Í glatkistu kvenfrelsunarsögunnar er margt athyglisvert að finna einkum í handraðanum. Stundum er sagt, að skíni á gull, þótt í skarni liggi. Það á við um Rebecca Ann Latimer Felton (1835-1930). Hún var rithöfundur, fyrirlesari, endurbótamaður og stjórnmálamaður frá Georgíuríki, Bandaríkjum Norður-Ameríku.
Norður-amerískir kvenfrelsarar á nítjándu öldinni stigu margir hverjir sín fyrstu skref á hugmyndafræði- og aðgerðabrautinni, eftir hina mögnuðu sjálfstæðisyfirlýsingu kvenna um miðja öldina. Yfirleitt fóru þar yfirstéttarkonur fremstar í flokki. Konurnar börðust einkum fyrir kosningarétti, bindindi og getnaðarvörnum. Sumir þeirra beittu sér sömuleiðis fyrir afnámi þrælahalds. Það gerði Rebecca hins vegar ekki. Hún var kynþáttahatari eins og fleiri kvenfrelsarar þeirra tíma.
Orðstír Rebekku reis líklega hæst, þegar hún tók sæti á alríkisþinginu, þótt það væri skammgóður vermir. Hún þjónaði á þeim vettvangi einungis einn sólarhring. Næsti kvenfulltrúi frá Georgíu, tók þar sæti um heilli öld síðar. Rebekka var þó öllum hnútum kunnug á þeim vígstöðvum. Hún studdi nefnilega karl sinn, William Harrel, alríkisþingmann, með ráðum og dáð. Aðgerðaskrá Rebekku tók m.a. til bindindis, kosningaréttar og jafnréttis til launa, þ.e. fyrir hvítar konur. Rebekka hundskammaði Suðurríkjakarla fyrir að tala tveim tungum. Þeir teldu sig öðrum körlum riddaralegri eða fórnfúsari (chivalry), en andæfðu kröfum kvenna um kosningarétt.
Hjónakornin ráku plantekru. Í kjölfar borgarastríðins, þegar þrælahald var afnumið, hrundi efnahagur þeirra. Vinnuafl varð of dýrt. Hún var síðasti þrælaeigandi meðal þingfulltrúa. Rebekku lá ekki gott orð til blakkskinna, kallaði karlana hálfsiðaðar górillur, sem byggu yfir hrottafengnum kynlosta gagnvart hvítum konum. (Þetta vara reyndar algengt viðhorf hvítra kvenna og karla.) Skiljanlega taldi hún því aftökur hinna hálfsiðuðu lostafullu górilla dýrlegan gjörning og hvatti eindregið til þeirra.
Skömmu fyrir þar síðustu aldamót (1898) sagði Rebekka: Þegar skortir trúarlegar áherslur úr prédikunarstólnum, svo að skipuleggja megi herferð á hendur syndinni; [þegar skortir] réttlæti í réttarsalnum, svo refsa megi með réttu fyrir glæpi; [þegar skortir] karlmennsku þegnanna til verndar sakleysi og dygð sé þörf aftöku til að vernda hið dýrmætasta í fari konu (possession) frá kynþyrstum mannófreskjum þá segi ég; takið af lífi, þúsund sinnum í viku hverri, bjóði nauðsyn svo.
Það er fátt nýtt undir sólinni. Um sjötíu árum síðar blésu áróðurmenn kvenfrelsaranna í glæðurnar, valdelfdar af áróðursstríði þýskra þjóðernissinna. En nasistar, fasistar, hryðjuverkmenn og ótíndir morðingjar voru all nokkrir meðal þeirra. Ný nauðgunaráróðursbylgja hófst og stendur enn. Fræðamóðir þeirra, Elizabeth Cady Stanton (1815-1902), hafði sömuleiðis kynnt undir karldjöfulsbálinu hálfri öld áður. Hún sagði reyndar alla karla uppsprettu eðlislægrar illsku. Henni fórust svo orð:
Karlinn er þrunginn tortímingu; harðneskjulegur [og] sjálfselskur. Hann unnir stríði, ofbeldi [og] sigurvinningi, miklast af sjálfum sér og leggur að fótum sér. Eins og í hinum veraldlega heimi sáir hann í siðferðið ósætti, glundroða, sjúkdómum og dauða. ... Yfirburðir kynferðis okkar sem kvenna eru óendanlegir.
Nauðgunarflóðbylgjuráróðurinn skall á háskólum Vesturlanda og samfélaginu öllu. Hugtakið er stöðugt þynnt út og kvenfrelsunarvísindum beitt markvisst til að ljá áróðrinum trúverðugleika. Þriðju hverri konu er nauðgað, gellur úr kvenfrelsunargjallarhornunum. Það er vísindalega sannað. Fjölmiðlar leika undir. En til allrar hamingju takmarkast eiginlegar nauðganir karla á konum við um 0.2 til 0.5 prósent kvenna eða svo á Vesturlöndum. (Erfitt að meta með skýrari vissu, þar eð skilgreiningar, skráning og úrvinnsla er misjöfn.)
Nauðganir eru vitaskuld óhæfa. En nauðganir kvenna á konum með eða án verkfæra, vekja ekki athygli. Því síður, þegar konur hvetja karla sína að nauðga kynsystrum sínum eða dreymir um þá skrítnu staðfestingu kvenleikans að vera nauðgað - eða leggja beinlínis upp til kynlífs með hópi karla af fúsum og frjálsum vilja, og kalla síðar nauðgun. Umfjöllun um falskar nauðgunarákærur ber varla á góma. Alla vegar forðast rannsóknarblaðamenn RÚV efnið eins og heitan eldinn.
Eldri færslur
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
Bloggvinir
Af mbl.is
Innlent
- Ráðgátan um skilti Ormsson enn óleyst
- Ekki unnt að réttlæta slík fjárútlát
- Efast um að hann fái það fé sem hann vill
- Samningar Samiðnar samþykktir
- Landris heldur áfram við Svartsengi
- Grunsamlegar mannaferðir á Akranesi
- Þetta var ekkert grín
- Mikilvægt að setja upp heimilisofbeldisgleraugun
- Íbúar og fyrirtæki mega vera í Grindavík
- Fangi lést á Sogni
- Afléttingu trúnaðar af skýrslu krafist
- Ellefu deila efsta sætinu
- Hjón og sambúðarfólk 18% umsækjenda
- Beint: Málstofa um framtíð rammaáætlunar
- Skoða hvort hleypa megi íbúum aftur í bæinn
Erlent
- Síðasti áratugur sá heitasti
- Áformuðu hryðjuverk í Svíþjóð
- Íslenskir hestar og hundar frá Gasa á JFK-flugvelli
- Macron boðar aðgerðir gegn glæpasamtökum í Marseille
- Unglingur grunaður um morð í Svíþjóð
- Pusher Street lokað í þrjá daga
- Segir ketamínnotkun sína fjárfestum í hag
- Rússar skipta um flotaforingja
- Vilja auka við ísbjarnarveiðikvóta
- Táningur grunaður um morð á 17 ára stúlku
- Trump skortir reiðufé vegna áfrýjunar
- Yfirvofandi hungursneyð á Gasa fordæmalaus
- Háttsettur leiðtogi Hamas drepinn
- Vafi um mannfall á Gasa
- Sat þarna og starði á gatið allan tímann