Konur skulu ekki skrifa. Í minningu Rasha Namer al-Ali

Það eru ekki bara Síonistar í Ísrael, sem lifa samkvæmt ævagömlum trúarritum. Það gerir einnig sú afhausarastjórn í Sýrlandi, sem Vesturveldin komu til valda til að berjast fyrir frelsi, lýðréttindum og mannréttindum. Aðalafhausarinn, Abu Mohammad Al-Jolandi, réttu nafni Ahman al-Sharaa, hefur nú dubbað sig upp til forseta Sýrlands. Kosningar koma einhvern tíma, segir hann.

Leiðtogar Vesturlanda bíða í röðum eftir að taka í hendi þessa eftirlýsta (af þeim sjálfum) morðingja og ómennis. Milljónum dala er lofað þeim, sem hafa hendur í hári óþverrans, sem nú hefur verið rækilega fjölmiðlasnyrtur á Vesturlöndum. Geislabaugur hans er skær. RÚV tekur þátt í því. Og fólk trúir!

Þetta eru sömu fjölmiðlar og fært hafa veröldinni lygasögur og skrumstælingar um grimmd Bashar al-Assad.

Eins og vænta mátti eru hafnar ofsóknir gegn þeim í Sýrlandi, sem ekki lifa og hrærast samkvæmt aldagömlum, íslömskum trúarritum.

Rasha, háskólakennari í arabísku og stuðningsmaður hins kollsteypta forseta Sýrlands, var numin á brott, pynduð og drepin. Fingur hennar voru afhöggnir. Boðskapurinn er óyggjandi; Konur skyldu ekki skrifa.

Þetta óhugnanlega morð minnir á atburð í Írak fyrir tveim áratugum síðan, þegar írakskir uppreisnarmenn námu á brott ítalska blaðamanninn, Giuliana Sgrena, aðra skrifandi konu. Landi hennar, leyniþjónustumaðurinn, Nicola Calipari, samdi um lausn hennar.

Bandaríkjamenn óttuðust greinilega penna skrifandi konu, höfðu verið andvígir samningum, vildu þess í stað beita vopnavaldi. Írakarnir vöruðu Giuliana við hættunni. Á leið til flugvallarins gerðu bandarískir hermenn árás. Giuliana slapp, en Nicola var myrtur.

https://www.thomasfazi.com/p/the-sacrifice-of-nicola-calipari?utm_source=post-email-title&publication_id=560592&post_id=156444335&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://21stcenturywire.com/2025/01/15/video-hts-terrorist-who-kidnapped-me-have-taken-control-of-syria/ https://beeley.substack.com/p/barrel-bombs-are-back?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=154890433&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.uncaptured.media/p/syria-psyop-theater-inside-the-sednaya https://www.uncaptured.media/p/syria-psyop-theater-mass-graves-mass?utm_source=post-email-title&publication_id=976824&post_id=154825313&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://trackingpower.substack.com/p/briefing-note-the-alleged-chemical?utm_source=post-email-title&publication_id=1151094&post_id=154388173&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://beeley.substack.com/p/child-beheader-allegedly-appointed?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=155318704&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://beeley.substack.com/p/syrias-future-and-the-uk-craven-hypocrisy?utm_source=podcast-email&publication_id=716517&post_id=154999431&utm_campaign=email-play-on-substack&utm_content=watch_now_button&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2025/02/den-skitne-krigen/?utm_source=substack&utm_medium=email https://beeley.substack.com/p/russia-normalises-terrorist-ethnic?utm_source=post-email-title&publication_id=716517&post_id=156151143&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://beeley.substack.com/p/trump-middle-east-rampage-begins?utm_source=podcast-email&publication_id=716517&post_id=156085222&utm_campaign=email-play-on-substack&utm_content=watch_now_button&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://syrianobserver.com/society/abduction-of-female-syrian-academic-dr-rasha-al-ali-provokes-public-anger.html https://news.snhr.org/2025/01/22/rasha-al-ali-abducted-by-unidentified-gunmen-in-homs-city-january-20-2025/


Stormsveipurinn í Hvíta húsinu. Auðvaldstækniræðið

„Ég trúi því staðfastlega, að Guð sé okkur hliðhollur,“ sagði Donald Trump á samkomu með kristilegum stuðningsmönnum (evangelicals) sínum.“

Benjamin Netanyahu er sömuleiðis sannfærður um, að fjöldamorð hans séu framin með Guð blessun. Hann er reyndar eftirlýstur glæpamaður af Alþjóðaglæpadómstólnum (International Criminal Court) og því ætti að handtaka hann í Bandaríkjunum. En Dónaldur kærir sig kollóttan.

Þessir geðvilltu öðlingar hittust um daginn í Washington. Eins og menn kynnu að muna, sagði Dónaldur fyrir skemmstu, að Bensi-barnamorðingi væri „kolsvartur tíkarsonur“ (með orðum Jeffrey Sachs). Sá síðarnefndi lét hins vegar út úr sér við athöfnina, að Dónaldur væri besti vinur Ísraela á forsetastóli Bandaríkjanna fyrr og síðar.

Heimsins börn urðu síðar vitni að mergjaðri sýningu með þessum tveim aðalleikendum. Það brá svo við, að Dónaldur las frá handriti, svo mikið lá greinilega við. Boðskapurinn kom Barnamorðingjanum eftirminnilega á óvart: Bandaríkjamenn ætla að taka við Gaza, búa íbúum eða föngum þess heimili annars staðar og reisa nýja Rívíeru.

Samtímis sendir Dónaldur farma af 2000 punda djúpsprengjum og öðrum hergögnum til Ísraels og styður við bakið á ísraelska varnarhernum við hernám á Vesturbakkanum og í Sýrlandi.

Það má ráða af orðum Dónalds, að bandaríski herinn verði sendur til að þurrka út Hamas á Gaza. Áður hefur hann farið í leiðangra þangað til að frelsa gísla. Allir vita, hvernig það fór.

Á heimavígstöðvum fer Dónaldur um eins og hvítur stormsveipur. Einn hluthafanna, Elon Musk, fer fyrir hópi tölvuungliða og gerir hverja atlöguna á fætur annarri að bandaríska ríkisbákninu.

Árásin á Alþjóðaþróunarskrifstofu Bandaríkjanna (U.S. Agency for International Development Office - USAID), hefur vakið töluverða athygli (nema í RÚV). Skrifstofa þessi hefur starfað í nánu sambandi við Leyniþjónustu Bandaríkjanna (Þjóðarsjóð í þágu lýðræðis - National Endowment for Democracy), Varnarmálaráðuneytið (Pentagon) og Utanríkismálaráðuneytið – jafnvel Heilbrigðismálaráðuneytið.

Það er nú með óyggjandi hætti staðfest, hvernig bandarísk stjórnvöld eða djúpríkið í Bandaríkjunum hefur kollsteypt ríkisstjórnum, starfað á þeim, skapað ringulreið og uppreisnir, hagrætt kosningum, stundað áróður, hryðjuverk og veiruhernað, fjármagnað áróður, mútað fjölmiðlum, dómurum og stjórnmálamönnum, greitt þeim styrki og laun.

Sá hæst launaði er líklega Volodymyr Zelensky með 11 milljónir dala á mánuði. Svo varla er ástæða fyrir Þorgerði Katrínu að senda honum kaupauka frá íslenskum skattgreiðendum, jafnvel þótt þeir hafi bökin breið.

Upplausn er vígorðið, enda hefur USAID starfað náið með svokölluðum „ópinberum félagasamtökum“ (non-governmental organizations) með rándýrið, George Soros, í broddi fylkingar – og Bólusetninga Bill Gates auðvitað. Sjálft alheimsstjórnarhreiðrið, Alheimsefnahagsráðið (World Economic Forum), þótti einnig verðugt styrkja frá bandarískum skattgreiðendum.

Eins og væntanlega rennur upp fyrir fólki smám saman hefur þessi skemmdarverkastarfsemi einnig átt sér stað á vettvangi náinna tengsla, fjölskyldu, samskipta kynjanna og kynsins sjálfs.

Nicholas Rockefeller benti einum viðmælanda sinna á tilgang sjóða ættarinnar með því að fjármagna (ásamt fleiri auðkýfingum) kvenfrelsunarhreyfinguna; að fjölga skattgreiðendum (með meiru).

Í þessu ljósi er fróðlegt að skoða styrkveitingar í sambandi við kynafbrigðileika; tvær milljónir dala til kynbreytinga og aðgerðahópa „lesbía, homma, tvíkynhneigðra og kynskiptinga“ (LGBT) í Gvatemala; 7.9 milljónir til að þjálfa blaðamenn á Sri Lanka til að forðast „tvíkynja“ tungutak; 1.1 milljón til LGBT hópa í Armeníu; 1.5 milljón til sams konar hópa á Djamæka; 6.3 til að stuðla á kynlífi karla með körlum í Suður-Afríku; 5.5 milljónir til LGBT aðgerðasinna í Úganda.

Svona mætti lengi telja, en skondnustu styrkveitingarnar eru þó líklega til útgáfu gamanhefta fyrir kynskiptinga, söngleiks í þágu fjölbreytni, sanngirni og meðveru (inngildingar – DEI) og kynskiptingaóperu.

Þessar uppljóstranir eru allar þakkarverðar, enda þótt mörg afrekanna séu þekkt. Þær gefa þó ekki tilefni til að álykta, að nú ætli stjórnvöld í Bandaríkjunum að gerast friðvænleg. Sjónhverfingar eru þeirra ær og kýr.

En það má ekki gleyma því, að veröld USAID var ekki svört/hvít. Stofnunin sinnti líka lofsverðum verkefnum, sbr. styrki til Hjálparstofnunar Sameinuðu þjóðanna í þágu Palestínu (United Nations Relief and Works Agency for Palestine – UNRWA), sem rekið hefur meira eða minna gerviríki Palestínumanna og haldið lífi í föngum stærstu fangabúða veraldar, Gaza. Án hjálpar hennar eru íbúunum allar bjargir bannaðar.

Í flóði yfirlýsinga, tilskipana, ólögmætra aðgerða í stjórnkerfinu, óþingræðislegra vinnubragða og fjandsemi í garð annarra þjóða, er erfitt að varast þeirri hugsun, að fámennisstjórn eða auðvaldsræði (oligarchy, technocracy) milljarðamæringanna sé sífellt að taka á sig skýrari mynd, samtímis því að lögð eru drög að endanlegri, efnahagslegri kollsteypu Bandaríkjanna með óhjákvæmilegum óeirðum og jafnvel stríði.

https://www.youtube.com/watch?v=2ADl7Yec84M&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=5 https://utvarpsaga.is/heimsmalin-usaid-fjarmagn-sem-atti-ad-fara-i-neydaradstod-rann-til-lyfjarisa/?fbclid=IwY2xjawIR4INleHRuA2FlbQIxMQABHauOtNgyG4jUESvneklxLCig6HFfMnvaLODxekRKpsC6811vFFrFNjiUBw_aem_6LLat5e17iNl4A2_YZnkrA https://expose-news.com/2025/02/06/usaid-gave-gates-soros-and-wef-billions-of-dollars/?jetpack_skip_subscription_popup https://www.globalresearch.ca/president-trump-obsession-tariffs-economic-ruse-political-blackmail/5879249 https://www.globalresearch.ca/american-carnage-establishment-military-dictatorship/5879189 https://21stcenturywire.com/2025/02/04/usaid-a-casualty-of-political-power-plays/ https://alexkrainer.substack.com/p/the-hidden-hand-monstrous-conspiracies?utm_source=post-email-title&publication_id=1063805&post_id=156456111&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://gilbertdoctorow.com/2025/02/04/the-trump-tariffs-as-seen-from-teheran-press-tv-interview/ https://gilbertdoctorow.com/2025/02/04/the-big-picture-the-ideological-program-of-trump-that-unifies-all-his-domestic-and-foreign-initiatives/ https://21stcenturywire.com/2025/02/04/netanyahu-set-for-a-tete-a-tete-with-trump-on-gaza-ceasefire/ https://responsiblestatecraft.org/trump-netanyahu/?ct=t(RSS_EMAIL_CAMPAIGN)&mc_cid=c310cf529b&mc_eid=ae33554485 https://expose-news.com/2025/02/05/dismantling-of-usaid-is-a-critical-blow-to-globalism/?jetpack_skip_subscription_popup https://steigan.no/2025/02/soros-bill-gates-og-usaid-som-melkeku/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/trump-all-in-stealing-gaza-zionist-owners/5879138 https://michaeltsnyder.substack.com/p/the-trump-revolution-has-thrown-the?utm_source=post-email-title&publication_id=1520363&post_id=156497788&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.msn.com/en-us/news/world/of-the-billions-in-questioned-usaid-spending-millions-went-to-fund-terrorism/ar-AA1ytBjD?cvid=73a42c0f54234efedc0ec933731801d7&ei=7 https://michaeltsnyder.substack.com/p/the-mainstream-media-will-never-recover?utm_source=post-email-title&publication_id=1520363&post_id=156563278&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://americanmilitarynews.com/2018/11/millions-of-us-tax-dollars-knowingly-went-to-terror-groups-from-charities-pentagon-says/#google_vignette https://steigan.no/2025/02/norsk-bistand-er-djupt-involvert-med-usaid-og-burde-vaert-satt-under-administrasjon/ https://rumble.com/v6gzeqj-usaid-corruption-21-trillion-missing-and-the-end-of-the-us-global-empire.html https://www.globalresearch.ca/trump-oligarchic-dysfunctional-disruptive-global-economy/5879132 https://www.youtube.com/watch?v=Y8AydnrWcUk&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=13 https://www.youtube.com/live/BpknDttlh3E https://search.wikileaks.org/?query=National+Endowment+for+Democracy&exact_phrase=&any_of=&exclude_words=&document_date_start=&document_date_end=&released_date_start=&released_date_end=&include_external_sources=True&new_search=True&order_by=most_relevant#results https://steigan.no/2025/02/wikileaks-har-publisert-over-45-000-dokumenter-om-den-lyssky-aktiviteten-til-usaid/?utm_source=substack&utm_medium=email https://michaeltsnyder.substack.com/p/thanks-to-doge-we-have-been-learning?utm_source=post-email-title&publication_id=1520363&post_id=156572330&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


Jarðvöðullinn í Washington. Velkomin til Trumplands

Forsætisráðherra Kólumbíu, Gustavo Petro, tók upp á því að derra sig. Við erum ekki lengur nýlenda, sagði hann, og sneri við tveim herflugvélum frá Donald Trump, sem toðnar voru af handjárnuðum landsmönnum. Þeir höfðu dvalið ólöglega í Bandaríkjunum, ásamt mörgum milljónum til viðbótar.

Samtímis hefur Dónaldur trumpað, að pyndingafangelsið á Kúbu skuli taka við þúsundum innflytjenda. Þar hefur fólki verið haldið í prísund í áratugi, án dóms og laga.

Og si svona til að leggja áherslu á orð sín, afturkallaði Donald Trump einn fárra skynsamlegra gjörninga fyrirrennara síns, þ.e. að taka Kúbverja af lista hryðjuverkaríkja – uppljómaður af yfirlýsingu fyrirrennara síns, James Monroe (1758-1831), að Bandaríkjamenn „ættu“ Vesturheim eða Ameríku eins og lagði sig.

Eins og von er snuggaði heldur betur í Dónaldi við derringinn í Gustavo. Hann hét því, að Kólumbíumenn skyldu hafa verra af; tollar, frysting eigna, neitun vegabréfsáritanna, og svo framvegis.

Þessu hótar Dónaldur reyndar nær öllum, sem lúta ekki vilja hans í raunheimum. Í ímyndunarheimi hans og bandarískra stjórnvalda skal vopninu líka beitt. Jarðvöðullinn ætlar meira að segja að refsa BRICS+ ríkjunum fyrir að stofna nýja mynt.

Hvorki er slík mynt til né áætlanir um að setja hana á flot. Sama gildir um skilyrði Rússa fyrir samningum í Úkraínu. Raunveruleikinn víkur fyrir hugarburðinum. Stríðið, sem auðveldlega hefði mátt kom í veg fyrir, er tapað. Nató sleikir sárin og reynir að gera sem mestan óskunda. Hörmungarnar eru ólýsanlegar. Hin gjörspillta stjórn Úkraínu er í upplausn eins og herinn.

Ástmögur íslenskra utanríkiráðherra, Volodymyr Zelensky, tekur bráðum pokann sinn og fíkniefnin. Það er peningaþurrð í Kænugarði. Dónaldur hefur skrúfað fyrir kranann. Nú ríður á, að Þorgerður Katrín seilist í vasa Íslendinga eftir skotsilfri handa glæpagenginu. Kossar hennar og faðmlög duga skammt.

Það er sömuleiðis slæmt heilsufar hjá Bensa-barnamorðingja, annarri ástmögur Þorgerðar hinnar stríðsóðu. Hjartveiki og krabbi hrjá hann. Fjölskyldan hefur yfirgefið kappann og flúið til Flórida. Þar á Volodymyr líka veglegar vistarverur. Og auðvitað Dónaldur.

Hver veit, nema Gyðingarnir þrír hittist þar innan skamms og ráði ráðum sínum og hlýði á orð Guðs. Volodymyr á eftir að þakka ísraelska trúbróður sínum fyrir Patriot varnarkerfin, sem hann fékk loksins. Og Dónaldur býður Barnamorðingjanum fyrstum leiðtoga á sinn fund í nýju embætti.

Það er þó ekki víst, að Barnamorðinginn mæti keikur á fund keisarans. Dónaldur hefur nefnilega hirt hann hressilega, þrátt fyrir öll Síonistahlutabréfin i sjálfum sér. Það skal ekki fara milli mála, hver ræður. En stefnan er sú sama.

Brottrekstri Palestínumanna skal fram haldið. Dónaldur herðir hreðjatakið á Egyptum og Jórdaníumönnum. Hann hefur Albaníu og Indónesíu til vara. Nóg er til af Bandaríkjadölum í mútur, prentsmiðjurnar anna þó vart eftirspurn.

Dónaldur á þegar eina hæð á Gólan, Trumphæð. En stærsta fangelsi jarðar, Gaza, mun, ef fram fer sem horfir, sjá rísa blómlega strandbyggð hótela. Og vafalaust verða lagðir margir gólfvellir. Dónaldur er nefnilega sammála tengdasyninum, Gyðingnum, Jahred Kushner, um, að þetta sé frábær staðsetning (phenomenal location) fyrir slíka starfsemi.

Nú skal endurtaka „Grátgöngu“ (Trail of Tears) Índíána í Bandaríkjunum, sem samkvæmt fyrirskipun annars Bandaríkjaforseta, Andrew Jackson (1767-1845), voru reknir úr löndum sínum.

Það hlýtur þó að valda fasteignasölunum, Dónaldi og Jahred, nokkrum áhyggjum, að „hryðjuverkmennirnir“ í Íran, Hisbolla í Líbanon og Hútar í Jemen, gætu sett strik í reikninginn. Sádi-Aröbum, Vesturveldunum og Ísrael hefur ekki tekist á kenna Jemenum góða siði – þrátt fyrir aðstoð Norðmanna.

Allra handa morð og djúpsprengjuárásir Ísraela í Líbanon, hafa litlu skilað, nema rústum og drepnu fólki. Þeir náðu einungis litlu svæði í Suður-Líbanon, fyrir vopnahléið góða, sem Frakkar og Bandaríkjamenn höfðu forgöngu um. Fórnarkostnaðurinn var mikill. Vopnahléið auðveldaði hins vegar innrás Alkæda, Ísraels og Tyrkja inn í Sýrland.

Samkvæmt vopnahléinu skyldu Ísraelsmenn hörfa frá fyrrnefndum svæðum. En það gerðu þeir ekki, fyrr en almennir borgarar ráku þá á brott eins og hunda. Nokkra óvopnaða Líbana náðu þeir þó að myrða, áður en yfir lauk – einkum hugdjarfar konur.

Sama á við um áfangavopnahléið á Gaza. En það kom þó ekki í veg fyrir að Hamas skilaði gíslum sínum. Það kom ísraelskum almenningi á óvart, að þeir skyldu vera vel haldnir. Herstúlkurnar þrjár brostu og veifuðu og þökkuðu kvölurum sínum fyrir góða meðferð. Enn hafa ekki birst fréttir af því, að þeim hafi verið nauðgað eða þær höfuðhöggnar eða eldsteiktar. En þær geta enn komið.

Svo virðist, sem herskár, ísraelskur almenningur sé orðinn hugsi yfir innrætingunni, sem þeir hafa hlotið, áróðrinum og útleggingum Bíblíunnar um að leggja undir sig og drepa. Kannski Palestínumenn séu ekki skriðdýr, þegar allt kemur til alls eins og t.d. íslenskir Síonistar halda fram. Ísraelum óar einnig við tapi hermanna sinna, sem áttu að vera ódrepandi, en eru dráplúnir orðnir.

Það er komin þreyta í herinn, varaliðar veigra sér við að mæta á víglínuna, sumir drepa sjálfa sig, bitnir samviskunni fyrir látlausar slátranir á varnarlausu fólk. Hvað getur bærilega heilbrigður maður myrt mörg börn með köldu blóði, án þess að bíða tjón á sálu sinni?

Ísraelar stunda þó ekki þjóðarmorð, segir Þorgerður Katrín. Um leið leggur hún áherslu á nauðsyn þess að fara að alþjóðalögum (þegar það hentar).

Í stríðsvitfirringunni miðri má huggast í þeirri von, að fallegur friðarfugl setjist á öxl Dónalds og leggi að honum að lúta ekki vilja brjálæðinganna úr hirðinni og Barnamorðingjans, en semja þess í stað frið við Írana og gefa þeim grið; Rússar, Bretar, Írakar (í umboði Bandaríkjanna) og þeir sjálfir hafa gert nógu margar atlögur að þessu forna menningarríki. Guðirnir forði oss frá því, að hann reyni þar landvinninga eins og á Grænlandi, Panama og Kanada.

Á heimavígstöðvunum er líka fjör. Tulsi Gabbard fékk greinilega leyfi til að ljóstra upp því opinbera leyndarmáli í þingyfirheyrslum, að Bandríkin hefðu fjármagnað íslömsku afhausarasamtökin, sem þau hafa nú tekið þátt í að koma á valdastóla í Sýrlandi eins og Ísraelar Hamas á Gaza. (Íslenskir aðdáendur Ísraelsstjórnar virðast með engu móti geta sætt sig við þá staðreynd. Segja Barnamorðingjann ljúga um það.)

Tulsi hefur líka gerst svo djörf að leggja til, að Tyrkjum verði vísað úr Nató. Hún ybbir kíf í því góða, höktandi stríðsbandalagi. Recep Tayyip Erdogan er óvinur vor, segir Tubi, sem er einlægur Síonisti.

Trúlega verður látið sverfa til stáls í Sýrlandi hinu nýja. Verður það hluti Ný-Ottómanveldisins eða Stór-Ísraels? Bæði Ísrael og Nató búa sig undir stríð.

Þrátt fyrir sannsögli um Alkæda erTulsi engu að síður á flótta. Hún beygði sig í duftið og sagðist nú styðja umdeilda eftirlitslöggjöf, sem opnar fleiri dyr fyrir eftirlitstækniiðnaðinn, sem Silicon-liðarnir í hirð Dónalds stjórna.

Það er að sönnu ánægjuefni, að Tulsi hafi reynt að endurstilla áttavita ruglaðra þingmanna í Washington. En það gerði því miður ekki stærsta vonarstjarna vor, Róbert Kennedy.

„Ég mun mæla með því, að börnin verði bólusett samkvæmt áætlunum Landlæknis (CDC). [Það eru rétt um tuttugu bólusefni.] Og ég mun styðja þær, þegar ég mæti á svæðið,“ sagði hann. Bóluefni við fuglaflensu ætlar Róbert einnig að leggja blessun sína yfir. Þó tók steininn úr, þegar hann hrósaði keisara sínum í hástert fyrir „Warp Speed,“ hraðferðarbólusetningaáætlun Dónalds við covid-19. Þar brustu ábyggilega hjörtu margra.

Það er heldur ekki uppörvandi, að þrátt fyrir þá skynsamlegu ráðstöfun að hætta (aftur) fjármögnun Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar, greiða Bandaríkjamenn framlög til GAVI, bólusetningafélagsskapar nokkurra ríkisstjórna og auðjöfra, sem m.a. styrkja stofnunina myndarlega. Þar er Bill Gates innsti koppur í búri.

Þetta styður grun minn um, að samið hafi verið við „gamla“ hluta djúpríkisins bak við tjöldin. Grunurinn styrktist enn, þegar Bill Gates átti ljúfar stundir með Dónaldi og hrósaði honum í hástert – enda er karl óvenju bísperrtur um þessar mundir, geisar sjálfumgleði og hroka og trumpar tollum út og suður.

Það lækkaði þó ofurlítið í forsetanum rostann, þegar í ljós kom, að Kínverjar hefðu skotið ofurmennum hans úr Silicondalnum ref fyrir rass í þróun gervigreindar. Meðan vísindi og tækni – allur efnahagurinn – blómstrar í Kína, kveða við djúpir brestir í Bandaríkjunum.

Það eina, sem Dónaldi kemur í hug er að tolla, stela, ógna, hóta og derra sig. Bandaríkin eru best, sterkust, frjálsust og fallegust – skulu ævinlega vinna, fara með sigur af hólmi, hvað sem tautar og raular.

Evrópu blæðir, náþefurinn fyllir vitin. Þýskaland, hernumið í orðsins fyllstu merkingu frá lokum síðari heimstyrjaldar, er rjúkandi rúst. Efnahagi þess var endanlega rústað með sprengingu gasleiðslunnar í Eystrasalti. „Ostpolitik“ Willy Brandt hafði gengið of langt. Bandaríkjunum var ógnað á ný.

Jarðvöðlinum hugkvæmist ekki að stofna til arðbærrar samvinnu við aðra á grundvelli jafnstöðu, sanngirni, samhjálpar og heiðarleika.

Rússar véku úr fyrsta sæti yfir óvini Nató, sem hangir á hengslunum. Kínverjar skipa nú þann virðulega sess. Herstjórnendur í Bandaríkjunum virðast hafa pata af því, að bæði óvinur eitt og tvö, geti skákað þeim á hernaðarsviðinu. Því er nú undirbúið stjörnustríð og hamraður „járnskjöldur“ eins og átti að skýla Ísraelum fyrir eldflaugaárásum.

Þetta, ívafið þróun og notkun gervigreindar, skynjunar-, eftirlits- og boðtækni, er næsta stóra, skattniðurgreidda verkefni Bandaríkjastjórnar. Frumkvöðlarnir halda sig nálægt skattajötunni.

Þessi þróun er vissulega til þess fallin að auka enn hættuna á alheimsstríði og blása nýju lífi í vopnakapphlaupið. Með öflugum stuðningi nýdjúpríkisins lætur Dónaldur nú rætast spásagnir alheimsstjórnarsinnans, Herbert George Wells (1866-1946), sem var einn aðalstefnumótenda hins kommúníska Fabian félags auðjöfranna í Lundúnum.

„Heimsheili alríkisins,“ gervigreindarguðinn, sem fylgist með, hirtir og eyðir, er í fæðingu og notar gífurlega mikið af rafmagni.

Í ljósi alls þessa er skiljanlegt, að Dónaldur vilji styrkja bandaríska herinn. Hann fylgir þar eftir kynjastefnunni, þ.e. að kyn séu aðeins tvö, karl- og kvenkyn, og gerir útlæg úr röðum soldátanna „önnur“ kyn.

Forsetinn hefur greinilega sagt eymdarhyggjunni (woke, vók) stríð á hendur. Það er góðs viti. Í kjölfar þess verður endurreist – ef að líkum lætur – sú stefna, að ráða fólk í störf og embætti eftir verðleikum (meritocracy), en ekki kyni, húðliti eða upplifaðri eymd. Sama á við um aðgengi að æðri menntastofnunum.

Jafnframt boðar Dónaldur, að karlkonur skuli gista fangelsi fyrir karla. Hvergi í veröldinni er jafn marga fanga að finna og í Bandaríkjunum og engin þjóð í veröldinni á jafnmargar herstöðvar og sóar viðlíka miklu fé í stríð. Bandaríkjamenn eiga þjóðamet í drápum á almennum borgurum, eftir að síðari heimstyrjöld lauk.

En þeir hafa sér vitanlega til málsbóta að vilja innleiða lýðræði, frelsa og kenna mannréttindi. Umfram allt vakir fyrir þeim að tryggja öryggi í veröldinni. Þeir hafa skuldbundið sig til að halda verndarhendi yfir fjölda þjóða, m.a. Íslendinga.

Hvað sem því líður hvíslar friðarfuglinn vonandi í eyra heimsveldisforsetans, að það sé komið nóg, að Bandaríkjamenn skyldu snúa heim á leið og láta fólk í friði. En það er náttúrulega bara vonum glædd óskhyggja. Það leyfir ekki stríðsauðvald alheimsins. Stríð eru lífæð þess og aðaltekjulind.

Líklega hefur veröldin aldrei búið við svo marga sálsjúka, stríðsóða, fáfróða, dómgreindarlausa og vænisjúka leiðtoga sem nú. Það á einnig við um Íslendinga. Þeir hafa stígið fleiri skref á þeirri leið, sem leiðtogar vorir vörðuðu með skerðingu fullveldis og afsali hlutleysisins. Þetta myndbirtist með skýrum hætti í tveim síðustu utanríkisráðherrum. Stríðsofstæki þeirra er óhugnanlegt.

Það er sótt að okkur úr öllum áttum, vopnaskak, sjúkdómar (fuglaflensan er í uppsiglingu), manngerðar náttúrhamfarir, helvítishlýnun, upplausn og ringulreið er skipulögð.

Geðsjúkir drápsmenn og böðlar í þjónustu Vesturveldanna eru fjölmiðlasnyrtir og sagðir uppreisnarmenn í þágu lýðræðis, friðar og frelsis.

Nató lýsir yfir stríði og utanríkisráðherra leggur að okkur kaupa niðursoðinn mat, en vera þó ekki hrædd. En við vitum ekki vort rjúkandi ráð. Það er ásetningurinn. Stríðsgeðveikin er í algleymingi.

Orð rómverska sagnfræðingsins, Publius Cornelius Tacitus (56?-120?), eru enn í fullu gildi: Gripdeildir, slátrun, þjófnað; þetta misnefna þeir og kalla heimsveldi: Þeir leggja í rúst og kalla frið. (Auferre, trucidare, rapere, falsis nominibus imperium, atque, ubi solitudinem faciunt, pacem appellant.)

Eftirmáli: Það er Evrovision vertíð. Leyfi mér því að minna á besta lagið á þeim vettvangi fyrir og síðar, sungið af hinni yndislegu Nicole: Hvað með eilítinn frið og ást: https://www.youtube.com/watch?v=hp_b-095yPc-

https://21stcenturywire.com/2025/02/01/rfk-jr-senate-hearings-reveal-a-wolf-in-sheeps-clothing/ https://www.youtube.com/watch?v=prb2E5PMAzU&list=UUoJhK5kMc4LjBKdiYrDtzlA&index=5 https://www.globalresearch.ca/monster-high-crime-weather-engineering/5870475 https://www.globalresearch.ca/the-trump-regime-is-being-defeated-before-it-takes-office-paul-c-roberts/5877181 https://www.youtube.com/watch?v=Fhnd3-IWlSY https://www.youtube.com/watch?v=A8EPJuyptqQ https://www.globalresearch.ca/war-criminal-benjamin-netanyahu-visit-donald-trump/5878716 https://cynthiachung.substack.com/p/a-look-at-cs-lewiss-sci-fi-trilogy?utm_source=cross-post&publication_id=309240&post_id=113227741&utm_campaign=309240&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=KwcgZAd3tvs&list=UUkF-6h_Zgf9zXNUmUB-MzTw&index=4 https://www.globalresearch.ca/uk-leading-global-test-bed-ai-enforcement/5877274 https://www.theinteldrop.org/2025/01/28/pepe-escobar-dancing-to-trumps-disco-inferno/ https://www.globalresearch.ca/monster-high-crime-weather-engineering/5870475 https://michael-hudson.com/2025/01/weaponizing-the-us-dollar/ https://www.youtube.com/watch?v=kA7AfuTBwvk&list=UUkF-6h_Zgf9zXNUmUB-MzTw&index=1 https://glenndiesen.substack.com/p/did-the-us-declare-the-end-of-the?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=156221317&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.state.gov/secretary-marco-rubio-with-megyn-kelly-of-the-megyn-kelly-show/ https://korybko.substack.com/p/five-takeaways-from-trumps-plans?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=156223905&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.whitehouse.gov/presidential-actions/2025/01/prioritizing-military-excellence-and-readiness/ https://x.com/cspan/status/1884690347474727404?ref_src=twsrc%5Etfw%7Ctwcamp%5Etweetembed%7Ctwterm%5E1884690347474727404%7Ctwgr%5E3d8d10dd817b3bc51c7ec359307e82ea0ddd31b0%7Ctwcon%5Es1_&ref_url=https%3A%2F%2Fsteigan.no%2F2025%2F02%2Ftrump-pa-guantanamo%2F https://steigan.no/2025/02/trump-interneringsanlegget-pa-guantanamo-skal-operere-med-full-kapasitet/ https://steigan.no/2025/02/trump-pa-guantanamo/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.theepochtimes.com/article/5-takeaways-from-rfk-jr-s-senate-hearing-for-hhs-secretary-5800885 https://unlimitedhangout.com/2025/01/press/redacted-15/ https://unlimitedhangout.com/2025/01/investigative-reports/thiel-linked-hhs-nominee-threatens-maha-ambitions-with-biotech-stance/ https://www.globalresearch.ca/trump-plaza-gaza-emanuel-pastreich/5878271 https://www.globalresearch.ca/life-public-assassination-john-f-kennedy/5878263 https://korybko.substack.com/p/the-example-that-trump-made-out-of?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=155904141&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2025/01/trumps-terror-mot-cuba/?utm_source=substack&utm_medium=email https://misiones.cubaminrex.cu/en/articulo/cuba-will-overcome-imperialist-offensive-1 https://www.youtube.com/watch?v=CaApFRmgW64&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=3 https://www.youtube.com/watch?v=8yYXNCKOxNI https://www.youtube.com/watch?v=QjUNyCiYMYI&list=UUkF-6h_Zgf9zXNUmUB-MzTw&index=1 https://michaeltsnyder.substack.com/p/11-random-facts-that-show-that-america?utm_source=post-email-title&publication_id=1520363&post_id=155963486&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://denniskucinich.substack.com/p/statement-of-support-for-congresswoman?utm_source=post-email-title&publication_id=1441588&post_id=155910016&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://responsiblestatecraft.org/trump-clean-out-gaza/?ct=t(RSS_EMAIL_CAMPAIGN)&mc_cid=a6a1a1b13a&mc_eid=ae33554485 https://responsiblestatecraft.org/trump-iran-negotiations/?ct=t(RSS_EMAIL_CAMPAIGN)&mc_cid=a6a1a1b13a&mc_eid=ae33554485 https://steigan.no/2025/01/kennedy-leverte-til-gull-et-hap-for-verdens-helse/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2025/01/tulsi-gabbard-fortalte-usa-om-hvordan-obama-stottet-al-qaida-i-syria/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/video-oliver-stone-peter-kuznick-war-profiteering-nuclear-tech-nato-v-russia-war-iran/5878387 https://21stcenturywire.com/2025/01/28/will-israel-and-turkey-go-to-war/ https://x.com/TigayBarry/status/1883516936102789296?ref_src=twsrc%5Etfw%7Ctwcamp%5Etweetembed%7Ctwterm%5E1883516936102789296%7Ctwgr%5E9e3ef0f92b8ebc2f24e8468976c10332515adda6%7Ctwcon%5Es1_&ref_url=https%3A%2F%2F21stcenturywire.com%2F2025%2F01%2F28%2Fwill-israel-and-turkey-go-to-war%2F https://drjacobnordangard.substack.com/p/is-trumpmageddon-coming?utm_source=post-email-title&publication_id=1015075&post_id=155837411&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://consortiumnews.com/2025/01/26/trump-clean-out-that-whole-thing-meaning-the-gazan-people/ https://geopoliticaleconomy.substack.com/p/trump-colombia-gustavo-petro-colonialism?utm_source=post-email-title&publication_id=457596&post_id=155837833&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://michaeltsnyder.substack.com/p/economic-black-hole-here-are-25-signs?utm_source=post-email-title&publication_id=1520363&post_id=155786307&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://geopoliticaleconomy.substack.com/p/michael-hudson-trump-tariffs-global-economy?utm_source=post-email-title&publication_id=457596&post_id=155688069&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://sonar21.com/mr-president-when-it-comes-to-russia-check-your-assumptions/?jetpack_skip_subscription_popup https://conflictsforum.substack.com/p/are-trump-and-netanyahu-on-a-collision?utm_source=post-email-title&publication_id=3393451&post_id=155834994&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://michaeltsnyder.substack.com/p/trump-is-completely-shocking-washington?utm_source=post-email-title&publication_id=1520363&post_id=155972511&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://korybko.substack.com/p/trumps-gaza-proposal-takes-a-page?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=155814351&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email


Hverjum þykir sinn sögufuglinn fagur. Auschwitz og Sankti Pétursborg

Það er alkunna, að þjóðir eða stríðsaðiljar, skrifa söguna meira eða minna eftir eigin höfði. Það á svo sannarlega við um aðra heimstyrjöldina. „Rétta“ sögu hennar skrifuðu sigurvegararnir. Napoleon Bonaparte (1769-1821) talaði um lygasögu. Fyrri heimstyrjöldin var nú reyndar háð – samkvæmt einni útgáfu sögunnar – til að binda enda á öll stríð. Það fór nú reyndar ekki svo. Alþjóðaauðvaldið er þurftafrekara en sem svo.

Það er líka almælt, að stríðsfylkingarnar stunda áróður eða upplýsingahernað í ríkum mæli til að réttlæta gjörðir sínar, fegra ásjónu eða tryggja hagsmuni. Flestir eru líklega orðnir sjóaðir í þessu efni í sambandi við veiruhernaðinn og stríðin í Palestínu/Ísrael og Úkraínu.

Um þessar mundir eru áttatíu ár, síðan annarri heimstyrjöldinni lauk (eða öllu heldur öðrum kafla stöðugrar styrjaldar). Vestrænir leiðtogar streymdu til Auschwitz til að minnast illvirkja þýskra nasista.

Í fréttum RÚV var leidd fram á völlinn öldruð Gyðingakona eins og svo margar trúsystur og -bræður við réttarhöld sigurvegaranna yfir Þjóðverjum í Nürnberg – sem reyndar voru Hollývúdd-kvikmynd líkust.

Hún sagði með skiljanlegri vanþóknun, að nasistar hefðu kallað Gyðinga rottur og umgengist þá sem slíka. Það hefur vafalítið líka átt sér stað, en rímar þó illa við frásagnir margra þeirra, sem ekki fengu leiðsögn um vitnisburð í Nürnberg eða rétttrúnað.

Aukin heldur er það algengt, að stríðandi fylkingar niðurlægi andstæðinginn. Gyðingar höfðu – eða auðjöfrar, trúfræðingar og fjölmiðlaeigendur meðal þeirra öllu heldur – þá sannfæringu í orði kveðnu, að Þjóðverjar væru andstæðingar þeirra. (Þeir telja sig yfirleitt fórnarlömb annarra.) Þetta gerðist á fjórða áratugi síðustu aldar. Gyðingar lýstu yfir stríði og kröfðust þess, að Þjóðverjum yrði útrýmt.

Sú iðn var mörgum þeirra töm. Það eru nefnilega ófáir fjöldamorðingjar sögunnar meðal Gyðinga. Gyðingurinn, Sever Plocker skrifar í bókinni, „Gyðingum Stalins.“

“Við megum ekki gleyma því, að sumir stærstu fjöldamorðingja fyrr og síðar voru Gyðingar. Genrikh Yagoda (1891-1938) var afkastamesti morðinginn úr röðum Gyðinga á nítjándu öldinni. Hann hefur dráp að minnsta kosti tíu milljóna á samviskunni.”

Annar slíkur var Lazar Moiseyevich Kaganovich (1893-1991), einnig leiðtogi hinnar gyðinglegu leynilögreglu Bolsévikka, Cheka, síðar KGB.

Í miðlinum, „American Hewbrew“ stóð 1920:

“Bylting Bolsévikka í Rússlandi var árangur af snilli Gyðinga (Jewish brains), vansæld Gyðinga og áætlunum Gyðinga um nýja heimsskipan. Það, sem svo vel tókst til í Rússlandi …mun einnig – fyrir tilstuðlan sömu andlegu og áþreifanlegu aflvaka - verða að veruleika um heim allan.”

Gyðingurinn blóðþyrsti, Grigori Yevseyevich Zinoviev eða Hirch Apfelbaum (1883-1936), leiðtogi „Alþjóðasambands byltingarsinna“ (Communist International), skrifar í „Drasnay Gazeta“ 1918:

“Við munum granda óvinum okkar hundruðum saman. Látum það verða þúsundum saman. Látum þá drukkna í eigin blóði … Stuðlum að blóðflóði borgarastéttarinnar – Meira blóð. Eins mikið og unnt er.“

Í „Jewish Daily Bulletin“ stóð 1935: “Það er einungis ein tegund valds, sem skiptir máli. Þrýstingur í stjórnmálum. Við, Gyðingar, erum öflugasta þjóð veraldar, því við búum yfir þessu valdi og kunnum að beita því.“

Manfred Reifer leiðtogi Gyðinga í Bukovina (Austurríki-Rúmeníu):

“Meðan Þjóðverjar upp til hópa reyndu að vernda þjóðerni (race) sitt, þyrptumst við, Gyðingarnir, út á stræti og torg, með háreysti. … Við spottuðum æðstu gildi þýskrar þjóðar og vanhelguðum það, sem þeim var heilagt.”

Kurt Munzer skrifar í bók sinni, „Leiðinni til Síon” (Der weg nach Zion), frá 1907:

“Við höfum spillt blóði allra þjóða Evrópu – við gætum hafa smitað þær. Um þessar mundir er allt gyðingvætt (Jeweified). Hugsun okkar birtist í öllu, sem hrærist, andi okkar stjórnar heiminum. Við erum herraþjóðin, því allt, sem öflugt er í veröldinni, er afkvæmi anda vors.”

Gyðingurinn, Theodore Newman Kaufman (1910-1986), skrifaði bókina: „Þýskalandi verður að eyða“ (Germany must perish), árið 1940. Í viðtali við „Canadian Jewish Chronicle,“ sagði hann ári síðar:

“Það er trúa mín, að Gyðingar hafi köllun í lífinu. Þeir verða að búa svo um hnútana, að allar þjóðir veraldar sameinist í gríðarmiklu sambandi og verði Gyðingum undirgefnar. En hvernig má það verða og um leið halda friðinn, ef Þjóðverjar lifa. Gerum því gangskör að því að gera ófrjósemisaðgerðir á öllum Þjóðverjum, heyjum gegn þeim stríð, öðrum stríðum hræðilegri.”

Menachem Begin (1913-1982), hryðjuverkasveitarforingi, fjöldamoringi og síðar forsætisráðherra Ísraels, sagði:

“Kynþáttur (race) vor er yfirburðakynþáttur (master race). Við erum heilagir (divine) guðir jarðarinnar. Við erum jafn frábrugðnir öðrum kynþáttum og þeir eru skordýrum … Aðrir kynþættir eru skepnur, dýr, í mesta lagi nautgripir. Það eru forlög vor að ríkja yfir óæðri kynþáttum. Fjöldinn mun sleikja fætur vora og þjóna sem ánauðugir menn.”

Gyðingurinn og kvenfrelsarinn, Andrea Dworkin (1946-2005), sagði:

“… við verðum að ganga af menningunni dauðri í núverandi mynd; list hennar, kirkjum, lögum, kjarnafjölskyldu. Hún [menningin] er grundvölluð á föðurrétti og þjóðríkjum.”

Gyðingurinn, Harold Wallace Rosenthal (1947-1976), sagði:

“Við höfum hrifsað til okkar vald með því að komast yfir [seðla]banka þjóðarinnar [national monetary system – Federal Reserve í BNA] … Það var ásetningur frá upphafi að gera upptækt allt gull og silfur [í eigu fólks] í skiptum fyrir óinnleysanlega pappírsseðla. …

Við, Gyðingar, hreykjumst yfir þeirri staðreynd, að hinir heimsku Ógyðingar (Goy) hafi aldrei áttað sig á, að við séum sníkjudýr, sem gína yfir sífellt stærri hluta framleiðslunnar, meðan framleiðendur bera stöðugt minna úr býtum.”

Það fylgir sögunni, að Harold var myrtur. Það var Franklin Delano Roosevelt (1882-1945), sem fyrirskipaði upptöku nefndra eðalmálma.

Enn er haldið í heiðri sögunni um sex milljónir Gyðinga, sem voru drepnar í eitursturtum og brenndir í gasofnum. Grunnurinn að þessari sögu er rússneskur Gyðingaáróður frá upphafi síðustu aldar, löngu áður en þýskar fangabúðir fyrir andstæðinga Þjóðverja í stríðinu voru reistar. Nóg voru grimmdarverkin samt. Slíkar fangabúir höfðu Bretar áður reist í Suður-Afríku.

Í nýlegri pólskri skýrslu er fjöldi fanga, er týndu lífi í fangabúðunum, metinn um 1.2 milljónir. Rauði krossinn, sem hafði óheft aðgengi að fangabúðunum, taldi 271.000 hafa látist. Herlögregla Bandamanna hótaði málsókn þeim, sem dreifu þeirri staðleysu, að fólk hefði verið tekið af lífi í gasofnum.

Fjöldi manna var þó tekinn af lífi - einkum andspyrnufólk – en flestir létust úr sjúkdómum og vannæringu, þegar hungursneyð varð í Þýskalandi. Þar á meðal var Anna Frank (1929-1945). Hún hlaut heimsfrægð fyrir dagbók, sem var uppdiktuð.

Flestir aðilja í stríði fremja grimmdarverk, sumir þjóðarmorð (samkvæmt alþjóðlegri skilgreiningu) eins og Ísraelar nú. En Þjóðverjar hafa verið sérstakur skotspónn, frá því að fyrri heimstyrjöldin braust út. Þeim er reyndar kennt um báðar heimsstyrjaldirnar, enda þótt þeir hafi hvergi komið nærri upptökum þeirrar fyrri og var sagt stríð á hendur af Frökkum og Bretum í þeirri síðari.

Sameinað Þýskaland snillingsins, Otto Eduard Leopold von Bismarck (1815-1898), hefur ævinlega verið þyrnir í augum Breta og Frakka. Efnahagsleg samvinna Þjóðverja og Rússa hefur alltaf verið Bandaríkjunum ógn. Nató var m.a. stofnað til að halda Þjóðverjum niðri og Rússum úti (hinum í taumi). Nú hefur Þjóðverjum verið komið á kné, en Rússar standa enn keikir.

Winston Leonard Spencer Churchill (1874-1965), sagði t.d.:

“Þýskaland er að verða of öflugt. Við verðum að ganga frá því … Það verður að vera lýðum ljóst, að þetta stríð [önnur heimstyrjöldin] er hvorki háð gegn Hitler né þjóðernisjafnaðarmönnum, heldur gegn afli hinnar þýsku þjóðar, sem verður að brjóta niður í eitt skipti fyrir öll. Þá má einu gilda, hvort leiðtogi hennar sé Hitler eða Jesúítaprestur.”

Vesturlandaþjóðunum og Sovétmönnum/Rússum er hlíft við ófrægjandi umfjöllun um grimmdarverk og stríðsglæpi. T.d. dauðasvelti Þjóðverja, Bengala og Íra af völdum Breta, morð Sovétmanna á pólskum hermönnum (Þjóðverjum kennt um), kjarnorkuvopnaárás Bandaríkjamanna á Japan, eldsprengjuárásir Bandamanna á þýskar borgir, þjóðarmorð Tyrkja á Armenum, þjóðarmorð Frakka á Alsírbúum, fjöldamorð Pólverja á Þjóðverjum, Úkraínumanna á Pólverjum, og svo mætti lengi telja.

Rússum var ekki boðið til Auschwitz, því þeir eru vondir strákar. En Volodymyr Zelensky, sem heiðrað hefur úkraínska nasista, var boðið. Það var einnig fulltrúum Finnlands, sem – ásamt þýska hernum – sat um Leníngrad (Sankti Pétursborg) og ullu dauða upp undir milljón manna – svipuðum fjölda og Bandaríkjamenn drápu í fangabúðum sínum í Þýskalandi. Það þykir ekki verðugt umræðuefni.

Vladimir Putin, sem missti bróður sinn í þessum skelfilega hildarleiki, stóð fyrir minningarsamkundu og heiðraði nokkra þeirra, sem lifðu af. Stríðið virðist lifa í minningu Rússa í dag. Því er skiljanlegt, að það snuggi í þeim, þegar Donald Trump klappar þeim á kollinn og segir þá hafa aðstoðað Bandaríkjamenn við sigur þeirra í annarri heimstyrjöldinni.

En hins vegar fjármögnuðu bandarísk stjórnvöld stríðsrekstur Rússa (og Þjóðverja einnig] með aðstoð auðjöfra á Wall Street; hergagnasendingar og -framleiðslu, sem skipti sköpum í stríðinu við Þjóðverja.

Vladimir sá ekki ástæðu til að minnast á öll grimmdarverk Rauða hersins í Þýskalandi á ofangreindri minningarhátíð. Ætli Þjóðverjar muni minnast þeirra. Eða er það villutrú?

Hverjum þykir sinn fugl fagur og minnið er átakanlega gloppótt. Vitrir menn hafa sagt, að í stríði sé sannleikurinn fyrsta fórnarlambið.

https://www.amazon.com/dp/1880026082 https://archive.org/details/adolf-hitler-the-greatest-story-never-told https://archive.org/details/TheBadWarTheTruthNEVERTaughtAboutWorldWarII/The%20Bad%20War%20-%20The%20Truth%20NEVER%20Taught%20About%20World%20War%20II/ https://us.europathelastbattle.net/watchnow-beta-test.html https://www.nachdenkseiten.de/?p=127422 https://gilbertdoctorow.com/2025/01/28/27-january-2025-collective-memory-in-russia-and-collective-amnesia-in-the-west/ https://www.youtube.com/watch?v=LMuoUbDfmwA


Bandaríkin. Dónaldur trumpar um undirróður, stríð og bólusetningar

Donald Trump er íslenskum veðurguði líkastur. Það er illgerlegt að vita, hvaðan á sig stendur veðrið. Aldrei hefur nokkur Bandaríkjaforseti skipað hirð svo forríka til að berjast fyrir hagsmunum fátæklinga. Þar má finna að minnsta kosti þrettán milljarðamæringa.

Tröllin takast á. Bandaríski blaðamaðurinn, Chris Hedges, segir auðjöfravaldið (oligarchic power) takast á við fyrirtækjavaldið (corporate power).

Tilskipanaflóðið á fyrstu dögum Dónalds í embætti vekja athygli; stundum fögnuð, stundum þunglyndi – og öll tilbrigði tilfinninganna þar á milli. Nú brynna músum frelsarar kvenna og kyns. Karlskömmin hefur skipað svo fyrir, að einungis tvö kyn skuli viðurkennd í Bandaríkjunum; karl- og kvenkyn. Þetta er rosaleg afturför í réttindabaráttu kvenna.

Eymdarmenningin (woke culture - vók) hefur fengið verðugan andstæðing. Dónaldur fetar í slóð hins argentínska, Javier Milei, með keðjusögina. Hann sagaði niður kvenfrelsunar- og kynofbeldisráðuneytið, og svei mér þá, hafi hann ekki líka agnúast út í „mee-too“ frelsunina.

„Forseti vor,“ Dónaldur, segir menningarvitunum með skrítnar skammstafanirnar og regnbogafána, stríð á hendur. En úrslit eru fjarri því ráðin.

„Jákvæðri mismunun“ veður einnig kastað fyrir róða. Það hefur vafalítið góð áhrif á efnahag Bandaríkjanna og stjórnsýslu, þegar fólk verður ráðið samkvæmt verð- og hæfileikum, en ekki kyni og/eða hörundsliti. Það mætti valkyrjustjórnin taka til alvarlegrar skoðunar.

Það mætti líta á Dónald sem hinn nýja kvenfrelsara. Hann trumpar: „Veita skal konum vörn gegn öfgakynjahugmyndafræðinni og endurlífga líffræðileg sannindi við stjórnsýslu alríkisstjórnarinnar.“ Það merkir líklega, að andæft verði lagarétti kvenna til geðþóttafóstureyðinga fram að fæðingu barns.

Svo virðist sem Dónaldur ætli líka að knésetja Alheimsauðvaldið í Davos (Alheimsefnahagsráðið) og hjá Sameinuðu þjóðunum. Það er virðingarvert. Það er þó hluti þessa auðvalds, sem „keypti“ hann til valda. Öflugast var tölvutækniauðvaldið með Gyðinginn, Elon Musk, í fararbroddi.

Dónaldur lét skírast til Gyðingdóms, skömmu eftir, að dótturinni var haldið undir skírn. Nær gervöll hirð hans er skipuð gyðinglegum eða kristnum Síonistum, sem berjast fyrir ragnarökum, svo Frelsarinn megi snúa aftur til syndum spilltrar jarðar. Hirðin hefur nú upphafið skæklatog við ísraelsk stjórnvöld um völd í Vestur-Asíu, Ísrael og Palestínu sérstaklega.

En Síonistinn, Dónaldur, heldur ótrauður áfram á leið til Stór-Ísraels, svo tryggja megi bandarísk yfirráð yfir einni mestu orkunámu veraldar og skapa viðskiptamiðstöð fyrir botni Miðjarðarhafs. Abrahams samningana (Abraham Accord), þ.e. endanlegar sættir Ísraelsríkis við Sádi-Araba og aðrar Arabaþjóðir, nýjar flutningsleiðir um Arabíuskagann og jafnvel nýjan skipaskurð.

Því hefur verið nauðsynlegt að ná undir sig Gaza, ásamt gas- og olíulindum þess í hafinu. Það var tilgangurinn með því að sprengja mannvirki þar í tætlur, drepa eða reka á brott Palestínumenn til Jórdan, Egyptalands og víðar.

Nú verða Egyptar og Jórdanir teknir ákveðnara hreðjataki eins og Grænlendingar og Panamabúar – og jafnvel Kanadamenn. Þar er einnig gríðarleg auðævi að finna.

Enn er óvíst, hvort Dónaldur lætur til skarar skríða gegn Írönum, sem haldið hafa aftur af sér, síðan Ísraelar gerðu árás á þá 27. október í fyrra. Hirð Dónalds lætur þó ófriðlega.

Það hefur lítið farið fyrir umræðu um tvær merkar tilskipanir frá Dónaldi; annars vegar að stöðva svokallaða aðstoð Bandaríkjanna til annarra ríkja og hins vegar að skoða nánar undirróðursstarfsemi bandarískra ríkisstofnanna og svonefnda „frjálsra félagasamtaka“ (samkvæmt skilningi RÚV – non-governmental organization), sem bandarísk stjórnvöld fjármagna að umtalsverðu leyti með alþjóðlegu auðvaldi. Þar fer Gyðingurinn, George Soros, fremstur í flokki.

Dónaldur lét þessi athyglisverðu orð út úr sér: „Hjálpariðnaður Bandaríkjanna í útlöndum og skrifræðið í sambandi við hann … þjónar þeim tilgangi að hleypa upp friði í heiminum og boða í öðrum ríkjum hugmyndir, sem eru beinlínis öndverðar friðsamlegum og stöðugum tengslum innan ríkis sem utan.

Minni afskiptasemi og [minni] áhersla á félags- og menningarlegt ráðabrugg (engineering) – að minnsta kosti næstu þrjá mánuði – mun verða tekið með þakklæti allra þeirra þjóða, sem hafa orðið fyrir barðinu á blendingsstríði (hybrid war) óopinberra félagssamtaka (NGO-driven, þ.e. non-governmental organization).“

Þetta hljómar fagnaðarerindi líkast. Gangi það eftir, þarf hulduher leyniþjónustna (þ.e. CIA og ráðuneytanna) Bandaríkjanna að snáfa heim til sín og láta ríki heims – eins og Georgíu, Venesúela, Slóvakíu, Bangaladesh, Pakistan, Rúmeníu, Úkraínu, Úganda og mörg fleiri – í friði.

En þessi tilskipun stangast hressilega á við trumpin um Mið-Austurlönd, Ísrael og Palestínu – eins og vænta mátti. Dónald fetar ótrauður í fótspor hetju sinnar, William McKinley (1843-1901), sem festi heimsvaldastefnu Bandaríkjanna í sessi. Sá mikli forseti lagði undir Bandaríkin Havæ, Guam, Púertó Ríkó og Filippseyjar. Fjall eitt í Alaska skal endurskírt McKinley-fjall.

„Bandaríkin munu senn verða öflugri og miklu afburðameiri (exceptional) en áður,“ segir Dónaldur. Hér hefur hann vafalítið í huga þá sannfæringu þjóðar sinnar, að fyrir Bandaríkjamönnum liggi að boða rétta lífshætti um víða veröld (manifest destiny). Hún var m.a. réttlæting á útrýmingu Índíánaþjóða Norður-Ameríku.

Trumpin um Rússland og Vonda-Valda eru hér um bil skemmtilega út í hött. Sögu- og staðreyndaþekkingu Dónalds er viðbrugðið. Hann fullyrðir kokhraustur, að Sovétmenn hafi misst 60 milljónir manna í annarri heimstyrjöldinni, eina milljón hermanna í Úkraínustríðinu, að efnahagur Rússa sé í molum og að upplaun sé í landi þeirra. (Ætli hann hafi fengið sér hressilega í nös með Volodymyr Zelensky, átrúnaðargoði íslenskra utanríkisráðherra?)

En eins og allir vita er Dónaldur miskunnsamur. Hann trumpar: ´“Ég ætla að gera Rússlandi - með bágan efnahag – og Putin forseta, gríðarlegan greiða.“ Þá á hann við „deal“ á skjön við allar forsendur Rússa fyrir friði, en ekki vopnahléi. Yfirlætið, kunnáttuleysið og dómgreindarleysið, er beinlínis ógnvænlegt.

En með þetta veganesti að vopni segist hann vilja semja bæði við Rússa og Kínverja um fækkun kjarnorkuvopna. Hann hefur líklega gleymt því, að sjálfur sagði hann upp slíkum samningi við Rússa og sleit viðræðum við Írana.

Mörg okkar hafa beðið spennt eftir frekari umsnúningi Dónalds í heilbrigðismálum – sérstaklega, hvað bólusetningar varðar. Með Robert Kennedy (væntanlega) við stjórnvöl á því málefnasviði kemur óneitanlega á óvart, að forsetinn skuli nú vilja styrkja frekari þróun RNA bólusetninga og halda þannig áfram á braut fyrrverandi forseta. Lyfjaiðnaðurinn virðist hafa kverkatak á forsetanum eins og stuðningsmenn Ísraelsstjórnar.

RNA tæknin er tengd þróun gervigreindar, m.a. í heilbrigðisgeiranum. Þróun hennar er náskyld taugaboðs- og tölvutækni, sem eru ær og kýr Elon Musk m.a. Eftirlits- , njósna og hernaðartækni er þessu nátengd.

Elon Musk er innsti koppur í búri Starlink, gervihnattakerfisins, sem m.a. hefur verið beitt í stríðinu í Úkraínu, gervigreindartækni í stríðinu á Gaza. Nýja einkaframtakið heitir Stargate. Það er sem sé á ríkisjötu Bandaríkjanna eins og mörg hinna fyrri, sem nú eru í eigu auðjöfranna, sem keyptu sér „hlutabréf“ í Donald Trump.

Hlutabréfin voru væntanlega greidd í Bandaríkjadölum, en hins vegar hefur Dónaldur nú gefið út rafmynt (crypotcurrency), $Trump eða Dalatrump. Þannig auðveldar hann fjárfestingar í forsetaembættinu undir eigin stjórn. Kaupendur þarf ekki að nafngreina.

Skuldafen Bandaríkjamanna virðist Dónaldi ekki sérlega hugleikið, enda þótt Elon Musk eigi að munda sparnaðarhnífinn. Ei heldur hefur hann áhyggjur af hernaðar- og kúgunarmiðuðum efnahagi Bandaríkjanna. Hann þyrfti að spjalla við gagnfróða hag- og sagnfræðinga. Njáll (Niall) Fergusson segir t.d. á þessa leið:

Sérhvert stórveldi, sem eyðir meira fé í afborganir skulda (vexti af ríkisskuldum) en til varna, mun ekki eiga langt líf fyrir höndum. Það átti við um Habsborgarveldið á Spáni, hina gömlu stjórn í Frakklandi, heimsveldi Ósmana og Breta. Þetta lögmál verður prófað á Bandaríkjunum frá síðustu áramótum.

https://gilbertdoctorow.com/2025/01/20/donald-trumps-inaugural-speech-we-will-be-the-envy-of-every-nation-we-will-make-our-country-even-more-exceptional/ https://chrishedges.substack.com/p/trump-musk-gaza-the-rise-of-totalitarianism?utm_source=post-email-title&publication_id=778851&post_id=155296657&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.igor-chudov.com/p/debate-is-the-new-trump-memecoin?utm_source=post-email-title&publication_id=441185&post_id=155134956&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2025/01/var-naermeste-allierte-har-ingen-venner-bare-interesser/?utm_source=substack&utm_medium=email https://unlimitedhangout.com/2025/01/investigative-reports/the-cdc-palantir-and-the-ai-healthcare-revolution/ https://steigan.no/2025/01/monroedoktrinen-versjon-2-0/?utm_source=substack&utm_medium=email https://corbettreport.substack.com/p/elon-unmusked-roundtable-discussion?utm_source=podcast-email&publication_id=725827&post_id=155077278&utm_campaign=email-play-on-substack&utm_content=watch_now_button&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=LV55l545C_g https://www.youtube.com/watch?v=H68xPQPz-Oc https://conflictsforum.substack.com/p/is-trump-positioning-for-a-no-deal https://steigan.no/2025/01/trump-sier-han-onsker-a-samarbeide-med-kina-og-russland-om-atomnedrustning/?utm_source=substack&utm_medium=email https://responsiblestatecraft.org/trump-inauguration-speech-war/?ct=t(RSS_EMAIL_CAMPAIGN)&mc_cid=71b0cb3456&mc_eid=ae33554485 https://korybko.substack.com/p/the-us-90-day-suspension-of-foreign?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=155675632&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://sonar21.com/is-trump-positioning-for-a-no-deal-with-russia-or-not/?jetpack_skip_subscription_popup https://childrenshealthdefense.org/defender/biden-trump-administrations-commit-billions-mrna-vaccine-technologies/?utm_source=luminate&utm_medium=email&utm_campaign=defender&utm_id=20250122 https://www.forbes.com/sites/saibala/2025/01/22/project-stargate-a-500-billion-ai-venture-between-oracle-open-ai-nvidia--softbank-that-will-revolutionize-healthcare/ https://www.globalresearch.ca/trump-production-killer-mrna-vaxxes/5878113 https://21stcenturywire.com/2025/01/24/crosstalk-with-peter-lavelle-the-new-age-of-trump-with-patrick-henningsen-and-guests/ https://www.youtube.com/watch?v=7zbswGcZc_8 https://michaeltsnyder.substack.com/p/we-got-out-of-the-who-just-in-time?utm_source=post-email-title&publication_id=1520363&post_id=155387403&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://geopoliticaleconomy.substack.com/p/big-tech-billionaires-trump-inauguration?utm_source=post-email-title&publication_id=457596&post_id=155326911&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://sonar21.com/donald-trump-the-good-the-bad-and-the-ugly/


Trumpur og eldingar. Kolsvarti, stríðsóði tíkarsonurinn og morðsvallið á Gaza

Þann tuttugasta þessa mánaðar verður Donald Trump, bráðum konungur af Grænlandi og Kanada, öðru sinni vígður til embættis forseta Bandaríkjanna. Á meðan brennur Englaborgin eins og Róm forðum - og regnboðaslökkviliðið fær ekkert við ráðið.

Eftir nokkurt flakk innan „sameiningarflokksins“ (Uniparty), staðnæmdist Dónaldur í fylkingu Lýðveldissinna (Repúblíkana) eins og fleiri í herbúðum hans.

Samtímis kveður tortímandinn, Joseph Biden, eins og Gyðingarnir, Jake Sullivan og Anthony Blinken, annars vegar þjóðaröryggisráðgjafi Samrunaheimsveldis Bandaríkjanna og Ísraela, og hins vegar utanríkisráðherra. Jake hefur lýst hollustuvandræðum sínum í blaðaviðtali.

Það færi vel á því, að Dónaldur bjóði einum dyggasta stuðningsmanni bandarískrar tortímingarstefnu í veröldinni, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, til vígsluteitis í Washington. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir verðskuldar einnig boðkort.

En líklega hafa stöllurnar ekki keypt hlutabréf í Dónaldi. Hefðu þær hins vegar greitt eina milljón dala ættu þær öruggt sæti í teitinu og jafnvel líka á skrautsýningu með Dónaldi og Melaníu: „One Light Sunday Service.“

Úrsúla „Medúsa“ von der Leyen er væntanlega heldur sneypt. Henni er ekki boðið. Ei heldur Keir Starmer, Bensa-barnamorðinga og Recep Tayyib Erdogan. Hvað veldur?

Mun Dónaldur í raun lýsa yfir stríði gegn hinu eldforna alheimsauðræði bankajöfranna, sem hafa höfuðstöðvara sínar í City of London og útibú á Wall Street – og veita þannig eftirlits- og tækniauðjöfrunum (PayPal og Silicon-genginu) brautargengi á kostnað hinna gömlu? Ætli hann reyni í alvöru að ná stjórn á djúpríkisleyniþjónustunum? Um það snýst baráttan á heimavelli.

En hún er vitaskuld tengd baráttunni á útivelli, því náin samvinna á sér stað um þróun njósnatækni milli Ísraela og Bandaríkjamanna. Engir hafa betri tök á þessari rafeindatækni og beitingu hennar við njósnir og dráp. Henni er t.d. beitt til að drepa fólk á Gaza. Eftir nokkur hneykslismál lögðu Bandaríkjamenn þessa tækni (zero click) á hilluna. En nú virðist hún hafa verið notuð sem skiptimynt, þegar þrýst var á Bensa-barnamorðingja til að líta upp úr manndrápum á Gaza.

Barnamorðinginn var að vísu hirtur hressilega, þegar Dónaldur sendi veröldinni umsögn Jeffrey Sachs um hann. Umsögnin er þessi:

„Netanyahu er enn iðinn við þann kolann að fá okkur til að berjast við Íran. Hann er kolsvartur tíkarsonur, því hann hefur sært okkur til endalausra styrjalda.“

Væntanlega hefur þessi skellur valdið nokkrum rasssviða hjá Barnamorðingjanum. En það verður engra stefnubreytinga þörf hjá Samrunaheimsveldinu. Stefnan var lögð fyrir rúmum aldarfjórðungi síðan.

Þegar gíslarnir eru komnir heim og Barnamorðinn hefur snyrt ásjónu sína ofurlítið, verður höggvið í sama hnérunn. Hugsanlega þó ekki fyrir stríðið gegn Íran og Jemen.

Barnamorðinn finnur vafalaust huggun í orðum lærifeðra sinna í Sionfasistahreyfingunni, ekki síst í orðum „heimahugmyndafræðingsins,“ Zeev Jabotsinsky (1880-1940), og sjálfs forsætisráðherrans, David Ben-Gurion (1886-1973):

„Við verðum að flæma Arabana á brott og taka land þeirra … og þurfi að beita valdi … til að tryggja rétt okkar til að byggja landið, þá gerum við það.“ (5. okt. 1937 í bréfi til sextán ára sonar síns, Amos.)

Í dagbókinni, klykkir hann út með þann 18. júlí 1948: „Við verðum að gera allt, sem í okkar valdi stendur til að tryggja, að þeir [Palestínumenn] snúi aldrei aftur.“

Hamasliðar fengu einnig sitt trump: „Ef gíslarnir verða ekki komnir til síns heima, áður en ég vígist til embættis, mun fjandinn verða laus í Miðausturlöndum. Og það mun ekki koma sér vel fyrir Hamas, og satt best að segja mun það koma öllum illa. Helvíti mun opnast. Ég þarf ekki að hafa fleiri orð um það. Þannig er nú það.“ Svona tala sjálfumglaðir valdsmenn.

Morðsvallið á Gaza heldur áfram eins og árásir á Líbanon, meðan á „vopnahléinu“ stendur. Eftirlits- og gervigreindartækni er óspart beitt og auk þess eru sérstakar morðsveitir sendar á vettvang. Í viðtali sagðist einum hermannanna svo frá:

„Það er enginn á stjái á götunum, nema lítill strákhvolpur, sem leikur sér í sandi í húsagarði. Skyndilega sprettir liðsforinginn úr spori, grípur drenginn, brýtur handlegg, olboga og fótlegg … traðkaði á maga hans þrisvar sinnum og lét sig hverfa. Við stóðum þarna gapandi af undrun … Hann tjáði mér, að „þessi börn þurfi að deyða um leið og þau líta dagsins ljós.“ Þetta verður leyfilegt, um leið og liðsforinginn gefur slíkt fordæmi.“

Annar sagði: „Þetta [drápin] eru eins og fíkniefni … þér líður eins og þú sért lagabókstafurinn sjálfur, þú semur reglurnar. Eins og þegar Ísrael er yfirgefið og þú stígur fæti á Gaza-ræmuna, þá sértu Guð [almáttugur].“

Sprengju- og morðæðið nær til Gaza, Vesturbakkans, Líbanon og Sýrlands. Þar er allt jafnað við jörðu. Hér um bil, hvar sem Samrunaheimsveldið kemur, er sviðin jörð. Landnám Ísraels heldur áfram í Sýrlandi. Og bráðum verður látið sverfa til stáls í Íran og Jemen. Þau eru bæði á listanum yfir ríki, þar sem – eins og í Írak – skal kollsteypa stjórnum og leiða landsmönnum fyrir sjónir gildi mannréttinda, frelsis og lýðræðis.

Þeim leiðangri er ekki lokið í Úkraínu, enda þótt heyrst hafi mörg trump í þá veru. Það er engu líkara en að stríðshaukarnir í hirð Dónalds haldi, að þeir geti með einhverju móti skákað Rússum hernaðar- og siðferðilega. En það geta hvorki þeir né gervallt Nató.

En Íslendingum þykir sjálfsagt að kaupa vopn handa Úkraínumönnum, svo vopna megi unglingsstrákana gegn harðsvíruðu herliði Rússa. Berjumst til síðasta Úkraínustráks, segja íslenskir stjórnmálamenn.

Meðal stuðningsmanna íslenskra stjórnvalda er það kallað vestræn samvinna í varnarmálum, „stabíl“ utanríkismálastefna. Sömu aðiljar taka undir lýsingar ráðamanna í Ísrael og kalla Palestínumenn dýr og styðja pyndingar á palestínskum föngum. Og aumingjans utanríkisráðherrann er svo heillum horfinn, að hann segist ekki vita, hvort „þjóðarmorð“ sé framið á Gaza.

Hún gæti t.d. sótt menntun til Ísraelans, Amos Goldberg. Hann segir: „Ég er ísraelskur prófessor í Helfararfræðum. Í hartnær þrjátíu ár hef ég rannsakað Helförina og kennt um hana, þjóðarmorð og ríkisofbeldi. Og heyri allir, sem heyra vilja: Það er framið þjóðarmorð á Gaza.“

Pyndingaböðlarnir í ísraelskum fangelsum eiga líka dygga stuðningsmenn meðal ísraelsku þjóðarinnar. Það brutust meira að segja út mótmæli, þegar átti að draga þá fyrir dóm. En þannig eru ekki allir Ísraelsmenn. Vonandi sætir hinn skynsami og mannúðlegi hluti þjóðarinnar, þ.e. sá, sem ekki er flúinn af hólmi, færis, og gerir uppreisn gegn Síonfasistunum, sem lifa í heimi sjö alda gamalla trúarkreddna með dyggum stuðningi Bandaríkjanna, sem útvega þeim vopn og fjármuni.

Ríki Evrópu og Evrópusambandið er selt undir sömu sök. Úrsúla „Medúsa“ von der Leyen sagði fyrir skömmu, þegar hún var í heimsókn í Ísrael:

„{Ég er] afskaplega hamingjusöm (happy) að vera komin til Ísrael. Við skulum einhenda okkur í að styrkja félagsskap vorn.“ Hún var áreiðanlega ekki í þeim erindagjörðum að frelsa um tuttugu þúsund gísla í fangelsum gestgjafa sinna.

Úrsúla Medúsa virtist heldur ekki hafa áhuga á því að inna ísraelsk stjórnvöld eftir nýútkominni skýrslu Amnesty International. Þar er lýst hryllilegum aðförum Ísraelsmanna gagnvart Palestínumönnum.

Skýrslunni var andæft bæði af ísraelskum stjórnvöldum og Ísraelsdeild samtakanna. Gyðingahatur, segja þau eins og ævinlega. Deildin hefur nú verið klofin frá aðalsamtökunum. Nýju lögin frá Knesset þess efnis, að fangelsa megi fólk í fjögur ár, án dóms og laga, vöktu heldur ekki athygli.

Það er eins og Dónaldur og Úrsúla Medúsa keppist um, hvort sé besti vinur Ísraelsmanna. En Dónaldur hefur einmitt lýst því yfir, að hann eigi vinninginn. Stefna hans í Miðausturlöndum snýst um það að styrkja stöðu Ísraels hernaðarlega og efnahagslega. Hann á hlutdeild í þeim vota draumi Barnamorðingjans að gera Ísrael að eins konar orkumiðstöð í Levantíu. Þess vegna þurfa Gazabúar að víkja. Málaliðafyrirtækin bítast þegar um bitann á Norður-Gaza og fasteignafélög taka út lóðir.

Sama má um gamla, holdvota drauma um Stór-Ísrael segja. Þegar Íranar og Jemenar hafa verið lagðir að velli ættu vegir að liggja til allra átta í því viðfangi.

Heimveldisdraumar Bandaríkjanna eru vitaskuld ekki nýir af nálinni. Í þinginu 1866 var lagt fram frumvarp þess efnis að kaupa hluta þeirra landsvæða af Bretum, sem síðar urðu Kanada. Það náði þó ekki fram að ganga, en á fjórða áratugi síðustu aldar (War Plan Red 1934) var hreyft hugmyndinni um að leggja undir sig Kanada, samkvæmt áratugagömlum áætlunum. Varpa skyldi sprengjum á Montreal, Quebec City, Halifax og Vancouver. Eiturgas var einnig í vopnabúrinu.

Þegar Bandaríkjamenn fengu algleymisheimsveldiskveisu í kjölfar annarrar heimstyrjaldarinnar, var á vegum yfirvalda teiknað kort, þar sem Bandaríkin ná frá Panama til Grænlands og Kanada. Monroe yfirlýsingin þ.e. að Ameríka öll sé heimavettvangur Bandaríkjanna, hefur heldur aldrei verið felld úr gildi.

Það var einnig á því méli að fæddust hugmyndir um „tækniræðið“ (technocracy). Það vill svo til, að það var afi Elon Musk, Joshua Haldemann, sem var helsti hugmyndafræðingur þess. Eplið fellur sjaldan langt frá eikinni. Steve Bannon, „samherji“ Elon í hirð Dónalds, segir hann „illskustrák“ (evil guy).

Emmanuel Pastreich, forseti Asíustofnunarinnar (Asia Institute) leiðir einnig rök að því, að Trump-hirðin muni svo ybba kíf við Norður-Kóreu að leiði til stríðs, sem Kínverjar neyðist til að taka þátt í.

Aukin heldur grunar hann, að næsta stórstyrjöld gegn hinum illu, þ.e. Rússum og Kínverjum, verði lágstjörnustríð (low orbit), gervitunglastríð. Umgjörðin verður kerfi Elon Musk, Star Link og 5G geislun. Gaman, gaman!

Ég á mér líka draum; að Dónaldur fari kollhnís og kúvendingu; lýsi yfir friði við jarðarbúa, sverji að láta þá í friði fyrir frjálsri þjóð hinna guðsgefnu forlaga (manifest destiny, exceptional, land of the free and the brave) og hinnar útvöldu í Ísrael, taki upp uppbyggingarstefnu fyrri forseta og bandarískra athafnamanna í samvinnu við Rússa, Kínverja og fleiri þjóðir, og geri veröldina að góðri vistarveru.

Fyrir því verður Dónaldur að kasta fyrir róða heimsveldisstjórntæki Bandaríkjanna, „regluvæddri alþjóðaskipan“ (rules-based international order), sem íslensk stjórnvöld eru svo hrifin af.

En því miður segir sagan okkur, að það muni ekki leyfa bankaveldi öfugugga og meinsærismanna, sem nærast á stríðum og illsku.

Félagsfræðingurinn, Edward Curtin, lýsir Bandaríkjunum frá eigin sjónarhóli:

„Ég hef alið allan minn aldur í Bandaríkjunum. Á minni ævi hafa þau orðið öflugasti slátrari heimsins. Ferillinn hófst með kjarnorkusprengjum á Hírósíma og Nagasaki, þá tóku við látlaus stríð, morð á leiðtogum innanlands og utan, þ.m.t. Kennedy forseti, stjórnum var kollvarpað, miskunnarlausir einræðisherrar og hryðjuverkamenn voru vopnvæddir og studdir til dáða. Efnahagurinn varð háður stríðsrekstri.“ (Síðustu dæmin eru Úkraína, Sýrland, Rúmenía, Georgía, Venesúela, Ísrael og Jemen.)

Minni að lokum á orð Franklin Delano Roosevelt (1882-1945): „Sannleikur málsins er sá …, að í stóru miðstöðvunum eru auðjöfrar, sem átt hafa ríkisstjórn Bandaríkjanna frá tímum Andrew Jackson.“(1767-1845)

https://www.globalresearch.ca/trump-derangement-syndrome-legitimate-mental-disorder-america/5874106 https://mearsheimer.substack.com/p/israel-admits-failure-in-gaza?utm_source=post-email-title&publication_id=1753552&post_id=155019442&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.thomasfazi.com/p/all-the-uncertainties-surrounding?utm_source=post-email-title&publication_id=560592&post_id=155020443&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://trackingpower.substack.com/p/dont-slow-down-no-matter-a-gaza-ceasefire?utm_source=post-email-title&publication_id=1151094&post_id=155020566&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://glenndiesen.substack.com/p/the-case-for-trump-and-restraining?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=152562118&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=sglieNXz_NU https://foreignpolicy.com/2024/11/15/chomsky-foreign-policy-book-review-american-idealism/ https://covertactionmagazine.com/2024/11/30/radical-change-in-the-usa-prospects-for-domestic-revolution/?mc_cid=303dc0d34a&mc_eid=5cd1ec03b1 https://www.globalresearch.ca/my-internal-exile-edward-curtin/5874421 https://archive.md/ySMvG https://www.youtube.com/watch?v=6ntoApe_Jwg https://glenndiesen.substack.com/p/the-case-for-dismantling-the-rules?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=153466608&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://michaeltsnyder.substack.com/p/11-signs-that-the-slow-motion-collapse https://theeconomiccollapseblog.com/21-quotes-about-central-banking-that-show-why-the-federal-reserve-must-be-shut-down/ https://www.commondreams.org/news/corporations-trump-inauguration https://sonar21.com/did-biden-just-release-terrorists-and-is-donald-trump-going-to-start-ww-iii-in-panama/ https://realnewsandhistory.com/anyt-01-07-25/ https://www.thomasfazi.com/p/trumps-new-monroe-doctrine?utm_source=post-email-title&publication_id=560592&post_id=154465903&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=3VRRQO1bRjQ https://michaeltsnyder.substack.com/p/what-is-the-economic-value-of-greenland?utm_source=post-email-title&publication_id=1520363&post_id=154363150&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.globalresearch.ca/donald-trump-calls-for-the-annexation-of-canada-deja-vu-general-douglas-macarthur-was-to-bomb-vancouver-halifax-montreal-and-quebec-city-this-is-no-joking-matter/5875722 https://glenndiesen.substack.com/p/will-trump-deliver-peace?utm_source=post-email-title&publication_id=2670149&post_id=154609776&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=pIpbddqe1Ks&list=UUDkEYb-TXJVWLvOokshtlsw&index=2 https://gilbertdoctorow.com/2025/01/13/russian-elites-are-delighted-with-donald-trumps-mar-a-lago-press-conference/ https://www.globalresearch.ca/panama-canada-greenland-syndrome/5876865 https://www.voltairenet.org/article221696.html https://www.urmedium.net/c/presstv/132319 https://www.voltairenet.org/article221614.html https://steigan.no/2024/12/new-york-times-avslorer-israelsk-utryddelsesordre-som-autoriserer-drap-av-20-sivile-for-hver-stridende/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/12/amos-goldberg-ja-det-er-et-folkemord/?utm_source=substack&utm_medium=email https://corbettreport.substack.com/p/california-sets-itself-on-fire-in?utm_source=podcast-email&publication_id=725827&post_id=154941873&utm_campaign=email-play-on-substack&utm_content=watch_now_button&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2024/12/israel-har-gjort-jabalia-flyktningleir-til-en-spokelsesby/?utm_source=substack&utm_medium=email https://mearsheimer.substack.com/p/the-moral-bankruptcy-of-the-west?utm_source=post-email-title&publication_id=1753552&post_id=153466641&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2024/11/amerikanske-leiesoldatfirmaer-konkurrerer-om-enorme-kontrakter-for-a-kontrollere-sikkerheten-nord-i-gaza/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.thomasfazi.com/p/israels-war-on-gazas-hospitals?utm_source=post-email-title&publication_id=560592&post_id=154080903&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://21stcenturywire.com/2025/01/07/amnesty-international-pulls-its-israeli-branch/ https://libertarianinstitute.org/news/trump-posts-video-slamming-netanyahu-us-middle-east-policy/ https://steigan.no/2025/01/israel-drepte-74-barn-i-gaza-den-forste-uka-av-2025/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.kitklarenberg.com/p/i-felt-like-a-nazi-zionists-admit?utm_source=post-email-title&publication_id=552010&post_id=154956425&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://www.haaretz.com/israel-news/2024-12-18/ty-article-magazine/.premium/idf-soldiers-expose-arbitrary-killings-and-rampant-lawlessness-in-gazas-netzarim-corridor/00000193-da7f-de86-a9f3-fefff2e50000 https://steigan.no/2024/12/israels-forsvarsminister-gaza-skal-fortsatt-vaere-okkupert/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/12/utryddelskrigen-drepte-og-lemlestede-barn-i-gaza-mens-vi-ser-en-annen-vei-1/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/12/utryddelskrigen-drepte-og-lemlestede-barn-i-gaza-mens-vi-ser-en-annen-vei-2/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=TY2DKzastu8


Úrkynjun, ósigur og hrunadans Vesturlanda. Emmanuel Todd

Emmanuel Todd (f. 1951) er franskur sagn-, lýð- og mannfræðingur. Hann nam fræði sín í Oxford undir leiðsögn sagnfræðinganna, Peter Laslett (1915-2001) og Alan Donald James McFarlane (f. 1941). Emmanuel Le Roy Laduire (1929-2023) kallar hann „andlegan læriföður sinn innan sagnfræðinnar.“ Sömuleiðis segist hann vera aðdáandi Emilie Durkheim (1858-1917).

Emmanuel er síðasti „söguskeiðssagnfræðingurinn,“ þ.e. í þeim hópi sagnfræðinga, sem rýna í sögu lengri tímabila í þeirri viðleitni að uppgötva lögmál og tilhneigingar um þróun þeirra (Annales). Slík fræði geta haft ákveðið spádómsgildi með tilliti til framtíðarþróunar.

Emmanuel hefur skrifað fjölda bóka um sögu og menningu þjóða alheimsins, þróun þeirra vöxt og viðgang. Hann varð t.d. frægur fyrir það að spá fyrir um upplausn Ráðstjórnarríkjanna (Sovétríkjanna) á sínum tíma (La Chute Finale: Essai sur lan décomposition de la sphére soviétique).

Emmanuel hefur sökkt sér niður í greiningu mismunandi fjölskyldugerða og þýðingu þeirra með tilliti til þróunar. Þá fjölskyldugerð, er að hans dómi réði úrslitum sem aflvaki Norður-Evrópskrar menningar – og þar af leiðandi þeirrar bandarísku – kallar hann „hreina kjarnafjölskyldu.“

Nýjasta bók Emmanuel er: „Ósigur Vesturlanda“ (La Défaite de l’Occident), sem kom út í janúar 2024. Hún hefur verið þýdd á rúmlega tuttugu tungumál, þó ekki á ensku. Bókin er m.a. til í sænskri (Vesterlandets nederlag) og þýskri þýðingu (Der Western Niedergang).

Hrunið er víðtækt, þ.e. félagslegt, fjárhagslegt og siðlegt. Brasilíski blaðamaðurinn snjalli, Pepe Escobar, hefur skrifað um bókina áhugaverðan ritdóm. Sama má um ritdóma Ramin Mazaheri segja (sjá heimildaskrá).

Hið óheillavænlega stríð í Úkraínu hefur varpað frekara ljósi á hnignun Vesturlanda. Það er í raun hvatinn að samningu bókarinnar. Síðan stríðið hófst hefur Emmanuel leitt að líkum, að Rússar myndu sigra Úkraínu og Nató, telur að lyktir þess verði á vígvellinum.

Emmanuel hefur trú á því, að Rússar og Þjóðverjar muni í fyllingu tímans ná sáttum og hefja uppbyggingu samfélaga sína á ný. Ósigur Vesturlanda telur höfundur í sjálfu sér ekki sigur Rússa sem slíkra, því Vesturlönd séu í raun að sálga sjálfum sér.

Um Nató segir Emmanuel: „Við veitum því athygli, að gangverk þess í hernaðar-, hugmyndafræði- og sálfræðilegu tilliti, er ekki til þess fallið að vernda Vestur-Evrópu heldur að hafa eftirlit með henni.“

Emmanuel bætir við í þessu sambandi: „Um þessar mundir eru Vesturlönd fyrst og fremst sameinuð undir stjórn Bandaríkjamanna, undirlögð hernaðarstjórn Atlantshafsbandalagsins. Tækifærið til að hirða ágóða af hnattvæðingunni þjappar þeim líka saman. Undirlægjuháttur gagnvart Bandaríkjunum og arðrán annarra í veröldinni, eru [óbrigðul] kennimerki þess að vera með í Vestrinu.“

Emmanuel leiðir líkum að því, að stríðið í Úkraínu sé aðeins forleikurinn að þriðju heimsstyrjöldinni, þar sem það snúist um tilvistaröryggi bæði Rússlands og bandaríska heimsveldisins, sem hefur gert Evrópu að eins konar verndarsvæði sínu.

Emmanuel gaf út bókina, „Þriðja heimsstríðið er hafið“ (La Troiséme Guerre mondiale a commencé“) 2023. Í viðtali „Figaro“ um efni bókarinnar kemur fram, að hún hafi verið gefin út í 100.000 eintökum í Japan. Samkvæmt því, sem blaðamaðurinn, Ben Norton, segir, er hún ekki aðgengileg á Vesturlöndum. Ben stiklar á stóru um efni hennar í hjálagðri umfjöllun.

Emmanuel bendir á, að viðskiptaþvinganir gegn Rússum hafi ekki haft tilætluð áhrif, m.a. vegna stuðnings þjóða handan verndarsvæðanna, þ.e. Evrópu og Japans. Hann bendir einnig á, að mælingar vestrænna hagfræðinga á þjóðarframleiðslu gefi skakka mynd af fjárhagi Rússa, þar eð fjármálabrask vegi þungt við slíkar mælingar.

Í Rússneska hagkerfinu sé því aftur á móti ekki þannig farið. Þar sé framleiðsla í öndvegi. Því er hætt við því, að auðsýnd seigla þess grafi undan hagkerfum, þar sem Bandaríkjamenn drottna í krafti dalsins og látlausrar peningaprentunar. Því er það svo, að tapi Bandaríkjamenn stríðinu í Úkraínu, hrynur gjaldmiðill þeirra og veldi í allri sinni dýrð eins og spilaborg.

Emmanuel heldur því fram, að á Evrópska verndarsvæðinu sé Nató í raun klofið. Stríðsreksturinn, áróður fyrir honum og þátttaka, sé að mestu í höndum Bandaríkjamanna, Pólverja og Breta – og Norðmanna. Meðan Bandaríkjamenn missa tökin á alþjóðavettvangi, herða þeir hreðjatakið á Evrópuþjóðunum.

Emmanuel kynnir líka þá skoðun sína, að Vesturlandabúar búi ekki við lýðræði. Um það fjallar hann sérstaklega í bók sinni: „Að lýðræðinu horfnu“ (Aprés la démocratie) Hann nefnir sem dæmi, þegar þjóðaratkvæði Frakka um „Stjórnarskrá Evrópusambandsins“ var að engu höfð við gerð Lissabon-samningsins.

Stjórnarhætti Vesturlanda í dag kallar Emmanuel „frjálslynt auðræði“ (liberal oligarchy). Það má til fróðleiks geta þess, að Emmanuel líkir vestrænum lýðræðisríkjum við njósnarann, 007. Þau veita eins og ofursnillingurinn breski, James Bond, sjálfum sér leyfi til að drepa.

Í síðustu bókum sínum hefur Emmanuel bent á fjölda óheillavænlegra teikna um hrörnun í menningu vorri, þ.e. samfélaganna á Vesturlöndum; lækkandi fæðingartíðni; hnignandi kristin trú; vaxandi andúð á Múhammeðstrú; slakt skólakerfi og vaxandi tómhyggja. Kynskiptahugmyndafræðina, sem óx út úr kvenfrelsunarhreyfingunni, fjallar hann sérstaklega um.

Skerðing fullveldis þjóða er Emmanuel einnig hugleikin í þessu viðfangi eins og staða alþjóðamála. Þess má og geta, að í bók sinni: „Félagsfræði trúarkreppu. Hver er Charlie“ (Sociologie d‘une crise religieouse: Qui est Charlie) gerir höfundur skil Íslamsfælni (Islamophobia) Frakka og annarra Vesturlandabúa.

Í greiningu sinni á þýðingu trúarbragða fyrir þróun samfélagsins styðst Emmanuel m.a. við hinn snjalla, þýska samfélagsfræðing, Max Weber (1864-1920). Hann taldi mótmælandatrú eina mikilvægustu forsendu eflingar Norður-Evrópskra samfélaga – einkum á nítjándu og tuttugustu öldinni. Guðsóttinn, læsi (á Bíblína) og sókn í menntun, hefði stuðlað að mikilli vinnusemi og siðferðisþreki.

Þessi grunnstoð auðsældarsamfélagsins (kapítalisma) tók að bresta á síðari helmingi tuttugustu aldarinnar. Í heimstyrjöldunum tveim færðist þungamiðja tækniframfara og vöruframleiðslu frá Englandi og Þýskalandi til Bandaríkjanna. Samtímis herti alheimsbankaauðvaldið tökin á bandarísku samfélagi. Afgerandi sigur vannst, þegar Einkaseðlabanki Bandaríkjanna, Federal Reserve, var settur á stofn.

Heimstyrjaldirnar höfðu í för með sér margvíslegar breytingar. M.a. féll það í hlut kvenna að taka að sér verksmiðjustörf í hergagnaiðnaði, meðan karlar þeirra stunduðu hjaðningavíg á vígvöllunum í baráttu fyrir frelsi, lýðræði og mannréttindum eða fyrir drottningar, kónga og keisara – eða svo var þeim sagt. Verksmiðjustörf höfðu áður verið á könnu karlanna eins og önnur störf utan heimilis.

Þegar eftirlifandi karlar sneru heim úr stríðinu, hurfu konur almennt til síns heima. En umrótið ýtti undir kvenfrelsunarhugmyndir frá miðri nítjándu öldinni um kúgun karla og kynjaójafnrétti. Í nýrri bylgju kvenfrelsunar var konum talin trú um, að frelsi og hamingja þeirra fælist í launavinnu. Áður hafði þeim verið talin trú um, að reykingar væru snar þáttur í jafnrétti kynjanna.

Kvenþjóðin tók nú stefnuna inn á hefðbundinn starfsvettvang karla til að finna þroska, menntun og hamingju. Atvinnurekendur réðu sér ekki fyrir kæti og studdu kvenfrelsunarhreyfingar af ráði og dáð með myndarlegum fjárframlögum.

Kaupgjald hríðféll, það fjölgaði í svokölluðum kvennastéttum, lýst var yfir stríði gegn karlmönnum og hugmyndafræði kvenfrelsaranna var bæði lögleidd og gerð um hana alþjóðlegir sáttmálar. Innanlandsstríðið gegn körlum varð að menningarstríði. Um síðustu aldamót, segir Emmanuel, höfðu konur unnið sitt frelsisstríð.

Reyndar er það svo, að Emmanuel helgaði heila bók þessu viðfangsefni: „Hverjar eru konurnar: Drög að sögu kvenna (Qú en sont-elles? Une esquisse de l‘historie des femmes - Lineages of the Feminine; An Outline of the History of Women).

Ginerva Davis hefur skrifað ítarlegan ritdóm um verkið: Konur marka sögu Vesturlanda í auknum mæli. Þær eru ekki lengur fórnarlömb. Síðustu tvo áratugina eða svo eru þessar tilhneigingar áberandi í „Kvenfrelsunarlandinu;“ afiðnvæðing eykst, samhuga stéttaaðgerðir eru nær horfnar, beiting mýktarvalds (soft power) eins og útskúfunar hefur aukist.

Eitt skyggir þó á valdaalgleymi stelpnanna. Hin karllega sköpunargleði og ákefð, er á hverfanda hveli. Kvenfrelsunarsamfélagið þarf að reiða sig á karlasamfélögin, sem framleiða handa þeim vörur.

Í Kvenfrelsunarlandinu virðist ekki allt með felldu: Konur eru veikari, þreyttari og kvíðnari en áður, taka upp á því að svelta sig eða kýla vömbina, skera sig og svo framvegis. Nýir kvensjúkdómar hafa orðið til. Emmanuel bendir á, að á Norðurlöndum, í Kvenfrelsunarlandinu, sé stríðsæði áberandi.

Ginerva segir í umræðu um heilsufarsógnir kvenna og kostnað við þær:

„Í okkar augum er heimurinn klippimynd (collage) hugsanlegra ógna, ekki svið uppgötvana; við kvíðum því fremur að styggja vini okkar og reita karlpeninginn til reiði; við tökum síður áhættu meðal félaga og í starfi. Það gæti gert okkur berskjaldaðar. Heimur kvenna er smærri í sniðum. Þar ríkir að sönnu minni metnaður.

En ef markmið kvenfrelsunar er fullkomið kynjajafnrétti – þ.e. að hugurinn þurfi aldrei að færa fórnir, hvorki í ástarlífi né lífsvafstri, vegna líkama hans – þá hljóta lyktir kvenfrelsunar óhjákvæmilega að verða endalok konunnar. Það er engin önnur leið.“

Konan er orðin afar flókið fyrirbæri og viðkvæmt - sérstaklega er hún orðin svo brothætt og viðkvæm fyrir kynáreitni - að hana má varla snerta eða á hana að líta og vanda þarf mál sitt gaumgæfilega í návist hennar – eða eins og skáldið sagði: „Sýna skal aðgát í nærveru [kven]sálar.“

Það er þó sérstaklega sorglegt að samfara frelsuninni endalausu vex hatur kvenna í garð sjálfra sín. Hatrið og vansældin skapar örvæntingu og samhliða örvæntingunni vex líka andúðin á blórabögglinum, karlmanninum - eins og karlahatursbylgjur á borð við „me-too“ hreyfinguna og fleiri slíkar.

Konur eru að hverfa af sjónarsviðinu, enda veit enginn, hvers konar fyrirbæri hún er. Allra síst hún sjálf. Alþingismenn Íslendinga eru öðrum gjálpum, skjálpum og stálpum gleggri. Þeir kalla þetta útdauða fyrirbæri „leghafa.“ Tíðablæðingar eru „hugsmíð,“ segja kynjafræðingarnir.

En eftir að Alþingismenn komust að því, að kyn væri ekki til, er viðbúið að leghafarnir hverfi líka af sjónarsviðinu. Kyn manna er nefnilega fljótandi, segja þeir. Því þarf að úthluta börnum kyni, nýskriðnum úr móðurkviði. En það er ekki hundrað í hættunni, því Alþingismenn hafa slegið þann varnagla við rangri kynúthlutun að ráða lækna, sálfræðinga og hjúkkur til að breyta röngu kyni.

Um þetta hefur Emmanuel m.a. sagt: „Sú fullyrðing, að karl geti orðið að konu og kona að karli, er lífeðlislegur ógjörningur og fals, afneitun raunveruleikans.“

Höfundur bætir við: „Kynskiptahugmyndafræðin er því, að mínum dómi, eitt skilmerkja tómhyggjunnar (nihilism), sem um þessar mundir skilgreinir Vesturlönd, hvötin til að tortíma bæði hlutum og fólki.“ Kvenforeldrið eða leghafinn hefur venjulega síðasta orðið um kynskiptingu afkvæmisins.

Þetta kynjafimbulfamb hefur náð að skjóta rótum í Evrópu. Rétturinn til kynskipta er orðinn að mannréttindum og ofarlega á forgangslista stjórnmálamanna. Sameinuðu þjóðirnar hafa gert frelsun kvenna og barna þeirra að sérstöku markmiði meðal Sjálfbærnimarkmiða 2030.

Alheimsefnahagsráðið (World Economic Forum) hefur tekið kyntilbrigðahreyfinguna upp á arma sína (baðaða í regnbogaljósi) og beitir á sama hátt og kvenfrelsunarhreyfingunni til að skapa usla, óeiningu og upplausn, svo auðveldara sé að móta múginn og sætta hann við alheimsstjórn og tölvuuppfærslu.

Það heitir því snotra nafni: „Samstarf í þágu LGBTIQ og jafnréttis á heimsvísu“ (Partnership for Global LGBTIQ + Equality). (Lespur, hommar, tvíkynungar, kynskiptingar, millikynungar og kynleysingjar.)

Fjöldi kvenna (og karla) menntast á „kvennaháskólum,“ þar sem fimbulfambið og kvenfórnarlambsfræði eru kennd – að langmestu leyti af konum. Þetta á einkum við um mann-, félags- líf- og sálfræði.

Karlkúgararnir meina þeim inngöngu í raungreinar, segja konurnar. Hvernig sem því líður fór frammistaða í stærðfræði og tungumálum að versna um miðjan sjöunda áratuginn.

Um svipað leyti og kynlífsbyltingin (sexual revolution) geisaði á sjöunda áratugi síðustu aldar – mögnuð upp af annarri kvenfrelsunarbylgjunni – fór að halla á Bandaríkjamenn sem heims- og herveldi, bæði með tilliti til framleiðslu og siðferðis. (Stundum eru þau kölluð „auðugu anglósaxísku mótmælendurnir“ (WASP).)

Þetta varð jarðvegur nýíhaldssinna (neo-conservative), sem Emmanuel kallar sálar-, sið- og heilalausa stríðsvél, sem beitt er við útþenslu heimsveldisins, meðan iðnaðarframleiðsla dregst saman.

„Tandurhrein“ raunfirring og hamslaus græðgi er það, sem einkum einkennir þessa stefnu. Minni í þessu sambandi á orð Margaret Hilda Thatcher (1925-2013) – sem var svo illa við kvenfrelsara: „Það er ekkert til, sem samfélag heitir.“ En líklega hefði hún þó gengist við því, að konur væru til. 

Heimildir:

Ritdómar Ramin Mazaheri: https://raminmazaheri.substack.com/p/the-ukrainian-suicide-reading-emmanuel https://raminmazaheri.substack.com/p/eastern-europes-pro-west-shift-is https://raminmazaheri.substack.com/p/emmanuel-todd-asks-what-is-the-west https://raminmazaheri.substack.com/p/the-defeat-of-the-west-necessarily?r=jn0xv&utm_campaign=post&utm_medium=web&triedRedirect=true https://raminmazaheri.substack.com/p/emmanuel-todd-on-the-uks-russophobia https://raminmazaheri.substack.com/p/emmanuel-todd-beats-democrats-by https://raminmazaheri.substack.com/p/why-the-rest-sided-with-russia-against ----------------

Annað: https://booknode.com/auteur/emmanuel-todd/livres https://geopoliticaleconomy.com/2023/01/14/world-war-3-us-russia-china-emmanuel-todd/ https://www.youtube.com/watch?v=82WPLWEN_9M https://www.adlibris.com/se/bok/vasterlandets-nederlag-9789189494664 https://www.youtube.com/watch?v=IYwOiwi3baA https://www.youtube.com/watch?v=jr3GMNPU8ro https://www.youtube.com/watch?v=U_YuhLFjYRM https://www.youtube.com/watch?v=Si_tvJPfgUc https://ednews.net/en/news/world/641606-emmanuel-todd-are-witnessing-the https://en.interaffairs.ru/article/emmanuel-todd-i-clearly-document-the-dynamics-of-the-decline-of-protestant-passionarity-in-the-wes/ https://americanaffairsjournal.org/2024/02/how-feminism-ends/ https://eng.globalaffairs.ru/articles/emmanuel-todd-russias-role/ https://rai.onlinelibrary.wiley.com/doi/10.1111/1467-9655.13801?af=R https://link.springer.com/content/pdf/10.1007/s12108-017-9345-1.pdf https://unser-mitteleuropa.com/156843 https://steigan.no/2024/01/emmanuel-todd-vi-er-vitne-til-vestens-endelige-undergang/ https://www.lindelof.nu/emmanuel-todd-om-vasterlandets-nederlag/ https://www.lindelof.nu/emmanuel-todd-i-usa-tar-kontroll-over-europas-eliter-och-oligarker/ https://www.lindelof.nu/emmanuel-todd-ii-det-brittiska-samhallets-utarmning-och-skandinaviens-markliga-svangning/ https://jyllands-posten.dk/debat/breve/ECE16808417/vi-er-blevet-slatne-i-vesten/ https://www.lefigaro.fr/vox/monde/emmanuel-todd-la-troisieme-guerre-mondiale-a-commence-20230112#Echobox=1673601494-1 https://sputnikglobe.com/20240118/how-the-west-was-defeated-1116245840.html


Þegar Íslendingar seldu sálu sína og frelsi: Seinni hluti

„Kommúnistar voru bestu vinir Bandaríkjanna.“

„Það er til marks um kaldhæðni sögunnar að bandarískir embættismenn töldu sósíalista meðal sinna bestu stuðningsmanna á Íslandi á árunum 1941-1942. Í leyniskýrslu njósnadeildar bandaríska flotans frá árinu 1942 segir:

„Eins og málum er nú háttað, er ekki annað unnt en fagna vexti og viðgangi Kommúnistaflokksins vegna þess stuðnings sem hann hefur veitt. Enda unna Íslendingar frelsinu meir en svo að þeir mundu viljugir ganga einræði á hönd, jafnvel þótt það væri í nafni öreiganna.“ (A23)

Þjóðaröryggi:

„Túlkun Bandaríkjamanna á hugtakinu „þjóðaröryggi“ var ekki aðeins bundin við hernaðarhagsmuni þeirra heldur einnig önnur þjóðfélagsgildi. Þeim gekk það til að verja stjórnarhætti sína og kapitalískt hagkerfi gegn þjóðfélagsskipan kommúnistaríkjanna. Með því að tryggja stöðugan efnahag á Íslandi vildu þeir standa vörð um hernaðarréttindi sín og draga úr áhrifum Sovétríkjanna og bandamanna þeirra.“ (A404)

Hættulegir sósíalistar og bylting á Íslandi:

„Áður en varnarsamningurinn var gerður hafði bandaríska varnarmálaráðuneytið gert áætlanir um að senda her til Íslands ef sósíalistar gerðu byltingu.“ (B265)

„Stjórnvöld höfðu einnig eftirlit með sósíalistum og fengu heimild dómstóla til að stunda símhleranir hjá leiðtogum Sósíalistaflokksins í tengslum við mikilvæga atburði eins og aðildina að NATO og gerð varnarsamningsins.“ (B265)

„Eftir að Bandaríkjaher kom hingað til lands árið 1951 var yfirmanni herstöðvarinnar falið að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir „valdarán kommúnista.“ Þegar Bandaríkjaher fór fram á leyfi til að athafna sig nálægt Reykjavíkurflugvelli í „varnarskyni“ og vera viðbúinn að bregðast við hugsanlegri innlendri skemmdarverkastarfsemi … samþykkti [ríkisstjórnin beiðnina] vorið 1952, en aðeins tímabundið eða þangað til herinn var „lokaður inni“ á Keflavíkurflugvelli tveimur árum síðar.“ (B266)

Íhlutun Bandaríkjahers ef gerð yrði tilraun til að bola íslenskum ráðamönnum frá völdum:

„Auk þess ætti að orða beiðnina [um fleiri herstöðvar] á þann veg að unnt yrði að birta hana opinberlega og á alþjóðavettvangi til að „hrekja ásakanir sem kommúnistar munu vafalaust setja fram eftir að við höfum beitt her og vopnum til að aðstoða stjórnvöld gegn samsærismönnum kommúnista.“ (B267)

Yfirráð Bandaríkjamanna yfir flugumferð:

„Heimild Bandaríkjamanna til að taka yfir fulla stjórn á almennri flugumferð var haldið inni í varnarsamkomulagi Íslands og Bandaríkjanna frá árinu 2006.“ (B273)

Efnahagslegur ávinningur Íslendinga eða sníkjulífi:

„Íslensk stjórnvöld voru mjög lagin við að útvega lán og aðrar efnahagsívilnanir í Bandaríkjunum, enda fékk þjóðin hvorki meira né minna en 70 milljónir dollara í beina efnahagsaðstoð á árunum 1948-1960. Þessar lán- og styrkveitingar stóðu straum af helstu stórframkvæmdum, sem ráðist var í á Íslandi á þessu tímabili: …“ (A405)

„Á árunum 1948-1960 nam efnahagsaðstoð Bandaríkjamanna á bilinu 15-20% af gjaldeyristekjum þjóðarinnar. Eftir að Marshall-áætluninni lauk fylltu hernaðarframkvæmdir á Keflavíkurflugvelli upp í það skarð sem hún skildi eftir sig, auk frekari lánveitinga.“ (A405)

„Auk þess höfðu stjórnmálaflokkarnir afskipti af því hvaða fyrirtæki nytu góðs af viðskiptum við Bandaríkin. Mikil samkeppni var t.d. um vöruflutninga og innflutning frá Bandaríkjunum milli Sambandsins, sem tengdist Framsóknarflokknum, og ýmissa einkafyrirtækja sem stóðu Sjálfstæðisflokknum nærri. En venjulega var pólitísk samstaða um sjálfar framkvæmdirnar sem ráðist var í fyrir láns- og gjafafé frá Bandaríkjunum.

Í raun má segja að Íslendingar hafi fengið aðra „Marshall-aðstoð“ á árunum 1956-1960: Þá veittu Bandaríkjamenn 30 milljónir [milljónum] dollara í lán og styrki til viðbótar þeim rúmlega 38 milljónum, sem þeim áskotnuðust á árunum 1948-1953.

Auk þess fengu Íslendingar árlega um 10 milljónir dollara í tekjur af hernum og rúmlega átta milljónir í PL-vörukaupalán á þessu „seinna Marshall-tímabili“ (samtals um 60 milljónir dollara). Af beinum lánum hlaut vinstri stjórnin um 14 milljónir dollara, auk PL-480 láns upp á fjórar milljónir dollara.

Viðreisnarstjórnin uppskar um níu milljónir dollara (þar af sex milljónir sem „óafturkræft lán“) og 4.4 milljónir í PL-480 lán.“ (A405)

„Markmiðið var einnig það sama og með Marshall-aðstoðinni: Með því að stuðla að auknum efnahagsstöðugleika á Íslandi vildu Bandaríkjamenn tryggja stjórnmála- og hernaðarhagsmuni sína og draga úr áhrifum Sovétmanna og Sósíalistaflokksins. Í þetta sinn varð þeim að ósk sinni: Efnahagsstefna viðreisnarstjórnarinnar leiddi til mikils samdráttar í vöruskiptaversluninni við austantjaldsríkin og veikti stöðu Sósíalistaflokksins.“ (A406)

(Marhall-aðstoðin voru styrkir og lán, sem Bandaríkjamenn veittu stríðshrjáðum þjóðum Vestur-Evrópu í lok síðari heimsstyrjaldar.)

Íslendingar voru aðgangsharðir á herjötunni:

„Auk þess nutu stórfyrirtæki eins og Loftleiðir sérréttinda á Atlantshafsleiðinni sem önnur flugfélög gerðu ekki.“ (B250)

Rainbow Navigation málið svokallaða, þegar bandarískt skipafélag gerði tilkall til flutninga fyrir herinn, vakti töluverða athygli:

„Í ljósi hernaðarlegs mikilvægis Íslands féllst Reagan-stjórnin á að gerður yrði sérstakur milliríkjasamningur sem viðbót við varnarsamninginn sem tryggði íslenskum fyrirtækjum, Eimskip og Hafskip, hlutdeild í flutningum fyrir Bandaríkjaher. … Þannig hafði Bandaríkjastjórn frumkvæði að því að veikja bandarísk lög um forgang innlendra fyrirtækja til að standa vörð um hernaðarhagsmuni sína á Íslandi.“ (B251)

Fámennur hópur Sjálfstæðis-, Framsóknar- og Alþýðuflokksmanna réð utanríkismálum Íslendinga: „Það var aðeins fámennur hópur stjórnmálamanna sem markaði stefnu Íslands gagnvart Bandaríkjunum á þessu tímabili … eins og þeir Ólafur Thors, Bjarni Benediktsson, Stefán Jóhann Stefánsson, Guðmundur Í Guðmundsson, Gylfi Þ. Gíslason, Hermann Jónasson og Eysteinn Jónsson. (A406)

„Það var Bjarni Benediktsson, sem hafði mest áhrif á mörkun utanríkisstefnu Íslands í lok fimmta áratugarins og upphafi þess sjötta. Hann og Stefán Jóhann Stefánsson voru alþjóðasinnar og töldu hagsmunum Íslands væri best borgið með þátttöku í vestrænu samstarfi.

Það sama má segja um Eystein Jónsson, enda þótt hann væri tregari til að stíga skrefið til fulls af stjórnmála- og þjóðernisástæðum. Þeir Ólafur Thors og Hermann Jónasson voru meiri þjóðernissinnar, en vildu samt tengjast Vesturveldunum með einum að öðrum hætti.“ (A407)

„Íslendingar fengu fyrstir þjóða efnahagsaðstoð á vegum Atlantshafsbandalagsins sem fram að þessu hafði fengist við „vopnaviðskipti“ en ekki bankaviðskipti.

Margt fer öðruvísi en ætlað er í upphafi. Markmið vinstri stjórnarinnar var að draga úr áhrifum Bandaríkjanna á Íslandi með því að krefjast brottfarar hersins. En reyndin var sú að engin önnur stjórn var háðari bandarísku fjármagni, ef frá er skilin samsteypustjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á árunum 1950-1953.“ (A412)

„Eftir endalok kalda stríðsins hafa það einkum verið Íslendingar sem hafa lagt áherslu á varnarsamstarfið.“ (A412)

Til umhugsunar: Bandaríkjamenn urðu máttugasta herveldi veraldar, heimsveldi, í lok síðari heimstyrjaldar. Forseti Bandaríkjanna, Franklin Delano Roosevelt, hafði í aðdraganda kosninga lofað að taka ekki þátt í styrjöldinni, sem hófst (aftur) 1939/1940, þegar Frakkar og Bretar sögðu Þjóðverjum stríð á hendur.

Bandaríkjamenn áttu gott hernaðarsamstarf við Ráðstjórnarríkin (Sovétríkin), veittu þeim t.d. gríðarlega hernaðaraðstoð, sem vafalítið skipti sköpum fyrir sigra Rauða hersins.

Síðan hafa Bandaríkjamenn stundað stríð um víða veröld; áróðurstríð, undirróðursstríð (bæði heima og að heiman) og vopnastríð, oftast með skírskotun til heilagrar skyldu sinnar til umbóta á lýðræði eða mannréttindum. Bandaríkin hafa gríðarlegan fjölda herstöðva um allan heim og efnahagur þeirra er stríðsmiðaður, að umtalsverðu leyti.

Upplýsingahernaður og öflugur vitundariðnaður í krafti fjölmiðlunar og afþreyingariðnaðar hefur reynst árangursríkur. Enda eru Bandaríkjamenn öflugir áróðursmenn. Hræðsla við svokallaða „kommúnista“ hefur grafið um sig í sálu Vesturlandabúa og endurspeglast í Nató og varnarsamningnum við Bandaríkin.

Hugtakið er óskýrt; stundum er átt við hryllingsstjórn Jóseps Stalín, stálmannsins frá Georgíu; stundum er átt við óánægða verkamenn, stundum við uppreisnarmenn gegn einvöldum og ógnarstjórn.

Á Íslandi voru það Einar Olgeirsson og Kristinn Andrésson, sem taldir voru helstu uppreisnarforingjar kommúnista. Því var mikil viðbúnaður bæði hjá Hvítliðum eða Heimdellingum Sjálfstæðisflokksins (varaliðs lögreglu) – einkum við inngöngu Íslands í Nató 1949 - og bandaríska hernum. Félagar í Nasistaflokknum höfðu þá gengið (aftur) í raðir Sjálfstæðisflokks og lagt flokk sinn niður.

Vopnuð uppreisn á Íslandi fyrir atbeina Rússa (Sovétmanna) í kjölfar heimstyrjaldarinnar hljómar eins og hver önnur fjarstæða, þrátt fyrir Guttóslaginn góða 1932 og óeirðirnar á Austurvelli 1949, þegar inngöngu Íslands í Nató var mótmælt.

Ráðstjórnarríkin voru að sleikja sárin, eftir skelfilegasta missi manna og efnalegs tjóns í veraldarsögunni. Auk þess var í gildi samkomulag stórveldanna, Ráðstjórnarríkjanna, Bretlands og Bandaríkjanna, um skiptingu heimsins.

„Kommúnistagrýlan“ var það skálkaskjól, sem djúpríki (hernaðariðnaður og stjórnkerfi, honum hliðhollt) Bandaríkjanna notaði til hernaðar um víða veröld.

Nató var stofnað til að halda Rússum fjarri, Þjóðverjum niðri og hinum þjóðunum í taumi. Gerðar voru bæði í Bandaríkjunum og Bretlandi áætlanir um árásir á Rússa, þ.m.t. kjarnorkuvopnaárás.

Kjarnorkuvopnaáætlanir stórveldanna liggja enn fyrir og hernaðaruppbygging á Íslandi er hafin á ný. Og enn eru Íslendingar undirlægjur. Stjórnmálamenn þeirra eru aukin heldur stríðsóðir. Svo var tæpast áður.

Íslenski her Bjarna Ben I og Björns Bjarnasonar hefur ekki séð dagsins ljós, en þjóðin á Víkingasveit, sem er kölluð út við undarlegustu tilefni. En þegar Rússarnir koma má hún sig líklega lítils. Og svo hefur lögreglan fengið rafbyssur til að skjóta fólk með hnífa.

Það er sorglegt áhyggjuefni, að Íslendingar skuli láta hrífast með í stríðs- og aðsóknarsæðinu, sem stríðsvitfirringar veraldar hafa hrundið af stað. Þeir þurfa að varpa af herðum sér „valkyrjuokinu,“ lýsa yfir friði við allar þjóðir, beita sér fyrir friði, segja upp varnarsamningi við Bandaríkin og kveðja stríðsbandalagið, stríðsverkfæri Bandaríkjanna, Nató.

https://heimildin.is/grein/21398/ https://is.wikipedia.org/wiki/%C3%93eir%C3%B0irnar_%C3%A1_Austurvelli_1949 https://www.dv.is/fokus/timavelin/2018/10/07/kreppan-kemur-til-islands/ https://www.hugi.is/saga/greinar/102391/9-november-1932-guttoslagurinn/ https://www.stjornarradid.is/media/utanrikisraduneyti-media/media/varnarmal/varnarsamningur_isl.pdf


Munu kosningar í Þýskalandi verða ógiltar eins og í Rúmeníu

Það eru mikil umbrot í stjórnmálum Evrópu. Ætli um sé að ræða uppreisn almennings gegn ríkjandi stjórnmálaaðli, sem tilbiður Drottin alheims í Davos?

Hirðmenn hans týna reyndar tölunni á alþjóðavettvangi líka. Valkyrjurnar, Justin Trudeau í Kanada, Jacinda Ardern á Nýja-Sjálandi og Katrín Jakobsdóttir á Íslandi, eru horfnar úr stjórnmálum á heimavelli. En öll munu fá – venjunni samkvæmt – feitar stöður á vegum Alþjóðaauðvaldsins. Jacinda og Katrín eru reyndar komnar á bás.

Það örlar á uppreisn í Austurríki, Frakklandi, Bretlandi, Tékklandi, Ungverjalandi, Slóvakíu, Rúmeníu og víðar. Lýðræðið er að verða valdhöfum Þrándur í Götu.

Forseta Ungverjalands hefur verið útskúfað meira eða minna, reynt var að ráða forseta Slóvakíu, Robert Fico, af dögum, og nú hafa Úkraínumenn skrúfað fyrir mikilvæga gasleiðslu til Vestur-Evrópu. Eins og kunnugt er sprengdu máttarvöld þeirra líka gasleiðslu Rússa, Þjóðverja og fleiri Evrópuþjóða, í Eystrasalti.

Nú hótar Katar aukin heldur að skrúfa fyrir gas til Evrópusambandsins, leggi Sambandið ekki á hilluna áætlanir um refsitolla vegna mannréttindabrota, svo og náttúrverndartolla. Donald Trump hótar öllu illu, nema Evrópubúar kaupi meira af rándýru gasi frá Bandaríkjunum.

Viðskiptaþvinganir Evrópusambandsins og Bandaríkjamanna gagnvart Rússum stuðla að efnahagslegri hnignun beggja, en efnahagslegum vexti í Rússlandi. Nú er svo komið, að meira að segja Sádar flytja inn rússneska olíu. Verð á orkumarkaði stígur til himins.

Á meðan er efnahagur Þýskalands (og fleiri Evrópuríkja) í frjálsu falli. Og það er náttúrulega Vonda-Valda að kenna eins og kuldatíðin á Íslandi og brunarnir í Englaborginni.

Eins og menn kannski muna, voru forsetakosningarnar í Rúmeníu áttunda desember 2024 ógiltar. Calin Georgescu er andsnúinn stríðinu í Úkraínu, herstöðvauppbyggingu Nató í Rúmeníu og alræðisvaldi Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar, þar sem hann starfaði.

Calin hefur auk þess ljóstrað upp um ólifnað yfirstétta, embættismanna og auðjöfra á alþjóðvettvangi, m.a. svívirðilegt athæfi þeirra gegn börnum.

„Valkostur fyrir Þýskaland“ (Alternative für Deutschland) í Þýskalandi er einnig óþægilegur ljár í þúfu Embættisdrottnunum í Evrópusambandinu, sem er eins konar kirkjudeild í Alheimsríkiskirkjunni með höfuðstöðvar í Davos.

Það sama á við um Nató og undirheimadeild þess, sem oft er kennd við Gladio. Hennar hlutverk er m.a. að stuðla að „réttum“ kosningaúrslitum í Evrópu, jafnvel með mannránum (Aldo Moro) og hryðjuverkum, ef verkast vill.

En ráðabruggið fer ekki eins leynt og áður var. Viðskiptajöfurinn og Evrópusambandströllið, Thierry Breton, segir t.d. á þessa leið:

Við verðum að framfylgja lögum Evrópu, þegar reynt er að fara í kringum þau og hætta er á, að lögleysan leiði til vandræða. Við gerðum þetta í Rúmeníu og vitaskuld verður að gera það í Þýskalandi, beri nauðsyn til.

Stefnumál Valkostsins fara verulega fyrir brjóstið á Thierry. Fulltrúi flokksins, Alice Weidel, lét hafa eftir sér:

Þann 23. febrúar mun verða ákveðið, hvort þjóð vor nái að brjóta hlekki aukinnar verðbólgu, afiðnvæðingar, offjölgunar flóttamanna, skattaráns, aukins atvinnuleysis og yfirvofandi hættu á stríði.“ Það eru þó miklu fleiri sem sjá, að Þýskaland sé á heljarþröm.

Þýski embættis- og stjórnmálamaðurinn, Michael von der Schulenburg, segir stefnu Evrópusambandsins gagnvart Úkraínu vera múgvitfirringu. Svipuð viðhorf má sjá hjá fleiri vitibornum stjórnmálamönnum, embættismönnum og herfræðingum Þjóðverja. Leiðtogar þar eins og vitfirringarnir í Washington virðast lifa í heimi veruleikafirringar og óskhyggju.

Allt er þetta vissulega eitur í beinum auðjöfra- og bankaúrvalsins í Davos, City og London og Wall Street. Það eru þess ær og kýr að heyja stríð með ýmsum hætti til að auka völd sín og auðævi og leggja okkur í tæknilæðing, svo við látum betur að stjórn.

Stefna Íslendinga er athygliverð. Í kosningum losuðu þeir sig við Katrínu Jakobsdóttur og Vinstri-græn, Framsóknarflokk og Sjálfstæðisflokk – flokka á jafnaðarmennsku- og „vók“-rófinu. Fylgi VG rann til Samfylkingar, hinna til Viðreisnar í miklum mæli.

Stjórnin, sem Íslendingar losuðu sig við, endurholdgast því í Valkyrjustjórninni. Grýlusjórn gæti þó fremur verið réttnefni. Hún styður heilshugar undirlægjuhátt gagnvart Evrópusambandinu, Bandaríkjunum og Nató, knúsar og kyssir karlana í Kænugarði og vill endilega sækja um aðild að öðru deyjandi bandalagi, Evrópusambandinu. Hún er andsetin grænu geggjuninni og kynjavitfirringu, sem alþjóðaauðvaldið m.a. beitir til að rugla fólk í ríminu og firra það heilbrigðri skynsemi.

Hvenær ætli stígi fram á sjónarsviðið stórhuga stjórnmálamenn, sem hafa þroska, þekkingu og vilja, til að hrista af sér hlekki for- og samtíðar, lýsa aftur yfir hlutleysi og friðarvilja íslenskrar þjóðar - og móta sjálfstæða utanríkisstefnu?

Eins og kunnugt er leitar klárinn þangað, sem hann er kvaldastur. Íslendingar lifðu örfá ár í reisn og frelsi undan áþján, áður en þeir játuðust undir Bandaríkin (varnarsamningur) og Nató. Frelsið varð þeim um megn.

https://deutsche-wirtschafts-nachrichten.de/710921/dwn-interview-mit-harald-kujat-ukraine-unterstuetzung-ohne-friedensstrategie?src=undefined https://www.youtube.com/watch?v=4pdFI3iUlIY https://korybko.substack.com/p/germany-is-preparing-to-assume-partial?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=146302317&utm_campaign=email-post-title&isFreemail=true&r=ry8jq&triedRedirect=true&utm_medium=email https://steigan.no/2024/07/tyskland-vi-ma-forberede-oss-pa-en-landkrig/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.welt.de/politik/deutschland/plus252253496/Nato-versus-Russland-Wir-muessen-uns-im-Schwerpunkt-auf-einen-Landkrieg-vorbereiten.html https://steigan.no/2024/03/avindustrialisering-uten-sidestykke-i-tyskland/?utm_source=substack&utm_medium=email https://unherd.com/2024/02/flailing-germany-is-the-future-of-europe/ https://steigan.no/2024/02/den-brutale-avindustrialiseringa-av-tyskland/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=5oKH90ObbY8 https://steigan.no/2024/12/begynnelsen-pa-slutten-for-det-tyske-miraklet/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=T_oGKW07WBs&t=3s https://steigan.no/2025/01/krigsdagbok-del-152-1-til-3-januar-2025/https://steigan.no/2025/01/krigsdagbok-del-152-1-til-3-januar-2025/ https://www.br.de/nachrichten/deutschland-welt/die-ampel-in-der-krise-wie-koennte-es-weitergehen,UTGUZAN https://steigan.no/2024/09/fra-volkswagen-til-thyssenkrupp-gigantene-i-tysk-industri-vakler/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/09/tysklands-forsommelse-av-nasjonale-interesser/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2024/09/den-tyske-okonomien-kollapser-helt-apenlyst/?utm_source=substack&utm_medium=email https://glenndiesen.substack.com/p/germany-and-the-eu-abandon-reason https://x.com/RMCInfo/status/1877247698241266060?ref_src=twsrc%5Etfw%7Ctwcamp%5Etweetembed%7Ctwterm%5E1877247698241266060%7Ctwgr%5Eddfbf57d522210028bf135cde1afbfa4d62ed168%7Ctwcon%5Es1_&ref_url=https%3A%2F%2Fsteigan.no%2F2025%2F01%2Fvi-annullerte-valget-i-romania-og-vi-kan-gjore-det-samme-i-tyskland%2F https://steigan.no/2025/01/vi-annullerte-valget-i-romania-og-vi-kan-gjore-det-samme-i-tyskland/


Þegar Íslendingar seldu sálu sína og frelsi. Fyrri hluti

Íslendingar höfðu verið hernum þjóð um aldir, þegar þeir urðu fullvalda 1918. Lýðveldið var stofnað 1944. Íslensk stjórnvöld hétu ævarandi hlutleysi. En það breyttist fáum árum síðar.

Breskt innrásarlið afhenti Bandaríkjunum land og þjóð á silfurfati í upphafi hernáms Breta. Forsætisráðherra Íslendinga, formaður Sjálfstæðisflokksins, Ólafur Tryggvason Thors (1892-1964), talaði um að lána landið „í baráttu fyrir frelsinu.“

Eiginlega á hann við varnarsamninginn fyrri við Bandaríkin frá 7. júlí 1941. Sá síðari var gerður tíu árum síðar fyrir tilstuðlan Nató. Þá var Bjarni Ben I, utanríkisráðherra. Hernámsliðið breytti um ham og varð varnarlið, sem hvarf á brott 2006 – en er nú komið aftur.

Áður en að því kom gengu Íslendingar í Nató. Hugsun forsætisráðherra, Ólafs Tryggvasonar Thors, er einkar áhugaverð:

„Atlantshafssáttmálinn liggur nú fyrir, hefur legið fyrir umheiminum um nokkurt skeið, og þá einnig fyrir okkur Íslendingum. Hann er sáttmáli um það, að frjálsar þjóðir efni til frjálsra samtaka til varðveislu friðarins í veröldinni. Hann er hollustueiður frelsisunnandi þjóða til friðar, jafnrjettis og sjálfsákvörðunarrjettar. …

Hann er sáttmáli um það, að aldrei skuli herstöðvar vera á Íslandi á friðartímum. Hann er sáttmáli um það, að Íslendingar láni baráttunni fyrir frelsinu, sömu afnot af landi sínu, ef til átaka kemur sem þeir gerðu í síðustu styrjöld. Hann er sáttmáli um það, að reyni nokkur nokkru sinni að teygja hramm sinn yfir fald fjallkonunnar, þá rísi 330 milljónir best menntu þjóða veraldarinnar upp til varnar frelsi hennar og fullveldi. Sáttmálinn er mesti og merkasti friðarsáttmáli, sem nokkru sinni hefur verið gerður í heiminum.“

En minni stjórnmálamanna og alþýðu var skammt þá eins og nú. Íslenska ríkisstjórnin gerði nýjan herstöðvarsamning einungis tveim árum, eftir inngöngu í Nató. Henni þótti ekki nauðsyn bera til að bera samninginn undir Alþingi. Nató-aðildin var einnig samþykkt með undarlegum hætti.

Í umsögn Kristjáns E. Guðmundssonar um bók Elfars Loftssonar, „Ísland í Nató. Stjórnmálaflokkar og varnarmálefnin“ (Island í NATO – partierna och försvarfrågan), segir hann:

„ … [h]öfundur [fjallar] um aðdraganda þess að við gengum í NATO, hvernig sú ákvörðun var tekin utan alþingis og hvernig sú ákvörðun var keyrð í gegn með miklu offorsi.“

Valur Ingimundarson, sagnfræðingur, hefur trúlega manna mest rannsakað inngöngu Íslendinga í Nató og tildrögin að varnarsamningsgerðinni, sem vissulega er nátengd.

Valur hefur m.a. skrifað bókina [A] „Í eldlínu kalda stríðsins: Samskipti Íslands og Bandaríkjanna 1945-1960,“ og [B] „Framkvæmd varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna. Útvistun hervarna og túlkanir á fullveldi.“ Um er að ræða kafla í safnriti undir ritstjórn Guðmundar Jónssonar: „Frjáls og fullvalda ríki. Ísland 1918-2018.“

Ég leitast í framhaldinu við að koma niðurstöðum rannsókna til hans til skila í hnotskurn. Blaðsíðutal í sviga.

Kalda stríðið á Íslandi:

„Þegar spurt er um upphaf kalda stríðsins á Íslandi er freistandi að miða það við gerð Keflavíkursamningsins árið 1946. Sá samningur batt enda á samstarf hægri og vinstri aflanna í íslenskum stjórnmálum sem komið hafði verið á með myndun nýsköpunarstjórnar Sjálfstæðisflokks, Sósíalistaflokks og Alþýðuflokks árið 1944. Þór Whitehead sagnfræðingur telur að sú stefna sem mörkuð var með Keflavíkursamningnum hafi legið „milli hlutleysis og fullrar samstöðu með Vesturveldunum.“ (A17)

Íslenski herinn og fullveldið:

„Bjarni Benediktsson, helsti hvatamaður varnarsamningsins, taldi að Ísland væri í raun ekki fullkomlega sjálfstætt fyrr en það kæmi sér upp eigin varnarliði, jafnvel þótt það væri aðeins táknrænt.“ (B243)

Herverndarsamningur við Bandaríkin og afsal hlutleysis:

„Með gerð herverndarsamnings við Bandaríkin 1941 sögðu íslensk stjórnvöld í raun skilið við hlutleysisstefnuna sem mörkuð var árið 1918. Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokksins, neitaði því reyndar að herverndarsamningurinn bryti í bága við sambandslögin og yfirlýsinguna um ævarandi hlutleysi. Íslensk stjórnvöld hefðu ákveðið „að skipa á hernámsliði styrjaldaraðila og herliði hlutlauss stórveldis, þiggja hervarnir hlutlausrar þjóðar í stað hernáms ófriðaraðila.“ (A17)

„Talsmenn Sameiningarflokks alþýðu – Sósíalistaflokksins héldu því fram að herverndarsamningurinn væri nauðungarsamningur.“ (A17)

Varnarsamningurinn var samþykktur með 39 atkvæðum gegn 3. Fjölmörg samtök og menntamenn mótmæltu herstöðvum á Íslandi, m.a. stuðningsmenn stjórnarinnar Einar Ólafur Sveinsson, Ólafur Lárusson, Gunnar Thoroddsen og Sigurður Bjarnason frá Vigur.

Stjórnarandstaðan hélt því líka fram, að herverndarsamningurinn bryti í bága við 21. greinar stjórnarskrárinnar.

Valur heldur áfram: „En málsmeðferðin var vissulega óeðlileg, enda lagði Alþingi ekki blessun sína yfir herverndina fyrr en Bandaríkjaher var kominn til landsins. Hermann Jónasson viðurkenndi að sér hefði verið þvert um geð að gera þennan samning, en látið raunsæissjónarmið ráða ferðinni. Ekki þarf að ganga að því gruflandi að Hermann átti fáar undankomuleiðir. Breski sendiherranna, Howard Smith, fékk þau fyrirmæli að „sjá til þess“ að Íslendingar samþykktu hervernd Bandaríkjastjórnar.“ (A18)

„Ríkisstjórn Íslands leit heldur rekki svo á að nauðsynlegt væri að afla samþykkis Alþingis fyrir varnarsamningnum árið 1951, þar sem hann var reistur á Norður-Atlantshafssamningnum. Reyndar hafði samsteypustjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks tryggt sér skriflegan stuðning 43 þingmanna af 52 áður en Bandaríkjaher kom hingað í upphafi maí 1951. En stjórnin lagði samninginn ekki fyrir Alþingi heldur kaus að gefa út bráðbirgðalög til að lögfesta hann.“ (B247-8)

Kjarnorkuvopn:

„[Bandaríkjamenn] vildu þeir eiga þess kost að staðsetja hér kjarnorkuvopn á ófriðartímum og komu því inn í „leyniviðauka“ varnarsamningsins að þeim yrði gert kleift að taka yfir fulla stjórn á almennri flugstarfsemi og -umferð á Íslandi samkvæmt eigin hættumati.“ (B245)

Samningsgerðin og þrýstingur Bandaríkjamanna - uppsagnarákvæði:

„Bandaríkjamenn gerðu því engar tilraunir til að hundsa uppsagnarákvæði samningsins eða halda hernum í trássi við vilja stjórnvalda. Í skýrslu þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna frá árinu 1957 var reyndar komist svo að orði að ekki væri unnt að „sætta sig við“ það að herinn hyrfi á landi brott. Bandaríkjastjórn var þó ekki reiðubúin að brjóta fullveldi Íslands með því að halda hernum með valdi ef varnarsamningnum yrði sagt upp.“ ….

Bandaríkjamenn gripu þó til „sálfræðihernaðar“, t.d. með því að draga skyndilega úr framkvæmdahraða á Keflavíkurflugvelli í aðdraganda þingkosninganna árið 1956 til að sýna fram á efnahagsafleiðingar þess ef herinn yrði látinn fara.

Sérstakri nefnd var komið á innan bandaríska stjórnkerfisins með þátttöku leyniþjónustunnar CIA til að freista þess að koma í veg fyrir þessi áform. Nefndin vildi að innlendir og erlendir stuðningsmenn „vestrænnar samvinnu“ yrðu fengnir til að fá Alþýðuflokkinn og Framsóknarmenn af fyrirætlunum sínum.

Til að sýna fram á efnahagslegt mikilvægi herstöðvarinnar stöðvuðu Bandaríkjamenn allar framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli og þrýstu á Vestur-Þjóðverja um að halda að sér höndum um lánafyrirgreiðslu til Íslands.

Annað dæmi um slíkan „sálfræðihernað“ var þegar sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, Frederick Irving, beitti Einar Ágústsson utanríkisráðherra miklum pólitískum þrýstingi á árunum 1972-1974 til að freista þess að ná málamiðlun í hermálinu sem gerði ráð fyrir fækkun í herliði, en að Bandaríkjaher héldi aðstöðu sinni hér.

Þetta skipti þó ekki sköpum. Bæði í vinstri stjórninni 1956-1958 og 1971-1974 voru skiptar skoðanir um hvort halda ætti fast í þá kröfu að allt herlið hyrfi frá Íslandi. Önnur mál en hermálið höfðu úrslitaáhrif um það að vinstri stjórnirnar tvær fóru frá án þess að ná markmiðum sínum um brottför hersins.“ (B258-259)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Júní 2025

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband