yngri kvenfrelsarar svarað kalli frá mæðrum og ömmum um þátttöku á öllum opinberum sviðum mannlífsins. Samtímis hafa konur tögl og haldir á heimilunum. Það tak hafa þær raunar hert. Það ber lítið á sanngirninni, mýktinni, skynseminni og friðsemdinni, sem Rauðsokkurnar lofuðu. Skynsamleg staðreyndaumræða er þeim ekki að skapi. Gagnrýni er þögguð niður.
Þöggunin á t.d. við um kynofbeldi kvenna gegn börnum og körlum, svo misnotkun gegn börnum yfirleitt. Svo virðist, sem hún fari vaxandi með aukningu heimila, þar sem móðir ein ræður ríkjum, sbr. rannsóknir í Bandaríkjunum fyrir árið 2022. Á slíkum heimilum er börnum hættast.
Konur hafa sóst mjög eftir þátttöku í stjórnmálum. Norski forsætisráðherrann og stjörnukvenfrelsarinn, Gro Harlem Brundtland (f. 1939), er dæmigerð í þessu sambandi. Hún þáði æðstu embætti hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni og situr nú í hópi mannkynsfrelsunarellismella, sem berst fyrir alheimsstjórn, m.a. í heilbrigðismálum. Það kemur ekki á óvart, að hún skuli stynja undan því, hversu erfitt sé að fá fólk til að hugsa réttar hugsanir.
Bandaríski rithöfundurinn, Julina Rose, segir um kynsystur sína og aðra Alheimsveldissinna: Þráin til að rugla fólk í ríminu, ástunda spillingu og eyða mannkyni, er illgjörn fyrirætlun, sem einu sinni var dulin, en lýsir sér nú í djöfullegum lifnaði, sem er náskyldur lífsfjandsamlegum lífsreglum geðsjúklinga og stórmennskubrjálæðinga.
Kvenfrelsunarhreyfingin gekk nefnilega í eina sæng með alþjóðaauðvaldinu fyrir tæpri öld síðan, þáði fé úr hendi þess. Tryggðin við það er óbilandi, hvort heldur sem er í Alheimsefnahagsráðinu (World Economic Forum) eða hjá Sameinuðu þjóðunum. Hreyfingin stundar markvissa eyðileggingu á menningu, tungumáli, fjölskyldu, kyni, samskiptum kynjanna og þjóðveldinu.
Þrátt fyrir ógnarlega valdeflingu beita kvenfrelsarar óspart því valdi, sem felst í verndarhvöt karla og kyntöfrum þeirra sjálfra. Nýjasta dæmið í hæstu hæðum stjórnmálanna er Kamala Harris, forsetaframbjóðandi Lýðræðisflokksins (Demókrata) í Bandaríkjunum. Hún reið upp á topp í Kaliforníu. Það var stökkpallur hennar til Washington.
Þó hefur hún varla slegið við í tálsnilli sjálfri Valeria Messalina (17/20-48), keisaraynju Rómar. Sú er sögð hafa verið með brókarsótt á háu stigi, reið upp metorðastigann og gifti sig öðrum valdakarli, meðan hinn var á ferðalagi. Það er fátt nýtt undir sólinni í þessum efnum.
Leið Kamala á toppinn var sem sé ekki verðleikum stráð, frekar en Valeríu. Kynferði og táldráttur réði úrslitum. Það er eitt af afrekum kvenfrelsaranna að hafa undir yfirskyni jafnréttis náð að koma í gegnum þjóðþingin á Vesturlöndum löggjöf, sem tryggir þeim forréttindi á heimavelli, á opinberum vettvangi og í atvinnulífinu. Þær líta þó enn á sig sem fórnarlömb. Það er vörumerki líkast. Kynofbeldi er trompið, sem aldrei bregst frekar en táldrátturinn.
Djöfladýrkun kvenfrelsara síðustu tvær aldirnar eða svo, hefur grópast í samfélagssáluna. Börnum er jafnvel kennd djöfladýrkun, sbr. Litla djöfulinn, þáttaröð fyrir börn frá Disney. Sagan fjallar um Láru (Laura), sem Djöfullinn (Satan) gerir barn. Eftir fæðinguna reynir hann að öðlast yfir barninu forræði.
Kvenfrelsarar hafa raunar alltaf verið með kynlif á heilanum. Sumum ofbauð reyndar fyrir heilli öld síðan. Wilma Meikle skrifaði um það heila bók, Á leið til heilbrigðrar kvenfrelsunar (Towards a Sane Feminism), þegar árið 1917.
Það liggur við að tala megi um kvenfrelsunarsýki: Vald mitt til að meiða karlmenn eykst með aukinni frægð [minni] og valdeflingu, segir kynþokkadísin, Sharon Stone. Kate Blanchett segir siðferðilegan áttavita sinn að finna í skeiðinni (vagina). Whoopi Golberg: Fóstrið er eitraður hlutur.
Gleymum heldur ekki íslenskri vansæld Ingibjargar Daggar og vinkvenna hennar: Veruleiki kvenna er þessi. Kynbundið ofbeldi ógnar lífi þeirra og heilsu. ... Vondi karlinn á sér enga eina birtingarmynd, hann er alls staðar og hvergi og þú veist aldrei hvort eða hvenær þú mætir honum. Stundum þekkir þú hann bara af góðu einu þar til hann snýst gegn þér. Stundum laðar hann þig til sín og brýtur á þér.
Ótalin er kynleysuhreyfingin, sem á rætur í kvenfrelsunarhugmyndafræði nítjándu aldar, þ.e. að hvorki sé til eiginlegt karl- eða kvenkyn heldur flotkyn. Þessi hugvilla er um það bil að verða þjóðtrú eins og trúin á karlillskuna. Hvort tveggja er kennt í skólum landsmanna. Og fólk spyr sig; hvað amar að blessuðum börnunum? Fen er oft fótum nær en hyggur.
Kvenfrelsunarhreyfingin styður einnig dyggilega áætlanir Alheimsefnahagsráðsins um tölvumennin eða mannlíkin (cyborg feminism). Líffræðingurinn og kvenfrelsarinn, Donna Haraway (f. 1944) skrifaði 1985 Mannlíkjaávarpið (Cyborg Manifesto) eins og Valerie Solanas Kvenveldisávarpið áður, og Friedrich Engels og Karl Marx Kommúnistaávarpið þar á undan.
Kvenfrelsunarvísindamenn ríða röftum og hamast við að færa sönnur á illsku og kúgun karla. Niðurstöður þeirra eru nær ævinlega fyrir fram gefnar. Nokkrar undantekningar finnast þó. Lágkúra kvenfrelsunarvísinda kallast á við eymd og kreppu í veröld vísindanna. Karlvísindi eru ógild og karlar hafa spillt náttúrunni. Hvergi á Íslandi er umhverfisvernd (eco feminism) ofstækisfyllri en í kvenfrelsunarhreyfingum, sbr. VG.
Carrie Gress segir kvenfrelsara ástunda og stuðla að eitraðri kvenmennsku. Hún beinir orðum sínum til kynsystranna:
Það er kominn tími til þess að snúa heim: Snúa heim og umvefja börnin ástúð í stað þess að láta þau fyrir róða í líkamlegum (biologically) og tilfinningalegum skilningi. Snúa aftur til eiginkarla okkar og snúa bökum saman gegn sameiginlegum óvini í stað þess að gera þá að óvini. Og það er tímabært að rækta okkur sjálfar sem konur og mæður.
Ætli Mary Chavelita Dunne (1859-1945) hafi haft rétt fyrir sér, þrátt fyrir allt: Kvenfrelsunarhreyfingin, sagði hún, er bækluð (atrophied) skepna, haldin tilhneigingum til úrkynjunar og kynblöndunar.
Lesefni og heimildir: Per Faxeld: Satanic Feminism Carrie Gress: Anti-Mary Exposed: Rescuing the Culture from Toxic Femininity Sandra M. Gilbert og Susan Gubar: The Madwoman in the Attic: The Woman Writer and the Nineteenth-Century Literary Imagination Neil Lyndon: Sexual Impolitics: Heresises on Sex, Gender and Feminism Silvia Guerini: From the Neutral Body to the Postmodern Cyborg: A Critique of Gender Ideology Mary Harrington: Feminism Against Progress Donna Haraway: A Cyborg Manifesto: Science, Technology, and Socialist-Feminism in the Late 20th Century End of Women. How Smashing the Patriarchy has Destroyed Us https://www.youtube.com/watch?v=Q9gis7-Jads https://www.mfw.org.au/ https://www.youtube.com/watch?v=BjclKI1NyCU https://archive.org/details/towardssanefemin00meikiala https://www.statista.com/statistics/254893/child-abuse-in-the-us-by-perpetrator-relationship/?fbclid=IwY2xjawE-vRJleHRuA2FlbQIxMQABHT4_Sb9LJ6uwC5coXoD-sJ9DMCf1ppUMOpj8f7yjweANXAbaA5JbKYStIw_aem_3cFdwAVt8qmBOSWfqkne8ghttps://www.statista.com/statistics/254893/child-abuse-in-the-us-by-perpetrator-relationship/?fbclid=IwY2xjawE-vRJleHRuA2FlbQIxMQABHT4_Sb9LJ6uwC5coXoD-sJ9DMCf1ppUMOpj8f7yjweANXAbaA5JbKYStIw_aem_3cFdwAVt8qmBOSWfqkne8ghttps://www.statista.com/statistics/254893/child-abuse-in-the-us-by-perpetrator-relationship/?fbclid=IwY2xjawE-vRJleHRuA2FlbQIxMQABHT4_Sb9LJ6uwC5coXoD-sJ9DMCf1ppUMOpj8f7yjweANXAbaA5JbKYStIw_aem_3cFdwAVt8qmBOSWfqkne8g https://archive.org/details/1985.-haraway-a-cyborg-manifesto.-science-technology-and-socialist-feminism/page/1/mode/2up https://www.encyclopedia.com/women/encyclopedias-almanacs-transcripts-and-maps/fuller-margaret-1810-1850 https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304426/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304452/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304469/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2304504/ https://arnarsverrisson.blog.is/blog/arnarsverrisson/entry/2267198/ https://menaregood.substack.com/p/dr-carrie-gress-on-feminism-destroying?utm_campaign=email-post&r=ry8jq&utm_source=substack&utm_medium=email https://fiamengofile.substack.com/p/the-empress-jenni-hermoso-has-no?utm_campaign=email-post&r=ry8jq&utm_source=substack&utm_medium=email https://www.nationalgeographic.com/history/history-magazine/article/messalina-sex-politics-power-ancient-rome-empress https://rumble.com/v5cvoel-pfizer-insiders-admit-vaccinated-men-are-being-chemically-castrated.html https://www.walksinsiderome.com/blog/messalina-the-empress-who-remarried-while-the-emperor-was-out-of-town/ https://www.globalresearch.ca/counteracting-cult-imposed-chaos/5865159 https://www.soulask.com/hell-fire-club-secret-society-sex-satanism-and-secret-societies/ The Fabian Society, Eugenics and the Historic Forces Behind Todays Systemic Breakdown (substack.com) https://bettinaarndt.substack.com/p/women-and-wealth?utm_source=post-email-title&publication_id=448263&post_id=147649921&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2024/08/gro-harlem-brundtland-vil-ha-mer-global-sentralisme/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2018/12/brundtland-vi-er-i-ferd-med-a-miste-kontrollen-over-hva-folk-blir-fortalt/ https://www.womenshistory.org/education-resources/biographies/matilda-joslyn-gage https://www.encyclopedia.com/people/history/historians-european-biographies/jules-michelet https://www.dib.ie/biography/egerton-george-a2859 https://people.clas.ufl.edu/snod/files/EgertonIntroductionNB.072315.pdf http://www.blavatskaja.de/biografie.html https://archive.org/details/demonologyandde04conwgoog/page/n6/mode/2up https://historycambridge.org/innovation/American%20Feminism.html https://www.britannica.com/topic/Rosicrucians https://www.youtube.com/watch?v=MLVF5dgwu7Uhttps://www.youtube.com/watch?v=MLVF5dgwu7U https://en.wikipedia.org/wiki/Fraternal_Society_of_Patriots_of_Both_Sexes https://en.wikipedia.org/wiki/Olympe_de_Gouges - https://newint.org/features/1992/01/05/simply https://en.wikipedia.org/wiki/Anna_Maria_van_Schurman https://glc.yale.edu/sites/default/files/files/anderson.pdf - https://en.wikipedia.org/wiki/Claire_D%C3%A9mar https://www.encyclopedia.com/women/encyclopedias-almanacs-transcripts-and-maps/auclert-hubertine-1848-1914 https://en.wikipedia.org/wiki/Hubertine_Auclert https://www.encyclopedia.com/women/encyclopedias-almanacs-transcripts-and-maps/vesey-elizabeth-c-1715-1791 https://en.wikipedia.org/wiki/Martha_McWhirter https://en.wikipedia.org/wiki/Womyn%27s_land https://historycollection.com/16-facts-about-womyns-land-the-all-female-communes-that-offered-a-safe-haven-for-abused-women-and-feminism/ https://en.wikipedia.org/wiki/Woman%27s_Commonwealth https://plato.stanford.edu/entries/transcendentalism/#SociPoliCrit https://www.youtube.com/watch?v=suGHM0dEJ14 https://www.americamagazine.org/politics-society/2017/11/27/margaret-sanger-was-eugenicist-why-are-we-still-celebrating-her https://www.britannica.com/biography/Helena-Blavatsky https://worldhistoryedu.com/greek-god-dionysus/ https://people.howstuffworks.com/lilith.htm https://www.lillyrivlin.com/Lilith-Ms.Magazine-Dec.1972.pdf https://www.youtube.com/watch?v=7TUzoGah6t4 https://www.britannica.com/topic/Utopia-by-More https://www.encyclopedia.com/people/history/french-history-biographies/charles-maurice-de-talleyrand https://www.youtube.com/watch?v=lg9UqSaBlr4 https://www.rosicrucian.org/history https://plato.stanford.edu/entries/godwin/ https://www.youtube.com/live/L_ZUDubTbAw https://www.amazon.com/Occult-Feminism-Secret-History-Liberation/dp/B09NGXZKHB https://www.youtube.com/live/jVev-rGZc2o https://www.youtube.com/watch?v=Jppc5CZTaOs https://www.youtube.com/live/O9cFuE3Jyj0 https://www.youtube.com/live/O9cFuE3Jyj0 https://www.youtube.com/live/ZJcmKEoc-Y8 https://medium.com/@robert.mulokwa/feminisms-shadowy-origins-a-look-at-the-occult-influences-a5eba528e7f8 https://www.bt.dk/udland/debat-raser-i-sverige-vil-forbyde-bryllupstradition-det-er-noget- https://fiamengofile.substack.com/p/yes-kamala-harris-slept-with-a-powerful?utm_source=post-email-title&publication_id=846515&post_id=148057402&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email
Fjármagnsauðvaldið skapar hverja kreppuna á fætur annarri til að skara eld að eigin köku. Framleiðslu vara er skipað skör lægra en þjónustu og braski með peninga. Í síðustu kreppu fuðruðu innistæður fólks upp, meðan bönkunum var bjargað fyrir horn með skattfé. Almenningur var rændur.
Allt var þetta með ráðum gert eins og aðrar kreppur Seðlabanka alþjóðaauðvaldsins og alþjóðstofnanna þeirra eins og Alþjóðaseðlabankans í Bern (Bank of International Settlement), Alþjóðagjaldeyrisjóðsins og Alþjóðagjaldeyrisvarasjóðsins. Fyrstnefnda stofnunin var stofnuð af Þýska ríkisbankanum (Nasistum) og Enska seðlabankanum.
Græna byltingin eða geggjunin er hernaðaráætlun gegn almenningi. Rómarklúbburinn, samkunda nokkurra auðkýfinga, uppgötvaði það snjallræði að spinna saman gamlar hugmyndir kvenfrelsaranna um kúgun karla á konum og umhverfi, efnahagslegar hugmyndir um offjölgun mannkyns og líffræðilegar hugmyndir um mannbætur (eugenics).
Í hnotskurn er boðskapurinn þessi: Mannkyn karkynið sértaklega er of fjölmennt, auðlindir takmarkaðar og olíunotkun eyðileggur loftslagið með þeim afleiðingum, að heimurinn ofhitnar, verður að helvíti eins og aðalritari Sameinuðu þjóðanna hefur sagt.
Fjöldi vísindamanna var keyptur til að smíða svokölluð loflagsvísindi og Sameinuðu þjóðirnar tóku að sér að heyja baráttu fyrir frelsun umhverfis og kvenna. Hún hefur verið samtvinnuð í þrjá áratugi eða svo.
Lausnin er græn orka, fækkun gagnslausra átvagla, stundarfjórðungsborgir, töluuppfærðir öreigar og valdelfdar konur.
Sameinuðu þjóðirnar og Alheimsefnahagsráðið (World Economic Forum), eiga nána samvinnu við banka, auðmenn og ríkisstjórnir, um að ná þessum markmiðum. Hið gamla fyrirkomulag nasista og fasista er samtímis endurvakið, þ.e. samrunastjórnun stórfyrirtækja og ríkisvalds, í aðdraganda alheimsstjórnar.
Umhverfisólin, þ.e. eyðilegging atvinnulífs og tilfærsla fjármuna almennings til auðfurstana, sem nú þegar eiga um 99% af auði veraldar, er stöðugt hert.
Kolefnissnautt atvinnulíf er slagorðið. Til viðbótar verðbréfum komu á markaðinn græn aflátsbréf. Slík aflátsbréf ætlar t.d. bæjarstjórn Húsavíkur að gefa út, ristir upp fagurt mólendi til að rækta skóg, svo selja megi súrefnið, sem hann gefur frá sér.
Óhagkvæmar, mengandi vindmyllur, er sérstakt baráttumál íslenskra stjórnvalda og fjárfesta úr þeirra röðum.
Í hjálögðum greinum er m.a. fjallað um þessa þróun, sem er undirbúningur að því að gera okkur að örmerktum og bólusettum öreigum á valdi þeirra, sem heiminn eiga, og handbenda þeirra í stjórnmálum.
Síðasta bólusetningaherferð var farin í því skyni að örmerkja fólk og fækka því, hneppa það í tölvuþrældóm og auðkenna. Svipstundarlykill (QR = Quick response code) er eitt af forstigunum. Þessi tækni er nú þegar beitt víða.
Samræmd auðkenni eða upplýsingaveita um einkahagi, er komin af tilraunastiginu, bæði hjá nokkrum ríkjum Sameinuðu þjóðanna og Evrópusambandsins. En bólusetningunum, innsprautun örmerkingar-, dráps- og stjórnunartækni, er hvergi nærri lokið, svo berið upphandlegginn.
Ný vara eða búgrein í heilbrigðisþjónustu, er aðstoð við sjálfsmorð, sem t.d. hefur verið tekin upp í Kanada. Þar er fólki stundum boðin dánaraðstoð til að spara kostnað við meðferð eða aðhlynningu.
Blessuð börnin eru þar viðskiptavinir eins og á kynbreytingadeildunum sjúkrahúsanna. Vilji ríkisvaldsins (heilbrigðisþjónustunnar) vegur jafnvel þyngra en foreldra.
Þetta ofbeldi er framið undir vígorðum um frelsi, lýðræði, mannréttindi og náttúruvernd hin nýju gildi, hin nýja, fagra framtíð.
Nefnd lækning er upplögð leið til að losna við gamalmenni, ellilífeyrisþega, eins og gert var með deyðandi lækningum í síðasta veirufaraldri. Fátækt er líka þekkt leið til fólksfækkunar. Nýja jafnaðarmannastjórn Bretlands virðist ætla að fara hana líka.
Umgjörðin er deyjandi lýðræði eins og sjónarspilið í Bandaríkjunum ber glöggt vitni um. Því miður eru Ragnrök líklegri en nokkru sinni áður. Vitfirringar eru áberandi við stjórnvöl heimsins.
Sagnfræðingurinn, Gilbert Doctorow, ályktar, að Bandaríkjamenn, þ.e. djúpríkið á bak við öldunginn, Joseph Biden, og Kamala Harris, muni innan skamms grípa til þess örþrifaráðs að svara kalli Benjamin Netanyahu og Volodymyr Zelensky um allsherjarstríð í Austur-Evrópu og Miðausturlöndum, til að auka líkur á kosningasigri Kamala.
https://www.youtube.com/watch?v=I5iLB_7EHd4 https://www.youtube.com/watch?v=yEZ_X0YtE9A https://www.globalresearch.ca/un-conference-future-complete-borderless-digital-control/5867564 https://www.youtube.com/watch?v=s2JUR9WVIq4 https://expose-news.com/2024/09/11/pfizer-skipped-10-years-of-safety-tests/ https://alexkrainer.substack.com/p/our-values-killing-pensioners-to?utm_source=post-email-title&publication_id=1063805&post_id=148734814&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://matthewehret.substack.com/p/eco-warrior-mark-carney-set-up-to?utm_source=post-email-title&publication_id=260045&post_id=148748875&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://matthewehret.substack.com/p/eco-warrior-mark-carney-set-up-to?utm_source=post-email-title&publication_id=260045&post_id=148748875&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://delingpole.substack.com/p/global-warming-is-a-gigantic-conspiracy?utm_source=cross-post&publication_id=714921&post_id=148618549&utm_campaign=1015075&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email
Kvenfrelsunarstríð gegn körlum hefur verið háð, síðan um miðja nítjándu öld, en grimmilegast hefur það verið síðustu hálfu öldina. Boðskapnum um karlillskuna er stöðugt haldið að drengjum og körlum. Drengjum er meira að segja kennt um hana í skólum.
Í upphafi voru trúboðarnir háðir styrkjum frá auðkýfingum, en smám saman hefur ríkisvaldið tekið við, sett löggjöf um frelsun kvenna frá körlum og fjármagnað trúboðið. Samtímis hefur það sett á stofn ógnarlegt skrifræði um málaflokkinn. Sama þróun hefur orðið á alþjóðavettvangi. (Sjá t.d. bók Frank S. Zepezauer: The Feminist Crusade: Making Myths and Building Bureaucracies.)
Botnlaust hatrið hefur sett svip sinn á bæði (öll) kyn. Körlum og feðrum er kastað fyrir róða. Karlmennskan brenglast eða hverfur. Börn njóta síður föðurhandleiðslu. Því er það, að drengir draga sig í hlé í samfélagi og skóla, missa námslega niður um sig og vilja gerast konur. Stúlkur finna einnig sárt fyrir föður- og karlmennskuleysi. Þær reyna að bæta sér það upp með því að gerast karlmenn.
Konur verða grimmar og vænisjúkar. Sharon Stone (f. 1958), segir t.d.: Vald mitt til að meiða karlmenn eykst með aukinni frægð og valdeflingu. Það er kvenfrelsunardygð.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir: Veruleiki kvenna er þessi. Kynbundið ofbeldi ógnar lífi þeirra og heilsu. ... Vondi karlinn á sér enga eina birtingarmynd, hann er alls staðar og hvergi og þú veist aldrei hvort eða hvenær þú mætir honum. Stundum þekkir þú hann bara af góðu einu þar til hann snýst gegn þér. Stundum laðar hann þig til sín og brýtur á þér.
Deilt er um afleiðingar kvenfrelsunar. Carrie Gress heldur því fram, að kvennabaráttan (feminism) hafi afnumið (abolish) konuna. Hún lýsir ástandinu svo:
Grenjandi karlkonur (trans women), úrþvættis kveníþróttamenn. Mæður láta eyða stúlknafóstrum. Látalætiskarlar (drag queen) draga dár að konum. Konur eru hnepptar í nautnaþrældóm karla eða hneppa sig sjálfar. Kvenfrelsunin kemur ekki í veg fyrir þessa harmleiki. Hún stuðlar að þeim.
Áhyggjulaus sjálfsdýrkun hefur valdið hagnýtingu (exploit) konunnar, gert hana óhamingjusama, háða ríkisvaldinu og att henni í stríð við karlmenn. Þrátt fyrir það hanga kvenfrelsarar eins og hundar á roði á hugvillunni um frelsun.
Samfélagið er komið fram á gnípu, segir Carrie. Einungis enduruppgötvun sannrar kvenmennsku og móðurinnar getur bjargað samfélaginu frá falli. Hamingjuna geta konur einungis höndlað, leiti þær friðar við karla, við börn, við Guð og ekki síst við sjálfar sig. Það er ekki síður erfitt.
Carrie býður öllum fórnarlömbum kvenfrelsunar að ganga út úr myrkrinu á vit ljóssins. Dyrnar eru opnar að uppljómaðri vistarveru. Komið heim, segir hún!
Carrie sækir stuðning til Shari L. Thurer, sálfræðiprófessors við háskólann í Boston, sem þó snýr rökfærslunni um feðraveldið á haus. Í áðurnefndri bók sinni: Goðsögnum um móðurgjörninginn. Hvernig menningin endurskapar hina góðu móður (The myths of motherhood: How culture reinvents the good mother), skrifar Shari t.d.:
Um miðja tuttugustu öldina var móðirin talin uppspretta gjörvallrar þeirrar eymdar, sem samfélagið hrjáði. Þetta var blómaskeið óhróðursins um móðurina. Móðirin var orðin að skrímsli í bókmenntum, fjölmiðlum, félagsfræði, sálfræði og jafnvel í kvenfrelsunarfræðunum.
En árás kvenfrelsunarsystranna var misráðin. [Þ]egar hin nýja bylgja kvenfrelsunar [þ.e. önnur bylgja] náði hámarki sínu síðla á sjöunda áratugi síðustu aldar, var [árásin á] móðurgjörninginn fyrsta stórslysið.
Því varð til andófshreyfing kvenfrelsara með bandaríska rithöfundinn, Adriennce Cecilie Rich (1929-2012), í broddi fylkingar. Hún ól upp börn sín á sjötta og sjöunda áratugi síðustu aldar og skrifaði um hið dulda ofbeldi gegn þeirri stofnun, sem móðurgjörningurinn var. Og gegn móðurinni sem slíkri, sem þjáðist undan sektarkennd, aflvana með ábyrgð á lífi manna, [undan] áfellisdómum og fordæmingu, ásamt óttanum við eigið vald - sekt, sekt og aftur sekt.
Adrienne boðaði í bók sinni, Kona er fædd (Of Woman Born), að kúgun kvenna fælist ekki í móðurgjörningnum sem slíkum, heldur í feðraveldinu.
Kvenfrelsarar dásömuðu nú móðurgjörninginn sem velþóknanlegan og hugsanlega frjóvgandi og gefandi valkost [í lífinu], jafnvel fyrir frelsaða konu, segir Shari.
Hvað sem frelsun konunnar líður sitja margar þeirra við sama heygarðshorn og Júdith í Bíblíunni, gamla Testamentinu:
Nú vildi svo til, að Assýríumenn sátu um heimaborg hennar [Betúlíu í Ísrael]. Herforingi þeirra var Holofernes. Júdit tók það til bragðs að afklæðast sorgarbúningi sínum, laugaði kropp sinn lögulegan, íklæddist kynþokkafullum fötum, skrýddi sig skarti og djásnum, svo karlar Betúlíu yrðu langeygir, þegar þeir berðu hana augum. Og það skipti engum togum. Herforinginn var dreginn á tálar og stunginn til dauðs. Biblían getur einnig margra kvenna af sama toga. Upprunalega þjóðsagan gæti verið um sjö þúsund ára gömul.
Kyntöfrabrellunni er enn þá beitt í stríðinu gegn körlum og til að koma sér á framfæri. Kamala Harris er áberandi dæmi um þessar mundir.
En þrátt fyrir kyntöfrana og frelsið (sem þó ekki er nógsamlegt) verða konur stöðugt vansælli og neyta fleiri hamingjulyfja en nokkru sinni áður. Niðurstaðan í könnun Hagrannsóknastofu Bandaríkjanna frá 2009 (National Bureau of Economic Research), er þessi:
Konur með hvers konar menntun að baki verða óhamingjusamari, eftir því sem tíminn líður. Hamingjuhrapið er þó mest meðal kvenna með einhvers konar háskólamenntun (college).
Vansældin slær vitaskuld út í hjónabandinu. Í sjötíu af hundraði tilvika óskar konan skilnaðar. Í kjölfarið giftast margar þeirra hinu opinbera.
En það ber ekki á öðru en að stundum sé um fjárplógsstarfsemi að ræða. Niðurstaða skilnaðar er konum yfirleitt í hag. Þær bera meira úr bítum. Flestar fara fram á skilnað á aldursbilinu 25 til 45 ára, þegar valdeflingin er áköfust.
Nú er svo komið, að konur almennt séð ráða yfir verðmeiri eignum og meiri fjármunum en karlar. Það er þó ekki sjálfsaflafé. Þær auðgast við skilnað eða arf. Konur lifa almennt um fimm árum lengur en karlar. Því má við bæta, að konur eyða almennt meira en karlmenn. Þær kaupa meira að segja sextíu af hundraði allra bíla.
Í bók sinni, Konan líður undir lok (The End of Women), segir Carrie Gress: Sjálfsvíg, þunglyndi, fíkniefnaneysla og kynsjúkdómar, hafa aukist verulega síðustu fimm áratugina. Konur verða ekki lukkulegri heldur lyfjaðri.
Kvenfrelsunarhreyfingin hefur í áranna rás verið drifin áfram af vængbrotnum konum, bætir Carrie við. Þessar týndu stúlkur hafa mótað konur líðandi stundar og karlmenn. [Þær hafa] úthugsað grundvöllinn að kynjastjórnmálunum (gendered politics) og siðboðum, heldur Carrie áfram. Sjálf kvenfrelsunarmóðirin, Mary Wollstonecraft, gerði tvær sjálfsvígstilraunir.
Phyllis Chesler talar um týndu stelpurnar (lost girls); Kate Millet, Shulamith Firestone, Andrea Dworkin, Gloria Steinem og Valerie Solanas, en gleymir sjálfri sér. Allar voru þær alvarlega bágstaddar; geðsjúkar, fórnarlömb kynofbeldis, fíkniefnaneytendur, laskað samband við móður eða föður, þunglyndi, fóstureyðingar og lögbrot.
Sálufélagar týndu stelpnanna eru illkvittnu (mean) stelpurnar, sem víða ber fyrir augu. Carrie segir:
Illkvittnu stelpurnar eru þær, sem fela gögn, villa um fyrir eða ljúga blákalt um atriði, sem kynnu að skaða kvenfrelsunarhreyfinguna - illkvittin bolabrögð (tactics). Barátta kvenfrelsara hófst með rangri spurningu og lausnin var röng. Kvenfrelsararnir hafa þurft að reiða sig á vald, blekkingar (manipulation) og stjórnun. Þannig hafa aukin áhrif verið þvinguð í gegn. Kvenfrelsurum hefur auðnast að kæfa andstöðu, að miklu leyti með niðurlægingu og þöggun. Carrie tekur Phyllis Schlafly (1924-2016) sem dæmi. Hana átti að brenna á báli.
Carrie segir aukin heldur: Þar sem kvenfrelsunarfræði hafa komið í stað trúarbragða, koma kvendrottningarnar í stað prestanna, og prédika guðspjall óánægju, sjálfsástar, sjálfhverfu (narcissism), tilbeiðslu og mannfórna. Þetta er orðin hin svala trú, þar sem úrvalið og fræðgarfólkið tilbeiðir (eða er tilbeðið).
Það er engu líkara en fóstureyðing sé orðin eins konar kvenfrelsunarhelgivígsla, sbr. þessi orð ungrar konu á TikTok:
Ef til þess kemur, að ég láti eyða fóstri, skaltu reiða þig á að slegið verði upp veislu; kökur skreyttar með eyddum fóstrum og kokteill í boði. Ég mun kalla blönduna eydd fóstur. Ég mun svalla með vinum mínum og við munum hvoma í okkur góðgæti, sem minnir á dauð fóstur.
Það vill reyndar svo til, að fóstur eru brytjuð niður til líffæragjafa og til lífefnaiðnaðar. Starfsmaður á fóstureyðinastöð (Planned Parenthood) hefur lýst hryllingi sínum, þegar fullburða fóstri/barni var lifandi stungið inn í frysti.
https://wattsupwiththat.com/2024/08/10/wef-climate-change-causes-pakistani-men-to-beat-up-their-wives/
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021