Tíðindi af austurvígstöðvunum. Brjálaði Bandaríkjamaðurinn

Smám saman er hulunni flett af hráskinnaleiknum í Úkraínu, tildrögum hans og framvindu. Það kemur sífellt betur í ljós, að það vakti aldrei fyrir leppyfirvöldunum í Kænugarði og stjórnendum þeirra í Washington og Brussel að semja frið við Rússa í Úkraínu og rússneska ríkjasambandið. Minsk samkomulagið var einungis til að draga rússneska viðsemjendur á asnaeyrunum, meðan á uppbyggingu úkraínsk Natóherafla stóð.

Í ljósi utanríkisstefnu Bandaríkjanna þarf þetta ekki að koma á óvart. Á grundvelli þessarar stefnu var á tíunda áratugi síðustu aldar gerður varnarmálasamningur Bandaríkjanna og Úkraínu fyrir tímabilið 1993-2001, sem Frank Morgese við Hernaðarháskólann í Pennsylvania hefur skrifað um (U.S. – Ukraine Security Cooperation 1993-2001: A Case History).

Það hefur verið dustað rykið af öðru mikilvægu plaggi frá sama tíma um tildrög afskipta Bandaríkjamanna í Úkraíniu. Skýrslan er samin af Barry Posen, prófessor í stjórnmálafræði og herkænskufræðingi. Hún er kölluð: „Varnarstefna fyrir Úkraínu“ (A Defense Concept for Ukraine). Skýrslan var fyrst gefin út árið 1994, en grafin upp nú.

Nokkur atriði úr skýrslunni: Líklegt er talið, að ögra megi Rússum til innrásar í Úkraínu; í Úkraínu verður að æsa til þjóðernisviðhorfa; styðja verði ráðsnilld með skelfilegum sjónvarpsfréttum; fjölga þurfi tækifærum Úkraínumanna til að valda umfangsmiklu (disproportionate) tjóni; flytja verði herafla og landher Nató til Póllands; stjórn- og herkænska Úkraínumanna skuli vera til þess fallin að ala á ótta Rússa við þátttöku Nató í stríðinu.

En hernaður Úkraínumanna mun engu að síður misheppnast skelfilega og her þeirra verður útrýmt; klofin Úkraína mun síðan fá hliðstætt hlutverk í nýju, köldu stríði, og Þýskaland í því fyrra; mikilvægt er að hvetja Úkraínumenn til að sprengja eigin borgir og innviði í tætlur; Úkraínumönnum verður að takast að sannfæra granna sína um, að þeir hafi á að skipa milljón mönnum, sem eru fúsir til að fórna sér; Úkraínumönnum verður að lærast að leggja ást á Pólverja og sætta sig við að verða sorphaugur fyrir gömul vopn; auðsær skynsemisskortur aðgerða í því umfangi, sem hér er gert ráð fyrir, ætti ekki að verða til trafala; gangi þetta ekki upp, skyldi skjóta kjarnorkusprengju á Rússa.

Af þessari skipulögðu þróun er skiljanlegt, að margir hafi áhyggjur um öryggi í veröldinni. Nú hefur komið í ljós, að fyrrum forsætisráðherra Ísraels, Naftali Bennet, hafi meira að segja reynt með nokkrum árangri að miðla málum milli Rússa og Úkraínumanna. En yfirvöld Vesturveldanna voru þar þrándur í götu og stöðvuðu viðræðurnar. Það fór á sömu leið í Miklagarði, þegar friðarsamningar voru í augsýn.

Fréttir svissneska dagblaðsins, Neu Zürcher Zeitung, um friðarumleitanir af hálfu Joseph Biden, eru tvíræðar. Forstjóri leyniþjónustunnar, William J. Burns, á þar að hafa verið milligöngumaður. Newsweek hefur einnig fjallað um skýrslu, þar sem þetta kemur fram, sem og Washington Post. Newsweek staðhæfir, að Bandaríkjaforseti hafi boðið Vladimir Putin um fimmtung Úkraínu, svo átökum mætti linna. Svo virðist sem áhrifamenn í Washington séu ekki öldungis á eitt sáttir um stríðsböltið. Rússar þvertaka fyrir, að slíkt boð hafi borist.

Það eru fleiri um þá hituna að miðla málum í stríði Nató og Rússlands í Úkraínu. Hinum nýja forseta Brasilíu, Lui Inácio Lula da Silva, datt í hug, að G20 ríkin væru kjörin til þess að miðla málum. Áður hefur hann borið saman tilburði Bandaríkjanna til að steypa löglega kjörinni stjórn Venesúela af stóli við innrás Rússa í Úkraínu. Rússar hafa kurteislega afþakkað.

Indverjar eru einnig í hópi ríkja, sem eindregið hvetja til friðarsamninga, rétt eins og Tyrkir, Brasilíumenn og Ísraelar á sínum tíma. Í viðtali við ástralska sjónvarpsstöð benti utanríkisráðherra Indverja, Subrahmanyyam Jaishankar, viðmælanda sínum á þá staðreynd, að miklu fleiri ríki en rússnesk ríkjasambandið – í Evrópu einnig – hefðu spillt friðhelgi fullvalda ríkja. Þess má til fróðleiks geta, að Indverjar hreinsa nú rússneska olíu fyrir alþjóðamarkað, m.a. þann bandaríska.

En þrátt fyrir friðarumleitanir úr ýmsum áttum hafa Bretar gert lýðum ljóst, að þeir muni þjálfa úkraínska herflugmenn, samkvæmt þjálfunarskrá Nató. Þeir hafa tjáð sig um þá sannfæringu sína, að bráðum muni Úkraínumenn þiggja orrustuflugvélar frá Bandaríkjunum í viðbót við skriðdrekana.

Það eru líka fréttir af hinum blóðuga vígvelli. Breska varnarmálaráðuneytið upplýsir, að Bahamut sé í þann mund að falla í hendur Rússa, þar sem leiguhermenn Rússa, Wagnerhersveitin, fer í fararbroddi.

En það blása aðrir vindar um bandarísku leiguliðaherveitina, Mozart, sem er ein af fleirum af sama toga í Bandaríkjunum. Hún barðist undir herstjórn „brjálaða Bandaríkjamannsins“ eins og Úkraínumenn kalla Andy Milburn. Þessari stríðshetju þykir sopinn góður. Því er líklegt, að hann hafi talað af sér í viðtali.

Andy sagði nefnilega, að Úkraínumenn væru spillt þjóð og samfélagið í upplausn (fucked up). Trúlega hefur játning hans, þess efnis, að úkraínsku hermennirnir, sem hann þjálfaði, hefðu myrt rússneska stríðsfanga, komið honum í koll. „Það var mikið um það,“ sagði hinn málhreifi Andy.

Þegar rann af Andy, sagði stríðshetjan, að viðmælandinn, Max Blumenthal, væri útsendari Rússa, því væri ekki mark takandi á orðum hans. Úkraínskur herforingi tók svo til orða, „getur hann ekki bara farið heim og hætt að bjarga okkur“?

En trúlega munu barir Kænugarðs sakna bandarískra aðdáenda Mozart. Það gerir vafalaust líka fylgdargyðjan, sem Andy réði fyrir 90.000 dali á kostnað fyrirtækisins. Þjónusta þess er greidd af skattgreiðendum Vesturlanda. En herforinginn er eins og sönnum riddara sæmir, hvergi af baki dottinn. Hann ku ætla sér að stofna nýjan her.

Hinn herskái Andy kynni að slást í för með Þjóðverjum, sem á nýjan leik ætla sér landvinninga í austri. Alla vega hefur utanríkisráðherra þeirra, Annalena Baerbok, lýst yfir stríði á hendur Rússum, sem Nató hefur skilgreint sem erkifjendur sína. Leopard skriðdrekum er aftur stefnt í austur í hendur úkraínskra nýnasista á vígstöðvunum.

Minningarnar frá Stalingrad gerast nú nærgöngular hjá rússnesku þjóðinni. Samtímis er alið á óttanum um allsherjar heimsstyrjöld.

https://www.welt.de/politik/deutschland/article243421273/Auswaertiges-Amt-erklaert-Baerbocks-Krieg-gegen-Russland-Satz.html https://libya360.wordpress.com/2023/02/01/1993-the-barry-r-posen-plan-for-war-on-russia-via-zombie-state-ukraine/ https://worldbeyondwar.org/medea-benjamin-nicolas-davies-negotiations-still-the-only-way-forward-to-end-ukraine-war/ https://www.youtube.com/watch?v=XSoa91i-l3s https://edition.cnn.com/europe/live-news/russia-ukraine-war-news-2-8-23/h_23b1a4ec924c3c54d73cb8a5729a13e9 https://www.thepostil.com/wp-content/uploads/2023/01/US-Ukraine-Security-Cooperation-1993-2001-A-Case-History.pdf https://www.thepostil.com/wp-content/uploads/2023/01/A-Defense-Concept-for-Ukraine-Posen-1994.pdf https://korybko.substack.com/p/the-uks-training-of-ukrainian-fighter?utm_source=post-email-title&publication_id=835783&post_id=101610763&isFreemail=true&utm_medium=email https://www.rt.com/news/570739-brazil-lula-ukraine-peace/?utm_source=substack&utm_medium=email https://steigan.no/2023/01/usas-krig-mot-russland-er-allerede-avgjort/?utm_source=substack&utm_medium=email https://thegrayzone.com/2023/02/03/crazy-american-andy-milburns-drunken-mercenary-group/ https://korybko.substack.com/p/the-russian-ambassador-to-india-indirectly?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.youtube.com/watch?v=qK9tLDeWBzs&t=10774s https://www.youtube.com/watch?v=ogTzJXBZs5E https://www.youtube.com/watch?v=4-MJh1NpNok https://steigan.no/2023/02/rapport-biden-skal-ha-tilbudt-russland-20-prosent-av-ukraina-for-a-avslutte-krigen/?utm_source=substack&utm_medium=email https://www.newsweek.com/joe-biden-vladimir-putin-ukraine-territory-end-war-nzz-report-1778526 https://www.visionnews.online/post/germany-sends-nazi-battalion-leopard-1-tanks-to-help-fight-russia?postId=f5aca8ed-1b87-4a33-a258-11f74f609aeb&utm_campaign=19fd117a-a0b6-4cc4-b9ab-fdce8cd4c2a0&utm_source=so&utm_medium=mail&utm_content=e9a7e085-803a-4579-abe4-900186d5c146&cid=13822ff6-9cac-4fec-a138-6b457b06a2f5 https://www.hurriyetdailynews.com/nato-allies-want-longer-ukraine-war-to-weaken-moscow-turkey-173158 https://news.antiwar.com/2023/02/03/report-biden-pushed-peace-plan-that-recognized-russias-control-over-20-of-ukraine/ https://news.antiwar.com/2023/02/05/germany-open-to-theories-that-a-western-country-attacked-nord-stream-pipelines/ https://www.washingtonpost.com/national-security/2023/01/19/cia-william-burns-zelensky-ukraine-russia/ https://www.axios.com/2022/03/08/israel-russia-ukraine-ceasefire-critical-point https://tass.com/politics/1571089 https://news.antiwar.com/2023/02/05/former-israeli-pm-bennett-says-us-blocked-his-attempts-at-a-russia-ukraine-peace-deal/ https://archive.md/D7XzH


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Arnar Sverrisson
Arnar Sverrisson
Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis.

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband